Heimskringla - 16.04.1896, Page 2
HEIMSKRINGLA 16. APRÍL 1896.
Heimskringla
PUBLISHED BY
The Heimskringla Prtg. & Publ. Co.
•• ••
Yerð blaðsins í Canda og Bandar.:
$2 um árið [fyrirfram borgað]
Sent til íslands [fyrirfram borgað
af kaupendum bl. hér] $ 1.
••••
TJppsögn ógild að lögum nema
kaupandi sé skuldlaus við blaðið.
• •••
Peningar sendist í P. O. Money
Order, Registered Letter eða Ex-
press Money Order. Bankaávis-
anir á aðra banka en í Winnipeg
að eins teknar með afföllum.
•e ••
EGGERT JOHANNSSON
EDITOR.
EINAR OLAFSSON
BUSINESS MANAGER. '
• • ••
Office :
Corner Ross Ave & Nena Str.
P. O. Box 305.
Bryggju-gildið.
Eins og til stóð héldu þeir Sigurdson
Bro’s, kaupmenn á Hnausum.gildi mik-
ið á heimili sínu á laugardaginn 11. Apr.
í minningu þess, að þá var fullgerð
Hnausabryggjan. Veðrið var ekki hlýtt
um daginn og færið hraparlega ilt, en
samt komu þar saman nálsegt 300
manns, úr öllum áttum nýlendunnar og
5 menn voru þar komnir frá Winnipeg.
í þeim flokki var málaflutningsmaður
Magnús Brynjólfsson, frá Cavalier, N.
D. Hinir voru : J. W. Finney, Magnús
prentari Pétursson, Stefán Scheving frá
West Selkirk og Eggert Jóhannsson.
Bryggjan öll var fagurlega skrýdd
með spruce-limi íröðum og bogum með-
fram henni á báðar hendur. Tvö allhá
spruce-tró stóðu eins og á verði sitt á
hvoru horni bryggjunnar fremst,en mitt
á milli þeirra reis flaggstöng mikil upp
af bryggjunni og blakti þar á canadiski
fáninn.
Klukkan nálægt tvö um daginn var
skrúðganga hafin frá verzlunarbuð
þeirra bræðra niður að bryggju og
stýrðu þeir henni sem marskálkar :
bræðurnir Gestur og Stefán Oddleifssyn-
ir, Stefán Scheving, J. W. Finney og
og M. Pétursson. Þegar fram á bryggj-
una kom, var fylkingunni skift í tvær
jafnar raðir og skilið eftir í míðju gang-
rúm fyrir þá, sem voru meðgullnaglann
(14 þuml. langann) og sem áttu að reka
hann í bryggjutréð fremst og rétt á
henni miðri frá hvoru horni að mæla.
Það voru fjölda margir sem lögðu hönd
á það verk, en ekki kunnum vér að
nefna þá alla. Húsfreyja Valgerður
Sigurdson (kona Stephans kaupmanns)
sló fyrsta höggið og Stephan Sigurdson
sjálfur hið síðasta. Við það tækifæri
talaði hann örfá orð í þá átt, að hann
áliti þennan nagla vel og trúlega rekinn.
Að þessu verki loknu setti Mr. Sig-
urdson samkomuna með lipurri ræðu
þar sem hann þakkaði öllum viðstödd-
um þá ánægju, er þeir sýndu sér og
bróður sínum en sem því miður væri
ekki viðstaddur, með nærveru sinni.
Benti hann og á það hvað þetta stór-
virki. sem hér væri nú fullgeit, hefði
mikla þýðirigu fyrir bygðina, ef menn
að eins vildu hagnýta það eins og mætti
og eins og þyrfti að gera. Af því veðrið
var svalt, en fjöldi af konum og börnum
, frammi á bryggjunni, var ákveðið að
hafa ræðuhöldin sem styzt. án þess þó
að hindra nokkurn frá að koma fram
sem tala vildi. Af þessu leiddi að ræð
urnar urðu stuttar, en gagnorðar og
fjörugar og gengu allir ánægðir af þeim
fundi til að skernta sér á annan hátt
Meðal þeirra sem töluðu munum vér
ekki að nafngreina nema : SéraOddV.
Gíslason, Magnús Brynjólfsson, Gunn-
stein Eyjólfsson, Jóhann Straumfjörð,
Andrés J. Skagfeld, Gunnar Gíslason,
Jón Stefánsson, J. W. Finney, St. J.
Scheving.
Áður en ræðuhöldum var lokið gekk
Andrés J. Skagfeld upp á ræðupallinn og
kallaði á Stefán kaupm. Sigurðsson, sem
í millitiðinni hafði farið úr forseta sæt-
inu og sett Eggert Jóhannsson í sinn
stað. Þegar Stephan kaupm. kom
byrjaði Mr. Skagfeld að flytja viður-
kenningar og þakkarræðu, til Stephans
0g endaði með þvi, að hann helt upp
göngustaf með gullhandfangi og gull-
skildi greiptum í skamt fyrir neðan
húninn, fékk Stefáni hann og bað hann
að eiga hann og bera í minningu um
þennan merkisdag í sögu Nýja íslands.
Þakkaði Stephan gjöfina með nokkrum
viðeigandi orðum og var fundinum þar
á bryggjunni nokkru siðar slitið, og
hröðuðu menn sér þá heim til húsa til
að skemta sér að vild og án nokkurra
seremoníu banda.
Stafurinn er hinn eigulegasti og
kostaði um $30.00. Á handfangið var
letrað : “Til Stephans Sigurðssonar.
Frá nokkrum vinum. Apríl ’96”. A
skjöldinn fyrir neðan húninn var letrað
sem einkunnarorð: “Advance ever”
— Æflnlegt áframhald.
Af því herra M. Brynjólfsson þurfti
að standa fyrir málum í Pembina á
mánudaginn og þurfti þar af leiðandi
að ná til Winnipeg i seinasta lagi kl,
12 á hádegi á sunnudaginn, mátti hann
og Winnipeg-menn til með að slíta sig
burtu snemma um kvöldið og halda á-
fram í sprettinum um nóttina alt til
Winnipeg. Af því leiddi að þessir
menn fóru í burt einmitt þegar alþýð-
legustu skemtanirnar áttu að byrja og
kunna því ekki að segja hvað gerðist
eftir kl. 6 um kvöldið. En um það
geta þeir þó borið, ekki síður en svo
fjöldamargir aðrir hafa áður borið um,
að það er i engu skortur á rausnarleg-
umveitingum hjá þeim Mr. og Mrs.
Stephan Sigurðsson. Þau eru samtaka
í því að biðja gesti sína að njóta allra
þæginda og neyta alls þess sem á borð
er borið, og í því efni er engu tilsparað.
Ræðurnaar allar, sem sagt, voru
stuttar, en hinar jafn fjörugustu og
skörpustu, sem fluttar hafa verið á
skemtisamkomu í sveitum úti. Vér
höfum enga þeirra skrifaða né parta
úr nokkurri þeirra, en þess minnumst
vór, að þær stefndu flestar, ef ekki all-
ar, að þvi takmarki, að nú í fyrsta
skifti sé Ný-íslendingum gefið tækifæri
til að koma frá sér afurð lands og gripa
um sumartímann, að nú geti miðlungi
stór gufuskip lagst að bryggju í Nýja
íslandi og flutt fólk "og varning vand-
ræðalaust að nýlendunni og frá henni.
Nú riði þess vegna á að menn tæki
rögg á sig, en láti ekki verða til éinskis
þetta stórvirki sem hér hafi verið unnið
almenningi til gagns og góðs. Án þess
aðfara í nokkurt manngreinarálit, eða
í nokkru að gera lítið úr ræðunum, því
til þess er ekki minsta ástæða, getum
vér og að vér vonum með samþyKki
allra viðstaddra sagt, að ræða séra 0.
V. Gíslasonar var ein hin skarpasta. er
flutt var á samkomunni. Þó séra
Oddur sé aldurhniginn orðinn. er hann
eldfjörugur í anda enn og skemtinn á
fundiekki síður en þeir sem yngri eru.
Eftir að herra Gunnar Gíslason hafði
flutt ræðu sína, las hann eftirfylgjandi
erindi:
Hnausa’ er bryggjan búin,
af berserks kraft frain knúin,
Stendur steinabrúin
stofnun hverri betur,
fram á fimbulvetur!
: II : Þó brenni frón, frón, frón: II :
Þó brenni frón f alheims ón
ei hún bráðnað getur.
Eitt á mikilmenni
mestan þátt í henni,
hetju karakt kennir,
/tver sem stafað getur.
Góð stjórn* manndáð metur,
: II : Stefáns nafn, nafn, nafn : II :
Stefáns nafn við söga safn
sést meðan skrifast letur.
Nýja ísland lengi,
lukku þráði gengi,
veittist mætu mengi
mesta hagnaðs bótin,
og auðvalds undir rótin.
: II : Frjálsa þá, þá, þá : II :
Frjálsa og góða framtíð á
fögur herjans-snótin.
*) Dominion-stjórnin.
Tollmálið.
Það hefir verið látíð klingja við Is-
lendinga, leynt og ljóst, að conserva-
tive-flokkurinn sé þræll auðvaldsins, að
hann hugsi um þaðframaröllu, að raka
saman off jár í fárra manna hendur, en
kúgi með ofbeldi hinn síðasta pening frá
fátækri alþýðu. “Liberal-flokkurinn
aftur á móti leggur tilveru sína í söl-
urnar á hverjum degi fyrir alþýðu, að
létta af henni byrðinni og reyna að
draga fé úr greipum auðmannanna.
Þetta er herópið, sem sáflokkur hefir
ætíð á reiðum höndum við öll möguleg
og ómöguleg tækifæri, og þau eru ginn-
andi fyrir þá, sem ekki hafa tækifæri
til að athuga málið og rannsaka hyað
virkilegisannleikinn er. “Raunin er ó-
lýgnust”, segir máltækið og svo er hér.
Það var ekta “liberafl’-stjórn sem ríktií
Canada frá 1873 til 1878 og hinn munn-
stóri Sir Richard Cartwright hafði fjár-
málastjórnina á hendi. í þeirri stöðu
hafðihann ákjósanlegasta tækifæri til
að sýna hvað ant honum er um alþyðu,
að sýna að alt það gum sitt og annara
flokksbræðra væri eitthvað staðbetra
en atkvæða veiðibrella. Það var hart í
ári um þær mundir, svo hart, aðbænda-
stéttin sendisérstakanefnd á fund hans,
til að biðja um liðveizlu í einhverri
mynd. Og það sem hann let af hendi
rakna voru þau ráðin, að þeir ynnu
meira og borðuðu minna á degi hverj-
um! Með öflu ropinu um “free trade”,
eðatolla-álöguraðeinstil að mæta gjöld-
um stjórnarinnar, kom honum ekki í
hug að létta tollinn á nauðsynjavöru,
en auka hann á munaðarvörunni. Svo
mikill alþýðu vinur var “liberafl’-flokk-
urinn ekki þá, á meðan hann hafði vald
og ráð til að rétta alþýðunni hjálpar-
hönd. Hann var þá það sem ástæða er
til að ætla að hann sé enn, vinur alþýðu
í orði, en ekki á borði.
Það varð hlutskifti conservative-
flokksins, sem íslendingum er kent að
hræðast einsogverstufjandmenn alþýðu
það varð hlutverk hans að stíga fyrsta
sporið í þá áttina, að lækka tollinn á
nauðsynjavörunni, en auka hann á
munaðarvörunni. Það er ekki sagt, að
það verk hafi verið leyst af hendi enn
eins og bezt gæti verið. En það verk
hefir verið hafið fyrir löngu' síðan og
heldur stöðugt áfram. Tíl að sýna að
svo sé þarf ekki annað en minna menn
á nokkrar helztu vörutegundir,sem con-
servative-flokkurinn hefir ýmist lækkað
tollinn á eða numið hann alveg burt.
Árið 1882 var tollur numinn af tei og
kaifi. Og svo mikið er keypt af þeirri
vöru, að hefði sami tollur hvílt á henni
eins og sá er var á hennihjá SirRichard
Cartwright hefði alþýða borgað í toll
$15,618,000, til loka síðastl. fjárhagsárs.
Þetta fé m«ð öðrum orðum er kyrt í vasa
alþýðu síðan tollurinn var afnuminn.
Alt til 1883 varð hver maður sem gaf
öðrum skuldbinding eða víxil að borga
ákveðinn skatt í sjóð sambandsstjórnar.
Þeirri kvöð var létt af alþýðu 1883 og
nemur sá sparnaður alþýðu $2,418,000,
ef gert er ráð fyrir að jafnmikið sé um
víxl nú á ári hverju einsog þá. En sem
auðvitað er miklu meira og sparnaður-
inn þar afleiðandi meiri miklu en hér
segir. Árið 1887 var to^lur allur num-
inn af harðkolum öllum. Er það sparn-
aður sem síðannemur $6,044.000. Þetta
er algert afnám tolls á nauðsynjavörum
og nema samtals meir en 24 milj. doll.,
eða yflr $1,400,000 að meðaltali á hvert
stjórnarár flokksins. Ekkert af þessu
bauð Sir Richard þegar alþýðan bað
hann um liðveizlu. Það má vel vera að
á þessu tímabili hafi tollur verið num-
inn af miklu fleiri vörutegúndum en af
því vér höfum ekki við hendina skýrsl-
ur er sýni það, látum vér nægja að
sýna þetta, sem órækan vott þess að
stefnan er að létta gjaldbyrði fátækl-
inganna, hvað svo sem “flberal”-atkv—
smalar i opa.
En svo hefir þessi euni flokkur,
þessi “auðvalds og kúi iar”-flokkur,
sem öllum íslendingum 11 ''ur svo mikið
á að hræðast og berjast • móti(!) svo
hefir hann líka unnið talo. i i t i þá átt,
að færa niður toflinn á ýmsum nauð-
synjavörum, þó ekki hafi hann séð ráð-
legt að svifta honum burtu algerlega.
Á tveimur vörutegundum einungis,
(gluggagleri og syrópi) nam tollniður-
færslan —(1890)— samtals $521,000;
niðurfærslan á sykurtollinum nemur
als $19,851,000; og niðurfærslan á toll-
inum, sem gerð var 1894, hefir síðan
numið $3 milj. Síðan 1890 nemur niður-
færsla tollsins samtals 22J milj. dollars.
Niðurfærsla tolls og algert afnám hans
hjá þeim flokki sem alt af á að auka
hann(!) nemur þess vegna samtals ná-
lægt $48 milj., að minsta kosti. Með
öðrum orðum hefir flokkur þessi hinn
liræðilegi(!) sparað alþýðu að meðaltali
nær $3 mílj. á hverju ári síðan hann
kom að völdum, létt af alþýðu gjald-
byrði sem þessu nemur, en sem hvíldi á
henni á stjórnarárum “free trade” post-
ulanna og sem Sir Richard ekki gerði
minstu tilraun til að létta.
En eins og auðskilið er, af því
stjórnarkostnaðurinn stöðugt fer vax-
andi, varð að bæta þeim tolli á þessa
vörutegund, sem tekinn var af hinni.
Og það hefir verið gert. Þvi til sönn-
unar þarf ekki annað en geta þess, að
þegar Sir Richard réði tofllögunum
hvíldi tollur á silki, flöjeli, kampavíni,
vínföngum öllum og vindlum er til sam-
ans gaf af sér, er svaraði $1,19 á mann
hvern í ríkinu. Á síðastl. fjárhagsári
gaf tollurinn á þessum varningi af sér
er svaraði $1,53 á mann hvern, þrátt
fyrír að fólksfjöldinn nú er miklu meiri
en 1877—8. Þessi stefna að færa sem
mestan þunga tollsinsyfir ámuuaðarvör-
una og skraut alt, sem ríkismenn kaupa,
en fátæklingarnir ekki svo teljandi sé,
—þessi stefna er augsýnilega eina rétta
stefnan. Það einkennilega er, að Sir
Richard og hans meðráðamenn skyldu
ekki viðtaka hana á þeim 4 árum, sem
þeir voru einráðir í þvi efni. Að hún
sé gallalausdettur engum íhug aðsegja,
en þegar á alt er litið hefir hún þá færri
en sú, erSir Richard hélt fram á með-
an hann var fjármálastjóri, oghefir þá
færri miklu en stefna eða stefnur
“liberala nú, þegar kringumstæður allar
eru athugaðar.
Um trjárækt.
Á skóglausu sléttunum hér vestra
ætti trjáplöntun að vera áhugamál allra
landeigenda. Það ætti að vera skylda
allra sveita eða héraðsstjórna í skóg-
lausum héruðum að hvetja landnema
til að gróðursetja sem mest af gagnleg-
um skógartrjámálandeignsinni. Gagn-
ið af skóginum er meira og margbrotn-
ara en svo, að það verði metið, eða sýnt
í fáum orðum. Skjólið sem raðir og
buskar af skógi veita í vetrarnepjunni
er meiraenlítils virði. Þaðgagnkunna
þeir bezt að meta, sem ferðast á vetrar-
dag ýmist í skógarbelti eða á nakinni
sléitu. Það út af fyrir sig er ekki lítils-
virði, enda enginn efi að sú bújörð selst
með miklu hærra verði, sem hefir lag-
legar trjáraðir í grend við húsið, heldur
en sú, sem ekki hefir nokkurn tanna af
skógi, þó að öllu öðru leyti jafn góð og
þó hún sé enda betur hýst. Skógurinn
dregur að sér gufu loftsins og framleiðir
regn, sem annars kæmiekkiáþví svæði
fyr en seint og síðarmeir og skóglandið
heldur í sér vökvanum margfalt lengur
en skóglausa landið. Það hefir verið
talið svo, að væri þó ekki nema fjórði
eða fimtihluti als vesturlandsins skóg-
lausa orðið skógi vaxið, mundi sá skóg-
ur algerlega umhverfa loftslaginu,
draga úr vetrarkuldanum og framleiða
tíðari regnskúr, en smærri, á sumrum,
geyma betur vökvann í jarðveginum og
á þann hátt auka frjóvsemi landsins í
heild sinni.
I þéttbyggðu skóglausu héruðunum
gætu menn náð þessu stigi á örfáum ár-
um, ef bændur eða landeigendur al-
ment legðu sig fram til þess. Kostnað-
urinn við trjáræktina á hverju ári þarf
ekki að vera mikill, því það þarf ekki
að byrja í svo stórum stíl. Það er
miklu meir áríðandi að halda jafnt Jog
þétt áfram, að setja sér fyrir að gróður-
setja svona mörg tré í ár og svona
mörg hitt árið og láta svo ekkert aftra
sér frá að gróðursetja hina fyrirsettu
tölu trjánna. Ef búendur í heilli sveit
tækju sig saman um þetta, gætu þeir
með þessu móti á örfáum árum alger-
breytt útliti bygðarinnar og aukið að
miklum mun verð allrar landeign-
arinnar.
Það er ekkí að búast við að skógur
sem þannig yrði ræktaður gæti orðið
verzlunarvara fyrst um sinn. En með
tíð og tíma gæti hann orðið það. Hversu
stórkostleg atvinnugrein skógarhögg
(’ • sö.run á borðvið er, máráða af því,
i' í Bandaríkjunum gefur skógurinn af
sér á ári hverju talsvert rneir en 1,000
milj. dollars, og nokkru meira en öll af
urð jarðar, svo sem hvaiti, kornmatur
allur og garðávextir. í Canada, þar
sem miklu meira er um skógarvinnu,
tiltölulega er þó þessi munur miklu
meiri. Vér höfum engar áætlanir um
það efni fyrir höndum, en það er líklega
óhætt að segja að skógurinn í Canada
framleiði á hverju árimeiri auðlegð, en
allur jarðargróði, að því er snertir
hveiti og kornma t og garðávexti. Af
því má þá gera sér hugmynd um hvað
miklu það skifti ef þriðjungur eða jafn-
vel fjórðungur sléttulandsins væri vax-
inn furuskógi, eik, eski, sykurvið o. s.
frv, Atvinnuvegirnir yrðu þá æðimik-
ið fjölbreyttari en þeir eru nú, og meg-
inhluti lausamanna yrði ekki þá eins og
nú nauðbeygður til að sitja aðgerðalaus
meginhluta vetrarins. Það vitaskuld
verður ekki gert á fáum árum að koma
trjáræktinni í það horf, að skógurinn
gefi alla þessa atvinnu, en með ára-
f jöldanum má gera það eins hér eins og
annarsstaðar. Frakkland og Noregur
eru ef til vill Ijósustu vottarnir um það
'hvað mikíð má gera í þessu efni. Fyrir
100 árum var Frakkland svo að segja
skóglaust land og var óðum að umhverf
ast í sandauðnir En nú er það með
skógmestu löndum í Evrópu og sand-
auðnirnar umhverfðar í gróðursæla
bletti.
Þannig má umhverfa sléttlendinu
mikla hér vestra í stór-skóga land. en
erki nema með samtökum og ástundun.
En það er hverjum einumbúanda gefið,
án þess nokkur samtök eigi sér stað, að
gróðursetja 10,20 eða fleiri tré á hverju
ári á bújörð sinni. Kostnaðuxinn sem
af því leiddi er ekki teljandi og ekki
saman jafnandi við gagpið og prýðina,
sem ræktaður skógur hefir í för með
sér. I því skyni að minna menn á þessa
skyldu, hefir “trjáplöntunardagur” ver-
ið viðtekinn sem löghelgidagur á hverju
vori, hvervetna hér vestra. Höfundur
þeirrar uppfindingar er Bandaríkja-
maður, Geo. P. Marsh. Var þetta
ráð fyrst tekið á skóglausu slettunum i
Nebraska vorið 1872 og hefir takizt svo
vel, að stór svæði af Nebraska eru ó-
þekkjanleg orðin eftir rúm 20 ár, Og
svo hefir þessi siður útbreiðst þaðan, að
nú er “trjáplöntunadagur” orðinn að
hefð og er viðtekinn sem löghelgidagur
hvervetna í skóglausum , héruðum, en
svo er það sannast að alt of víða gefa
menn þýðingu dagsins lítinn gaum-
Þeir taka honum margir þakklátlega
sem hvildardegi, til að lyfta sér upp,
skemta sér og eyðatímanum í yðjuleysi,
en fáir sem leggja mikla stund á að út-
vega sér tré og gróðursetja.
Ef trjáræktun á að taka þeim fram-
förumar, semallir viðurkennanauðsyn-
leg, sýnist ekki vanþörf á að hún væri
brýnd fyrir skólabörnunum jafnframt
og þeim er veitt tilsögn í ýmsu sem að
jarðyrkju lýtur. Það sýnist vissasti
vegurinn til að koma f jöldanum í skiln-
ing um hve þýðingarmikið mál þetta er.
Það gerði og mikið að verkum í þvi efni,
ef sveitastj. vildu verja nokkru fé áári
hverju til að gróðursetja trjáraðir með-
fram þjóðvegunum í sveitinni, nokkuð
sem ekki er síður áríðandi en trjárækt-
un á hinum einstöku bújörðum. Og
það er líklega óhætt að gera ráð fyrir
að ekki einn einasti búandi í sveitinni
mundi kvarta, ef sveitarstjórnin afréði
að verja fáeinum dollars á ári hverju til
að mynda skjólgarða með fram fjölförn-
ustu þjóðvegunum.
Næsti “trjáplöntunardagur” í Man-
itoba er ákvarðaður á föstudaginn 1.
Maí næstk. Sá dagur ætti ekki að vera
ónotaður, en þó er hætt við því, að í
þetta skifti hugsi menn meira um hveiti
og kornsáning, en trjárækt, af því tíðin
hefir verið svo óvanalega köld og um-
hleypingasöm.
Ný vínveitingalög
ganga í gildi í New York-ríki 1. Maí
næstk. Eru þau afleiðingin af öflugum
tilraunum í nokkur ár, að takmarka
vínsöluna og þrengja kosti vínsalanna.
Það er lika gert að vissu leyti, en í
heild sinni þykja lögin engin umbót.
Þau eru umbótalög (?) í því efni, að
vínsölunum er bannað að halda lmæp-
unum opnum alla sunnudaga, — menn
verða að laumast um bakdyrnar eins og
í Winnipeg. Þau banna einnig ókeypis
mat-veitingar í drykkjustofunni, sem
auðvitað hænir marga fátæklinga í stór-
bæjunum að drykkjuborðinu.
En svo svifta lögin allar borgir rétt-
inum til að banna vínsölu með almennri
atkvæðagreiðslu. Þann rétt hafa ekki
lengur nema smábæir og útsveitir.
Ekki þar með búið. Lögin svifta borg-
arbúa sjálfa réttinum til að segja hver
og hver ekki skuli fá vínsöluleyfi, og
undir eins til að segja hvað leyfisgjaldið
skuli vera hátt, hvað margir skuli fá
leyfi, o. s. frv. Öll aðal-völdin eru tek-
in frá bæjarstjórnunum og fengin ríkis-
stjórninni í hendur.'gf; Leyfisgjaldið er
miðað við íbúafjöldann í bænum og
sýnist mönnnm aðTótakmörkuð séjtala
þeirra, er leyfi geta fengið. Það sýnist
öllum heimilt að koma upp “saloon”,
eða knæpu, sem borgar ríkisstjórninni
hið lögákveðna gjald. Önnur skilyrði
sýnast ekki vera til. Og samkvæmt
þessum lögum kostar vínveitingaleyflð:
í borg sem telur
yfir 1 milj. íbúa...............$ 800,00
$ til 1 milj. “ ................. 650,00
50,000 til J milj. íbúa.......... 500,00
10,000 til 50,000 íbúa.......... 350,00
5,000 til 10,000 “........... 300,00
1.200 til 5,000 “........... 200,00
í öllum smærri stöðum.......... 100,00
Af þessu fé fá hlutaðeigandi bæja
eða sveitastjórnir §hluti, en ríkisstjórn-
in leggur þriðjunginn í sinn sjóð. Og
höfundur laganna gerir [ráð fyrir að
þriðjungshlutur ríkisinsjverði svo mik-
ið fé, að íbúanríkisins geti orðið undan-
þegnir öllum beinum’skatti'í þarfir rík-
isins á meðan lögin eru í’gildi. En svo
er ekki buizt við að þessi lög verðfllengi
í gildi. Það þykja litlar líkur til að
borgarbúar verði lengi viljugir að þýð-
ast lög, sem taka frá þeim öllráð í þessui
efni, sem ekki leyfa þeim að bægja frá
skálki, sem vill fá leyfi, né takmarka
knæpufjöldann, m. m.
Uppþotið gegn Bretum
sem upp kom í Bandaríkjunum í vetur
út af Venezuela-ræðu Clevelands verður
ef til vill fremur til góðs en ills
þegar öllu er á botninn hvolft, Fyrir
hverja eina ritgerð, sem fram hefir
komið andvíg Bretum, hefir komið ein
ef ekki tvær til að hrósa þeim og að-
gerðum þeirra öllum, sem stórveldi.
Ein yfirgripsmesta og þýðingarmesta
ritgerðia í þá átt birtist í Apríl-hefti
tímaritsins “North American Review”,
eftir stjórnmálamanninn nafnkunna,
David A Wells. Hann viðurkennir að
í Bandaríkjunum sé ríkjandi allmikill
óvildarhugur til Breta og sem hann
segir sprottinn af rótum tveggja stríða
og ímynduðu vinfengi við Suðurríkja
sambandið. Og að síðustu af raisskiln-
ingi á stefnu Breta allri hvað snertir
verzlun og viðskifti við aðrar þjóðir.
A það atriði leggur hann aðal-áherzluna
í ritgerð sinni. Hann gerir sitt til og
það röggsamlega, að Bandaríkjamenn
fái skilið þá stefnu Breta alla. Hann
segir það megi satt yera að Bretar sén
ágjarnir, er um landfláka sé að ræða,
en þess beri að gæta, að á öllu því
svæði sem fáni Breta fljúgi yfir, sé e-kki
eitt ferhyrningsfet af landi, sem Banda-
rikjamenn eins og allir aðrir hafi ekki
heimild til að byggja og eignast og ráða
yfir með sömu skilmálunum og þegn-
um Breta sjálfum eru settir. Hvað
verzlun snerti þá só það sannleikur að
Bretar veiti engum sínum þegni þau
hlunnindi, sem þeir ekki veiti hvaða
annara þjoða manni eða mönnum sem er.
I þvi sambandi og sínu máli til sönnun-
ar bendir hann á Canada og frjálsræði
Canadamanna í verzlunarsökum. Á
Indland bendir hann sem sönnun fyrir
því hvað gott og gagnlegt verk Bretar
vinni heiminum. Hvervetna þar sem
Bretar ráði segir hann að vaxi upp tvö
grasblöð þar sem eitt óx áður. Af þess-
ari framkomu Breta allri ræður hann,
að Bandaríkjamönnum væri sæmra að
fagna yfir vaxandi veldi Breta, en taka
því með úlfúðarhug og afbrýðisemi.
Svik.
Sumir kaupmenn selja ódýr-
ar og ónýtar litartegundir
þegar beðið er um hinn
alkunna Diamond Dye.
Hið mikla álit sem Diamond Dye
hefir, er orsök til þess, að ýmsir
kaupmenn selja ódýra og ónýtaliti, sem
þeir kaupa fyrir lítið, og til þess að auðg
ast því meira. ota þeir þeim út hvenær
sem tækifæri gefst.
Það að selja aðra liti fyrir hinn fræga
Diamond Dye eru hreinustu svik gegn
konum í Canada. Varið ykkur á þeim
kaupmönnum sem reyna að*svíkja ykk-
ur á þessum litum í gróðaskyni.
Dyamond Dye eru tvisvar eða þrisvar
eins sterkir eins og þessir eftirstældu lit-
ir. Hin beztu efni sem þekt eru, eru
brukuð við tilbúning Diamond litarinS
og þú færð gildi peninga þinna þegar
þú kaupir þá.
Póstflutningur.
LOKUÐUM TILBOÐUM, sem stíluð
eru til Postmaster General, um flutning
á pósti milli eftirfylgjandi staða n®
fjögur ár frá fyrsta Júlí næstkomandn
verður veitt móttaka þangað til á há-
degi föstudaginn 1. Maí næstkomandi:
BALMORAL og Pleasant Home, via
Greenwood og Foxton, einusinni *
viku. Vegalengd 18 mílur.
BALMORAL og Stonewall, þrisvar í
viku. Vegalengd 8 milur.
COOKS CREEK og Winnipeg via Oak
Bank og Springfield tvisvar í viku-
Vegalengd 22 mílur.
DOMINION CITY og Emerson sex
sinnumíviku. Vegalengd 10 mílur.
DUNARA og Selkirk, via Clandeboyö
og Kipiegun (nýtt þósthús) tvisvar 1
viku. Vegalengd 16|],mílur.
ICELANDIC RIVER og Selkirk, via
Geysir, Árnes, Hnausa, Gimli, Husa*
vick og Nettly Lake, einusinni í viku
Vegalengd 78 mílur.
LANGENBURG og jámbrautarstöð-
inni tvisvar í viku. Vegalengd { mflu;
Prentaðar upplýsingar viðvíkjand1
samningi um ofangreindan póstflutning
og eyðublöð fyrir tilboðin fást á póst-
húsinufl Winnipeg.
Post Office Inspectors Offiee,
Winnipeg, 13. Marz 1896.
W. W. McLeod,
Post Office Insþector.
J