Fjallkonan - 21.04.1899, Síða 2
62
FJALLKONAN.
XVI, 16.
Arkiv för nordisk fllologi hefir nýlega haft að
færa athugasemdir er snerta ýms forualdarkvæði eftir
dr. Jbn ÞorJcelsson, fyrr rektor. Það eru nýjar akýr-
ingar á ýmsu i Háttatali Snorra, Rekstefju, Yelleklu
og Hrafnsmálum, sem gefin er út og skýrð í: „Konr.
GHslason: Efterladte Skrifteru. Skynberandi menn
munu verða sammáia um það, að dr. J. Þ. hafi stór-
um bætt þar um skýringar Konráðs. Enn fremur
kemur dr. J. Þ. hér með nýjar skýringar á
vísum í Eiriksdrápu, Jómsvíkingadrápu, öeisla og
Bjarkamálum enum fornu.
Álm&nak fyrir árið 1899. 5. ár. Útg. Ólafur
S. Þorgeirsson. Winnipeg 1898.
Þetta almanak Vesturheims íslendinga er laglegt
og vel samið. 1 stað nafna helgra manna, sem hver
dagur í íslenzka almanakinu er látinn bera, eru hér
sett nöfn merkra íslendinga og merkra manna úr |
sögunni yfirieitt, einkum enskra manna, við þá daga
sem þeir hafa fæðst eða dáið. Þetta er til bóta, og
hefir því fyrir löngu verið hreyft að breyta þannig
danska (og íslenzka) almanakinu. Aftan við alma-
nakið er safn til landnámssögu íslendinga í Vestur-
heimi, og hefst í þessu almanaki á fróðlegum og vei
sömdum þætti um landnám íslendinga í Nýja íslandi
eftir Guðlaug Magnússon (frá Hafursstöðum á Felis-
strönd) á Gimli, sem er einn af hinum fyrstu land-
námsmönnum og hefir dvalið þar síðan. Auk þess
er þar ýmislegur smávegis fróðleikur, eins og gerist
í almanökum, og loks heiztu viðburðir og mannalát
meðal íslendinga í Vesturheimi 1897—1898.
Aimanak þetta er þess vert, að nokkuð væri keypt
af því hér á landi.
Sýslunefndarfundur Árnesinga var 12—15 þ. m.
Helztu mál vðru:
1. Samgöngumál: Itreknð beiðni fyrra funda: að ákveðið
verði, hvar flutningabraut á að liggja uppeftir sýslunni, og að
skoðaðir verði af mannvirkjafræðingi biúarstaðir á Sogi, Brúará,
Tungufljðti og Hvítá. Til brúar á Sogið vill Grimsneshreppur
leggja 2500 kr. og sýslan 5000 kr., ef leyft verður og lán fæst.
Um hitt, sem til vantar, beðið af landssjðði. Samþykt að láta
vegfræðing mæla út veg uppeftir Skeiðin í sumar, og svo ætla
Hrsppa og Skeiðamenn að vinna að veginum undir umsjðn þess
manns, sem til þess er fær. Eyrarbakkahreppi var heitið styrk
til að lengja flutningabraut gegnum þorpið að verzlunarstaðn-
um. Skorað var á hreppa sýsiunnar að kaupa sér vagna og
aktygi til vegabóta. Selvogamönnum var leyft að varða Grinda.
skarðaveg mcð hreppavegavinnu. Skorað var á þingmenn, að
halda áfangastaðamálinu áfram í sömu stefnu á næsta þingi, ef
lögin frá síðasta þingi verða þá óstaðfest. Samþ. var að ðsk
Rangæinga, að hver sýsla sé ein um gæzlu sinnar brúar. Samþ.
að kaupa skúr við Tryggvaskáia, enn leiga eftir skálann hækk-
uð. Beðið var um að varðaður yrði vegarkaflinn frá Lækjar-
botnum upp að Svínanrauni. Mælt var með, að landssjðður veitti
styrk til gistihúss á Lækjarbotnum, og með því, að Guðni á Kol-
viðarhól fái 100 kr. úr amtssjóði. Ákveðið var að eftirleiðis riti
prestur vottorð á verkfærraskýrslur hreppstjóra. Verkfærir töld-
usti 1386. Af vegafé var lagt til Ölfushrepps kr. 250.00i
Grafningshr. kr. 16.00, Grimsn.hr. kr. 230.00, Biskupst.hr. kr.
120.00, Hrunam.hr. kr. 40.00, Gnúpvhr. kr. 25.00, Skeiðahr. kr
50.00, Yillingah.hr. kr. 20.00, Gauivb.hr. kr. 280.00, Hraung.hr.
50.00, Stokks.hr. kr. 627.00. Melavegur tekinn úr sýsluvegatölu.
Tvær lögferjur (á Sogi og Hvítá) aínumdar; enn ein komi í stað-
inn í Alviðru. Hækkaðir vðru ferjutollar i Ljórsárholti, þð því
að eins, að bátum sé haldið í gððu standi. Sett var millifunda
nefnd til að undirbúa nýjar ferjureglur. Beðið var um, að gufu-
bátorinn „Beykjavík" komi við á höfnum hér á austurferðum
sínum í sumar; og þingmenn beðnir að halda því fram, að eft-
irleiðis verði hafnir hér teknar inn í ferðaáætlun gufubátsins
„H61ar“. Beðið var um aukapðsta að Hruna, Þingvelli og á
hentugan stað í Viilingaholts- eða Gaulverjabæjar hreppum; og
að Eyrarbakkapóstur gangi einnig að Stokkseyri.
2. Búnaðarmál: Ákveðið að stofna fjársölusamlag, samþykt-
ar aðalreglur fyrir það og forst.öðumenn kosnir: séra Stefán á
Mosfelli, séra Magnús á Torfastöðum: og til vara Ágúst í Birt-
ingaholti. Einnig ákveðið, að stofna peningaverzlunarsamlag, er
verzli við innlendan kaupmann, þann er bezt kjör býður; forstöðu-
m&ður kosinn Eggert í Laugardælum og til vara Gunnlaugur
i á Kiðjabergi. Farið á leit, að landssjóður veiti styrk til slátr-
unarhúss, er stofnað verði með hlutabréfum, þannig að hreppa-
félögin verði hluthafendur, að minsta kosti meðfram. VigfúBÍ
búfræðing í Haga var heitið ferðastyrk á búfræðingafundinn, og
honum falið að fara fram á, að þær jarðabætur búnaðar-
félaga, sem fullgervar eru 24 júní, megi þegar meta til búnað-
arstyrks, og fari skoðunin eigi fram fyr enn eftir þann tíma
surnars; enda skýrslur eigi heimtaðar mjög snemma. Mælt var
með þeim Eggert í Vaðnesi og Lýð í Hlið sem maklegum heið-
urslauna úr gjafasjóði Kristjáns konungs. Skógfriðunarmáli
var frestað. Ákveðið að flórleggja Dælarétt og byggja girðingu
fyrir safnið; einnig að byggja 2 sæluhús á Elómannaafrétti.
Skorað á þingmenn að halda fram gagngerðum breytingum á
horfellislögunum, enn skotið til þingmálafundar að tiltaka þær
breytingar nánar. Laxveiðieigendur við ölfusá og neðanverða
Hvítá óskuðu að laxveiðitími yrði færður fram til 1. júní (frá
15. júni), enn gerðu það tilboð í móti, að koma á hjá sér
„prívat“-samtökum: að friða laxinn 48 stnndir í viku hverri.
Sýslunefndin færði veiðitímann fram til 7. júní, þó því að eins,
að tilboðið stæði, og vikufriðunin því síðar í vikunni sem ofar
er með ánni.
3. Beilbrigðismál: Ákveðið, að læknirinn i efra læknis-
héraði sýslunnar sitji sem næst Skálbolti; undanþága þó
veitt um 1 ár, ef iæknirinn álítur nauðsyn til bera. Á-
kveðið, að á íerjuBtöðnm, sem eru á leið læknisins, séu bátar
jafnan til taks báðum inegin ár. Beðið um, að landssjóður launi
yfirsetukonum. Ein bláfátæk uppgjafa yfirsetukoua fékk styrk,
meðan hún fer ekki á sveit. Lýst var góðum árangri af fyrri
hreinlætis-ráðstöfunum í sjóplássum hér. Ákveðið, að hver hund-
ur hafi merkt hálsband; að útróðramenn hafi eigi hunda með
sér við sjóinn. Hundar drepnir séu þess ákvæði brotin.
4. Sveitamál: Einn hreppstjóri haíði sagt af sér ; treystist
eigi að þola vetrarferðir við tjárskoðanir. Var bent á hrepp-
stjóraefni i stað hans; enn, að tilraælum hreppsbúa, jafnframt
óskað, að hann mætti samt halda embætti, þrátt fyrir lausnina,
ef þeim tækist að fá hann til þess. Einum hreppi var leyft að
selja jarðeign. Einum hreppi (Eyrarb.) að leggja á sig 30 kr.
ævarandi árgjald fyrir yrkta lóð, sem taka verður undir veg.—
Beðið var um amtsráðsleyfi til að jaína niður miklu hærra sýslu-
sjóðsgjaldi enn verið hefir, sem stafar af því, að amtssjóðsgjald
og búnaðarskólagjald koma nú á sýslusjóð, enn vóru sérstök
áður.
Sérstök mál má kalla: að neitað var um vínsöiuleyfi á Þing-
velli, að skorað var á kaupmenn að hætta áfengissölu, að skor-
að var á þingmena að halda fram vínsölubanni; einnig að á-
kveðið var að halda þjóðminningadag í sumar á sama stað og
í fyrra og nær sama tíma. Forstöðunafnd endurkosin og séra
Ólafi Sæmundssyni bætt við basa.
Svo vóru hér að auk skýrslur og „reikuingar", og álit þess-
konar, sem lög gera ráð fyrir, enn eigi þarf hér að telja.
Með ströndum fram.
Já — landsýn þessi inndæl er,
því árdagsþokan dvín
og myrkar skýla myndir sér,
er morgunsólin skín.
Oss fram með ströndum bröttum ber
um bláan mararveg.