Fjallkonan


Fjallkonan - 21.04.1899, Page 1

Fjallkonan - 21.04.1899, Page 1
Kemur út um miðja viku. Verð árg. 3 kr. (4 kr. erlendisj. Uppsögn (ógild nema skrifleg) fyrir 1. okt. Sextándi árg. Reykjavtk, 21. apríl 1899. 16. blað. Einurð. „Hvað veldur því að blöðin draga dulur á ýmsan ósóma, sem almenning varðar, sva sem afglöp em- bættismanna, sóanir almannafjár o. s. frv., yfirgang við fátæklinga og lítilmagna, okur kaupmanna og fleira þess konar, sem þörf er að gera lýðum ljóst?“ Svo spurði einhver sveitamaður útgef. þessa blaðs fyrir skömmu. Ærleg blöð skýra frá öllu þess konar sem sannast og réttast undir og þau fá vitneskju um það, ef á- líta má, að það snerti almenning. Enn almenningur hefir því miður oft ekki einurð til að segja blöðunum frá því. Fyrir það lítur svo út, sem blöðin vilji draga dulur á það, eða hylma yfir því. Það er alþýðan, sem ekki þorir að segja hálfkveð- ið orð, ef embættismaður, kaupmaður eða ríkismað- ur, sem kallað er, á í hlut. Hinsvegar verður því ekki neitað, að sum blöð hafa annaðhvort ekki hug til að segja sannleikann, nema þegar þeim sýnist útlitið sem allra glæsilegast, eða þau eru slik siðferðileg úrþvætti, að þeim er fcærara að fylgja fram lyginni enn sannleikanum. Menn inuna blað eitt hér á landi, sem hefir haldið fram að etaðaldri botavörpuveiðunum, þessu ránfiski, sem að eins getur orðið gróðavegur útíendum auð- mönnnum, enn er víst niðurdrep fyrir almenning hér við sjávarsíðnna; blað sem stöðugt hefir barist með hnúum og hnefum gegn verzlunarsamtökum bænda, skynsamlegustu og veigamestu tilrausinni, sem gorð hefir verið til viðreisnar landinu á síðari hlut þess- arar aldar, enn dregið taum kaupmannanna gegn al- þýðu og haldið því fram að í Iandinu kæmist upp stórauðugir kaupmenn á kostnað almennings, sem síð- an gæti hnept alt landið í okurltlær; blað, eemjafa- framt því sem það smjaðrar fyrir höfðingjunum er argasta hrákasleikja skrílsins og mælir bót öðrurn eins óknyttum og þeim sem framdir hafa verið af einstökum pilti, eða piltum, í latínuskólanum í vetur (reynt að bræla skólann sem greni, steini kastað ina um glugga til rektors, púðursprenging í einura bekk- num, einkunnabækurskólansbrendaro.s.frv.); blaðsem nálega í hverju einasta númeri flytur svívirðilegustu persónulegar skamraagreinir um einstaka menn, og þegsr það sjálft brestur gáfuna. grefur upp margra ára gamlar níðgreinir af versta tagi úr öðrum blöðum til að gæða lesendunum; blað sem nálega í hverju númeri lýgur upp tilhæfulausum óhróðurs og æruleysis sögum um náungann. Af slíku blaði er einkis ills framar örvænt. Og það er siðferðisleg skylda annara blaða, að benda almenningi á þennan ósóma og vara við honum. Þegar menn eru að finna að því, að blöðin séu einurðarlítil og gagnslítil, þá ættu þeir fyrst að hafa hreinsað héruðin af þeim blöðum, sem eru beinlinis siðspillandi. Annars verður blöðunum ekki að jafnaði brugðið um einurðarleysi, þósum þeirra skorti stundum fulla einurð. Enn það er almenningur, sem einurðina vantar. .Æ, «sU .:mV.I.Ð.LESBORÐIÐ.Í^-.....& ) ►'J'* * •'J'. ^JS. .'Jn. * -'Jn. •'J'. ✓Js, -Js. .'J'i ^T'. ✓Jn. ✓J.. * ►J'. ✓J'. ' vO „Fýja Öldin“ hefir nú brugðið sér í tímaritslíki, og er 1. heftið komið út. Hún er í 8 blaða broti, 4x/2 örk í heftinu. Þar er í :—1. „Dýrsegulmagn og dáleiðsla, andatrú, fjölkyngi og kraftaverk" á tæp- um 2 örkum. Eins og nærri má geta, er ekki hægt að gera annað enn að drepa á fátt eitt af jafnmikil- fenglegu efni í svo stuttri ritgerð; enda talar höf. að kalla eingöngu um dáleiðsluna, sem er líka það at- riðið, sem hægast er að fjalla um, af því að þar er við vísiudalegar sannanir að styðjast. Ritgerðin er lipurlega og alþýðlega samin, eins og vænta mátti af höfundinum. — 2. „GUadstone“, um ævistarf hans, samið eftir Max. Harden, þýskum blaðamanni. Hann gerir heldur litið úr GUad3tone, nema sem alþýðuleið- toga. — 3. Bókmentir. Þar er getið allflestra ís- lenzkra tímarita og nokkurra nýrra bóka. „Ornis“ heitir fuglfræðinga tímarit, sem gefið er út í París. í nýútkomnu hefti af því hefir Bene- dikt Gröndal ritað alllanga skýrslu um íslenzka fugla, S8m hefst með fróðlegum inngangi um loftslagið hér á landi o. fl. — Hann er enn í fuilu fjöri, þó hann sé nú tekinn að eidast, og sýnir það þegar hann tek- ur á pennanum. „Lýsing“ heitir nýtt máuaðarrit, sem íslenzkir Únitarar í Ameríku eru farnir að gefa út. Ritstjóri er séra Magnús J. Skaftason. Rit þetta má því segja að sé framhald af „Dagsbrún", sem sami flokk- ur gaf út um aokkur ár. Stafsetningin á því er lík- lega helzt Bjarna Jónssonar frá Vogi. öm efnið mega þeir dæma sem þar til eru færir.

x

Fjallkonan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.