Fjallkonan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fjallkonan - 22.12.1906, Qupperneq 1

Fjallkonan - 22.12.1906, Qupperneq 1
Kemur tit einn sinni og tvisvar í vikn, alls 70 bl. nm árið. Verð árgangeius 4 krðnur (erlendis 5 krónur eða l1/* dollar), borgist fyrir 1. júlí (erlendis fyrirfram). B Æ >T í> A B L A Ð Uppsögn (skrifleg) bnnd- in við áramðt, ðgild nema komin sé til útgefanda fyr- ir 1. október, enda hafi kanpandi þá borgað blaðið. Afgreiðsla: Stýrimannastíg 6. V E R Z L U N A n B L A Ð XXIII. árg. Reykjavík, 22. desember 1906. Nr. 69 Augnlœkning ókeypis 1. og 3. þriðjudag í hverjum mán. kl. k—3 í spítalanum. Forngripasaf'n opið á mvd. ogld. 11—12. Hlutabankinn opinn ki. 10—21/, og 51/,—7. K. F. V. M. Lestrar- og skrifstofa op- in á hverjum degi ki. 8 árd. til kl. 10 síðd. Almennir fundir á hverja föstudags- og snnnudagskveidi kl. 81/, síðd. Landákotskirkja. önðsþjðnuBta ki. 8'/a og kl. 6 á hverjum heigum degi. Brtel sd. 2 og 61/, mvd. 8, id. 11 f. h. Landakotsspítali opinn fyrir sjúkravit- jendnr VI. 101/,—12 og 4—6. Landshankinn opinn hvern virkan dag kl. 10—2. Bankastjðrn við ki. 12—1. Landsbökasafn opið hvern virkan dag kl. 12-3 og ki. 6—8. Landsskjalasafnið opið á þrd., fimtnd. ld. kl. 12—1. Lœkningar ókeypis í læknaskólanum á hverjum þriðjudegi og föstudegi kl. 11—12. Náttúrugripasafnið, Vestarg. 10, opið á sunnud. kl. 2—3. Tannlœkning ókeypis í Pósthússíra-ti 14 og 3. mánnd. livers mán. ki. 11—1. B]álfsagt er það fyrir allar húsmæðar og húsráðendur, að koma nú fyrir Jólin í hina glæsulegu því þar fást allskonar nauðsynlegir og fag r búshlutir og ýmislegt tieira, má meðal annars nefna: Messingskatía ljómandi falloga og alsk „Plet“ áhöld. Glastau fagurt o' fágætt, með öllum regnbogans litum. Kertastjaka (Plet) Ijómandi. Diska og bolla af öllum tegundum. Matar- og kaffistell ýmiskonar. Bakkar allskonar. Brauðhnif- ar og kjötvé'ar. Kaffimask'nur með 3 kveikjum. Speglar allskonar. Mynda- styttur hv. misl. Allskonar galv. og emaileruð áhöld. Harmonikurnar óbilandi. Tauvindur óviðjafnanlegar. Þvottastell og þvottagrindur allskonar. Taukörfur, sein hvergi fást aðrar eins, og ótal margt fleira. — Þá má ekki gleyma hinu margbreytta úrvali af lömpum falleguta og ódýrum. X þessa cloilci fer enginn snuöíerS. var 1. júlí. Útgefandi tekur því með miklum þökkum, að áskrifeudur borgi sem fyrst, Eins og við var búist. Lögrétta flytur í þessari viku rit- stjórnargrein um þingrofs-kröfuna. Svarið er nákvæmlega eins og Fjallk. hafði búist við. Fjallkonan mun fyrst allra blaða — að því er oss minnir — hafa á það minst, hve eðlilegt það væri, að nú kæmi krafa um þingrof. En hún tók það jafnframt fram, að hún gerði sér enga von um, að valdhafarnir yrðu við þeirri kröfu. Sanngirnin hefir, sannast að segja, ekki verið svo rík á metunnm í með- ferð valdanna, að vér teldum ástæðu til þess að búast við henni í þessu máli. Lögrétta talar vafalaust fyrir flokk valdhafanna. Og hún leggur eindregið móti þingroti. En ekki trúum vér því, að sú grein sannfæri nokkurn hugsandi mann. Þar eru tekiu fram ýms atriði, sem sumpart koma ekki málinu minstu vitund við, sumpart eru aukaatriði. En bl iðið gengur fram hjá þeirn atriðunum, sem óneitanlega skifta hér öilu máli. Þau eru í vorum aug- um tvö. Annað er það, að málið um sam band vort við Danmörk, sjálft sjálf- stæðimál þjóðarinnar, er svo mikils- vert, að þjóðin á að sjálfsögðu heimt- ing á því að fá að láta uppi sinn vilja, áður en byrjað er á nokkurum samningum um það. Hver flokkur sem við völdin væri, hvað mikinn meirihluta sem hann hefði sér til fylgis í landinu, og hvað vel sem þjóðin tryði honum, þá væri þessi krafa sanngjörn og réttmæt. Þjóðin á fylstu heimting á að fá að kjósa á þing beint i tilefni af slíkum fyrirhuguðum samningum, með þá fyrir augum sem aðalmál. Og hún á sannarlega heimting á aS geta látið uppi sinn vilja sem allra ótvíræðast, þegar beinlínis á að fara að tefla um frelsi hennar og sjálfstæði á ó- komnum tímum. Þetta mál er svo einfalt, að það þarf engrar útlistunar. Það væri hlægilegt að skýra það fyrir mönnum með löngu máli. Það er jafn sjálf- sagt eins og að vatnið er vott og sólin er björt. Það er bein afneitun alls lýðfrelsis að fyrirmuna þjóðinni að taka þátt í öðru eins máli og þessu þegar í byrjun þess. Hitt atriðið, sem ekki nær nokkurri átt að stinga undir stól, er það, að ómótmælanlega greinir menn ríkt á um hina fyrirhuguðu samninga. Fyrir fáeinum vikum gerðu menn sér vonir um, að sá ágreiningur mundi ekki verða tilfinnanlegur. Lögréttu- flokkurinn aðhyltist Ávarp blaða- manna, að ríkisráðsákvæðinu undan skildu. Og um það gaf hann þær skýringar, að hann vildi að minsta kosti afstýra öllum þeim afleiðiugum af ríkisráðssetu ráðherra vors, sem Danir hafa hingað til talið sjálfsagðar. En nú er komið alt annað hljóð í strokkinn. Fyrst skýra Lögréttumenn orðin „frjálst sambandsland“, sem þeir höfðu aðhylst, á þann veg, að með þeim só átt við óaðskiljanlcgan hluta Danaveld- is, eða eins og þeir orða það „ekki skerðingu á ríkisheildinni“. Með þeirri skýringu eru orðin „frjálst sambands- land“ orðin að engu, ekkert annað en aumasti hégómi. Því næst gefa 20 þingmenn úr Heimastjórnarflokkinum út yfirlýsing um það, að þeir ætli sér ekkert að færa út þann samningagrundvöll, sem þingmenn komu sér saman um í sumar, þar sem ekki var einu orði minst á „frjálst sambandsland," né neitt, sem því jafngildir. Og til þess að ekki skuli vera um neitt að villast, mótmæla allir þessir Heimastjórnarþingmenn kröfunni um flutning sérmála vorra úr ríkisráðinu, tala um það sem nýja kröfu, er 1 þingm. Árnesinga sé einn með síns liðs í þingflokki Heimastjórnarmanna. Ágreiningurinn getur naumast með nokkuru móti verið meiri. Og þjóðin ætti ekki að eiga rétt á að skera úr þeirn ágreiningi, áður en byrjað er á samningum! Óneitanlega er þjóðfrelsið að verða nokkuð kynlegt á Islandi á þessum furðulegu „heimastjórnar“-dögum. Þjóöræóis-réttarbætur o. fl. Einn af merkustu mönnum anstan- fjalls skrifar Fjallk. 12. þ. m.: „Það er ánægjulegt að lesa blöðin, sem nú voru að koma. Samkoiuulag andvígra flokka um nokkrar af dýr- mætustu réttindakröfur þjóðarinnar má stórum gleðja alla föðurlandsvini, hvaða flokki sem þeir heyra til. Ótrúlegt þykir mér, að miðluuar- mennirnir (o: Lögréttumenn) geri ágreiningsatkvæði tillengdareða skor- ist undan fullkominni samvinnu i lándsmálum vorum. Þessi samvinna gefur vou um að samkomulag náist einnig smásaman í fleiri þjóðréttindamáluni. Tel eg þar fremst í flokki atkvæðis- rétt kjósenda í allri löggjöf landsins, sem er mjög mikilvægur fyrir almenn ing; afnám konungkjöriuna þiug- manna — betur að sæti þeirra væru auð á þinginu; enda munu 34 þing- menn fullnógir fyrir eiúar 80 þús. manna. Næst kemur jafnrétti alþingis kjósenda eða skifting kjördæma, þann- ig að sveitabændur verði einir sér um sín fáu atkvæði móts við fólks- fjölda, en verði ekki eins og nú — þar sem verzlunarbæir eru með sveit- um í kjördæmi — bornir ofurliði af atkvæðafjölda húsmanna lausamanna o. s. frv., í sjávarþorpunum. Hér á eftir tel eg kosningaréttog kjörgengi kvenna (af því að svo fáir vilja nota. slík réttindi enn), og loks stytting kjörtímabilsins og fjölgun alþingisára, og ætti þar með að fylgja fækkun embættismanna o. s. frv. Annað ánægjuefnið í síðustu blöð- um varum stofnun Heilsuhælistélags- ins. Þökk sé þeim, er mest hafa að því unnið, og heilsa og hamingja krýni starfsemi félagsins. * * * Aths. ritst.: Nærfelt öll blöð, sem hafa borist síðan er menn fréttu um Ávarpið, Iáta uppi sama fögnuð út af samkomulaginu sem þann, er hér kemur fram. Eu hætt er við því óneitanlega, að það, sem nú hefir verið að gerast hjá Heimstjórnarflokkinum á síðustu tím- um, dragi heldur úr þeirri gleði. Yerzluuarfélagssbapur i Húaavatnssýslu. Að Vesturhópshóluin var haldinn allfjölmennur verzlunarfélags-stofn- fuudur þ. 27. f. mán. Sveitarbúar bundust samtökum um að stofna verzlunarfélag með sölu- deild, með þeirri fyrirhugun að taka með samábyrgð lán til vörukaupa erlendis og hafa félags3kapinn með líku sniði eins og er á dönskum kaupfélögum. Helzt var ráðgert að komast í samband við þau, ef þess yrði auðið. Myndir heíir hr. Ásgrímur Jónsson málari nú sýnt í Goodtemplarahúsinu um hríð. Flestar eru þær landslags- myndir, en fáeinar mannamyndir líka og nokkurar gerðar án annarar fyr- irmyndar en þeirrar, sem býr í huga listamannsins sjálfs. Yfirleitt má segja, að myndirnar séu hver ann- arri fallegri og betur gerðar. Og gaman væri að eiga nóg af þeim á stofuveggjum sínum. f síöasta sinn er á morgun (sunnudag) færi á að sjá konsúl Kristján Þorgrímsson á leiksviði. Sjálfsagt verður fjöl- ment í leikhúsinu í tilefni af því. í dag (laugard.) eru nákvæmlega 25 ár síðan hanu kom fyrst á leiksvið.

x

Fjallkonan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.