Heimskringla - 28.05.1896, Blaðsíða 1

Heimskringla - 28.05.1896, Blaðsíða 1
X. ÁR. NR. 22. Y í a í rleimsKringla. WINNIPEG, MAN., 28 MAÍ. 1896. Ad Spara! Það borgar sig að koma við í búðinni hjá okkur áður en þér kaupið ann* arstaðar. Það er peningasparnaður. Skoðið vörur hjá öðrum, berið sam- an verð, komið svo til okkar og fáið kjörkaup. VÉli ERUM AÐ HÆTTA SMÁSÖLU. Það er af þvf að vér bjöðum þessi kostaboð. Komið og skoðið vörurnar sem vér bjóðum, og þér hljótið að sannfærast um það að þér hafið aldrei fengið annað eins tækifæri í Winnipeg. FRETTIR. DAGBÓK. FIMTUDAG, 21 MAÍ. Kólera eykst flag frá degi í Egyfta landi. Afmælisdagur Vic.toríu drottningar var haldinn liátíðlegur á gjörvöllu Eng- landi í gærdag, af því afmælisdag henn- ar ber upp á sunnudag í ár. Annár fellibylur æddi |yfir Kansas- riki i gær. Frumvarpið um takmörkun inn- flutnings til Bandaríkjanna var sam- þykt í efri deild þjóðþingsins í gær með 196 atkv. gegn 26. Meðal annars eru ákvæði i þvi, sem fyrirbyggja að menn búsettir í Canada geti fengið vinnu Bandaríkjamegin við landamær- in. Vilji þeir fá vinnuna verða þeir að flytja sig búferlum og gerast þegnar Bandaríkja. Það er sagt að 66,000 dollars hafi verið stolið frá C. P. R. félaginu úr vagni á ferð milli Ottawa og Quebec. (lovernorinn og lierstjórinn í Cuba Weyler, einvaldsherra, hefir nýlega bannað að flytja tóbak burtu af eynni, og er afleiðingin sú, að vindla-verk- smiðjurnar í Bandaríkjunum, sem búa til vindla úr Havana-tóbaki, verður flestum eða öllum lokað innan tveggja eða þriggja mánaöa. Lautenant Peary norðurfarinn, er að búa sig í aðra norðurför. Er það að sögn ætlun hans að sækja 40 ‘tons’ loftsteininn, sem hann fann í fyrra við York-höfða, og sem safn eitt í Phila- delphia vill fá. FÖSTUDAG 22. MAÍ. í gæi'dag lótust 68 manns úr Kól- eru í Egyftalandi. 40 í Kairo, 17 í Alexandria og 11 á öðrum stöðum. Mannskæðir fellitiyljir i Oklohama Territory í Bandarikjunum í gær. 4 tasíu-bygging í Buffolo, New York, hrundi í gær og sköðuðust þar margir menn og létu lífið. Var verið að lyfta byggingunni, gera við grunnmúr- inn og gera aðrar breytingar. Trar ern að reyna að binda onda á innbyrðisdeilur sínar og sameina flokk- ana sem til þessa hafa verið andvígir hver öðrum. Ennfremur hafa þeir af- ráðið að halda allsherjar fund íra í Dublin í September í haust, samkvæmt uppástungu erkiljyskupsins í Toronto, Canada. A þeim fundi eiga að mæta þjóðvinir íra frá öllum löndum. Sir Charles Tupper er kominn aust- ur í kjördæmi sitt, Cumberland í Nýja Skotlandi, kom þangað í gærmorgun, eftir að hafa flutt ræður í Montreal, Quebec og víðar. Hefir karli hvervetna verið vel fagnað. Bretastjórn hefir nýlega fengið nýj- ar sannanir máli sínu í Venezuela- twætunni til styrk;ar. Verða þær sann- anir gefnar út i sérstakri bók nú bráðlega. Rússakeisari hefir skipað að útbýta gefins litlum brennivínsflöskum svo hundruðum þúsunda skiftir á krýn- • ingardegi sínum—28. þ. m. í hverri flösku verður eitt staup. J. A.Ouimet, fyrrverandi ráðherra opinberrastarfa í Canada afiagði í gær embættiseiðinn sem yfirréttardómarifí Quebec-fylki. LAUGARDAG, 23. MAÍ. ' Brasilía, Argentína og Chili stjórn- ir hafa að sögn gert samning um að viðtaka sameiginleg verndarlög, bygð á sama grundvelli og Monroe-reglan í Bandaríkjunum, einkum að því er verzlun snertir. \ erzlunarviðskifti Canadamanna við utlönd voru á síðastl. 10 mánuðum rúmlega 10 milj, dollars meiri en á sama tíma í fyrra. Nam upphæðin samtals $188,965,855. Horfur a að uppreist só í nánd í Persalandi, í því skyni að koma hinum nýja konungi úr sessi. Föðurbróðir hans vill að sögn ná í stólinn. Þingmenn Breta sátu á þingi 22 kl.stundir hvíldarlaugt og rifust Um frumvarp áhrærandi akuryrkjumál. Brennur í Manitoba i gmr: í Rapid City brann tóvinrmverkstæði. Eigna- tjón $lo,000. í Trehérne brann korn- hlaða með 27,000 busb. sf hveiti.Eigna- tjón á byggingunni 15000 dollars og á hvéitinu um 14,000 doll. Næturfrost olli tjóni í Ontario að- faranótt liins 21. þ. m. Chapleau, governor í Quebec, hefir verið sæmdur heiðurs-titlinum Sir, Fr uú Sir Adolphe Chapleau. MÁNUDAG 25. MAÚ Auðug gull-náma er nýfundin í grend við Fraser-fljótið og fáar mílur austur frá Vancouver. Önnur lík hefir fundist irý'lega við Barclay-sund á Van- couver-eynni, skammt frá Victoria. Námafélög frá Englandi og Bandaríkj- unum keppast nú mjög við að eignas t námur um þvert og endilangt British ’ Colum'bi-fylki. 1 Florida í Bandarikjunum voru tró mörg plöntuð í gær, upp á bæja og sveita kostnað og tileinkuð Victoriu Breta drotningu, sem þá var 77 ára gömiíl. Hveitikaupmenn í Duluth hafa það eftir fregnrit.um síuum í No^ður-Dak., að þar verði ekki í ár sáð í meir en heiming þess ekrufjölda, er sáð var í fyrra. Mat. S. Quay, republika leiðtoginn í Pennsylvanía, er sóttur orðinn við McKinley.ef til vill af því ekki eru önn- ur úrræði. McKinley er svo gott sem kosinn til að sækja um forsetastöðuna. og tilgangslaust lengur að stríða á móti honum. Konan í London, sem fyrir skömmu varð uppvís að barna-morði, hefir verið dæmd dauðasek. Nú er sagt að T. B. Reed, frá Maine, muni sætta sig við að sækja um vara-forseta-stöðuna. Hafis hefir legið við norðarstrendur Nýfundnalands um langan tíma, þang- að til 23. þ. m. að suðvestanvindur rak hann á haf út. Kínverjar hafa ákveðið að stofna þjóðbanka í Pekine, með $9 milj. höfuð- stól. Það er uppkomið í Chicago að fjöldi af skólabörnunum hefir aidrei séð sauðkind eða svín, en ljón og tigra hafa þau öll séð. ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ. Ógurlegur fellibylur í gær í Michi- gan, Illinois, Iowa og Kansas ríkjum. Eignatjónið skiftir milj. dollars og ná- lægt 50 manns týndu lífi. Regnfall samtírtis var meira en elstu mens muna. Rönd eins fellibylsins náði til útjaðranna í Chicago og gerði þar tals- verð spjöll á húsum. I gær varð alsnjóa í vesturhluta Montana-ríkis. Segir fréttin að 6 fet af snjó hafi fallið, en á að líkindum að vera 6 þumlungar. I Hull, Quebec, þorpi andspænis Ottava, — áin ein á milli, var haldinn pólitiskur fundur undir beru lofti á sunnudaginn var. Það þætti víst skrít- ið ef nokdur reyndi slíkt í winnipeg. Prestur í Salt Lake City, Utah, er kærður fyrir að hafa myrt tvær stúlk- ur norskar, eða sænskar, af nöfnurt þeirra að dæma. Presturinn er Metho- distatrúar og þjónar skandinaviskum söfnuði. MIDVIKUDAG, 27. MAI Voða slys átti sér stað i gær í Vic- toria, British Columhia. Þar brotnaði niður brú undan rafmagnssporvagni, troðfullum af fólki, á leiðinni til Esqui- malt. Féll vagninn um 100 fet niðnr í sjóinn á vestari armi liafnarinnar.'— Hestavagnar voru og á brúuni og hruudu þeir einnig niður í dýpið. Drukknuðuþar yflr 60 manns—Ollík- amir voru fundnir í gærkveldi. Af nöfnum hinna dánu virðist sem 2 eða 3 íslendingar séu meðal þeirra, er þvr létu lífið, þó ekki sé það vísf. Það er Mrs. G. J. Post og sonur bennar, til heimilis að 153 Fernwood Road.og Miss Emma Olson, — heimili ekki tilgreint. I krýningar-ávarpi sínu gefur Rússakeisari alla ógoldna skatta í veldi sínu í Evrópu, lækkar landsskattinn um helming í 10 ár og gefur upp sakir 'r «* • Ijökla mesta af pólitiskum afbrotamönn- um, sem nú eru fangar i Síberíu. Og fangelsistíma allra sakamanna yfir höf- uð rýrir hann meira og minna; t. d. er æfilangt fangeLi fært niður í 20 ár. VKITT BÆSTU VBRBLAUN A HEIMSSÝNINÖUNtJ ÐR BAHING POhDfR 1Ð BEZT TILBUNA óblönduð vínberja Cream of Tartar Jowder. Ekkert álún, ammonia eða önnur óholl efni. 40 ára r.'ynslu. "‘Yondur, verri, verstur ” Það er skoðun margra blaða i Banda- ríkjunum að þjóðþing ríkjanna sem nú situr, sé hið eyðslusamasta, sem menn muna eftir. Mörg þing hafa áður þótt ðspör alveg á féð, en þó lízt mönnum, að það sem nú situr ætli að taka hinum langt fram i þ ví efni. Þegar rætt var um það, einusinni enn, i efrideild, að veita skyldi $15 milj. til brynskipagorð- ar, komu andvígismenn þeirrar tillögu með reikninga er sýndu, að nú þegar hefir þingið — báðar deildir — veitt um $40 milj. umfram væntanlegar tekjur á fjárhagsárinu næsta (frá 1. Júlí 1896). Fjárveitingarnar nema 505 milj., en tekjurnar eru áætlaðar 464 milj. dollars. Af þessú er að ráða að tekjuhalli á fjár- hagsárinu 1896—7 sé nú þegar ákveðinn fullar 40 milj. dollars. Auk þessa eru gamlir samningar í gildi um að vinna ýms opinber störf. Þau störf halda á- fram og sá hluti gjaldsins fyrir þau, sem tilheyrir næsta f járhagsári, er áætl- aður um 95 milj. dollars. Þó þjóðþing- ið veiti ekki einum eyri meira, er fyrir- sjáanlegur tekjuhalli á komandi fjár- hagsári orðinn $135 milj. Það er einn vegur til að rýra þann tekjuhalla svo nemur 35 milj. eða um það bil, en sé sá vegur tekinu, er skorðum bundin iegla stjórnarinnar brotin. Það er sú regla, að ’leggja ákveðinn hluta af tekjunum í afborgunarsjóð, — til innlausnar ríkis- skuldabréfum á sínum tima. Og upp- hæðin sem í þann afborgunarsjóð ber að leggja á næstkom. fjárhagsári er rétt um 85 milj. dollars. Sé ekkert lagt í þann sjóð, rýrnar fyrirsjáanlegur tekju- halli um fullan fjórða lilut, — verður þá um 100 milj. dollars. Um þetta ástand segir blaðið Globe íSt. Paul, Minn.: ‘‘Þetta er ástand sem hlýtur að ofbjóða öllum gæt'num fínansfræðingum og enda öllum mönn- um, sem nokkuð kunnaí samlagning og frádrætci. En það hefir samt ekki allra minstu áhrif á þingið. Þrátt fyrir það að vór göfum ekki rneiri þörf á fieiri brynskipum, en vér höfum þörf á nýj- um Babeltumi út á yzta oddanum á Langeyju (framundan New York) og þrátt fyrir það, að ákveðin gjöld á næsta fjárhagsári séu orðin miklu meiri en væntanlegar tekjur, svo að auðsætt er að óumflýjanlegt verður að taka til \ láns einu sinni enn, — þrátt fyrir þetta sendi neðrideildin frumvarpið um bryn- skipabygging til efrideildarinuar á ný og heimtaði að samþykt yrði $15 milj. fjárveiting til þess að fá smíðuð 4 bryn- skip til. Enginn þessara manna, sem greiddi atkv. með þessu. getur réttlætt sig með því, að repúblíkar ætli sér að hækka tollana og auka tekjurnar á fjár- hagsárinu. Ný tolllög geta ekki fengist fyr en í fyrsta lagi eftir nærri tvö ár. Forsetinn sem kosinn verður í ár, tekur ekki við stjórninni fyr en 4. Marz 1897 og hinir nýju þingmenn, sem kosnir verða í ár, setjast ekki á rökstóla fyrri en í Desember 1897. Hið nýja þing með öðrum orðum, kemur ekki til sögunnar fyrr en eftir!8 mánuði. Fyrri en það nýja þing tekur til starfa þarf ekki að vonast eftir nokkrum nýjum tollögum. Og því þingi gengur vel. ef það getur samþykt og fongið staðfest ný tollög innan 6 mánaða. Hvað repúblíkar hugsa sór að gera í millitíðinni og með þennan ægilega og sívaxandi tekjuhalla fyrir augunum, er óvist. En eitt er víst. Ef kjósendurn- ir ekki tala djarft við fulltrúa sína sem vilja verða, banna þessar hóflausu fjár- veitingar, en krefjast þess að gjöldin sóu færð niður svo nemi ÍOÖ—250 milj. á ári hverju, eins og auðgert er án þess nokkur líði við það, endar þessi út- straumur ekki fyir en ríkið verður gjaldþrota. 1000 ára afmæli sitt sem þjóðar, eru Ungverjar að halda hátíðlegt í f sumar, í höfuðborg sinni Buda-Pest.Q Hátíðin heldur áfram í alt sumar—var hafin 2. þ. m. með því, að vígð var stórmikil iðnaðar- og lista- verka-sýning i borginni. Annað stór- mikið atriði í hátíðahaldinu er það. að 8. Júní næstk. verður vfgð brúin hin Viltu drekka? Allar tegundir af óáfengum svala- drykkjum eru ætíð á reiðum hðndum hjá Mr. Hall, 405 Ross Ave. Ank svaladrykkjanna hefir hann og birgðir miklar af allskonar aldinum og ávöxtum, hnetum, brjóstsykri af ótal tegundum. sætabrauði af ýmsum teg- undum; allskonar vindlum, reyktóbaki og reykpípum; barnaglingri allskonar o. fl., o. fl. Óg verðið er hvergi lægra í allri borginni. ICE-CREAM er til á hverjum degi, ágætt og hvergi ódýrara en hjá John Hall, 405 Ross Ave. miklu yfir Duná, sem verið hefir í smíð- um um fleiri undanfarin ár. Þegar fyrst að hreyft var við mál- inu um 1000 ára-hátíðina deildu lærðu mennirnir hart og lengi um það, hve- nær hiyi ætti að eiga sér stað. Sagan er ekki greinileg í því atriði, enda mis- munapdi skoðanir um það frá livaða tíma rétt sé að telja Magyara (frum- fiyggja Ungverjalands) sem sérstaka, ráðandi þjóð. Það var 894 að íbúar þessara héraða lokgins losnúðu algerlega undan okinu er Atli Húnakonungur í fyrstu lagði á þá. Frá þeim tíma hafa því íbúarnir einhvernveginn verið sjálf- stjórnandi, þó óvíst sé að þar hafi verið nokkur veruleg stjórn fyrr en árið 1000, að Stephan I. varð konunguF*’Ung- verja—Stephan hinn helgi. En hvað sem því líður, afréðu loksins hinir lærðu menn Ungverja, að hátíðina bæri að halda 1896, — að það hefði verið 896 að Magyar fyrst hefðu tekið sér bólfestu á sléttunum milli Dunár og Tiszu, eða Theiss-elfar. Þjóðsýning þessi hin mikla á að sýna að svo miklu leyti sem verður alt það helzta sem drifið hefir á daga þjóð- arinnar og verður þar margs minnst sem annars er gleymt og týnt. Þar verða sýndar raunir’Magyara, er þeir báru ok Tyrkja i meira en 40 ár, frá 1526 til 1570, að Tyrkir máttu sleppa hérað- inu og stjórn þess allri við Austurríkis- menn. Jafnframt verður og sýnt svo nákvæmlega sem verðfir hvernig þjóðin stig fyrir stig hefir þokast áfram og náð hinu háa stigi sem hún nú stendur á, í iðnaði, listum, bókmentum, vísindum. Borgin sjálf, sem sýningin er í — Buda Pest — sýnir og ekki síður en sýningin sjálf hve öllu fleygir áfram á hinum fornu stöðvum Atla Húnakonungs. Fyrir 25 árum síðan var borgin ekki viðurkend í flokki stórstaðanna, en síð- an hefir henni fleygt fram svo, að hún nú er komin framarlega í þann flokk- enda telur hún fyllilega 600 þúsund ibúa Auk þessa er borgin hin fegursta, prýð- isvel bygð og full af fjöri og lífi, gleði og glaum. Að svo sé má marka af því að hún er talin að vera Kaupmannahöfn eða enda París Ungverjalands. Sýningingin fer fram í fegursta og stærsta skemtigarði borgarinnar og er sýningarsviðið 192 ekrur að flatarmáli, og eru í þeim garði 169 byggingar alls, er samtals liafa kostað um $1 milj. Sýna þær byggingar sjálfar hvernig bvgging- arlistinni hefir þokað áfram stig fyrir stig, á Ungverjalandi, - Þar eru sem sé fullkomin sýnishorn af köstulum her- konunganna á 9. og 10. öld og aðrar byggingar sem sýna, hvernig bygging- arlagið smábreyttist og að lyktum eru þar stórhýsi meðnýjasta byggingarlagi. “Sögu”-byggingin, þar sem alt sérstak- lega sögulegt er sýnt, er samanhang- andi byggingaklasi, og er sinn partur- inn með hverju byggingarlagi, alt frá því elzta til hins nýjasta. Ungverjar skifta sínum 1000 árum i 8 mismunandi tímabil og er sérstök sýningarbygging litin sýna hvert þeirra fyrir sig. Þjóð- iu sainanstendur af 19 upprunalega óskildum þjóðflokkum og í sýningar- garðinum hefir hver þessi tíokkur sinn sérstaka byggingaklasa.sinn meðhverju byggingarlagi. Og í þeim byggingum ölluin vinna karlar og kouur aö dagleg- um störfum öllum á hverjum degi. í sýningargarðinum geta þess vegna ferðainenn séð alla kynfiokka á Ung- verjalandi, alli þeirra búuaðaraðferð, vinnuaðferð, og alt þeirra byggingarlag frá smærstu, óbiotnustu byggingunum til þeirra stórmannligustu. Sýningin heldur áfram til Október- loka í haust, — frá 2. Maí. Undirskirtur, 40c. virði á 25c Alklæðnaður karla á $2.75 Karlraannavesti á 95c. Drengjafatnaður á $2.35 Karlmannabuxur á $2.50 Skirtur, 75c. virði, á 40c. Karlmannabuxur á 75c. Drengjabuxur á 35c. Sokkar 5c. parið Drengjafatnaður á 95c. Skirtur á 25c. Karlraannabuxur á $1.45 Karlmannafatnaður á $3.45 Flókahattar á 80c. Karlmannafatnaðir á $6.75 Axlabönd á 1 Oc. parið Karlmannavesti á 75c. Dollars hálstau á 35c. Karlmannafatnaður á $9.75 Regnhlífar á 50c. Flannelette vesti fyrir drengi j á 35c. 25c. kragar á 12c. |l5c. kragar á lOc. Drengjafatnaðir á $1.75 50c. Manséttur á 20c. Karlmannafatnaðir á $4.75 ;$2 hattar á $1.00 Drengjavesti á 25c. iKai*lmannabuxui* á 95c. “Golf'-húfur á 25c. ■49c. axlabönd á 25c. ‘Karlmannafatnaðir á $8.75 Rcgnkápur úr ullardúk, $3.95 Drengjafatnaðú’ á $1.45 50c. hálstau á 25c. Drengjafatnaðir á 85c. Harðir hattar á 25c. Drengjabúfur á 15c. Háistau á lOc. Ekkert undanþegið. — Alt verður að fara. Dragið ekki að koma. — Komið strax. — Komið oft. LSH’S nni 515 og 517 Main St. Gegnt City Ha/1. JNÝTT TÆKIFŒRI Fyrir- kaupendur Heimskringlu. Nýir kaupendur fá Heimskringlu frá byrjun Apríl til ársloka ásamt Oldinni frá byrjun (f jóra árganga), sem inniheldur ýms- ar sögur og fróðlegar ritgerðir, ffyrir S2.50. Allir kanpendnr sem hafa borgað yfirstandandi árgang og allir sem borga oss nú upp að síðastl. Jan. (’96) eða senda oss minst $2.00 upp í gamlar skuldir, ef stærri eru, geta feng- ið eina eða fleiri af bókum þeim, sem hér eru taldar, með því að senda oss, auk borgunar fyrir blaðið, upphæð þá, sem sett er aftan við nafn þeirrar bókar eða bóka, sem þeir velja sér : Beauties and Wonders of Land and Sea, 324 bls........35c. History of the Civil Wor, 413 bls....................15c. PoultryBook, 224 bls.................................lOc. Horse Book, 178 bls..................................lOc. Gullivers Travels Idle Thought of an Idle Fellow The Chimes (Dickens) Widow Bedott and Mr. Crane How Widow Bedott popped the question to elder SniíHes Allar þessar 5 bækur fyrir....15c. Þessar bækur eru fróðlegar, þarflegar og skemtilegár og eru góð eign fyrir jafnlitla peninga. “Horse Book” og “Poultry Book” eru ómissandi fyrir bændur og enda fleiri. “Beauties and Wondors of Land and Sea” er náttúrufræðisbók með myndum, og liöndlar mest um dýrarikið. • Smásögurnar eru allar framúrskarandí hlægilegar enda ritaðar af nafkunnum ‘grínistum’. “Gullivers Travels” þekkja ýmsir, það er napurt háð sem varla á sinn líka. ‘Idle Thought of an Idle Fellow’ er eftir hinn nafnkunnasta ‘grínista’semnú er uppi á Englandi, Jerome K. Jerome, og er eins og flest sem hann ritar, afar lilægilegt. “The Chimes” er draugasaga eft- ir Charles Dickens; nafn höfttndarins er nægilegt meðmæli með henni. . Sögurnar af “Widow Bedott” eru óviðjafnanleg- ar í sinni röð. Máltæki eitt segir : hlátur og langlífi eru oft- ast samfara. Ef þið hatíð hug á að verða langlíf, þá rej’nið ofangreindar hækur. Þeir sem borga þennan árgang (10.) að fuUu, eða þeir sem borga upp gamlar skuldir og um leið fyrir þennan árgang, og þeir sem gerast nýir kaupendur og borga fyrirfram, fá einnig frítt söguna. Mikael Strogoff, innfesta í góða kápu. Sagan er nú öll komin út og er 361 bls. að stærð, i áttablaða broti. Eins og mörgum er kunnugt, er þetta ein hin bezta saga, sem lögð hefir verið út á íslenzku, og ættu menn því að nota tækifærið og ná í hana áður en hún gengur upp. (Að eins 150 eintök eftir). Þessi tilboð standa til 1. Júlí næstkomandi, ef upplagiðai ‘St^goff’ verður ekki gengið upp fyrir þann tíma. Engar premiur verða sendar til Islands, nema borgað sé fyrir þær sérstaklega.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.