Heimskringla - 19.03.1896, Síða 1

Heimskringla - 19.03.1896, Síða 1
X. ÁR. WINNIPEG, MAN., 19. MARZ 1896. NR. 12. FRETTIR. DAGBÓK. FIMTUDAG 12. MARCH. Á almennum fundi repúblíka í lowa í gær yar senator W. D. Allison kjörinn dil að vera í boði sem forseta-efni Banda- ríkja á þjóðfundi repúblíka í St. Louis í sumar. Þjóðþingsmenn Bandaríkja tala um að fá, póstgjald fyrir venjuleg sendibréf fært niður í 1 cent, úr 2. Stjórn Kínlands hefir ákveðið að senda “Bismark Kínverja” — Li Hung Chang, til Pétursborgar til að vera við krýningu Rússakeisara. Er álitið að það hafi einhverja mikla þýðingu, sem almenningi er ekki kunnugt um hver er I sömu ferðinni ætlar hann að koma við í öllum stjórnarsetrum Evrópu. Óvanalegt snjófall og þýða rétt á ■eftir, hefir ollað flóði miklu og þar af leiðandi tjóni á Þýzkalandi og í Austur- ríki. Nú þykir nokkurn vegin víst orðið að fregnirnar um Nansen hafi verið hæfulaus uppspuni. í London er nú talað um að senda menn til að fregna um hann á komandi sumri, ef ekkert íréttist frá honum í millitíð. Er ætlast til að leitar menn fari landveg norður um Síberíu, alt á nýrðsta höfðann. Sagt er að Bretar séu að ganga á milli Spánverja og Bandaríkjamanna og samtímis að reyna að semja um frið fyrir hönd eyjarskeggja og fylgi það, að þeim sé veitt tiltölulegt sjálfræði í sín- um sérstöku málura. Hvað hæft er í þessu er ósýnt enn. FÖSTUDAG 13. MARZ. Efrideild þjóðþings Bandaríkja ger- ir lítið annað þessa dagana en að ræða um, hvort efri deildin eigi eða eigi ekki að samþykkja óbreytta ályktun neðri- deildarinnar áhrærandi viðurkenning 'Cubamanna. Só ályktunin viðtekin, verður hún sameiginleg þingsályktun og þýðir það, að Cleveland forseti verð- ur neyddur til að framfylgja henni. Meðal þeirra sem mæltu móti viðtekt hennar í gær, voru D, B. Hill og John Sherman. Aðalástæða beggja var sú, að eins og væri næðu ályktaniriiar til- gangi sínum. Frumvarp til laga var borið fram á þjóðþingi í gær, er veitir ákveðnum mönnum leyfi tii að tengja stórvötnin ir. n. Ward. Nærri olwknandi. Ákafur hósti. Engin hvild dag eða nótt. Læknarnir gefast upp. Lífinu bjargað Með því að brúka AYEB’Q CHERRY Hl tn 0 PECTORAL. “Fyrir nokkrum árum fékk ég á- kaflega slæmt kvef með mjög slæmum nósta, svo að ég hafði engan frið dag eða nótt. Þegar læknarnir voru búnir að gera alt við mig sem þeir gátu,sögðu þeir að ég væri ólæknandi og hættu við mig alveg. Kunningi minn, sem hafði heyrtgetiðum kringumstæður mínar, sendi mér flösku af Ayers Cherry Pec- toral, sem ég fór þegar að brúka, og sem þegar frá byrjun gerði mér mikið gott. Þegar ég var búinn með úr flösk- unni var ég orðinn alheill. Ég hefi ald- rei haft mikinn hósta síðan og hefi þá skoðun, að Ayer’s Cherry Pectoral hafi lækneð mig. — W. H. Ward, 8 Quimby Ave., Lowell, Mass. Ayer’s Cliery Pectoral Hœstu verdlaun a heims- syning’unni. Aycrs Pills hið bsstahrcinsunarmeða og Atlantshaf með skipaskurðum með 20 feta vatnsdýpi. Ötofnféð er SIO milj. Flutningsmaður frumvarpsins var sena- tor H. C. Hansborough frá N. Dak. Albertamenn vilja fá Albertahérað tekið í fylkjasamband Canada með full- um fjdkisréttindum. Ófriðarhorfur eru sagðar í Egyfta- landi. Dervishes í upphéruðunum með- fram Nílfljótinu hafa að sögn í huga að efna til herferðar niður með fljótinu. Af því svo vel hefir gengið í Abyssinia, hugsa þeir sér nú að reyna að brjóta Egyftaland, eða einhvern hluta þess, undir sig. Af þessu leiðir að Bretar líklega mega senda herflota upp eftir Níl í annað sinn. Uppreistinni í Nicaragua er um það lokið. Stjórnarsinnar mega betur í einni viðureigninni eftir aðra. Fréttir frá Manitoba birtast nú á hverjum degi í blöðum eystra, bæði í Canada og Bandaríkjum, þess efnis, að verði umbóta lögin fyrir kaþólika sam- þykt, gangi fylkið úr sambandinu. Opinberlega er ekki um neitt slíkt talað hér, þó fregnirnar allar séu sendar frá Winnipeg. Þetta er bara ein flugu- fregnin, alveg hæflaus. LAUGARDAF, 14. MARZ. Forsetakosningasóknin í Banda. ríkjum má nú heita hafin. Almennir fundir tilað undirbúa málin, velja um- sækjendur o. s. frv., eru nú haldnir á hverjum degi í einu ríkinu eftir annað. R. A. Davis, auðmaður í Chicago, sem fyrir 25 árum síðan var stjórnar- formaður í Manitoba, ^sekir um hjóna- skilnað. Herforingi Itala í Ahyssina, Bara- tieri að nafni, viðurkennir nú að ófar- imar miklu um daginn séu klaufaskap sínum að kenna. I gær byrjuðu menn að tefla skák, þannig, að :annar taflmaðurinn er í London, en hinn í New York. I hvert skifti sem leikið er, er hreyfingin tele- graferuð yfir hafið og tekur það að eins 15 sek., eða \ úr mínútu. Hermenn Breta í Egyftalandi hafa fengið ótvíræða skipun um að halda af stað nú þegar upp með Níl, alt til hér- aðsins Dongola og fyrirbyggja væntan- lega uppreist þar efra. Tyrkjum hefir lengi verið illa við enskumælandi kristniboða í Armeníu og annarsstaðar 1 ríki sínu, af því þeim er gjarnt til að skrifa kunningjum sín- um og vinum heima og lýsa ástandinu. Nú er líka sagt að stjórn Tyrkja sé að hugsa um að gera þá alla ræka úr ríki sínu og banna þeim að koma þangað framvegis. Gömul og gagnleg skjöl áhrærandi Venezuela-Guiana landamærin, berast nú Venezuela-nefnd Bandaríkjastjórnar á hverjum degi. Nefndin getur ekki lengur kvartað um að hana vanti verk- efni. MÁNUDAG, 16. MARZ. Ráðherra utanríkisstjórnardeildar- innar í Austurríki, Goluchowki greifi, hefir verið á fundi með Vilhjálmi Þýzka lands keisara undanfarna daga, og hefir farið svo vel á með þeim, að keisarinn sæmdi hann með eigin hendi æðsta heið ursmerki Þjóðverja, gull-aranum. Á þessum fundi var það afráðið,að banda- lagið þrefalda skyldi ehki slitið, þó ít- ölum hefði gengið illa í Abyssinia.— Bandalagið heldur þannig áfram óskert og jafnframt fullyrt að Goluchowki hafi fengið loforð keisarans um að vera Bretum hlyntari en nú um tima, því það álíta Austurríkismenn ómissandi, ef bandalagið á að standa. Uppþot mikið átti sér stað á ríkis- þingi Þjóðverja á föstudaginn var. Var það í tilefni af þeirri tilkynningu, að rannsakað yrði athæfi Dr. Carl Peters, Áfríkufarans þýzka, er lét árið 1891 liengja karl og konu af svertingjaætt- um í Afríku, án nokkurra verulegra saka. Á meðan uppþotið stóð var Dr. Peters kallaður “vitlaus maður”, “morðingi” o. s. frv. og heimtað að honum væri vikið úr stöðunni sem for seta Austur-Afríku-félagsins þýzka. "Gods American Volunteers” (guðs amerikanska sjálfboðaliðið) er nafnið á hinum nýja sáluhjálparher, sem Ball- ington Booth ætlar sér að koma upp í Bandaríkjunnm. Á föstudagskvöldið var sást tii halastjörnunnar, sem hinn 11. þ. m. átti að reka sig á jörð vora, og eins og ,Ulfar sterki, að gera “slurk, undir móa harði”! Það sást til hennar frá stjörnu turninum í Washington ; var þá á suð- urleið og stefndi burtjfrá jörðu. Italskur herforingi er að semja um VEITT SÆSTU VERÐLAUN A IIEIMSSVNINGUNN DR, BAKIING PöWDfR IÐ BEZT TILBÚNA Óhlönduð vínberja Cream of Tartar Powder. Ekkert álún, ammonia eða önnur óholl efni. 40 ára reynslu. frið og samvinnu við Menelek konung í Abyssinia. Til að sýna honum hvað vel hann væri staddnr, lét Negus (kon- ungur) Menelek 100,000 hermenn sýna ganga fram hjá ákveðnu stöðusviði, alla vel búna að vopnum, og að því búnu sýndi hann Itölum vistaforða sinn, sem J>eir höfðu áður haldið að væri á þrotum. Þeir hafa aðra skoð- un nú. Fregn frá Ottawa segir að Joseph Martin muni leggja niður opinher störf nú þegar yfirstandandi þing er rofið. Hann ber fyrir að hann geti ekki gengt prívat-störfum sínum og bíði skaða við. Mark Twain flytur nú fyrirlestra á Indlandi. VaríBombayí vikunni er leið. 1. Apríl fer liann af stað frá Ind- landi til Afríku. Það er ráðgert nú að hrífa North- ern Pacific-brautina úr höndum stjórn- arinnar aftur og láta hana standa á eigin merg. Tekjur félagsins fara svo vaxandi að það þykir ekki lengur á- stæða til að láta dómstólana hafa stjórn- in. Til þess að koma félaginu á lagg- irnaa með nýjum eigendum, þarf §345 milj. í skuldabrófum. ÞRIÐJUDAG, 17. MARZ. Óvanalegur hiti hefir verið í Astral íu undanfarna viku eða meir, alt að 130 stig á Fahr. í skugga. Á einum degi létust 80 manns út hita í borginni Sidney. Bretar hafa fengið samþykki stór- veldanna til að senda herafla upp Nílár- dalinn til Dongola-hóraðs, til móts við óeirðarseggina. Fregnir frá Evrópu segja að Bret- ar muni gengnir í bandalagið með Þjóð- verjum, Austurríkismönnum, og Itöl- um, eða ef ekki beinlínis gengnir í það, séu þeir þá samt stuðningsmenn þess. Breskt gufuskip sprakk í loft upp á Congo-fljótinu í Afríku 7. Marz og fór- ust þar 40 manns, Hvenær er yfirstandandi kjörtíma- bil sambandsþingsins á enda ? var spurning, sem rætt var um á Ottawa- þingi í gær. Sumir héldu því fram að æfi þingsins væri úti 25. April næstk., en aðrir 3. Júní. Hæstaréttardómararn- ir eiga að útkljá þetta mál. MIÐVIKUDAG, 18. MARZ. I dag verða greidd atkv. um þaðá samhandsþingi, hvort umbótalagafrum- varpið skuli lesið í annað sinn eða ekki. Gullnámur eru fundnar i grend við Prince Albert norðvestra, — í Saskat- chewandalnum. Fregn frá Venezuela til blaðsins “World” í New York segir, að lítill efi þyki á að Bretar séu að senda herskip til Venezuela, til að framfyigja kröfum sínum.'Sé það tilgangurinn er búizt við að tekið verði á móti. PAIN-KILLER THE GREAT Family Medicine of the Ag:e. Taken Internally, ItCures Diarrhœa, Cramp, and Pain in the Stomach, Sore Throat, Sudden Cotds, Coughs, etc., etc. Used Externally, ItCures Cuts, Bruises, Burns, Scalds, Sprains, Toothache, Pain ín the Face, Neuraigia, Bheumatism, Frosted Feet. No Rrticl© ever attalned to such unboundad popular- ity.—Salem Observcr. We can bear testiraony to the efflcacy of the Paln- Killer. We havo secn its maRÍc effocts in Boothin>; tho Bcvorcst pain, and know it to bo a good article.—Cincin- nati Dispatch. Nothinn has yet surpassed the Pain-Killer, which is the raost valuable family medicinenow in uso.—Tcn nesscc Organ. It has real merit; as a menns of removing pain, no medicine has acquired a reputation equal to Perry Davls' Pain-Killer.—Newpoxt Nevs. iv>ware of imitations. Buy only the genuine "Perby I)AV*a ” Sold «vei ywhere: lurge bottlos, 25c. Frá löndum. KAFLI ÚR BRÉFI FRÁ MOUNT- AIN. N. DAK., DAGS. 7. MARZ : .... “Eins og lög gera ráð fyrir fóru fram township-kosningar í Thingwalla- township á þriðjudaginn 3. þ. m., 1. þriðjudag i Marz, og fór alt fram ofur- rólega. Kosningu hlutu: Supervisors S. J. Sigfússon (formaður), M. Einars- son, Jakob Eyjörð; ritari E. F. Björn- son; féliirðir H. F. Reykjalín; virðinga maður J. Jónasson; friðdómari M. Snowfield; sáttanefndarmenn : E. Thor- waldsson, Th. Thorlackson, Joh. Jón- asson, Jakob Eyfjörð ; lögregluþjónar : B. B. Halldórsson, S. A. Sigfússon. — Tíðin hefirverið hin ágætasta þangað til í vikunni er leið, að snjóaði allmikið. —Nýlega hrann íhúðarhús herra Hann- esar Snæbjarnarsonar í Crystal ásamt öllum húsbúnaði. E;gnatjónið er met- ið á $2000. Kenslá ferfram nú i báðum skól unum í þessu skólahéraði (64) og höfum við tvo ágæta kennara, sem eru : Miss L. Eyford og Mr. R. Marteinsson. Eftirfylgjandi skýrsla sýnir fjárhag og ástand skólahéraðsins i lok Desember- mán. síðastl: SKYRSLA féhirðis Eyford skólahéraðs, No. 64, Pemhina county, North Dakota, fyrir fjárhagsárið frá 1. Jan., 1895 til 31. Dec. 1895: TEKJUK : í sjóði yið byrjun ársins 56.00 Tillag úr ríkissjóði.. 743.04 Tillög skólaliéraðsins fyr- ir árið ásamt útistand- andi tillögum frá f. á. 580.9Q Samtals fyrir árið.... 1384.94 ÚTGJÖLD: Borgað fyrir hússtæði, húsgögn etc............ 50,00 Áhöld til skólans:..... 40,50 Kennarakaup........... 555,00 Tilumsjónarmanns skól- ans ................... 60,00 Ófyrirsjáanleg gjöld.... 26,25 Yms gjöld, sem ekki hafa áðmv-i'rið tslin...... 192,61 Samtals fyrir árið.... 924,36 924,36 í sjóði yið árslok.... 46058 SPANISH FORKS, 10. MARZ, 1896. (Frá fréttaritara vorum.) Síðan ég skrifaði síðast, hefir fátt markvert skéð. Samt má geta þess, að frá því um miðjan Janúar og til hins fyrsta þ.m. yar tíðin hér um pláss hið mesta öndveigi. Siðari partinn af Febr- úar fóru bæDdur hér alment að sá og plægja akra sína, og munu flestir hafa lokið hveiti sáningu fyrir mánaðar lokin, og nokkrir sáðu höfrum líka. Um síðastliðin mánaðamót skifti aftur um tíðarfarið, og hafa síðan geng- ið hálfgerðir umhleypingar, samt ekki mjög kalt, en snjógangur töluverður með köflum. Lítill snjór rétt sem stend- ur, og heldur útlit fyrir staðviðri. Heilsufar má kalla í meðal-lagi; hefur gengið hér um tíma einhvers konar barnaveiki, samt ekki mjög skæð. og fá dáið. Hinn 15 f. m. andaðist að heimili sínu við Castle Gate hér í Utah, bónd- inJóhannes Jónsson, tæpra 30 ára að aldri. Hann var fæddur að Presthús- um í Mýrdal í V. Skaftafellssýslu 1866, sonur Jóns bónda Ögmundssonar og Sigríðar Björnsdóttir, sem þar bjuggu fyrir eina tíð. Hann flutti ungur með föður sínum til Vestmannaeyja, og ólst þar upp, og þaðan fluttist hann til Ameríku 1892, og hefir dvalið hér síðan, fyrst í Spanish Forks og síðustu 3 árin í Castle Gate. Jóhannes sál var hinn mesti myndar maður og hoztidrengur. og er hans því sart saknaö af vinum nans, og öllum er hann þektu. Hann lætur eftir sig ekkju—Maríu Guðmundsdóttir frá Bata- víu—og 3 ung börn. Nú hefur löggjafarþing vort setið við þingstörf á þriðja mánuð, en lítið merkilegt hefur þar verið starfað. Marg- ir eru þeirrar meiningar, að gjörðir þessa fyrsta state löggjafarþings, verði þinginu í heild sinni til iítils heiðurs, og fólkinu til lítilla framfara. En þó svo fari, sem máske verður ekki, þá verður varla Demokrötum þar um hægt að kenna, því þeir eru í minni hlutanum. Um næstu mánaðarmót, verður af nýju farið að hreifa við þólitíkinni aftur hér eins og annarstaðar. Hið fyrsta sem gera þarf, er að kjósafulltrúa til að fara á flokksþing Republika í St. Louis í Júní næstkomandi. Kennari getur fengið stöðu við Thingvalla skóla fyrir 6 mánuðl; kennslan byrjar 1. Apr. næstkomandi. Umsækjandi verður að hafa staðist próf, og fá “certeficate” sitt samþýkt af kenslumálastjórninni í Re- gina. Gott kaup horgað kennara sem heldur 1. eða 2. class certificate. Send- ið tilboð .vðar strax. Öllum umsóknum svarað fljótt. Churchbridge, Assa, 29. Febr. 1896. G. Narfason. TAKIÐ EFTIR! Ég hefi nýlega sett upp húð á horn- inu á Nellie Ave. og Ness Str., og von- ast eftir að geta selt eins ódýrt og aðrir, og máské ódýrar. Komið og sjáið áður en þið leitið annarsstaðar. Ég útvega stúlkum vistir, og geta þær sem vanta vistir vitjað min. Búðin er á horninu á NELLIE AYE. & NESS STR. Guðbjörg Þorbergsdóttir. 4 \ \ 4 4 4 ) Agœtar Premiur! Kaupið og borgið Heimskringlu ! Tilboð sem þið getið ekki gengið framhjá ! I i ---- 4 Nyir kaupendur 4 4 4 ) fá Heimskrixglu og Öldina þetta ár, 1896—1897, ásamt Öld- inni frá byrjun (þrjá árganga, 480 stórar blaðsíður), sem inniheldur allar sögur herlæknisins, eftir Zakarias Topelius, ásamt mörgum fróðlegum ritgerðum, fyrir að eins $2,75 fyrirfram borgað. ! Allir Kaupendur t 4 4 \ 4 4 4 4 4 bpir CATTl hfITO’51 1111 eða hafa þegar borgað þennan -1 cll bdll UUIj_,cl Ilu nýbyrjaða (10.) árgang Heims- kringlu,—eða þeir sem borga upn gamlar skuldir sínar og fyrirfram fyrir þennan árgang, — eða þeir sem gerast nýir kaupendur og borga fyrirfram, fá allir hinar ofangreindu hækur með þeim skil- yrðum, sem sagt hefir verið, og að auki endurgjuldslaust söguna Mikae! Strogoff, The Heimskringla Prtg. & Pubf Co. 4 4 4 4 4 4 4 sem hafa borgað blaðið eða borga það nú upp að 1. Jan. 1896, eða senda oss minst $2.00 upp í gamlar skuldir, ef stærri eru, geta fengið eina eða fleiri ai bókum þeim, sem hér eru taldar, með því að senda oss, auk borgunar fyrir hlaðið, upphæð þá, sem stend- ur aftan við þá bók eða bækur, sem þeir velja sér : “Peoples Atlas,” landakort raeð aHskonar fróðleiiv um löndin, 124 bls. 20 'c,. “Pictures of all Countries,” með skýringum yfir hverja mynd, 256 bls. 20 c. “United States History,” með myndum 607 bls. 15 c. “Standard Cook Book,” 320 bls.............. ]0 c. “Gems of Poets,” 200 bls...................15 c. “Ladies Home Companion,” mánaðarblað, 24 gríðarstórar bls. í hvert skifti, 50 c. um árið. Allar þessar bækur eru þess vel virði, að þær séu á hverju heimili, og verðið er sett svo lágt að engan munar — að eins fyrir burðar- gjald og fyrirhöfn. Sérstaklega er Peoples Atlas nauðsynleg bók, og Pictures of all Countries er einkar skemtileg bók. Ladies Home Companion er mjög vandað og stórt mánaðarblað, 24 bls hvert hefti vanaverð $1.00 um árið. Það er ómissandi blað fyrir alt kvenfólk sem vill fylgja með tímanum í öllu sem til heimilis og klæðnaðar heyrir. — Allar þessar bækur eru til sýnis á skrifstofu blaðsins. 4 4 í 4 4 innfesta í kápu, þegar hún er komin út, sem verður um miðjan Febrúar. Saga þessi, sem er að koma út í dálkum Heimskringlu, er eins og mörgum er kunnugt, eftir hinn alkunna skáldsagnahöf- und Jules Verne, og er ein af þeim beztu sögum, sem í íslenzku blaði hefir birtst. Bókin verður um hdlft fjúrða hundraö blaðsíður að stærð, og verður send til allra, sem hafa áunnið sér tilkall til hennar, þegar hún er komin út, þeim að kostnaðarlausu. Tilboð þetta stendur meðan upplag sögunnar endist, þó ekki lengur en til 31. Marz næstkomandi. Auglýst verður í blaðinu ef upplagið þrýtur fyrir þann tíma. Sendið gjöld yðar og pantanir sem fyrst, áður en upplagið af sögunni er útgengið. Vér höldum lista yfir alla, sem borga og ávinna sér tilkall til sögnnnar, og verða pantanir afgreiddar í þeirri röð, sem þær koma fyrir á listanum. Ensku bækurnar fá kaupendur 2—3 vikum eftir að þeir liafa sent borgunina. 7// / f/flY! /] f Engin blöð af þessum árgangi verða í FF J1 Cf O • send til íslands, nema kaupendur þeirra horgi allar eldri skuldir og fvrirfram fyrir þennan árgang. Borg- anir þurfa að vera komnar til vor fyrir 15. Febrúar, frá öllum þeim sem ætlast til að blaðið verði sent heim með næstu ferð. Verð blaðsins heimsent er $1.00 fyrir þá sem einnig kaupa blaðið sjálfir, en $1.50 fyrir þá, sem að eins kaup það til heimsend- ingar.

x

Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.