Heimskringla - 24.09.1896, Blaðsíða 1
X. ÁR.
WINNIPEG, MAN., 24. SEPTEMBER 1896.
NR. 39.
FRÉTTIR.
DAGBÓK.
FIJÆTUDAG 17. SEPT.
Canadiskt lögfræðingafélag var í
gær stofnað í Montreal. Hin ýmsu
fylki mynda sérstaka deild í alsherjar
félaginu og er einn varaforseti allsherj-
arfélagsins í hverju fylki. Varaforseti
Manitobadeil-darinnar er J. S. Ewart.
Nú er það fullvíst orðið að þorska-
veiði fyrir Labrador-ströndum hefir al-
gerlega brugðist í sumar.
Blöðin á Englandi tala um að Bret-
ar, Bandaríkjamenn og ítalir ættu að
ganga í bandalag í því skyni að útkljá
hina austrænu þrætu — Armeníu-málið
m. m. — Alíta að þá mundi ekki lengi
standa á úrlausninni.
Aður en Vilhjálmur Þýzkalands-
keisari skildi við Rússa keisara um dag-
sagði hann honum að hann fagnaði yfir
vináttu hans og Frakklandsstjórnar, af
því, að hann mundi hjálpa til að halda
hefnigjörnum mönnum í skefjum. Á
Rússlandi væru Níhilistar og önnur
börn myrkranna og vanþekkingarinnar
til að berjast við. Á Þýzkalandi væru
sósialistar og aðrir eyðileggjendur sem
hyldu sig í kufli visindalegra fræða. Á
Frakklandi væru bara blátt áfram bylt-
ingamenn, sem vildu umhverfa öllu nú-
verandi fyrirkomulagi. Á móti þessum
óaldarílokki, þessum “óvinum guðs og
konunga”, þyrftu þeir — Vilhjálmur og
Nikulás — að vinna og mundi það tak-
ast, ef þeir væru samtaka.
Leiðtogar Bryans, þeir sem stjórna
sókninni fyrir hans hönd, komu allir
saman á fundi í Washington í gær, til
ráða fram úr ágreinings og vandræða-
málum í hinum ýmsu ríkjum.
Tfirrétturinn í Colorado hefir úr-
skurðað að lögmenn megi ekki auglýsa,
að þeir leggi sig fram til að útvega hjóna
skilnað. Blaðið “Herald” í Grand Forks
segir, að talað sé um að gera slíkt hið
sama í Norður-Dakota.
Laurier-stjórnin álítur ofmikið í fang
tekist að koma upp gufuskipum sem
gangi 20 sjómílur á klukkustund til
jafnaðar, milli Canada og Englands.
FÖSTUDAG 18. SEPT.
í siðastl. Ágúst lét Bandaríkjastjórn
móta silfur peninga upp á $2.050,000.
Á því græddi stjórnin rétt 822,027 doll.,
þvi málmurinn að verkinu meðtöldu
kostaði ekki nema $1,827.970.
Blöð á Englandi segja fregnirkomn
ar þess efnis frá Washington, að ef her-
skip Breta leggi af stað inn Hellusund
með ófriði, skuli skip Bandaríkja. fylgja
fast á eftir og viðhalda reglu, þó ekki
muni þau herja á virki Tyrkja á bökk-
unum.
Charles F. Fishback, einn af eig-
endum blaðsins “Eveninc Times” í Se-
atle, Wash., seldi í gær auðmannafélagi
í New York gullnámu sem hann átti í
Caribou-héraðinu í British Columbia,
fyrir 5 milj. dollars.
Nú er sagt að Karlistar á Spáni hafi
í hug að gera uppreist og reyna að ná
ríkinu úr greipum Kristínar og litla
Alphons XIII. Er sagt þeir hafi aldrei
verið betur búnir en nú, og stjórnin
aldrei eins illa búin til að mæta þeim,
vegna styrjaldanna á Cuba og Philip-
pine-eyjunum eystra.
Lautenant McKinleys, W. Bourke
Cochrane, flutti ræðu í gærkvöldi í sýn-
ingaskálanum stóra í Minneapolis, fyrir
8 þúsund áheyrendum.
Hinn 2. þ. m. hafði norski kaup-
maðurinn M. J. Menes, í Milton og
Edinborgh, N. Dak., horfið oghefirekki
sézt síðan. Er ætlað að liann hafi ráðið
sér bana. Eignir hans eru metnar 20—
25 þús. doll. virði og hefir nú umboðs-
maður verið skipaður til að líta eftir
þeim.
VBITT
HÆSTU VEROLAUN a hkimssýningunn
DH
BÁHING
P0WMR
IÐ BEZT TILBÚNA
Óblönduð vínberja Cream of Tartar
jowder. Ekkert álún, ammonia eða
önnur óholl efni.
40 ára *«ynslu.
LAUGARDAG 19. SEPT.
Skeyti frá Vínarborg segir að á síð-
astl. fáum dögum hafi 7 menn verið
gripnir og drepnir fyrir tilraunir að
komast inn í privat-herbergi soldáns í
Konstantinópel. Er sagt víst að 5 þess-
ara manna hafi ætlað að drepa soldán.
Af því er að ráða að margur maður vilji
hann feigan.
Nýlega lét Spánarstjórn banka sinn
á Cuba gefa út ósköpin öll af seðilpen-
ingum, til að bæta úr peningaskortin-
um. Seðlar þessir eru nú þegar fallnir
í verði svo nemur 16% og vill enginn
hafa þá, Nú hefir Weyler herstjóri gef-
ið út skipun þess efnis, að þeim verði
öllum hengt og það rækilega, sem neiti
að taka þessa verðföllnu peninga með
nafnverði.
Skeyti frá Ottawa segir, að Joseph
Martin getiekki fengið innanríkisstjórn-
ina, en að hún sé ætluð Sifton einum.
Er þetta haft eftir þeim þremur mönn-
um, sem fóru með Martin austur, til að
mæla máli hans, D. W. Bole, F. S. Nu-
gent, W. W. Watson.
Kærur hafa verið framfluttar á
sambandsþingi þess efnis, að conserva-
tive-stjórnin síðasta liafi farið óráðvand
lega með hveitibandið, sem búið er til á
verkstæði hennar í Kingston. Sagt að
vinum stjórnarinnar hafi verið lánað
það og að þeir séu enn ekki farnir að
borga og að trygging fyrir borguninni
sé ýmist léleg eða engin.
Nýr forseti tók við völdum í Chili í
gær. Er hann nafnkunnur blaðamaður
í ríkinu og heitir FredericK Errazuriz.
Búizt er við styrjöld sem afleiðing
af þessum skiftum, því hinn frávikni
forseti, Jorie Montt, hafði alþýðuhylli
mikla.
MÁNUDAG 21. SEPT.
Dongola i höndum Breta. Á laugar-
daginn fl9. Sept.) náðu herflokkar Breta
til aðal-kastala dewishanna, El-Hafir, á
Nílárbökkum. Þar hafði verið dreginn
saman meginher uppreistarmanna opj
þar bjuggust þeir við að ríða Bretum að
fullu. En það fór á aðraleið. Orustan
var hafin undir eins og Bretar komu og
stóð hún til þess myrkt var. Voru það
fallbyssur, sem aðal-lega var beitt fyrir,
því fljótið var í milli. Þegar lýsti á
sunnudagsmorguninn, komst það upp,
að dewislfar allir voru flúnir úr virkinu
og tóku Bretar það fyrirhafnarlaust og
settust í það. Er það nú sumra ætlun,
að dervishar muni ekki gera meira að
verkum, en telji sig yfirunna. Þeir hafa
orðið undir í öllum smáorustunum, sem
háðar hafa verið á ferðinni upp eftir
fljótinu og nú hafíw þeir tapað sínu
traustasta vígi. — Sagt er að fallið hafi
einir 5 menn fff liði Breta, en margir
fengu sár. Um mannfall dervishanna
eru óljósar sagnir, en meðal þeírra, sem
særðir eru, er Wad Bishara, hinn svo
kallaði emír í Dongola.
Fregn frá Ottawa segir að Proulx
ábóti só sendur til Rómaborgar til að
klaga kaþólska klerkalýðinn í Canada
og fá umboðsmann til að rannsaka allar
þeirra gerðir í skólamálinu. Það er
mikið sennileg fregn!
Fenian-félagsskapur er sagður í
uppgangi á Irlandi á ný og er það or-
sökin, að lítið vinnst á með löggjöf ír-
um í hag. Er því tilgangurinn að beita
handalögmáli einu sinni enn.
Póstmálaskýrsla Bandaríkjastjórn-
ar fyrir fjráhagsárið er endaði30. Júní
síðastl., er nýkomin. Sýnir hún að nú
eru 1 Bandaríkjunum 70,360 pósthús. Á
síðastl. ári var 2,046 pósthúsum bætt
við, en 1,750 af þeim sem áður voru póst •
hús, hættu að starfa.
Frostið sem kom aðfaranótt hins 19.
þ. m. olli miklu tjóni í Dakota-ríkjun-
um, Montana, Minnesota og Nebraska.
Rússakeisari lagði af stað frá Kaup-
mannahöfn í gær,—áleiðis til Englands.
Tekur þar land í Leith á Skotlandi.
ÞRIÐJUDAG, 22. SEPT.
Námamenn í Colorado gerðu upp-
hlaup i gær í Leadville, lögðu I eyði um
25,000 dollara virði af eignum og urðu
orsök í lífjóni margra manna. Náma-
mennirnir gerðu vinnustöðvun, og af
því sþruttu óeirðirnar, að eigendur
námanna fóru að fá menn úr öðrum
héruðum.
Skeyti frá Egyftalandi segir þá
fregn ganga, að emfrinn í Dongola sé
búinn að ná samnefndu virki úr greip-
um Breta aftur. Fregnin er annars
mjög óljós ogfregnirnar margvislegar
sem þaðan berast þessa dagana.
Sir Oliver Mowat segir staðhæfing-
ar blaðsins ‘Globe' í Toronto á sandi
bygðar, að því er snertir skólamálið.
Blaðið sem sé segir það mál svo gott
sem útkljáð þrátt fyrir líkur til hins
gagnstæða.
Sykurgerðarhús i Moncton, New
Brunswick, brann í gær. Það var í
eldsábyrgð fyrir $332,000, en eignatjón-
ið er talsvert meira,
Þreskivélarstjóri fórzt í eldi í grend
við Deloraine, Man., á laugardagskveld-
ið. Varaðreyna að .bjarga vél sinni
úr hálmhrúgum, sem stóðu í báli.
Á sunnudaginn synti maður yfir
hafnarmynnið í San Francisco og er
það þrekvirki er enginn hefir gert áður.
Vegalongdin er ekki nema lj míla, en
svo er straumurinn mikill, að hann
synti 7 mílur áður en lokið var. Hann
var 1 klukkustund og 15 mínútur á
sundinu.
MIÐVIKUDAG, 23. SEPT.
Fellibyljir, jarðskjálftar og flóð,
hafa gengið í Japan á ný og orðið mörg-
hundruð manns ’að bana og lagt í rúst-
ir að sögn um 10,000 ibúðarhús.
Rússakeisara-hjónin komu til Leith
á Skotlandi í gær og liéldu tafarlaust til
Balmoral kastalans, þar sem Victoria
drottning veitti þeim móttöku. Gest-
unum var fagnað með virktum í Leith
og Edinburgh, en keisarinn tók öllum
kveðjum kuldalega.
Hinn nafnkunni prédikari D. L.
Moody í Chicago skorar á alla ] iresta og
sannkristna menn, að fasta og biðja
fyrir Bandaríkjamönnum á föstudag-
inn 8! Október næstkomandi. Er það
í þeim tilgangi gert að betur ráðist þá
úr kosningastríðinu, sem nú stendur
yfir.
af framkomu sinni, en hitt er óhægra,
að verjast árásum þeirra mannygu tví-
fættu blótneyta, og er þá eina ráðið við
slíka, er ekki er lengur hægt að komast
undan þeim, að taka í granir þeim, og
snúa þá niður.
Og i Lögbergi nýlega ræðst á mig
eitt slíkt blótneyti rneð sínum þursalegu
ósannindum er hann ltann svo vel að
nota, af því hann veit að ég hefi engin
vitni að því er ég bar hann fyrir í vet-
ur. En svo tekur hann fyrir það snjall-
ræði, að hræða kerlinguna og einn strák
inn sinn, til að bera ljúgvitni gegn mér,
um hið síðara samtal okkar, þ. e., að
vitna að alt sé satt og rétt sem hann
ber fram því viðvíkjandi í Lögbergi.
Slíkan óþverraskap er naumast hægt að
eltast við, fyrst blótneytið getur verið
svo sóðalega blygðunarlaust, að kald-
hamra fram sína ósönnu sögu án tillits
til allrar sanngirni, og þvert á móti beh'i
vitund. Mér dettur ekki í hug að fara
að eltast við lygaslúður hans orð fyrir
orð, því það væri óðs manns æði. En
læt mér nægja að lýsa því yfir enn einu
sinni, að framburður minn í Hkr. þessu
viðvíkjandi, er bókstaflega sannur," og
að ég stend við hann hvemig sem blót-
neytið með sínum Lögbergsku hornum
rífur upp jörðina. Og um leið, neyðist
ég til að lýsa liann ósanninda mann í
þessu máli og vitna til hans eigin sam-
vizku, sem ég efast ekki um að séállvel
vakandi þar eð hann enn þá hefir sína sálu
hjálplegu barnatrú. En með allri virð-
ingu fyrir barnatrú almennings, hverju
nafni sem hún nefnist, þá get ég ekki
metið Kr. B. meira fyrir hans barnatrú,
af þeirri einföldu ástæðu, að mér er ó-
mögulegt að sjá, að hún hafi haft nein
veruleg betrandi áhrif á hann, því: Sýn
mér trú þína af verkum þínum o. s.frv.
Að ég hafi reynt að svifta Kr. B.,
eða aðra þar, barnatrú sinni, er á sama
sannleiksgrundvelli byggt og annað í ó-
þverra-austri hans, Þyí hvað sem öðr-
um liði, hafði ég það álit á honum, að
ekki væri eyðandi á hann neinum betr-
unar meðölum.af þeirri einföldu ástæðu,
að hann væri alveg óbetranlegur. Og
ég er nú fyllilega kominn að raun um,
að bann hefír verðskuldað það álit.
Að ég sé að sýna menn þar ósjálf-
stæða ræfla, er nokkuð sem engir sjá
nema K. B., en það er engu að síður
allgóð lýsing af honum sjálfum með
öðru fleira. Og að hann skuli ekki hafa
vit á að fyrirverða sig í staðinn fyrir að
tala um aðra menn sem letingja er yfir-
gengilegt og sýnir bezt hvað lítið af
sómatilfinningu hann * liefir, því iallir
sem nokkuð þekkja til hans vita að
bann er ríkur orðinn (eða bjargálna-
maður, því ríkur er hann ekki) af sveita
sona sinna. því áður en þeir fóru að
vinna honum inn peninga var hann
eins fátækur og hyer önnur landeyða.
Að hann sjálfur sé ósjálfstæður ‘ræfill
sýnir framkoma hans í öllu þessu vott-
orðamáli. Það var hann sem með dig-
uryrðum sínum og skylningsleysi kom
á stað öllu þessu þrefi út af óréttmæti
vottorðsins, og skorti svo drengskap til
að kannast við yfirsjón sína, því það
var þó ekkert mannorðsmeiðandi': Yfir-
sjónir eru mannlegar og tíðar, en þaðer
ekki nema göfuglyndið sem gengst við
þeim, en slíkt átti ekki heima hj'4 hon-
um.
Herra konungurinn má reiða sig á
það, að þeir sem þekkja til þessa máls
og standa því næstir, hafa þegar fengið
næga þekkingu á okkur báðum, til að
vita hvorum þeir eiga að trúa, og ég
legg það óhræddur* undir dóm þeirra
manna, og ég þekki menn, sem eg er
viss um að gefa vitnisburð um það, að
Kr. B. einmitt viðhafði sömu eða svip-
uð orð um nefnt vottorð, ef þess gerðíst
þörf. En ég ætla ekki að ‘spandera’
svo mikilli fyrirhöfn áhann, fyrr en ég
sé þriðju ritsmfðina frá bonum og ef
hún þá verður þess verð. Orðin sem
ég hafði sérstaklega eftir honum talaði
hann við mig einan. En samt lætur
hann konuna bera vitni í því og bland-
ar því svo saman við hið síðara samtal
okkar, nefnil. í vor. Það þarf ekki
skarpa sjón til að sjá hvernig í þessu
liggur, því ég þekki aumingja konuna
og get nærri, hversu ljjúft henni hefir
verið að fór"na sannleiksást sinni fyrir
‘þursann’. Hvernig skjddi blótneytið
bölva næst ?
Eitt er það, sem hlýtur að vekja
undrun heimsins, nefnilega, hversu Kr.
er orðinn póetiskur. Það má segja
eins og kerlingin sagði um son sinn :
“í fyrra gat hann ekki sagt nema andi,
andi, en nú segir hann fullum fetum:
fjandi, fjandi!” í fyrra orti Kr. B. í
að eins í laumi, en nú lætur hann fjúka
á prenti út um allan hinn ‘liberala
heim.
S. B. Benedictson.
Meira um þetta mál verður ekki
tekið í Hkr.
Ritstj.
Áætlun
silfur-demókrata um fjöldaatkvæðanna,
er Bryan féi umfram McKinley, er í
hinum ýmsu rikjum, sem fylgir: í
Alabrama..................... 60 þús.
Arkansas..................... 75 ‘*
California................... 50 “
Colorado.....................100 "
Deleware..................... 10 *•
Florida...................... 15 “
Georgia...................... 75 “
Idaho ........................ 1 “
Illinois..................... 50 “
Indiana...................... 50 “
Iowa......................... 30 “
Kansas....................... 40 “
Kentucky..................... 35 “
Louisiana ................... 40 “
Maryland..................... 15 “
Michigan..................... 30 “
Minnesota.................... 35 "
Mississippi.................. 20 “
Missouri..................... 64 “
Montana...................... 15 “
Nebraska..................... 30 “
Nevada........................ 4 “
North Carolina.............. ‘20 “
Ohio......................... 25 "
Oregon....................... 10 “
South Carolina............... 60 “
South Dakota................. 10 “
Tennessee.................... 40 “
Texas........................175 “
Utah......................... io “
Virginia..................... 35 "
Washington-ríki.............. 15 “
Wisconsin.................... 30 “
Wyoming ...................... 5 “
National-nefndin, sem stendur fyrir
kosningasókn Bryans, telur honum
þannig 36 ríki af 45 í sambandinu og
frá þeim mæta alls324 kjörherrar á for-
seta kjörþinginu. Nefndin segir þetta
svo nákvæma áætlun sem hún hafi kost
á að útbúa að svo stöddu.
Enn út af vottorðinu.
“Heimska þrjóta að þreyta við,
það er ljóta gamanið.” — J. Ó.
Það var oifl og að sönnu að J. Ó.
mátti oft “þreyta við heimska þrjóta”,
enda virðist sem hann hafi verið búinn
að fá smekkinn af því, þar hann segir
að það sé “ljóta gamanið”. Og á öllum
tímum, á öllum stöðum eru þeir til, og
þeir eru vanalegast hættulegustu menn
fyrir mannfélagið, því þeir sem eru
þrjótar og heimskir í tilbót, eru allra
manna líklegastir til að gera— ekki ein-
göngu asnastryk—heldur líka þrælapör,
svo sem blygðunarlausar árásir á ná-
ungann, bygðar á lygum og heimsku.
Slíkir menn eru reyndar ætíð auðþektir
Tveimur bjargað.
Mrs. Phoebe Thomas, í Junction
City, 111., var sagt af lækninum, sem
stundaði hana, að hún hefði tæringu, og
að það væri engin lífsvon fyrir hana, en
tvö glös af Dr. Kings New Discovery
læknaði hana, og bjargaði lifi hennar.
Mr. Thomas Eggers, 189 Florida Str.
San Francisco, leið af vondu kvefi, sem
leit út fyrir að mundi verða að tæringu,
hann reyndi ýms meðul, en ekkert dugði
fyr en hann fékk Dr. Kings New Dis-
covery, sem læknaði hann á tveimur
vikum Svona löguð sjúkdómstilfelli
eru það sem sanna hversu óyggjandi
þetta meðal er við kvefi og hósta. Ein
flaska til revnslu ókeypis. Vana stærð
50c. og $1.00.
j Vetrar=varningur! |
Vöru-upplag vort í fyrra var mikið — meira þá en nokkru sinni áður. Þó eru engar ýkjur að segja
það EINUM FJÓRÐA MEIRA NÚ EN í FYRRA. Um þetta getur hver sannfært sjálfan sig, sem geng-
ur gegnum búðina, og — vér bjóðum alla velkomna.
Stærsta Alnavorii- klodnadar- oa; Sko-verzlun i vestur-bœnuin !
Stærsta upplag af karl-
manna og drengjaklæðnaði
í vestur-bænum. — Yfir-
kápur úr ‘Tweed,’ ‘Etoffe,’
Irsku og Canadisku ‘Freize,’
Alklæðnaðir úr “Serge,”
“Basket”- klæði (brugðnu
klæði), “Etoffe,” ‘Worsted’
o. s.frv.—fyrir karlmenn og
drengi. Ýfirkápur á öllu
verðstigi, frá $4,50 til $15
ogefni, litur og snið að því
skapi fjölbreytt. Vér getum
fullnægt öllum sanngjörn-
um kröfum í því efni, hvort
heldur sem er að ræða um
yfirkápur eða alfatnað. —
Ekkert skran á boðstólum,
eða vara sem legið hefir á
hyllunum svo árum skiftir.
Stærsta upplag af skó-
fatnaði í vestur-bænum.
Eina islenzka skófataverzl-
unin í Winnipeg. Skófata-
birgðirnar sem vér í vor er
leið ke.vptum af A. F. Reyk-
dal&Co., eru.fyrir löngu
uppgengnar. í þeirra stað
bjóðum vér nú spánýjan
skófatnað, á ferðinni nú á
liverjum degi beina leið frá
verksmiðjunum, og vér
kaupum frá sjö skó-verk-
smiðjum. Af því má ráða
hverju sé úr að velja.
Kistur og töskur.
Vér höfum þær af allri stærð
og á öllu verðstigi, í skó-
fatnaðardeildinni. Kistur
á $2.75 og yfirogtöskur 75c.
og yfir. Stórar og vandaðar
leðurtöskur kosta auðvitað
meira, og vér höfum þær til
ekki síður en þær ódýrustu.
S.=V. horn Ross Ave. og Isabel Str.
m-
Til athugunar fyrir ungu piltana.
Vér höfum nokkuð nýtt að bjóða ungu mönnunum, sem ýmsra hluta vegna vilja og þurfa að fylgja tizkunni og sem
þar af leiðandi hafa þreytt við að kaupa skraddaragerðar kápur. Þeir sem það hafa reynt vita, að þar þarf peninga
til. Nú hefir eitt skraddarafélag í Toronto tekist i fang að búa til SKIÍADDARAGERÐÁN KLÆÐNAÐ CG
YFIRKÁPÚR, EFTIR MALl, af mönnum af allri stærð og öllu vaxtarlagi og er þar nákvæmlega fylgt tízkunni.
Vér höfum náð i æðimikið upplag af þessjim klæðnaði og kápum, sem nú eru til sýnis í búð vorri. Allir sem hafa
skoðað þær, dást að sniðinu og öllum frágangi og þekkja ekki frá ‘tailor-made’ kápum. En verðmunurinn er mikill.
Fyrir ungu stulkurnar.
Vér höfum hugsað um þær ekki síður en ungu piltana. Þær þurfa einnig og ekki síður að fylgja hinni breytilegu
tízku. Handa þeim höfum vér stórt upplag af JÖKKUM, sniðnum og gerðum samkvæmt Parisarmóðnum í haust
KVENN-JAKKAR þessir eru með öllum almennum litum, svartir, “navy-blue,” gráir, morauðir, o. s. frv. og á
öllu hugsanlegu verðstigi,—frá 3 til 20 dollars. I þessu efni getum vér mætt öllum hugsanlegum kröfum.
Urvals nærfatnad
fyrir karla, konur og börn höfum vér nú á boðstólum og talsvert ódýrari en í fyrra. Meðal nýrra tegunda má nefna
“fleece-lined” nærfatnað. Hlýrri nærfatnað er ekki hægt að hugsa sér. Komið og skoðið þau.
G. JOJHNSOJM,
*
*
<>
Yfirkapur fyrir börn
höfum vér nú ljómandi fallegar og hlýjar úr efni sem kallað er “Æðardúns-klæði,”— bæði mjúkar og hlýjar, á $1.75
og yfir. Vér höfum einnig “æðardúns-klæði” í ströngum til að seljamæðrum sem sjálfar vilja sniða og sauma á
börn sín. Enn fremur “Curly-cloth” (hrokkið klæði), Enginn hlutur betri i kópur handa 2—4 ára gömlum börnum.
AÐ Síðustu ! Vér hikum ekj^i við að segja, að samskonar varningur, á sama gæðastigi og jafn-nýr, FÆST
HVERGI í BÆNUM ÓDÝRARI. Vér höfum ásett oss að selja vörurnar svo ódýrt að enginn geti boðið betri kjör
Og vér erum í kringumstæðum til þess nú. Vér skiftum ekki lengur við milligöngumenn, en kaupum beint af sjálf-
um verksmiðjueigendunum. Vér stöndum þess vegna jafnt að vígi nú og stórkaupmenn bæjarins, og getum því
Selt med heildsoluverdi
ekki síður en þeir, ef stærri kaup eru gerðíemu. KAUPMENN í SMÁBÆJUM OG SVEITUM geiðu sjálfum
sér gagn ef þeir vildu finna oss jafnframt og þeir finna aðra heildsala i bænum. Það getur orðið þeim til hagnaðar.
Komið og skoðið vörurnar og spyrjið um verðið. Allir velkomnir !
*
*
Suð-vestur horn^Ross Ave.
og
Isabel Str.