Heimskringla - 27.10.1894, Side 1

Heimskringla - 27.10.1894, Side 1
vm. ár. NR. 43. WINNIPEG, MAN., 27. OKTÓBER 1894. FRÉTTIR. DAGBÓK. LAUGARDAG, 20. OKT. Kínverjar eru í óöa_önn að safna saman liði í hafnborginni Tien Tsin, nið urundan Peking. Eru þar nu saman- komnir 30,000 vígfærra og vopnaðra hermanna og viðbótin á hverjum sólar- hring nemur 7—8,000. Er svo tilætlað, að þar verði saman komnir 100,000 her- menn um mánaðar-lokin. Fregn frá Lundúnum segir, að að- alerindi Fosters, fjármálastjóra í Cana- da, muni vera það, að hjálpa Huddart til að koma á fót hraðskreiðu gufuskipa línunni, en ekki það, að útvega bein- línis bráðabyrgðarlán. Á Spáni vinna konur að uppsldpun ekki síður en karlmenn, og í gær voru 20 konur að þeirri vinnu i einum hóp, þegar þær fyrir eitthvert slys féllu allar út af bryggjunni. Fjórar komust af, en 16 drukknuðu. Á síðastl. fjárhagsári var tekju- halli Northern Paeific fél. 86J milj. Járnbrautnrnefnd ríkisstjórnarinn- ar í Norður-Dakota á í erjum við járn- brautarfélögin, út af kolaflutnings- gjaldi. Nefndin hefir heimtað, að gjald- ið sé fært niður, en járnbrautafélögin neita, enn sem komið er: Great North- ernfélagið setur upp hærra gjald en hin- ar brautirnar, en segir samt að tekjur félagsins í Dakota séu ónogar til að mæta afgjaldi peninganna, er standi í eign fél. í ríkinu. MÁNUDAG, 22. OKT. Englendingar og ítalir hafa að sögn ákveðið að senda sameiginlega leiðang- ur upp í miðbik Afríku og stofna varð- lið í héruðunum umhvorfis upptök Níl- fljótsins. Með þessu gera þeir tvennt í senn : standa fyrir Frökkum og hindra þá frá að auka veldi sitt, og lama upp- reistarmenn Araba. Panama-félagið nýja var löggilt í gær í Parisarborg, og í dag eiga 800 manns að taka til starfa við skurðgröft- inn á Panama-eiði eftir langt uppihald. Sjófiotastjórn Frakka heimtar 287 milj. franka (nálega 471 milj. dollars) til viðhalds ogaukningar flotanum á næsta ári. James Anthony Froude, liinn nafn- kenndi enski sagnaritari, lézt að heim- ili sínu í Lundúnum 20. þ. m., 76 ára gamall. Hann var fæddur að Darting- ton í Devonshire 23. April 1818 og var prestssonur, enda ætlast til að hann yrði prestur, sem hann líka varð árið 1311, í ríkiskyrkjunni ensku. Trúar- gkoðanir hans leyfðu honum samt ekki að gegna prestskap nema 4—5 ár. Árið 1848 kom út eftir hann bók, er hann nefndi “Nemesis of Faith” (hefndar- gyðja trúarinnar), en það var mótmæla- rit gegn því sem hann kallaði “hebreska goðafræði” ensku kyrkjunnar. Sem við mátti búast fékk bók sú harðan dóm hjá klerkum ensku kyrkjunnar, og yfir- gaf hann þá flokk þeirra. Carl Brown, hægrihandarmaður Coxey’s var í gær tekinn fastur í New York, hafði hann rert tllraun að flytja ræðu af dyraþrepi alríkisf járhirziunnar. Á síðastl. fjárhagsársfjórðungi nam verzlun Canada við útlónd 864,963,802. Er það $8$ milj. minna en á sama tíma í fyTrra.—Víðar er hart en í Winnipeg. ÞRlÐJUDAG, 23. OKT. Aukaþing Japaníta hefir samþykkt að veita stjórninni 8150 milj, tfl að halda áfram stríðinu við Kínverja. Stjórnarformaðurinn, Ito greifi, flutti merka ræðu uin leið og hann lagði fram VEITT HÆSTU VERÐLAUN A HEIMSSÝNINGUNNI m ■ ' ■ IÐ BEZT TILBÚNA^ Oblöuduð vínborja Cream of Tartar Powder. Ekkert álún, ammonia' eða önnur óholl efni. 40 ára reynzlu. fruínv. fyrir þingið og skýrði ljóslega frá ástæðunum til þessa stríðs. Allir þingmennirnir í báðum deildum virtust einhuga í þvi, að nauðsynlegt væri að halda áfram stríðinu og lama Kínverja svo, að þeir aldrei framar geti hafið annað eins stríð. Fregnir frá Livadia á Grikklandi, þar sem Rússakeisari liggur, eru ærið mismunandi. Annan daginn á hann að vera rétt við andlátið, en hinn dag- inn á hann að veia svo hraustur að hann geti verið á ferli. Um helgina síðustu fór krónprinz Rússa suður á Grikkland tfl föður síns, og í gær fór heitmey hans, Alix prinsessa af Hesse, sonar-dóttir Victoriu drottningar, suð- ur. Af því er ráðið að hjónavígslan sé í nánd, og þá satt að keisarinn heimti það. Minnesota-governorinn, Knute Nel- son, er í klípu, að því er sagt ér. Ríkið á eftir óskift um 1 milj. ekrur af landi og þar af her Great Northern félaginu 273,565. Af þessaii 1 milj. ekra eru að eins 200,000, seítalið er gott land og í það vill félagið ná, en til þess útheimt- ist leyfi stjórnarinnar að það megi merkja ?é landið á undan. Þetta leyfi vill governormn veita, en meðráðamenn hans ekki. Fái hann sínum vilja fram- komið, græðir fólagið á því um $5 milj- ónir, en rikið situr eftir með rúmlega 25000 ékrur af nýtilegu landi. Sambandsstjórn Canada hefir hafið mál gegn manni einum í Montreal, er tók að sér að byggja brú mikla á sam- bandsstjórnar kostnað yfir skipaskurð í Montreal, Með aflskonar fölsunum hafði hann af stjórninni rúmlega S172- 000 framyfir rétt verð brúarinnar. Þetta fé ætlar nú stjórnin að reyna að vinna afhonum. Kærurnar á hendur honum eru 6 talsins í þessu máli, og meðal þeirra er sú : að hann hafi eyði- lagt bækur sínar, svo ekki só hægt að sanna reikningana. MIÐVIKUDAG, 24, OKT. Frá Shanghai í Kína kemur sú fregn, að á Mánudaginn (22. þ. m.) hafl Kínverjar og Japanítar háð orustu mikla og hafi mannfallið numið 6000, 3000 af hvorum. Samdægurs átti floti Kinverja að leggja af stað frá IVei-hai- wai, leita uppi Japaniska flotann og leggja til orustu. Sambandsstjórnin biður um Sll milj. bráðabyrgðarlán á peningamark- aðinum í Luudúnum, segir skeyti það- an. Vinnulausir menn og flækingar brendu járnbrautarvagna og vagn- stöðvahús í Suður-Chicago á mánudags kvöldið. Sósialistar Þjóðverja sitja á alls- herjarþingi í Frankfurt. Demokrntar í New York ríki eru nú í óða-önn að vinna að friðarsamn- ingi milli þeirra Cleveland forseta og D. B. Hflls, er gengur stirðlega, því Cleveland er ófús til að mæla með manni, sem hefir reynzt flokknum eins illa á þingi og Hill hefir reynzt. Bandaríkjafélag eit.t óslcar eftir löggilding í Canada, til aö« komo þar upp 2 verkstæðum, í Hamilton, Ont., og í New Brunswick. Félagið þykist búa til úr gipsi byggingaefni, er líti út öld- undis eins og marmari og sé eins hart og endingargott, en sem kosti minna en samskonar efni úr tró. Félagið er búið að koma á fót tveimur þessum verkstæðum í Bandaríkjunum, í Chica- go. og Grand Rapids í Miehigan, en ekki er varningur þessi enn til sölu. G. F. Marter, lögmaður í Toronto, var í gær kjörinn eftirmaður Merediths sem forvígismaður Censervativa á Ont- ario-þingi. FIMTUDAG, 25. OKT Félagið “Ameríkan Railway Uni- on”, undir formennsku E. V. Debs, hefir nýlega gefið út áskorun mikla og sent til allra járnbrautarmanna í Banda ríkjum og Canada, þar sem skorað er á þá alla að ganga í þetta félag lejrni- lega, ef þeir annaðlivort vilja ekki eða þora ekki að ganga í það opinberlega. Tekjur Dominionstjórnarinnar á síðastliðnu fjárhagsfjórðungsári eru um $i milj. minni en í fyrra. í gær var auglýst í Pétursborg á Rússlandi, að stórhertogi Michael, þriðji ogyngsti sonur keisarans, væri réttur ríkiserfingi næst á eftir krón- prinzinum, stórhertoga Nickulási.— Stórhertoginn George, keisarasonurinn, sem næstur er krónprinzinum að aldri, er niðurfallssjúkur og er ekki ætlað líf, enda hofir hann með þessu afsalað sér erfðarétti til stólsins. Jarðhristingur aflmikill gerði vart við sig í suður-California í gær. WINNIPEG Business College. Verið viðbúin að nota ykkur kveld- skólann, sem haldinn verður í sam- bandi við Winnipeg Business College og Shorthand-skólann, 482 Main Str. Þar verður kennt, þeim sem vilja, ensku-lestur, réttritun, málfræði, reikn- ingur og skript. — Skólinn bjrjar snemma í Nóvember. Viðvíkjandi kennsluskilmálum snú- ið ykkur bréflega eða munnlega til kennaranna. C. A. Fleming & Co. FÖSTUDAG, 26. OKT. Jarðhristingur hefir undanfarna daga lagt 3000 hús í rústir og orðið 260 manns að bana, í Yokohama og grend- inni. Eftir síðustu fregnum frá Livadia að dæma er lifsendir Rússakeisara nærri Manitoba Conservative-leiðtogarnir höf . ,u yt.inu í gær, en umræðuofnið er almenningi hulið enn sem komið er, en fullyrt er að Hudson Bay-brautin hafi verið aðal-um- ræðuefnið. Hlaupa-fregn að austan segir Kín- verja flúna úr víginu að Port Arthur á Koreu-skaga, en þykir ótrúlegt. FRÁ LÖNDUM. MINNEOTA, MINN. 16. Okt. 1894. (Frá fréttaritara Hkr.). Veður , hefir verið fremur lcalt, blautr og stormasamt,' það sem af er þessum mánuöi. Þann 7. þ. m. um miðjan dag skall hór á snjóhríð. er hélzt til kl. nærri 5 e. m.v birti þá upp með frosti; snjór féll svo að vel varð spor- rakt. Aldur Lilju hoitinnar Vigfúsdóttir hefir misritast hjá mér, á að vera 1S ár, en ekki 16.—Um tvær giptingar, sem hér hafa fram farið, hefir mér gleymzt að geta um og eru það þessar : Bjarni Guðmundsson frá Ytrauýpi í Vopna- firði og Stefanía Einarsdóttir frá Há- mundarstöðum í sömu sveit, og Albert Guömundsson frá Ytranýpi í Vopna- firði og Una Þorkelsdótlir frá Reykja- vík. f Prestamál. Safnaðarfulltrúafund- ur var haldinn í Minneota 1-4, þ. m. og áþeim fundi voru séra Níelsi fiuttar skilnaðar kveðjur. — Islenzkur lögmað- ur seztur að í Minneota, Kristfán M. Gíslason. Tilkynning um minnisvarða yfir legstað séra Páls sál. Þorlákssonar. Við höfum veiið beðnir af nokkr- um mönnum, sem eiga heimili utan næstu safnaða, en hafa frétt, að hinn fyrirhugaöi legsteinn væri nú þegar flutu^i og kominn hingað í grafreit Víkur safnaðar, að lofa þeim að vita, hvenær sú athöfn færi fram, að hann yrði reistur og tileinkaður gröf hins látna. Sýnist okkur því vis^ast og réttast, að tilkj-nna helzt í blöðunum sem aðra frétt, ekki einungis þessum mönnum heldur og öllum íöndum nær og fjær, að það hefir orðið samkomu- lag okkar og fleiri manna hér í grend- inni, hvar á meðal er prestur okkar séra Fr. J. Bergmann, að athöfn þessi og samkoma verði — að forfalla- lausu — haldin hér við Mountain- kyrkju þriðjudaginn þann 30. þ. m. kl. 2 e. m. Og er það vilji okkar, að sem flestir þeirra sem kjmzt hafa liin- um látna á einhvorn hátt, ættu lcost á að vita um þessa samkomu, og heiðra ininning hans með nærveru sínni, þeir sem geta. Mountain, N. D., 18. Okt. 1894. Þ. G. Jónsson, H. Thorlaksson. Úlfurinn fer í sauðargæru. Sagan er svona : Einu sinni þegar úlfurinn var kominn í fjárþröng ætlað hann að verða fjárhiröir og útvevaði sér liatt, kápu og pott og hirðingja-pípu. Til þess að kalla saman hjörðina þurfti liann að herma eftir hjarðmanninum, en honum tókst það svo ófimlega, að hann kom upp um sig og týndi lífi sínu fyrir. Diamond litprinn er betri til heimnbrúks. heldur en aðrir litir. Hann skemmir ekki jafnvel hina fínustu dúka og er varanlegur og fallegur álitum.— Ýmsir litir eru búnir til í likingu við Diamond Dye, on þegar þeir eru reynd- ir, verða þeir að eins til að ergja maun. Það fer fyrir þeim eins og úlfinum, að þcir geta ekki losað sig viðeðli sitt. Storkostlepr afslattur! Betra verd en adrir geta bodid. Um nokkrar næstkomandi vikur fást vetrarföt og yfirhafnir með óheyrilega lágu verði 1 búð WALSH’S 515 og 517 Main Str. BUXUR. — UM 1,700 ALLS. — 200 af jieim verða seldar á 95 cents. Á meðal þeirra eru buxnr úr kanadisku vaðmáli Union vaðmáli (til slits) og Ameríkönsku Worsted, sem uppruna lega átti að seljast fjrrir Sl,50. 300 góðar vaðmálsbuxur á Sl,50 upprunaverð S2.00. 350 enskar ockanadiskar Hair Line buxur, og úrvals vaðmálsbuxur fyrir S2.70 vanaverð S4,00. Og enn 500 buxur úr skozku vað- máli og West of England-buxum á S2,95 og S3.50. Vanaverð $5.00 og S6.00. IvARLMANNA ALFATNAÐIR. — Um 1,100 ALLS. — Um 100 gamlir vaðmálsfatnaðir verða seldir á 83.00. Um 125 alullar fatnaðir úr ikana- disku vaðmáli «f ýmsu tagi fyrir S5.85. Upprunaverð 87.50 til 810,00. Um 285 vandaðir fatnaðir úr cana- disku vaðmáli á S5.75 en kostaði upp- runalega helmingi meira. Um 500 fatnaðir úr skozku vaðmál' og Worsted af beztu gerð fyrir S8.5 0 $10.50 og $11750. DRENGJA FATNAÐIR. — Stórkostlegt upplag. — Nærri 3.000 “Sailor suits” fjTÍr drengi á 95 cts. til 81.75. Vaðmálsföt Sl.50 til$3,50. Worsted iföt 82.75 og yflr. Velvet föt. Sergeföt. iJerseyföt, og um 100 fatnaðir af ýmsu Itaci S'2. Upprunaverð frá S3.00 til 85.00. Stuttbuxur 40, 50 og 75 cents. Reefers $2.00 $2.50 og $3.00. Yfirhafnir með slagi eða hettu á $2.50, $.300, $4.00 og $5.00. YFIRHAFNIR. Mikið upplag til að velja úr. Heitar og góðai' yíirhafnir verða seldar fyrir lítílræði ÁGÆTAR VETRAR-YFIRHAFNIR úr ensku “Rolling Nap” með kraga og belti og af beztu gerð, verða seldar fyrir að eins $7,50. Mikið upp- lag af vatnsheldum Melissa kápum. 515 & 517 lain Str.,pptCiljHall. Waferiown Marble & Granite Works. $ \ \ \ 0 \ 0 0 0 \ 0 0 0 0 0 \ 0 0 0 Sclur marmara og granit minnisvarða, bautasteina, járngirðingar, blómpotta, Etc., Legsteinarnir kosta 812,00 til 8300.00. Fjögra —- fimm feta háir legsteinar kosta $50.00 til 8100,00, uppsettir í kjwkjugarðinum af umboðsmanni félagsins án aukagjaids. Mismunandi verð eftir stærð og frágangi. Aðal-umboðsmaður félagsins er ÍSL. V. LEIFUR, Glasston, N. Dak. IvOMIÐ í BÚÐ Ær iT & A vv EDINBURGH, X. DAK. Þeir hafa til sölu vörur jþær sem seldar voru úr búð S. Carincross í Grafton, og selja þær með mjög vægu verði. Aslakson & Peterson, EDINBURGII, IV. I>AK. WINNIPEG, 22. OKTÓBER 1894 Aðvörun til skuldunauta. Hér með tilkynnist, að James Gestur, hinn eini núlifandi meðlimur timbur- sölufél. Mitcliell & Gestur við Islend- ingafljót, Manitoba, hefir í dag, 11. Október 1894, afhent mór allar eignir félagsins, sem skifta skal meðal skuldu- nauta félagsins. Allir skuldunautar eru því beðnir að mæta i eigin persónu eða gegnum umboðsmann á fundi á skrifstofu minni 31. Olct. kl. 4 o. m. Allar kröfur verða að vera fram- lagðar og eiðfestar áður en þrjátíu (30) dagar eru liðnir frá birtingu þess- arar auglýsingar. Þeir, sem hafa atkvæðisrétt á fund- inum, verða að hafa sina kröfu fram- lagða og eiðfesta áður en fundurinn byrjar. S- A. D- BERTRAND. Offical Assignee. SMÁYEGIS. Fult ai' Kínverjum. Það hefir opt verið talað um kristniboð til Kín- verja. enda sýnist varla vera vanþörf á því og líklegt að klevkar fái þar eitthvað á öngulinn, það jafnvel þó þeir renni honum berum. Eptirfylgj- andi grein er tekin úr blaðinu ''Hong Kong Telegraph”: “Aldi aður prestur, dapur í bragði og með távin í augunum, sagði við mann einn í Victoria (rétta nafnið á bænum sem almennt er nefndur Hong Kong, en sem í raun réttri er nafn ej'jarinnar en ekki bæjarins), hér um daginn að hálf miljón Kínverja dæi á mánuði hvorum án guðs. Með öðrum orðum, eptir framburði kristniboða þessa, fara 6 milj. Kínverja til hel- vítis á ári hverju. Kínverjar eru æfa- gömul þjóð ; virðast vera frá f.yrsta degi sköpunarverksins og í það allra minnsta 5.000 ára gamlir (laugtum eldri?) En taki maður nú þennan ald- ur þeirra þá hljóta 30 þúsund milj- ónir Kínverja nú þegar að vera komn- ir til hvergelmis og eirilægt heldur lestin þangað, 500,000 á mánuði hverj- um. Það er fossandi straumur af Kínverjum niður þangað. Líkt og þegar Níagara veltist freyðaudi og fyssandi ofan hamraflugið, eins bilt- ast Kínverja-tetrin ofan í dýpið. Það er stöðugur, sífellur, óslitinn straum- ur Kínverja, með hárpískana ílaxandí eins og hala á halastjörnu aftur af höfðum þeivra. Þar er ískrandi ýlfur og vein hínna gulu drauga, er þeir fijúga ofan hjallana, hrópandi, ve n andi og reyna að spyrna við fæti til að stöðva sig á fluginu. En þtir spyrna í tómt og ofan hrynja þeir lengra og lengra, með hárpíska-hal- ana á eptir sér. Helvíti hlýtur að vera fult af þessum gulu bjálfum og er sviplegt að hugsa til þess, svip- legt að hugsa sér lyktina í þessum miklu sölum myrkranna. Menn hafa alt of lítið hugsað um þetta, hafa allc of lítið hugsað um hve margir Kínverjar eru komnir í þennan paml hústað, sem margir hugsa sér orðiu slitinn og hrörlegann. Þessvegna hefir hlaðið “Sidney Bulletin” stungið upp á, að j'fir hverjum prédikunarstóli skuli máluð með stóru gullnu letri þessi ovð: “Bræður! hugsið til þess, að helvíti er fult af Kínverjum!” “Mörg svik og heimska koma fyrir í pólitík, en þó er þessu ekkcrt að jafna saman viö það sem fram fer viö trúboð hjálerlendum þjóðum.Það er óvirðii g fyr ir liverja þjóð, sem trúboðar eru sendir til. Ef nágranni vœri svo hlutsamur að senda inn i annara manna hús til þess að skipa fyrir um siði, sem ein- göngu Varða það hús og heimili, þá jwði hann náttúrlega beðinn að liætta því, af þeirri einföldu ástæðu, að honum væri það alveg óviðkomandi. Hver einasta þjóð, sem ev óvirt með trú- bragða heimskingjum—oft frá siðlaus- ai'i löndum—mundi hafa fullan rétt til að banna þessum lötu trúboðs-flæking- um innltomu í sitt land”. D. Ritchie & Co’s Success. Þeir hafa lieiðursbréf, og náð hin- um eina heiðurs peningi sem gefin var fj’rir tóbak á iðnaðarsýningunni í Toronto D. Richie & Co. í Montreal sem búa til plötutóbak, skorið tóbak, cig- arettur hefir nýlega verið tilkvnnt opinberlega að þeir hafi fengið lieið- urs-viðurkenningu fj'rir vöruvöndun sína, og verðlauna-pening úr bronzi fprir plötutóbak, skorið tóbak og cigarettur. Það þarf ekki að segja/að, á sýn- ingunni hafi ekki verið sýnt hið bezta tóbak frá ýmsum stöðum í Canada Því það var einmitt þar. og það er þessvegna að svo mikið er talaö um að þetta félag skyldi ná öllum verð- laununum. Aflir sem selja tóbak frá þessu fél. munu sannfærast um að það gengur betur út en nokkuð annað tóbak. í Montreal og Toronto er “Derby” tóbakið þeirra tekið fram j’fir alt annað tóhak, sem hingað til hefir verið í áhti, og hvar sem það er haft til sölu útrýmir það öðrum tóba kstegundum. Félagið verðskiddaði eflaust verð- •uinin það er viðurkent um allan heim, og hvað því tókst vel á sýn- ingunni í Toronto er sönnun fyrir að þeir búi td bið bezta plötutóbak, skorið tóbak og cigarettur.

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.