Fjallkonan - 06.04.1904, Síða 1
Kemur út einu sinni i
viku. Verð” árgangsins 4
krónur (erlendis 5 lcrónur
eða l*/a dollar), borgist
lyrir 1. júlí (erlendis fyrir-
ram).
BÆMDABLAÐ
V ERZLUNARBXAÐ
Uppsögn (skrifleg) bund-
in við áramót, ógild nema
komin sé til útgefanda fyr-
ir 1. október, enda hafi
kaupandi þá borgað blaðið,
Afgreiðsla :
Leekjargafa 12.
XXI. árg.
Reykjavík, 6. apríl 1904.
Nr. 14.
Augklæknino ókeypis 1. og 3. þrd. á
hverjum mán., kl. 11 — 1 í spítalanum.
Forngripasafn opið md., mvd. og ld.
11—12.
K. K. U. M. Lestrar- og skriístofa opin
á hverjum degi kl. 8 árd. til kl. 10 síðd.
Almennir fundir á hverju föstudags- og
sunnudagskvöldi kl. 8^/2 siðd.
Landakotskirk.ta. Guðsþjónusta kl. 9 og
kl. 6 á hverjum helgum degi.
Landakotsspítali opinn fyrir sjúkravitj-
endur kl. ÍO1/^—12 og 4—6.
Landsisankinn opiun hvern virkan dag
kl. 11—2. Bankastjórn við kl. 12—1.
Landsrókasafn opið hvern virkan dag
kl. 12—3 (md., mvd. og ld. kl. 2—3 til út-
lána) 6—8 síðdegis.
Landsskjalasafnib er opið hvern þriðju-
dag, föstudag og laugardag kl. 12—1.
Náttúrugripasafn, í Vesturgötu 10, opin
á sd. kl. 2- 3.
Tannlæicning ókeypis í Pósthússtræti 14b
1. og 3. mánud. hvers mán. kl. 11—1.
Walker’s giscnits
John Walke=Glasgow.
baka allar tegundir af hinum ljúf-
fengu smákökum og ódýra skipsbrauði.
Biðjið ætíð um þeirra brauð.
Aðalumboðsmenn þeirra fyrir ís-
land:
G. Gíslason & Hay, Leith.
Útlendar fréttir.
Kaupmannahöfn, 18. marz 1904.
Daniuörk. í Khöfn er uppi fót-
ur og fit vegna bæjarstjórnarkosn-
inga, sem fram eiga að fara 29. þ.
m. Vinstrimenn skiftast í tvo flokka
og gengur annar ílokkurinn að kosn-
ingum með hægrimönnum, en hinn
með jafnaðarmönnum. Eru það hin-
ir frjálslyndu vinstrimenn. Þeir vilja
halda áfram stjórnmálastefnu Hörups
heit., færa niður herútgjöldin og láta
jjani hætta öllum herútbúnaði; segja,
að hann sé hégómi og annnað ekki,
eyði rniklu fé, en vínni landi og lýð
ekkert gagn. Þykir þeim vinstri-
mannastjórnin hafa brotið mjög bág
við stefnu og skoðanir vinstrimanna
áður en þeír náðu um stýrið, og
veita henni allþungar ávítur. Er blað-
ið „Politiken" máigagn þeirra, er
þann flokk fylla; en blöðin „Ðanne-
brog“ og „Köbenhavn" halda svörum
uppi fyrir stjórnina. Liggja þau
frjálslynda flokknum mjög á hálsi
fyrir samdrátt þeirra við jafnaðar-
menn og láta einkis ófreistað til að
bægja þeim frá kosningunum. Spara
þar hvorugur annan; má segja um
þá líkt og meistari Jón, að „þeir
bítast og berjast sem gaddhestar um
ilt fóður".
Ráðgert er, að Játvarður Engla-
konungur og Alexandra drotning
hans muni heimsækja konung vorn
á aímælisdag hans 8. april.
Hörmulegt slys vildi hér til snemma
j fljánuðijjuin. Aðfaranótt sunnu-
dags 6. þ. m. 'hélt félag eitt grímu-
dansleik. Um lágnættisbilið heyrð-
ist alt í einu vein mikið í einu sals-
horninu. títóð þar skyndilega kona
ein í Ijósum loga; hafði kviknað í
búning hennar af eldspítu. Lék log-
inn um hana frá hvirfli til ilja. —
Flestum varð svo bilt við, að þeir
íuku á dyr. Einum karlmanni varð
samt að vegi, að reyna að kæfa
eldinn. Sér hann þá, að þettá er
konan hans, og áttr hann sízt von
á því. Hún hafði ekki viljað fara
með manni sínuin á dansleikinn;
en tók þó fyrir að fara á eftir hon
um með syni þetrra stálpuðum. .—
Maðurinn varð alveg utan við sig,
en gat þó drepið eldinn. Stóð þá
konan allsnakin uppi, en öll stór-
skemd af brunasárum. Var henni
þegar ekið til sjúkrahúss. Hjarði
hún svo við harmkvæli mikil þang-
að til á mánudagsmorgun.
Noregur. Kona ein í Frederiks
stad réði bana nýl. tveim kornung-
börnum sínum; var annað 3 ára, en
hitt 3 missira gamalt. Ætlaði hún
að farga sjálfri sér á eftir, en brast
þá kjarkinn. Hún hafði stolið nafni
annars manns á víxil og með þeim
hætti svikið 200 kr. út úr sparisjóði
einum. Þegar óráðvendni þessi vitn-
aðist, greip hún til þessara óyndis-
úrræða. Hún var 27 ára gömul og
átti 4 börn; 2 börnin voru í orlofi
hjá afa sínum og ömmu og héldu
þvi lífi. Peningunum var hún búin
að eyða tíl skuldalúkninga.
Svíþjóð. Tíðrætt hefir orðið um
það, að karl- og kvenstúdent í Gauta-
borg hafa „gift sig sjálf“, líkt og Ei-
ríkur heitinn frá Brúnum. gerði hérna
um árið. Þau auglýstu í blöðunum,
að eftirleiðis álitu þau sig sem hjón,
þó þau hefðu enga hjónavigslu frá
presu, og síðan tóku þau saman. —
Háskólakennararnir fyltust réttlátri
reiði og buðu þeim að fara til K.-
hafnar og láta þar vígja sig í borg-
aral. hjúskap. — Eftir sænskum lög-
um er það ekki leyfilegt. — En þau
neituðu og kváðust una vel hag sín-
um í þessum nýja hjúskap. Var þeim
þá hótað brottrekstri. Uppsalastú-
dentar hafa lát.ið óánægju mikla í
Ijósi yflr harðýðgi þessari. Einn há-
skólakennarinnn í Uppsölum hefiráður
gift sig á þessa leið, og var það lát-
ið kyrt. Nú virðast stúdentar telja
sér leyfllegt að fara í för hans.
England. Hundrað ára afinæli
biflíufélagsins brezka héidu Englar
6. þ. m. Var þá margt rætt og rit-
að um starfsemi félagsins, vegleg
guðsþjónusta haldin, sem drotningin
var viðstödd 0. fl. En konungurvar
þá lasinn og kom því þar lítið nærri,
Fyrir skömmu beið stjórnin ósig-
ur allmikinn í neðri málstofunni. —
Frumvarp, sem hún hafði lagt fram,
var felt með drjúgum atkvæðamun.
'JóIíu apdstæðingar hennar því með
! fögnuði miklum og spurðu hana um
i leið, live margar siikar hrakfarir hún
ætlaði að fara, áður en hún veJtist
úr völdum. En ekki lét hún þetta
neitt á síg bíta að sinni.
Látinn er í dag á Englandi hert
toginn af Cambridge. Hann var 84
ára. að aldri.
fyzkaland. Þó ekki sé fagurt
til frásagnar, þá virðist sá siðurfara
í vöxt hjá „betra fólkinú", sem svo
er nefnt, á Þýzkalandi, að lifa í hóf-
lausu sukku og býlífi, herja út lán
hvar sem fæst, og síðan er öll sund
eru lokin, þá að ráða sér bana, og
það ekki með leynd, heldur svo, að
úr því verði umtal eða jafnvel „skemt-
an fyrir fólkið“.
Þannig var urn fyrv. hershöfðingja
eínn í Berlín. Hann réð fyrir skömmu
bana sjálfum sér, konu sinni, dóttur
og tveim sonum. Þau hjón höfðu
borist mikið á og ekkí kunnað sér
hóf. En er öll ráð voru þrotin og
skuldheimt amenn gáfu ekki lengur
grið, tóku þau þetta ráð og völdu
til framkvæmdanna afmælisdag dótt-
ur sinnar, er hún varð 19 ára. Syn-
ir þeirra tveir, nálægt tvítugu, er
báðir voru á herforingjaskóla, efni-
legir og vel látnir, fengu leyfi og
komu heim. Afmælisdagurinn leið
í glaum og gleði; foreldrar og börn
fóru á ýmsa skemtistaði og er heim
kom, var etið og drukkið fast freyð-
andi kampavín. Piltarnir urðu drukn-
ir og ultu út af í fötunum; gaf faðir
þeirra þeirn eiturblöndu að drekka.
Dóttirin tók blönduna sjálf og iagðist
fyrir í skrautklæðum sínum. Sama
gerðu foreidrarnir. Fanst svo alt
frændfólkið dautt um morguninn,
hver maður alklæddur, en í rúmi
sínu með klút breiddan yfir andlitið.
Þá skaut og kaupmaður nálægt
Berlín konu sína, son sinn 10 ára
gamlan og loks sjáifan sig. Orsökin
sama, fjáreyðsla, sukk og gjaldþrot.
Bankamaður einn, Jóhannes Rein-
hart að nafni, stal nýl. einni miilíón
þýzkra marka frá banka einum í Ber-
lín, sem kendur er við Brendel & Co.,
og strauk af landi burt. Þeir, sem
fé áttu i bankanum, urðu skelkaðir og
aðai-meðeigandi bankans, stjórnarráð
dr. Brendel, réð sér bana af örvænt-
ingu, fleygði sér útum glugga ofan
af þriðja lofti.
Það kom fyrir á eyjunni Finken-
werder í Elben, að snöggleið yfir
fjölda fólks um miðja messu 3. s. d.
í föstu, og mörgum varð minna ílt.
Ætlaði þá söfnuðurinn þegar að tryll-
ast af hræðslu. Orsökin var ekki
önnur en megn kolasvæla; ofnarnir
ekki hreinsaðir um afarlangan tíma.
Þegar læknir kom til, batnaði flest-
um vonum bráðara aftur; en tvær
konur og 6 börn voru samt mjög veik
á eftir.
í Wien bar það til tíðinda, að greifi
einn, Georg Napoleon Qsaky að nafni
og skrifari í ungverska stjórnarráðinu,
skaut á aimannafæri 4 eða 5 skot-
um á frú eina, forkunnarfríða; hún
var kona verzlunarmanns þess, er
Mrawenetz hét. Fór ein kúlan inn
á milli rifja, en önnur kom í annað
lærið á frúnni. Hánn var þegar tek-
inn höndum; fundust á honum 5
skot og 10,400 kr. í seðlum. En
frúnni var ekið til sjúkrahúss og veitt
aðhjúkrun. Voru læknar hræddir um
líf hennar. Greifinn kvaðst alls ekki
þekkja frúna, aldrei hafa séð hana
fyrri. Sig hefði bara ait í einu langað
til að skjóta einhvern og hún hefði
verið hendi næst. Sumir ætla samt,
að annað hafi fremur verið í efni.
En mörgum þykir sennilegt, að greif-
inn sé ekki með öllum mjalla, enda
áður brytt á þunglyndi í honum.
Hann er vel að sér ger um alla hluti,
en „veraldarmaður" í meira lagi hefir
hanu verið, borist mikið á og fjárhag-
ur hans í óreiðu mikilli. „Svo fer
þeim, er sölin eta“.
Svissaraland. Hinn 9. þ. m.
hófst mál mikið við eiðsvararéttinn í
Zurich; eru við það flæktir margir
lielztu hershöfðingjarnir á Svissara-
landi. Tildrög málsins eru þau, að
mikilsvirtur hershöfðingi einn hefir
ritað hverja greinina á fætur annari
íblað lýðveldismanna, sem heitir „Zúr-
icher Post“, og ber þar þungar sak-
ir á marga æðstu valdamennina í
liernum, sakar þá um margskomir
spillingu, mútur 0. fl. Er ekki upp-
leystur á málinu því nema annar
endinn.
Engverjalaiul. í borginni Buda-
pest hafa 5000 skraddarasveinar hætt
vinnu. Hafa 72 skraddarameistarar
tjáð sig fúsa til að ganga að kröfum
þeirra. En sveinarnir vilja samt ekki
taka til vinnu aftur, nema enn þá
fleiri meistarar játist undir sömu kosti.
Hafa af þessu hlotist róstur talsverð-
ar og margir verið teknir höndum.
Frakkland. Nú er Dreyfusmál-
inu þar komið, að endurskoðun þess
er ákveðin; telja flestir sýknu hans
efalausa. Allur undirbúningur undir
rannsóknina nýju hefir farið fram
með hinni mestu spekt og ^æsinga-
laust.
Fyrir miðjan þenna mánuð varð
þytur mikill í París út úr því, að
uppgaus sá kvittur, að ritari ’ einn í
flotaráðaneytinu hefði 'áelt Japönum
mikilvæg skjöl, er einkum þó væru
þýðingarmikil, ef Rússar og Frakkar
fylgdust að málum gagnvart Japönum.
Ritari þessi heitir Martin og kvaðst
hann borinn röngum sökum. Blöðin
hafa gert mikið veður út úr þessu.
Flotamálaráðherrann hefir að svo
stöddu neitað öllum skýringum, en
sagt, að málið skyldi verða rannsak-
að eftir föngum, og Martin hefir verið
fangelsaður. Blaðið „République Fran-
caise" segir, að þetta só sízt að undra