Fjallkonan - 29.10.1895, Qupperneq 4
180
FJALLKONAN.
XII 44
prinzessa, ein hertogafrú, ein greifafrú og dóttir eins
ríkjandi stjórnanda; þær vóru auðvitað ekki algengir
þjófar, enn haldnar af stelsýki (Kleptomani), og sættu
því að eins fjársektum, 100,000 franka, og gengr sú
upphæð til fátækra í París.
Lífið í Georgíu.
(Eftir Henri Cantell).
(Frh.). Þegar furstaekkjan var búin að gegna
sorgarskyldu sinni, gekk hún heim og Dimitri inn í
fylgsni sitt fullr sorgar og sálarstríðs. Þegar Daría
var komin heim, vitjuðu hennar vinir og ættingjar
til að votta henni hluttekningu í sorg hennar. í
hvert skifti, sem eiuhver lofaði mannkosti furstans,
setti að henni grát mikinn og gekk á þessum sorg-
arlátum alt til sólarlags.
Um kvöldið sátu þjónar Dimitri á tali og hvísl-
aði Jakob að Basili: (í dag hefir frúin grátið fleiri
tárum enn á allri sinni liðnu æfi’.
(Það er með sorgina’, svaraði Basili, (eins og
bragðvondar inutökur; maðr verðr að taka hana í
einu’.
(Þegar menn finna verulega tii sorgarinnar, þá
gengr hún inn í hjartað eins og öxin í tréð’.
(Heldrðu að furstafrúin elski Armeninginn?’
(Bróðir’, sagði Jakob með vanalegum klókindum,
(við skulum ekki skifta okkur af annara málum ; ann-
ars verðum við kannske sendir á Erívanstorgið. Þú
veizt hvar það er. Þú veizt líka, að enginn kemr
þaðan öðruvísi enn húðflettr á bakinu’.
í tíu daga samfleytt vitjaði Daría grafarinnar til
að endrnýja bænir sínar og kveinstafi. Nú var kom-
ið stórt minnismerki úr granít yfir gröfina eftir þýzk-
an steinhöggvara. Dimitri gladdist daglega við það,
að horfa á sorgarörvæntingu konu sinnar, og altaf
var hugr hans á báðum áttum milli hefndar og fyrir-
gefningar. Hann hafði á ferðalagi sínu umskapazt í
Evrópumann til hálfs, svo skoðun hans á ástinni og
jafnvel hjónabandsástinni líka var (rómantisk’. Enn
(Jeorgíu kvenfólkið er eins og plönturnar, sem deyja
á sama blettinum og þær fæðast, og þrátt fyrir öll
skrúðmæli í hinu skáldlega ástamáli Georgíumanna,
þá er ástin hjá þeim ekki nema fiöktandi ástríða,
sem snertir sálina lauslega. Menn munu því geta
skilið að sorg Daríu sefaðist fljótt, þar sem afbrýði
Dimitri fór dxgvaxandi.
Sá sem efast um hin snöggu aftrhvörf til villu-
skaparins. sem hjá G-eorgíumönnum sjást svo oftlega,
frá hinni mestu prýði í ytri siðunum, svo mótsetn-
ingin verðr hin gífrlegasta, — hann mun ekki geta
annað enn sannfærzt, þegar hann heyrir niðrlagið á
sögu Dimitri Dómenti.
Það var eina myrkviðrisnótt, að furstinn lagði
af stað frá Tiflis, fullhraustr að heilsu og fylgdi Grí-
gory honum. — Næsta morgun í býtið komu þeir
að bænum, þar sem Dató bróðir Grigory átti heima,
og hafði hann búizt við komu þeirra. (Frh.).
Strandferðaskipið (Thyra) fór héðan á mánu-
dagsmorguninn kring um land og áleiðis til Kaupm.-
hafnar.
Skipströnd og flárskaðar urðu einkum á Norðr-
landi í óveðrinu 3. okt.; á Eyjafirði braut tvö skip
önnur enn (Stamford’, hákarlaskip og norskt kaup-
skip. Á Reyðarfirði strandaði fiskiskipið (Anna’, eign
Guðmundar Einarssonar i Nesi við Seltjörn. — Fjár-
skaðar urðu víða miklir, og mun hafa kveðið mest
að þeim í Norðr Þingeyjarsýslu.
Dáinn 27. okt. hér í bænum séra ísleifr Einars-
son, yfir 60 ára að aldri. Hann beið bana af byltu, sem
hann fekk á götum bæjarins daginn áðr. Hann var
vígðr að Reynistaðarklaustri 1864, enn var eíðan
prestr víða, og síðast að Stað í Steingrímsfirði. Hann
var tvíkvæntr; fyrri kona hans var Karólína Þor-
bjarnardóttir frá Grundarfirði, enn síðari kona Sesselja
Jónsdóttir prófasts Hallssonar, sem lifir hann. Börn
hans, sem eru á iífi, eru: Karólína frú Guðmundar
læknis Hannessonar, Louisa og Jón lærisveinn í la-
tínuskólanum. — Séra ísleifr var gáfumaðr og vel
látinn.
Skagafjarðarsyslu, 14. okt.: (Tíðin er nú farin
að versna; með þessum mánuði brast á norðan hríð
með ákafri fannkomu. Fenti víða fé og hross. Stór-
viðrið var mikið og því stórbrim. Sagt er að um
60 skip og bátar hafi skemst eða þá alveg eyðilagzt
í kringum fjörðinn og ýmsar aðrar skemdir urðu á
heyjum og húsum. — Nú er haustverzlun vor sem
hæst standandi. Fjártaka verðr mikil; fyrir bezta kjöt
gefið 18 au., enn 12 a. minst, pundið. Mr. Franz
keypti fé á fæti til útflutnings. Bezt mun hann hafa
borgað sauði í Húnavatnssýslu, frá 14—18 kr. full-
orðna, ef vænir vóru; vetrgamalt fé og geldar ær
keypti hann einn og borgaði 10—12 kr., alt í pen-
ingum, svo nú er í bráð bætt úr mestu peningaekl-
unni. Slátrfé virðist víða með lakara móti. — Bráða-
pestin er farin að gera vart við sig’.
Allar tegundir og allar stærðir af útlendum skófatn-
aði sel ég nú og framvegis með svo afarlágu vérði, að enginn
hér í Rvík mun selja jafn ðdýrt.
Rvik, 28. okt. 1896.
Rafn Sigurðsson.
í VESTRGÖTU 12. eelBt: vðnduð ný kommðða og
gítar.
FUÚpiir kaupir
______________________M. Johannessen.__________
í verzlun Magnúsar Einarssonar úrsmiðs á Vestdals-
eyri við Seyðisfjörð fást ágæt vasaúr og margs konar vand-
aðar vörur með mjög gúðu verði.
Allir, sem skulda mér eru vinsam-
lega beðnir að borga það í pening-
um í haust.
Seyðisfirði 14. sept. 1895.
_______________M. Einarsson.___________
Nr. 28 af þessum árgangi FjaUkonunnar kaup-
ir útgefandi.__________________________________
Útgefandi: Vald. Ásmundarson.
FélagsprentsmiOjan.