Heimskringla - 07.05.1896, Blaðsíða 4
HEIMSKRINGLA 7 MAÍ 18'J6.
Winnipeg.
Lesið auglýsingu Mr. Dalby á öðr-
um Stað í blaðiuu.
Allsherjarfunclur conservatíva í
Manitoba verður settur hér í bœnum á
morgun, föstudag. Þar mæta nokkrir
fulltrúar vestan úr landi; koma lengst
frá Calgary.
Hra. Stefán .T. Scheving málar
“Crayon”-myndirá fullri stærð og selur
þær í Agætustu umgerð á 85,00 hvorja.
Sýnishorn geta menn fengið að sjá á
heimili hans, að 522 Notre Dame Ave.
109 innflytjendur frá Austurríki
komu til bæjarins á mánudaginn. Er
það fyrsti hópurinn, sem prófessor Ole-
skow, er hér ferðaðist í fyrra, sendir út
hingað. Mennirnir eru flestir efnaðir,
hafa meðferðis $500 til $1000.
Drír höfðingjar frá Koreu, fulltrú-
ar Kóreustjórnar, fóru hér um hæinn í
gærogvoru á ferðinni til Pétursborgar,
til að vera viðstaddir krýningu Rússa-
keisara. Einn þeirra var prinz og ná-
frændi Koreu-drottningar, sem myrt
var í vetur er leið.
Gufubát til skemtiferða á Rauðá í
grend við bæinn er verið að byggja hér
í hænum. Yar honum hleypt af stokk-
unum á mánudaginn, en fullgerður
verður hann ekki fyrr en eftir mánuð
eða svo. Báturinn er miklu stærri en
sá sem hér var síðast á gangi.
HtorfiU Pocket Dinclory fyrir Maíer
út komið og sýnir allar breytingar á
járnbrautalestagangi. Þar sér maður
og hvaða daga og stund póstur fer frá
og kemur að öflmu pósthúsum í fylkinu
og norðvesturhéruðunum. Þetta fróð
lega kver kostar bara ö'cents eintakið,
(hjá öllum bóksölum) eða 50 cents ár-
gangurinn.
í kvöld (fimtudag) kl. 8 er von á
Sir Charles Tupper hingað til bæjarins.
í för með honum verður Hcm. Hugh J.
Macdonald auk annara. Sir Charles
dvelur hér til sunnudagsins. A föstu-
daginn verður almennur fundur í Bry-
don Rink á horninu á Princess Str. og
Pacific Ave., og verðut Sir Charles að-
al ræðumaðurinn.
Samdregin vitnisburður.
Chas. B. Hood, umboðsmaður í Col-
umbus, Ohio segir að ekkert meðal jafn-
ist við Dr. Kings New Discovery sem
hóstameðal. J. D. Brown, eigandi St.
James Hotel, Ft. Wayne, Ind. segist
hafa læknað sig af hósta sem, hann var
búin að hafa í tvö ár. með Dr. Kings
New Discovery. B. T. Merrill, Bald-
winsville, Mass., segist hafa brúkað og
ráðlagt Dr. Kings New Discovery og
aldrei vita til að það hafi brugðist. Mrs.
Henning 222 E. 25th St. Chicap;o hefir
það ætíð við hendina, og er þvi ekkert
hrædd við barnaveiki. Flaska til
reynslu frí í öllum lyfjabúðum.
Nokkuð nýtt.
FLEISCUMANN GERKÖKUR.
Spyrjið þá sem þér verzlið við um prís-
ana sem við bjóðum.
Lyf við höfuðverk.
Sem meðal við allskonar höfuðverk hefir
Electric Bitters reynst óviðjafnanlegt
meðal. Þeir lækna fyrir fult og alt, og
hinu versti höfuðverkur lætur undan
þeim. Vér ráðleggjum öllum sem veikir
ern að fá sér glas af honum til reynslu.
Electric, Bitters lækna viðvarandi ó-
hægðir með því að styrkja og örfa inn-
yflin, og fáir sjúkdómar geta til lengdar
staðið á móti áhrifum þessa meðals.
Reyndu það einu sinni. 50c. og $1.00.
I öllum lyfjabúðum.
Spencer jarl, fyrrum landsstjóri á
írlandi um mörg ár. dvaldi hér í bæn-
um gær. Var á austurleíð eftir ferð
umhverfis hnöttinn.
A laugardaginn 2. Maí gaf séra M.
J. Skaptason saman í hjónaband John
Oliver og Sarah Johnson. Heimskringla
óskar hinum nýgiftu hjónum allra
heifla.
Hr. St. J.'Scheving, frá West Sel-
kirk kom til bæjarins á laugardaginn
var og dvelur hér um tíma. Má vera
að hann flytji hingað alkominn, þó það
sé óráðið enn.
Samkoma þessi er auglýst var að
kappræðufélagið ætlaði að halda á mið-
vikudaginn í síðustu viku var frestað
vegna veðurs þangað til á laugardags-
kvöldið kemur (2. Maí). Sjá Prógramið
á öðrum stað í blaðinu.
Nýtt hús vandað með 7 stórum her-
bergjum og góðum kjallara, á 31 feta
breiðri lóð (snýr móti suðri), við gott
stræti í bænum, er til sölu fyrir lítið
meira en helming verðs, ef tekið innan
hálfsmánaðar. Afborgunarskilmálar eru
hinir vægustu sem hugsast geta. Rit-
stjóri Hkr. gefur frekari upplýsingar.
Allar f jöldi strætanna í bænum hefir
verið ófær um undanfarinn tíma vegna
votviðranna.en þó rísnú hver um annan
þveran á féetur og afbiður brúlagning
þeirra 7 eða 8 stræta, er bæjarstjórnin
hafði ákveðið að bera sand og grjót á
Enn sem komið er, er því óvíst alveg
hvað gert verður.
Sagt er að Dauphin-brautarfélagið
hafi komizt að góðum samningi um síð-
ir við Manitoba & Nort Western félag-
ið, og [að brautargerðin norður verði
hafin frá Gladstone. Mælingamennirn-
ir sneru aftur um daginn vegna flóð-
anna, en nú eru þeir komnir af stað
vestur aftur og búast við að nú geti
þeir tekið til að stika brautina.
Ein mesta rigning sem hér hefir
komið byrjaði á miðvikudagskvöldið
var (29. Apríl) og hélst uppihaldslaust
til þess um hádegi á föstudag (1. Maí).
Sléttlendi alt flóði í vatni og þar sem
nokkrar lægðir voru, voru djúpar tjarn-
ir. Skaða hefir vatnsflóð þetta máske
ekki gert, en þó mjög mikil óþægindi.
í vesturhluta bæjarins sumstaðar var
hart um að menn kæmust að og frá hús-
unum vegna vatnsdýpisins.
Þessa dagana verður tekið til að
byggja Pantheon-leikhúsið á Princess
Street, rétt fyrir sunnan William Ave.
í því verða sæti fyrir full 1200 manns.
Það verður 5 tasíur á hæð auk kjallar-
ans, sem hlaðinn verður hátt upp yfir
gangstéttina. Grunnur byggingarinn-
ar verður 132X90. í byggingunni verð-
ur fjöldi af herbergjum fyrir skrifstof-
ur, svefnherbergi o. s. frv., og niðri í
kjallaranum aldinabúðir, kaflihús, mat-
söluhús ogvínveitingasalur. Bygging-
in með lóðinni kostar um $120,000.
Hraðfrétt
frá íslandi.
11. Apríl síðastl. lézt á Akureyri
Steinn járnsmiður Kristjánsson eftir 2
mánaða legu, hálf níræður að aldri.
Jarðarförin fór fram á miðvikudag-
inn síðasta í vetri.
Samkoma
í “Unity Hall”
(á horninu á Pacific Ave. og Nena St.
Laugardagskv. kemur 9. Maí.)
Hrogramm :
1. Instrumental Music. Anderson B.os.
2. Recitation. B. B. Olson.
3. Music. Anderson Bros. ,
4. Kappræða : Eiga konur að hafa jafn-
rétti við karlmen? Játandi E. Ólafs-
son. Neitandi B. B, Olson.
5. Kvæði. S. Jóhannsson.
6. Music. Anderson Bros.
Byrjar kl. 8 e. m. Inngangseyrir 10 cts.
Lögbcrg með bryggj-
una.
Það er langt frá því að ég hafi löng-
un til að fara að skifta mér af Lögbtrgi,
ræflinum. Þó blaðið geti ekki farið með
sannleikann, þá er það ekki nema nátt-
úrlegt og nokkuð sem fjöldinn gerir sér
grein fyrir, þegar litið er á allar kring-
umstæður og aðstandendur. Það þarf
slunginn mann til að segja öfugan sann-
leika alla æfi sína og láta fólainu aldrei
takast að þekkja sig.
Lögberg segir að gyltur járngaddur
hafi verið rekinn í Hnausabryggjuna á
vígsluhátíðisdegi hennar, hinn 11. þ. m.
í tilefni af þessu sendi ég ritstjóra Lög-
bergs þetta
TILBOÐ:
Ég skal útvega mann með bor-_naskínu,
er borað geti hvaða málmtegund sem er
og láta hann bora gat á hinn svokallaða
gullbolta, þvertí gegnum hann 12 þuml-
unga fyrir neðan hausinn, þar sem hann
gengur í gegn um samskeytin á trján-
um. Svo skal ég láta hann renna holu
eftir honum endilöngum, eins langt og
þurfa þykir eða óskað er eftir. Alt
þetta skal ég gera upp á minn kostnað.
Svo
skora ég þáá ritstj. Lögbergs
að senda nú mann til að veita kornum
þeim móttöku, sem koma úr boltanum,
með þeim skilyrðum einúm, að finnist
þar ekki títuprjónshöfuðsstærð af járni,
þá viðurkenni ritstjóri Lögbergs sjálfan
sig ósannindamann.
Sendimanni hans skal ég borga kaup
og ferðakostnað hans allan,
Hér duga engar vöflur.
StEI’HAN SIGUKBS.SON.
Hnausum, 28. Apríl, 1896.
Frá löndum.
Ur bréfi fráHnausumdags. 29. Apríl:
“Héðan er ekkert að frétta nema
óhagstæða hið, svo fádæmi þykja. Vot-
viðri og umhleypingar altaf síðan kuld-
anum linti.
Margar sagnir ganga um það, að
þeir Sigurðson Bros. ætli eitthvað stórt
að vinna, hvað fiski-veiðar og verzlun
snertir hér á vatninu. En tök hefi ég
ekki á að sýna eða segja að hvað raiklu
leyti það er rétt. Þó get ég getið þess
sem vott um starfsemi þeirra bræðra og
sem vott þess að eitthvað meira standi til
að um undanfarandi tíma hafa þeir haft
marga menn og 3 hesta-team í þjónustu
sinni norður á vatni, við svo nefnt
‘Loon'-sund. Hafa þeir þar blyggt tvö
íshús 20+20 og 24+28 fet að grunnmáli
og 16 feta há, á vegg. Og hafa þeir fylt
bæði með ís. Svo mun og víst vera að
þeir nú séu i undirbúningi meðað koma
upp frysti-húsi þar nyðra, hjá í shúsun-
um. Mér þykir ekki ólíklegt að næsta
stig þeirra verði í þá átt að koma upp
gufubát, hinum þriðja sem íslendingar
þá eiga á Winnipeg-vatni. Verði það
mun hann stærri en hinir og það til
muna. Þetta er get-gáta mín,en hún er
að mér virðist á góðum líkum bygð.
Næstk. vetur sannar máské hvert spá
mín rætist.”
ÚrbréfifráGeysir, Man., dags. 30. Apríl.
“Héðan er það helzt að þetta, að
íslendingafljót er að flæða yfir bakka
sína liér í efribygðinni og lítur út fyrir
aðannað eins flóð komi nú eins og það
í hitt eð fyrra. Það hefir nú rignt uppi-
haldslaust síðan á mánudagskvöld (27.
Apr.). Og enn (kl. 11. f. h. hinn 30.) er
ekkert útlit fyrir uppstyttu.—Skóla er
hér lokað í bráðina vegna flóðsins. I
þrjá undanfarna daga hefir þurft að
flytja börn að og frá skólanum á bát-
um.—Það fer að verða alvarlega áríð-
andi mál fyrir þessabygðalla, aðhreins-
aðar sé árfarvegurinn svo vel sem verð-
ur, það, hvað hann er óhreinn, sam-
fara því að hann er svo frámunalega
krókóttur, mun aðal-orsökin til þessara
flóða hér efra. Bændur allir í Geysir-
bygð þyrftu að taka þetta mál til alvar-
legrar íhugunur nú þegar,”
Heíir þú
nokkurntíma reynt Electric Bitters sem
meðal við veikindum þinum, Et' ekki
þá fáðu þér flösku nú og láttu þér
batna. Þetta meðal hefir reynst að vera
sérlega gott við öllum sjúkdómuin sem
kvennfólk á vanda fyrfr. Með því það
gerir liffærin sterk og vinnandi. Ef þú
hefir matarólyst, hægðaleysi.höfuðverk,
svima, eða ert taugaveiklaður. átt bágt
með að sofa etc. þá þarftu að fá þér El-
ectric Bitter, það er meðalið sem læknar
— 50 cts. og 81.00 íöllum lyfjabúðum.
Tímaritin.
Frank Lesuies Populak Monthi.v.
Aprílheftið flytur framhald af ritgerða-
safninu um Suðurríkja-herforingjann
nafnfræga, Robert E. Lee og alla ætt
hans. I þessu hefti er komið að Robert
sjálfum og þar lýst æskuárum hans,
skólaárunum á herskólanum að West
Point, kvongun hans og búskap að Ar-
lington, herþjónustu hans í Mexico, og
sem hann varð svo frægur fyrir. Rit-
gerðinni fylgja myndir af Lee á ýmsum
aldri. Þar er og mynd af, konu hans og
langömmu hennar — gömlu Mörtu
Washington. — Auk þessa eru i ritinu
fjölmargar aðrar fræðigreinir, ljóðmæli
og skáldsögur, og fjöldi mesti af ljóm-
andi vel gerðum myndum. Þetta tírna-
rit er vel þess virði að enskulæsir Islend
ingar keyptu það. Út af fyrir sig kost-
ar það $3.00 um árið, en í sambandi við
Hkr., það og hún til samans. ekki nema
$4.25, Hvert hefti inniheldur 128 stór-
ar bls. af lesmáli með um og yfir 100
myndum.
The Penny Magazine, heitir mán-
aðarrit lítið í bókarformi, smáu 8 blaða
broti, sem byrjað er að koma út í Phila-
delphia. Eins og nafnið bendir á, kost-
ar eintakið bara 5 cents, en árgangur-
inn ekki nema 25 cents. Þegar á verðið
er litið, er þar ótrúlega mikið lesmál,
auk þess sem pappír og allur frágangur
er sérlega vandaður. Það gefur að skilja
að í svona ódýru riti er ómögulegt að
gefa kostbærar ritgerðir, eins og hin
tímaritin flytja, enda er innihald þeirra
tveggja hefta sem út eru komin, ekkert
annað en stuttar skáidsögur, en góðar
sögur og sumar vel samdar. Það er
auðvitað að kaupendurnir geta orðið
margir, en það er eigi að síður ótrúlegt,
að svona ódýrt rit og svona stórt í sam-
anburði við verðið, geti staðið til lengd-
ar. Útgefendurnir eru : The Penny
Magazine Co., Philadelpliia, Pa.
Massey’s Magazine í Apríl hefir að
innihalda,: Enskar dómkyrkjur (tvær
greinar um það efni). Sýningar á hest-
um í Canada og annarstaðar; Um far-
fugla; meistari í listaskólanum íranska;
“The Mystery of the Red Deep,\ saga,
eftir Duncan Campbell Scott. Þetta
eru stærstu ritgerðirnar, en svo eru
þar fjöldamargar smrrri ritgerðir og
meðal þeirra merkari í þeim flokki má
nefna þá ‘ um jarðyrkju-nám í skólun-
um”, eftir Edward Farrar. Fimm eða
sex kvæði eru og í heftinu og er þeirra
merkastogfegrstum heimkomu Sergius
Catus, eftir Fidele H. Holland. Sergins
Catus var uppi 200 árum fyrir Krist,
var frægur herforingi og hafði verið
burtu úr Rómaborg i hernaði í 10 ár.
Þegar hann kom heim komst hann að
því að kona hans hafði verið honum ó-
trú. Kvæðið lýsir tilfinningum hans
og hefnd. í heftinu eru og um 40 mynd-
ir og ljómandi vel gerðar. Eintakið
kostar 10 cents og fæst hjá öllum bók-
sölum, Argangurinn kostar $1,00. Ad-
dressa : “Massey’s Magazine, 927 King
St. W„ Toronto, Canada.
Tiie Outlook, Útgefendur tímaritsins
“The Outlook” (New York) aug-
lýsa nú að þeir á komandi ári flytji í
köflum æfisögu stjórnmálakonungsins
mikla W. E. Gladstones, með 'myndum
mörgum og uppdráttum. Þegar sagt
er að höfundur þessarar æfisögu er
Justin McCarthy, sem nýlega sagði af
sérformenskustjórnmálaflokksinsirska,
til þess að geta gegnt ritstörfum sínum,
þá þarf ekki að efa að hún verði vel úr
garði gerð.
Ýmislegt.
Isafjörður á Islandi.
I síðustu útgáfu vikublaðsins “Sci-
entific American” (New York) er mynd
af ísafirði og fjöllunum í nágrenninu,
tekin eftir franska blaðinu “L’Illustra-
tion”, er sýnir ísafj.,sem aðalstöð hval-
beinatekjunnar. “Útsýnið hér” segir
blaðið, “er skínandi fagurt og svipurinn
allur áþekkur hinum vogskornu strönd-
um Noregs og Svíaríkis. Snjórinn
liggur á fjöllunum til þess um mi't
sumar. “Túristar” hafa stundum kom-
ist í hann krappan Jægar þeir hafa ver-
ið að klifra upp fjallið á bak við hið litla
kauptún. Svo stór er fjörðurinn fram
undan, að þar gæti legið hinn stærsti
sjófloti í heimi. í grend við þennan
stað eru þrjár hvalaveiðastöðvar”.
Myndin er augsýnilega tekin að vor
degi, því fjallið upp frá bænum er alt
hulið snjó hið efra, nema hæstu rindar
M
FifcWjlfc'W^*F4k*FJfcWjffc'»ÍF'j!fc'$rifc''ir.flfcW
jifc,«FJÍfc.Wj«s.í*jtfc^FjifcWjtfcWj(fcí*F.tffcíÍFjifc
Fluttur til
598 Main Str. 598
JlfcWW
M
#
M
#
M
#
M
#
M
#
M
#
M
#
*s*s#z*z*z*z«z*:*z*:*z#s*#
Það er einatt ómissandi að hafa úr í vasanum og klukku á heim-
ilinu og enda gullstáss til skrauts.
Nú er tækifærið. Komið í nýju búðina með nýju og gömlu vör-
unum og veljið úr því sem til er. Til dæmis sel ég :
AValtham úr í Silveroid kassa fyrir $8.00.
Vekjaraklukkur í Nickle kassa, bezta sort á $1.25.
Og Átta daga slagklukkur fyrir $4.50.
#
M
#
M
#
M
#
M
#
M
#
Q. THOMAS.*
PAINT C(
Kosta minna en ódýrasta blýhvíta. Endast 5 ár
Hammar Paints
eru þétt í sér. Þau eru sett sam&n á réttan hátt úr blýi og zinki, eru
endingargóð og fást með öllum fitum. Þú gerir málið þitt hreint, end-
ingargott og fallegt með því að hræra saman við það nýja Linseed olíu.
Engin önnur olía dugar. 4 pottar af þykku (Haminars) máli og 4 pott-
ar af hreinni Linseed olíu gera 8 potta af bezta máli, sem kostar að eins
#1.10 fyrir hverja 4 potta.
O.. DALBY selur alls konar húsgögn, veggjapappír, málolín og gler
etc. Ég kaupi heil vagnhlöss af varningi í einu og spara þannig við-
skiftavinum mikla peninga. Komið og talið við mig.
O. DALBY,
Edinburgh, N. Dak.-
Tzn-nziSwiSt
o" niður fyrir miðjar liliðar er hvert gii
og bver dæld full af snjó. I aiugum ó-
kunnugra manna er því fjall þetta blá-
bér.gljáandi jökull.oggefur myndin þann
ig ranga liugmynd um þetta nágrenni.
Hvað frágang snertir, er myndin prýði-
lega gerð, en hvort hún er réttlát gagn-
vart Isafjarðarkaupstað, um það kunn-
um vér ekki að segja.
Felix Jules Meline,
hinn nýi stjórnarformaður Frakka, er
48 ára gamall, og hefir fengist við opin-
ber störf mestanliluta æfinnar. A þjóð-
þingi hefir hann setið siðan 1882, og ári
síðar (1883) gerði J ules Ferry liann að
ráðgjafa akuryrkjumálanna. Árið 1888
sótti hann um þingforseta-embættið
gégn Brissou, og varð þar jafntefli, en
af því Miline var fáum mánuðum eldri
á þingi var honum veitt staðan. Eins
og ástæðurnar eru nú á Frakklandi, er
verkið sem hann nú nýlega hefir tekizt
á hendur óefað þyngsta þrautin sem
bann nokkru sinni hefir haft við að
stríða.
Fimm hundruð milj. dollars
er hin sérstaka skuld Parísarborgar,
fyrir umbætur o. s. frv. og eru vextirnir
af því fé öllu orðnir þyngri en svo að
bæjarbúar geti risið undir gjöldunum.
Öll þessi óskapa skuld. eða svo að segja
öll, er til orðin á síðastl. 40 árum.
13 mánaða ár,
Það hefir komið til tals í New York
blöðunum og uppistunga komið fram
þess eflis, að 1. Janúar 1900 skuli allar
þjóðir yiðtaka þá breytingu á mánaða-
skipuninni, að þeir frá þeim tima verði
taldir 13 í árinu. iVð undanteknum 13
mánuðinum yrði þáhver mánuður rétt
ar 4 vikur, eða 28 dagar, en sá 13. 29
dagar. Meðal annars er það talið'þessu
tímatali til ágætis, að þá beri alla sömu
vikudaga upp á sama mánaðardag árið
új;. Ef t. d, mánudag ber upp á 1. dag
mán., verða allir mánudagar í árinu
sömu mánaðardaga: 1., 8., 15, 22.;
þriðjudagur þá 2., 9., 16., 23. o. s. frv.
Prinzinn og barúninn.
Því hefir verið fleygt fyrjr stundum
að prinzinn af Wales hafi á fyrri árum
verið nokkuð gapafenginn spilamaður
og ekki spar á veðmál. Þar af leiðandi
hefir verið sagt að hann hafi stundum
verið nokkuð skuldugur. Sem dæmi
um það er nú víst sagt að barón Hirch
hafi arfleitt hann að 1 milj. punda sterl-
ing, eða sem næst 5 milj. dollars. Fylg-
ir sú skýring að prinzinn hafi skuldað
honum og öðrum kunningjum barúns-
ins þessa upphæð, og eigi því þessi gjöf
að jafna reikningana.
Sursum ! Sursum !
Kona ein í Kentucky í Bandaríkj-
unum, Mrs. Lyons, ól 5 sveinbörn £ vik-
unni sem leið. Þeir eru allir frískir og
öll von til að þeir lifi. Sá stærsti er 5
pund á þyngd og hinir 4J pund hver.
Orlofsgjafir.
Árið 1889 sendi Indíánah öfðingi í
British Columbia, Shauksh að nafni,
$100 í gulli til Victoriu drottningar, en
fyrir einhvern trassaskap manns eins í
Victoria, sem átti að senda peningana
frá sér, lágu þeir þar þangað til í Okt-
óber í haust er leið. Voru þeir þá send-
ir til drottningar með kveðju Indíán-
ans og loforði um hlýðni. Nú nýlega
hefir sambandsstjórninni borizt bréf
frá drottningu, að sögn með eigin hand
arriti, til Indiánahöfðingjans, og fylgir
því stór og vönduð mynd af drottningu
í verðmikilli umgerð og skozkur þjóð-
búningur. Gamla konan hefir sjálfsagt
ekki grætt neitt á þeim skiftum, en það
gerði hún, er hún sendi emírnum í Af-
ghanistan $250,000 virði eða meira af
gjöfum með syni hans, sem var á ferð
um England i fyrra. Núna í næstu
viku veitir drottning móttöku um $.J
milj. virði af gjöfum frá emírnuin, sem
sendiboði hans er á ferðinni með. Eru
gjafirnar silkivefnaður og skrúðgripir
allskonar úr gulli. Hún græðir á þeim
skiftum gamla konan.
MICA ROOFING-
Hr. W. G. Fonseca. I haust er leið
var eitt ár liðiðsíðan ég þakti heflimyln-
una mína með Mica-þófa, sem þér hafið
til sölu, og tjargað! ég það ekki fyr en
nærri sex inánuðum eftir að það var
lagt, en þrátt fyrir það þó rigningasamt
væri bar ekkert á leka og ekkert hafði
þekjan skemst við tjöruleysið. Þctta
þak þolir bæði hita og kulda. R. D.
Paterson. Þetta Mica á ekkert skylt
við hið svokallaða Metal Brand Roady
Roofing. W. G. Fonseca.
ÍsLENZKR LÆKNIR
DR. M. MLLDORSSON,
Park River — N. Dak.
©OGþJAC
Hinar beztu og viðurkend-
ustu tegundir
I BÚÐ
II. L. Chabot
513 Main St.
Telephone 241. Gegnt City Hall.
*
Buxui! Baxur! Buxur!
handa öllum.
Bezta búðin í Winnipeg er
Merki: Illa Stjarna 434 Main 5t.
ALT ÓDYRT!
Það gleður oss að geta tilkynt almenn-
ingi og þó sérstaklega viðskiftavinum
vorum, að Mr. N. Chevrier er nýkom-
inn austan úr fylkjum og hefir þar tek-
ist að kaupa afarmikið af tilbúnum föt-
um fyrir svo lítið dollars virðið, að
The Blue Store petur nú selt
með læfrra verði en nokk-
ur önnur verzlun hér.
Drengjabuxur vorar eru frá 25c. upp í
40c„ 50c„ 75c. og $1.00. Karlmanna-
buxur frá Sí.00 upp í $1.25, $1.50. $1.75
og $2.00. Þú hefir enga hugmynd um
þessi kostaboð nema þú komir og kaupir
af oss. Meðan erindsreki vor stóð við í
Ottawa, lukkaðist honum að ná í 200
alfatnaði úr skosku vaðmáli hjá hinum
nafnkunna skraddara Chabot & Co„ Nr
124 Rideau St„ Ottawa. Þessi föt hafa
öll verið gerð með mestu nærgætni af
P. C. Chabot, sem gerir langmest af
fötum þeim, sem stjórnin lætur búa til
Munið eftir því að öll þessi föt eru búin
til eftir máli. Þau eru $26,00 til $28.00
virði, en vér seljum þau nú á $15.50,
Þú verður að koma og skoða þessi
föt til þess að sannfrerast. ^ Alt annað í
búðinni selt á sama verði að tiltölu.
500 drengja alfdtnaðir á 75c. og yfir.
Hattar ! Hattar!
fyrir hálfvirði. Gleymið ekki
The BUIE STBBE.
MERKI: BLÁ STJARNA.
434 MAIN STR.
A. Chevrier.
Allir á siglingu til beztu
Skraddarabúðarinnar
PEACE & <JO.
5<><i ÍUaíii Str.
horninu á Pacific Ave.
Fötin sniðin, saumuð, pg útbúin
eins og þcr segið fyrir.
Peace & Co.
5G6 Main Str.
S. Anderson,
651 Bannatyne Ave.
(Corner of Nena Str.)
hefir fengið inn miklar byrgðir af
Veggja-pappír
sem hann selur með langtum lægra verð
en nokkur annar pappírssali í þessuffl
bæ. Hann hefir 125 mismunandi teg'
undir, sem hann selur frá 5c. upp í 30c
rúlluna.
ÍPOPULAR MAGiZlÍS
FOR THE HOME.
.FRA!\5K LESLIE S
POPULAR
MÓNTHLY
Contalns each Month : Orlginal Water Color
Frontlepiece ; 128 Quarto Pages of Readlng
Matter; 100 New and Hlgh-daia lllustra-
tlons; More Llterary Matter and lllustra-
tlona than any otlicr Magazlnc In Amerlca.
25 cts.; $3 a Year.
Frank Leslie’s Pleasant Hours
FOR BOYS AND CIRLS.
A Brlght, Wholeaome, Juvenlle MonthlT-
Fully Uluitrated. The beet wrlters for young
people contrlbuto to R. <0 cta.: $1 a year.
. SEKÐ ALL SUBSCRIPTIOirS TO \
The IlíimskrÍDgla I rlg. & Fubl. Co.
You want to get Frank Leslie’s
Popular Monthly and the Heims-
kringla one year for $4.25 l
Undoubtedly the Best Club Offers
Send ío Franh L—IU'* PublUhina TTousé, I*.
for New Illustrate<l /Yímium LUt, Free.