Heimskringla - 01.09.1894, Blaðsíða 1
NR. 35.
VIII. ÁR. WINNIPEG, MAN., 1. SEPTEMBER 1894.
FRETTIR.
DAGrBÓK.
LAUGARDAG, 25. ÁGÚST.
Christopher Finlay Fraser, fyrver-
andi ráðherra opinberra starfa 1 Mo-
wats-ráðaneytinu f Ontario, lézt aðfara-
nótt 24. þ. m. að heimili sínu í Toronto,
55 ára gamall. Á fimtudagskvöldið var
hann lasinn, eins og um langan undan-
farinn tíma, cn eiginlega ekki veikur,
en á föstudagsmorguninn var hann
kaldur og stirður f rúminu.—í sfðastl.
Maí sagði hann af sér embættinu sökum
heilsuleysis.
Þingi Breta var slitið í dag.
Merkur samningur er nýgerður milli
margra skipasmíðisfélaga og vinnu-
manna þeirra á Englandi, er á að vera í
gildi um 5 næstu ár, en sem úr því má
nema úr gildi með 6 mánaða fyrirvara.
I samningunum er ákveðið að ni^ver-
andi launum skuli ekki breyta fyr en 6
mánuðir eru liðnir frá því samningur-
inn er samþykktur, og þá má breytíng-
in ekki nema meir en 5%. Ef breytingu
á að gera þarf sá, er hana heimtar, að
gefa hinum málspartinum 80 daga fyr-
irvara, og áður en sá fyrirvari er aug-
lýstur þarf sá er breytinguna heimtar
að biðja hinn málspartinn !að mæta á
fundi til að ræða um breytinguna. Skal
sá fundur hafður 14 dögum síðar en
æskt er eitir fundinum. Ef launabreyt
ing á sér stað, skal hún ganga f gildi að
liðnum 30 dögunum frá því hún var
auglýst. Yfirmenn i félögum beggja
málsaðila hafa vald til að leggja þrætu-
mál í gerð. Smá-innbyrðisþrætum skal
visað til sömu yfirmannanna, er slétta
skulu yfir misfellurnar, ef kostur er.
Engar slíkar þrætur mega orsaka vinnu
stöðvun, heldur skal verkið halda áfram
en ef í það harðasta fer, skal leggja þau
þrætumál f gerð, sem skyld er að dæma
f þeim innan 14 daga, en í millitiðinni
halda ailir áfram að vinna. Yfirmenn
þeir, er fyrst skulu leita til sætta í smá-
þrætum, eru þrir úr fiokki verkgefenda
og 8 úr fiokki verkþiggjanda. Undir
þennan samning hafa skrifað skipasmið
isfélög, er til samnns eiga 850 miliíónir
og þeirra um 25,000 verkmenn
MÁNUDAG, 27. ÁGÚST.
40 menn biðu bana f kolanámum f
grend við Seattle, Wash. (um 80 mílur
suðaustur frá bænum, á föstudaginn
var. Hafði kviknað í kolastufi. Sams-
konar námuslys varð 2 mönnum að
bana og skaðaði 11 í Pennsylvania á
laugardaginn. Samdægurs misstu 4
menn lífið f málmnámum í Colorado.
í vikunni er leið fór gufnskipið New
Yokk yfir Atlantshaf frá Southamton
til New York á 6 dögum 8 kl.stundum
og 88 mfnútum. Er það hröðust ferð,
sem enn hefir verið farin yfir hafið.
Voðalegur fellibylur æddi í gær yfir
Azovska-hafið f Rússlandi og strendur
þess. Er sagt að 1000 manns að minsta
kosti hafi týnt lífi.
í gær var kveikt f borðviðarhlöðum
e*gn félagsins J. R. Booth í Ottawa,
Canada, og brend 8 millíónir fet af borð-
við. Tjónið er metið $200 000. Þetta
er sama félagið, er í sumar missti sög-
unarmylnu sína f sama stað. Eftir því
er næst verður komist var einnig kveikt
í henni vísvitandi og er nú greinilegt að
félagið á einhverja óvini, sem ætla sér
að eyðileggja það.
Þjóðverjar og Frakkar eru sem
6tendur mestu mátar, er stafar af sam-
vinnu þeirra og tilraunum að yfirbuga
anarkista.
VKlTT
hæstu VERÐLAUN A HbimSSÝNINQUNNI
BAilNfi
POIÍBÍR
IÐ BEZT TILBÚNA.
Oblönduð vfnberja Cream of Tartar
Powder. Ekkert áiún, ammonia eða
önnur óholl efni.
40 ára reynzlu.
Hveitiuppskeru áætlun heimsins er
sem f j'lgir (tölurnar sýna milj. bush.) :
ár 1894 ár 1893
Bretlandseyjar . 58 . .... 50J
Frakkland 820 .. .... 280
Þýzkaland, Belgíaog
Holland 128 . .... 141
Austurríki og
Ungverjaland 181 . .... 204
Ítalía 120 .. .... 180
Rúmenía og
Búlgaría 80 .. .... 90
Rússaveldi 280 .. ... 820
Indland 258 ..
Bandaríkin 464 ..
Canada 53 .. .... 50
Alls 1.945 1992J
Þessa árs áætlun er því 47 millfón-
um bush. minni en uppskeran reyndist
f fyrra. Sem stendur liggja óseld síðan
f fyrra eitthvað 16-17 milliónir bushels.
Af þessu,ef það annars er nokkuð nærri
lagi, má því ráða, að heldur ætti hveiti-
verðið að þokast upp en ofan.
ÞRIÐJUDAG. 28. ÁGÚST.
Sagt er að A. W. Ross hafi sagt af
sér þingmennsku-embættinu, en þó
ekki sent uppsögnina til þingforseta,
og er hún því ómerk, ef hún annars hef-
ir verið send. Hafi hann sent hana
mun mega taka það sem mótmæla yfir-
lýsing, af því Daly sagði um daginn, að
engar kosningar mundu fara fram í Lis-
gar í haust, en sem Ross eiuum mun
um að kenna. Uppsagnarsagan er þess
vegna ekki sennileg. í þessu sambandi
má geta þess, að eystra fljúga þær
fregnir fram og aftur, að Dominion-
þingið verði kallað saman í Nóvember f
haust, það svo uppleyst og efnt til al-
mennra kosninga seinni part næsta
vetrar. En vitanlega er þetta nokkuð,
sem enginn getur staðhæft.
Japanitar eru að sögn ekki ánægð-
ir með að berjast gegn Kínverjum á
Kóreu-skaganum, en vilja færa leik-
inn þaðan inn f Kínaveldi. Er talað
um að sameina sem mestan herafla
Japaníta, senda hann inn í Gulaflóa
og hefja svo hergönguna til stjórnar-
seturs Kínrerja, Peking, og setjast um
hana.
Nýr verzlunarsamningur milli Breta
og Japaníta öðlaðist gildi í dag, og í
dag tók nýr sendiherra Japaníta við
embætti sínu í Washington.
Stambuloff, fjTverandi ráðaneytis-
formaður í Bulgaríu, segir í þýzka
blaðinu “Frankfurter Zeitung” að
stjórn Rússa hafi boðið sér £ milj.
rúbla til að reka Ferdínand prinz frá
rfki.
Congressi Bandaríkja var slitið kl.
2 e. h. í dag, viðhafnar og seremoníu-
laust. I efrideild voru að eins 20 þing-
menn viðstaddir og fögnuðu lausninni.
1 neðrideiid var einn þingritarinn f óða
önn að lesa upp frumvarp til laga
þegar þingforseti Crisp stóð upp og
sagði þingstörfum lokið. Þingið hefir
setið rétta 9 mánuði, frá fyrsta mánu-
degi í desember 1893.
Skógareldar hafa eyðilagt um 2000
cord af eldivið fram með C. P. R.
brautinni 10—20 mílur fyrir austan
Selkirk, og mörg hundruð cords hafa
einnig brunnið norður við Nettley-
læki 10—12 mílur fyrir norðvestan
Selkirk.
MIÐVIKUDAG 29. ÁGÚST.
C. P. R. félagið auglýsir að fram-
vegis felli það um fullan þriðjung
flutningsverð á borövið frá Rat Port-
age til Winnipeg. Hingað til hefir
gjaldið verið 15J cent fyrir hver 100
pund, en framvegis verður það 10 cent.
Mun þessi niðurfærsla gerð í þeim til-
gangi að síður sé ástæða að fá bygða
Suðausturbrautina, en það er hætt við
að þetta ráð þeirra Greenways og C.
P. R. reynist litilsvirði f þvf efni.
Jafnframt færir og C. P. R. fé-
lagið bændum þær góðu fréttir, að
kornhlöðugjald þeirra í Fort William
verði lækkað um helming. Önnur
kornhlöðufélög, er kornhlöður eiga út
um fylkið, hafa svo tekið sér þettað
til fyrirmyndar og hafa lækkað gjald-
ið fyrir móttöku og 20 daga geymslu,
úr 2 í 1J cent busli. Þessi ýmislega
niðurfærsla nemur í heild sinni nálægt
2 cents á hvert bush.
Hraðfrétt til Parísar frá vestur-
strönd Afríku segir, að Arabar hafi
nýlega strádrepið setulið Frakka í þorp-
inu Timbucto, eftir 8 daga orustu.
Friðarþing var sett í Antwerp í
Belgíu i dag og mættu þar 200 fundar-
menn frá meginlandi Evrópu, Englandi
og Bandankjum. Skorað var á stór-
veldin að banna Kínv. og Japanftum að
berjast, en að Frakkar, Bretar og
Bandaríkjamenn skyldu kjörnir til að
rannsaka þrætumál þeirra og dæma í
því.
Tolilögin nýju í Bandaríkjunum
öðluðust gildi á miðnætti aðfaranótt
28. þ. m., því eins og til var getið,
staðfesti Cleveland forseti þau ekki og
skifti sér ekkert af þeim.' Um morg-
uninn kl. 8 voru lögin send utanrík-
isstjóranum og fylgdi miði, er kunn-
gerði honum, að þau væru í gildi
gengin án forseta staðfestingar.
Undir eins, og enda áður en lög-
in öðluðust gildi, voru þau að sögn
farin að verka út í frá, og var verk-
un þeirra öll í þá átt að lifga við-
Skiftin og auka. Canadamenn eystra,
sérstaklega borðviðarsalar, hrósa happi
yfir þessum lögum. Vonast eftir, að
áður mjög langt líði. selji þeir á ári
hverju $20 milj. virði af borðvið til
Bandaríkja.
í gær var Pullman-keisarinn.George
M. Pullman, 8 kl.stundir í vitnastóln-
um fyrir rannsóknarréttinum. Sýndi
hann þar rækilega sína hlið á málinu
en óþægar voru sumar spurningarnar,
er fram voru settar fyrir hann.
“Nú, Mr. Pullman,” spurði Wort-
hington dómari, "ef við tökum alt
árið til álita, hefir þá félagið tapað
eða grætt ?"
“Það hefir grætt”, svaraði Pullman
“Hefir félagið goldið hluthöfum
venjulega vöxtu?”
"Já, 8%”.
"Það er þá sem næst 82,800,000, er
félagið hefir þannig goldið”, var skýr-
ingargrein, er Wortliington bætti við.
Siðar spurði sami maður : “Hefir fé-
lagið nokkurn tíma á velgengnisárum
sínum hækkaðkaup vinnumannanna ó-
beðið ?” Ekki gat Pullman munað að
svo hefði verið.
“Voru yðar laun lækkuð, Mr. Pull-
man ?” spurði Kernan. Pullman kvað
nei við og sagði, að yfirmenn allir og
verkstjórar héldu óskertum launum, af
þvf slika menn væri ekki svo auðvelt uö
fá.—Sama daginn bar klerkur einn frá
New York það fyrir réttinum, að neyð-
in í Pullman væri hvergi nærri eins
mikil og af væri látið.
FIMTUDAG, 80. ÁGÚST.
Hraðfregn frá Shanghai í Kínr seg-
ir að Kínar hafi unnið einn sigurinn
eftir annan f orustum gegn Japanít-
um hinn 13., 14., 16. og 18. þ. m.
Sama fregn segir, að Kóreumenn séu
unnvörpum að ganga á hönd Kín-
verjum. Allar fregnir að austan eru
svo óáreiðanlegar, að engu er hægt
að trúa.
í orustu við frumbygpjana á eyj-
unni Lombok. suðaustur af Jafa, féllu
um 500 Hollenskir hermenn.
Skógareldar eru sagðir venju frem-
ur miklír á Ivyrrahafsströndinni, bæði
í British Columbia og Washington.
Rússakeisari er sagður heilsulaus.
Þjáist af nýrnaveiki.
Þorpið Elliston f Montana gjör-
eyddist af eldi f gær. Eignatjón 8100.000.
FÖSTUDAG 81. ÁGÚST.
Rannsóknarréttinum í vinnustrfðs-
málinu í Chicago var slitið í gær. eftir
að hafa setið í 14 daga og yfirhevrt 114
vitni. Nefndin kemur saman aftur f
Washington 26. Sept. og býðst þá til að
yfirvega ritgerðir, er sendar kunni aö
verða um það, hvernig bezt sé að ráða
fram úr vinnuþrætu-málum.
Greifinn af Paris liggur þungt hald
inn og búizt við andláti hans á hverri
stundu.
Bandarikjaherskip eru að hópa sig
saman við strendur Kfna.
Spánarstjóm hefir rofið verzlunar-
samning sinn við Bandarikin, að þvf er
snertir aðflutning vissra vörutegunda
til Cuba og Costa Rica.
Frá löndum.
GARÐAR, 21. ÁGÚST 1894.
Að kvöldi hins 9. þ. m. lézt Björn
Björnsson frá Milton á heimili Sigmund-
ar Jónssonar og Sofíu systur sinnar í
Garðarbygð, þar sem hann hafði dval-
ið vegna veikinda sinna mikin part vert
arins sem leið og það sem af var sumr-
inu. Jarðarförin fór fram á sunnudag-
inn 12. s. m. að fjölda manns viðstödd-
um.
Björn heitinn var nálægt 38 ára að
aldri. Hann var fæddur í Vopnafirði,
en ólzt upp á Hallormsstað hjá Sigurði
prófasti Gunnarssyni; gekk 2—8 ár á
Möðruvaliaskóla, og flutti til Ameríku
1881. í Garðar-bygð dvaldi hann frá
því 1883 til 1888, þá flutti hann til Mil-
ton og var þar verzlunarþjónn meiri
part tímans, qn rak þar að auki fast-
eignaverzlun fjTÍr eigin reikning og
heppnaðist það vel.—Hann hafði mikla
hæfileika og góða menntun, var mjög
stiltur og gætinn og frjálslyndur í skoð-
unum og drengur hinn bezti, og kom
hvervetna fram til góðs. Hans er þvi
mjög saknað af öllum, sem til hans
þekktu.
Hann kvæntist aldrei, en skilur eft-
ir tvær systur lifandi, Sofiu, sem fyr
var getið, og Guðrúnu Björnsdóttir á
Ytra-Núpi í Vopnafirði.
H.
GEYSIR, MAN., 20. ÁGÚST.
Hinn 23. Júlí sfðastl. lézt að heim-
ili sfnu í Nýja Islandi Jóhannes Pálsson
frá Krossi í Haukadal í Dalasýslu. Fað-
ir hans var Páll Bjarnason, sem lengi
bjó á Gestsstöðum í Norðurárdal i
Mýrasýslu. Jóhannes sál. var fæddur
24. Júní 1819; fór á tvitugsaldri til
Rej-kjavíkur og bjó þar f 40 ár ; fór til
Austfjarða 1878, og til Ameríku árið
1883 og dvaldi í Nýjaíslandi til dauðá-
dags. Kona hans var Helga Pálsdóttir;
börn þeirra eru : Páll bóndi að Græna-
nesi í Geysir-bygð í Nýja íslandi, og
Guðbjörg kona Boga jarðyrkjumanns,
sem eittsinn var í Vogi á Mýrum.
Jóhannes sál. var smiður góður,
þrekmáður og kjarkmikill. Hann var
framúrskarandi hjálpsamur og góðvilj-
aður, en það sem mest einkenndi hann,
var dæmafátt hreinlyndi og stöðug-
lyndi.
Margir sakna mjög hins góða, hjálp
sama manns, og minning hans mun
lengi gejrmast í hjörtum þeirra, sem
kj-nntust honum.
Fréttaritari Hkr.
Islands-fréttir.
Eftir ÍSAFCLD.
ALÞINGI 1894.
Aukaþing var sett í dag af lands-
höfðingja M. Stephensen. Þingmenn
allir viðstaddir nema Klemens sýslu-
maður Jónsson, 1. þingmaður Eyfirð-
inga; var settur amtmaður og fékk ekki
fararlej'fi.—Forseti í sameinuðu þingi
var kjörinn Benidikt Sveinsson. Efri
deildar forseti varð Árni landfógeti
Thorsteinson. Forseti i neðri deild
Þórarinn Böðvarson. Þingritari í efri
deild J. A. Hjaltalín og Þorl. Jónsson,
f neðri deild Einar Jónsson og Guðl.
Guðmundsson.
Til þess að eiga sæti i efri deild þetta
kjörtímabil, 6 ár, voru kosnir :
Guttormur Vigfússon,
Jón Jakobsson,
Jón Jónsson þm. N, m.,
Sigurður Jensáon,
Sigurður Stefánsson,
Þorleifur Jónsson.
Skritatofa alþingis. Fyrir henni
ræður dr. phil. Jón Þorkelsson frá
Kaupmannahöfn,
Stjórjiarskrármdlið. Af milli 10 og
20 lagafrumvarpa, er þegar eru hlaupin
af stokkunum á þessu þingi, ber vitan-
lega fj'rst að nefna stjórnarskrárfrum-
varpið, það er samþj'kkt var á þinginu
í fyrra, eins og lög gera ráð fjrir, og er
flutningsmaður þess Benidikt Sveinsson
Ekki er það komið á dagskrá enn.
Botnvörpvveiðar. Guðl. Guðmunds-
son flytur nýtt frumvarp um bann
gegn botnvörpuveiðum, er komi f stað
lnganna frá 1889, sem hafa að eins inni
að halda (lágt) sektarákvæði, en heimila
eigi að gera veiðarfærin upptæk m. m.
Frumvarp þetta bannar fiskiveiðar með
botnvörpum í landhelgi við ísland og
leggur við 200—10,000 kr. sektir i lands-
sjóð, *‘og skulu hin ólöglegu veiðarfæri
upptæk og andvirði þeirra renna i lands
sjóð. Leggja má lögtak á skip og afla
og selja, að undangengnu fjárnámi, til
lúkningar sektum og kostnaði.
Njjir verzlunarstaðir. Þingmaður
Borgfirðinga flytur 2 frumvörp um lög-
gilding nýrra verzlunarstaða : að Hrafn
eyri við Hvalfjörð og að Seleyri viö
Borgarfjörð. Þingmaður Snæfeiiinga
vill liafa löggiltan verzlunarstað að
Stakkhamri.
Stjórnarskrármálið. Það er nú kom-
ið í gegn um 2 umræður í neðri deild,
báðar i einu hljóði (ncma einstakar
greinar frumvarpsins við 2. umr,).
Flutningsmaður, Ben. Sveinsson, flutti
ræðu fjrrir þvi við 1. umr.; Tryggvi
Gunnnarsson andmælti honum lftils
háttar. Aðrir töluðu eigi.
Siglinga- og járnbrautafélag. Þá eru
þeir Jens Pálsson og Jón Þórarinsson
flutningsmenn að allmiklu frumvarpi
um að veita hlutafélagi (ensku) einka-
leyfi til að leggja járnbraut frá Reykja-
vfk austur f Rangárvallasýslu, og aðra
frá Reykjavik eða Akranesi norður í
land alt til Eyjafjarðar, sem og lengri
og styttri greinar út frá þessum tveim-
ur aðalbrautum innan sýslna þeirra, er
þær liggja um. Félagið byrjar á þvi,
að leggja járnbraut 50 mílur enskar
austur frá Reykjavfk og lætur eimlestir
ganga eftir brautinni 6 sinnum í viku f
minnsta lagi frá 15. Apríl til 15. Nóvem
ber ár hvert, en aðra tfma eins oft og
við verður komið sökum Snjóa. Fjrir
það áskilur félagið sér 50,000 kr. styrk
árlega úr landssjóði i 30 ár. Jafnframt
því tekur félagið að sér fjrir annan 50-
000 kr. stjrk á ári i 80 ár gufuskipsferð
ir bæði milli Englands og ísiands (Faxa
flóa) og umhverfis landið. Miliiiands-
skipið á að vera 800 smálestir að stærð
og fara 2 ferðir í mánuði f minnsta lagi
á sumrum, en 1 á mánuði á vetrum.
Strandskipið á að vera sífelt á ferð um-
hverfis landið frá 15, Febrúar til 15.
Nóvember ár hvert.
Höfuðstóll félagsins sé 6 milliónir
(6,000,000) krónur, en má hækka upp í
10 miljíónir. Hlutirnir séu 100 krónur
hver.
Félagið hefir varnarþing í Reykja-
vík.
Eftir þriggja stunda umræður var
sett 7 manna nefnd í málið : Jens
Pálsson, Valtýr Guðmundsson, Tryggvi
Gunnarsson, Jón Jensson, Skúli Thor-
oddsen, Jón Jónsson (þm. Eyf.) og Sig.
Gunnarsson. Þeir landshöfðingi og
Tryggvi Gunnarsson töldu frumvarpið
allviðsjált að ýmsu leyti og vildu sízt
láta hrapa að þvf að samþykkja jafn-
stórvægilegt nýmæli á þessu þingi.
Brunabótasjóður. Frumvarpið um
stofnun inniends brunabótasjóðs, er
dagaði uppi í fyrra í efri deild, flytja
þeir nú Ólafur Briem, Skúli Thóroddsen
og Jón frá Múla, eins orðað og neðri
deild gekk frá þvf.
Stafsetning m. m. Valtýr Guðmunds
son ber upp þingsályktunartiílögu um
að skora á stjórnina að hlutast til um,
að skipuð sé nefnd manna til að gera
tillögur um, hverri réttritun skuli
fylgja við kennslu í islenzkri tungu.
að öllum kennslustofnunum oe kenn-
urum, sem njóta stjrks af aimanna-
fé, sé gert að skyldu að kenna þá
réttritun eina, er nefndin hefir álitið
heppilegasta og stjórnin síðan sam-
þykkt, að samdar séu ýtarlegar rit-
reglur eða orðabók með hinni fjrrir-
skipuðu réttritun til leiðbeiningar fyrir
Borgarlegt hjónaband. Frumv. um
það er bera þeir fram í efri deild, Jón
Jakobsson, Jón Jónsson (N. M.) og
Guttormur Vigfússon, um að þjóð-
kyrkjutrúarmenn þurfi ekki að láta
presta gefa sig í hjónaband, heldur
megi veraldlegir valdsmenn gera það.
Kosningarlög til alþingis. Sem nauð-
synlegan dilk með stjórnarskránni bera
þeir upp nýtt kosningarlagafrumvarp
Jón Jónsson (N. M.) og Þorleifur Jóns-
son. Er það j'firleitt samliljóða sam-
kynja frumvarpi frá aukaþinginu 1886
nema um kosningar til efri deildar.
Er nú stungið upp á, að þeir séu kosn-
ir f hverjum landsfjórðungí sem kjör-
dæmi, af sýslunefndum og bæjarstjórn-
um ; kosningar skulu frara fara f Júní-
mán. til beggja deilda.
Útflutningslög. Þeir Guðl. Guðmson
og Einar Jónsson flytja frumvarp um
viðauka við útflutningslögin frá 1876.:
“Engir aðrir e» þeir, sem eru löggilt-
ir útflutningastjórar og umboðsmenn
þeirra, mega gera samninga við útfara,
hvort heldur er munnlega eða skrif-
lega, um útflutninga í aðrar heimsálfur,
eða á nokkurn annan hátt starfa hér
á landi að slikum útflutningi. Enginn
má með ósönnum fortölum tæla eða
leitast við aö tæla menn til útflutn-
inga. Brot gegn ákvæðum þessum
varða sektum 100—4000 kr. eða fang-
elsi. Afnumin undanþága póstgufu-
skipanna frá eftirliti lögreglustjórnar-
innar. Síðari hluti frumvarpsins mið-
ar helzt til að afstýra stroki til ann-
ara heimsálfna.
Nýr verzlunarstaður. Bæta vill Gutt-
ormur Vigfússon Kj-rkjubólshöfn í
Stöðvarfirði í tölu löggiltra verzlun-
arstaða á landinu.
Búseti'. fastakaupmanna, Benedikt
Sveinsson ber upp frumv. um það mál,
samhljóða að mestu þvi, sem Sigurður
Stefánsson var með í fjTra, en felt var
þá við 2. umr. f efri deild. Þó er það
hert í viðlögunum, að sektir (í lands-
sjóð) séu 200—5000 kr. og ólögleg
verzlunarhús, skip, verzlunaráhöld og
vörur upptœkt gert og andvirðið renni
í landssjóð.
Ráðgjafa-dbyrgð. Lagafrumvarp um
það efni er einn stjórnarskrárdilkur-
inn, þ. e. á að ganga í gildi þegar
stjórnarskráin er staðfest. Flutnings-
maður er nú Bened. Sveinsson, og er
það samhljóða samkynja frv. frá 1886.
Áfengisbann. Fjórir þingmenn í
neðri deild (Einar Jónsson, Sig. Gunn-
arsson, Jens Pálsson og Eir. Gíslason)
hafa borið upp frumv. um að veita
sýslunefndum vald til að gjöra sam-
þj'kktir um bann gegn innflutningi
alls áfengis, sölu þess og tilbúningi.
Æfinleg erfingjarenta. Þeir Þorhall-
ur Bjarnason og Ólafur Briem flytja
frumvarp um, að við skifti á hverju
dánarbúi, sem að skuldum frá dregnum
nemur minnst 200 kr., skuli taka frá
1% af hverjum erfðarhluta og dánar-
gjöf, er hverfa undir einstaka menn,
til að setja það undir nafni hvers
þeirra sem vaxtaeiganda á æfinlega.
erfingjaréttu í Söfnunarsjóði íslands.
Afnám embœtta. Frv. þar að lút-
andi frá þeim Sigurði Stefánssjmi og
Sigurði Jenssyni, er sömuleiðis stjórn-
arskrárdilkur, : landshöfðinga-embætt-
ið, landritara, landfógeta og amtmanna
leggist niður, og verzleg störf skului
greind frá biskupsembættinu.
Landsstjórnarlaun. Um það flytja
þeir frumv., Guttormur Yigfússon og
Jón Jakobsson, sömuleiðis stjórnar-
skrárdilk. Landsstjóra ákveðin 10.0001
kr. í laun og leigulaus bústaður; ráð-
gjafa 5,000 kr.; skrifstofustjórum 2,500
kr. hverjum; og til skrifstofukostn-
aðar á ráðgjafaskrifstofunum ætlaðar
alls 6,000 kr. árlega.
kennara og þá aðra, er rétta staf-
setning vilja nema tilsagnarlaust. Enn
fremur, að íslenzkukennurum sé fjrir-
skipað að nota einnig nýrri tíma (19.
aldar) r-it við kennsluna, um að not-
aðar séu íslenzkar kennslubækur, m. m.
Utanþjóðkyrkjumenn. Þeir Skúli
Thoroddsen og Jón frá Múla Jónsson
flytja frumvarp um þá breytingu á
utanþjóðkjrkjumannalögunum frá 1886
að þeir, sem hvorki eru í þjóðkyrkj-
unni né í neinu kj'rkjufélagi utan
þjóðkjrkjunnar, skuli greiða lögboðin
gjöld fyrir aukaverk, svo og offur,
lambseldi, dagsverk, ljóstoll og lausa-
fjártíund til kyrkna og presta þjóð-
kjrkjunnar, til barnakennslu í þeim
hreppi er þeir eru búsettir i, en prestar
fá þann tekjuhalla endurgoldinn úr
landssjóði. Var samhljóða frv. frá
Sk. Th. fellt í fyrra þegar við 1. umr.
- neðri deild.
25. Júh'.
Veðrátta og fieyskapur. Hér er enn
mikil óþurkatíð um suðurland, og mun
lítið sem ekkert hirt af túnum, enda.
bjrjaði sláttur seint, því grasspretta
var fremur slæm, vegna hinnar miklu
kalsaveðráttu í f. mán., þótt væta væri
nóg þá en lungvinnir þurkar þar á
undan. Vestanlands og norðan byrj-
aði sláttur talsvert fyr, enda mikið-
betur sprottið.
Báin er hér í bænum í morgurr
ekkjufrú Valgerður Ólafsdóttir (Finsen)
síðari kona Halldórs sál. próf. Jóns-
sonar á Hofi, fædd 16. Marz 1893.
Paines Celery
— — Compound.
Ef söguatriði þess væru
skráð, þá irðu það marg-
ar stórar bækur.
Það er langt fyrxr ofan
ÖLL ÖNNUR MEÐUL.
Ef saga Paines Celerjr Compound
væri skrifuð, og öll þau undur og næst-
um því kraftaverk, sem það meðal
hefir gert, þá mundi það verða marg-
ar og stórar bækur. Paines Celerjr
Compound á sögu, þótt ekki sé skráð,
og sem aldrei mun gleymast úr huga
og hjörtum þeirra, sem hafa brúkað-
það.
Bæði menn og konur, sem um mörg
ár hafa þjáðst af taugaveiklan, svefn-
leysi, meltingarleysi, gigt, fluggigt og
höfuðverk, hafa læknast að fullu og
hf þeirra orðið glatt og ánægjulegt.
Paines Celerj' Compound hefir verið
vinur þingmanna, Bankahaldara, presta,
lögmanna, kaupmanna, bænda og dag-
launamanna. Okkar beztu og göfug-
ustu konur hafa brúkað það, konur
bænda og iðnaðarmanna þekkja bezt
heilsubótargildi þess. Ekkert annað lyf
í heiminum, hefir jafngott orð á sér
fyrir áreiðanleik og lækniskraft, sem
þetta meðal. Og þann dag í dag ráð-
leggja okkar beztu læknar það, og
s*gja að þeir þekki ekki betra lyf.
Áreiðanlega læknar Paines Celery
Compound sjúkt fólk.