Heimskringla - 25.08.1887, Side 3

Heimskringla - 25.08.1887, Side 3
'nóti því a* málinu væri fylgt fram á Þessu þingi.—Ól. Br. kvaðst og hafa helít óskað hins sama, en mundi þó ^reiða atkv. með frv.—Þorl. G. kvaðst. greiða atkv. móti frv. af sömu ástœðu f>g sira Þór.—Gr. Th. lagKi til að málið v«ri látið biða í 2 ár, enn vildi helzt þingið skoraði á stjórnina að setja oeínd til að íhuga það milli þinga. Móti málinu töluðu enn Þorst. og J. Jónassen læknrtr. Loks var málinu vis- að til 3. umr. og greiddu þessir 7. atkv. á móti: Jón Þórarinsson, Kiríkur Briem, Gr. Thomsen, J. Jónassen, Þór. Böðvars- »on, Þorl. Guðmundsson og Þorsteinn Jónsson. T í * a r f a r er nú allgott hvervetna um land sem til spyrst; hafishroði er Þó enn á Húnatlóa vestanverðum, og ekki skipgengt. fyrir honum nú síðast, er ('cmiofn* ætlaði til Borðeyrar enn komst «kki og mátti snúa aptur; hann kom hinga* í gær. Heimkominn vestufari. Sig- orSur bóndi Gíslason frá Bæ á Sel- strönd (Strandasýslu) kom nú með Comoens alkominn frá Ameríku með fjölskyldu sinni. Hann hefur verið par 1 4 ár (í Dakota), og lætur mjög illa Jfir ástandi íslendinga vestra yflr höfu*. -Pjöldi af þeim væri orðnir ósjálfbjarga eða komnir á sveitina (on the county). Af 200 bændum íslenzkum þar vestra sem hann þekti væri ekki einu sinni 2 svo staddir að þeir gætu komizt heim «ptur.—Vjer erum ekki svo kunnugir, að vjer getum rengt skýrslu þessa manns. en svo mikið er oss kunnugt, að allmörgum íslendingum vestra líður vel, en einkum munu það vera þeir sem hjeðan hafa farið með gó* efni.— Þa* væri engin vanþörf á því, að á- refSanlegar skýrslur væri fengnar um ástand íslendinga í Ameríku, en slíkar skýrslur fást eigi með öðru móti enn Því, að áreiSanlegur maður væri sendur hjeðan til að ferðast um nýlendurnar kynna sjer nákvæmlega hagi landa vorra.—Að minnsta. kosti virðist. það vera æriK vanhugsað og tvísýnt ráð af sveitafjelögum og jafnvel sýslufjelög- um að kosta fje til aN senda fátækl- mga hjeðan af landl til Ameríku og i'á jafnvel hallærislán í þvi skyni. Fjallkonah. F r e g n ir Úr hinum islenzku nýlendum. GIMLI, MAN. 17. ágúst 1887. Veðrátta hefur verið hin hag- ■Ntseðasta síðan heyskapur hyrjaði og *r f>að enn. Grasvöxtur er í betra la.gi, og ganga heyannir J>ví vel; sumir búnir að heyja og flestir langt komnir. Kinkum sópa peir saman miklum hoyjum, Pjetur Páls son og Jónas Stoíánsson, með sláttu- og rakstarvjeluiu peim, er peir keyptu í fyrrasumar. Var pað mjög parflegt fyrirtæki, pví með pví hafa peir sýnt, að af vjelum má hafa gott gagn hjer í Nýja íslandi, og okki einungis pað, heldur einnig pörf er á fleiri vjelum, sem ljetti vmnuna og vinni meira en menn geta með ljelegum verkfærum, og að pá fyrst hafa nienn not af vinnu- dýrum sínum, sem ekki er lítið til af. Innflutningur í nýlenduna hef— ur verið með mesta, móti í sumar, síðan viðreisn hennar byrjaði fyrir t árum síðan, einkum ípessabygð; «ru 18 innflytjanda familíur komn- ar á land á Gimli og annars staðar ' Víðinesbyggð, en um 250 sálir runnu alls hafa komið til nýlend- unnar og von á mikið fleira með haustinu.—Þó sumt af fólki pessu vaeri alveg eignalaust, pá hafa pó nokkrir verið sjálfbjarga, en allt ^tur pað (it fyrir að vera myndar- legt og dugandi, enda eru sumir 'neðal pess mestu merkismenn, og líklegir til að verða nýlendunni til roikillar uppbyggingar, pegar peir hafa komið sjer haganlega fyrir °g kynnst hjer. Sjerstaklega má geta pess sem fnerkis-viðburðar ( sögu Ný-íslend- 'nga, að með fyrri hóp innflytjanda k°m presturinn sjera Magnús Skapta- son í peim tilgangi, að gerast pjón- andi prestur hitina ýmsu safnaða í ^ýa íslandi. Má fullyrða að allur fjöldi nýlendubúa práði að fá prest, og fagnar pví mikillega að fá pá pörf bætta svo fljótt, og að r.okkru leyti óvænt.—Sjera Magnús dvelur enn á Gimli, en hefur ferðast eptir nj'lendunni 'norður að íslendinga- fljóti, og flutt guðspjónustu á ýms- um stöðum og framið ýnts önnur prestsverk; geðjast fólki velað hon- um, og allt. útlit fyrir að hann vinni hylli og álit nýlendubúa. Laugardaginn 13. p. m. mættu 11 fulltrúar frá söfnuðunum (ásamt prestinum sjálfum) að Árnesi, til pess að semja við sjera Magnús og til að jafna niður embættisverk- um hans og launum milli safuaðanna. Fjell sú niðurjöfnun pannig: Að Bræðrasöfnuði bera fjórir elleftu úr hvorutveggja, Breiðuvíkursöfnuði tveir elleftu, Mikleyjarsöfnuði einn ellefti, Árnessöfnuði einn ellefti og Víðinessöfnuði prír elleftu.—Fund- urinn ákvað að gjalda prestinum $500 í árslaun. Þar meirihluti helgidaga kom niður á norðurhluta nýlendunnar, pá kaus presturinn að setjast að við íslendingafljót, og flytur pví bráð- um pangað. Ýmsum smærri máluin var ráð- stafað á pessum fundi, sem söfnuð- ina varöar sameiginlega við prest- inn. Með fyrri hópnum kom og hingað Sveinn Sölvason frá Skarði í Skaga- firði; hefur hann stundað lækning- ar yfir 20 ár, og fengið bezta orð fyrir. Er hann að pví leyti oss kærkominn I fjelag vort, og parfur meðlimur, auk pess sem hann er nýtur og góður drengur að öðru leyti. Gm undanfarin mánaðartíma hefur gengið niðurgangsveikr í börnum og nokkur dáið úr henni í pessari byggð; hefur einkum brytt á pví síðan innflytjendur komu, en að öðru leyti má heilsufar alinennt heita gott. Kartöpluuppskera lýtur út fyr- ir að verða miklu betri en í fyrra, og korntegundir hafa sprottið vel, par sem peim hefur verið sáð, en rófutegundir hafa ónýtzt af ormi, sem jetur pær, pegar pær eru að koma upp. Það mun óhætt mega fullyrða, að Ný-lslendingar uni nú hag sln- um vel-og geri sjer góða von um framtíð sína hjer, enda hefur margt vonum framar færzt í lag hjá peim á pessu ári; lögbundin stjórn er komin á, og nýlendan pví orðin hluti af pjóðlíkamanum með skyld- um og rjettindum sem pví fylgja; prestur fenginn, og nýlendan pví orðin að kristilegum söfnuði meir enn að nafninu til, ineð peim skyld- um og rjettindum er pvf fylgja. Og pó hvorttveggja fylgi peninga útgjöld, pá er hvorttveggja undir- staða undir öllutn öðrum sönnum framförum; já, svo nauðsynleg und- irstaða, að pær geta ekki átt sjer stað án pess petta tvent gangi á undan. En gagnið er komið undir pví, hvernig fólkið notar sjer pað. En pó petta og mjög margt fleira liafi breyzt til betra, pá er margt enn ógert sem von er, og má fyrst nefna, almenna menntun barna; pví máli parf að gefa gaum sem allra fyrst, pví ekki er tilgangi lífsins fullnægt, pó menn komist áfram I efnalegu tilliti og verkleg- um fyrirtækjum, ef peir skila heim- inum eptir sig ómenntaðri og par af leiðandi ónýtri og skrílslegri kvnslóð. I>að er vfst, að Ný-íslendingar koma sjer upp skólum svo fljótt sem peir geta, en pað mun vart verða á pessu ári, af mörgum ástæð um. Á meðan er tíini fyrir unga ínenn af pjóð vorri, sem fyndu hjá sjer löngun og hæfileika til að ger- ast kennarar, að undirbúa sig til pess starfa.1 Væri pað nær enn að flegja frá sjer tækifærinu f hendur innlendum mönnum, sem mundu alls ekki hentugir kennarar hjer. t>að mætti ef til vill með rjettu segja, að margir einhleypir íslend- ingar verji livorki tfma nje pening- um sínum vel á vetrum, og ef svo væri, pá væri hjer hvöt fyrir pá að brúka pað til að mennta sig, og pó peir ekki kæmust að sem kennarar, pá verður menntunin samt að gótfu gagni. Gr Ipsy 13 lair. (Þýdd saga.) (Farmhald). 26. KAPÍTULl. Það kom fát á Bob, en þó tók hann til máls: J.átið mig sjá, hvar hún var geymd’. ,Þa* er gagnslaust; hún er burtu, en við sviknir’. Jeg reyni þar ekki framar til, fyrst Gipsy Blair er með í leiknum, því hann er meir en náttúrlegur ma*ur, og satt að segja, þá held jeg hann sje gamli kölski sjálfur komin hingað til að ofsækja og eyðileggja okkur. En lofið mjer samt að sjá, hvar þið geymduð hana'. ,Já, gjarna, þóþað sje ekki til neins, því hún er vissulega farin’. Þeir stóðu nú þarna rátSviltir og hugsandi um þennan vogháls, sem tal- aði vi* þá og át og drakk með þeim, og skauzt svo burt, án þess að gjalda þeim þökk fyrir gestrisnina, og svo þar á ofan tók með sjer herfang þeirra.— Bardwell var nú ekki lengur hróðugur yfir, hvernig hann narraöi Gipsy; hann sá nú að sannaðist málshátturinn: ,Sá hlær bezt, er sí*ast hlær’. Á húsgólfinu fundu þeir pappírs- miða, me* þessum orðum á: J.ucya Le- onhard er í minni varðveizlu, og hver sem reynir að gera henni skaða, er sann- ur óvinur minn. Og honum skal jeg fylgja sem hans eigin skuggi, þar til hefndin er framkomin. Muni* þa$, þjer sem lesið !’ Gipsy Blair. Bob Marvin stóð sem þrumu lostinn, þegar liann hafði lesið þessi fáu, en þó fyrir hann þýðingar miklu orð. Blóðug- ar vofur risu upp fyrir augum hans. Bob Marvin var einn af auðmönnun- um í St. Louis, og þess vegna ofarlega í tignari manna rö*, og einmitt nú um þessar mundir var tiltal að hann yrði val- inn til opinberra þjóðstarfa. Allt þar til hann mætti Gipsy Blair hafði aldrei dreg- ið skýflóka fyrir liamingjusói lians. En nú stóð Gipsy með uppreiddann ógnar- brandinn yfir höfði hans, reiðubúinn á hverri stundu aft svipta hann auöi og upp hefð. Það voru skelfileg umskipti fyrir vesalings Bob. í 14 ár hafði hann notið unaðsemda auðs þess, er kona hans me* svikum veitti honum, og liann áleit sig óhultan fyrir öllum uppgötvunum, þar til kona hans eittsinn sagði honum, að maðurinn sem flutti barnið burtu, hefði krafist mikilla peninga fyrir að halda sök inni leyndri. Og þar hann hafði ekkert fengið hefði hann hótað hefndum. Þar eð Bob liugsaði að maðurinn mundi máská liafa einhverjar gagnsakir málinu vi*víkjandi, og sjer hættulegur, spurðist hann fyrir á allar lundir um þennan mann, en varð einskis vísari. Þar eð hann vann máli* á móti Leon- ard gamla, áleit hann sig óhultan og fjekzt því ekki um þó barnið væri látið lifa hjá karli svo langt frá öllum manna- byggðum. Um siðir inælti haun: ,Vjer verðum að elta hann’. (Hva*, að elta Gipsy Blair ?’ spurði Bardwell. ,Já, við skulum elta hann’, svara*i Bradden. ,IIann er að eins hálfum tíma á undan, og hart getur hann ekki farið með þau tvö á einum hesti. Við hljótum að ná lionum'. ,Það er vel sagt vinur’ anzaði Bob. ,Á stað, drengir; vjer erurn 14 á móti einum. Hver skyldi óttast’. (Stanzaðu ögn’, svaraði Bradden. ,Nei, vjer megum ekki tefja eitt augnablik’, svaraði Bob óþolinmóður. Jleyrðu vinur! Menn elta ekki hjera fyrir aðra, til þess að hafa skamm- ir í ómakslaun. Vjer viljum heldur forð- ast fund Gipsy meðan hægt er en hlaupa í greipar hans fyrir ekkert’. ,Ef þið náið Gipsy og drepið hann, en færið mjer stúlkuna, þá borga jeg hverjum ykkar tvö þúsund doilars !’ Þeir litu allir í senn á hann með efa- semd. ,Þú lofar víst laglega upp í ermina þína núna’, svaraði Bradden. ,Þið skuluð fá livert einastá cent að loknu verki!’ ,Jæa, drengir. Eigum vjer þá að elta Gipsy Blair ?’ ,Já’, svöruðu allir, og riðu svo á sta*. 27. KAPÍTULI. Það var sem vjer vitum komin nótt og orðið dimmt í húsinu, og mundi hafa orðið tafsamt fyrir Gipsy a* finna Lu- cyu, ef gæfan hefSi ekki greitt götu hans. Þegar hann kom í dyrnar, heyrSi hann fljótt af andvörpum hennar, hvar hún var, og innan einnar mínútu var hann lijá henni. ,Hafðu hljótt um þig Lucya’ hvislaði hann. ,Hver ertu ?’ ,Ronald Blair’. ,Guði sje lof !’ .Geturðu skriðið á eptir mjer ?’ ,Nei; jeg er bundin!’—Hann tók upp hníf sinn, og skar þegar af henni böndin og mælti: ,Skríddu nú á eptir mjer, en talaðu ekkert’. Hljótt þurfti að fara, því þeir fje- lagar voru ekki méira en steinsnar frá húsinu.—Þau voru ekki komiu meiren20 fet frá húsinu, þegar Bardwell kom að vitja fangans. Þegar þau voru koinin þannig tír skotmáli, tók hann liana á handlegg sjer og hljóp me* hana hjer um 300 fet, fór svo til baka í slóðina og beigði svo af leið til vinstri handar, lijelt síðan áfram þar til hann hafSi komi* Lucyu í óhult fylgsni. Þegar hann var búinn að koma því svo fyrir sem honum líkaði og segja Lucyu að bíða róleg, þar til hann kæmi aptur, fór hann aptur tii baka slóðina, til að villa hinum sjónir, hvert sporin lægju; en gekk svo til fylgsnisins í aðra átt. ,Nú erum við sloppin’, mælti hann, ,en meguin ekkert tefja’. Iljeldu þau svo inn á þjóðveginn, og var þá um sól- aruppkomu, en þau sloppin hejipilega, því það stóðzt á, að þá höfSu fjendur þeirra komist fyrir gabbíð og voru bún- ir að finna staðin, þar sem hann fól hana. ,Þetta fór sem mig grunaði’, sagði Bradwell, ,að það væri liið sama að elta Gipsy Blair eins og skugga „meist- ara Eiríks’. En Bob fór sem þeir forSum; hann reytti hár sitt og reif klæði sín. Hann þóttist nú viss um, að öll lians ímynd- u*u framtíðar blómstur mundu snögg- lega fölna og falla, nema Gipsy og Lu- cya væru ráðin af dögum. Bob kallaði foringjann Bradden af- sí*is ogmælti: ,Jeg verð að ná henui, hvað sem það kostar!’ ,Þvi get jeg vel trúa*. En þa* sýn- ist sem hamingjan sje þjer öndverð nú'. ,Gipsy fer sjálfsagt me* hana til Fjórðalæks’. ,Það er mjög líklegt’. ,Yjer erum nógu margir til a* ná 1 henni aptur’. ,En ef þa* misheppnast ?’ ,Það getur ekki misheppnast’. ,Já, þú segir það, en maður getur búizt vi* öllu. Hvað borgarðu fyrir ómakið ?’ ,Jeg borga hverjum fimtiu dollars fyrir hvern dag, livort sem jegjvýpn eða tapa’. ,Jeg skal tala um það við þá’. Þeir tóku feginsamlega boðinu, og kváðust ganga viljugir í gálgann, ef þeir a* eins bæru gæfu til að yfistíga Gipsy. Svo var hatur þeirra magnað til hans. Gipsy gat sjer til um, hvað næst mundi vera í ráðagerð þeirra. llonum var innanhandar að umflýja fund þeirra, en það var fjarri skapi hans. llann vildi heldur lofa þeim að finna sig, og sjá svo hver betur hefði að ieikslokum. 28. KAPÍTULI. Lögregluþjónninn þekkti Bob svo, að hann vissi fullvel að hann mundi ekkert illt ógert láta til að ná Lucyu aptur á sitt vald, og að hann mundi vitja fyrst til heimilis hennar, var svo sem sjálfsagt. Þau komu snemma morguns heim að Fjórðalæk, og tók karlinn vi* þeim báðum höndum. Hann vissi ekkert um það, hver hefði náð Lucyu þaðan. Ilann vissi að Burt Clark var komin í sterkt varðhald, en Bob Marvin haf*i honum alls ekki dottið í hug.—Fyrir aðlijúkr- un kerlingar var karl nú orðinn svo hraustur að hann var ferðafær. Eptir að þau höfðu hresst sig á endurnærandi mat og drykk, hjeldu þau öll á stað til St. Louis. Gipsy fylgdi þeim til næsta bæjar og fól þau þar á hendur samverkamanni sínuni, þa* sem eptir var vegarins til St. Louis. Að því búnu fór hann aptur sem snarast til Fjórðalæks og bjóst þar um, til a* taka á móti fjendum sínum.—Leið svo að kveldi, a* allt var rólegt og kyrrt og ekki sást neinn koma. Lögregluþjónn- inn lá á miðju gólfi og virtist sofa.— Um óttubil komu leitarinenn, og stönz- uðu skammt frá liúsinu; tveir þeirra læddust heim að húsinu, en hinir biðu kyrrir á meöan, þegar liinir jiomu að glugganum, brugðu þeir upp blind-skrið- byttum sínum og iýstu inn, og sáu, —sjer til óumræðilegrar gleði—, að lög- regluþjónninn lá þar á miðju gólfi; gleði-bros ljek um varir þeirra, því nú þóttast þeir hafa ráð hans í hendi sjer. ,Er hreiðrið tómt ?’ spurði Bradden er þeir komu aptur. ,Nei; hann liggur sofandi á miðju gólfl’. ,En stúlkan¥ t ,Hana sáum við ekk’. Foringinn tilnefndi nú þrjá af mönn um slnum, til a* vega að óvininum, en þeir neituöu; þá brast hug til a* vega að þessu œgilega ljóni rjettarins.—Einn kvað heppilegast mundu a* brenna hann inni. ,Heimskingi! Hann hefur refsnas- ir, og mundi finna lyktina af eldspítun- um áður en þú kveiktir á þeim’. ,Það væri þó hlægilegt, ef euginn af tólf karlmönnum bæri hug til að vinna á sofandi manni !’ Eptir nokkurt þjark var ldutkesti varpað um það, hverjir fara skyldu, og þrír útvaldir voru nú sendir heim að húsinu, en hinir skyldu halda vörð, og skjóta hvern þann, er frá húsinu færi, nema Lucyu. Þessir iæddust nú hijóðlaust, hver á eptir öðrum, heim að dyrunum, þar stönzuöu þeir og hlustuðu til, en allt varkyrrtog hljótt. Þar næst hurfu þeir allir inn í húsi*, en hinir bi*u sem milli vonar og ótta.—Allt var enn með mestu rólegheitum, dauða-þögn hvíldi yfir öllu Þeir, sem úti voru, bjuggust við að heyra brauk og brak, en heyrSu ekkert. Ein mínúta leið eptir aðra og ekkert heyrðist; það var voöaleg þögn.—Þegar ■ tíu mínútur voru þannig liðnar, að ekk ert sást til hinna útvöldu, fór Bradden að ókyrrast. ,Þeir hafa víst svæft hann fyrirhafnarlaust’, mælti hann, og allir hinir álitu hið sama.—Máninn glotti hvítbleikur og kuldalega á milli skýbólstranna að hrœðslusvipnum, er lýsti sjer á enni níðinganna; einn eptir annan læddist þangað, er Bradden var; þessa hræðilegu kyrrð gátu þeir ekki lengur þolað; róstur og bardagar voru þeirra yndi. 29. KAPÍTUU. ,Hjer er eitthvað mórautt á ferðum, fjelagar’ mælti einn. ,Bíðum við lítið eitt’ svaraði Bradden, ,en eitthva* ver* ur þó að gera, til að leysa þessa gátu. iVjer getuiu ekki beðið hjer í alla nótt’, sagði annar. ,En hva* skal gera?’ ,IIver hefur nú hug til að fara og njósna’, spurði Bradden.—Sjálfur liafði hann ekki hug til þess. . Þar var ungur maðar einkenndur | fyrir hug og áræði, liann bauðst til að fara, og var boði lians tekiö feginsam laga. ,IIvað sástu? Hvað heyrðurðu? Hvers ertu vísari?’ spurði nií Bradden manninn, þegar hann kom aptur. ,Jeg gat ekkert glögglega sjeð, en mjer sýndist sem mafiur lægi á mi*ju gólfi’. ,En þú sást ekkert til Wills og hinna ?’ ,Nei, ekkert'. ,Farðu aptur, og gáðu betur að'. Eptir að njósnarmaðurinn hafði staðið viS dyrnar um stund, veifaði hann hendi sinni til hinna. og buðust þegar tveir til að veita honum fyigi og eptir að hafa játað reglum og ráðlegg- ingum Braddens um að varast tálsnörur fóru þeir og voru þegar horfnir inn um dyrnar.—En svo fór sem fyr, að sendi menn fcomu ekki aptur. ,Jeg veit ekki hvernig þessu vlkur við drengir’, mælti Bradden. ,Gipsy Blair hefur verið viðbúina komu vorri’, svaraði einn. ,Jeg hef sagt það fyr og segi enn, að Gipsy Blair er fjandinn sjálfur og enginn annar’, svaraði Bardwell. ,Vjer getum ekki skilið þannig vi* fjelaga vora’. ,Nei, það getuin vjer ekki'. ,Eitthvað verður að gera'. I ,Mikið rjett. en hver vill gera þetta eittfcfvað ?’ ,Vjer allir í einu’. ,Það er svo, en hvernig ?' ,Fyrst og fremst að rjúfa þessa kvelj andi þögn’. ,Eigum vjer að æpa að honum allir í senn ?’ ,Nei, en hafi hann, [sá bragöarefur, lagt snörur fyrir menn vora, þá er ekki anna* ráð vænna en særa hann út á opin vígvöll'. ,En mundu nirað þaðerGipsy Blair, sem vjer eigum við’. ,Það gildir sama; liann skal mega til að koma út’. ,En hann kemur ekki út fyr en hon um sýnist’. Þeir voru allir vel vopuaðir; og und- ir forustu Braddens sjálfs, læddust þeir að glugganum og skutu inn, en köstuðu sjer um leið niður undir húsvegginn. Skot þeirra gerðu enga lireifingu inn í húsinu, allt var kyrrt sem áður. (Framhald síðar). ! ■ ' \

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.