Fjallkonan


Fjallkonan - 17.02.1903, Blaðsíða 2

Fjallkonan - 17.02.1903, Blaðsíða 2
26 FJALLKONAN framkvæma áðurneinda kenslu- samþykt sina. Kirkju og safnaðarlíf Landmanna hefir verið vist með betra móti, eftir því sem tiú ger ist á íslandi. Þeir hafa að eins eina kirkju, að Skarði, og frá því að fyrst mátti messa vegna veik- indanna fyrri hluta ársins, á Pálma og til ársloka, hafa þeir aldrei, ekki einn helgan dag, látlð guð- þjónustu niður falla, þegar prest- ur heíir verið heima. Og af 182 fermdum, segir prestnr, að 106 hafl verið til altaris. Hvort sem Landmenn nú verða fyrir þetta lofaðir eða lastaðir, þá er þó víst, að andlega félagslifið, safnaðarlíf- ið, trúarsamlifið, er rótin til hins verzlega félagslífs. Við kirkjuna -sína finnast þeir og kynnast og minnast málefna sinna, finna til bróðernisins, og tengjast bróður hug og böndum. Og víst er það, að Landmenn hafa verið og eru enn yfir höfuð meiri og betri fé- iagsmenn en náungarnir víða annarstaðar, enda ber afkoma þeirra vitni um það, því að Landið sem þeir byggja er ekki alténd björguleg bygð; meira enhelming- ur sandauðn, rjúkandi í þurviðr- unum og nístandi köld í frostun- um. Og hinir heilu blettir eru harðir og snöggir. Þeir hafa því mikið við að stríða og oft við strangt að búa. En þetta gerir þá fremur harða og seíga alvöru menn, og knýr þá til félagsskap- ar, og félagsskapurinn hjálpar. Hann er betri en náttúrugæðin, og máttkari en náttúru óblíðan. Aft- ur hefír Landið verið hin fríðasta og bezta sveit. En þótt hún nú sé skrámuð og snoðin, þá eru samt heilu blettirnir enn fagrir og drjúgir til nota, og yfirbragðsfrið og aðlaðandi er sveitin öll, þegar tíð er góð; enda una þar flestir þrátt fyrir alt, og Landmenn e 1 s k a allir sveitina sína, sem að eins er hörð við þá »eins og móð- ir við börn«. Þetta heyrist oft og sést, að þeir elska »Landið« sitt, þegar svo ber undir, og væri óskandi, að allir elskuðu svo sína sveit. Á landinu verða því ekki mörg búendaskifti né býli laus. Þeir vilja helzt lifa og liggja dauðir í sveitinni sinni. Og vinnu- fólkið vill líka enn ekki svo mjög hafa sveita- eða sýsluskifti. Fólks- breytingar eru mjög litlar. Horfur eru því sem stendur góðar fyrir Landmenn, og haldist horfið, og haldi þeir áfram, eins og nú stefn- ir, þá eiga þeir fram undan sér góða framtíð. Yerði það. Nágranni. Skólabræður. Flestir skólagengnir menn eru á eitt sáttir um það, að skólaárin hafi verið blómakafli ævinnar. Allflestir, sem til menta eru settir, koma í iatínuskólann á unga aldri; á þeim aldri, sem ekki er farinn að binda mönnum marga né þunga áhyggjubagga. Skólapiltar lifa því flestir áhyggjulitlu lífi, og una glaðir og léttir í lund skólavist sinni. Vitanlegu eru þeir piltar til, sem illa eru fjaðraðir, og geta því ekki flogið um meutageiminn sem áhyggjulausir fuglar f loftinu, piltar, sem eiga fáa og lítilsmegn- andi styrktarmenn að, og er fá- tæktin þung þar eigi síður en ann- arsstaðar. ^Önnur áhyggja ryður sér einnig til rúms í skólabekkj- unum, og á að ryðja sér til rúms þar, sú áhyggja að komast áfram, taka sem mestum framförum, hafa sem mest og bezt not kenslunnar, munandi það, að nemaudinn lærir fremur fyrir lífið en skólana. En námsáhyggjan verður létt fyrir iðni og ástundun, fyrir hlýðni við kennarana, og iotningu fyrir þeim, sem er hverjum nemanda sjálf- sögð fórn; kennarinn leggur mikið i sölurnar fyrir lærisveininn, og gengur honum í margri grein . í föðurstað. Þrátt fyrir áðurtaldar áhyggjur eru skólaárin blómakafli ævinnar; þá er æskufjörið og von- in og framsóknin i blóma. Hvergi og aldrei gefst mönnum kostnr á skemtilegri og uppbyggi- legri félagsskap en i skólanum. Þar er saman kominn fjöldi ungra manna, þar sem hver leggur sitt til að auka yndi og unað sambúð- arinnar. Þar eru mörg skilyrði til staðar til að rækta blóm fegurðar- innar og að skemta auga og eyra. Og hýrlegt er það ungum efnileg- um mönnum, að una undir vængja- skjóli mentagyðjunnar, og teyga úr þeim fræðsiuiindum sem renna við fætur þeirra. Hýrlegt er þeim að komast í mjúkinn hjá tyllidaga gyðjunum, þeim Evterpe (hin gleðj- andi), Kalliope (hin raddfagra) og Terprikore (dansglöð). Marga skemtistund hafa lærisveinar ia- tínuskólans fram yfir aðra jafn- aldra sína. Þar nema þeir hina fögru sönglist, þessa viðurkendu meinabót, og þeirrar þekkingar og kunnáttu njóta þeir vel og lengi sumir hverjir, og með henni stytta þeir sér marga stund þegar fram i sækir. Þar gefst þeim kostur á að kynnast »dansglöð«, og njóta hinnar saklausu og hollu skemt- unar, sem dansinn veitir, auk þess sem margur ungur raaður hefir beint í danssalnum lagt hinn fyrsta stein 1 grundvöll gæfu sinnar og gengis. Skólalífið í heild sinni, erfiðleik- ar námsins, skemtistundirnar, sól- skinsblettirnir, alt þetta knýtir lærisveinana saman í eitt bræðra- félag; allir skólabræður verða að minsta kosti góðir kunningja og sumir sannir vinir. Vér hinir eldri, sem komnir erum útí lífið fyrir mörgum tugum ára, og höf- um skólalífið að baki oss, vér minnumst glaðir enn þeirra vin- áttubanda, er vér knýttum á skóla- árum vorum, og eigum beint fyrir skólaveru vora margan og trygg- an vin enn 1 dag. Það er líka sannarlega eigi siður þörf á góð- um vin þegar út í lífið er komið og áhyggjurnar aukast, en á með- an í skólanum er verið. En hvort mun það ekki svo, að sumir þeir, er í skóla urðu góðir vinir, slá oft slöku við að viðhalda þeirri vin- áttu, er skapaðist í skóla? Margur mun verða að játa þetta, þó ílt sé. Margir skólabræðranna verða síðan embættisbræður og þá fyrst er gott og gagnlegt að eiga þann hauk í horni, sem gott er að bera sig saman við, svo að vinirnir geti látið hver öðrum í té holl ráð og bendingar, er stuðla til þess að embættisfærsla fari sem bezt úr hendi, áhuginn eflist og aukist, á- hugi á framförum reglu og vel- sæmi hvers embættis, og þar með áhuginn á velferð lands og lýðs. Satt er það að stærð lands vors og strjálbygð, fjarlægðir og tor- sóttir vegir tálma þvi mikið, að skólabræður geti haldið höndum saman, eftir að þeir eru tvístraðir hingað og þangað um landið, og þeir, er samskonar embættum þjóna, geti orðið sannir embættis- bræður, yngt upp sinn gamla kær- leik og viðhaldið honum. Em- bættisbræður sjást of sjaldan. Prestar einkum hafa ofiítil afskifti hver af öðrum. Á synodus koma tiltölulega fáir prestar saman. Héraðsfundir eru takmarkaðir inn- an vébanda hvers prófastsdæmis, og ná ekki lengra. Það verður líklega ekki fyr en næstu alda- mót að embættisbræður geti náð fundum saman fyrirhafnarlítið á skömmum tíma, þegar þá langar til; ekki fyrr en komið er járn- brautarnet yfir land alt. En bréfaskriftir milli embættis- bræðra gætu verið tíðari en þau eru, og geta þær raiklu góðu til leiðar komið, vakið og glætt forn- an vinskap skólabræðranna, og gert embættisbræðrunum starf þeirra ljúfara og léttara. Þá fyrst hefir það gilda þýðingu að afla sér vina í skólanum, ef sannir skólabræður verða síðar meir sann- ir embættisbræður og vinir. Æ o 1 u s. ----» >-------- Búuaðarrit 16. ár. 4. hefti 1902. Þetta hefti flytur eingöngu út- drætti úr skýrslum og búnaðar- funda umræðum. Fyrst í heftinu er útdráttur af umræðunum á aukafundi landbún- aðarfélagsins, er haldinn var 8. nóv. f. á. í Reykjavík í tilefni af búnaðarritgerð hr. lærðaskólakenn- ara Björns Jenssonar, er birtist í ísafold 1 októbermánuði. Fundargerð þessi ber það með sér, að 11 félagsmenn hafa tekið til máls, auk formælanda B. J. Voru þar komnir 8 búfræðingar og tóku allir þátt í umræðunum eins og áður hefir verið lauslega drepið á í þessu blaði Útdráttur þessi virðist að vera hæfilegalangur ogskýrlega saminn, raálið fremur gott og látlaust, eins og það er yfirleitt í þessu hefti. Fróðlegt mun búmönnum útum land, þykja, að lesa ágrip af fundar- gerð þessari, þar sem svo mikils- varðandi og stórt málefni var til umræðu, gersamleg breyting á jarðræktinni. Ekki fylgdu neinir af þeim, er tóku þátt í umræðunum, Birni Jenssyni að málum nema bústjóri Jón Jónasson og skólastjóri Sig- urður Þórólf'sson, sem voru sam- dóma honum í flestu, öðru en því, hvenær ætti að breyta til og hvern- ig. S. Þ. segir meðal annars, að enn sé ekki tími til kominn að snúa frá þaksléttu aðferðinni. Þetta sé mál sem eigi að hafa á bakvið eyrað og vinna að því tak- marki, að jarðræktar aðferðin breyt- ist fyr eða siðar, því landbúnaður sé til dauða dæmdur 1 framtíðinni, ef þaksléttuaðferðin á að haldast við í framtiðinni. Enda sé nú þegar byrjað á að leggja undir- stöðuna til þessara breytinga, með sáningatiiraunum við gróðrar- stöðina. Það opinbera verði að leggja undirstöðuna fasta og stöð- uga, svo ofan á hana verði bygt. Hitt, að telja bændum trú um, að þaksiéttan sé ónýt- og byrja megi nú þegar á flagsléttum, sé ekki ráðlegt. Búfræðingarnir Sigurður Sigurðs- son og Guðjón Guðmundsson mæltu mjög gegn kenningu Björns. Hin- ir, sem tóku þátt í umræðunum, virðast ekki algerlega á móti B. J. Töluðu mest um önnur atriði en þau, er kæmu i bága við greinina. Og fiestir hafa álitið grein Björns orð í tíma töluð. Þá er skýrsla um ræktunarsjóð Islands, eftir lektor Þórh. Bjarnar- son, mjög ijós og greinilega samin. Skýrslan ber það með sér, að sjóður þessi átti í árslok 1901 150,000 kr. Þar af var fullur þriðjungur sjóðsins ógreitt þjóð- jarðasölulán, 30 þús. jarðabótaián, en afgangurinn i ýmsum lánum. Af vöxtum sjóösins, sem námu árið 1901 5,450 kr. voru veittar 3425 kr. til 32 manna, er skarað höfðu fram úr í búnaði. Hæstu verðlaun voru 200 kr. en lægstu 50 kr. Þá er skýrsla eftirÞórh. Bjarnar- son um búnaðarmálafund, er hald- inn var áHvítárvöllum 19. júlí 1902. Áttu þar fund með sér stjórn- endur búnaðarfélaganna í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu, samkvæmt ósk frá stjórn landbúnaðarfélags- ins. Mættu þar 18 menn úr stjórn- arnefnd 13 búnaðarfélaga. Þar á meðal formaður og skrifari land- búnaðarfélagsins. Þessi mál voru rædd: Ráðanautarnir, plægingar, bún- aðarstyrkurinn, áburðarnýting, skógarleifar, búnaðarritið, sala ís- lezkra afurða og ábúðarlöggjöfin. Þá er skýrsla um garðyrkju- kensluna í Reykjavik eftír garð- fræðing Einar Helgason. Ber hún með sér að alls hafa 7 nemendur notið tilsagnar verklega og bók- lega í garðyrkju við gróðrarstöðina í 6 vikur frá 1. maí til 14. júní. Þeim nemendum, er komnir voru, veittar 30 kr. Seinast er nafnaskrá landbún- aðarfélagsins og telur hún 477 félaga. Yfir höfuð að tala er búnaðar- ritið gott og þarft rit, sem ætti að vera lesið á hverju heimili eins og önnur búnaðarrit sem út koma. Nomeströndin vlð Behringssundið. Nýjasta gull-Iandiö. Árið 1867 seldu Rússar Banda- ríkjamönnum Alaska fyrir frekar 7 milliónir dollara. Þó að sumu leyti sé óvistlegt þar norður frá, þá eru lika ýms hlunnindi þar, sem útlítur fyrir að Rússum hafi ekki verið vel kunnugt um. Þar er fiskiafii, selveiði, gnægð loð- dýra — og síðast, en ekki sízt, drjúgar gullnámur baíði í Klondyke og á Nomeströndinni. Það voru sænskir trúboðar, sem haustið 1898 fundu á Nomeströnd- inni fyrstir gull svo verulegar sögur færu af. Þeir höfðu heyrt ávæning þess hjá Skrælingjum, að þar mundi gull í jörðu. Þetta reyndist satt; þeir sannfærðust um, að þar mundi vera mikið gull; var þar líka sá kostur, að námurnar lágu við sjó fram og því ólíku hægara að komast að þeim en í Klondyke. Samt var ekki í neitt ráðist þetta haust, enda lagðist

x

Fjallkonan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.