Fjallkonan


Fjallkonan - 17.03.1897, Page 2

Fjallkonan - 17.03.1897, Page 2
FJALLKONAN. XTV 11. 42- það eigi eitthvað kyn sitt að rekja til aldrsins, að margir bera skólalýð vorum á brýn, að hann hallist um of frá vinnunni. Um sama er kvartað í Noregi: Arne G-arborg tekr það skýrt og skorinort fram i blaðinu: „Den 17de Mai“, að nytjaskólarnir, búnaðarskólarnir og aðrir svipaðir skólar hjá Norðmönnum geri nemendrna ónyta og áhugalausa til alirar vinnu. Mörg önnur blöð Norðmanna taka í sama strenginn. Enn hvað um það. Ég væri ekki neitt á móti því, að allir gengi á nytjaskóla, ef búnaðarkensla gæti svo náð til allrar náttúruunar. Áburðinum væri kent að mata jurtirnar, jurtunum væri kent að safnast í hlöður og fara fram á garðana, þegar skepn- urnar væru svangar; skepnunum kent að mata menn- ina með vanalegum spónum, og þrífa sig sjálfar, ef þær væru inni, eins og köttrinn; bandorms-eggjunum kent að hreiðra sig í mannslunganu, — þá léttist vinn- an mikið. Hún þyrfti þá ekki önnur að vera enn sú, að tvævetiingar vísitéruðu eins og biskupinn hjá á- burðinum, grösunum og dýrunum, og héldu fyrir- lestra. Það gæti, ef til vili, orðið að baga, að dýrin vanta hendr, enn englarnir eru þó aldrei nema vísir til þess, að hlaupa undir bagga. Svo þyrfti að kenna þorsk- tetrinu, þó hann sé nú ef til vill ekki vel undir bú- inn, að synda upp i vörina hjá þeim, sem eru svang- ir, og margar fleiri námsgreinir; ekki veitti af þrem tylftum; þá væri gaman að lifa og borða hveitibrauð úr overheadsmjöli með útlendri hundafeiti. Þá gætu auðæfa peðin, smákaupmennirnir, orðið heimingi fleiri enn þeir eru nú í Eeykjavík og annarsstaðar. Einu sinni var eineygðr asni á stroki. Hann beit eins og voniegt var grasið annars vegar við vegiuu. Það hefir ekki verið eins fyrir þinginu; það heíir dregið augað í pung, sem að sjónum sneri; því af einhverri tilviljun sá það hann loksins og stofnaði sjómannaskóla. Um hann er ekki annað að segja, enn að hann samsvarar fyllilega þörfum vorum og menn- ingarstigi, og gengr fram yfir ailar vonir, eins og hann hefir verið hlutmeltr. Þar mun líka vilja svo vel til, að ekki séu 12 sundrieitar námsgreinir á hon- um, og enginn getr þess, að nemendr á þessum skóla andi að sér óbeit á vinnunni. í Hafnarfirði er nýr kennaraskóli stofnaðr og þess vildi ég af heilum hug óska, að hann yrði góðr. Ekki sæmdi það illa, þó menn af Möðruvallaskóla gengju á slíka skóla. Athugrasemd. Sigurðr búfræðingr Þðrólfsson hefir auðsýnt mér þá gððvild, sem ég fæ honum ekki fullþakkað, að benda mér á reikningsvillu, þar sem ég tala um Óiafsdalsskólann. Hún er í þvi innifalin, að ég hafi reiknaö námstíma piltanna bæði verklega og munniega, heimingi minni enn hann er. Ég leið- rétti þetta hér með sem skylt er, enn get ekki annað Bkilið enn að lesendr Fjallkonnnnar séu þá einfærir um að leiðrétta sjálfir skoðun sína í þessu efni, þegar leiðréttingin er fullglögg. Ég vona að hinn heiðraði höfnndr virði mér þá heldr til vorkunnar þð ég sé hræddr um, að visindi týnist niðr hjá búnaðarlærisvein- um, sem þeir geta aldrei komið við að hafa um hönd i lífsstarfi sínn, þegar ég, skðla genginn maðrinn, er svona vitlaus í reikn- ingi. Leiðréttingin frá mér hefði gengið jafn-greitt, þð mér hefði veriö sýnd villan einslega, enn ég barma mér ekkert yfir þessn mannsbragði að auglýsa hana í ísafold. Sami misgáningrinn er með ágizkuðu dagsverkin á Hðlum; þau eiga að vera helmingi fleiri. Prentvilla bls. 34 27. línu siðari dálki: bókkensla fyrir verkkensla. Z. JSf uppgötvun’ í „Verði ljós“. Prestaskólakennari Jón Helgason hefir í 8. tölubl. „Verði ljóss“ 1. árs hneykslast áþeim unm:ælum mín- um í greininni: „Um fríkirkju og frelsi kirkjunnar hér á landi“ í 8. tbl. „Kirkjublaðsins" f. á., að faðir sinn, Helgi Hálfdanarson, hafni í „Barnalærdómiuum“ þeirri efnisríku megingrein lúterskunnar: „Maðrinn réttlætist af trúnni einniu. Prestaskólakennarinn tekr nú til greina eingöngu nokkra sneið framan af röksemdum mínum, enn slepp- ir alveg hinum, sem hann hefir átt örðugra með að svara, og þykist svo geta fullvissað mig um, að út- skýring föður síns á réttlætingarlærdóminum í „Barna- lærdóminum" sé í fuilu samræmi við frumsetning lútersku kirkjunnar“, og að þeir Sigurðr Melsteð og faðir sinn hafi í þessu efni „verið fullkomlega sam- máia“. Ég fæ þó alls ekki séð, að hinn háttvirti höfundr hafi hér rétt að mæla, og ég er svo djarfr að treysta því, að hver skynsamr maðr sanni það með mér, sá er les með athygli um réttlætinguna í „Samanburð- inum“ 175.—188. bls. og ber þá kenning nákvæm- lega saman við 96.—107. gr. í „Barnaiærdómi" Helga Hálfdanarsonar. Hið merkilega rit Sigurðar Melsteðs, „Saman- burðrinn“, mun vera, því miðr, í höndum fárra af lesendum „Fjallkonunnar“, enn allir hafa þeir „Barna- lærdóminn“ við hendina. Fyrir því verð ég að taka nokkrar greinir úr „Samanburðinum“ til stuðnings mínu máli, enn læt mér nægja að benda á höfuðinn- takið í 96.—107. gr. „Barnalærdómsins“. í „Samanburðinum“ standa meðal annars þessar greinir, enn ég leyfi mér að undirstryka nokkur orð í þeim: „Hin prótestantiska trúarfræði kennir . . . að maðrinn réttlætist af Guðs náð fyrir trúna einau (1852). Maðrinn réttlætist af trúnni einniu (1861). „Trúin er hið lifandi traust og fullvissa mannsins um að Guð fyrir Krists sakir hafi tekið sig til náðar án álls eigin verðleika (1859). Trúin er hið eina meðál fyrir manninn til að geta tekið móti Kristi (186®). Prótestantiska kirkjan kennir . . . að til þess að maðr- inn geti betrazt, hljóti hann áðr að vera tekinn til náðar af Guði, að fyrirgefning syndanna, sem er að- alatriðið í réttlætingunni, sé skilyrði fyrir betrun mannsins11 (1771—6). „Hið eina skilyrði, sem út- heimtist frá mannsins hálfu, er trúinu (17810). „Sam- kvæmt hinni prótestantisku skoðun, er réttlætingin dómsúrskurðr Guðs, sem leysir hinn seka undan mak- legri hegningu og tekr hann ómaklegan að fyrra bragði til náðar. Aðalatriðið i réttlætingunni er þá, eftir lærdómi prótestanta, fyrirgefning syndanna eða náðartaka Guðs . . . Eítir lærdómi kaþólsku kirk- junnar er réttlætingin þar á móti ekki einungis náð- artaka eða fyrirgefning, heldr endrnýjúng og um- breyting mannsins, svo að hann verðr að nýjum og betra manniu (17910—1801 8). Nú er að bera kenning Sigurðar Melsteðs í þess- um greinum saman við kenning Helga um sama efni í „Barnalærdóminum", 96.—107. gr. Helgi kennir þegar í 96. gr. með brýnum og berum orðum, að sú mikla breyting á manninum, að hann verðr nýr og betri maðr, með öðrum orðum, aftrhvarfið, sé af

x

Fjallkonan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.