Fjallkonan - 06.04.1904, Síða 3
FJALLKONAN.
55
10 millíónir. Þar að auki sé þorsk-
urinn nú bæði horaður og lifrarlítill.
Lengra norður sé flskui inn samt enn
þá lakari og rýrari, en betri aftur, er
sunnar dregur.
Ekki viti menn, segir blaðið, hverju,
sé um aflaleysið að kenna. Sjómenn
og fiskikaupmenn sóu vongóðir um,
að enn muni úr aflaleysinu rætast. í
fyrra hafl gengið 2508 fiskiför, en
nú gangi 4024. Verðlag sé ekki
hærra en fyr, nema á lifur; hún
hafl hækkað í verði síðustu dagana.
í Finnmörk voru aflabrögðin sæmi-
leg; nákvæmar skýrslur vantaði.
í Þrændalögum einnig látið vel af
aflanum. Ailur afli talinn 720,000.
Kallað gott svo snemma á vertíð.
í Romsdalsamti var allur aflinn
1,250,000. Á vesturströndinni fyrir
supnan Stað allur afli 100,000.
Allur aflinn í Noregi er talinn að
hafa verið im þett.a leyti (8. marz)
eftir fengnum skýrslum 7,500,000.
Undanfarin rýrðarár hefir aflinn verið
um sama leyti hér um bil 10 millí-
ónir og í góðum árum stundum 20
miilíónir.
Fólkstalið á íslandi 1, nóv, 1901,
Hagfræðisskrifstofa ííkisins er nú
loks búin að leggja smiðshöggið á
fólkstalið hér á landi 1. nóv. 1901.
Mannfjöldinn hér á landi var þá
78,470. Þar af voru 37,583 karlar,
en 40,887 konur. Hundrað árum
áður var mannfjöldinn alls 47,000,
árið 1840 var hann 57,000, árið
1880 var hann 72,000 og ioks 1890 var
hann ekki nema 70,000.
Eftirtektarverð er mannfjölgunin
síðasta áratuginn (1890- 1900), eink-
um er litið er til þess, að næsta
áratug þar á undan fór fólkinu fækk-
andi. Mest hefirfjölgað í Reykjavík.
Árið 1801 voru Reykjavíkurbúar ekki
nema 307, 1840 voru þeir 890, 1880
voru þeir 2567, 1890 voru þeir 3886
og 1901 voru þeir orðnir 6682.
Beri menn saman ísland og Dan-
mörk, þá reka menn augun í það
meðal annars, að minna er um hjú-
skap á íslandi en í Danmörku. Eru
konur samt mikiu fleiri en karlar;
er því ekki kvenfólksskortinum um að
kenna. Þannig voru í Rvík ekki nema
900 hjón 1901, þótt íbúarnir væru
6682 að tölu.
Flestir stunda landsmenn landbún-
að og fiskiveiðar, eða 78 af hundraði
hverju. Þá koma. iðnaðarmenn ö1/^
af hundraði. (í Danmörku eru þeir
28 af hundraði). Þá eru þeir, sem
fást við verzlun og samgöngur, og eru
þeir 4 af hundraði. (í Danmörku 15
af hundraði).
Jónas Jóliannesson,
bóndi í Köldukinn í S.-Þingeyjarsýslu;
dáinn í marz 1903.
Dauði höggur djarft með stáli,
Dæmdir menn úr vörum hrinda,
Gögnin verða myrk í máli,
Margir eiga um sárt að binda;
Helstríðsveinin, hátt þau láta,
Hærra þeirra, er lifa og gráta!
Stoðir vina og frænda falla;
Fjölga sár þín Beru-rjóður,
Nýgræðingar hníga og halla
Höfði þreyttu að skauti móður,
Fögur blóm, sem ylma og anga,
Áttu vors um daga langa.
Ör-ðug spor frá gröf til grafar
geta orðið veikum mætti;
Vonargeislum strjálum stafar, —
Stilli eg brag með gömlum hætti.
Ofið er sorgum öðrum þræði
Ungbarnsreifi og dáins klæði.
Hnígur látin von með vini,
Vætir elskan nábeð tárum.
Egill harmar sína syni,
Svo sem fyrir þúsund árum!
Gráta úr Helju æ um aldur
Allir sinn hinn góða Baldur.
Þér er engin hneisa að harrr.i.
Haflrðu tapað kærstum vini;
Blygðast ei, þótt bogi af hvarmi
Brennheitt flóð í dagsins skini.
Verður dreyra’ og trega tára
Tamin jafnt hin vilta bára.
Hauður spennir húmið kalda
Horflnn eftir dag og sóiu.
Hjartans bygðir alira alda
Eiga’ og sína myrku njólu.
Hveríi það, er líf þeim léði,
Ljós og hita, styrk og gleði.
Áttu kannské á æfivegi
Einn þann vin, er máttu trúa.
Kannské von þín eina eigi
Alls af himinstjarna grúa,
Og ef þessi eina hrapar,
Öllu gildi lífið tapar.
Og þótt gætir tugum talið
Trausta vini á degi nauða,
Örðugt mundi verða valið,
Væri kostur, lífs og dauða;
Alla íiltu örmum binda,
Engum fram í dauðann hrinda!
Traustu húsi grant að gættu,
Glæstri heild af mörgum liðum,
Bústu þó við berri hættu,
Bresti einn af máttarviðum.
Engan sérðu hæfan hinna
Hlutverk þess, er féll, að vinna.
Stjarnan fagra hrapa hlýtur,
Hverfa okkar bezti vinur.
Enginn lífsins lögmál brýtur,
Lemstrað hjarta i brjósti stynur;
„Vonar, trúar, vizku orðið,
Varpast máttlaust fyrir borðið“.
Gefum beizkum tregatárum
Tíma að flóa, renna, drjúpa.
Veltu söitum, sollnum bárum,
Sorgar úthaf, mikla og djúpa.
Lægir að ending alla sjóa,
Augun þorna og sárin gróa.
Stundar bíður sérhvað sinnar,
Sumarblærinn fer að landi;
Fölfu rósir, köldu kinnar,
Kyssir rjóðar himins andi. —
Öldur vona og óska streyma.
Enn skal lengi þrá og dreyma!
Hér í dag eg kom, að kveðja
Kæran vin og frænda, iátinn.
Lífs frá ströndum leyst er keðja,
Lykur dauðans hrönn um bátiun.
Öil mér lokuð sýnast sundin;
Svipul von um næsta fundinn.
Okkur skildi öllum stundum
Ófær löngum, jökulhylur;
Dró úr tíðri ferð og fundum.
Farartálmi þyngri skilur
Nú, því meinsöm milli beljar
Myrk og ísköld st.raumröst heljar.
Tylli eg mér á tæpan bakka,
Tvenna leiði eg sjónum heima.
Fjölmargt á eg þér að þakka,
Þinni minning ei skal gleyma.
Eftir góða íta og þarfa
Orð og dæmi lifa og starfa.
Lýsing enginn þarf hér þína, —
Þín í allra hug er myndin,
Út úr henni augljós skína
Einkenni þín, hrein sem lindin:
Gætni, stilling, greind og festa;
Góðra kosta alt hið bezta.
Drenglyndi með dáð og kjarki,
Djörfung rétt að mæla og gera.
Heiður og sæmd að miði og marki.
Minna að sýnast heldur en vera.
Óbeit sönn á glamri og gorti,
Gnóttum heita — og efnda skorti!
Ein'æg var þín ária og síðla
Ást og trú á þjóð og landi.
Vildir ei réttu máli miðla,
Metnaðar var ríkur andi,
Eitt var betra annara landa,
— Ertu nú kominn þar til stranda.
Heimilinu harmur mætti
Hálfu þyngri en fall af bruna;
Sá, er prýddi bezt og bætti,
Bjóst þar langa hríð að una.
Þess hinn góði burt er Baldur;
Bærinn drúpir hijóður og kaldur.
Sannlegt er þótt sveitin tregi,
Sólbros þýtt í frostbyl snerist;
Tel eg hana vel á vegi
Vera stadda, og betur en gerist,
Séu margir hæflr hinna
Hlulverk þess, er féll, að vinna.
Vandamanna er von í sárum,
Verður skaðinn minnisstæður.
Fall þitt gráta fögrum tárum
Faðir, móðir, systur, bræður;
Er sem hægi harminn ríkan,
Hafa átt son og bróður slíkan.
Þó er harmi þyngstum lostin
Þeirra, er bera ásýnd grátna,
Hún, er gegnum funann, frostin
Fram gekk trú við hlið hins látna,
Starði á heljar háska og ótta,
Hugði aldrei samt á flótta.
Eg í flokki frænda og vina
Foriög þín — og okkar trega.
Mér er raun að horfa á hina,
Hálfa, smáa, vesallega.
— Læt ég hreldan huga líða
Héðan burt til fyrri tíða.
Fund við okkar fyrsta sinni
Fékk eg á þér traust og mætur.
Aldrei sviku aukin kynni,
Alt af festust dýpri rætur;
Æ hinn sami í orði og verki,
Aldrei gekstu und fölsku merki.
Sá eg þig til dauða dæmdan
Duldum rökum æðri valda,
Burt úr æsku-Eden flæmdan
Út á heljar-gaddinn kalda.
Lögum sóttan odda og eggja,
Enginn kunni þar ráð að leggja.
Sá eg þig í ströngu stríði
Staddan síðast fyrir lokin,
Fram með hug og hjarta prýði
Hólztu unz allur sær var rokinn.
Þakinn sárum þyngstu nauða,
Þér var ærið hvert til dauða!
Lokið er verki þrautar þinnar,
Þrárnar hafa náð að landi;
Fölfu varir, köldu kinnar,
Kyssir heitar drottins andi.
Umgirt hold er ættlands sverði.
— Eftir þinni trú þór verði!
Indriði Þorkelsson frá Fjalli.
Úr Landeyjum.
Það er eigi oft, að linur sjáat héðan i
blöðum. Vildi eg nú rita fáein orð og
beiðast, að þeim yrði veitt upptaka í
„Fjallkonuna“.
Um utanverðan þennan hrepp, Vestur-
Landeyjar, flóir hið mikla vatn úr Þverá
og eykst að mun á þessum vetri og það
svo, að nú horfir til stórra vandræða, eigi
að eins að þvi leyti að jarðir fari í eyði,
slægjur og hagar undirleggist, heldur og
að þvi leyti, að menn missi fénað sinn, já
jafnvel'líf sitt, nema koma mætti vatninu
annan veg, en nú er raun á. Sjón eru
sögu ríkari. Eg er nýkominn heim úr
embættiserindi utan frá Skúmstöðum, þar
sem býr hinn þjóðkunni, liáaldraði öldung-
ur, Sigurður dbrm. Magnússon; hann er
93 ára. — Það er á hjarta skákarinnar í
þessum hreppi, óbjörgulegt yíir að líta,
hvert stingandi strá undir vatni; það nær
upp í kálgarða og standa því býlin þar út
um upp úr tilsýndar að sjá á auðu sem
þúfur. Hólarnir sem hólmar. Á ís, og
þegar kæfir í ána að utanverðu, beljar
vatnið yfir bakkana og svo fram á ísa, og
þá hækkar æ, þegar frost er, eða þá að
áin brýtur og myndar stærri og minni
skörð í bakkana, svo sem nú kvað vera,
jafnvel stór skörð komin í námunda við
Vestra- og Eystra-Fróðholt. Eigi als fyrir
löngu kom í frosti stífla í Þverá, svo að hún
fór fram yfir milli Hemlu og Skeiðs, og er
eftir kunnugum haft, að engum manni
hafi þá fært verið þar á milli og varla
lifs von, hefði eiuhver þá verið á ferð
þar á milli nefndra bæja. Þegar á leið
þann sama dag, sáu þeir Krókbændur —
Krókur er nefnt svæðið, sem á standa
býlin: Þúfa, Sperðill, Vestri- og Eystri-
Tunga og Skeggjastaðir — að vatn kom
beljandi að austan og ofan og voru þeir
höndum seinni að hlaða i kofadyr, sem
hurðir vantaði fyrir. Þegar áður en lýsti
af næsta degi, fóru menn að gæta að fén-
aði í kofum, hvort hann væri lífs eða lið-
inn eftir nóttina; var þá vatn i kofum,
sem fjær og lægra standa bæjum þar, í
mitt læri.
í einu fióði í vetur misti Sigurður bóndi
| í Þúfu, frumbýlingur, 5 kindur, annar 3 á
sama bæ. í fyrra vetur misti Andrés
bóndi á Skeggjastöðum 15 sauði gamla í
einu flóði.
Svona gengur það nú hér út um. Búast
má við tjóni á mönnum og skepnum, ef
gífurlega leysingu gerir. Þeir, sem geta,
hafa báta við bæi sína og frá sumum bæj-
um t. d. Skúmstöðum og Klasbarða verð-
ur eigi komist til húsa öðruvísi en á bát,
þegar autt er. Það er mesta Guðs mildi,
hve lítið tjón hefir enn að orðið vatna-
voðanum hér út um, og má sannlega um
það segja, að „flýtur á meðan ekki sekk-
ur“; og það geta menn skilið, að fólkið
úti í vatninu er eigi ávalt með hýrri há.
Mér vitanlega er ekki neitt útfall smátt
eða stórt á milli Þjórsárútfalls og Affallsút-
falls, og það er mein mikið. Aðdragand-
inn er svo langur austur í Affallsútfall.
Vér erum hér margir þeirrar skoðunar,
að eini vegurinn til pess að fá létt á vatn-
inu sé sá, að fá náð fram góðu útfalli
fram undan Skúmstöðum. Því miður mis-
hepnaðist slík tilraun í haust, svo vitur-
lega og kappsamlega sem þó var að þvi
unnið, en það er eigi fullreynt enn og er
vonandi, að stjórn Búnaðarfélags íslands
láti til sín taka í þessu efni og það fyr
en seinna. Hér er eigi um neitt lítilræði
að gera. Búnaðarfélagið á heiður og
þökk fyrir það, sem það hefir þegarhjálp-
að, enn betur má, ef duga skal.
Fyrir fáum árum var oftast góður veg-