Fjallkonan


Fjallkonan - 01.06.1899, Qupperneq 2

Fjallkonan - 01.06.1899, Qupperneq 2
86 FJALLKONAN. XVI, 22. stnuleikur hins heilaga orðs fær að eins að njóta sín, og án þess er um enga sanna kirkju að tala. Vilji menn nú eigi hallast að fríkirkju fyrirkomu- laginu, þá er samt ráð til að breyta hinu núveranda tekjuástandi prestanna á landi þessu. Úr því að þjóðkirkjan í landinu er ríkiskirkja, eða fyrst menn vilja hafa ríkiskirkju, þá er réttast að launa prestana úr laudsjóði, enn afnema öll gjöld til presta, tíund, iambsfóður, dagsverk, ofíur og hvað eina annað, og aukaverkaborgunina með; hún má nú víst missa sig lika. Afgjaldið af jarðeignunum mætti láta prest- ana hafa upp í laun sín, sem hingað til, ef þá eigi sýnist hentugast að selja þær allar og setja andvirði það, sem hvert prestakall fær, í Söfnunarsjóðinn. Sama mætti auðvitað gera við jarðaverðið, yrði fríkirkja stofnsett. Einnig mætti hugsa, að landssjóður tæki allar jarðirnar, nema prestssetrin, undir sig, og borg- aði aftur þeim mun meira út til prestanna, enn það gæti virzt óþarfur snúniugur með gjöldin, og má enda búast við, að landssjóður yrði fyrir bragðið að borga óþörf umboðslaun. Gott væri að bújarðir yrðu keyptar handa prestunum, þar sem þær vanta. Lakast er með kirkjujarðirnar nú, að búnaðarlögin geta eigi að fullu náð til þeirra, því hafí einhver ábúandi gert miklar umbætur á ábýli sínu, getur hann hvergi fengið það endurgoldið, þegar hann fer í burtu, sem honum þó á öllum öðrum jörðum er unt að fá, að einhverju leyti, enn þessu öfuga ástandi kynni nú að mega breyta með kirkjujarðirnar, því landsjóður gæti borg- að ábúandanum þokkabót fyrir verkin, ef jörðin verð- ur hærra leigð á eftir, þar eð það yrði prestinum tekjuauki, sem landssjóður svo aftur getur dregið frá launum þeim er hann borgar beint út; enn hægast mun samt að selja jarðirnar og táta peningana í Söfnunarsjóðinn. Víst er um það, að landssjóði aukast nokkur út- gjöld við að verða að launa prestunum, enn það er eigi eins voðalega mikið, sem sumir menn halda. Öll preststiund af fasteignum og lausafé á Iandinu er eigi nema tæp 20,000 kr., enn svo eru lamsfóðrin og hitt annað af sóknatekjunum, sem ég get eigi ná- kvæmlega sagt um, hve miklu nemur, af því égveit eigi til hlítar, hversu mikið fasteignirnar, ásamt öll- um prestsmötum, gefa at sér, enn eftir Iausri ágisk- un mun það vera um 90,000 kr., ef prestsmöturnar af bændakirkjum eru taldar með. Enn leiðrétting á þessari ágiskun er hægt að fá af hinum nýju brauða- metsskýrslum, sem nú munu vera allar komnar til biskups. Nú eru allar preststekjur á íslandi í kring um 170,0000 kr., og verða þá sóknatekjur allar að frádreginni tíundinni 60,000 kr. Fyrir tíundarnpp- hæðinni, og svo sem 10,000 kr. að auki, væri víst hægt að leggja toll á einhverja miður þarfa vöru út- lenda. Upp í þær 50,000 kr., sem þá til vanta, væri réttast að afla landssjóði tekna með því að leggja eitthvert beint gjald á landsmenn í stað preststekna þeirra er burtu falla, og lízt mér þá bezt á dags- verkið núveranda til að miða við. Það héldist þá í nýrri mynd, enn yrði lægra og þó almennara. Það mætti í stað dagsverksins nefnilega leggja skatt á alla fermda menn, karla og konur á landinu, 1 kr. á mann, og kalla það mannskatt, og má með þvi móti ná þessum 50,000 kr., því fermdir landsmenn eru rúmlega svo margir. Þótt nýr skattur sé lagður þannig á, eiga sýslumenn enga heimtingu á launaviðbót fyrir innheimtuna, svo þar skapast engin ný útgjöld. Verið getur, að menn finni það að þessu gjaldi, að það kemur jafnt á alla, ríka og fátæka, eða er nef- skattur enu eigi efnagjald, og það var einmitt þetta, sem helzt varð fundið kirkjugjalds-frumvarpinu gamla til foráttu, enn allir þurfa í rauninni jafnt að nota embættismenn iandsins, hvort þeir eru ríkir eða fátækir, svo að saungjarnt má telja, að eitthvert gjald komi jafnt á alla, enn svo hafa efnamennirnir vanalega fleira vinnufólk enn fátæklingarnir, og þá fer nú fjáreignin að koma með á reikninginn, ef rétt er að gáð. Ég get nú ekkert séð á móti nefskatt- inum, og mér þykir ilt að hann komst eigi á, að því er kirkjugjöldin snertir, enn ég held endilega að þess verði eigi langt; að bíða að hann komi þar. Því verði kirkjutíundin afnumin, þá munu ljóstollur og legkaup og húsagjaldið fara sömu Jeiðina og eitt al- ment gjald sett í staðinn. Ef menn vilja bera það fyrir sig, að hinar núverandi preststekjur fari þó eftir efn- um, þá skjátlast þeim hinum sömu stórum, því raun- ar ekkert nema lausafjártíundin ein fer eftir efnahag* Lambsfóður er nefskattur á alla grasnetjendur, dags- verkið er nefskattur á alla öreigatiundarmenn, og ofíur er nefskattur á vissan flokk manna, það er em- bættismenn, kaupmeun og þá er eiga 20 hundruð í jörðum og lausafé, svo hér eru flestar tekjugreinir nefskattar, enn sem koma mjög ranglátlega á og ójafnt niður í rauninni, þar sem hinn fátæki lætur oft meira enn hinn ríki, og sumir menn sleppa alveg við öll prestsgjöld. Ég býst nú eigi við að menn geti enga galla fund- ið á þessari ritgerð minni, eða að allir vilji vera mér samdóma um það sem sagt er í henni, og eigi held- ur að öllum sýnist að breyta til jneð tekjurnar alveg eins og ég hefi stungið upp á. Enn ég hefi reynt að segja sem sannast frá öllu ástandinu, eftir því sem ég þekki bezt til, og um það hvernig til skal breyta; ímynda ég mér að eigi sé gott að finna annau miklu heppilegri veg enn að afnema tekjur prestanna sem nú eru og launa þeim úr landssjóði. Mér hefir gengið gott eitt til að rita grein þessa, nefnilega áhugi á velfarnan hinnar íslenzku kirkju, því ég get eigi betur séð, enn að launakjör þjóna hennar hafi í því efni afarmikla þýðingu, og ég veit um marga alþýðumenn, sem líkar illa hvernig laun- um presta er háttað á landi þessu. Það eru stærstu líkindi til, að prestaskólinn standi auður, af því að engir vilji verða prestar, ef eigi er bráðlega undinn bugur að því að laga og bæta kjör prestanna, enn launahækkun hefi eg enga farið fram á. Uppgjafa- prestum og prestsekkjum ætlast ég að eins til, að sé launað úr landssjóði, án þess að rýra prestaköllin, enn það nemur eigi nema smáræði, enn gerir þó tekjur þjónandi presta ögn hýrari, og þá má um leið jafna prestaköllin að tekjum nokkuð meira enn nú á sér stað, og það er eigi nema sanngjarnt. Kvennabrekku i april 1899. Jóhannes L. L. Jóhannsson.

x

Fjallkonan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.