Fjallkonan


Fjallkonan - 07.10.1896, Page 2

Fjallkonan - 07.10.1896, Page 2
158 FJALLKONAN. XIII 39 menn svo mjög í kostnaðinn, mætti komast af svo framarlega sem kennnrnm við læknaskólann yrði fjöigað, enn það er bráð- nanðsynlegt. ef skólinn á að eiga nokkra fraratíð fyrir höndum. Ef menn ætla sér að bæta læknaskólann, sem er óhjá- kvæmilegt, verðr þingið að vera rífara með fjárveitingar til hans enn það hefir verið hingað til. t>að var annars dálitið undarlegt og öfugt við framkomu læknafundarins i boldsveikismálinu, ef rétt er sagt frá í ísafold. Flestir þeirra sem töluðu játuðu að vísu, að rétt væri að fundr- inn skoraði á löggjafarvaldið að setja upp spítalann. Enn ef ætti að fara að rekja ástæður þær, sem þeir komu með fyrir þess- ari fundarályktun sinni, þá mundi það verða ofan á, að hún hefði verið samþykt til málamyndar, af því, að læknarnir æsktu eða vonuðust eftir því, að stjórn og þing tækju málið upp á sína verndararma á næsta þingi. Það leit jafnvel kieizt þannig út, að þetta væri gert til þess að friða almenning, menn væru orðnir svo hræddir við sjúkdóminn, að bezt væri að sam- þykkja tillöguna o. s. frv. Um hitt voru sumir í mjög miklum efa, hvort sjúkdómrinn væri næmr, þótt flestir læknar séu nú á því, að minsta kosti þegar sjúkdómrinn er á vissu stigi. Það virðist því eigi hafa verið hræðslan fyrir útbreiðslu sjúkdóms- ins, sem vakti fyrir þeim, ekki heldr það, að sjúklingarnir ekki gœtu fengið næga hjúkrun heima hjá sér, heldr hitt, að hræðsla manna gerði sjúklingunum lífið súrt, og svo þetta, að úr því menn væru nú einusinni komnir á þessa meira eða minna öfugu skoðun, að sjúkdómrinn væri næmr, þá væri rétt að láta það eftir þeim að samþykkja einhverja tillögunefnu. Að þessi áskorun, rökstudd á þann hátt, sem hún virðist hafa verið, mundi verða þýðingarlítil, ef þjóðinni í heild siuui væri ekki áhugamál að fá holdsveikisspítala, er Ijóst. Að við fáum holdsveikisspítala áðr langt um líðr, hvort sem þingið veitir fé til hans eða ekki, er ekki allólíklegt. Auð- vitað mnnu þeir séra Jón og Dr. Ehlers gera það sem þeir geta til þess að spítalinn komist sem fyrst upp og verði að sem mestum notum, af því báðum er það áhugamál, og óttast, að annars verði svo langr dráttr á málinu. En efasamt er, hvort rétt er að skáka í þvi skjólinu mörg þingin, að þeim verði nægi- lega ágengt. Frá mannúðarlegu sjónarmiði verðr maðr að óska, að spítalinn komist upp sem fyrst, á hvaða hátt sem það verðr. Þá er Ísafjarðarnpíta linn og samskotin til hans. ísfirðingar mega eiga það, að þeir voru þeir fyrstu sem með frjálsum samskotum sýndu það í verkinu, að þeim þætti nauðsynlegt að koma upp sýsluspítala, þar sem sjúkfingar ættu kost á að vera nndir læknishendi. Ýmsir miðluðu vel til spi- talans; þannig er sagt að einn hafi gefið 1000 kr. Það var gert ráð fyrir, að spítalinn mundi kosta 9—10,000 kr. I jafnmann. margri sýslu eins og ísafjarðarsýsla er, virðist það ekki hefðj átt að vera nein ofraun, að fá nægilegt fé, ef viljinn hefði ver- ið. En hvernig fór samskotanefndin að? Hún sendi þegar áskornn með undirskrift nefndarmanna í dönsku hlöðin um gjafir til spítalans. — Efalaust hefir nefndin fengið einhverjar gjafir, en annars heyrðist lítið um spítalann fyr enn í sumar, að formaðr nefndarinnar, Þorvaldr héraðslœkn- ir Jónsson, fór til Hafnar. Þá kom fyrst grein í (Politiken’, þar sem sagt var frá því, að læknirinn væri kominn til þess að kaupa til spítalans, en hann vantaði um 3—4000 kr., og skoraði ritstjórnin á menn að skjóta nú saman handa blessuðum iækninum í þessu fátæka landi. Gögn þau, sem þyrftu til spítaians hefðu orðið dýrari en til stóð. Alls mundi hann kosta um 13,000 kr. Um sama efni skrifaði Dr. Ehlers í Berlingatíðindum. Gjafirnar komu og loks veitti Classens-sjóðsstjórnin seinustu 500 kr. Þetta er saga Ísafjarðarspítalans enn sem komið er. Hvað mega útiendingar ætla um oss, þar sem jafn-vesaimannlegur hugsunarháttr kemr fram eins og hjá ísfirzku spitalanefndinni ? Hér er upphafiega að eins að ræða um 9—10,000 kr. Og þó er sett betlibréf í útlend blöð. Svo vantar loks 3—4000 og þá fer ísafjarðarlæknirinn aftr til útlendinga — því næsta ólíklegt er að þeir hafi tekið það upp hjá sjálfum sér — og fær þá til þess að gefa upphæð, sem hver maðr hlýtr þó að skilja, að auð- velt væri að fá í iandinu sjalfu, jafnvel í ísafjarðarkaupstað. Það er vert að minnast á þetta, þvi það er svo afkáraleg og vesaimannleg aðferð, landinu til skammar og ísfirzku spítala- nefndinni og héraðslækninum til lítils sóma. Það er þvi fremr ástæða að minnast á þetta, sem sú fregn hefr kornið hingað frá Seyðtsfirði, að þeir þar ætli að hafa sömu aðferðina til þess að fá peninga tii sýsluspítala á Seyðisíirði. Hvort fregnin er sönn, skulum vér ekki segja neitt um, en það er þó ekki ólíklegt, eftir því að dæma, sem komið hefir fram í hlaði þeirra um hinn fyrirhugaða spitala. Cruðmundi lækni Hauuessyni er veitt Eyjafjarðarlæknis- hérað. Þorvarðr Brynjolfsson cand. theol. hefir fengið staðfestingu konungs sem prestr í fríkirkjusöfnuði Vallaness- og Þingmúla- sókna. Um kynbætr. Eftir Svipdag. Nú á tímum er mikið talað um allskonar fram- farir, andlegar og líkamiegar, mögulegar og ómögu- legar, enn minna gert til þess að koma þeim í verk. Pað má reyndar viðrkenna, að ýmsar breytingar hafa verið gerðar, er miða til bóta, stefna í framfaraáttina, enn alt er það í molum og lítið nema byrjun. Eitt af þessu er miðað hefir i framfaraáttina eru tilraun- ir manna að bæta kynferði og meðferð kvikféuaðar- ins, til þess að hann nái meiri þroska og verði meir arðberandi. Petta er þó alt í barndómi líkt og margt annað, enn vonandi er að þessu verði meiri gaumr gefinn framvegis. — Énn þegar nú er verið að ræða um kynbætr kvikfénaðarins, svo sem sauða, nauta og hesta, þá rekr maðr sig á eítt þessu náskylt, sem er harla eftirtektavert, og það er, að fátt eða öllu heldr ekkert er gert til þess að bæta kynferði mannana, bæta mennina sjálfa. Ef þörf er á kynbótum að því er húsdýrin snertir, og það munu flestir játa, þá er eigi minni þörf á því að bæta mannkynið, svo að það nái meiri líkamlegri fullkomnun, og þoli betr stritið og stríðið í lífsbaráttunni. Það er fylsta ósamkvæmni að vera að hugsa um að gera kynbætur á dýrunum, enn skeyta engu framf'erði mannanna í því efni. Allir hljóta þó að viðrkenna hve nauðsynlegt það er, að upp alist hraust og þrekmikil kynslóð; enn slíkt getr naumast átt sér stað, nema með kynbótum, and- legum og líkamlegum. Má vel vera að ég verði sak- aðr um „goðqáu fyrir að hreyfa þessu máli, eða minn- ast á kynbœtr á mönnum, enn þetta atriði er þó þess vert, að því sé veitt athygli og það í alvöru. Enn til þess að hneyksla menn sem allra minst, og forðast sem hægt er að særa tilfinningar fína fóiks- ins, mun ég takmarka sem verðr efni og orð, enn að eins minnast á fá atriði í sambandi við þetta. Til þess að mannkyníð geti tekið framförum, þurfa fram að fara kynbætr, andlegar og iíkamlegar, um það er ekki neitt að efast. Enn að koma þeim í verk, þessurn kynbótum, eða umbótum, ef menn vilja það heldr, það er þrautin þyngri. Hinar andlegu um- bætr eru aðallega í því fólgnar, að menta mennina, og auka þekkiugu þeirra í öllu því er miðar til bóta, miðar til þess, að mönnunum geti iiðið betr enn þeim nú gerir. Að þessu takmarki á mentunin að stefna, enn geri húu það ekki, þá nær hún eigi tiigangi sín- um. Sú mentun sem menn fá nú, virðist alls eigi full- nægja lífsskilyrðunnm, svo sem vera ber, og að því leyti er húu ónóg eða fer ekki alveg í rétta átt. Á- hrif hennar á þjóðlífið verða því önnur enu æskilegt væri, að minsta kosti í sumuin greinum. Hugsunar- háttr þjóðariunar er eitthvað öfugr, og getr því naum- ast þrifizt. Enn mentunin á að hafa áhrif á hugs- unarháttinn á þann hátt, að beina honum í betra horf, sem sé samkvæmara þörfum vorum og kring-

x

Fjallkonan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.