Fjallkonan - 04.04.1900, Page 3
FJALLKONAN.
3
þá áleifc, að miðaði til þess að eyðileggja land-
ið og að þingið gerði sér stóra minkun að
ræða slikt mál.
í bankamálinu „stór&“, sem kallað hefir
verið, var Guðlaugur fyrsí mjög öndverður,
jafnvel þótt hann mætti sjá, að gallana sem
hann fann að frumvarpinu mætti laga i hendi
sér, en einhvern veginn atvikaðist það svo, að
hann varð síðan einhver ötulasti fylgismaður
málsins.
Jafnvel þótt ýmislegt megi finna að fram-
komu Gruðlaugs á þingi, verður því ekki neit-
að að hann er einn af mestu hæfileikamönn-
um á þinginu.
Halldór Dcmíelsson, þingmaður Mýramanna,
fær hér stuttan dóm, af því þess gerist engin
þörf að dreifa honum við kosningar þær sem
fara í hönd, því hann mun áreiðanlega ekki
gefa kost á sér aftur til þingmensku. „Þjóð-
ólfur“ hefir, minnir mig, reynt að slá sig til
riddara með því að seiiast í þenna bónda, sem
alveg er hættulaust að ráðast á. En honum
hefir ekki farist þingmenskan svo, að hanneigi
neitt ámæli skilið fyrir hana. Hann er íbetra
lagi að sér af bændum og fróður í mörgu, en
auðvitað ekki til þess gerður að sitja á þingi.
Hann hefir þó ekki staðið ver 1 þeirri stöðu
en sumir aðrir, og eflaust verið meinlítill, en
það verður ekki sagt um suma þingmenn.
Frá ófriðinum
spurðust engi tíðindi, sem nokkurs séu verð,
með kolaskipi því sem kom í gær. Það hafði
áðnr frétst, að Bretar höfðu tekið Bloemfontein
bardagalaust að kalla, og situr nú Roberts
hershöfðingi Breta þar.
Af liði Bullers eru nú betri fréttir en áður,
og sagt að það sé á leiðinni norður eftir.
Umsátin um Mafeking heidur enn áfram;
þar er til varnar fyrir BretaPowell herforingi.
Ekki er að sjá að nein orusta sem að kveð-
ur hafi verið háð nýlega; þó er svo að sjá sem
Búar hafi aftur náð á vald sitt einum smábæ,
Ladybrand.
Yfirhershöfðingi Búa, Joubert, sagður dáinn
á sóttarsæng.
Ákveðið að flytja Cronje hetjuna miklu, sem
geymdur hefir verið í Kap, ásamt einhverjum
af mönnum haas til St. Helenu, til geymslu
þar meðan á stríðinu stendur.
Pólitiskur fundur. Þingeyingar héldu póli-
tiskan fund 11. marz á Húsavík. Fundarstjóri
var Sigurður Jónsson úr Yztafelli og skrifarar
Benedikt Jónsson á Auðnum og Bjarni Bjarna-
son á Húsavík.
Segir bréfritari svo frá, að á undan þessum
fundi hafi verið „haldnir nokkrir smáfundir, og
heiztu menn hópað sig til ráðagerða“. „Eftir
langar og ítarlegar ráðagerðir og yfirvegun
beztu manna“ segir bréfritarinn, að þeim hafi
komið saman „að byggja upp, ef unt væri,
annað öruggara og eindregnara þing“. „Sú
.negativa’ varnarstefna dygði nú ekki lengur“.
„Þess vegna“ kveður hann Þingeyinga „hefjast
handa og bjóða íslendingum kosninga-,prógram’“.
Og þetta kosninga-prógram er ekkert annað en
benedikzkan.
Á fundinum var að eins rætt stjórnarskrár-
málið og bankamálið. í stjórnarskrármálinu
vóru samþyktar þessar ályktanir:
1. Fundurinn lýsir yfir því, að það er hans
eindreginn vilji, að alþingi framvegis haldi stað-
fastlega fram sjálfstjórnarkröfum þjóðarinnar á
grundvelli hinnar endurskoðuðu stjórnarskrár
(1886 og 94), og að þegar á næsta þingi, eða
svo fljótt sera unt er, verði samþykt frumvarp
til stjórnarskipunarlaga, sem tryggi þjóðinni
fyllilega þessi meginatriði:
a) að sérmál íslands verði ekki borin upp í
ríkisráði Dana,
b) að hin æðsta stjórn sérmála íslands sé
búsett í landinu sjálfu og verði krafin ábyrgðar
á sérhverri stjóraarathöfn fyrir alinnlendum
dómstóli, er jafntramt sé skipaður með lögum.
Fundurinn skoraði á þá héraðsmenn, sem
væru sammála yfirlýsingu fundarins í stjórnar-
bótarmálinu og hafa kunnugleika í öðrum hér-
uðum landsins, að vinna að því eftir megni, að
þau verði sem bezt samtaka þessu héraði við
í hönd farandi kosningar.
í bankamálinu taldi fundurinn það heppileg-
ast, að hlutaíélagsbankafrumvarpi síðasta þings
yrði ekki hreyft fyr en séð yrði, hvernig lögin
um veðdeildina og seðla-aukninguna reyndust.
noylij avili.
Skipakoma: „Stabil“, gufuskip með kol til
Brydes-verzlunar kom í gær frá Englandi.
Innhrotsþjófnaður var framinn í bakarabúð
Sturlu kaupmanns Jónssonar nýlega. Hafði
verzlunarmaður, sem var þar um kveldið, sagzt
mundu hætta á að taka ekki með sér peninga
sem safnast höfðu í skúfluna um daginn; menn
vóru margir í búðinni og virðist svo, sem ein-
hver þeirra hafi veitt því eftirtekt, því um nótt-
iua var brotist inn í húsið og stolið þeim 28
kr., sem vóru í skúfíunni.
Aflahrögð ágæt á þilskip.
Pétur Hjaltesteð
úrsmiður
Fíólín margar teg.
Flautur
Reykjavík
Laugaveg 18
Guitarar margar teg.
Af því &ð strandferðir eru nú þegar byrjaðar, læt ég ekki hjá líða að knnngera heiðruðum skiftavinum mínum, nær og fjær, að ég hefi nú
á boðstólum fyrir sanngjarnt verð upptalda muni, sem ég leyfi mér að mæla með sem vandaðri, góðri og átgengilegri vöru.
Grullúr
Silfurúr kvennúr og karlm.úr. Yerð frá 8 kr.
Nikkelúr mjög margar tegundir.
Yekjaraklukkur, margar sortir
StOfUlilUliliHr margar teg.
Hegvilatorar margar sortir.
KLUKKUR með HJÓÐFÆRI i
TAFFELÚR
CRONOGRAPH
tæzzss:* -saszzza
Úrkeðjur fyrir konur og karla.
Hálskeðjur
Ilálsúrkeðjur
Sportkeðjur
keðjur þessar eru úr gull-
pletti á silfri, 14 karat.
Double,Talmi,Silfur, Nikkel
Hálsmen mjög margar teg.
KAPSEL úr silfri og gulli, mjög marg. teg.
ARMBÖND, GULLHRINGrAR, Steinhringar
BRJÓSTNÆLUR, mikið úrval
SLIFSISNÆLUR fyrir karlmenn.
Singers-
stíguar
Vélarnar eru seldar með
saumavólar
handsniinar
ábyrgð fyrir góðri vinnu og góðri endingu.
KÍKIRAR, LOFTÞYNGDARMÆLAR, HITAMŒLAR, VEGGMYNDIR, STEREOSKÓP, STEREOSKÓPMYNDIR, ALBUM, SKRAUT-
GRIPAÖSKJUR. Columbía-zitherar, Munnhörpur margar teg., Lírukassar, Spiladósir, Ocarinur.
Guitar- Fíólín- og Akkord-zither-strengir, Skóiar fyrir sömu hljóðfæri og yfir höfuð 11 sem til þeirra heyrir. Laxveiðafæri
og alt þar til heyrandi. Allar pantanir eru fljótt og vel afgreiddar. Viðgerðir fljótt og vel afgreiddar.
Með virðingu.
Pétur
Hjaltesteð.