Fjallkonan - 11.08.1896, Blaðsíða 2
126
FJALLKONAN
XIII 31
Útlendar fréttir.
Á Krít stendr alt við það sama. Daglega ber-
ast fregnirnar um að Tyrkjum og kristnum lendi sam-
an. Tyrkneski landstjórinn er kvaddr heim. Er það
víst að þakka fortölum stórveldanna. Tyrkneskir her-
flokkar vaða þar enn yfir og brytja niðr kristna menn.
Tyrkir halda og enn áfram að drepa Armeninga hrönn-
um saman, enn stórveldin eru aðgerðalaus.
Norðmenn hafa fengið ný borgaraleg kosningar-
lög, þar sem rýmkað er talsvert um kosningarréttinn.
— 4 hægriráðgjafarnir réðu konungi að synja lögun-
um staðfestingar, enn vínstriráðgjafarnir að samþykkja
þau. Níundi ráðgjafinn, Jakob Sverdrup, var mitt á
milli. Konungr samþykti lögin í gær. Þótt þetta
sé víst bót nokkur, þarf ekki að ætla, að fyrir hana
dragi nokkuð saman með Svíum og Norðmönnum í
stjórnardeilum þeirra, eins og látið er í veðri vaka í
sumum blöðum hægri manna1.
Skotið var á Favre Frakklands forseta, enn ekki
var annað enn lin púðrhleðsla í byssunni. Haldið er
að maðrinn sé ekki með öllu ráði.
Edmond de Ooncourt, einn af frægustu rithöf-
undum Frakka, er dáinn. Þeir vóru tveir bræðrnir,
og er annar þeirra dáinn fyrir löngu, enn rituðu
margt í sameiningu. Gloncourt mælti svo fyrir, að
vextina af eignum hans skulu jafnan 10 skáld eða
listamenn fá, enn enginn þeirra má vera í akademí-
inu franska.
Á Kúbu rekr hvorki né gengr, og veitir Spán-
verjum erfitt við uppreistarmenn; þar á ofan fækkar
gulusóttin mjög liði þeirra; hefir drepið 40—60 af
hundraði.
Nýtt ráðaneytt á Ítalíu, enn eigi búizt við nein-
um stakkaskiftum hjá stjórninni.
Brúðkaup Karls prins, sem var hér á landi í
fyrra, og Maud prinsessu, fór fram með mikilli við-
höfn í London 22. júlí. Þarvóru, auk hinna konung-
legu stórmenna, viðstaddir Salisbury og frú hans,
Gladstone og frú hans, Chamberlain og frú hans,
Rosebery, Wolseley, Bille sendiherrann danski o. s. frv.
Vilhjálmr ,ferðakeisari’ er enn á ferð í Noregi.
Þar er líka á ferð Leópold Belgíukonungr incognito
(undir dularnafni). Svíakonungr er þar sömuieiðis á
ferð.
Yerzlunarfregnir. (Khöfn 27. júlí). Verð á ís-
lenzkri vöru fremr iágt nema á saltftshi, sem fæst vel
borgaðr hér sem stendr, af því að hörgull er á hon-
um nú. Vestfirskr fiskr, stór, hnakkakýldr hefir
verið seldr þessa daga á 60 kr. skpd., og miðlungs-
fiskr 55 kr. Hætt er við að verð þetta kunni að
lækka þegar nóg er komið af fiski ámarkaðinn, enn
eins og stendr er töluverð eftirspurn eftir stórum
’) Enn hvað Jieasi gtjðrnarblöð eru öll líkt innrætt og jafn-
vitlaus. Sama hljóðið gellr nú við í (ísaf.’ okkar. Þar stendr:
(Skýin öll af lofti i Noregi. Oskar konungr hefir staðfest lög-
in um sameiningarréttinn!!!’
fiski. — TJll er í 60 aurum sunnlenzk og vestfirzk,
enn norðl. og austfirzk 0,66 og gengr dræmt út, hvort
sem það nú kann að lagast síðar eða ekki. — Lýsi
30 kr.—32 kr. með íláti (pr. 210 pd.). — Kornvara
er í mjög lágu verði, rúgr kominn ofan í 3,75 pr. °/0.
Önnur vara líkt og áðr.
Ameríkskar biblíuútgáfur. Biblían hefir verið
gefin út fyrir skömmu í Chicago, og er í þeirri út-
gáfu alt það felt úr biblíunui, sem ekki þykir eiga
við vora tíma.
Biblía með myndum hefir verið gefin út handa
svertingjum í Ameríku. Eins og gefr að skilja, er
djöfullinn þar myndaðr hvítr, enn englar drottins
svartir.
Spitsbergen skemtiferða-Iand. Nú eru skemti-
ferðamenn (‘túristar’) farnir að leita til Spitsbergen,
og gengr þangað gufuskip einusinni í vilcu frá Þránd-
heimi í mánuðunum júlí og ágúst. — Samgöngurnar
eru þannig orðnar miklu tíðari um hásumarið við
eyðiland þetta, sem er algerlega óbyggt, enn þær eru
enn sem komið er hér við land. — Mikið má guma
yfir framförunum hér!
Hotel er sett upp á Spitsbergen, við fjörð þann
er ísafjörðr heitir, handa sumar-gestum, enn er rifið
niðr og flutt heim til Þrándheims þegar haustar.
Frakkar og Englar í Miðj.-bafi. Stjórnin á
Frakklandi hafði í hyggju, að breikka og dýpka sík-
ið gamla milli Garonne og Miðjarðarhafs, svo að það
yrði siglandi fyrir stærstu herskip, og gætu þeir svo
í skyndi komið öllum flota sínum saman í Miðjarðar-
haf og orðið þannig öllum yfirsterkari á því hafi.
Var Englendingum ekki farið að verða um sel, enn
nú kemr upp úr dúrnum, að kostnaðrinn við áðrnefnt
fyrirtæki er svo stórkostlegr, að frakkneska stjórnin
treystist ekki til að leggja út í hann. Þetta gerir
Gibraltar þeim mun dýrmætara fyrir England, enda
eru þeir byrjaðir þar á herflotahafngerð svo stórkost-
legri, að engum blandast hugr um, að nú muni þeir
ætla að drotna einir á Miðjarðarhafi, og allar líkur
eru til að það muni takast.
Læknafundr.
(NM). 11. Hagsskýrslur og bókfærsla. Kosin nefnd tii
að semja form fyrir sýki-bókfærslu lækna: Guðm.
Hannesson, Guðm. Magnússon, dr. Jónassen.
12. Sjúkrasjóðr. Nefnd kosin: Guðm. Björnss.,
Guðm. Hannesson, Páll Blöndai, Fritz Zeuthen, Þórðr
Thoroddsen.
13. Sjúkrahús út um Jand. Samþ. till.: Fundr-
inn álítr heppiiegt, að hinir væntanlegu læknabú-
staðir séu svo rúmlega ’oygðir, að lækni sé fært að
taka til meðferðar 3—5 sjúklinga heim til sín og sé
í því skyni veittr styrkr af almannafé til bygging-
anna.
Viðaukatill. (frá Guðm. Hann.) að smærri sjúkra-
hús verði ennfremr styrkt af almannafé í stærri
héruðum landsins var feld.
14. Lyfjaskrá og apotekarar. Samþ. till.: Fund-