Heimskringla - 23.03.1896, Page 1

Heimskringla - 23.03.1896, Page 1
X. ÁR. NR. 13. WINNIPEG, MAN., 26. MARZ 1896. FRETTIR. DAGBÓK. FIMTUDAG 19. MARZ. Um 50 mikilhæfir menn í Barula rikjum liafa sent út boðskap til manna ■um að mæta á fundi í Washington 22. og 2ii. Apríl næstk.. til að mæla með að á komist sáttanefnd, er skeri úr öllum þrætumálum sem upp kunna að koma milli hinna ensku-mælandi þjóða. Meðal þeirra 50 manna, er skrifuðu undir fundarboðið, er há-yfirdómari við hæztarétt Bandaríkja, Medville W. Fuller. Fulltrúarnir á fundinum er ætlast til að verði jafnmargir þingmönn- um í báðum deildum þjóðþingsins. Bandaríkjastjórn veitir fó til að koma upp 15 Torpedo-bátum, og er nú hugmyndin að smiða þá þannig, að ef á þurfi að halda megi draga þá eftir Erie- skurðinum upp á stórvötnin. Nýrri uppreistarmannaherferð lief- ir verið lileypt af stokkunum í Suður- Ameríku. í þetta skiftið í Bolivia. Kappræða átti sér stað í gær á þingi Breta út af frumvarpi, sem fer fram á að ailar erlendar matvörur séu merktar, sem viðurkenning þess, að þær sóu ekki eins góðar og samskonar innlendar vörur. Sérstaklega var það kjötmatur, ostur og þyl. sem tíðrætt var um. Stjórn Frakka er sáróánægð yfir herferð Breta upp um Egyftaland og þykir engin þörf á henni. Ber hún það einkum fyrir, að kostnaðurinn sem leiði af herferðinni megi ekki skella á herðar Egyftalandsstjórn og gefur í skyn að Frakkar, sem meðal annara hafa á- byrgst vexti af skuldafé Egyfta, muni andæfa því. FÖSTUDAG 20. MARZ. Sú skoðun útbreiðist í London, að Bretar séu virkilega að einhverju leyti orðnir háðií þremenninga-bandalaginu. Er sú trú meðal annars byggð á nokkr- um orðum, sem glöppuðust út úr ut- anríkisstjóra Salisburysá þinginu, *** í allan gærdag var jagast um Cuba- málið í efrideild Washington-þingsins og var málið jafnnær endilegum úr- skurði þegar fundi var frestað. Herkostnaður Spánverjaá Cuba er nú sagt að nemi alt að $1 milj. um vik- una. Uppreistin og stríðið hefir nú staðið yfir nokkuð meira en árlangt,— var hafið 24. febr. 1894. — Spánverjar kvað nú vera farnir að sjá og viður- kenna að ómögulegt verði að kefja uppreistina nema með stór-auknum herafla og með því. að lokað só öllum höfnum á eyjunni fyrir erlendum skipum. 100 mflur af rafmagnssporvegum á nú að fara að leggja um Vínarborg í James E. Xicholson. Nærri ótrúlcgt. Mr. Jos. E. Nicholson, Florenceville, N. B., þjáðist í sjö ár af krabbameini í vörinni og batnaði af AVETD’Q Sarsa- M T LLTa O parilla. Mr. Nicholson segir : “Eg fór til lækna, sem gáfu mór meðöl, en það hafði enga þýðingu, krabbinn fór að grafa um sig og færðist út á kinnina, og þannig þjáðist ég í heil sjö ár. Lok-s fór ég aö brúka Ayer’s Sarsaparilla. Innan viku fann ég á mér töluverðan bata. Við þetta óx mér kjarkur svo ég hélt áfram, og eftir mánaðar tíma var sárið á kinninni á mér farið að batna. Eftir þrjá mánuði fór vör- h> að gróa, og eftir G mánuði voru öll einkenni sjúkdómsins horfin.” AYER’S SARSAPARILLA HIN EINA Á SÝNINGUNNI. Ayer’s Pills lækna innýflin. Austurríki og verður mikið af þeim i jarðgöngum undir strætunum. Rússar og Frakkar eru að sögn að vinna að því, að Ítalía verði gerð ræk úr þremenninga-bandalaginu. Senator Wm. E Chandler frá New Hampshire hefir komið fram með laga- breytingu, er fer fram á, að alþýða kjósi Bandaríkja forseta, enekki fulltrúa til að geta það fyrir sig eins og nú er; að hún ennfremur kjósi efrideildar þing- menn. sem nú eru kjörnir á ríkisþing- um. Ennfremur á alþýða að kjósa vara-forseta, dómara og póstmeistara. Alia þessa menn á aiþýða að kjósa í sama skiftið og á sama hátt og liún kýs þjóðþingsmenn sína. LAUGARDAG 21. MARZ. Eftir að sambandsþing Canada hafði setið og rætt um umbótalögin i 39 kl.stundir samfleytt, frá miðviku- degi til föstudagsmorguns kl. 6, var loksins með 112 gegn 91 atkv. sam- þykkt að lesa frumvaryið yfir í annað sinn. Breytingaruppástunga Lauriers, sú um að geyma frumvarpið í 6 mánuði, var feld með 115 gegn 91 atkv. Atján stjórnarsinnar greiddu atkvæði gegn stjórninni, og 7 andstæðingar hennar fylgdu henni í atkv.greiðslunni. Þessi fyrirhuguðu lög verða aðal-umræðuefni þingsins alla næstu viku og sitja fyrir öllum öðrum málum. Eftir 3 daga kappræðu um ráðherra Bandaríkjanna á Englandi, var í gær- kvöld viðtekin ávítunar-tillaga, “í nafni Bandaríkjaþjóðar”, með 180 gegn 77 atkvæðum. Fimm repúblíkar slitu af sér flokksböndin og greiddu atkvæði gegn tillögunni, en 6 demókratar gerðu sér þá vanvirðu að greiða atkvæði með lienni. Menelek Abyssiniá-konungur er til með að semja við Itali um sátt og sam- vinnu, þó því að eins að Italir borgi honum 40 milj. h'ra s%m skaðabætur. Herferð Breta til upphérrða Nílár- dalsins var aðal-umræðuefnið á þingi Breta í gær. Af ræðum þeirra Chamber- lains og Balfours ráða sum blöðin að fyrirætlan Breta sé að vinna alt Súdan- hérað undir Egyftaland. Alexander M’Lachlan, einn hinna nafnkunnueldrilyrisku skálda í Canada, lézt að heimili sínu í Orangeville, Ont, í gærdag. MÁNUDAG 23. MARZ. Stórhríðar og ákafur snjógangur í austurhluta landsins hvervetna um undanfarna daga. Lestagangur í Ont- ar.o var nærri algerlega bannaður á föstudag og laugardag. Menn þar muna ekki annaðeins veður á þessum tíma ársins. I stjórnarsetrunum í Evrópu er nú sem stendur Jekki um annað talað en herferð Bret.a til Súdan. Svo vel er búið um málið af hálfu Breta, að Frakkar og Ilússar eru ráðalausir, en vilja þó gjarnan kom Bretum í klípu. Hin stórveldin öll eru samþykk. Eftir fregnum frá Washington að dæma eru nú Bretar og Bandaríkja- menn sáttir og sammála rð því er snert- ir úrlam-n landamerkjaþrætunnar í Venezuela, Báðir kvað viljugir að slaka til og er því öll von að þrætan verði útkljáð friðsamlega. Repúblíkar í Indiana vilja undir engum kringumstæðum sleppa Harrison úr forseta-sókninni. Sjálfur kveðst hann óviijugur að sækja í annað sinn, en ráði Indiana-menn verður hann neyddur til þess. Andvígismenn Italíu - stjórnar á þingi andæfa af alefli öllum tilraunum stjórnarinnar í þá átt að halda áfram hernaðinum í Abyssiniu. I'eir heimta friðarsamning, hvað sem hann kosti, ÞRIÐJUDAG 24. MARZ Sambandsþingskosningar nálægar. Stjórnarformaður Sir McKonzie Bowell tilkynnti það í gær í efrideild sambands- þings, sein svar uppá spurningu, að stjórnin liafi afráðið að láta æfi þings- ins enda 25. Apríl næstk., án tiliits til úrskurðar hæztaréttardómaranna, sem enn er ókominn. Enn þá er rætt um Cuba-málið í efrideild Washinton-þingsins. í gær var borin fram spáný tillaga í því ináli þannig, að Bandaríkjastjórn skyldíí biðja Spánverja að veita Cubamönnum sjálfsforræði, og að, ef Spánarstjórn neitaði því, skyldi forseta Bandaríkj- anna falið á hendur að taka Cuba með ofbeldi og lialda henni og verja hana þangað til eyjarskeggjar iiafi organi sérað iögmæta stjórn og að sjá um að Cuba-menn framvegis liafi nægan her- aila og vopn til að verja sig. Frumvarp til iaga, sem ákveður viðvarandi bann gegninnflutningikvik- fénaðar frá útlöndum, var lesið í annað sinn á þingi Breta í gær. Eru því aliar líkur til að það frumva.p öðlist lagagildi og þykir útlitið þar atíeiðandi æði ljótt, bæði liér í landi ogenda víðar. Á pólitiskum fundi í Quebec-fylki á laugardaginn var sagði lautenant Lauri- ers, J, Israel Tarte, "að Sir Oliver Mowat yrði lautenan, Lauriers í Ontario í komandi sambandskosningum og að orustan í komandi sókn yrði öll um og útaf skólamálinu. Stjórnarblöðin á Spáni skora á Bandaríkjastjórn að kasta grímunni og koma fram í sínum rétta lit. Vilji hún stríð séu Spánverjar tilbúnir hvean dag sem er. MIÐVIKUDAG. 25. MARZ. Transvaal-menn búa sig i stríð kapp samlega og hafa sent umboðsmenn til nágrannahéraðanna, í því skyni að æsa íbúana gegn Bretum. Sem stendur eru menn nú sem óðast að víggirða stjórn- arsetrið Pretoria, Fregnir frá Ottawa segja að nú sé alt útlit f.vrir að ómögulegt verði að fá umbótalögin samþykt, enda þó stjórn- in ætti að gera alt sitt til þess, til þess lögin séu tilbúin að ganga í gildi hve- nær sem vill, ef ekki gengur saman á Winnipeg-fundinum. Herhvöt mikla flutti senator R. Q. Mills frá Texas .á þjóðþingi Bandaríkja í gær. Sagði skömm hvað lengi Banda- ríkjamenn liðu Spánverjum æðisgang- inn á Cuba. Frá löndum. WESTBOURNE, MAN., 12. MARZ. Hér iíður öllum vel það ég frekast veit. Veðurátta köld og hrein, það sem af er þessum mánuði. Síðustu dagana af Febrúar var bliðviðri og tók upp mikið af snjónum. — Misjöfn hefir fiski- veiðin verið hér í vetur, þó hafa allir að ég held haft upp kostnaðinn og sumir meira, því prís hefir verið allgóður, 4 cents pd. í hvítfiski (sá stærsti slægður) “pækur” gengið í búðir fyrir 1 cent pd. Hér hafa verið lialdnar 8 danssam- komur og hafa þær allar að sögn farið vel fram og verið vel sóttar. Nú eru mælingamenn komnir hór og teknir til verka og ætla að sögn að mæla landið meðan frost er í jörðu. — Misj’afnlega “koma menn út”, lenda sumir á járnbrautarlandi, aðrir á Hud- son Bay félagslandi, en nokkrir á heim- ilisréttarlöndnm og telja þeir sig lieppna. Margir eru mjög glaðir yfir að sjá hina nýju Dauphin-braut á “pappírnum” og vona fastlega eftir framkvæmdum í þvi máli á næstkom- andi sumri. ÚRBRÉFI ÚRÍSLENDINGABYGÐ- INNI í ALBERTA, DAGS. 9. MARZ : ....“Tíðín var indæl nærri allan Febrúar út; frá 24. til 28. asa-hláka og leysing, svo að ís leysti af Red Deer- ánni; hefir slíkt ekki komið fyrir áður, síðan Islendingar tóku sér bólfestu hér. Síðanhefír verið kaldara, skitti um veð- ur og gerði snjó að kvöldi hins 28. f. m. Snjór er nú svo að sleðafæri má heita. —Heilsufar alment, gott og höld búpen- ings hin beztu. — Skemtanir hafa verið öðruhvoru í vetur, svo sem dans-sam- komur, og á laugardagskvöldum kapp- ræðufundir. En elcki taka aðrir þátt í þessum samkomum, en uppvaxandi kynslóðin og unga fólkið í heiid sinni. Kvennfélag hafa nokkrar konur stofn sett rétt nýlega og búast menn við góðri skemtisamkomu undir umsjón þess, áður en langt um líður. Þeir sem hóðan hafa skrifað í blöð- in að undanförnu hafa fátt sagt um smjör- og ostagerðina. Menn forðast að minnast á bana og er liún þó aðal- verzlun nýlendunnar, undireins og hún er um þessar mundir aðal-áhugamál þjóðarinnar. Má sjá það af því hve stjórnirnar láta sér ant um að fá bún- aðaraðferðinni breytt og meira hugsað um smjör- ogostagerð, en gert er. Að svo er lítið sagt um smjör og osta gerðina liér, er auðsæ lega af þvi, hve illa hún hefir gengið, að þ'd er snertir stjórn félagsformannanna loforð þeirra, er allflest hafa reynzt svik, og þar af leiðandi tjón hluthafa og þeirra er hafa liaft skifti við félagið. Sem dæmi um aðfarir félagsstjórnarinn- ar má geta þess, að þvert á móti lögun- um hefir aldrei verið hafður ársfundur; þegar nefndin, sem í fyrstu samanstóð af 9 mönnuin, þó nú séu ekkieftir nema 5, hefir fundi, eru þeir haldnir fyrir lukt um dyrum. F^lagsmenn vitaþví aldrei hvaðgerist, nema hvað nefndarmenh spgja þoim, en þeir segja sinn livað, alt cftir því sem “andinn hlæs þeim í brjóst”. Það er alt eftir þessu að þvi er stjórn fólagsins snertir”. EIMREIÐIN. Fyrsta hefti hins 2. árgangs er nú út komið.og er enginn eftirbátur áður útkominna hefta, hvort hcldur að at- liugað er efni eða frágangur. Er inni- haldið sem hér segir : “Landsréttindi Islands og stjórnarbarátta,” fyrirlestur eftir ritstj., er áður liefir verið minst á i Hkr.; “Hafnarlif,” 3. ritgerðin um það efni, eftir Jón Jónsson og fylgir mynd af háskólanum og bókhlöðunni; “Sig- rún,” skáldsagíj eftir Guðm. Friðjóns- son; “Mór og kol,” vísindaleg ritgerð, hin önnur um það efni, eftir Helga Pét- ursson; “sýnishorn af ljóðagerð Norð- manna á þessari öld,” yndislegt kvæði eftir J. S. C. Velhaven, úr kvæðabálki hans : “Afturelding Noregs,” í ísienzkri þýðingu eftir Matth. Jochumsson,—von á meiru f sömu átt í næsta hefti Eimr.: “Kvennasýningin i Khöfn 1895,” með myndum : íslenzkri konu í faldbúningi og grænlenzkum stúlkum tveimur, eftir Boga Th. Melsted; “Ludvig F. A. Wimmer,” æfiágrip með mynd þessa nafnfræga háskólakennara, eftir Br. Finn Jónss. “Þrjár helgisögur”, eftir Viggo Stuckenberg, í íslenzkri þýðing eftir ritstj.; “Bjarni Rektor í Sunnan- anfara”, gagnrit, eftir Pál Melsted; “Merkileg uppgötvun”, um X-geisla Röntgens, með mynd af mans liendi, eftir Nikulás Runólfsson og skýringum eftir ritstj.; “Skóli lífsins”, — brot úr ritgerð eftir Tlios. Huxley, í ísl. þýðing eftir ritstj.; “íslenzk hringsjá”, eftir ritstjórann. Þessi árgangur tímaritsins verður 3 hefti alls, hvert jafnstórt og þau í fyrra (80 bls.) og er verð þeirra hið sama —40 cents, ef borgað fyrirfram, annars 50 cents. Fyrsta árganginn geta nú þeir er vilja fengið keyptan í einu lagi, hefir verið endurprentaður — fyrir 60 cents allan árganginn, fyrirfram borgað. Hra. kaupm. Jakob Gnnnlögsson, Nansensgade 46 A,, Köbenhavn K., hefir framvegis á hendi aðal-aígreiðslu “Eimr.” ogber mönnum að snúa sér til hans með pantanir. Hra. H. S. Bardal er útsölumaður- hér í Winnipeg. StHinanfari. ‘ Janúarblaðið flytur velgerða mynd af Brynjólfi Sveinssyni Skálholtsbysk- upi (fæddur 1605 dáinn 1675). Jafn- framt flytur blaðið tvö kvæði eftir hann (á latínu og í islenskum þýðing- um). og nokkrar smásögur af honum. Meðal þeirra er þessi: Brynjólh byskupi var á alþingi 1645 falið áhendur að geyma Svein skotta son Axlar-Bjarnar, ónytjung hinn mesta og óhræsi, og átti að reyna að snúa honum til nokkurs betra líf- ernis. Það tókst ekki. Ritar byskup þá til þingsins 1646 meðal annars svo : “Þessi auma og fáráða manneskja hefir svo leingi í hirðuleysi, forsmán og foröktun guðs heilaga nafns og ha,ns orða og sakramenta mestan sinn aldur alið, og sig í djöfulsins ríki og íþróttum iðkað á margan hátt með ókristilegum lifnaði og vondum athöfnum, sem næsta því öllu stiptinu og jafnvel hinu mun kunnugt og opinbert vera, svo hann um þann langa tíma meir og meir hefir fjarlægzt vorum guði, en samlag- azt djöflinum og lifað sem einn holdleg- ur djöfull í margan máta, snarað frá sér umþyggju sinnar sálulijálpar og sins viðskilnaðar við þetta lif, auk ann- ara stórglæpa, sem lionum mega kan- ske á hendur bevísast, og hérverða ekki frana taldir... Svo er nú þessi maður guði og yður afhentur til þeirrar að- gerðar ogréttar, er heilagur andi gefur náð til, en kirkjan tekur af honum sitt varðliald, og ábyrgist yður. hvern hún hefir geymt hér til, upp á rétt vegna ó- guðlogs framferðis, livar á guð alls- mektugur honum og öðrum bót vinni”. I blaðin' ’ r>r bvrjun á sögu : “Veik inda-sumariö”, eiur r-oistein Gislason, þar sem lýst er uðferðinni við að út- breiða sóttnæma sjúkdóma á íslandi. Lögfræðisprófs fyrra hluta tók Odd ur Gíslason frá Lokinliömrum 9. Jan. með 1. eink. Marino Hafstein 17. Jan. 2. einkunn. Læknisfræðisprófs fyrra hluta tók Sromundur Bjarnhéðinsson og Kristján Kristjánsson í Jan. með 1. eink. Fjöllistaprófs fyrra hluta tók í Jan. Sigurður Pétursson frá Ánanaustuin íueð 2. eink. hárri. Lögfræðispróf algert tók 4. Febr. Björgvin Vigfússon með 2. einkunn. ÍSLENZKR LÆKNIR DR. M. IIAILDORSSON, Park River — N. Dak. Kennari getur fengið stöðu við Thingvalla skóla fyrir 6 mánuðl; kennslan byrjar lð.Apr. næstkomandi. Umsækjandi verður að hafa staðist próf, og fá “certeficate” sitt samþýkt af kenslumálastjórninni í Re- gina. Gott kaup borgað kennara sem holdur 1. eða 2. class certificate. Send- ið tilboð yðar strax. Öllum umsóknum svarað fljótt. Churchbridge, Assa, 29. Febr. 1896. G. Narfason. TAKIÐ EFTIR! Ég hefi nýlega sett upp búð á horn- inu á Nellie Ave. og Ness Str., og von- ast eftir að geta selt eins ódýrt og aðrir, og máské ódýrar. Komið og sjáið áður en þið leitið annarsgtaðar. Ég útvega stúlkum vistir, og geta þær sem vanta vistir vitjað min. Búðin er á horninu á NELLIE AVE. & NESS STR. Guðbjörg Þorbergsdóttir. \ Agœtar Premiur! ! ____________________ * Nyir kaupendur ^ ímii Vnrvinn t bn ó ó v/vo norn A QA < £ Allir Kaupendur $ \ * \ \ # \ * lýbyrjaða (10.) árgan; kringlu,—eða þeir sem borga upp gamlar skuldir sínar og fyrirfram fyrir þennan árgang, — eða þeir sem gerast nýir kaupendnr og borga fyrirfram, fá allir hinar ofangreindu bækur með þeim skil- yrðum, sem sagt hefir verið, og að auki erulurgjaldslaust söguna Mikae/ Strogoff, \ J Til Islands. \ \ # $ íngar. The Heimskring/a Prtg. & Pub/. Co. \ * 5 Kaupið og borgið Heimskringlu ! Tilboð sem þið getið ekki gengið framhjá ! fá Heimskringlu og Öldina þetta ár, 1896—1897, ásamt Öld- inni frá byrjun (þrjá árganga, 480 stórar blaðsiður), sem inniheldur allar sögur herlæknisins, eftir Zakarias Topelius, ásamt mörgum fróðlegum ritgerðum, fyrir að eins $2,75 fyrirfram borgað. sem hafa borgað blaðið eða borga það nú upp að 1. Jan. 1896, eða senda oss minst $2.00 upp í gamlar skuldir, ef stærri eru, geta fengið eina eða fleiri af bókum þeim, sem hér eru taldar, með því að senda oss, auk borgunar fyrir blaðið, upphæð þá, sem stend- ur aftan við þá bók eða bækur, sem þcir velja sér : “Peoples Atlas,” landakort með allskonar fróðleik um löndin, 124 bls. 20 e. “Pictures of all Countries,” með skýringum yfir hverja mynd, 25 G bls. 20 c. “United States History,” með myndum 607 bls. 15 e. “Standard Cook Book,” 320 bls...............]0c. “Gems of Poets,” 200 bls....................15 c. “Ladies Home Companion,” mánaðarblað, 24 gríðarstórar bls. í hvert skifti, 50 c. um árið. Allar þessar bækur eru þess vel virði, að þær séu á hverju hsimili, og verðið er sett svo lágt að engan munar — að eins fyrir burðar- gjald og fyrirhöfn. Sérstaklega er Peoples Atias nauðsynleg bók, og Pictures of all Countries er einkar skemtileg bók. Ladies Home Companion er mjög vandað og stórt mánaðarblað, 24 bls hvert hefti vanaverð $1.00 um árið. Það er ómissandi blað fyrir alt kvenfólk sem vill fjdgja með tímanum í öllu sem til heimilis og klæðnaðar heyrir. — Allar þessar bækur eru til sýnis á skrifst.ofu blaðsins. # L)pir tipm Hnro’a mi eðahafa þegar borgað þennan A L Ull bUIIl IIU nýbvrjaöa (10.) árgang Heims- J \ \ \ \ \ $ innfesta í kápu, þegar hún er komin út, sem verður um miðjan Febrúar. Saga þessi, sem er að koma út í dálkum Heimskringlu, er eins og mörgum er kunnugt, eftir hinn alkunna skáldsagnahöf- und Jules Verne, og er ein af þeim beztu sögum, sem í íslenzku biaði hefir birtst. Bókin verður um hdlft tjórða hundrað blaðaiður aö stærð, og verður send til allra, sem hafa áunnið sér tilkall til hennar, þegar hún er komin út, þeim að kostnaðarlausu. Tílboð þettil stendur meðan upplag sögunnar endist, þó ekki lengur en til 31. Marz næstkomandi. Auglýst verður í blaðinu ef upplagið þrýtur fyrir þann tima. Sendið gjöld yðar og pantanir sem fyrst, áður en upplagið af sögunni er útgengið. Vér höldum lista yfir alla, sem borga og ávinna sér tilkall til sögnnnar, og verða pantanir afgreiddar í þeirri röð, sem þær koma fyrir á listanum. . Ensku bælcurnar fá kaupendur 2—3 vikum eftir að þeir liafa sent borgunina. Engin blöð af þessum árgangi verða send til Islands, nema kaupendur þeirra borgi allar eldri skuldir og fyrirfram fyrir Jæiman árgang. Borg- anir þurfa aðvera koranar til vor fyrir 15. Febrúar, frá öllum þeim sem ætlast tpl að blaðið verði sent heirn með næstu ferð. Vei‘9 blaðsins heillisent er $1.00fjTÍrþásemeinnigkaupa blaðið sjálfir, en $1.50 fju ir þá, sein að eins kaup þnð til heimsend- \ t t \ #

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.