Heimskringla


Heimskringla - 19.05.1887, Qupperneq 2

Heimskringla - 19.05.1887, Qupperneq 2
kemur út (aS forfallalausu) á hrerjum ltmmtudegl. Skrifstofa og prentsmiðja: 1$ James St. W.........Winnipeg, Man. Útgefendur: Prentfjelag Heimakringlu. BlaðiS kostar : einn árgangur $2,00 ; hálfur árgangtir $1.25; og um S mánutii 75 cents. Borgist fyrirfram. Smá auglýsingar kosta: fyrir 1 pl. nm 1 mánuð $2,00, um 3 mánuffl $5,00, um 6 mánuði $9,00, um 12 mánuSi $15,00. Þakkarávörp, grafminningar og eptir- mæli kosta 10 cents smáleturslínan. Auglýsingar, sem standa í blaSinu skemmri tíma en mánuS, kosta: 10 cents línan i fyrsta skipti, og 5 cents í annaS og þriSja skipti, Auglýsingar standa í blaSinu, pang- aS til sklpaS er aS taka pœr burtu, nema samiS sje • um vissan tima fyrir fram. Allar auglýsingar, sem birtast eiga S noesta blaSi, verSa aS vera komnar til ritstjómarinnar fyrir kl. 4 e. m. á laugar- dögarn. Skrifstofa blaSsins verSur opin alla virta daga frá kl. 11 til kl. 12 f. h. og frá kl. 1 til kl. 2 e. h. nema á miSviku- dögum. ASsendum, nafnlausum ritgerðum verður enginn gaumur geflnn. BAGAÁKVARÐANIR VIÐVÍKJANDI FR.JETTABLÖÐUM. 1. Hver maSur, sem tekur reglulega móti blaSi frá pósthúsinu, stendur í á- byrgS fyrir borguninni. hvort sem hans nafn eSa annars er skrifaS utan á blaSiS, og hvort sem hann er áskrifandi eSa ekki. í. Ef einhver segir blaSinu upp, verSur hann aS borga allt, sem hann skuldar fyrir þaS; annars getur útgef- andinn haldiS áfram aS senda honum blaSiS, þangaS til hann hefur borgaS allt, og útgefandinn á heimting á borg- un fyrir allt, sem hann hefur sent, hvort sem hinn hefur tekiS blöSin af pósthús- inu eSa ekki. 3. þegar mál koma upp út af blaSa- kaupum, má höfSa máliS á þeim staS, sem blaSiS er gefiS út á, hvaS langt burtu sem heimili áskrifandans er. 4. Dómstólamir hafa úrskurSaS, aS þaS aS neita aS taka móti frjettablöSum eSa tímaritum frá pósthúsinu, eSa flytja burt og spyrja ekki eptir þeim, meðan þau eru óborguS, sje tilraun til svika (prim* faeie of intentional fraud). SENDIMENNlRNIR TIL OTTAWA. Þeir hafa sjáanlega ekki farið neina sæmdar för. Dað eru líka tvær gildar ástæður til f>ess, að allt f>etta uinstang nú verði til einskis eins og fyrr hefur átt sjer stað. Fyrst og fremst stefna stjórnarinn- ar. Sú ástæðan í sjálfu sjer er liægileg til að ónýta allar tilraunir. Dað má lesa milli línanna hvevetna að f>að er fastur ásetningur stjóm- arinnar að halda Manitobafylki i þessari járnbrautakreppu allan hinn tiltekna tíma, til 1891 eða jafnvel 1901, pví fyrr er einvaldstími Kyrra- hafsfjel. í raun og veru ekki út- runninn. Hin önnur ástæðan er aðferð sendimanna sjálfra. Jafn-ófimlega aðferð við að fá áriðandi málefni framgengt, er ekki hægt að hugsa sjer. í stað f>ess að fá fylgi allra pingmanna úr vesturhluta ríkisins, fóru þeir að heita mátti einir-saman á fund stjórnarráðsins; höfðu ein- ungis Scartli með sjer, sem eins og peir er fulltrúi Winnipegmanna. Deir auðvitað ætluðust til að hinir allir kæmu, en f>að voru ekki nema örfáir, sem komu á fundinn, þar eng- inn þeirra kærði sig um ' að heita boðflenna. Og peir tóku ekki Scarth með sjer í f>eim erindagerð- um að mæla máli peirra, heldur neyddust peir til að fá einhvern pingmann til að leiða sig fyrir ráð- ið, og yilkynna erindi peirra form- lega. Auk pess heimtuðu peir að frjettaritarar blaða, um 30 talsins, væru útilokaðir frá fundinum, til pess-enginn út I frá yrði pess vís, hvað rætt var, nema eins og peim sjálfum póknaðist að opinbera slðar meir. Detta hvorttveggja vakti megna óánægju; pingmennirnir reiddust, póttust hafa verið fyrir- litnir; svo gerðu og frjettaritararnir, sem póttust hafa fulla heimild til að sitja á pessum fundi einsog á hverj- um öðrum opinberum fundi. Og peir álitu pennan fund opinberan, og að rjettu svo, par ekki var rætt um annað en opinber málefni við ráðsmenn opinberra mála. Af pessu leiddi, að stjórnin og pingmenn yfir höfuð leiddust til að trúa pví, er óvildarmenn Manitoba stöðugt bera fram, að enginn maður í Manitoba, nema í Winnipeg, gefi pessu máli hinn minnsta gaum, og að allt petta upppot sje getið, fætt og uppalið í Winnipeg, að allir búendur fylkis- ins sjeu hæst ánægóir með núver- andi járnbrauta fyrirkomulag, og muni verða pað eins framvegis, ef stjórnin einungis hefur hönd í bagga með fjelaginu. og sjer um að al- mennt flutningsgjald ineð pessari einu braut austur verði aldrei hærra en pað er með brautum austur um Bandaríkin á sömu vegalengd. Með pessu atferli sínu staðfestu sendi- mennýrnir svo greinilega pessa al- mennt ríkjandi, en röngu skoðun manna eystra á málinu. Þá tókst peim ekki betur um daginn, pegar peir fengu skipunina um að biðja stjórnina um meiri styrk til Hudson-fióa-brautarfjelags- ins; peir löbbuðu af stað til Popes, járnbrautamálastjórans, og höfðu engan með sjer nema Scarth. Dað rak líka svo langt, að Pope sjálfur sagði við pá, að petta hlyti að vera áhugamál fyrir Winnipegbúa ein- ungis, pví annars mundu pingmenn- irnir fyrir Manitoba og Norðvestur- landið einnig hafa heimsótt sig og fylgt málinu. Degar nú ráðherrann sjálfur svona óbeinlínis ávítaði pá fyrir einræningsskapinn, pá má geta nærri, hvað pingmenn sjálfir hafa hugsað. Og pað var pá heldur ekki nema náttúrlegt, pegar svona var gengið til verks, pó ráðherrann tæki peim kuldalega og sendi pá burtu vonlausa, að minnsta kosti vondaufa um frekari fjárframlögur. Það hafa margir ónytjungar verið kostaðir austur á ýmsum tím- um áður til að vinna fylkisbúum gagn, en peir hafa allir verið fram- úrskarandi dugnaðarmenn 1 saman- burði við pessa vesælinga, sem nú eru eystra. Engir peirra hafa fyrr sýnt svo míkla heimsku, hroka eða hvað helzt maður vill kalla pað, að peir hafi ekki álitið nauðsynlegt að leita á náðir pingmannanna fyrir fylkið, og fá pá til að fylgja sjer, svo pað sæist að málefnið væri ekki áríðandi fyrir einn eða annan ákveð- in stað, heldur fyrir fylkið í heild sinni. Hafi nú pví fje verið kastað á glæóur, er margir vilja halda, sem fyrr meir hefur verið til að kosta sendimenn austur. Hvað verður pá sagt um pað f petta skipti? Dessar sendiferðir hafa annars haft heldur litla pýðingu til pessa. Sendimennirnir segja ’ekkert nýtt» sem stjórnin ekki veit fyrir fram, par er hún hefur vanalega fengið áskorun á áskorun ofan, bæði frá fylkispingi og bæjarstjórn viðvíkj- andi sama málefni. Og geti pær áskoranir ekki breytt stefnu stjórn- arinnar í pví og pví máli, pá er lít- il ástæða til að ætla að fáeinir prí- vat menn fái komið pví til leiðar, og pað J>ví sfður, pegar peir ekki virðast hafa snefil af diplómatiskri pekkingu. Dað er auðvitað gott fyrir sendimennina sjálfa, að ferð- ast austur, en heldur ekki aðra. Dað er heldur engin pröng á að fá menn til fararinnar. Hver peirra á vfsa 3-400 dollars af almennings fje úr bæjarsjóði til að svalla með eystra, og fyrir pá peninga geta peir ferð- ast fram og aptur milli stórstaðanna og heimsótt ættfólk og gamla kunn- ingja, án pess að kosta til pess einu centi úr sínum eigin vasa. Og svo eiga peir vísar veizlur í höfuð- staðnum, og pað er nokkurs virði. Þessir sfðustu sendiherrar hafa líka uppfyllt skyldu sína óaðfinnanlega f pví tilliti; peir sátu t. d. glaðir og ánægðir í einni stórveizlunni hjá Sir Donald A. Smith, sem mest og bezt vinnur að viðhaldi einveldisins. Hann sparaði heldur ekki aS veita peim; par skorti hverki kampavín, rfnarvín nje madeiravín, og pað 60 ára gamalt!! Það má svo sem nærri geta, að peir hafa ekki verið hnuggn- ir meðan peir sátu að borðum og vínið flóði á skálum. Gamli Sir Donald er áreiðanlega meiri dipló- mat en pessir heiðruðu Winnipegg- ers eru, allir til samans. í tilliti til einveldisins mun ó- hætt að segja allar pessar austur- ferðir gagnslausar, og pað, hversu duglegir menn sem fengnir væru til ferðarinnar. Hið eina, sem parf að gera í pví efni er, að fylkisstjórnin byrji á bygging brautarinnar suður og fullgeri hana pað fyrsta, ánpess að skipta sjer nokkuð af, hvað sam- bandsstjórnin segir. Dómsmálastjóri rfkisins viðurkenndi um daginn, að sambandsstjórnin liefði ekkert laga- legt vald til að fyrirbjóða brautar- bygginguna. Og pegar sú við- urkenning er fengin. Hvað er pá að óttast. BISMARCK OG BLÖÐIN. í tilliti til meiðyrðamála á Dýzkalandi gerir pað ekki svo lítinn mismun, hvers uxi er stangaður. Bismarck gamli hefur upp á síðkast- ið verið ærið punghentur á blöðun- um, hafi pau farið óheiðarlegum orðum um hann og hans meðhjálp- ara. Hann hefur höfðað hvert meið yrðamálið á fætur öðru gegn peim, og sem auðvitað er hefur dómur í peim tfðast fallið honum í vil. Blöð- in hafa einnig haft tækifæri til að klaga yfir beiskyrðum hans um pau á ýmsum tfmum, en ekkert peirra l>efur haft por til að höfða mál gegn honum fyrir meiðyrði, fyrr en eitt hjerna um daginn, lagði af stað til að berja 4 berserknum. Karl hafði farið óheiðarlegum orðum um blað- ið Volks Zeitung, og blaðstjórnin hugsaði sjer að reyna lögin, reyna hvert pau vernduðu ekki blöðin eins og pau vernda fyrirrennara stjórnarinnar. En blaðstjórnin komst fljótt að pví, að pað var sitt hvað, Bismarck og blöðin. Dómarinn, sem átti að dæma í málinu, kunn- gerði blaðstjóranum, að jpetta mál gæti ekki tekist til greina. Bis- marck væri hershöfðingi við hinn pýzka her, og borgaraleg lög næðu pess vegna ekki til hans f pessu til- felli; pað væri herrjettarins eins að dæma í pessu máli.—Það er eptir pessu ómögulegt fyrir blöðin atí ná rjetti sínum á Bismarck, hvernig sem hann fer með pau. Ef pau skamma hann, á blaðstjórinn víst annaðtveggja fjárútlát eða faugelsi. En aptur pýðingarlaust að klaga hann fyrir herrjettinum. Svarið par mundi verða að hann hafi í engu brotið herreglurnar, pó hann hafi gert almennu frjettablaði eitthvað & móti. Vond pykja meiðyrðalögin í Amerfku fyrir frjettablöð, en pó eru pau hátfðleg hjá peim á Þýzka- landi. Það er enginn maður hjer f landi svo hátt-standandi, að borg- araleg lög nái ekki til hans. Eigi að síður eru pau lög hjer allt ann- að en góð, einkum að pví leyti, að nær pvf aö segja hver umrenningur getur höfðað mál á móti blaði, ef pað á einhvern hátt hefur farið ónota legum orðum um hann persónulega. Og pað er ekki ósjaldan, að pessir menn eru algerlega eignalausir, og geta ekki greitt málskosnaðinn, ef blaðstjórnin vinnur málið, svo að úr sjóði hennar verður málskostnaður- inn að koma, hvort sem hún tapar málinu eða vinnur pað. Auk pessa geta menn hafið málið undireins, án pess að gefa blaðinu tækifæri til að apturkalla orð pau, sem opt- ar en hitt eru einungis tekin sem frjettagrein, og geldurpá blaðstjór- inn peirra, sem logið hafa að frjetta ritaranum. En nú er verii að breyta pess- um lögum að meir og minna leyti um alla Ameríku. Það er ráðgert að gefa blöðum, sem koma út á hverjum degi, priggja daga frest til að apturkalla orðin, og vikublöðum 10 daga frest. Blaðaeigendur eiga og að fá leyfi til að heimta trygg- ingu fyrir pví, að sækjandinn hafi nægilegt fje til að greiða máls- kostnað, ef blaðið vinnur málið; svo á og sækjandinn að sækja málið í peim bæ eða peirri sveit, sem blað- ið er prentað 1. Og sækjandinn á að sanua, að meiðyrðin hafi verið prentuð með peim beina ásetningi, annaðtveggja til.að vinna mannin- um tjón í hans verkahring, eða til að skerða mannorð hans. Þessu lfk frumvörp eru fyrir flestum fylkis- pingum I Canada og ríkispingum í Bandarfkjum. Þau eru auðvitað ekki alveg eins alstaðar, en aðal- innihald peirra er alstaðar hjer um bil eins og hjer stendur.—í Miclii- gan-ríkir.u er svona frumv. fyrir pinginu, og er skorinorðara en 1 flestum, ef ekki öllum hinum ríkj- unum. Aðal-innihald pess er Ifkt og hið ofanritaða, en svo eru skaða bæturnar takmarkaðar að auki. Óvil- hallir menn eiga að meta til verðs pann skaða, er sækjandinn beið af meiðyrðunum, og fram yfir pá upp- hæð, er metendur tiltaka, má undir engum kringumstæðum dæma kær- andanum meira en $5000. Yfirlt . Landilag og lopttlag Norbur-Ameriku. Milli 50. og 60. stigs n.br. liggur suður-Labrador og nyrsti hluti Quebec og Ontario, einnig meginhluti Manitoba fylkis og hjeraðanna Assiniboia, Saskat- chewan, Alberta, Athabasca og og mið- bluti British Columbiu. Belti þetta hefur subarktiskt loptslag í austurhlutanum, en kald-temprað í vesturhlutanum. meðalárs-hiti yflr heila tekið er um 31 grátiur F. í austurhluta þess frá Atlanzhafi og vestur fyrir Ja- mes Bay er meðal árshiti u® 26 grátfur; regnfaii 30-35 þuml. í miðhluta lands- ins frá James Bajr og vestur undir fjöll er meðal árshiti um 32 gráður, heldur minna austan til, en vex eptir því, sem vestur dregur. Meðal sumarhiti uin 65 gráður F. Meðal vetrarhiti 2 gráður, Regnfall frá 16-20 þuml. Vestur frá fjöllunum í British Columbiu er meðal árshiti meiri, hjer um bil 38 gráður á vesturrstöndinni við Simpsonfljót, sumar hiti um 50 gráður og vetrarhiti 26 gráð- ur; regnfall 40-60 þuml. Sumur heitari, vetrar kaldari og minna regn þegar npp í landið)dregur. Landslag á þessu svæSi er svipað því sem áður hefur veriS lýst. Austur- hlutinn. ,frá Jamesbay allt til hafs er hæðóttur, jartSvegur mjög grýttur og vegna kulda er jarSargróði því mjög lítill. Miðhluti landsins, sem innifelur meginhluta Manitoba og lijerufi þau, er vestur af liggja, er .sljettlendi, líðandi til austurs—halli að eins 3 fet á míluna til jafnaðar; vötn og ár fáar en stórar; helztar eru Saskatchewan, Assiniboine og Rauðá. Jarðvegur í dölum er ágæt- ur, en sendinn þar sem hálent er. Land- ið er að mestu grasivaxin sljetta; skóg- ar helzt í austur og norður-Manitoba og norður-Assiniboia og vestur-Saskat- chewan, þar sem hæðótt er og með fram ám og vötnum. Helztu viSartegundir eru fura, eik, poplar og álmviður. Málmar hafa fundist í austur-Manitoba og kol vestur undir fjöllum í Alberta og Athabasca. Landið er einkum lagað fyrir kvikfjárrækt og jarðyrkju; frjó- sömustu partar þess eru: Iíauðárdalur- inn og landiS á milli Winnipeg og Mani- tobavatns og vestur af þeim; einnig Little-Saskatchewan og Qu’Appelle-dal- urinn og hinarafarmiklu sljettur Saskat- chewan-dalsins. í vesturhluta landsins í British Columbiu er landslag fjöllótt, stórar ár og djúpir dalir, en fjöllin lækka og verða að hálendi einu þegar norðar dregur. JartSvegur er víða grunnur og grýttur, en vegna mildari veðráttu og nægilegs regns er jarðargró-Sinn allmik- ill, Stórskógar eru fram með vestur- ströndinni og í fjallahliðum, en hálend- ið grasi vaxið. Veiði er mikil fram með ströndinni og í ám, gnægtS af málm um hefur og fundlst; landið er vel fall- iö fyrir kvikfjárrækt, vei'Sar og ýmis- konar iðnað. Beltið frá 55—60 gráðu n. b. inni- felur norður Labrador, meginpart Kee- watin, norður-Athabasca og norður British Columbiu. Austurhluti þess frá Hudson-ílóa til hafs hefur arktiskt lopts- lag; meðal árshiti 22—24 gráður F. Vestur frá flóanum verður loptslagið mildara og meðalhita línan liggur til norðvesturs frá Nelson-ármynninu til McKenzie-fljótsmynnis; lína þessi er tak- mark trjávaxtar. Sljetturnar milli Hud- son-flóa og Athabasca eru vaxnar grasi og smá skógi, víða eru smávötn og flóar; landif! er lítt brúklegt. í Atha- basca er öldótt láglendi og sljettur; jarðvegur allgóður, skógar töluverðir, meðal sumar og vetrar hiti lítið eitt minni en í norSur Manitoba. Landið er vel fallið til kvikfjárræktar en ekki til jarðyrkju vegna sumarfrosta ; jarð- ávextir þrífast þó all vel. Norður British Columbia hofur mildara loptslag en ,þar er rigningasamt; regnfall frá 50—120 þuml. Landslag, hálendi um 2—3000 fet yfir sjáfarmál með lágum fjallhryggjum; fáir dalir markverðir, ströndin sæbrött og eyjaklasi fyrir landi; jarðvegur áþekkur þvi sem áður er lýst; ; skógar töluverðir og sljetturnar grasgefnar; gott kvikfjárland alveg ó- numið. Frá 60—65. gráðu. Yflr höfuð sljett- lendi, loptslag arktiskt í austurhlutan- um, allt vestur að McKenzie-fljóti. Vesturhlutinn frá McKenzie-fljóti vestur atS Behringssundi hefur mildara lopts- lag, subarktiskt. í þessu belti liggur Suður Alaska. Meðal árshlti við Yukon- fljót 25 gráður F. en á suðurströnd- inni er meðal árs hiti hærri, hjer um bil 35—40 gráðum sökum áhrifa Jap- ansstraumsins. Regnfall er viða fjarska mikið, einkum með ströndinni; sum- staðar rignir 200—300 daga á ári og svo 100—130 þuml. nemur- Málmar hafa fundist töluverðir og landi-5 hefur töluverða skóga en hálendið er gott kvikfjárland; að mestu leyti ónumið. Frá 65. grá5u norður að ísliafi er allt óbyggilegt sljettlendi. Til samanburðar má þess geta,- að á sirSurströnd íslands ermeðalársliiti um 39 gráður F. MetSalhiti yfir 3 sumarmán- uðina 54 gráður og meðalhiti yfir 3 vetr armánuðina 28. gráSur F; regnfall 30-40 þuinlungar. (Til þess a6 vita grá5ufjöldan á Celsius, drag frá 32 gráfiur, margfalda siían me« 5, deil svo meö 9). Frímann.

x

Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.