Fjallkonan


Fjallkonan - 20.04.1901, Blaðsíða 1

Fjallkonan - 20.04.1901, Blaðsíða 1
Kemur úteinu sinni í viku. Verð árg. 4 kr. (erlendis 5 kr. eða l’/a doll.) borgist fyrir 1. júlí (erlendiB fyrir- fram). Uppsögn (skrifleg)bund- in við áramðt, ðgild nema komin sé til út- gefanda fyrir 1. oktð- ber, enda hafi kaupandi þáborgað blaðið. Afgreiðsla: Þing- holtsstrœti 18. XVIII. árg. Reykjavík, 20. apríl 1901. Nr. 15. íburðarmikil húsgögn. ^i.-oL§r§r-o.ístc^ii (ameríkanskur) íyrir karlmann. Fjaðrir í bak og sæti; klæddur plussi og kögraður, á 125 kr. R.HggU.StÓll íyrir dömu eins að útbúnaði á 80 kr. Cliaiselong: á 65 kr. Þessi húsgögn eru seld með innkaups- verði auk farmgjaids. Ben. S. Þórarinsson. Biðjið ætíð um: OTTO MONSTEDS danska smjörliki, sem er alveg eins notadrjúgt og bragðgott og smjör. Verksmiðjan er hin elzta og stærsta í Danmörku, og býr til óefað hina beztu vöru og ódýrustu í samanburði við gæðin. Fæst hjá kaupmönnunum. Landshankinn eropinn hvernvirkandagki.il—2.Banka- stjðrnin við kl. 12—1. Landsbókasafniö er opið hvern virkan dag ki. 12—2 og einni stundu lengur til kl. 3 md., mvd. og ld. til útlána. Forngripasafnið er i Landsbankahúsinu, opið á mið- vikudögum og iaugardögum kl. 11—12 f. m. Náttúrugripasafnið er í Doktorshúsinu, opið á sunnu- dögum kl. 2—3 e. m. Ókeypis lœkning á spítalanum á þriðjudögum og töstu dögum kl. 11—1. Óktypis tannlækning í húsi Jóns Sveinssonar hjá kirkjunni 1. og 3. mánudag hvers mán., kl. 11—1. Á aldamóiunum. Ræða, sem haldin var við háskólann í Kaupmannahöfn í fyrirlestralok fyrir jðlin 1900. Eftir Harald Höffding. Þegar eg nofca þennan síðasta tíma okkar á þessu ári, tilheyrendur mínir, til þess að líta yfir öldina, sem nú er bráðum liðin, mætti segja, að skifting tímans í aldir sé einungis borgaraleg niðurröðun, sem kemur andlega lífinu ekkert við, þvi saga þess hefir alt aðra niðurskipun en almanakið hefir að geyma. Merkustu tímabilin hefjast þegar nýjar hugs- anir og stefnur í lífinu og vísindunum koma fram, og það fer ekki eftir almanakinu. Ný öld má segja að hefjist á hvaða tíma sem er. Það kemur líka fram í söguuni, að hin and- lega öld getur hafist fyr eða síðar en borg- aralega öldin. 18. öidin hófst með Locke, Newton, Boyle og Leibniz, og 19. öldin hófst þegar Rousseau, Lessing, Kant og Goethe settu fram skoðanir, sem stefndu bæði hærra og dýpra en þá grunaði, sem áttu þátt i bar- áttunni milli fxæðslu (upplýsingar) og trúar- reglna (ortodoxi). Það er bersýnilegt, að tímabil í sögunni er á enda, þegar þau aðalmál, sem menn höfðu skipast um, ráða ekki lengur flokkaskiftingunni. En ein öldin getur haft mikil áhrif á aðra fyrir það, að menn nýja tímans eru aldir upp í hugsunar- hætti hins fyrra tíma og verða oft að eiga i baráttu til þess að verða lausir við hann. í æfisögu Stuarts Mills eftir sjálían hann, sem er einhver merkasta bók, sem út hefir komið á 19. öldinni, er hægt að kynna sér stefnumismuninn milli 18. og 19. aldarinnar. Þó er það rétt, að lita aftur við lok hinn- ar borgaralegu aldar, eins og vér gerum á afmælisdögum vorum. Menn hafa líka fundið löngun til þess fvrir 100 árum. A gamlárs- kveld 1900 var hátíðleg samkoma í Weimar; um miðnætti settust þeir saman í herbergi Goethe, Schiller, Scheliing og Steffens og drukku kampavin. Samtalið var fjörugt, en ekki vita menn hvað þeir hafa sagt um alda- mótin. Þó getum vér séð nokkuð, hvernig einum af þessum mönnum hefir verið innan- brjósts, af því, hvernig Schiller hafa farist orð fyrir og eftir aldamótin. 1794 ritaði hann vini sinum, lækninum og heimspekingnum Erhard: „Gerið sem eg segi yður, og látið fyrst um sinu hið vesallega, ómaklega og óþrosk- aða mannkyn eiga sig. Dveijið í hinu fagra og rólega landi hugsjónanna, og geymið það tímanum að færa þær inn í verkiega lifið“. Hér kemur fram nokkuð af því bezta, S6m mikilmenni þeirrar tíðar höfðu tii að bera: eldlegur áhugi fyrir hugmyndunum og hugsjón- unum, og mistrúnaður á mennina, sem átti rót sína i afgiöpum stjórnarbyltingarinnar. 19. öidin hófst þannig, að hinn ytri og innri heimur stóðu öndverðir hvor öðrum. Ef vér lítum á, hvernig háttað er í hinum innra heimi, þá birtir þó fyrir oss. Bæði „upplýsingar" og „rómantíkur“ mennirnir vóru hvorir á sinn hátt sannfærðir um, að hið helzta ósamræmi væri burt numið. Hóm- antiska hreyfingin ruddi sér veg i bókment- unum og heimspakinni, og boðaði, að skáld- skapur, vísindi og trúarbrögð skyldu ekki framvegis standa hvort öðru öndyert, heldur skyldi sannur skáldskapur, sönn vísindi og sönn trúarbrögð mætast í samhljóðun. Yér skuium nú fyrst sjá, hvernig farið hefir fyrir rómaatikinni, sem hið andlega líf aldarinnar sem leið hófst með, og svo skulum vér sjá, hvernig farið hefir fyrir „hinu vesallega, ó- maklega og óþroskaða mannkyni“, sem hafði verið látið eiga sig. I. Undir eins á fyrstu áratugum aidarinnar urðu gagnstæðurnar meiri en áður á hinu and- lega svæði. Ágreiningur i trúarefnum hafði legið i þagnargildi, en kom nú fram, og ágreiningurinn um lifsskoðanirnar varð harð- ari. I staðinn fyrir hina rómantisku sam- hljóðun kom realistisk ósamhljóðun. Eg get ekki hér rakið orsakirnar til þeirrar breyt- ingar, er gerði 19. öldina að öld gagnstœð- anna; eg hefi annarsstaðar gert fcilraun til að skýra þessa breytingu, sálfræðilega og sögu- lega (í ritgerð um trú og þekkingu, sem er prentuð í „Mindre Arbejder11 eftir mig). Hér vil eg þar á móti taka það fram, að breyt- ingin skilst betur, ef vér berum þrosk- uu trúarbragðanna og iifsskoðananna á öld- inni sarnan við sögu vísindanna á sama tíma. 19. öldin hefir ekki verið skapandi, ekki lagt grundvöll á svæði vísindanna. Yísinda- hugtak nýja tímans varð til á „renaissanse-“ timanum, og á 17. öldinni með Kepler og Gaiílei, De cartes (frb. Dekart) og Newton (njúton). Þessir menn hafa sett vísindum nýja tímans markið og lagt grundvallarregl- urnar. Starf 19. aldarinnar hefir verið, að beita þessum reglum svo víða sem unt hefir verið. Þaðan stafa stórkostlegar uppfundn- ingar, sem hafa gert hið ytra líf manna þægilegra og fært þjóðirnar og mennina nær hvor öðrum. Eu grundvallarhugmyndirnar eru enn hinar sömu sem þegar vísindi nýja tím- ans hófust. 19. öldinni er það aftur á móti að þakka, að hún hefir betur en nokkur önn- ur öld leitað að og fundið staðfesting reynsl- unnar á skoðunar og lærisetningum (teóríum). Hún hefir verið öld staðfestinganna. Um það má sannfærast með því, að kynna sér sögu kraftslögmálsins. Menn vóru komnir á þá skoðun á 17. öld, að ekki væri meira í verk- uninni en orsökinni, og á þeirri setningu grundvallaði 17. öldin vísindi sín. En það var ekki fyrr en á 19. öldinni, sem sýnt var fram á það með miklum lærdómi, að þessi skoðun væri rétt. Náttúrufræðingar í ýmsum löndum funda lögmálið, án þess hvor vissi af öðrum: Robert Mayer, Jouie, Helmholtz og Colding, og þeir áiitu að svo hlyti að vera, en þeir létu sér ekki nægja með það. Þeir rannsökuðu ýmsa náttúrukrafta, og reyndu að sanna, að ætíð kæmi fram jafnvirði fyrir þann kraft, sem sýndist verða að engu. Það er hægast að sanna þess konar jafngildi í nátt- úruvísindunum, af því hægt er að telja, mæla og vega efnið; þar hefir hin vísinda- lega staðfesting unnið einn sinn mesta sigur. Önnur vísindi hafa unnið í sama anda. Og hið merkasta ritverk í rökfræði (logik), sexa

x

Fjallkonan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.