Fjallkonan


Fjallkonan - 05.05.1903, Page 1

Fjallkonan - 05.05.1903, Page 1
Kemur lít einu sinni i viku. Yerð árg. 4kr. (erlendis 5 kr. eða lVa doll.) borgist fyrir 1. júlí (erlendis 'yrir- fram). íjppsögn (skrifleg)bund in við áramót, ógild nema komin sé til út- gefanda fyrir 1. októ- ber, enda hafi kaup- andi þá borgað blaðið. Afgreiðsla: I»ing- holtsstræti 18. XX. árg. ! Reykjavik 5. maí 1903 Nr. 18 Augnlœkning ókeypis 1. og 3. þrd. á hverjum mán. kl. 11—1 í spltalanum. Fornqripasafn opið md., mvd. og ld 11—12. K. F. U M. Lestrar- og skrifstofa op- in á hverjum degi kl. 8 árd. til kl. 10 síðd. Almennir fnndir á hverju föstudags- og sunnndagskveldi kl. 8'/2 siðd. Landakotskirkja. Guðsþjónusta kl. 9 og kl. ti á hverjum helgum degi. Landsbankinn opinn hvern virkan dag 4tl. 11—2. Banka8tjórn við kl. 12—1. Landsbókasafn opið hvern virkau dag ki. 12—2 og einni stundu lengur (til kl. 3) md., mvd. og ld. tii útláua. Náttúrugripasafn, i Doktorshási, opið á sd. kl. 2—3. Tannlœkning ókeypis í Pósthússtræti 14b 1. og 3. mánud. hvers mán. kl. 11—1. Uppboðsaugiýsing. Fimtudaginn 28. mai 1903 verða vjð opinbert uppboð að Arnarbæli í Ölfusi seldir ýmsir búsmunir og áhöld, hross og sauðfénaður. Uppboðið byrjar kl. 11 árdegis, og verða söluskilmálar birtir á upp- boðsstaðnum fyrir uppboðið. Skrifst Árnessýslu 22. apríl 1903. Sigurður Ólafsson. Eriend tíðindi. Khöfn 27. april 1903. Um mörg undanfarin ár heflr Rússastjórn smám saman svift Finna meira og meira af sjálfsfor- ræði þeirra. Finnar hafa borið harrn sinn í hljóði og farið fram með stillingu og gætni og hefir þeim á þann hátt hepnast að nokkru leyti, að stemma stigu fyrir yflrgangi Rússa. Vill nú Rússa- stjórn ekki lengur láta Finnum haldast uppi með að veita vald- boðum hennar mótspyrnu og heflr því geflð landstjóra Finnlands al- ræðismannsvald yfir þegnum sín- um. Heitir landstjóri sá Bodrikoff; er hann harður í horn að taka og fylginn sér og hefir hann nú þegar tekið að beita valdi sínu óspart og af lítilli mildi. Nokkrum helztu mönnum Finna hefir verið boðið að vikja úr landi, mörgum em- bættismönnum hefir verið vikið frá embætti og sumum kastað i fang- elsi. Réttindi þeirra og lög eru fótumtroðin og alt gert til þess, að reyna að útrýma þjóðerni þeirra og tungu. Eru allar líkur til þess, dagar þessarar óhamingjusömu þjóðar séu bráðum taldir, því að af eigin ramleik geta þeir ekki reist rönd við ofbeldi Rússa, og hjá öðrum þjóðum eiga þeir engrar hjálpar að vænta. Rússar hafa nýlega krafist þess af Kínverjum, að þeir selji sér í hendur æðstu völd yfir Mandschurí- inu og synji öllum öðrum þjóðum um nokkur yfirráð þar. Kínverj- ar hafa neitað kröfum þessum og gera þeir það að undirlagi ýmsra stórvelda, sem vilja með engu móti leyfa, að Rússar verði einir um hituna þar um slóðir. Eink- um hafa Englendingar, Bandamenn og Japanir brugðist mjög reiðir við og þykir þeim Rússar gerast furðu djarfir, að fara slíks á leit. Er því eigi líklegt, að Rússum heppnist að fá þessum vilja sinum framgengt. Englendingar hafa í 3 ár átt í ófriði við höfðingjann Mullah í Somalilandinu í Suður-Afriku og hefir þeim veitt erviðlega í þeim viðskiftum. Hinn 10. þ. m. sendi aðalherforingi Englendinga þar syðra, Manning að nafni, hersveit- ir nokkrar lengra inn i landið til þess að njósna um ferðir Mullah. Foringi þeirrar farar heitir Cobbe. Nokkur hluti liðs hans lenti í or- ustu við hersveitir Mullah og beið algerðan ósigur; aðeins 37 raenn komust undan á flótta, en hinir allir féllu; voru það um 200 manns. Þegar Manning fékk fregnir þess- ar,. hélt hann þegar á stað til móts við Cobbe. En hersveitir Mullah voru á veginum og réðust á hann. Varð þar enn orusta all mannskæð og er sagt, að 2000 manna hafi fallið af liði Mullah, en eigí hafa enn borist fregnir af, hve margir hafi fallið af Englend- ingum. Talið er, að Manning hafi unnið sigur, og er hann nú kom- inn alla leið til móts við Cobbe. Ófriðnum í Marokko er enn eigi lokið. Mjög er talið efasamt, hver bera muni hærra hlut, soldáninn eða Bu-Haraara, foringi uppreist- armanna. Heyrst hefir, að soldán- inn ætli sjálfur að takast á hend- ur stjórn hersins; þykir honum herforingjar sínir linir í sóknum. öllum Evrópumönnuto, sem verið hafa við hirð hans, hefir hanri vis- að á braut, og hefir hann neyðst til að gera það að vilja þegua sinna, sem fiestum er meinilla við Evrópumenn og siðu þeirra. Rússar hafa krafist 120,000 franka í bætur fyrir víg konsúls síns, er drepinn var í Mitrovvitza 1 Makedoniu. Stendur Tyrkjum hinn mesti ótti af reiði þeirra og gera alt, sem þeir geta til þess að blíðka þá. Sífeldar óeirðir eru altaf í Makedonfu og hver höndin uppi á móti annari. Eru engar horfur á, að þeim róstum linni í bráð. Byltingahugur mikill er í Spán- verjum um þessar mundir. Halda þeir samkomur víðsvegar um land og þykjast vilja fá lýðveldisstjórn eða liggja dauðir ella. Hin frjálslynda stjórn, sem nú situr að völdum á Frakklandi, á altaf i höggi við klerkalýð og munka þar i landi. Hafa þeir um langan aldur að mestu leyti haft á hendi uppfræðslu alþýðunnar og not- að sér það til þess að kenna henni sérkreddur sinar og hindurvitni og gera hana fjandsamlega öllum frjálslegum hreifingum, eirtkum þó í trúarefnum. Hefir stjórnin með miklum dugnaði reynt að ráða bót á þessu og bannað klerkum, tnunk- um og nunnum að kenna við al- þýðuskólana. Oft hefir bún orðið að beita hörðu til þess að koma vilja sínum fram, því að klerkar hafa sumstaðar fylgi allmikið. — Revoil landstjóri Frakka í Algiers hefir nýlega sótt um lausn frá em- bætti. Er hann klerkavinur mik- ill og er grunaður um að hafa tekið þátt í æsingum móti stjórn- inni; einkum er hann bendlaður við mál nokkurt, sem nýlega hefir verið hafið af einu af blöðum Frakka. Er því haldið fram þar, að stjórnin eða fylgifiskar hennar og þó einkum ungur maður, sonur Cambe ráðaneytisforseta, hafi boð- ið hinum svo kölluðu Kartheuser- munkum ýms forréttindi og hlunn- indi, ef þeir vildu borga eina millj- ón franka. — Sumir segja þrjár miljónir. Hefir mál þetta verið ransakað og virðist það aðeins vera rógur og lygar einar og hefir ekkert komið fram þvf til sönn- unar. Stjórnin hefir nú boðið Kartheuser-munkunum að fara úr klaustrum sínum, en þeir hafa þverskallast við öllum boðum henn- ar og segjast eigi munu fara, nema þeir séu reknir á brott með valdi. Mun þess heldur eigi Jangt að bíða, að svo verði gert. — Páfa þykir nóg um aðfarir Frakka- stjórnar í málum þessum, en eigi hefir hanri þó blandað sér í þau enn þá. En líklegt þykir, að hon- um muni nú finnast setið meðan sætt er. Þýzkur sjóliðsforingi, Hússener að nafni, nítján ára gamall, drap nýlega ungan hermann, sem hann mætti á stræti i Berlín, sakir þess, að honum þótti hann eigi sýna sér tilhlýðilega virðingu. Var honum þegar varpað í fangelsi og mælist verk þetta mjög illa fyrir, sem von er. Kviknað hefir í steinoliunámum í Teksas. Skaðinn er metinn 10 milljónir dollara. Fyrir skömmu sprakk i loft upp púðurverksmiðja í Hongkong í Kína og misti 1000 manna lífið. Framtíðarlönd. Þegar vér á bernskuárunum sitjum í hreysum vorum í skamm- deginu og hríðin lemur utan hús- in og snjórinn byrgir gluggana, hversu oft hugsum vér þá um löndin hinum megin við hafið, þar sem sólin skín allan ársins hring og aldrei festir snjó á jörðu; þar sem alt er blómum þakið og grasi vafið, jafnt sumar og vetur. Og þegar vér svo náum þroska aldrinum og verðum sjálfir að heyja baráttuna fyrir tilverunní og strita og starta frá morgni til kvelds, hversu oft hugsum vér þá um fjarlægar heimsálfur, þar sem auðurinn og unaðssemdirnar búa og alt er þakið gulli og grænum skógum, þar sem enginn verður beygður af þrældómi eða örbyrgð, en allir lifa í »vellystingum prakt- ulega« og eta skínandi krásir. Þegar vér í huganum berum þetta saman við okkar eigið land, þar sem fátæktin og frostið býr og alt er þakið isi og snjó, þá er það eigi að undra, þótt oss langi burt til ketkatlanna í hinum fjar- lægu Jöndum. En fæstir þekkja nokkuð til hlítar þessi fyrirheitnu lönd. Þau standa fyrir hugskotssjónum vorum gædd öllum jarðneskum gæðum, en hina sönnu kosti þeirra og lesti þekkjum vér ekki. Oss er ókunnugt um, hvaða skilyrði krefj- ast til þess, að geta komist þar á- fram, og hvort þau í raun réttri eru nokkuð auðugri að gæðum, en vort eigið land. Þessi þekk- ingarskortur á sér stað víðar en á íslandi, og til þess að > ráða bót á honum í Danmörku hefir rit- höfundurinn Walter Christmas tek- ist á hendur að skrifa bók um framtíðarlöndin, sem nú er að koma út á kostnað Gyldendals bókaverzlunar. Christmas nefir farið viða um lönd og þekkir manna bezt til i fjarlægum heims- álfum og má ganga að því vísu, að alt sé satt og rétt, sem hann skýrir frá. Bókin kemur út í heftum og er mjög ódýr. Myndir eru margar og góðar. Það, sem nú er komið út af bókinni, er að eins um Ástraliu. Er það nákvæm lýsing af lands- háttum öllum og atvinnuvegum, mentun og stjórnarskipun og öðru þvi, er nauðsynlegt er, að vita fyrir innflytjendur. Má af því sjá, að margt er þar öðruvísi en oss hefir dreymt um. Gullgröftur- inn er mjög örðug og hættuleg vinna sakir hita og vatnsleysis, og yfirleitt græða menn ekki meira á honum en annari vinnu. Sauð- fjárrækt hefir verið með miklum blóma, en er nú í hinni mestu afturför sakir þurka og hita; deyr féð þúsundum saman af þorsta og hungri, því að grasið getur ekki vaxið sakir þurkanna, sem hafa verið óvanalega miklir 1 hin síð- ustu tíu ár. Til frekari skýringar er vert að geta þess, að árið 1897 voru 18 miljónir sauðfjár í fylk- inu Queensland, en árið 1900 voru þar að eins 10 miljónir. Allir, sem skilja dönsku og vilja fræðast um framtíðarlöndin, ættu að lesa þessa bók, sem er hin fróðlegasta og eigulegasta í alla staði. B. L. Veðráttan síðustu. viku hin ákjósanlegasta hér sunnanlands. Oftast logn og sólskin; andkaidur samt oft, einkum kveld og morgna

x

Fjallkonan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.