Fjallkonan


Fjallkonan - 23.06.1896, Síða 2

Fjallkonan - 23.06.1896, Síða 2
102 FJALLKONAN. xm 26 Þrjá lífsábyrgðarfélög hafa nú umboðsmenn hér á landi; Lífsábyrgðar- og framfærslustofaunin danska frá 1871, enska félagið .Star’ og sænska félagið jScandia’. Auk þess munu einstakir menn hér á landi hafa keypt sér lífsábyrgð í öðrum félögum. Yér þekkjum ekki þessi þrjú félög svo vel, að vér getum með vissu sagt um, við hvert bezt er að skifta; það munu vera áhöld um vaxtareikninginn, enn tilhögunin getr verið misjaínlega hagauleg og munr getr verið á, hve lipr félögin eru í viðskift- um. Þess hefir ekki verið getið, að lífsábyrgðarfélag- ið danska frá 1871 né heldr (Star’ haíi gert meira enn skyldu sína í viðskiftum við menn hér á landi, enn að félagið (Scandia’ hafi gert það, sýnir dæmi, sem hér skal frá skýrt. Umboðsmaðr þess félags er kaupmaðr Stefán Th. Jónsson á Seyðisfirði. í fyrra sumar keypti snikkari nokkur, Stefán Jónsson að nafni, á Papós, lífsábyrgð hjá félaginu (Scandia’ fyrir 1500 kr., enn hann druknaði áðr enn ábyrgðarskjalið kom honum í hendr. Var þá félagið ekki skylt að greiða ábyrgðarféð, því samkvæmt regl- um félagsins kemr ábyrgðin ekki fyr í gildi enn þá er ábyrgðarskjalið er afhent eiganda. Eigi að síðr sendi félagið alía upphæðina til útborgunar erfingj- um hans. Það er því óhætt að fullyrða, að félagið .Scandia’ sé mjög mannúðlegt í viðskiftum og að öllum líkind- um ljúfara viðfangs enn danska félagið (frá 1871’ eða (Star’, enda eru Svíar fremri öðrum Norðrlanda- þjóðum að því er snertir lífsábyrgðarfélög og fyrir- komulag þeirra; þeir hafa lífsábyrgðarfélög, sem eink- anlega eru miðuð við hagi alþýðunnar og fátæka fólks- ins, sem á kost á að gjalda iðgjöld sín með nokkrum aurum á viku. Það eru einmitt þess konar lífsábyrgðarfélag, sem stofna ætti hér á landi. Danir eru nú í undirbún- ingi að koma á hjá sér lífsábyrgð með líkri tilhögun, og þar að auki hefir lífsábyrgðarfélagið (Danmark’ nýlega ákveðið að stofna sérstaka deild þar sem lœkn- isvottorð kemr ekki til greina, og er ábyrgðin þar mjög litlu dýrari enn í danska félaginu frá 1871, sem sjá má af því, að maðr á 31. ári getr keypt sér 5000 kr. lífsábyrgð fyrir 36 kr. 50 au. borgun fjórum sinnum á ári. Það er vonandi að þess verði eigi langt að bíða að íslenzkt lifsábyrgðarfélag komist á fót. Það er á- reiðanlegt gróðafyrirtæki, og landið tapar á þeim drætti sem á því verðr. X. Joek, arabskr foli (frítt eftir Mrs. Disney Leith). Vel er vaxinn jór, Vöðva’ og æða-ber, Augun snör og stór, Staðfast viðlit er. Orðum eigandans Eyrun hlýða reist; Hann sem hugur manns Hægt fer eða geyst. Fálkans fjörið er; Fákur tilþrifs-snar Geðið bljúgt þó ber Blíðu dúfunnar. Taumi tamur vel Tiginn ber sig hátt, Jafnan japlar mél, Jörðu krafsar dátt. Fínan foli bol Fætur mjórri’ enn hind Hefir þrek og þol, Þýður eins og kind. Hleypi’ ég hestinum, Hart svo gammur fer Frárri fuglinum, Förlast vitin mér. Er á litinn Ijós, Lilju björt sem grös, Snoppan rjóðbleik rós, Bauð og flæst er nös. Þessi virkta-vin, Vinda hlýrra son, — Konungborið kyn — Kom frá Líbanon. Traustust trygðalund, Tignust dygða’ í flokk’, Prýðir hófa-hund, — Heitir folinn: — Jock. Glr. Þ. Berklaveiki (lungnatæring) þykjast nú ýmsir læknar geta læknað með innspýtingu (serum). — Á læknafundi, sem nú er haldinn á Ítalíu, hefir ítalskr læknir haldið fyrirlestr um það efni. Blindir menn. í læknariti (.Hygiea’) sænsku er skýrt svo frá, að blindum mönnum sé að fækka, og er það þakkað augnlæknunum. Nú eru blindir menn af hverjum 100 þúsundum í Danmörku 53, í Svíþjóð 83, í Noregi 128 og í Finnlandi 155. Blöð í París. Þau eru nú talin 2500, enn tala þeirra er mjög breytileg, því að mörg þeirra verða skammlíf. Höll Vanderbilts. Kornelíus Vanderbilt, miljón- ingrinn ameríski, hefir fyrir skömmu vígt íbúðarhús sitt með skrautlegri danzsamkomu. Húsið kostaði 18 milj. króna. Það er úr gráum marmara og þríloftað. Danzsalrinn er stærsti prívatsalr 1 New-York 33 áln- ir á lengd og 23 á breidd. Biómgarðrinn við húsið er lítill í samanburði við stærð þess, enn hann hefir kostað l]/2 milj. króna, af því að þar varð að rífa niðr nýtt stórhýsi til að fá svæði fyrir garðinn. Nýtt loftfar. Ritari við (Smithsonian Institut’ í Washingtou, Langley prófessor, hefir að sögn fund- ið loftfar, sem haldið er að sé íullkomnast þeirra sem enn eru fuudin. Það lieitir .Aerodrome’, og er sagt, að ekki þurfi neitt (gas’ til að koma því upp í

x

Fjallkonan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.