Heimskringla - 20.05.1893, Side 1
TII- Aff. NR. 35.
WINNIPEO, MAN, 'JO MAl, 1893.
TÖL UBL. 380.
Yestmenn.
(Stigu á land 1492. Vöktu mannkynið
til frelsis 1785. Öndvegisþjóð
lieims 1893).
„Þú vogar það, ólmhuga ungoeðislið,
að ögra frá vesturliafe geimi
og skorðaþar stólhrúður stjomurnar við
til storkunar gjörvöllum heimi.
Þú veizt, að af feðrunum hauður og liaf
og himin að erfðum vér tókum,
um þig finnur enginn einn einasta staf
í alheimsins spámannabókum.
Hvaðeruðþið, Vestmenn? það heims-
froðu hjóm,
sem hreykti sér fáeina daga?
Hvar er ykkar Grikkland? hvar er ykk-
ar Róm?
hvar er ykkar fornaldarsaga?
En hrokinn er feigur og fellar því brátt,
er framtíðin leitar til valda;
sá konungur ber ekki höfuðið hátt
úr hafróti komandi alda.
Hvar eigið þið vígin, sem vinnur ei á,
er vantrúar helstormur nseðir?
og hvar eru björgin, sem bifast ei þá
er brimólga frelsisins æðir?
Hvar er ykkar þjóðkyrkja heilög og
hörð,
sem bábindur óþæga sauði
og hefir um aldirnar haldið hér vörð
hjá bertýgjum vorum og auði ?
Hvar eigið þið aðals og hirðsveina hóp,
sem hír er oss skjöldur og prýðij
og guð öllu stóru til grundvallar skóp
og gafsínum trúaða lýði?
Og sannkristinn maður, hvað segirðu þá
ef sæirðu að hástóli ganga
einn Vesturlieimsgárung með gull-
krýnda brá
og guðsnáðar sólskin á vanga?
Nei, það sem frá öndverðu óhaggað
stóð
og aldirnar bifast ei sáu,
á seigari rætur en sjálfala þjóð
og Chicago-turnarnir háu:
Því aðall með krossum og kóngar á stól
og kyrkja, sem flekast ei lætur:
það stóð þegar upp rann hér aldanna
sól
og á þarað standa til nætur“.
Við byrjum þá sálminn, ’er Chicago frá
þið sendið oss hátíðarglauminn,
og reynum að brjóta af oss boðana þá
er berast hér austur um strauminn.
Þvi hvert sinn er veltandi vestan úr
heim
að virkjunum bárurnar ríða,
þá braka við hlekkir á þúsundum þeim
sem þegjandi frelsisins bíða.
Það eru þær tungur, sem oss hafa smáð
og æsa vorn lýð sem þær kunna,
og munnar, sem hafa því margsinnis
spáð,
nð musterin hrynji til grunna.
Við höfum þá svívirt og hrakið og
þreytt
og húðstrýkt og drepið að kalla,
og hefði ekki lýðurinn hnefana reitt,
þá hefðum við krossfest þá alla.
Ku mega þeir kveða um kyrkjuna níð
og k\ eina undan auðmanna valdi,
því vér hofum lagt á þá völundar-smíð
og vonum að fjöturinn haldi.
En veki þó einhver þeim VOnir á ný,
þá vaxa þeim kraftamir óðum,
ogþegar þeir spyrna sem ólmíegast í,
er eins og vér stöndum á glóðum.
Þá nötrar vor marggyita mannfélags
höll,
sem rnæðir á kúgarans armi,
sem rifin og fúin og ramskekt er öll
og rambar á Helvítis barmi.
Og kóngurinn streitast þarkiknaður við
og kófeveittur presturinn togar,
en endalaust sígur á ógæfu hlið
og undir í djúpinu logar.
Þar kemur ei varðmönnum blundur á
brá,
þeir berjast þar nætur og daga,
en illur er leikur við yrmlinga þá,
sem eldgömlu stoðirnar naga.
Og bumburnar þrýtur að þagga þann óð,
sem þrymur þar tryltast í ranni,
því þaðeru ótrúleg ódæma liljóð,
sem eru í hungruðum manni.
Og hverju sem lofað á himni þeim er
og livað sem að boðorðin segja,
þá fjölgar hér einlægt þeim hörmunga
her,
sem heldur vill stela en deyja.
Og þeir, se m við Mammóni gefum að
gjöf
og ganga til trogs eins og sauðir,
þeir eru nú farnir að engjast í gröf
og æpa úr jörðunni dauðir.
Það er eins og vofi yfir vestrinu frá
það veður sem bjálkana skekur,
og bak við það dyljist svodagurinn sá,
sem dauða og sofandi vekur.
Og því er ei roðinn sá þjóðunum trúr,
sem þekur inn vestræna boga,
því þar flýgur neistinn á endanum úr,
sem Evrópu hleypir í loga.
En meðan þið eruð þar réttir á rás
og römmustu guðunum háðir,
þá megna sem fyrri að marka ykkur
bás
þeir Mammon og Jehóva báðir.
Við vonum það gullokið standi í stað
og stöðvi ykkar sonu og dætur,
sem herðir nú frjálsbornu hálsunum að
og hryggina svínbeygjast lætur.
Á prestana og trúna vér treystum þó
mest
að tjóðra og reyra ykkur böndum;
því það eru vopnin, sem bíta hér bczt
í böðla og kúgara höndum.
En hver getur trúað þérsóknharða sveit,
er sigraðir forðum í stríði?
enjárnvarinn allur á jaxlana beit
þar jötuninn brezki og flýði.
Þar kom hann með víkingsins valdi og
frægð
og varði sig boðum og föllum,
með feðranna liamingju, feðranna slægð
og forna heims guðunum öllum.
Hver þorði að vona, hver varaðist það
að Washington yrði þá búinn,
og rendi þar skeiðinni orrustu að
með aktaum að herðunum snúinn?
Sá sigurskóp örlögin ykkar og vor;
því eins þó við hrollinum leynum,
þá höfum við síðan við hvert ykkar
spor
í liundrað ár skolfið á beinum.
Því aflið sem bylt hefir öllu hér við
og aldirnar skeiðríða lætur,
það gremur oss lífið og glepur oss frið
og gerir oss óróar nætur.
Því enginn má vita hvað orðið er þá
af auðsins og guðanna friði,
er hundraðið fimta er sigið í sjá
og sól þess er runnin aðviði.
Þó glatt sé nú leikið um gullkálfinn
þann,
sem göfgar inn voldugi lýður,
þá liggur ef til vill þar höfuðlaus hann
og hungruðu gestanna bíður.
Og þá hefir má ske hin máttuga hönd
um musterin eldslogum vaflð
og guðinum seinasta stjakað að strönd
og steypt niðr í annað hvort hafið.
Þorat. Erlingason.
F R É T T I R.
ÚTLÖND.
ELDSVOÐI í PÓLLANDI.
í bænum Cowal í Póllandi varð
5. þ. m. ákaflega mikill eldsvoði.
Bærinn liggr 80 mflur suðr af War-
schau og hefir eitthvað á fjórða þús-
und fbúa. 116 hús brunnu, 80 menn
brunnu inni, en 300 fjölskvldur
urðu húsviltar.
HERLAGAFRUMVARPIÐ ÞÝZKA
var loks felt í ríkisþinginu 6. þ. m.
meS !Í10 atkv. gegn 162. Þetta
er inn fyrsti stór-ósigr, er keisara-
stjórnin hefir bebið fyrir þinginu,
enda er hann nijög tilfinnanlegr,
og fagna allir frjálslyndir menn úr-
slitunum. Keisarinn lét samstundis
rjúfa þingið. Fer hér »ð líkindum
í hönd hörð barátta tnilli keisarans,
sem vill auka her sinn, og þjóð-
arinnar, setn stynr undir álögubyrð-
inni og er ófús á að auka hana
enn af nýju.
CAPRIVI, *
ríkis-kanzlarinn þýzki, bað keisarann
að leysa sig frá stjórnarforstöðunni
undir eins og búið var að fella her-
lagafrumvarpið á þinginu. Ekki
hefir keisari viljað veita honum
lausn að sinni, en nýjar þingkosn-
ingar eru nú boðaðar í Þýzaalandi
°g eiga að fara fram 15. Júní.
SKRÁSETNING ÚTLENDINGA.
Frakkneska pingið hefir sampykt
pau lög, að allir útlendingar, sem
í landinu dvelja, skuli rita nöfn sín
á skrá hjá yfirvöldunum. En f>ing-
ið felldi frutnvarp um, að leggja
skatt á alla útlendinga.
AHLWARDT REKTOR,
þingmaðr í þýzka ríkisþinginu, er
alræmdr orðinn fyrir ofsóknir sínar
og æsingar gegn gyðingum. Hann
hafði skammyrt hr. Löewe, einn
flokksforingjanna á pinginu. Löewe
er gyðingr að ætt og eigandi byssu-
verksmiðju mikillar. Hann fékk
Ahhvardt dæmdan til fangelsishegn-
ingar, en dóminum varð eigi full-
nægt meðan á pingi stóð; en pegar
er pingið var rofið, var Ahlwardt
tekinn fastr og hneptr f varðhald.
NORÐFÖR KEISARA-HJÓNANNA.
Berlin, 6. Maí. t>að er nú ráðið
að drottning keisarans fer með manni
sfnum á skemtiferð hans til Noregs
í ár. í förinni ferða nfu herskip og
floti sprengibáta að auk. Mælt er
að ferðinni muni heitið til Nord
Kap eins og síðast.
DR. KEELEY í MEIÐYRÐAMÁLI.
»
Eitthvert merkasta læknisfræði-
blað f heimi er enska blaðið Lancet,
sem kemr út f Lundúnum. í pví
stóð fyrir nokkru grein um lækn-
inga-aðferð Dr. Keeley’s, pess er
læknar drykkjufýsn með sérstakri
aðferð á spftala sínum í Dwight,
111., og hefir stofnað marga slfka
spftala vfða í Bandarfkjunum og í
útlöndum og nýlega selt læknisað-
ferð sína fyrir 110,000,000. Keeley
pótti greinin meiðandi og höfðaði
mál fyrir meiðyrði og til skaðabóta.
Kom pað fyrir f Lundúnum fyrsta
sinn 5. p. m., og má búast við að
standi lengi yfir áðr útkljáð er.
BANDARÍKIN.
»
CHICAGO-SÝNINGIN.
Blað vort hefir fengið prjú löng
fregnbréf frá sýningunni, en vér
höfum ekki rúm fyrir pau. Enda
eru pau rituð af enskum manni,
sem ekki hefir haft hugmynd um
að laga pau eftir pörfum blaðs
vors. — Dess er helzt að geta, að
sýningin var opnuð 1. p. m. af
Cleveland forseta; en alt var pá í
hálfbúnu ástandi eða paðan af lak
ara. Er talið vfst að fullr mánuðr
verði enn par til sýningin er kom-
in f lag. Alt pykir dýrt, sem sýn-
ingunni við kemr, öllum færum sætt
til að flá gestina. Kveðr svo mjög
að pvf, að blöðin í Chicago hafa
tekið samróma l strenginn að heimia
umbætr á því a£ forstöðunefndinni,
og er talin meiri von að þær f&ist.
Aðsókn hefir til pessa verið mik'a
minni, en við var búizt, og eigna
menn pað meðfram gyðingshætt-
inum á öllu verðlagi.
SÝNINGIN OPNUÐ Á SUNNU-
DÖGUM.
Það var megnasta óánægju-efni,
að sýningin var lokuð á sunnudög-
um. Drykkjuskapr, áflog, morð og
aðrir glæpir gerðust ákaflega tfðir í
Chicago á sunnudögum síðan sýn-
ingin hófst. Auk pess fóru menn
að sjá fram á, að prátt fyrir pá
Í2,500,000, sem bandapingið veitti
til sýningarinnar með pvf skilyrði,
að henni yrði lokað á sunnudögum,
mundi pó meira en pví svaraði miss
ast f af tekjum við lokunina. Svo
hagar ttl, að menn sem búa eigi féær
en 100 mílur frá Chicago, geta kom
ið þangað á sunnudagsmorgna með
járnbrautum og farið heim að kveldi
eftir að hafa eytt suunudeginum á
sýningunni. Má nærri geta hvílíkr
urmull pað yrði af slíku fólki og af
bæjarbúum sjálfum, auk allra reglu-
legra sýniugargesta, er muudu nota
sunnudaginn til pess. I>vf tók for-
stöðunefnd sýningarinnar loks það
ráð nú í vikunni, að samþykkja að
hafa sýninguna opna eftirleiðis alla
sunnudaga. Að eins verða vélarnar
ekki f hreyfingu, en öll sýnishús op-
in að öðru leyti. Dví sem nefndin
hafði tekið við af fjárveiting banda-
pingsins, ætlar hún að skila aftr-
300 MÍLUR FYRIR 25cts.
Dað er heilmikið stríð sem stendr
milli járnbrautarfélaganna Santa
Fee R. R. Co. og Rio Grande R.
R. Co. f Colorado; undirbýðr hvort
félagið annað með flutningskaup.
Svo er að sjá sem Santa Fé braut
arfélagið vi'ji láta sem fyrst til
skarar skrfða, pvf að pað hefir ný-
8 1£lýst (B- p- m-) *ð pað
flytji farpegja til sérhvers staðar f
Co'orado, sem Rio Grande brautin
nær einnig til, fyrir 25 cts. Geta
menn nú þannig ferðast par 300
mílur fyrir 25 cts.
CLEVELAND UMSETINN.
Svo hefir Cleveland verið um-
setinn af embættasníkjunum, að hon-
um hefir ekkert að verki orðið og
engan frið haft. Hann hefir pvf
gefið út pá auglýsing, að hann veiti
engum manni, sem um embætti
sækir, persónulega áheyrn, og menn,
sem taki sig tali prátt fyrir petta
til að biðja um embætti og hangi
í Washington til að bfða eftir
árangri umsóknar sinnar, þurfi enga
von að gera sér um embætti. Eini
vegrinn sé að senda umsókn sína
og meðmæli skriflega „boðleið
rétta“. Þetta hefir mælzt vel fyrir
hjá nýtustu blöðum af öllum flokk-
um.
CANADA.
ÍSINNÁ VÖTNUNUM
ísinn er enn eigi leystr af vötnun-
um, pótt hér sé nú sól og sumar á
degi hverjum. Lfklega hefir þó
vindrinn og rigningin í fyrradag
farið langt með hann. Kornsölu-
menn bíða með óþreyju leysingar-
innar, svo að korn þeirra geti kom-
izt austr og þeir fengið peninga
sfna. Um pessa helgi búast menn
við að austr-vötnin leysi. Og pá
má fara að vænta leysingar Winni-
pegvatns uui sama leyti eða rótt á
eftir.
NÆSTI LANDSTJÓRI
hór f Canada verðr Aberdeen lá-
varðr. I>að er nú auglýst af Eng-
landsstjórn. Hyggja menn vel til
hans, þvf að hann er einkar-frjáls-
lyndr maðr og vel látinn.
[10]
DBPRICE’S
, qæaí.
pmr« Or«mm mf tartmr Powdmr, **{in ammonim mkkmrt Alam.
Brúkað «f mmillfónmm m»na». 40 Irt & nsmrkmðmum
VERÐHORFUR ULLAR
I N. D.
James McMillan & Co. í Minne-
apolis, Minn., einir inir efldustu ullar-
verzlunarmenn fyrir vestan Chicago,
sem prenta og senda út verðskrá yfir
ull og aðrar vörur, sem þeir verzla
með, í byrjun hvers mánaðar, segja í
byrjun verðskrár sinnar fyrir maí þ. á.:
„Mjög lítið af ull heflr komið inn til
þessa og veldr því in illa tíð í vor.
Við fáum vanalega meira og minna
af nýrri ull inn fyrir þennan tíma,
en þetta ár mun hún koma inn seint.
Hvað verðið snertir, er það að segja,
að fyrir óvissuna um, hvaða stefnu
þingið tekr með tolllögin, þá er svo
að segja engin eftirsókn eftir ull, og
ið almenna álit er, að ull seljist þetta
ár lægra en nokkru sinni áðr. Vér
kaupum ull í ár að eins trá Iowa,
Wisconsin, Michigan, Minnesota og N.
Dakota“. Síðan skýra þeir frá þessu
verðlagi: fín ull 11—13 cts., miðlungs
góð ull 13—15cts., góð ull 14—16cts.
gróf ull 13—15 cts. Eftir þessu er út-
litið ekki sem glæsilegast, en óskandi
væri samt, að allir landar í Dakota^
sem hafa ull að selja, hefðu það hug-
fast, að sá óhultasti vegr til að ná
hæsta verði er, að vanda alla meðferð á
ullinni, svo hún komi sem bezt fyrir
sjónir þegar hún er seld.
Frá löndum.
HNAUSA P. O., 7. Mai.
KUNNUCT GERIST
um stuttan tiina
VILJUM VJBR VID MÓTTÖKU
50 AF VORUMERKJUM VORUM
Derby Caps
af hverskonar stærðum, senda ókeypis
eina af vorum ljómandi
CHROMO-PHOTOCRAPHS
—EÐA—
ART STUDIES.
D. RITCHIE & C0.,
Hontreal, Can . A l.ondon, Kng.
DERBY CAPS fylgja með öllum
vorum tóbakstegundum, PLUG,
OUT BLUG TÓBAK og CIGAR-
ETTUM búnum til af oss.
(Frá fregnrita Hkr.).
Yorið virðist nú loksins komið;
síðan 27. f. m. hefir hver dagrinn
verið öðrum blfðari. Jörð iná heita
alanð, nema á stöku stöðum f skóg-
unum; hiti er um daga, en lítið frost
um nætr, svo jörgin pornar hér svo
notalega jrínótt og hún þiðnar, og
eru nú bændr að brenna sinu af
löndum sfnum, en geldgripir allir af
gjöf komnir og víða farið að beita
kúm. Heyskortr var farinn að verða
hér nyrðra á stöku stað, en yfirborð
bænda var svo vel statt með hey að
engin hætta var á ferðum, pó gjafa
tími hefði orðið talsvert lengri en
hann varð, pví hjálparfúsir eru
bændr hér hverjir við aðra, ef á parf
að halda.
Mislingar hafa stungið sér hér
niðr á stöku stað og ekki reynzt
skæðari en svo, að heilsufar m& heita
fremr gott prátt fyrir pað.
„ísafoldar“-skólahéraðsmenn eru
búnir að draga að sér viðinn í skóla-
húsið og mun vera ætlun peirra að
hafa pað fullgert að hausti evo pá
megi byrja kenslu f pvf.
Ishiísi (inu þriðja) hafa þeir
Sigurðsou Bros. hér í Breiðuvík
bætt við sig, 26X 24 fet að grunn-
máli og 14 feta háim veggjum und-
jr pak, og enn fremr: trosthúsi (free-
zer) 26X14 fet að grunnmáli og 14
feta háum veggjum. Byggingar
hjá peim eru orðnar allmiklar og
hafa peir í hyggju að taka fisk í vor,
ef bændum sýnist að nota sér tæki-
færið; hvað peir gefa fyrir fiskinn, er
ekki fastákveðið enn pá, en heyrzt
hefir J cent fyrir pundið; sömuleiðis
hefir flogið fyrir að peir Gimli-kaup-
menn muni taka fisk f vor og gjfa
1 cent fyrir hvern fisk; hvorugir
munu taka nema nálfisk, pví ekki
er hér um hvftfisk að ræða.
„öldin“ fær gott orð, og haldi
hún þeirri stefnu, er hún nú byrjaði,
álft ég hún hafi breyzt til mikils
batnaðar.
Hefurðu reynt
UCABLE EXTRA”
VINDLA?
hiin
Alkiuiua Merking
“MUNGO”
“KICKER”
“CABLE.”
Er hvervetna viðrkand að vera
f öllu tllllti betri en allrr aðrar
tóbakstegundir. In stórkostleya
sala þessarar tóbakstegundar
sannar betur gæði hennar o«
álit en nokkuð annað, þvi þrátt
fyrir þatS þótt vér höfum um
hundrað tuttugu og flmm keppi-
nauta, eykitþó salan stöðugt.
Þetta mælir með brúkun þeaaa
tóbaksbetren nokkuð annað. V4r
búum ekki til ódýra vindla.
S. DAVIS & S0NS
MONTREAL.
Oesta og besta vindlagerds-
hna i Canada. [7]
Reina Victoria.
9. Maí. Tý idr maðr. 7. p. m.
komu tveir enskir menn frá Fisher
River til verzlunar hingað í Breiðu-
vík; tóku peir sér gististað á heimili
Mr. Baldvins Jónssonar, pvl þar er
helzti gististaðr hér. Seinni part
dagsins fór annar þoSsara manna
paðan suðr brautina og var því eng-
inn gaumr gefin; en pegar hann
ekki kom heim um kveldið, pókti
pað reyndar undarlegt, en poss var
getið til, að hatiti hefði máske farið
til annara húsa og gist par utn nótt-
ina. En pogor hann var ókotninn
til skila næsta morgun, var starx haf-
in leit og pess getið til, að maðritm
hefði kanske snögglega veikzt og
lagzt einhversstaðar fyiir; en prátt
fyrir leitina hefir inaðr'.nn ekki
fundizt og ekkert til hans spurzt til
pessa (kl. 7£ e. m.). Félagi hans
fór aftr áleiðis norðr til Fisher Ri-
ver í morgun. O. O. Atcraness.
[11]
Vjer lifbn a fraifara old.
AUWNAMID VORT
ERU UHBÆTUR!
Og «kki aftrfor.
In nýja merking vor
CABLE EXTRA
er sérstaklega gód og vér leyf-
um oss ad mælast til þess, að
tóbaksmenn reynilianasvoþoir
goti sannfærst um að frambmrð-
ur vor er sannur.
S. DAVIS & SONS.
No. 14]