Fjallkonan


Fjallkonan - 13.10.1905, Qupperneq 3

Fjallkonan - 13.10.1905, Qupperneq 3
FJALLKONAN. Blaðið ber það raeð hinum afdrátt- arlausustu orðum á ritstjóra ísa f'oldar, Bjöm Jónsson, að hann hafi þegið mútur af fyrverandi stjórn landsins. Það tekur það jafuframt furðulega hress, síðan er slysið vildi til. — Það hrapallega slys vildi til á ísafirði 21. f. m., að unglingspiltur 19 ára, Benóní Magnússon frá Króki, fram, að það hafi bréf frá honum sjálfum, sem sanni þetta. Hvað er svo til bragðs tekið, þeg- ar til þess kemur að sanna þennan gífurlega áburð ? Björn Jónsson lýs- ir þetta auðvitað ærulausa lygi, og gefur stjórnarblaðinu svo ríkt til- efni, sem frekast var hugsanlegt, til þess að sanna orð sín. Hverju er þá svarað? Hverjar ráðstafanir eru gerðar til þess að færa sönnur á sakargiftina ? Því er lýst yfir í stjórnarblaðinu, að Björn Jónsson hljóti að vera orð- inn geggjaður! það eru allar sannanirnar! Þegar búið er að bregða manninum um æru- leysi, er reynt að smeygja því inn hjá þjóðinni, að hann sé ekki með öllu viti. Það virðist ekki liggja í augum uppi, hvernig á því standi, ef íslenzk þjóð reynist þeim mun lítilsigldari en aðrar siðaðar þjoðir, að hún láti þetta atferli haldast uppi til lengdar. Slík blaðamenska er ekki boðin af stjórn nokkurs annars lands. Enda væri áreiðanlega hvergi til neins að bjóðahana uema á íslandi. Gjöræði Sam. gufusk.fél. Stöðugt eru að berast umkvart- anir um gjörræði, sem skipstjórar Sam. gufuskipafélagsins hafi í frammi við landsmenn. Tvær ósvífni-sögur frá Yestmanneyjum eru nýkoranar í ísafold; tvívegis hefir verið siglt það- an burt í færu veðri í síðasta mán- uði og póstur skilinn eftir og far- þegar. Frá Sauðárkróki kemur sams kon- ar saga í Norðurlandi. Lára fór algerlega fram hjá þeirri höfn snemma í septembermánuði. Hún átti að koma þangað 3. sept. En koma hennar drógst, og menn hugðu, að það stafaði af því, að för hennar var frestað úr Reykjavík. En 11. sept. frétta Sauðárkróksmenn, að Lára sé komin norður á Akureyri, og hafi lagt þaðan á stað austur, áleiðis til Kaupmannahafnar. Daginn, sem skipið sigldi fram hjá Sauðárkróki, komu 4 menn á opnum bát utan af Skaga inn til Sauðarkróks, svo örð- ugt er að kenna veðri um. Hr. Páll Vídalín Bjarnason, hinn nýi sýslu- maður Skagfirðinga, ætlaði að kæra þetta fyrír stjórnarráðinu, hvað sem upp úr því hefst. Þeir, sem athug- að hafa vináttu stjórnar vorrar og gufuskipafélagsins í sumar, gera sér víst ekki sérlega háfleygar vonir. Þjóöræðisfélaglð hér í bæ hélt mjög fjölsóttan fund í stóra salnum í Báruhúsi á þriðju- dagskvöldið var. Síra ólafur Ólafssön alþingismaður hélt þar fyr- irtaks-snjalla ræðu um að „gera rétt og þola ekki órétt“, og var gerður að henni mésti rómur. Fjall- konan mun flytja ágrip af ræðunni í næstu viku. Slys. Síra Magnús Helgason, kennari við Flensborgarskólann, fótbrotnaði hér í bænum á laugardagskvöldið var. Brotin stóðu út úr fætinum, þegar mannhjálp kom. Hann hefir verið verzlunarþjónn við Tangs-verzlun, var skotin til bana af öðrum pilti óvilj- andi. Foreldrar Benónís, fátæk hús- hjón, höfðu mist annan son sinn í sjóinn í fyrra vetur. Iðnskólinn i Reykjavík. Hann hefir gefið út skýrslu, um starf sitt síðastliðið ár. Nemendur voru 82, en sumir þeirra voru ekki í skólanum allan veturiun; nokkurir komu ekki fyr en í nóvember og desember, og eins fóru nokkurir burt úr bænum fyrir lok skólaársins til að stunda atvinnu sína. í skólanum var kend teikning (Jón Þorláksson verkfræðingur), ís- lenzka (síra Ólafur Ólafsson), reikn- ingur (mag. Ól, Daníelsson) og danska (Þorst. Erlingsson skáld). Förstöðumaður skólans er Jón Þorláksson verkfræðingur. Nú eru komnir í skólann 67 nem- endur, og þeim er skift í 4 deildir (3 í fyrra). Nú er Iðnaðarmannafélagið, sem rekur skólann undir yfirumsjón lands- stjórnarinnar, að reisa hús mikið handa skólanum á horninu á Tjarn- argötu og Yonarstræti. Svo er til ætlast, að unt verði að fara að nota húsið um nýár, en vanséð, að það takist. Flcnsborg-arskólinn. Aðsókn þangað er mjög mikil á þessu hausti. Yfir 90 hafa sótt um skólavíst þar, en nýlega voru þeir milli 70 og 80, sem þangað voru komnir. Barnaskóli Rvíkur. Börnin í honum eru orðin nokkuð á 5. hundrað, en þeim fjölgar nú með hverjum degi; búist er við, að þau muni verða um 450. Þau eru í 16 deildum, og kennarar eru 29. Terzlunarskóli. Verzlunarmannafélagið hér er að koma upp verzlunarskóla undir yfir- umsjón landsstjórnarinnar. Forstöðu- maður þar verður hr. Ólafur G. Eyj- ólfsson frá Akureyri. Hann kom hingað suður með Oeres. Kveunaskóli Rvíkur. Þangað eru komnar 36 námsmeyj- ar, en von er á fleirum. Skólinn er í 4 deildum. Hinu almenni mentaskóli. Nemendur verða þar í vetur 62, 3 í 6. bekk, 5 í 5., 6 í 4., 9 í 3., 16 í 2. og 23 í 1. bekk. Timakenn- arar við skólann eru Árni Þorvalds son magister (í ensku), Ágúst Bjarna- son magister (í þýzku og dönsku), Pétur Hjaltested kandídat (1 dönsku) og Þórarinn B. Þorláksson málari (í teiknun). Mannalát. Síra Davíð Ouðmandsson. prófast- ur á Hofi í Hörgárdal, einn af allra- fremstu merkisprestum þessa lands, andaðist 27. f. mán., eftir að hafa legið rúmfastur síðan í vor. Ein af mestu merkiskonum lands- ins, Sigurlaug Ounnarsdóttir, kona Ólafs dbrm. Sigurðssonar í Ási í Hegranesi og móðir Björns augnlækn- is og þeirra systkyna, andaðist fyrir nokkuru eftir langvinnan sjúkdóm. Síra Sigurður Stefánsson alþm. í Vigur hefir nýlega mist einkadóttur þeirra hjóna, Margréti, 9 vetra gam- alt efnisbarn, úr taugaveiki. Barn- ið var lagst, þegar þau hjón komu héðan að sunnan eftir þing. Ókeypis lækuingar fara fram á læknaskólanum á hverj um þriðjudegi og föstudegi frá kl. 11 — 12. Guðm. læknaskólakennari Magnús- son sér um útvortis lækningarnar, en Stgr. Matthíasson héraðslæknír um innvortis lækningar. Sig-lingar. Ceres kom hingað 8. þ. m. frá útlöndum og kringum land, með fjölda farþega vest- an að. Lára kom frá útlöndum þ. 9. þ. m. Frá Khöfn komu með skipinu frk. Áata Thor- steinsson (frá Bíldudal) og dr. phil. Björn Bjarnason (frá Viðflrði). Bæjarfógetaembættið. Góð tíðindi eru það, að bæjarfó- geti Halldór Daníelsson hefir látið að óskum bæjarmanna og tekið aftur umsókn sínc um lausn frá embætti. Brjóstslím. Eftir að hafa notað 4 flöskur af hinu nýja bætta Elixírs- seyði, get eg vitnað, að það er helm- ingi magnmeira en áður, og hefir veitt mér fljótari og meiri létti. Vendeby, Thorseng. Hans Hansen. Magakvef .... leitað læknis- hjálpar árangurslaust og orðið al- heilbrigður við það aðjneyta Elixírs- ins. Kvistlemark, 1903. Julius Crist- ensen. Vottorð. Eg get vottað, að El- ixírinn er ágætt lyf og mjög nyt- samlegur fyrir heilsuna. Kaupmann- ahöfn, marz 1904. cand. phil. Max Kalckar. Kína-Lifs-Elixír er því að eins ekta, að á einkennismiðanum sé vöru- m^rkið Kínverji með glas í hendi og nafn verksmiðjueigandans: Waldem- ar Petersen, Fredrikshavn—Köben- havn, og sömleiðis innsiglið VFP í grænu lakki á flöskustútnum. Hafið ávalt flösku við hendina bæði heima og annarstaðar. Fæst hvarvetna fyrir 2 kr. flaskan. Uppboð á tómum kössum og ýmsu öðru verður haldið við verzl. Edinborg laugardag 21. þ. m. kl. 11 f. h. Reykjavik IX. októbr. 1905. Ásgeir Sigurðsson. Cokes ódýrast i verzi. Edinborg. Með s|s Laura hafa komið til undirritaðs ýmsar teg. af tauum, svo sem: Cheviot, Kamgarn, mislitt, i alfatnað, vetraryfirfrakka, sérstök mislit vesti o. fl. H. Andersen <& Sen. 267 Kaupendur Fjallkonunnar hér í bænum, skifta sem um úbstaði, eru vinsamiega beðnir að gera viðvart um það sem fyrst í afgreiðslu blaðsins, Hafnarstræti 22. Sömuleiðis eru þeir, sem ekki fá blaðið með skilum, beðnir að gera tafarlaust við- vart um það til afgreíðslunnar. Steinolía í tunnum og pottatali fæst í verzlun Mattliíasar Matthíassonar. Húsgagnaverzlun Jónatans Þorsteinssonar Laugaveg- 31 Telefón 64 Stærsta úrval af ýmiskonar liúsgögnum Verð mjðg: sanngjarnt. Þeir sem héðan í frá panta Orgelharmoníum hjá mér frá. hinni ágætu og aíþektu orgelverksmiðju K. A. Andersson í Stokkhólmi og borga þau við mót- töku, fá í kaupbæti, miðað við verð hljóðfæranna, ágœtar nótna- bœkur fyrir minst 3 kr. 50 aur, alt að 10 kr. með bókhlöðuverði; þar á meðal Prœludier, Marscher og Melodier. Munið, að þessi Orgel-Harm. voru hin einu, er hlutu verðlaunapen- ing úr gulli og mesta lofsorð d sýningunni í Stokkhólmi 1897, að engan eyri þarf að borga fyrir fram og að engum reikningum er haldið leyndum. Áreiðanlegir kaupendur hér í bæn- um geta einnig fengið gjaldfrest um lengri tima án verðhækk- unar og án nokkurra vaxta. Skrifið því til mín eða talið við mig, áður en þér festið kaup annarstaðar, og þér munuð sannfærast um, að betri og ódýrari Orgel-Harm. fáið þér eigi annarstaðar. Verðlistar sendir ókeyp- is til þeirra, er þess óska. Reykjavík 2. janúar 1905. Jón Pálsson, organisti við Fríkirkjuna í Reykjavík. Bg undirritaður á Orgel-Harmonium frá orgelverksmiðju K. Andersons í Stockholm og er það nú nærri tðlf ára gamalt. Er mér það sönn ánægja að votta að hljóðfæri þetta hefir reynst mætavel, þrátt fyrir afar- mikla brúknn og oft slæma meðferð. Hljóð- in í því eru enn fógur og viðfeidín, og furðu hrein og góð enn þá. Það hefir reynst svo sterkt og vandað, að eg hyggfá orgel hefðn þolað annað eins og það er iagt hefir verið á þetta. Með góðri sam- vizku get eg því mælt fram með orgelum frá þessari verksmiðju fyrir þá ágætu reynd, sem eg hef á þeBSu orgeli mínu. Rvík la/4 1905. Fr. Friðriksson (prestur). Vatnsleysustrandar-menn eru vinsamlega beðnir að vitja Fjall- konunnar í Brydes-búð í Hafnarfirði (hjá verzlunarstjóra Jóni Gunnars- »yui).

x

Fjallkonan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.