Heimskringla - 23.03.1896, Síða 4

Heimskringla - 23.03.1896, Síða 4
HEIMSKRINGLA 26. MARZ 1896. Winnipeg. Sveitarritari G. Thorsteinson á Gimli var á ferð hér í bænum um síð- ustu helgi. Hra. Henry Johnson, frá Glasston N. Dak., sem gengið hefir hér á verzl- unarskóla í vetur, fór heim til sín á þyiðjudaginn var-, VEITT HÆSTU VBRÐLACN A HEIMSSÝNINGUNN DR Hefir þú nokkurntima reynt Electric Bitterssem meðal við veikindum þinum, Ef ekki þá fáðu þér flösku nú og láttu þér batna. Þetta meðal hefir reynst að vera sérlega gott við öllum sjúkdómuin sem kvennfólk á vanda fyrir. Með því það gerir lílfærin sterk og vinnandi. Ef þú hefir matarólyst, hægðaleysi,höfuðverk, svima, eða ert taugaveiklaður, átt bágt með að sofa etc. þá þarftu að fá þér E1 ectric Bitter, það er meðalið sem læknar — 50 cts. og 81.00 íöllum lyfjabúðum. BUCKLENS ARNICA SALVE. Bezta smyrsl sem til er við skýrðum, mari, sárum, kýlum, útbrotum, bólgu- sárum, frostbólgu, líkþornum, og öll- um sjúkdómum á hörundinu. Læknar gylliniæð, að öðrum kosti ekki krafist borgunar. Vér ábyrgjumst að þetta meðal dugar í öllum þeim tilfellum sem talin hafa verið, ef ekki borgum vér pen ingana tii baka,— Askjan kostar 25 cts. Fæst í ölluip lyfjabúðum. í kvöld (kl. 8) flytur Rev. J. B. Silcox fyrirlestnr sinn : “Grip and grit”, í Central Congregational kyrkj- unni. Aðgangur 35 cents. Sáluhjálparherforinginn í Canada, Herbert Booth, hefir almennan fund undii beru lofti á N- P.-vagnstöðinni hér í bænum á laugardaginn kemur kl. rúmlega 3 e. h. Samkv. skýrslu formans slökkvi- liðsins hér í bænum, áttu sér stað á ár- inu 81 hús-brunar og nam eignatjónið samtals $1,226,150. Abyrgðin á þeim eignum var samtals $670,894. Sendimennirnir að austan til að semja við Greenway um skólamélið komu til bæjarins í gær (miðvikudag) og halda til á Hotel Manitoba. Sendi- mennirnir eru: Sir Donald A Smith, A. R. Dickey, C. A, Desjardius. Herra Joseph Skaftason, sem dval- íð hefir í Nýja Islandi rúmlega mánað- artíma, kom til bæjarins aftur á laug- ardaginn var. Hann fór svo aftur á þriðjudaginn vestur til Glenboro, til að vinna þar við verzlun Ripstein kaupm. Lesið uppi auglýsingu kvennfélags. ins i Tjaldbúðarsöfnuðinum á öðrum strð í blaðinu. Það lofar ágætri skemt- un fyrir fólkið í Norht West Hall á þriðjudagskv. kemur. Lesið auglýs- .nguna, Stórþing Good-Templara var haldi ð hér í bænum í síðastl. viku. Þessir ís- lendingar voru kjörnir embættismenn i stórstúkunni Mrs. Benson stór-vara- umboðsmaður. B. T. Björnsson stór- féhirðir og B. M. Long stór-marskalkur. Kennarar eður kennara-efni gerðu vel í að athuga að skólastjórnin íThing- valla skólahéraði vestra hefir ákveðið að gefa mönnum tækifæri að bjóða sig fram til 15. Aprí næstk. Sjá auglýs- ngu á öðrum stað í blaðinu. Hveitikaupmenn eru nú almennt að hætta hveitikaupum í bráð og taka að likum ekki til aftur fyrri en sáning er um garð gengin, enda eru nú kornhlöð- ur allar rétt fullar og verður engu um þokað að mun, fyrr en íe leysir af Su- perior-vatni. Tíðin heíir verið köld og umhleyp- ingasöm venju fremur um síðastl- hálf- an mánuð, og tiltölulega má heita að Marzmánuður sé jafn-kaldasti mánuð- urinn á þessum útrennandi vetri, af því þá eiga menn von á svo mildri tíð. “Andbýlingarnir” voru leiknir i fjórða í siðasta skiftið i vetur í Unity Hall á laugardagskvöldið var. Þó veðrið væri vont var aðsóknin furðan- lega mikil, — meira en helmingur sæta upptekinn.— Með þessu lýkur að lykt- um störfum leikfélagsins í vetur, og er það sannast að það á þakklæti skilið fyrir alla frammistöðu sína. Það er að visu létt í vasa og léleg borgun fyrir alla þá ómetanlegu fyrirhöfn og þann kostnað, sem það hefir í för með sér að læra og æfa leikrit. Eitthvað dálítið verður þó að líkindum í afgangi, eftir að félagið hefir dregið frá afian kostn- að, en ekki mun sá afgangur svo mik- ill, að hálf laun gætu heitið fyrir alla vinnu leikendanna. Samdregin vitnisburður. Chas. B. Hood, umboðsmaður í Col- umbus, Ohió segir að ekkert meðal jafn- ist við Dr. Kings New Discovery sem hóstameðal. J. D. Brown, eigandi St. James Hotel, Ft. Wayne, Ind. segist hafa læknað sig af hósta sem, hann var búin að hafa í tvö ár, með Dr. Kings New Discovery. B. T. Merrill, Bald- winsville, Mass., segist hafa brúkað og ráðlagt Dr. Kings New Discovery og aldrei vita til að það hafi brugðist. Mrs. Henning 222 E. 25th St. Chica'go hefir það ætíð við hendina, og er þvi ekkert hrædd við barnaveiki. Flaska til reynslu frí í öllum lyfjabúðum. BAKING P0WDIR IÐ BEZT TILBÚNA Óblönduð vínberja Cream of Tartar Powder. Ekkert álún, ammonia eða önnur óholl efni. 40 ára reynslu. Efnið í Ayers Hair Vigor er hreins- aður sem ekki þránar né gerir hárið skitið. Hann kemur í staðin fyrir fit- una sem hárkirtlarnir gefa frá sér með- an þeir eru óskemdir og sem halda hár- inu mjúku. Ayers Hair Vigor er eins gott hársmyrsl eins og þekt er á þess- um tímum. Hra Pétur Einarsson, bóndi í Manitobavatns-nýlendunni, kom til bæjarins ásamt konu sinni í vikuuni er leið, í kynnisför til tengdasonar sins, ívars Jónssonar í Fort Rouge, Hann gerir ráð fyrir að dvelja hér mánaðar- tíma. Almenna vellíðan segir hann í sveit sinni. Velgengni er afleiðing þeirra hæfi- legleika sem maður hefir en ekki þeirra sem maður þykist hafa. Almennings álitið gerir sig gildandi fyrr eða síðar. í fimmtíu ár hafa menn brúkað Ayers Sarsaparilla og nú á tima er hún hið eina blóðhreinsandi meðal sem almenn- ingur hefir mætur á.—Ayers Sarsaparilla læknar. Á mánudaginn var tók bæjarstjórn in til fyrir alvöru að gera “hreint fyrir sínum dyrum”—að flytja burt óþverr- ann, sem safnast hefir að húsabaki yfir veturinn. Þessa dagana er og vonandi að hún megi taka svo hundruðum vinnumanna skiftir. til að ræsa fram vatnið sem safnast þegar snjórinn bráðnar, hvervetnautarlega í bænum. Úr bréíi út Argyle-byggð, dags, 15. Marz: “Tíðin hefir verið all köld um undanfarinn tíma, en nú virðíst ástæða að vona eftir veðurbrygðum, af útliti að dæma; sólbráð nokkur í dag.—Líðan manna er alment góð og heilbrigði al- menn, að því er mér er kunnugt. Kvef að visu er að stinga sér niður, en það er svo alment, að maður telu það ekki. Jón ritstj. Ólafsson , er hættur við útgáfu og ritstjórn blaðs- ins “Wisconsin Nordmanden” í Madi- son, Wis., og er nú fluttur til Chicago aftur og tekinn til starfa í sinni fyrri stöðu, sem meðritstjóri stórblaðs Norð- manna í Ameríku: “Norden”. Utan- áskrift hans verður sem fyrrum : 284 Grand Ave., Chicago, Illinois, U. S. A. Hra Ágúst Polson tók sér far með pósti á mánudaginn var norðr að Gimli, ásamt Mrs. Polson og börnum þeirra. Ef saman gengur býst hann við að taka við búi hra. Asmundar Einarssonar, skamt vestur frá þorpinu Gimli. Er þá ráðgert að familía hans setjist að á bú- jörðinni, eu sjálfur gerir hann ráð fyrir að koma aftur eftir tveggja eða þriggja- vikna tíma og halda áfram um tíma vinnu sinni hér í bænum. •Lestagangi á C. P. R. aukabraut- unum i Manitóba verður breytt aftur á sunnudaginn kemur, og ganga þá lestir framvegis annanhvorn dag eftir þeim, eins og áður var. Óánægjan með hið nýja fyrirkomulag var meiri en svo ae félagið treysti sér að stríða á móti al- lýðuviljanum. A suðvesturbrautunum fara lestirnar út liéðan á mánudag, miðvikudag og laugardag. Til Selkirk og Stonewall fara þær héðan á þriðju- dag,fimtudag og laugardag. Nokkuð nýtt. FLEISCIIMANN OERKÖKUIÍ. Spyrjið þá sem þér verzlið við um prís- ana sem við bjóðum. Ýmislegt. VÍNSÖLUBANNf A Ð OAONI. í ríkinu Maine, eins og kunnugt er, er öll vínsala gersamlega bönnuð með lögum og bindindismenn stæra sig ekki ósjaldan af því, hve vel gangi að fram- fylgja þeim lögum þar, að undantek- inni höfuðborginni Portland. I’rátt fyrir það sýna seinustu skýrslur stjórn- arinnar, að i rikinu öllu eru samtals 990 vínveitingahús. Þegar íbúafjöldinn er at hugaður(650,000)verður ekki annað sagt en vínsöluhúsin séu nægilega mörg, eða svo mundi álitið í Manitoba. Vínsölu- bannið heftir auðsælega ekki vínsölu í Maine. Róttlætið í Washington. Fyrir nokkru síðan myrti ungfrú ein i Washington, MissFlagler að nafni svertingja-dreng. Hún hafði séð hann, en hann var ekki að gera henni eða öðr- um mein, þreif svo skammbyssu og skaut hann til dauðs, án nokkurra um- svifa, — sér til skemtunar að virðist. Og nú hefir hún fengið sinn dóm. Henni er skipað að láta úti $500 og skal sitja í fangelsi í—þrjár klukkustundir. Þannig er réttlætinu fulinægt í höfuðstað lýðveldisins. Eftir “Skandinaven”. Þetta og það, að 2000 upplýstir menn í Texas höfðu sér til skemtunar í hauster leið að steikja lífið úr svert- ingja yfir seinvirkum eldi, treindu líf hans yfir glóðinni meir en klukkustund, sýnir, að líf svertingjanna er ekki met- ið á margafiska á “frelsisins fimbul- storð”, og þaðþó íbúarnir kunngeri við hvert tækifæri aðþar séu “allir menn jafnir”. Að annað eins og þetta geti átt sér stað í suðurríkjunum er trúlegt, en það er eins ótrúlegt eins og það er ill- þolandi, að þannig sé allur mannréttur fóttroðinn í borginni Washington sjálfri. BUFFALO BILL Flestir íslendingar hér í landi hafa heyrt "Buffalo Bills” getið og sýningar- innar, sem hann stóð fyrir og kallaði “Wild West.” Hans rétta nafn er William Frederick Cody og er hann fæddur í Iowa 1845 og uppalinn þar. Þegar myndaður var reiðmanna flokk- urinn tíl að þeyta póstflutningi og smá böglum yfir hinar miklu vestrænu slétt- ur, árið 1860, gaf hann sig fram sem einn þessi hraðboði, þó ekki væri hann þá nema 15 ára gamall. Og innan skamms var hann viðurkenndur einn hugrakkasti og ötulasti reiðmaðurinn í flokkunum. Árið 1867 tókst hann í fang að útvega alt það “buffalo” ket sem þurfti handa öllum manngrúanum, er þá vann að byggingu járnbrautar einn- ar (Kansas Pacific Ry.) í vestur hluta Kansasríkis. Og á þriggja missira tíma hafði hann þá drepið 4,280 buffalo og af því fékk hann nafnið “ Buffalo Bill.” Árið 1872 var hann kosinn ríkisþing- maður í Nebraska, en ekki eirði hann í þeirri stöðu nema stutta stand, en gekk í leikflokk og gerðist leikari. Þegar Sioux Indíána striðið hófst 1875 gekk hann í lið stjórnarinnar og tók ósvikinn þátt í að yfirbuga Indíána. Árið 188J fékk hann saman í flokk fjölda af Indíán- um, Mexicönum og nautahirðum (cow- boys), og myndaði þannig þá einkenni- legu “Wild West” sýningu, er hann hefir staðið fyrir siðan og sem hefir þótt svo atkvæða mikil í Evrópulöndum hvervetna. ALIT ER Mikilsvirði allsstaðar. Paines Celery Compound er mannkyninu til blessanar. Gott álit sem fengizt hefir með því að halda sér frá löstum og glæpum er hvervetna mikilsvirði. Það er líkt dögginni, sem fellur á >urra jörð og endurnærir hana. Gott álit kemur inn hjá mönnum löngun til hins góða og löngun til að bæta sig. Nafnið Paines Celery Compound friðar og hressir margt hjarta meðal hinna lasburða' sem brúka það og batn ar af því. Þúsundir karla og kvenna, sem batnað hefir af því, lofa það og þann sem fann það upp. Menn ættu að muna eftir því að stælingar hafa ver ið gerðar iaf þessu merka meðali, eyði- leggjandi meðul, sem kölluð eru ‘Celery Compound’. hafa reynt að ryðja sér brant í skjóli hins rétta meðals. Þeir sem vilja lækna sig fljót.t og vel ættu ekki að fara að gera tilraunir á sér með óreynd og ónýt meðul. Paines Celery Compound er í áliti hjá læknum og nöfn þeirra sem það hef ir læknað eru því sem næst óteljandi. Þeir sem þjástaf taugaveiklun, melt- ingarieysi, gigt og taugagigt, fá allir lækningu. HISA-B VOGINO. Það eru til sæmilega stórar bygg- ingar nú í ýmsum borgum í Ameríku, einkum þó í New York og Chicago. Þó eru hinar stærstu þeirra eins og brúðu-hús í samanburði við bygginga- tröllið, sero. tal^ð er um að byggja. Það er enn ekki komið lengra en að tala um þetta, eða réttar sagt, um möguleikann til að byggja þessar feikna byggingu Samkvæmt uppdráttum, er byggingar- meistarar þegar hafa gert og sem þeir auðvitað halda fram að séu góðir og gildir, Þessi bygging á að koma upp í New York og á aðheita “Kings Temple,” eða konungsmusterið, Grunnmál hennar á að verða 300 x 400 fet og hæð hennar 3,000 fet, eða heldur meira en -J mila ! Með öðrum orðum hæð hennar er jöfn og ef 200 byggingum jafnháum og er Hotel Manitoba væri hlaðið hverri ofan í aðra, eða 300jafnháum og er pósthúsið hér í Winnipeg. í bvggingunni eiga að verða 200 gólf og 100,000 skrifstofur og til þess ferðin upp og ofan um bygging- una gangi greitt, verða í henni 50 lyfti- vélar. Sumar þeirra eiga að heita “express” lyftivélar og stansa þær ekki nema á 25. hverri tasíu og verða 2J mínútu á leiðinni upp eða ofan. Hinar stansa á hverri tasíu og verða 10 mínút- uráleiðinni. Veggirnir á þessu bygg- ingatrölli verða 16 feta þykkir. Bygg- ingameistararnir, Harding & Gooch, segja vandalaust aðgeraþessa b.yggingu eins trausta ogalmennar byggingar eru. Spursmálið sé aðeins hvert nokkrir vilji leggja fram hið fádæma mikla fó, sem útheimtist til að koma henni upp. “EF”. Ef svo ber til, nú eða síðar, segir blaðið “Call” í San Francisco, að Banda ríkin og Spánverjar fara í vopnavið- skifti, mundu Bandaríkin láta sitt fyrsta verk verða, að halda flota sínum austur yfir Kyrrahaf til Philippinu-eyj- anna og *aka þær. Eyjar þær, -suður af austurströnd meginlands Asíu, eru um 1200 talsins, og af þeim eiga Spán- verjar þriðjunginn eða um það bil. Og þær eyjar eru ekki neinn tilkornulítill hluti konungdæmisins. íbúar þessara spænsku eigna eru um 7milj. að tölu. Eyjarnar eru auðugar og eru ill-upp- ausanleg tekjuuppspretta Spánverja. Þær eru brunnurinn sem Spánverjar ausa úr þegar í nauðirnar rekur. Væri tekið fyrir þá tekjuæð, og eins og nú er ástatt á Cuba, gætu Spánverjar ekki til lengdar haldið uppi sókninni. Banda- rikin kæra sig ekki hið minsta um Philippinueyjarnar, en í ófriði við Spán- verja yrði það að sjálfsögðu eitt af fyrstu tilþrifum Bandaríkjaherstjórnar- innar, að senda þangað skip og loka höfnunum fyrir Spánverjum og það er líka auðgert, því eyjarnar eru að heita má verjulausar. Þrjú eða fjögur skip- in úr flota yorum fyrir Asíu ströndum værueinfær um þetta. Hvað herskipastól snertir, eru á- höld um styrkleik Bandaríkjamanna og Spánverja, en þá er líka upptalinn allur mögulegur samanburður, að því er virðist. Spánverjar eru skuldunum vafðir og með skattaálögum, sem menn her i landi liðu ekki degi lengur, geta þeir tæpast mætt vöxtunum af þjóð- skuldinni, og talsins er.u Spánverjar 18 til 19 milj. I samanburði við þetta eru Bandaríkin svo gott sem skuldlaus og íbúarnir nær 70 milj. Þar væri þess vegna ekki um neinn jöfnuð að ræða, eftil stríðs kæmi. Egi að síður eru Spánverjar “engin lömb að leika við”. Þeir eru harðfengir og ófyrirleitnir, og eins og gamli Castelar segir, mundi þeim líka sama þó þeir nudduðu við stríð og styrjöld i einn eða tvo ára tugi. 'MONTREAL-SÝNINGIN STÓRA, The British Empire Exposition, sem fyrirhuguð var í sumar komandi, verð- ur engin í ár eftir alt saman. Formenn sýningarinnar og margir helztu menn í borginni komu saman á fundi nú ný- lega og ræddu um málið frá öllum hlið- um, athuguðu hvað búið var að gera í tilliti til bygginga oghvað [eftir var að gera m. m. Og niðurstaðan, sem þeir lcomust að var sú, að á þeim tíma sem eftir er til 24. Maí, enda til 1. Júlí, væri bókstaflega ómögulegt að koma upp þeim byggingum sem þyrfti. Jafn- ómögulegt væri að útvega þá sýninga- muni frá hinum ýrosu verksmiðjufélög um etc., í Canada, sem þyrfti, ef sýn- ingin ætti að koma ríkisheildinni að til- ætluðum notum. Bæjarráðsformaður- inn helt þvi fram, eins ogannars marg- ir fl^iri, að það væri betra og miklu betra fyrir Montreal og ríkíð í heid sinni, að hafa enga sýningufyrr eða síð ar, heldur en að hafa þá sýningu, sem vegna tímaleysis að koma henni á fót, yrði ófullkomin fram eftir öllu sumri og aldrei nema hálf sýning. Það var og álitið heppilegra, ef hið opinbera ætti eitthvað töluvert af stofnfe sýningar- innar og var stungið upp á,að Montreal bæjarstjórn legði fram $100,000, sam- bandsstjórnin 8100,000 og Quebec fylkis- stjórnin $50,000. Með slíkum hlut í Skor og Stigvjel! Ny og endingargod. Með lægsta verði. Ástíeðan fyrir því að við getum selt með svo ofur lágu verði er sú, að vér höfum lítil útgjöld, lítinn kosmað. Við erum á röngum stað á Main street til þess ad gera mikla verz’un, en á éttum stað til þess að geta selt með lágu verði. Búðin er austanverðu í Main street á móti Portage Avenue. E. KNIGHT&CO. 431 MAIN STREET. Tombola °g = = = Dans. Kvennfélag Tjaldbúcarsafnaðar heldur Tomboln og Dans á þriðjudagskveldið kemur 31. þ. m., kl. 8 e. h., í Northwest Hall. Inngangur og einu dráttur 25c. Ágæt- ir hlutir verða á Tombolunni. Veit- ingar seldar. stofnfónu gæti hið opinbera gefið trygg ingu fyrir að sýningin yrði meira en nafnið tómt og ekki útbúin í þeim til- gangi að græða fé handa prívat-mönn- um. En enga slíka tryggingu væri unt að gefa, ef privat-menn eingöngu stæðu fyrir sýningunni. *Dað var því samþykt, fyrst og fremt, að efna til International-sýningar, er fram skyldi fara í Montreal sumarið 1897, og i öllu stærii stíl, en sú er fyrirhuguð hafði verið í sumar komandi, og í öðru lagi var samþykt að kjósa 9 manna nefnd, og'síðar á fundinum kosin, til að leita eftir samvinnu sambandsstjórnar, fylk- isstjórnar og bæjarstjórnar, í þá átt sem að ofan er sagt frá. Af þessn leiðir að í sumar komandi verðurengin allsherjarsýning í Mont- real. En jafnframt er þá þeim mun meiri von til að hún verði miklum mun fullkomnari árið 1897, og líklega þarf ekki að geta til að lagðar verði árar í bát héðan af og hætt við alt saman. Það liggur því næst að búazt við tveim- ur allsherjar sýningum í Canada sum- arið 1897, þessari væntanlegu almennu iðnaðar- og f jöllistasýmngu í Montreal og sögulegu sýningunni fyrirhuguðu í Toronto, í mirjningu þess, að þá verða liðin 400 ár frá því meginland Norður- Ameríku var fundið—að undanskildum fundi Leifs. Hvað sýningar snertir, þurfa engir vesturhéraðsmenn að fara ei'indisleysu austur það sumarið. Bara að þetta verði nú meira en ráðagerö og umtal. Hvernig vitrar konur spara peninga þegar hart er í ári. Break Up a Gold ín Time BY USING Tlie Quiok Cure for COUGHS, COLDS, CKOUP, I5KON- CHITIS, HOARSENESS, etc. Mrs. Joseph Norwick, of Gi Soram en Avc., Toronto, writes: “ Tyny-Pectoral has never failed to curo niy cliildren of croup ,aft<‘r a few doses. It nirod myaelf of a loiigf-gtandlnif cough after 8 -vcimI oilier rcmeiii s had failed. It has alao jtrov* d an oxeellent cough cure for my fami y. 1 jttefer it tn any other medicine fjr coughs, croup or hoarseness." Ií. O. Barbour, of Little Rocher, N.B., writes : “As a curo for conírhs ryny-Pectoral is tho best selling medii ino I have; my cus- tomers will have no other.” Lurgo Kottle, 25 Cts. DAVIS & LAWRENCE CO., Ltd. Proprietors. Montreal ▼ l+***4*m?~4M*+*Z Ýotið það. Því að nú er óvanalega gott tæki- færi, bæði fyrir konur og karla (ladies and gentlemen), til að fá sér vandaðan og ódýran klæðnað fyrir vorið. Heimsækið Mr. og Mrs. S. SWAN- SON að 161 Kate Str. og sogið þeim hvað yður vantar, og verið viss um, að þau gera alt^sem hægt er að gera, til að fullnægja oskum yðar. Þau sauma alt, sem yðurvantar, leysa þaðfljótt og vel af hendi, og gera það mjög ódyrt. Þar er einmitt tækifærið. Notið tækifærið. Allir á siglingu til beztiú Skraddarabúðarinnar Tíu centa tillag sparar dollar. PEACE & CO. Þegar verzlunarmenn, bændur og handiðnamenn, kvarta um deyfð í við- skiftum, þá verða konurnar einnig var- arviðþað.Þegarharter í ári fara kon- •irnar fyrst að hugsa um hvernig þær eigi að spara. ogþær byrjahana hjá sér. I staðin fyrir að kaupa sér og börn- unum ný föt, fer hin sparsama og ráð- setta kona og fær sér Diamond Dye til að lita upp aftur gömlu fötin sin og gera þau eins og ný. Diamond Dye er regluleg hjálp í harðindu num, þeireru serstaklega fyri heimilið, og þeir eru hinir beztu og sterkustu allra lita. Föt sem lituð eru með Diamond Dye upplitast hvorki-við þvott eða sólskin. Vertu viss um að sá sem þú verzl- ar við fái þér Diamond Dye, en ekki eft irstælingu, sem eyðir tíma og eyðilegg- ur fötin, sem litast eiga. FVERY FAMILY SHOULD KNOW THAT Is a very remarkable remedy, both for IN- TERNAL and EXTERNAL use, aDd won- derful in its quick action to relieve dlstress. P AT1V-K7T T FP i* » »ur* cur« rnr Sorc 1 /1.111 Hll-l^J^IV. Tliroaí, t'ouclis, < lillls, I>larrh«*n, DyHcntcry, trauips, C liolera, and all fcov ul CoinplaintA PATN-TfTI T FR isthe best tpik- A /*-ll’ IVlL/LdjiV eily kitown íor Hll■ hirknrss, Sirk Ilr:ulm‘2ic, l*ajn in tlio It.-irk or Sldr, lCliriiinatisui and Aí<*uraltri». PAIN-KILLER &sSt“e«T»mVÍt ]»IAI*E. ItbrinffH speedy and PERMANENT kei.ief ln nll nises of Kruiscs, 4'uts, Siiraius, Sr-verc llurus, etc. PATN-TTTT T PP the wcll tried and 1 xllll lviLLLlv trusted frientl of the Alerlinnir, Fnrinrr, Pliuitor, Sailor, and in í'actall classes wantiiiK a inedicine always athana, and hape to use iuteriially or cxternally with certainty of relief. Beware of imitatlons. Take nono but thejrenuine •* Pkkry Davis. " Sold everywhere ; 25c. big bottle. INDIAN SUPPLIES. T OKUÐ TILBOÐ, sem sendist undir- -■-úituðum og merkt "Tender for In- dian Supplies” verður veitt mottaka á þessari skrifstofu þangað til á hádegi þriðjudaginn 21. Ápríl 1896. Verkið Sem vinria á er aðflytja varning, sem úthýtt verður meðal Indíána á fjárhagsárinu, semendar 30, Júní 1897, til ýmsra staða í Manitoba og Norðvesturlandinu. Form fyrir þessi tilboð ásamt öil- um upplýsingum þeim viðvíkjandi fást hjá undirrituðum og hjá Indian Com- missioner í Regina og índian-skrifstof- unni í Winnipeg. Engin skylda er til að viðtaka lægsta tilboð eða nokkuð annað tilboð. Ekkert blað hefir leyfi til að prenta þessa auglýsingu nema með samþyklú Queens Printer; aðrir en þeir sem hann hefir beðið að taka þessa auglýsingu til meðferðar fá enga borgun fyrir hana. HAYTER REED, Deputy Superiutend mt-Getieral of Indian Affairs. Department of Indian Affairs, Ottawa, March, 1896, 56(5 Iflain Str. horninu á Pacific Ave. Fötin sniðin, sauttiuð, og útbúin eins og þér segið fyrir. Peace & Co. 566 Main Str. S. Anderson, 651 Bannatyne Ave. (Corner of Nena Str.) hefir fengið inn miklar byrgðir af Veggja-pappír sem hann selur með langtum lægra verð en nokkur annar pappírssali í þessum bæ. Hann hefar 125 mismunandi teg- undir, sem hann selur frá 5o. upp í 30o. rúlluna. Til sölu. Tværlóðir nálægt C,“P. R. braut- arstöðinni í West Selkirk með húsi, á stærð 12X16, alt fyrir $250, en er $350 virði. Húsið 'er vel bygt og hentugt fyrii' litla familíu. Lysthafendur snúi sér til Chas. Popham P. O. Box 113 ... West Selkirk. *■»—-- — 1—■—■—1—1,—- - - —11-j-urx 5 POPULAR MAGAZIRES fc m THE B0RL FRASMK LESLSE’S P OPULAR MONTHLY Contains eoch Month : Orlginal Water Color Frontlsplece; 128 Quarto Pages of Reading Matter; 100 New and Hififh-class lllustra- tions; More Llterary Matter and lllustra- tions than any other Magazino in America. 25 cts.; $3 a Year. Frank Leslia’s Pleasant Hours FOR BOYS AND CIRLS. A Brlght, Wholesomo, Juvenilo Monthly. Fully lllustrated. The best writers for young people contributo to it. 10 cts.; $1 a year. SEND ALL SUBSCRIPTIOTiS T0 The HeinislirÍBgla Prlg. & Publ. Co. You want to get Frank Leslie’s Popular Monthly and tho Heims- kringla one year for $1.25 Undoubtedly the Best Club Offers Send to Frank Leslie's Publíshlnn TTouse, N.T., for New Illustrated Premium List, Free.

x

Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.