Heimskringla - 07.01.1893, Blaðsíða 1
É m
■yg %
* w
krimjla
AFSLATTR EF BORGAÐ ER
FVR/R JANÚARLOK.
50 cts
OGr
Aml. K 0!,on ,!
O L D I N.
AN ICELANDIC SEMI-WEEKLY NEWSPAPER PUBLISHED ON WEDNESDAYS AND SATURDAVb
VII. ÁR. NR. 4.
WINNIPEG, MAN., 7. JANÚAR, 1893.
TÖLT /!L. 358
F R E T T I R.
UTLÓND.
—Floquet, fyrverandi forsætisráð-
herra Frakklands og núverandi for-
seti neðrí málstofu á f>ingi, er sagt
að muni verða að leggja niðr þuig-
mensku sína sakir uppljóstrunar í
Panama málinu, setn ber.dlar hann
við fjárpágur.
—Á/cöf frost ganga víða á megin
andi norðrálfu. í Frakklandi hefir
margt fólk frosið í hel. Loire-
fljótið er lagt hjá Nantes, og víða
snjóþyngsli.
í Ítalíu hefir verið óvenju-kalt og
og snjóað margar klukkustundir
samfleytt í Róm.
Frá Pétrsborg í Rússlandi kemr
sú fregn, að hermenn hafi helfrosið
á verði á ísnum við Kronstadt á
laugardaginn.
— Wien, 4. Jan Kuldi helzt
enti í Austrríki, og Ungaralandi.
h lestar járnbrautir í Ungarn eru ó-
faerar fyrir sttjó. Samgöngur hættar
a-lveg að sinni milli Buda-Pest
(Ungaralands höfuðborgar) og Wi-
en.
London, 4. Jan. Pétrsborgar-
fréttir láta enn mikið af frostunum
í Rússlandi. 1 Olrnsk hefir frostið
orðið 56 stig undir zero á Fahren-
heit.
— Uþpreisnarmenn í fylkinu
Correntes í argantínska pjóðveldinu
hafa átt ýmsar orustur við stjórnar-
liöið og haft sigr. E>eir hafa náð á
sitt vald borgunum Mercedes og
Caseros og járnbrautalínum hóraðs-
ins par í kring.
—Þriðjud. 27. f. tn. varð orusta
allsnörp nálægt Las Animas í Mexico,
austr af Guerrers, milli 300 Mexi-
kanskra hermanna og 250 upgreisn-
armatina; féllu þar 13 af hermönnun-
um mexíkönsku, en margir fleiri
urðu sárir, og flýðu peir undan, er
máttu. Af uppreisnarmönnum fóllu
°g nokkrir, en aðrir særðust. Fyrir
liði uppreisnarmanna var Estrada
aðalhershöfðingi, en Garcia aðal-
hershöfðingi stýrði stjórnarliðinu.
—Bæjarstjórnin í París sampykti
á fundi 28. f. m. með 54 gegn 12 at-
kvæðum, að reisa veglegan minnis-
varða til að halda á loft minning
unni um um aftöku Hlöðvis XVI.
og Maríu Antoinette drotningarhans;
jafnframt var ályktað að rífa niðr
Afplánunar-kapelluna, er reist var
til heiðrsminningar um pau kon-
ungs-hjón, en reisa á rústum hennar
heiðrsvarða til minningar um Lepel-
letier St. Fargeau, og minnt.st þess
með letri á varðanum, er hann greiddi
atkvæði fyrir lífláti konungs.
— Nokkrum millíónum fran'ka
hefir varið verið til mælinga og
stórvirkja í Tttnis á norðrströnd
Afríku. In mikla nýja höfn [ Tunis
er nú nærri fullgerð, og verðr hún
alger petta ár.
BANDARÍKIN.
Chipman pingmaðr frá Michigan
hefir borið upp frumvarp [ banda-
þinginu um að banna Canadamönn-
um að vinna í Bandaríkjunum.
Hann segir 10 púsundir manna, sem
búi norðan við landamæri, fari dag-
lega suðr yfir í vinnu, taki nesti með
sór og hverfi heim að kveldi með
kaup sitt, er þeir eyði í Canada.
—Harrison forseti kvað ætla að
hætta við að banna járnbrautafólög-
um frá Canada að flytja tollskyldar
vörur „in bond11 * 5 * * * * * * * 13 inn í Bandarikin, en
lætr sór nægja að leiða athygli
pingsins að málinu.
CANADA.
-~lhaldsblaðið „Evening News* 1
^egir: „I stað pess að bera morð-
vopn á Dalton McCarthy, ætti blað-
ið Empire að vita, að pegar menn,
jafnfærir og hann er viðrkendr að
vera, fara a.ð efast um vísdóm toll-
málastefnunnar,sem hann hefir hing-
að til stutt, og þegar honum fylgja
að máli í pessu ntargir óháðir í-
haldsmenn, pá er sá tími kominn,
að tollverndarinnar dagar eru taldir.
E>ó að blöð og stjórnmálamenn
reyni að halda íhaldsflokknum sam-
an með því, að breiða enska sam
bandsfánann yfir gröf Sir John Mc-
donalds og biðja menn að falla fram
og tilbiðja, págetr slíkt ekki enzt
til eilífðar. Lifandi maðr er betri
en dauð hetja; og petta land parf
að halda á lifandi manni, sem kann-
ast við kröfur tímans, er hann heyr-
ir pær. Ef íhaldsflokkrinn ætlar
sífelt að fylgja rödd úr gröfinni, fer
hann sjálfr í gröfina, því þjóðin
mun þá sannlega grafa hann“.
— C. P. R. fólagið er sagt aú muni
flytja in 3 miklu og hraðskreiðu
eimskip sín Empress of China,
Empresi of India og Empress öf
Japan frá Kyrrahafinu til Atlantshafs
og hafa pau þar í ferðum milli
Liverpool og Quebec. Þau munu
vera hraðskreiðust skip i heimi nú.
Aftr er sagt að eimskip Guion-
línunnar muni verða flutt til Kyrra-
hafs og sigla milli British Columbía
og Japan.
—J. Israel Tarte ritstjóri frakk-
neska morgunblaðsins Le Canadien
1 Montreal, sá sami, sem ljóstaði
upp öllum svikunum og mútunum
1891 um Sir Hector Langevin og
fleiri flokksbræðr sína, pví að hann
er íhaldsmaðr,—bauð sig nú fram í
kjördæminu L’Islet til þingmensku,
og studdi frálslyndi flokkrinn hann;
en stjórnin studdi annað þingtnanns-
efni á móti af íhaldsflokknum.
Hann er kapólskr maðr og vill hjálpa
kapólskum mönnum í Manitóba til
fá að halda sínum sórstöku alpýðu-
skólum. Kvaðst mundi sýna fram á
svo stórkostleg svik og pretti hjá
stjórnflokknum hór, að jafnast mundi
við Panama-hneykslið í Frakklandi.
Með aðstoð frjálslynda flokksins
tókst honum að ná kosningu með
36 atkvæða mun í fyrradag Hafði
stjórnin pó gert sitt ýtrasta til að
tálma kosning hans.
—Dalton McCarthy, er vér gát-
um um [ siðasta blaði, hefir svara?:
hlað'unxEmpire og varið afstöðu
sína gagnvart stjórnflokknum. Em-
pire hefir andsvarað honutn á ný, og
lýsir par skorinort yfir pvf, að það
sé tilgangr stjórnarinnar að vlkja
l engu frá inni fornu tollverndar-
stefnu. Ef ráðherrarnirhefðu breytt
skoðun sinni í pví máli á svo stuttum
tfma, sem liðinn er síðan þeir lótu
uppi álit sitt í Petrólía um tollmál-
in, pá mættu þeir heita aðrir eins
,,vindhanar“ (turncoats) eins og
McCarthy.
—Af Hoh. Mr. Abott, inum fyrr-
verattdi stjórnarforseta pessa lands,
er pað að segja, að síðasta hraðfregn
frá London til blaðsins Globe segir
heilsu hans alt annað en góða. Henni
hefir ekkert fram farið síðan hann
kom til Englands; öllu fremr má
hann heita heilsulasnari en áðr.
Winnipeg.
— Útsölumenn að kvæðabók
minni bið óg að gera svo vel að
senda mór fyrir 15. þ. m. andvirði
pess, sem peir kynnu að hafa selt,
að frádregnum sölulaunum. Eins
að láta mig vita, ef einhver peirra
heldr hann geti selt meira. — Þar
sem engir útsölumenn eru, væri mór
þökk á,ef einhver víldi takast útsölu
á hendr og láta mig vita af því.
Jón Ólafsson
— Verkamannafélayið heldr fund
næsta laugardag kl. 7^ í félagshús-
inu.—Aíjög árlðaudi er, aðsemflest-
ir sæki fund, með því að mjðg
tnerkilegt og félagið mikilsvarðandi
m ál verðr til umræðu og úrslita.
Nú er „íslendingafjelagið“ (eða
r pess) f pann veg að selja fje-
lagshúsið. Húsið er orðið svo niðr-
að lítil eign er í.
leifar
lagsl
nltt,
—í samkunduhús Uuitara er nú
verið að leggja hitunaráhöldin:
verðr pað hitað upp með heitu lofti.
Þessu verðr lokið í dag, og stendr til
að húsið verði afhent safnaðarnefnd-
nni í dag.
—Þeir sem kynnu vilja taka að
sór hirðing á inu nýja samkundu-
húsi Únitara, eru beðnir að senda
tilboð um pað sem fyrst eftir helg
ina til formanns safnaðarnefndar-
innar, Jótts Ólafssonar ritstjóra.
Látið klippaykkr á lðcts.
og raka ykkr á lOcts.
hjá Sclieving
671 Ma-'n Str.
—Á jóladagsmorgun varð pað
slys í nyrðri Þingvallanýlendunni
(Lögberg P, O.), að íbúðarhús Mr.
B. Skagfjörðs brann, og varð fáu
bjargað af munum, er inni voru.
Oss er sagt, að húsið muni ekki hafa
verið vátryggt.
—Ið Islenzka Verzlunarfélag í
Winnipeg heíir ákvarðað að halda
aðal ársfund sinn 12. Jan. 1893 í
íslendingafólagshúsinu á Jemima Si
kl. 7Je. m.
Embættismanna-kosningar fara
fram á fundinum, og er því von-
andi, að allir fólagsmenn sæki fund-
inn, sem geta.
í umboði fólagsins,
Jón Stefánsson,
Forseti.
— Shaving (Scheving) will shave
you
on Main Street, go on !
The address I gave you
was 671.
I8í»a. Jtjoiiiinii af Ha'vana
iipin«kcrniiiii. #
„La Cadena“ og „La Flora“ vindlar
eru án efa betri að efni og töluvert ó-
dýrari heldr en nokkrir aðrir vindlar.
Fordómsfullir tóbaksreykjendr vilja
ekki kannast við það, en þeir, sem
vita hvernig þeir eru tilbúnir, kannast
við það. 8. Davis & Sons, Montreal [15J
„Ch'tir llavann Cigars”
1(La Cadena” og ((La Flora” Biddu
ætíð um þessar tegundir. [11]
Frá lesborðinu.
NT SAMGÖNG UFÆRl.
1 lok ins nýliðna árs vóru á prjón
unum ýmis ný fyrirtæki, er miðuðu
til að auka samgöngufæri á ýmsum
stöðum fram yfir pað setn verið hefir,
og eins til að kotna á samgöngufær-
um á nýjum leiðum, par sem eng-
in hafa áðr verið. Sum fyrirtækin
miða til orðsendingaviðskifta að eins
önnur til mannflutninga og farangrs-
flutninga. Vér viljum hór geta
nokkurra inna helztu af þessum
fyrirtækjum.
Fyrst er pess að geta, að það er
pegar farið að gera ráðstafanir til
að leggja málpráð milli vestrstraúd-
ar álfu pessarar og Japans, Sínlands
(Kína), Indlands og Ástralíu; á ltann
að liggja yfir Sandvíkreyjar, Satnoa
og aðrar Suðrhafseyjar. Er pað ó-
parft að fjölyrða ltér um pað, ltver
efling viðskiftum og pjóðmenning
hlýtr að verða að pessu fyrirtæki;
pá fyrst, er pað er á komið, hefir
rafmagnið spent hnött vorn megin-
gjörðum að fullu.
Þá er og talað um ancað fyrirtæki,
sem líkltga á nú skamt í land; en
pað er málpráðarlagning frá Brazil-
íu t'l vestrstrandarinnar á Afríku, og
paðan norðr til Evrópu.
Mr. Cecil Rhodes hefir nýlega
kornið til Lutidúna frá Afríku í peitn
erindum • að bjóða Bretlandsstjórn
að leggja á sjálfs sítis kostnað mál-
práð frá Cape Town (á suðrodda
Afríku) til Uganda, og er sá til—
gangrinn, að þræðinutn skuli síðar
fratn haldið þaðan norðr til Khar-
toum og svo niðr Nílár-dalinn til Cai
ro og Alexandríu í Egiptalandi, og
tengjast par málpráðunum, er pað-
an liggja nú yfir Miðjarðarhaf til
Norðrálfu.
Verði málþráðarlína pannig lögð
langs norðr utn Afriku alla, yrði án
efa járnbraut lögð von bráðar sömu
leið, og er pað fyrirtæki, sem kemr
kynlega fyrir þeim sem fyrir fám
árum lærðu á skólabekknum að
pekkja ineginlandAfriku sem ókunna
eyðimörk og óþekt villimanttaland.
Þegar byrjað var fyrir eigi allmörg-
um árum að ræða um að leggja
járnbraut austr frá Rússlandi þver^
yfir Síberiu, pá pótti flestum það
óðra manna æði; pað er þó fyrir-
tæki, sent nú er vel á veg komið og
er verið að vinna að af kappi að halda
áfratn. En hvað er pað hjá þessu?
Það er eigi djarfari draamr nú, en
margt af pví, sem ræzt hefir á vor-
um dögutn, hafði verið fyrir nokkr
nokkrum árvim, að hugsa sér, að
margr sá tnaðr sé nú á lífi, er eigi
pað fyrij sór áðr en hann lýkr nös-
um, að ferðast á járnbraut alla leið
óslitið frá Cape Horn (suðrhöfða
Suðr Ameríku) og til Cape Town-
(bæjarins Cape) á suðrodda Afríku.
Það er pegar löngu ráðgert að leggja
„pan-American“ járnbraut, er tengi
saman járnbrautalínurnar í Suðr-
Ameríku við línurnar í Mexico og
Bandaríkjunum, og liggi pannig
norðr um Panama-eiði gegn um
Mið-Ameríku. Og pessi ráðgerð
má heita vel á veg komin. Þá hefir
pað lengi til staðið, að frá C. P. R.
brautinni verði lagðar járnbrautar
línur upp að Peace River og til Mc-
Kenzie-dalanna. Og pá er ekki ó-
líklegt að hugsa sér, að þessar braut-
ir yrðu framlengdar yfir fjöllin og
til Youkon-dalsins í Alaska, og pað-
an yfir um Behrings-sund, sem er
bæði grunnt og mjótt, svo auðvelt
væri að leggja braut ytír pað á stólp-
um, ef eigi pætti pá eins tiltækilegt
að grafa göng undir pað, og pá
næði brautin saman við Síberíu-
brautina. En sú braut er nú svo
langt komin áleiðis, að pess er nú
skamt að bíða, að aka megi á járn-
braut óslitna leið frá Síberíu til
Miklagarðs. Og ekki þarf að efa
pað, að ekki þyrfti úr þvl lengi að
bíða járnbrautar alla leið frá Mikla-
garði til Egiptalands. Eftir pví
sem framfarirnar eru hraðfara
nú í Afrlku ætti að mega telja það
víst, að innan 25 ára hór frá (og ef
til vill vonum bráðara) verði komin
óslitin járnbraut frá Egiptalandi til
suðr-odda Afríku.
Póstskipsferðir
frá íslancli 1893.
[Svigatalan sýnir komudag til
Granton.—* strandferð].
Frá Rvfk: 5. (11.) Febr., 19. (26.)
Marz, 14. (20. Maf), * 4. (20.) Júní,
25. Júní (1. Júll), * 29. Júlí, (13.
Ágúst), 3. (10.) Ágúst, 14. (20.)
Sept., * 1. (16.) Okt., 20. (26.)Okt.,
28. Nóv. (11. Dec.).
AFMÆLl.
5. Nóvember fyrra ár var inn
góðkunni rektor lærða skólans, dr.
Jón Þorkelsson, sjötugr að aldri.
Þá voru og liðin 20 ár frá því hatin
tók við stjórn skólans (eftir Jens
rektor Sigurðsson, er lózt 2. nóvbr.
1872). í minningu pessa fluttu
skólapiltar, kennarar skólans og ýms-
ir embættismenn honum heillaóskir.
Færðu skólasveinar honum að gjöf
gullhring, haglega smíðaðan, ogvar
grafið á hann: „J. I>. 5 I 11 92.
Vivat doctrina“ (p. e. lifi vísindin).
Auk pess sendi Sigfús Eymundsson
ljósmyndari honum lítinn silfurbik-
ar til rninningar. Við petta tæki-
færi voru og rektor flutt 2 kvæði, er
skólapiltarnir Guðmundr Guðmunds
son og Friðrik Friðriksson höfðu ort.
Dr. Jón Dorkelsson er enn ern og
heldr enn óskertum sínum andlegu
kröftumog vinnupreki.-—Hann er nú
að gefa út ið þriðja íslenzka orðasafi
sitt (úr nýja málinu), og er vonandi
að honum auðnist að Ijúka pví, og
og vinna enn margt í parfir íslettzkr-
ar málvísi. (Eftir ísl. blöðum).
Póstskipsferðir
til íslands 1893.
[Dagrinn í svigum sýnir áætlaðan
komudag til Reykjavíkr.—* á undan
dagsetningunni pýðir, að pá ferð fer
skipið kring um landið.]
Frá Jilraiiton: 21. (28.) jan.,
5 (13.) Marz, 25. Apr. (13. Maí), * 11.
(28. Mai), 7. (13.) Júnl, * 6. (24.)
Júll, 18. (25.) Júll, 26. Ágúst (2.
Sept.), * 10. (26.) Sept., 7. (13.)
Okt., 12. (21.) Nóv.
MINNINGARRIT.
Sunnud. 13. Nóv.f. á. var PállMel-
sted sögukennari, r. af dbr., áttrœðr
(fæddr á Möðruvölium i Hörgárdal
13. Nóv. 1812). Færðu pá margir
bæjarbúar honum heillaóskir sínar
og merki blöktu á hverri stöng í
bænum. Þá var hooum og afhent
minningarrit, er 3 lærisveinar hans,
sem nú eru í Höfn (dr. Finnr Jóns
son, dr. Valtýr Guðmundsson og
cand. mag. Bogi Melsted) höfðtt
samið og látið prenta ytra á kostnað
G. E. C. Gad háskólabóksala. Rit
gerðirnar eru þrjár. Infyrsta peirra,
eftir dr. Finn, er um galdra, seið,
seiðmenn og völur. Kemst höf. að
þeirri niðrstöðu, að glöggan mun
beri að gera á völu og spákonu, er
einkutn hafi iðkað útisetr til að kom-
ast í samband við andaheiminn, og
seiðmanni eða seiðkonu, er eiukuni
hafi framið kyngi sína til að leita
sór vissu um hulda hluti, óorðna at-
burði og jafnframt til að vinna eitt
hvað sýnilegt út á við og þá eink
um öðrum til meins. Nefnir höf.
pessu til sönnunar ýmis dæmi úr
sögum vorum, er sýna, að seiðrinn
hefir einkum verið framinn í þessum
tilgangi. Völur í eiginlegri (nor-
rænni) mynd, eða eins eg þær vóru
á norðrlöndum upphaflega, hyggr
höf. að aldrei hafi náð fótfestu hór á
landi, svo telja megi. Ritgevð pessi
er ljóst og skipulega samin oggagn-
orð, enda er dr. B’inni lagið fretnr
mörg im öðrmn að komast að rök-
studdri niðrstöðu í stuttum ritgerð-
um.
Önnur ritgerðin, eftir dr. Valtý, er
uni fóstbræðralag, etns og pað tíðk-
aðist á Norðrlöndutn í fornöld.
Hefirhöf. skift. efni sínu í 4 aðalkafla.
í inum fyrsta, uni nafn bræðralagsins,
sýnir hann fram á, að orðin ,eið-
bræðr“, „svarabræðr“ eða „eiðsvar-
ar“ séu in upprunalegu nöfn peirra
ntantta, er getigið haá í hátíðlegan
félagsskap, en hins vegar hafi nafnið
„fóstbræðr“ liklega alls ekki haft
pá merking í fyrstu, heldr fengið
hana miklu siðar, líkl. ekki fyr en á
12. öld, og styðr pá ætlun sina við
pað, að í sögunum sé orðið „fóst-
bjæðr einatt í sötttu tnerkingu sem
„fóstrbræðr“, p. e. menn, er hafa al-
izt upp saman, og í Gulaþingslögum
á 10. öld só einnig gerðr skýr munr
á ,,fóstbróðir“ og „eiðbróðir“. í
öðrutn kafla ritgerðarinnar skýrir
höf. frá lögum og eðli bræðrafólags-
ins, og í inum þriðja og fjórða frá
stofnun pess og tölu fóstbræðranna,
en hér er ekki rúmtil að skýra frek-
ara frá niðrstöðu peirri, er hann
kemst að í pessu eftti. Ritgerðin
er yfir höfu^ vel samin og gefr ýms-
ar mikilvægar upplýsingar um þýð-
ing og fyrirkomulag fóstbræðralags-
itts — pessa einkennilega, fagra fó-
lagsskapar á fyrri öldum.
Síðasta og lengsta ritgerðii:, eftir
cand. tnag. Boga Melsteð, er utn
alþingi, eða fyrirkomulag pess að
fornu, pangað til Jónsbók var lög-
tekin. Er ritgerð pessi bvgð á rit-
um þeirra Konráðs Maurers og
Vilhjálms Finsens, og er því ekkt
að vænta, að í henni só margt nýtt,
pá er jafniniklir vísindamenn hafa
plægt þennan akr fram og aftr all-
vandlega. Eigi að siðr getr ritgerð
pessi komið að einhverjum notum
fyrir pá, sem ekki pekkja und-
irstöðuritin, með pví að hún gefr
allgott og greiuilegt yfirlityfir skip-
un alpingis að fornu, löggjöf og
lagabreytingar m. fl., er pað snertir.
Yfir höfuð er minningarrit petta
vandað að ytra frágangi og in sæmi-
legasta afmælisgjöf, enda in fyrsta
pess kyns, er hérlendr tnaðr hefir
fengið, að pvi er vór ætlum. Er-
lendis eraltltt að samin séslík minn-
ingarritog tileinkuð merkisinönnum
við eitthvert hátiðles't tækifæri.
o
Ilerra Páll Melsteð er enn tnjög
ern og ungr í anda ttteð óskertutn
sálarkröftum og ósljófguðu ntinni,
er flestum förlast pó eittna fyrst.
Hann er pví fróðrunt margt. Væri
allæskilegt, að hann skrásetti ið
helzta, er á daga hans hefir drifið
pessi 80 ár, enda mun sönnu næst,
að hann httfi þegar byrjað eitthvað
á pví. Gæti pað orðið einkar-fróð-
legt rit. Vór íslendingar eigitm
pvi miðr sárfátt af pess kottar tninn-
isritum. [,,Þjóð.“]
Powder
Brúkað af millíómiin manna. 40 ára á markaðnutu