Heimskringla - 09.06.1894, Qupperneq 2
2
HEIMSKRINGLA 9. JÚNÍ 1894.
#
komr dt á Laugardogum.
The HeimskrÍDgla Ptg. & Publ. Co.
útgefendr. [Publishers.]
Verð blaðsins í Canada og Banda-
* rikjunum :
12 máuuSi $2,50 fyrirframborg. |2,00
6 ----- $1,50 ---- — $t,00
3 ----- $0,80; ------ — $0,50
Ritstjórinn geymir ekki greinar, sem
eigi yerða upptekuar, og endrseudir
þær eigi neina frímerki fyrir endr-
sending tylgi. Tlitstjóriun svarar eng-
nm brífum ritstjórn viðkomaudi, nema
í blaðinu. Nafnlausum bréfnm er
engiun gaumr geíinn. En ritstj. svar-
ar höfundi undir merki eða bókstöf-
um, ef höf, tiltekr 3)íkt inerki.
Uppsögnógild að lögam, nema kaup-
aadi sé alveg skuldiaus við bhrSið.
Ritsjóri (Editor):
EGGERT JÓHANNSSON.
Ráðsmaðr (Busin. Manager):
.J. W. FINNEY
kl. 9—12 og kl. 1—6 á skrifst.
Peningar sendist í P.O. Money Or-
der, Registered Letter eða Express
Money Örder. Panka-ávísanir á aðra
banka, en í Winnipeg, eru að eins
teknar með afföllum.
653 Pacific Ave.
(McWilliam Str.)
1 forna farið ?
Hinn góðfúsi ritstjóri Lögbergs,
Einar Hjörleifsson, er meira en í meðal-
lagi reiður yfir því, að Hkr. léði Jóni
Ólafssyni rúm til þess að iáta í ljósi
persónulega skoðun sína á nýútkominn1
ritsmíð G unristeins Eyjólfssonar. Svo
mikið ódæði þykir honum það, að hann
segir: “Hvort sem menn nú vilja
kalla slikt “frjálslyndi" eða drusluhátt,
þá mun slíks ekki finnast dæmi í blaða-
mennsku nokkurrar þjóðar”. Minna
má nú gagn gera, en sleppum því. Hið
einkennilegasta er, að Einar skuli tíma
að verja nærri hálfum fjórða dálki tíl
að ræða um bækling, sem hann jafn-
framt segir óverðugan þess, að á hann
só minnst, sem ekki mun fjarri réttu.
Að Jón Ólafsson hafi lokið “lofs-
orði” á bækling þennan “tilþess að geta
fengið tilefni til að svívirða óvini sína”,
er tilgáta Einars og ekkert annað, og
hún máske nokkuð “fruntaleg”. Að
minnsta kosti gæti orðið örðugt fyrir
hann að sanna réttmæti þeirrar tilgátu.
En þeir um það, Jón og Einar. Það er
nokkuð, sem Hkk. kemur ekki við.
Alt sem henni kemur við í þessu efni
er, að athuga á hvaða grundvelli Einar
bvggir sinn stóra dóm, þann, að Hkr,
hafi framið dæmalaust ódæðisverk með
því, að leyfa Jóni Ólafssyni að birta
sína skoðun á sögunni Eleónóka.
I þessu landi, að minnsta kosti, er
það viðurkennd almenn kurteisisskylda
opinberra blaða, að neita engri grein
upptöku ástæðulaust, sé hún sæmilega
rituð og flytji engin persónuleg meið-
yrði. Engin slík meiðyrði eru í þassari
grein, þessum fleini í holdi Lögb Sjái
Einar Hjörleifsson þau, þá hlýturhann
að vera svo skygn, að hann “sjái gegn
um holt og hæðir”. Það leynir sér
raunar ekki, að hann þykitt sjá æru-
meiðandi ummæli í henni, að því leyti,
sem hún lýsir ritverki. er hann segir að
flytji meiðandi ummæli um einstaka
menn og þar á meðal um einn mann í
stjórnarnefnd Hkr. (hvern?) En
hvernig ætlar þá Einar að sanna, að til-
gáta hans sé á rökum bygð—að hún só
rétt ?
Vér sjáum ekki hvernig hann fer
að sanna meira en það, að honum
finnisí hann hafa sínar ástæður til að
ímynda sér, að söguhöfundurinn eigi
við þennan mann og við hinn. En
með sams konar sannanir gætu allir
komið, þvi eins vist og E. H. þykir
að höfundurinn meingi þennan, eins
vist er það, að öðrum þyli ir höfundur-
inn sjálfsagt meinga hinn, alt svo lengi
sem einhverjir viðburðir i sögunni geta
heimfærst upp á nokkurn einstakling
eða nokkurn flokk manna á nokkrum
stað. Væri Gunnsteinn krafinn til
sagna, er eins víst eins og ekki að
upp kæmi, að báðir færu villir vegar.
Hrakyrðadómur Einars yfir Hkr. hefir
þess vegna ekki minsta gildi.
“Burt með skoðanafrelsi! Burt
með hugsunarfrelsi! Burt með ritfrelsi!”
Þetta segir J. Þ. (í Ejallkonunni 17.
Apr. þ. á.) að sé hugsunarháttur séra
Jóns Bjarnasonar, ef hann er afhjúp-
aður og dreginn fram á sviðið í nekt
sinni. Er það ekki nokkuð áþekkur
hugsunarháttur sem nú gægist fram
í Lögbergi, þar sem það kallar fyrir-
litning fyrir Hkr., af því hún leyfir
einum m.anni að láta í ljósi allsendis
illyrðalausa skoðun sína á ritsmíð ann-
ars manns ?
Vér eftirlátum óhlutdrægum, skyn-
sömum mönnum að -svara spurning-
unni.
Nýtt illgresi.
Illgresi sýnist lítilmagni og Jiess
vegna vel viðráðanlegur, en “það er
ekki alt sem sýnist.” Illgresi fer sinna
ferða, og með öllum sínum lærdómi
og öllum sínum áhöldum er mannin-
nm óljóst iivernig hann á að stemma
stigu þess, eða uppræta það, þar sem
það nær að festa rætur. Bændur
hvervetna i landinu þykjast hafa feng-
ið sig fullreynda í viðureign sinni við
hérlendar illgresistegundir, sem almenn-
ar eru. Þó eru þær allar sagðar lömb
að leika sér við i samanburði við nýja
illgresistegund, sem búin er að fegta
rætur í vesturrikjum Bandaríkja, og
nú útbreidd orðin á svæði um 30,000
ferhyrningsmílur að flatarmáli. Er
Jretta illgresi nú komið norður í Dakóta-
ríkin, og er á hraðri norðurför. Má
því búast við gesti þeim til Manitoba
þegar minst varir. Fjandi þessi er
nefndur “rússneskur þistill,” af því
rússneskur landnemi hafði það með
sér í liörfræi er hann tók með sór,
þegar liann flutti til Ameríku fyrir
fáum árum.
Þegar illgresi þetta fyrst kemur
upp á vorin, likist það mjög einkar
fínum mosa, en útliliö breytist innan
skamms. Eftir 10 daea er rót þess
svo seig orðin og fléttuð í jaröveginn,
að lítt mögulegt er að dragá hana upp.
Upp af ró.inni spretta langar hríslur
og svo þétt, að ' þær eru til að sjá eins
og sveppur eða hringur, og þegar þist-
illinn er fúllvaxinn, verður bingurinn
oft 4 feta að þvermáli og um 4 fet
á hæð. Greinar eru margar á hverri
hríslu, sem verða harðar eins og nálar
um leið ogþistillinn er fullvaxinn, og þá
brotna nálar þessar af leggnum og
opna fræ-hólfið, sem er við rætur hverr-
ar nálar, fyrir áhrifum vinds og veð.
urs. Sjálfar bera og nálarnar fræið
með sér, og gróðursetja það í nýjum
reit. SvO seigar eru ræturnar, að plóg-
ur kvað ekki ganga gegn um þær,
fremur en hann gengur gegn um þófa.
Sama segja er og í illgresinu ofan-
jarðar, svo að sláttuvél vinnur ekki
á tágaklasanum, . en annað tveggja
sleppur yfir binginn eða stendur föst
við hann.
Akuryrkjudeild W ashington-st jórn-
arinnar hefir glímt við þetta illgresi
siðan 1891, að henni var fyrst sagt
frá útbreiðslu þess, en hún hefir enn
ekki fundið ráð til að stemma stigu
fyrir og því síður til að yfirbuga og
uppræta þennan nýja fjanda bændanna.
Það virðist deginum ljósara að þessi
gestur komi til Manitoba þegar minst
varir, því að það eru svo litlar likur
til, að Dakotamenn geti heft hann og
haldið á sama bletti. Vindurinn flyt-
ur fræið, skepnurnar bera það í hófum
og klaufum og mennirnir sjálfir flytja
það á skóm sínum og í klæðunum.
Að svo sé, sést ekki fyrri en nýgræð-
ingurinn skýtur kollinum upp úr jarð-
veginuin meðal vorblómanna.
Komið í mola.
Það eru ekki mörg ár síðan verka-
mannafélagið KniglUs of Labor var meir
en lítið voldug tilvera. Það eru ekki
meir en 6—7 ár liðin síðan um eða
yfir lj miljón manna voru meðlimir
þess félags. Það var í stöðugum upp-
gangi og völd þess voru nærri ótak-
mörkuð. Svo atkvæðamikið var félag-
ið og svo mikið vald í höndum for-
manns þess, Tereme V. Powderly, að
margir af stórmennum landsins álitu
bann og hans flokk sérstakt stórveldi,
er óhjákvæmilegt væri að taka til
greina. Svo mikið var álitið á Powderly
um tima, að í Ajiríl 188fi var hann
kallaður fyrir þirignefnd í Washington
til að gefa henni bendingar áhrærandi
lagabreytingar. A þeim fundi fór einn
þingmaðurinn fram á, að Powderly
gæfi þeim (þingmönnunum) bendingar
um hvcrnig breyta mætti stjórnar-
skránni svo að hún yrði verkalýðnum
iiagkvæmari en hún nú er. Powder-
1}' þakkaði heiðurinn og lofaði góðu
um að koma moð bendinguna þannig
útbúna, að alríkisstjórnin gæti tekið
hana, til greina þrátt fyrir margbreyti-
leg lög hinna sérstöku ríkja.
Bending þessi er ekki komin enn
og Powderly að líkindum kemur aldrei
með hana, því það er hvorttveggja, að
felagið alt er komið í mola—-orðiðað
engu í samanburði við það sem það
var, og Powderly sjálfur burt rekinn
úr félaginu og allir hans vildarmenn
og æðstu embættismenn. Það eru ein
3—4 ár síðan bryddi á óánægju með
stjórn hans. Fjárdráttur með meiru var
borinn á hann og hans vildarmenn,
og öflugar tilraunir gerðar til að hrinda
honum úr stjórn félagsins. Það tókst
ekki, og afleiðingin var að smáfækk-
uðu félagsmennirnir. Deild eftir deild
gekk úr sambandinu, eða uppley stist
fyrir áhugaleysi og innbyröis róstur,
þar til félagið nú er lítið meira en
nafnið tómt. Og nú rétt nýlega hafa
jiessir fáu félagsmcnn samþykt, að
Powderly og hans sérstöku fylgismenn
sé óhæfir félagsmenn, strykað yfir nöfn
þeirra og fyrirboðið félagsmönnum að
viðurkenna þá sem féíagsbræður. Ycrð-
ur það tiltæki eins víst likfararsálmur
félagsflaksins, sem enn er við líði.
Rússnesk réttarbót.
Stjórnarfyrirkomulagið á Rússlandi
er réttvíslega lastað, en það sannar
ekki að réttlátt sé að lasta keisarann
persónulega. Þeir, sem umhverfis
hann standa, hafa miklu meira en hann
að sevja í stjómmálum, og þeir, ef
grandskoðað er ofan í kjölinn, eru orsök
í flestum ódæðisverkunum, að keisaran-
um óafvitandi. Ókunnugir menn, sem
ofbjóða hryðjuverkin og rita um þau,
tileinka þetta, að meira eöa minna
leyti, keisaranum, og mála hann svart-
ari í augum manna en jafnvel kyrkju-
feðurnir máluðu Kölska og hans út-
völdu embættismenn. En þetta er ekki
rétt lýsing af lionum. Hann er hæg-
lyndur maður, góðgjarn og réttsýnn,
að svo miklu leyti, sem hann fær að
nota og sýna þessa hæfileika sína. Að
þetta sé nokkurnveginn rétt lýsing af
manninum, sannar meöal annars það,
að þegar hann sjálfur fær tækifæri til,
lætur liann hegningu fyrir lagabrot
koma niður jafnt á æðstu og lægstu
þegnum sínum. Hann gerir þar eng-
an mannamun, og er það meira en sagt
verður um suma, sem siður er að kalla
frjálslynda og góða menn. En skjald-
borgin, sem umhverfis liann er, er bæði
svo þétt og svo margföld, að hann get-
ur ekki æfinlega séð hvað gerist í ríki
hans eða ráðið við, ef hann sér það.
Þess vegna nýtur hann sín ekki.
Um mörg undanfarin ár hafa æðstu
embættismenn keisarans, hver í sínu
héraði haft einveldi til að umbuna verð-
leik einstaklinga, hvort heldur í hern-
um eða öðrum embættum, með því
að gefa æðra embætti. A sama hátt
hafa þessir héraðs-einvaldar einir liaft
völd til að reka úr þjónustu þá sem
brottrekstur hafa verðskuldað. Þessu
valdi hafa þeir beitt sjálfum sér til
gagns fremur öllu öðru. Þeir hafa
svift menn embættum án tilverknaðar,
og þeir hafa engum umbunað fyrir
dugnað og framtaksemi, nema sá hinn
sami hafi haft efni til að borga þeim
ríflega fjTÍr, með öðrum orðum ; það
kemst enginn til upphefðar eða metorða
eins og nú stendur, nema hann kaupi
hana. Af þessu leiðir, að auðugir menn
en margir ef ekki flestir, að öðru leyti
óhæfir til þess, skipa nú æðstu embætt-
in í hverri deild stjórnariiinar sem er.
En hæfustu mennirnir skipa lægstu em-
bættin, þar sem þeir getaengu umþok-
að.
Þessu fyrirkomulagi iy nú að um-
hverfa á þann hátt, að völdin tilað
veita embætti og reka úr þjónustu,
verða tekin úr höndum hinna mörgu og
fengin í hendur fámennri nefnd, þar
sem keisarinn sjálfur ræður mestu. Á
yfirborðinu er þetta afturför, en í vaun
og veru er það framför. Keisarinn hef-
ir komizt að því, hvernig valdsmenn
hans hafa gert auðuga ónytjunga og
skálka að féþúfu, með því, að selja þeim
vandasöm embætti. Þessu ætlar hann
að afstýra með því, að taka við em-
bættaveitingunni sjálfur og heyra sjálf-
ur allar kærur embættismanna um ó-
verðskuldaðan burtrekstur o. s. frv.
Það er lítil ástæða til að óttast að keis-
arinn láti kaupa sig eða gabba sig til að
gefa ónytjungi eða óþokka meðmæli, og
þar af leiðandi gefst fátækum mönnum
fremur tækifæri til að fá sérstaka hæfi-
leika viðurkenda.
Ekkert Derby plötu-reik-
tóbak er ekta, nema á [iví
standi húfumyndað merki.
Orða-bclgrinn.
[Öllum, sem sómasamlega rita, er
velkomið að "leggja orð í belg;” en nafn-
greina verðr hver höf. sig við ritstj.,
þótt ekki vilji nafngreina sig í blaðinu.
Engin áfellis-ummæli um einstaka menn
verða tekin nema með fullu nafni undir.
Ritstj. afsalar sér allri ábyrgð á skoðun-
umþeim, sem koma frain í þessum bálki].
Meira ef þörf görist.
Kæra þökk til ritstj. IIkk. fyrir rit
gerðina með yfirskriftinni: Nýja Is-
lands-bryggjurnar, 25. þ. m. Hún er
svo sanngjarnlega rituð sem manni get-
ur frekast hugsast, þótt mikið fleira
mætti draga fram í birtuna, sem þó
ekki bráð-liggur á. I þetta skifti hætt-
um vér að senda yður greinarstúf, sem
vér álitum fullkornna þörf að birta í
Hkr., þar þér tólcuð af ómakið, þar
Lögb. gengur svo liatramlega af göflun-
um, að byrja s*rax á því, að sýna fram
á, að það eigi að kaupa Ný-íslendinga
fyrir þá ákveðnu fjárveiting—S10 000—
til bryggju á Gimli. Yér að eins lofum
því að muna eftir þeirri “mútu-grein”.
Yðar einlægir.
Nokkrif Ný-íslendingar.
31. Maí 1894.
Herra ritstjóri.
Ég þarf að svara, konunnar minn-
ar vegna, grein, sem herra Páll Mel-
sted hefir látið prenta í ísafold 9. þ. m.,
en get ekki fcngið svarið birt þar scm
það ætti að birtast, í ísafold, því rit-
stjórinn er það göfugmenni, að hann
tekur ekkert svar frá mér gegn neinu
er í blaðinu birtist, mér eða minum við-
komandi. Sný ég mér því til yðar, í
þeirri von, að þér le.yfið mér að halda
skildijfyrir ódrengilega ofsóttri konu, og
l(ifið þessu bréfi minu að birtast í
blaðivðar.
Hinn áttræði öldungur hefir farið að
þýða úr “Skandinaven” frá Chicagoaf-
gamla grein, hina lang-ómerkilegustu
og í bllu tilliti þýðingarlavsustu grein,
sem nokkurn tíma hefir verið samsett
um ísland. Hún á að vera ræða eftir
“frú Sigríði Magnússen”, en er svo
auðsælega að eins ringlað fát þess, sem
skrifaði, að þar um sannfærist hver,
sem írjáls ráð á á eigin greind, þegar
við fjTsta jfirlestur. Engum lifandi
manni getur þó vist dottið í hug, að
trúa því, sem sagnafræðingurinn Mel-
sted læzt trúa, að “Sigríðr MagDÚssen”
hafi ekki vitað nafn Jóns Sigurðsson-
ar betur en það, að kalla hann “Sven-
son”. Þetta misnefni sýnir, að Sigriðr
átti engan þátt í samsetningu þessarar
greinar, sem og hins vegar, að höfund-
urinn vissi ekkert um það, sem hann
(eða hún) var að rita um, hafði enga
eftirtekt veitt því, og ekki borið sig
saman við ræðuhöfund áður en greinin
var prentuð.
Það er grundvallarregla, sem gildir
í öllu siðuðu mannlifi að sá geti enga á-
bjrgð verka borið, er aldrei vann það.
Þetta er lögmál guðs og manna. Hví
hefir herra Melsted hausaskifti á regl-
unni í þessu tilfelli og eignar ræðuhöf.
(S. M.) allar vitleysurnar en ekki
greinarritaranum? Það er víst rang-
látasta verkið, sem þetta ljúfmenni hef-
ir unnið á æfinni, enda er það ranglátt
að gagni.
Það sem verkinu veldur er þessi
málsgrein f “Skandinaven” : “Á öllu
íslandier ekkitil eineinasta menntunar-
stofnun handa kvennfólki”. Grein þessi
gengur fram af öldungnum, sem von
er, og liann “væntir þess fastlega, að
einhver verði til að minnast frekar á
þetta málefni og árótta það betur” en
hann fái gert.
Jú, ég er einn þeirra.
Um hina tilfærðu málsgrein segir
nú konan mín í Lögbcrgi 20. desember
1893 : “Að eins eitt blað hér Har mér
það, að ég hefði átt að segja, að enginn
kvennaskóli væri á Islandi,nema “þessi
stofnun mín” (eins og H. P. kemst að
orði), svm oar ranglienai", Þetta eiua
blað var þá—Skandinaven !
Þetta er nú bezta áréttið sem. féest.
Konan hefii aldrei talað orðin, semhra
Melsted skorar á menn að leggja hana í
einelti fyrir. Hið sama gildir, náttiíur-
lega, um allar hinar vitleysurnar.
Lögbergs greinina tel óg óefað að
þeir hafi báðir lesið hr. P. M. og ritstj.
ísafoldar; enda hafa ekki islenzk blöð
heldur þagað um hana. En þar við
lóttist hvorki né fríðkar ábyrgðarhluti
þeirra.
Þó nú konan aldrei nema he.fði tal-
að þessi orð, þá hefðu þau þó ekki ver-
ið annað en staðfesting þess, sem lands-
höfðingi sjálfur hafði skriflega vottað
á undan henni um skólamenntun á Is-
landi. Því 16, sept., 185)1 var lesið upp
f jrir rétti í Chicago bréf frá honum í
máli sem af því reis, hvort hr. Stefán
Stephensen, ísler.dingur í Chicago,
frændi landshöfðingja, skyldi verða við
kröfu afa barna Páls Eggerz, að senda
þau til íslands, og komst landshöfðingi
þar þannig að orði, að “engir opinberir
skóiar neru til d Islandi", gætu því börn
þessi ekki fengið þá menntun á íslandi,
sem þau’fengju þar vestra. Þetta seg-
ir nú sjálfur landshöfðinginn; liitta orð
hans kvennaskólana eigi síður en aðra.
“Væntir” nú ekki herra Páll Melsted
“þess fastlega, að einhver verði til að
minnast frekar á þetta málefni og á-
rótta það betur en ég fæ gert ”?
Cambridge, 22. Mai, 1894.
Eihíicu Magnússon.
Fögrir kenning'.
Astæðan fj'rir því, að ég fer ekki
í kyrkju, er hjátrú og jafnvel hinar
óttalegu kenningar, scm prestar
og biblíuþýðendur fj’lla hugi barnanna
með, á meðan þau eru of ung til að
geta skilið kenningar þeirra fyrir ann-
að en sannleika. Jafnvel hinn nafn-
togaði kennimaður Dr. Spurgeon í
Lundúnurn, fyrir nokkrum árum síðan
lét sór ujn munn fara, í einni ræðu,
er iiann hélt í áheyrn skynberandi
manna, eftirfylgjandi orð :
“Kvalir helvítis eru ómælilega
meiri en þær mundu verða í glóandi
ofni, tígulsteins eða i brensluofni. Þegar
dauðinn kemur, mun sál þín verða
kvalin alein, en það verður nóg hel-
víti fyrir þig. En á degi dómsins sam-
einast líkami þinn aftur sálinni, og þá
hefir þú tvöfalt helviti ; líkami og sál
mun verða sameinað og hvert um sig
hafa fullan mæli kvala ; sála þín sveit-
ist blóði, og likami þinm frá hvirfli til
ilja yffrdreginn kvöium. Samvizka þín
skynsemi og minni, alt er kvahð; en
jafnvel meira skal höfuð þitt verða
pínt með þungum stunum og ópi kval-
iuna anda: Hjarta þitt berst eins og
í hitasótt; lífæð þín ryðst áfram ?neð
ógurlegum hraða; limir þínir rifna í
eldinum líkt og píslarvottanna, en
brenna þó ekki. Þér er stej’pt niður
í ker með sjóðandi olíu, en þú kemur
aftur út lifandi ; allar þínar æðar eru
vegir fyrir fætur píslanna, til. að ferð-
ast um. Sérhver taug er eins og sting-
andi broddur, og um leið strengur,
sem djöfullinn leikur á lag hinna óút-
málanlegu helvítis kvoinstafa. Sálu
þina verkjar um alla eilífð og líkami
þinn titrar ótt og. títt í samræmi við
sáhna.”
Kristinn maður með heillri skyn-
semi getur ekki trúað öðrum eins kenn-
ingurn.
Bók, sem nýlega hefir verið gefin
út á Englandi og heitir “Sjón Helvít- i
is” (A sight of Hell), og sterklega er
mælt með að sé notuð fyrir kenslu- j
bók á sunriudagaskólum, inniheldur fáa !
parta, sein eru umtalsverðir. þar eð f
hún er sérstaklega ætluð börnum. Á
einum stað í henni liljóðar þannig:
“Litla barn, ef þú fer til helvítis,
verður einn djöfull settur við hlið þér
til að slá þig. Hann heldur áfrain að
slá þig um alla eihfð og stanzar aldrei.
Ilið fyrsta högg mun gera hkama
þinn eins veikann og hkama Jobs,
þakinn sáruní og kýlum frá hvirfli til
ilja. Annað höggið inun gera hkama
þinn tvisvar sinnum eins sáran, hið
þriðja þrisvar sinnum eins sáran, og
fjórða höggið fjóruui sinnum ,eins
hörmulegan. Hversu mun þá líkami
þinn verða, eftir að djöfullinn hefir
slegið þig á hverju augnabliki um
miljónir ára ?”
Á öðrum stað er lýsing á hinum
eldlega búningi og er hún grundvöll
uð á þessum orðum, sem standa lijá
•Tob í 28» kapítula : “Eru skykkjur
þínar ekki heitar ? Líttu inn i þetta
herbergi. Þú sér að það er mjög lít-
ið, en í miðju þess er stúlka 18 ára
gömuL Hversu ógurlegt er að sjá
klæðnað liennar ! Hann er ger af eldi;
honum er þrengt yfir höfuð henni ;
hann brönnir sig inn í höfuð hennar
og skinn; hann svíður höfuðkúpu henn-
ar og gerir liana svarta. Hinn rauði
logi þrengir sér inn í lieila hennar og
bræðir hann.
Hjá Esekíel stendur í 22. kapítxda:
“Eg vil brenna þig í logn minnar reiði.
þú skalt verða bræddur í eldinum.
Þér þykir að líkindum ilt aö þola höf-
uðpínu. Hugsaðu þig um, hvaða höf-
uðpinu þessi stúlka má líða ; en sjáðu
enn fremur : hún er sveipuð eldibrönd-
um, því kjóll hennar er eldur. Ef
hún væri á jörðunni,1 mundi hún verða
,að gjalli á einu augnabliki, en bún eii
jí helvíti, þar sem eldur brennir alla
hluti en eyðir engu- Þarna stendtir
hún brend og sviðin og mun standa
um alla eilífð þannig. Hún telwr á
fingrum sér hin hægt líðandí augna-
blik, því henni finst hvert augnablik
vera huiulruð ára. og við hvert augna-
blik man hún eftir að hún Mýtur að
telja þannig til eilífðar.”
Og þetta er fyrir börn I Þessi
orð eru líka vel taltandli til gieina,
að því leyti, sem þau ekki eru töíuð
af æðisgegnum mönnum og ekki stafa
frá “deKríum tremens.”
Á enn einum stað, höfum við lýs-
ing af hinum “sjóðandi dreug,” Hlust-
aðu að eins ! Það er eitthvert hljóð,
líkt og í sjóöandi kattíi. Er það virki-
lega ketiíl, sein sýður? Nei. Hvað
er það þá ? Það er blóðið, sem sýður
; hinum sviðnu æðum þessa drengs.
Heilinn hullar og siður í höfðinu á
honum; mergurinn sýður í beinum
lians.
Að endángu færi ég til stað úr
bók þessarj', er talar um ungharnið í
hinum rauðglóandi ofni. Þetta eru orð
höfundarins: “Heyrið, iiversu þnð
kveinar ! Sjáið, hvernig það engist
sundur og sainan í eldinum. Það bor
höfðinu við ofninn. Það sparkar me'
litlu fótunum í ofngólfið. Þú getur
séð á andliti hins litla barns, það sem
þú sér á andliti allra í lielvíti — ör-
væntingu, ótta og skelfingu. Það er
óskiljanlegt, hvernig nokkur maður
sem krefst þess, að hann sé viðurkennd
ur með heilbrigðri slcynsemi, skuli játa
þetta sanniridi og stjðja að því, að
börnum sé kcnndar þvíllkar trúar-
setningar. En vér vitum að þeir gjöra
það.
Tekið eftir Sunday Herald, Chicago.
Um leið og hið beiðraða blað IIkr.
birtir þakkarávarp hr. Guðvarðar
Hannessenar finst mér eiga vel við, að
gcfa le-endum hennar dálítið ágrip af
æfisögu þessara ráðvöndu hjóna síðan
þau komu til Ameríku 1884, því þau
hafa einlægt verið í Nýja íslandi og
tóku á fyrsta ári jörð þá, sem þau búa
á. Þetta ágrip getur sannfært alia
rétthugsandi og sannorða menn um, að
það er ekki svo ilt að lifa í Nýja ísLandi
eins og ísafoldar-bréfin hans hr. Gunn-
laugs Helgasonar segja frá. Iljón þessi
voru ;>0 ára þegar þau komu og fylgdi
þeim sonur þeirra 14 ára. I>að' má
nærri geta þegar komið er é þann aldur
að þá fari að hnigna fjör og kraftur úr
því, og sonur þeirra fór frá þeim þegar
hann var Vinnufær, svo að allar þær
jarðabætur, sem eru á Vatnsnesi, má
þakka þeim hjónum. Þau komu með
eldstó og eina kú í nýlenduna, og á
fj’rsta ári bj gði Guðvarður “fc>énta” og
ruddi talsvert kringum hann, því alt í
knng var þéttur skógur, eins og sjá má
merki enn i dag. Á fjrsta ári fékk
hann ekki hej’skap á landinu nægan
handa þessari einu kii. Á hverju ári
hefir hann lagt miklá alúð við að
hreinsa og girða tún og engja-bletti, svo
að næstl. sumar fékk hann 13 kýrfóður
af töðu og útheyi. Hann hefir á liverju
ári sáð til ýmislegra ávaxta og hefir
fiest hepnast vell, enda eru hjón þessi
nijög lagin á að rækta alt vanalegt sáð-
verk, sem her er sáð til í nýfendunni;
vanafega hafa þau sáð 5 bush. af kart-
öflum og fengið árlfega upj>skeru af þeim
frá 70—100 bush. í fyrrasumar sáði
hann 31 pund af Mais, en fékk 500 pd.
upp; af baunum sáði haun 4 pd. og
fékk 30 pd. Hveiti og byggi sáir hann
tíl heimilisþarfa og artast .vel og margt
fl. 20 pd. af láuk sáði hann ogfékk liátt
a þriðja hundrað punda uppskeru.
6 nautgripnm hefir hann • slátrað
þennan árstíma og selt 3 kýr og 3 uxa ;
hefir jafnaöarverð á þessum gripum
verið §30. EjTÍr 3 árum keypti hann
2 kindur; nú á liann 10, fyrir utan vor-
lömb;og einum sauð tvævetrum slatraði
hann í fyrrahaust og var fallið af lion-
um 79 pund ; nu á hann 4 kýr og 9
geldgripi. Yfir öll árin hefir hann tek-
ið 6 sekki af hveiti árlega, og eitt árið
seldi hann smjör fyrir $10. Heldur
bréfritari ísafoldar að Guðvarður hafi
lengi lifað á þurrum kartöflum og flski?
E'g skal með framtíð koma með nokkur
dæmi og taka þau af bændum rétt1
kring um mig til að sanna, að það
munu fáir lifa því lífi, sem bréfln lýsa
og ekki í þeim mykju-bræddu kofum
helllur, þvi hér eru viðast hvar komin
hjálkahús vel kölkuð. En þó að hitt
gæti att sér stað á. fyrstu árum alls-
lausra inntlytjenda, var PKRt ttltöku-
mál'eða hlaðamál fyrir aðra en þá, sem
viidu láta geta sin að illu, lieldur en
engu, og þegar farið er að lýsa ein-
hixerju, fer bezt á að sína báöar hliðar,
Því'þ.á leiðist sannleikurinn í Ijós.
Árnes P. O., 22. Maí 1894.
Gunnau Gíslason.
Gyðingurtnn gangandi.
Solo:
Gj’ðingurinn gangandi
(geri ég um það brag)
hann má aldrei hvilast
hvorki nótt né dag.
Kúr:
Hneigja höfuð á beð honum leyft er ei;
að eins.hallast upp við staui—það auma
grey!
Hann ber Kristsskcgg hangandi
hrafnsvart, naflasítt;
er við staur liann stemlur,
strýkur hann það títt.
Hneigja höfuð á b ð honum leyft er ei;.
að eins hallast upp við staur—það auma
grey !
Aldrei hefir fengið fest
forni Júðinn sá
nú í nítján aldnr
nokkurn svefn á brá.
Hneigja höfuð á beð honum feyft er ei;
að eins hallast upp við staur—þaðauuia
grey !
Og þessa rýru fíla-fró *
fær hann þetta grey
að eins með þv'í móti
að munnurinn þagni ei.
Hneigja höfuð á beð honum leyft er ei;
að eins hatta.st upp við staur—Það auma
grey!
Hlaupi í baklás kjafta-kvörn,
kreikai' haim dómsins stig;
að e ns mcðaii hún malar
má hann hvila sig
Hneigja höfuð á beð houuni leyft er ei !
að eins hnllast upp við staur—þaö auma
grey !
Sjáirðu’ upp við strætis-staur
standa einhvern dag
kappann knmi>a-siðann,
þá kveddu’ honum þennan brag.
Ilrieigja höfuð á lieð honum lej'ft er ei;
að eins hallnst upp uð staur—það auma
e ' gl'ey!
ÓkioKU'U.
*) Það er mæli, að fíllinn hnllist upp
við eik og sofi, en geti ekki lagzt.