Heimskringla - 19.03.1896, Síða 2

Heimskringla - 19.03.1896, Síða 2
HEIMSKRINGLA 19. MARZ 1896. Heimskringla PUBLISHED BY The lleimskringla Prtg. k Pnbl. Co. •• •• Verð blaðsins í Canda og Bandar.: 82 um árið [fyrirfram borgað] Sent til íslands [fyrirfram borgað af kaupendum bl. hér] 81. •••• Uppsögn ógild að lögum nema kaupandi sé skuldlaus við blaðið. •••• Peningar sendist i P. O. Money Order, Registered Letter eða Ex- press Money Order. Bankaávis- anir á aðra banka en í Winnipeg að eins teknar með afföllum. • • •• EGGERTJOHANNSSON EDITOR. EINAR OLAFSSON BUSINESS MANAGER. • • •• Office : Corner Ross Ave & Nena Str. P.O. líox 305. Dauphin t>að sannast nú sem oftar.að Green- waystjórninnieru mislagðar hendur. I fyrra þegar verið var að biðja hana að ábyrgjast vöxtu af 85,500 á míluna i Suðausturbrautinni, var sú upphæð tal- in hófleysislega miki), af því að landið sem brautin legðist um væri slétt og þar af leiðandi kostnaðarlítið að byggja hana. Nú endurtekur hún sitt fyrri ára boð, lítillega rýrt, og býður að á- byrgjast 4% vöxtu í 80 ár af 81 milj. eða 88,000 á hverja mílu brautarinnar, en þær eru áætlaðar 125. Að auki á- byrgist hún að þessi hluti stofnfjárins ($8000 á miluna) verði skilvíslega greidd- ur að 80 árum liðnum, og fær svo fyrsta veðrétt í brautinni og því sem henni til- heyrir. Til þess að fá þessa hraut bygða tekur stjórnin upp á sig ábyrgð, ernem- ur $2,200,000, þó henni fyrir 2 árum síð- an, eða því sem næst, þætti ekkert vit í að veita styrk og taka upp á sig ábyrgð i sambandi við Suðausturbrautina. er að öllu samlögðu svaraði $l£ milj. Sú braut hefði orðið alt að því eins löng eins og þessi til Dauphin og fylkinu í heild sinni miklu gagnsmeiri, þar eð hún átti að verða hluti af brautinni sem ver- ið er að byggja frá Superiorvatni vestur að Skógavatni. Það er líklega áþekk- um kostnaði undirorpið, að byggja brautina til Dauphin eins og þá austur að Skógavatni. Sléttan er hin sama hvora leiðina sem farið er, en ef nokkuð er, er skógurinn minni á svæðinu út að Bauphin. Af því er auðsætt að hafi $5,500 á míluna í Suðausturbrautinni verið hóflaus upphæð, til að ábyrgjast, þá er ekki siður hóflaust að ábyrgjast $8,000 á m:luna í Dauphinbrautinni. Það er þess vegna ekki ástæðulaust þó einhverjum detti í hug, að hér ein- hversstaðar sé fiskur undir steini, af því járnbrautaráðmenska Greenways frá upphafi til enda gefur greinilegar ástæð- ur til þess. Annað það sem eðlilega kveikir grunsemi er það, hve litlar upp- lýsingar stjórnin enn hefir gefið þinginu áhrærandi þessa braut eða félagið, sem ætlast er til að byggji hana. Þinginu hefir [enn (16 Marz) ekki verið til- kynt nöfn nokkurra þeirra manna, er fyrir félaginu standa, og ekki gefin minsta hugmynd uifi stofnfé félagsins og hvað mikið af því er innhorgað. Því síður eru til nokkurákvæðisvokunnugt sé um 'lestagang fyrirhugaðan, vöru- flutningsverð o. s. frv. Alt slíkt Þykir nauðsynlegt að kunngera þingmönnun- um, en það gerði Greenway ekki. Hann eða st/órn hans hvaðst taka að sér alla ábyrgð sem leiddi af þvi. að þingmenn voru þannig látnir greiða atkvæði um þess fjárveitingu blindandi. Mr. Fisher andæfði þessari fjárveit- ingu ekki síður en Roblin, en svo bar alt að sama brunninum, hvað úrskurð snerti, i þassa sém öðru. Til þesserlíka fjöldinn að baki Greenways, að sam- þykkja alt sem hann fer fram á, án nokkurs tillits tilréttlætis. Auk þess.er Mr. Fisher flutti all-langt mál um þessa járnbrautargerð á þingí, hefir hann nú ritað langt mál um þessa járnbraut í dagblöðin. í þessu bréfi segir hann eftir kunnugum mönnum, að væri braut- in bygð frá vagnstöðinni Arden á Man. norðvestur-brautinni, um 40mílur vest- ur frá Portage la Prairie. mundi ekki Kosta meira en 86,500 að byggja hverja eina mílu í brautinni, eða $1,500 minna en upphæðin sem fylkisstjórnin tekur að sér að ábyrgjast í 30 ár. Aftur er kostn- aðurinn nokkru meiri sé bygt frá Port- age La Prairie, og sem líklega verður, til þess að þessi fyrirhugaða braut geti náð sambandi við bæði C. P. R. og N. P. R. félögin, en sem ekki er hægt frá Arden eða öðrum stöðum í grendinni. nema með þeim kjörum sem Man. Nv. fólaginu vel líka. En svo hefir þetta fé- lag leyfi sambandsstjórnarinnar til að gefa út skuldabréf, er svari $20,000 á hverja mílu, eða 812,000 umfram þau 88,000, er Greenway ábyrgist. Séu þau skuldabréf öll seld fyrir þó ekki væri fyrir nema 90 cts. dollars virðið, gefa $12,000 af sér $10,800, er að viðlögðum $8,000 Greenways gefur félaginu $18,800 á hverja mílu af hraut, sem frá Portage La Prairie mundi ekki kosta meira en $10,000 mílan. Af þessu sést hve bráð- nauðsynlegt, eða hitt þó helfiur var, að fylkið gengi í ábyrgð fyrir $8,000 á mil- una. En svo er enn önnur hlið á þessu máli. sem Mr. Fisher opinberar í bréfi sínu. Og þegar hún er athuguð sézt, að ástæðan fyrir Greenway að veita svona mikinn styrk, minkar enn meir. Þegar sambandsstjórnin í fyrra breytti ákvæðunum um styrkinn til Winnipeg og Great Northern félagsins, þannig, að það fengi helminginn, eða $40,000 á ári (í 20 ár), undir eins og brautin væri full- ger út til Lake Dauphin eða þeirrar grendar, var svo ákveðið, að ef Wpg. & Gr. N. félagið ekki bygði brautina til Dauphin í tæka tíð, en að til þess yrði annað félag, fengi það féiagið sem braut ina bygði, hinn ákveðna styrk. I sama skifti var endurnýjað leyfí félagsins, sem Greenway nú er að hjálpa, rétt eins og i því augnamiði,að það tæki við, ef Wpg. & Gr. N. bilaði. Það félag er nú að vísu að fá frest sinn til að byggja braut- ina lengdan, en það er nokkurnyegin auðsætt, að ekki verða báðar brautirn- ar bygðar á sama sviði sama sumarið, Eftir því sem Fisher hefir heyrt, er Greenwayfélagið nú þegar tilbúið að taka til starfa (undir eins og fylkisstjóri hefir staðfest lögin um styrkinn) og má því að líkum telja víst, að það verði á undan hinu með brautina út til Dauphin og að það svo auðvitað geri kröfu til $40,000 á ári í tuttugu ár úr sambands* sjóði. Fáist það, sem litlum efa sýnist undirorpið, eftir því sem um er búið.fær félagið hjá sambandsstjórninni nóg fé til að borga vöxtu af öllu stofnfénu á 100 mílum að minsta kosti og að auki $32,000 til $40.000 á ári frá Greenway- stjórninni. Af þessu er augsýnilegt, hve mikið lífsspursmál það var fyrir Greenway- sijórnina að taka upp á sig ábyrgð, er nemur alt að $2,200,000, til að fábraut bygða, sem er innan handar að verða á undan Wpg. & Gr. N. brautinni út til Dauphin og um leið að fá þann styrk sambandsstjórnarinnar, sem nægilegnr er til að borga vöxtu af sem næst öllu stofnfénu í brautinni sjálfrí um 20 ár ? Þegar þetta alt er athugað, þá er ekki undarlegt þó Mr.Fisher komist að þeirri niðurstöðu.að hér sé tækifæri fyrir hlut- aðeigendur að stinga í sína eigin vasa svo sem % milj. dollars í gulli, — að um- hverfa þessum væntanlega tvöfalda sjórnarstyrk í skotsilfnr handa sér. Þeir þurfalíkaaðvændumað “traktera” vinina sem flytja þessi mál á þingi og gera þeim mögulegt að græða fé þannig ákostnaðhins opinbera. Það hafði enginn á þingi á móti, að stjórnin styddi að byggingu brautar- innar, því að það er sjálfsagt enginn maður andvigur því, að járnbrautir verði sem flestar og mestar í fylkinu. Það er ráðsmenskan, sem fundið er að. Því verður ekki neitað svo gagnleg neit- un sé, að það lítur ískyggilega út, þegar ein stjórn eitt árið segir hóflaust að ábyrgjast 85,500 á míluna í járnbraut, sem innan tveggja ára hefði getað myndað óslitna braut að stórvötnunum og sem lofaði stórum niðursettu vöru- flutningsgjaldi, en mæla svo með, skil- yrðislaust, að því er þingi er kunnugt, að fylkið ábyrgjist $8,000 á míluna í braut, semekkihefirannaðsér tilágætis, en að hún leiðir að frjósömu héraði sem óðum er að byggjast, og að saltnám- um. sem þá verða ef til vill hagnýttar. Það er þýðingar mikil braut vitaskuld, en þýðingarmest þó fyrir ákveðið hérað, þar sem suðaustur brautin aftur á móti hafði mesta þýðinguna fyrir fylkið í heild sinni. Það er þess vegna ekki að ástæðulausu að mönnum virðist að hér sé fiskur undir steini. Það er vitaskuld ekki við fiðru að búazt. Járnbrauta ráðsmenska Greenways hefir öll verið þessu lík frá upphafi og hún vitanlega verður þannig til enda. Það kemur aldrei dúfa úr hrafnsegginu og aldrei heldur ærlegur járnbrautar samningur frá Greenway- Kosninga-lögin. Það kom til tals á fylkisþinginu, að breyta þe m hluta kosningalaganna, er höndlar um skrásetning kjósenda, kom fram formleg uppástunga um að hreyta aðferðinni. En einsog auðvitað mundi var hún feld með stórum atkvæðamun. Ráðherrarnir, einn á fætur öðrum risu á fætur og sögðu hin gildandi lög hin beztu sem fáanleg eru og það auðvitað hreif. Hvað svo sem skoðun fylgis- manna þeirra leið, ef þeir annars höfðu nokkra skoðun, var sjálfsagt að vera á sama máli og Greenway. Af því kjör- 3krárnar voru skammlaust útbúnar í stöku stað, fanst þeim það sönnun fyr- ir ágæti laganna. Það er með öðrum orðum, svo gott sem að segja, að af því lögin ekki banni réttlátum mönnum að gera rétt, þá séu þau eins vel ur garði gerð, eins og við verði búizt. Þeir héldu því og fram, ráðherrarnir, að þessir seinustu kjörlistar hefðu yfir höf- uð að tala verið einna bezt gerðu list- arnir í Canada. Þegar litið er á hvern- ig þeir voru úr garði gerðir f Norður- Winnipeg, þar sem um eða yfir 400 menn varu sviftir atkvæði; í Emerson þar sem 14 menn voru settir á kjörskrá, en sem enginn þekti; í Morris. þar sem fleiri tugir nafnkunnra bænda voru skildir eftir og þeir einir tíndír úr, sein kunnir voru að, að hafa skoðun and- víga stjórnihni; í Brandon, þar sem andvígismenn stjórnarinnar, sem nafn- kunnir eru í héraðinu, voru skildir eft- ir, en í þeirra stað settir á kjörskrá þeir menn, er samkvæmt lögunum áttu ekki kosningarétt; í Dauphin, þar sem 12 menn af 14 voru sviftir atkv. eftir að nafnkunnur maður í héraðinu hafði aflagt eið fyrir hvern einn út af fyrir sig. Yitandi af þessu og fleiru sams- konar halda ráðherrarnir því fram, að kjörskrárnar séu einar hinar beztu í landinu og þess vegna ekkert vit í að breyta lögunum. Sé það satt, að þess- ar síðustu kjörskrár séu einar hinar beztu í landinu, þá er ástandið sannar- lega ískyggilegt og því meiri ástæðan til að einhver byrji að breyta til batnað- ar, — að verða fyrirmynd. Sé það aft- ur á móti ekki satt, sannar það einu sinni enn, hve f rábær er ósvifni Green- wayinga í að fara með ósanninði. Blaðið “Free Press” erekki andvígt Greenwaystjórninni, en þó virðist því ástæða til að fara orðum um ]>etta mál á þessa leið : “Ef ráðherrarnir vilja einarðlega viðurkenna, að nú verandi aðferð við að safna nöfnum manna á kjörskrár sé hin hezta fyrir flokkinn, þá skilja menn almennt vel orð þeirra og vinir þeirra auðvitað mundu hrósa þeim fyrir. En að láta sem þeir vilji viðhald þessara laga, af því að þau séu svo réttlát f sjálfu sér, er nokkuð sem engan blindar. Því ef til eru nokkur lög frá þessari stjórn, sem ekki verða varin á nokkrum grundvelli opinberrar stefnu, drengskapar eða ráðvendnis til- finningar, þá eru það þessi lög. Það væru yfirgengileg lög alveg, ef sam- kvæmt þeim væri ómögulegt að búa til rétta kjörskrá. Vér getum ekki hugs- að oss þá ráðherra, sem bæru fram, né það þing, er samþykti lög, sem í heild sinni væru vond lög og væru þannig viðurkend. Þó var það eina vörnin, sem einn ráðherrann bar fram um dag- inn, að þessar kjörskrár “væru nærri almennt góðar”. Þær geta verið góðar í 39 kjördæmum af 40, en ef kjörskráin er illa gerð f því eina og er það þess vegna að lögin ekki einungis leyfa, en jafnvel hvetja til iflrar breytni, þá er það eina tilfelli nóg til að sverta öfl lög- in. Það dettur engum i hug að kjör- skrárritararnir í öllum 40 kjördæmun- um séu hlutdrægir menn, ekki einu- sinni að meiri hluti þeirra sé það, og noti vald sitt til að fara illa með það og svíkja andvígfsmenn sina. En af þess- um 40 er oft einn og enda fleiri menn, sem þetta gera. Það er enda álitið, að sumir miður ærukærir, væntanlegir umsækjendur, leiti uppi þá menn sem þetta vilja gera og fái þá setta í þessa stöðu, af því þeir vita að þeir hafa vilj- ann. Lög sem leyfa annað eins verða ekki varin með nokkrum skynsamleg- um ástæðum”. ÍSLENZKB LÆKNIR DR. M. HALLDORSSON, Park River — N. Dak. Smásálarleg, og það rétt yfirgengilega, er aðferð Bandaríkja-þingsins í málinu um skaða- bótagreiðslu til Canadiskra selaveiðar- manna. Það skaðabótamál er þannig til orðið, að þegar James G. Blaine var formaður utanríkisstjórnardeildarinnar í Washington, gerði hann kröfu til, að Bandar. ættu meir en helming Bærings- sunds og í því skyni að sanna rétt sinn til að bægja erlendum selaveiðarmönnum burt þaðan, lét hann taka föst um 20 canadisk selaveiðaskip í sundinu, er ekki voru látin laus aftur fyrri en eftir mála- rekstur mikinn og langan tíma. Þegar sýnt var og sannað, að þessi krafa gat ekki staðist, krafðist Blaine eignróttar á öllum selum við Prebyloff-eyjarnar, vestur af sundinu. Allar þessar kröfur reyndust ógildar á Parisar-fundinum 1891. Af því leiddi að Blaine breytti ólöglega, er hann tók föst skipin og varð Bandaríkjastjórn að greiða skaðabætur fyrir, Komu stjórnirnar séreftir nokk- urn tíma saman um, að sanngjörn upp- hæð sem skaða bætur væri $425,000. Á síðasta þjóðþingi Bandaríkja var feld uppástungan um að veita stjórninni fé til að greiða þeDa. Þegar yfirstandandi þing kom saman rnæltist Cleveland forseti til, að skipuð yrði nefnd til að rannsaka [etta mál og hafa nauðsyn- legar framkvæmdir á hendi, eins og samið liafði verið um á Parisarfundin- um, ef hlutaðeigandi stjórnir kæmu sér ekki saman. Eftir all-miklar um- ræður og óviðkomandi ónotum um Breta og þarafleiðandi Canadamenn, neitaði efrideildin að framfylgja þessum boðum Parisar-fundarins, að skipa nefnd með úrskurðarvaldi, nema með þeirri við- aukagrein, að Bandaríkjastjórn einnig bæti samskonar skaða sínum eigin þegnum. Með þessu móti er settur þrepskjöld- ur á veginn.sem óséð er hvernig Bretar komast yfir. Það geta ekki aðrir en Bandaríkjastjórn og þing gert út um skaðabætur sinna eigin þegna ogþað ætti að vera óhætt að treysta þinginu til að bæta þeim tjónið. En að setja þau skilyrði í samning, sem Bretastjórn verður að samþykkja undir eins og Bandaríkjastjórn gerir það, gerir Breta- stjórn helzt ómögulegt að eiga nokkuð við málið eins og það nú erkomið. Hve smásálarleg þessi aðferð er sézt best þegar athugað er, hvað Bretar möglunarlaust greiddu hinar ranglátu Alabama-skaðabætur, $15| milj. Að sá úrskurður var ranglátur er auðsætt af því að Bandarikjastjórn hefir enn ekki tekist, eftir 23 ár, að finna rétta eigendur að $9 milj., en geymir þærí fjárhirzlu sinni, þrátt fyrir að sú upp- hæð er virkileg eign Breta, úr því eftir öll þessi ár, að ómögulegt er að finna menn, sem geti gert kröfu eftir því fé, eða nokkrum'hluta þess. Sem sagt greiddu Bretar þetta fé orðalaust og tafarlaust, vitandi að upphæðin var hófleysislega mikil. En hér dregur Bandaríkjastjórn, eða öllu heldur þing, ár eftir ár að borga svona litla upphæð, en sem erindrekar hennar á Parisar fundinum viðurkendu sanngjarna. Þessi útreið málsins um daginn er aðal-lega einum manni að kenna, fylli- boltanum alkunna, senator John T. Morgan frá Alabama. Hann er mikil- hæfur maður og einn af leiðandi mönn- unum í efrideild þrátt fyrir svallið. Hann er einn í flokki þeirra, sem verður stjórnlaus ef hann heyrir Breta nefnda á nafn, rétt eins og mannýgu nauti verður við að sjá rauða dulu. Að svona er komið málinu er honum aðal-lega að kenna, en engin virðist vita í hyaða tilgangi hann kemur þannigfram.hvort helduríþeim, að stríða fjandmönnum sínum, sem honum finst allir brezkir þegnar vera, eða í þeim tilgangi, að full- nægja eðli sínu og svíkjastum að borga allar lögmætar skuldir,við öll tækifæri? Hvort heldur sem er, er þessi dráttur, þessar flækjur og vöflur smásálarlegri en svo að hún sómi jafn virðingagjarnri þjóð og er þjóð Bandaríkja. A Þýzkalandi. í blaðinu “Post” í New York stóð nýlega ritgerð, er lýsti því ágætlega hvernig rit og ræðu frelsi virkilega er á Þýzkalandi um þessar mandir. Er því haldið fram,að málfrelsi hafi í raun- inni verið meira undir stjórn Lúðvíks 14, á Frakklandi fyrir 200 árum síðan, en það er nú á Þýzkalandi undir stjórn Vilhjálms spaka, eða Vilhjálms keisara ferðalangs. Eftirfylgjandi eru nokkur sýnishorn af almennu meðferðinni á mönnum, sem þykja hafa talað óvirðu- lega um hans hátign, keisarann. I síð- astl. Október var þýzkur maður frá Bandaríkjunum staddur í Köln og var að tala um stjórnarfyrirkomulagið í Bandaríkjum, og sem vita mátti hældi hann því. Mitt í ræðunni kom honum i hug að minnast eitthvað á Þýzkalands stjórnina, og byrjaði þannig .' “Hvað snertir keisarann”. Meira sagði hann ekki. Datt þá í hug, að viðstaddir kynnu að vera njósnarmenn. Braut svo upp á öðru málefni. Stuttu síðar sannaðist að njósnari var viðstaddur. Þegar sízt varði var hann tekinn fastur dreginn fyrir dómstólana og dæmdur í 3 mánaða fangelsi fyrir það, sem hann hafði sagt um keisarann, eða öllu held- ur fyrir það sem álitið var að hann hefði ætlað að segja um hann. — Á skemtigöngu varð einum manni að segja: “Hvaðj. heimskingi Kaiser er”, —átti við mann sem hét því nafni. Við- staddir njósnarmenn fóru eftir fram- burði orðsins einungis og var hann dreginn fyrir dómstólinn. En þar tókzt honum að framfæra skýlausar sannanir fyrir því, að hann hefði átt við ákveð- in mann, en ekki keisarann, og slapp. —Ef ritstjórar blaða rita ekki með því meiri gætni um stjórnmál, eru þeir sekir í að hafa óvirt keisarann, og eru þegar hneptir í fangelsi. Er þar nú i seinni tíð svo hart eftir gengið, að þeir fá ekki lausn gegn ábyrgðargjaldi, en mega taka til starfa sem glæpamenn og i fangelsisskrúða sinum, með látúns- númer stór yfir þvert brjóstið, verða þeir að mæta fyrir rétti þegar þar að kemur. og sýkna sig sem bezt þeir geta eða lialda áfram fangelsisvistinni. Þotta ástand segirblaðið að sé aðal- lega tveiinur sigurvinningum að kenna, á árunum 1866 og 1870. Keisaraveldið hefði þá ósjálfrátt umhverfzt í eina sameiginlega herbúð. Hermennirnir hefðu orðið alt, en allir aðrir menn einskisvirði, ekki til neins nema að þjóna liinum göfugu hermönnum og tala og rita eins og þeim gott þykir. Af þessum hermenskuanda leiði það, að þessi hálf-einfaldi ungi maður, er nú stríðsherra sá, sem enginn má anda á, nema úttaka glæpamanna hegningu fyrir. Svo endar blaðið ritgerðina með því, að gera áætlun um það hvernig Bandaríkin tækju sig út ef samskonar andi næði að festa rætur þar. Og af þessum niðurlagsorðum í greininni má ráða hvert álit þess er : “Vér yrðum helmingi ærðari yfir sigurvinningunum en nokkurntíma Þjóðverjar, af því vér iðkum ofsa. Vér mundum gera ræka úr landinu eða hneppa í fangelsi alla sem vönduðu um viðoss, eða framsettu aðra skoðun en vér. Vér mundum inn- an skamms eignast “stríðsherra”, sem mundi halda oss við með orustum og hneppa oss í fangelsi, hvenær sem vér hefðum á móti að ganga út til að vera drepnir. “Hundarnir ykkar!” mundi hann segja, eins og Friðrik mikli einu sinni sagði við hermenn sína, þegar þeir hikuðu við að leggja í óráðlegt áhlaup, “hugsið þið ykkur að lifa æfinlega !” Ura siglingar á Hudsonsflóa og járnbraut þangað. Eftir M. T. Spursmálið er um, að koma afurð- um vesturríkjanna með sem stytztri leið til sjávar. Spursmálíð er ekki að eins fyrir alt norðvesturCanada, heldur og líka vesturriki Bandaríkjanna, og þetta spursmál er orðið Þýðingarmikið efni alls bændalýðsins í þessum ýmsu héruðum. Þegar athugað er, að hart nær allur ágóðinn, sem bóndinn hefir af að yrkja landið, framleiða gangandi pening o. s. frv. lendir í flutninnsgjald- ið til hinna eystri markaða, þá sér mað- ur bezt, að hér er um alvarlegt og þýð- ingar mikið spursmál að gera, og þess fyrr sem það verður ráðið, þess betra, sökum hagnaðarins og nauðsynarinnar, sem fyrir því er. ,'Á- Taki maður sór til [leiðarvísis ogat- hugunar landabréf Norður-Ameríku, getur maður fljótlega séð þau fylkin. eða ríkin. hverra takmörk eru nær Hud son-flóanum, en hafnstaða við Atlants- haf. Alt það landflæmi, sem að meira eða minna leyti verður nær Hudson- flóanum, er, eins og áður er sagt, ekki að eins alt Vestur-Canada, heldur og meiri hlutinn af aðal hveiti- og gripa- afurð ríkja lýðveldisins fyrir sunnan okkur, meiri partur Kyrrahafsstrandar innar og jafnvel Arizona er nær Port Nelson við Hudsonflóann, heldur en New York eða Boston. Nákvæmúr út- reikningur vegalengdar sýnir, að Win- nipeg er 800 mílum nær Liverpool til og frá Hudsonflóanum, en með St. Law- rencé lands- og sjávar-leiðinni. Frá Winnipeg til Quebec eru 1596 mílur ; frá Quebec til Liverpool 2,660 mílur; frá Port Nelson til Liverpool 2, 900 mílur; frá New York til Liverpool 3000 mílui, frá Omaha (Nebraska) til New York 1450 mílur og frá Omaha til Port Nelson 1100 mílur, sem sýnir, að staðir lengra vestur hefðu meiri ábata af að flytja afurðir sínar með Hudson- flóa-braut, en gegn um hafnstaðina austur við Atlantshaf. Ef maður telur svo stig suður og norður breiddar á hnattbréfinu, sér maður fljótt að fjöruborðið hjá Port Nelson norður við Hudsonflóa er miklu nær manni hér, en fjöruborðið er aust- urvið Quebec eða Atlantshafsströnd, og um leið sér maður, að sínu leyti eins tijótt þann peningahagnað, er fengist .við að geta flutt afurðir Vestur-Ame- ríku með hinni norðlægu ieið, heldur en þeirri eystri. Það er víst, aðfjölmargir hugsandi, vinnandi menn í öllum vestur og norð- urhluta þessa meginlands, viðurkenna nauðsyn fyrir járnbraut norður að fló- anum, til að stytta leiðina, til að minka kostnaðinn, með því afurð semjviö höf- um, sem miklir eru, til neýtendanna í gamla heiminum, sem margir eru. Því hefir þá brautin ekki verið bygð ? Sem svar upp á það má tilfæra það aðallega, að flóinn væri svo fullur af ís, nema 4—5 mánuði af árinu, að það borgaði sig ekki að leggja brautina, þar sem tíminn væri svo stuttur, þar á ofan hættuleg skipaleið, og tálmanir ef til vill miklar ! Menn þykjast samt vissir um það, að engin skýrteini séu til, er sýni, að ekki sé skipaleið opin 8—10 mánuði af árinu, frá Júní byrjun og það til Marz loka. Látum okkur snögglega athuga hvað ýmsir menn hafa að segja um sigling eða opna skipaleið á flóanum. Menn sem bæði voru í leiðangrum þeim sem sambandsstjórnin hefir sent þang- að norður og eins menn úr þjónustu Hudsonflóafélagsins o. fl. Skýrslur þeirra og frásagnir munu sýna annað, en það sem alt af liefir verið látið klingja í eyrum, að flóinn væri frosinn eða fullur af ís, nema liðlega þriðjung af árinu. D. J. Beaton (sem varí norðurför þeirri, sem stjórnin sendi 1885), segir : “Snndin eru opin frá Maí til Nóvem- ber , eða 7 mánuði. Capt. W. Kennedy (sem var fyrir einum þeim leiðangri, er gerður var út til að leita að Sir John Franklin og hafði 8 ára reynslu þar nyrðra fyrir sér) segir: “Um sundið má sigla frá 1. Júní til Desember loka”, eða 6 mánuði. Capt. W. Wackland (með 39 ára reynslu þar norður frá í þjónustu Hudson Bay félagsins) segir : "Sundin frjósa aldrei landa á milli, að því sé ekki ástæða fyrir að gufuskip með nýjustu og viðeigandi gerð, geti ekki siglt þar um á hvaða tíma árs sem er”. Capt. J. J. Barry (yiirmitður I stjórnarleiðangrinum 1884—'B5 og ’86), segir: “Eg álít að liafskip geti farið um sundin frá byrjun Júní og þar til soinast í Desember”. C. R. Tuttle (rit- ari norðurferðar stjórnarinnar 1884) segir: “Ég álít að öllum skipum só fært 9 mánuði af ári”. Dr. Bell segír, að árið«em hann var þar nyrðra hafi meðal vatnshiti í flóanum verið 53 stig á Farenh.; til samanburðar var vatns- hiti Superior-vatnsins 39.5 stig á Far. um sama leyti, og verður þá vatnið í Lake Superior,sem er450 mil. sunnar á sama stigi austur og vestur lengdar, 14 stigum kaldara en vatnið í Hudson flóanum. Um siglingar á Hudsonsflóanum sjálfum segir Lieut. Gordon (í skýrslu sinni til neðrimálstofunnar á þingi Can- ada) “Flóinn er siglingafær alt árið um kring,” og hann kallar hann “stór- &n poll með tiltölulega volgu vatni.” Capt. Lopp, gamall yfirmaður í sjóflotanum,. sem var í einni norður- ferð sem stjórnin sendi, segír : "Hafís- inn sem sést á flóanum, og sem lands- menn álíta mjög hættulegan, er í sjálfu sér alls ekkert hræðilegur, einkum af því, að sundin eru svo breið ; ég vil held- ur sigla um Hudson-sundin, heldur en Englands-sund.” Sir Edward Perry er kom úr norðurferð sinni 1823, segir : “Hudsonssundin eru hér um hil 500 mil- ur á lengd, vatnsdýpið í miðjunni er yf- ir 300 faðmar.” Aðrir höfundar segja, að öldur á sundunum rísi frá 30 til 70 fet á hæð, og það sé vegna þessara háu boðamynd- ana og strauma í sundunum, að sam- frysting ísa komi aldrei fyrir landanna á milli. Hvergi eru sundin breiðari en 6o mílur, né mjórri en 40 mílur, sem ekki er álitin of mikil vegalengd til að reisa vitastöðvar, sem ekki að eins leið- beintu skipum, heldur og líka yrðu not- aðar til að athuga ísmyndun, harða strauma o. s. frv. Ýmsir menn (aðrir en úr herflotan- um), svo sem hvala og selaveiðamenn, segja að sundin sóu opin alt árið, og það annars virðist vera fengnar nægar sann- anir fyrir því. að ís og tálmanir á flóan- um eða sundunum, mundu ekki geta tálmað skipum að sigla þar um með ajl- an þann flutning, sem berast með einni járnbraut,—nei, þótt tvær væru. Braut in mundi óefað borga sig, og bændur fengju meira fyrir hvert eitt og einasta bushel af hveiti og hvern nautgrip eða kind sem þcir seldu. Sir W. Van Horne, sagði í vor er leið að Hudsonsflóabraut mundi ekki borga fyrir “áburð á hjólin” livað þá meir. Það væri auðvitað að brenna merg úr beinum C. P. R., að byggja braut til Hudsonsflóa, því gullnáma þess félags er Manitoba og norðvestur- landið, og það er fjöldi af austurfylkja- mönnum (sérgóðum, fjárdrægum) sem Niðurl. á 4. bls.

x

Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.