Heimskringla - 08.10.1896, Side 1
X. ÁR.
WINNIPEGr, MAN., 8 OCTOBER. 1896.
NR. 41.
Jón Guðmundsson.
Þess var stuttloga getið í síðasta
blaði Hkr. að hann hefði látizt.
— Hann andaðist 7, Sept. sl. að heim-
ili sínu á 68 aldursári, eftir 3 vikna legu
í brjóstveiki. Jarðarför hans fór fram
10. s. m. að viðstöddum nálega öllum
nýlendubúum. Hann var jarðaður á
heimalandi sínu “Hóli í Yatnsdal.”
Því að enn þá hafa nýlendumenn engan
sérstakan grafreit, enda er þetta fyrsta
jarðarförin meðal fsl. í þeirri nýlendu
sem nú er 9. ára gömul.
Jón sál. var fæddur á þrettánda dag
jóla, eða 6. Janúar, 1829 að Bílduhóli á
Skógarströnd við Breiðafjörð, Snæfells-
nessýslu á íslandi. Ólst hann upp hjá
foreldrum sfnum, heiðurshjónunum
Guðmundi Vigfússyni og Málmfríði
Jónsdóttur er þar bjuggu rausnarbúi á
óðalsjörð sinni yfir 40 ár.
Á ísl. bjó Jón sál. búi sínu um 30
ár, uns hann fyrir 9 árum síðan flutti
hingað til lands með fjölskyldu sinni, og
nam land £ Vatnsdalsnýlendunni sem
þá var í myndun, hvar hann hefir búið
síðan.
Jón sál. var tvíkvæntur, og 15 barna
faðir. Fyrri kona hans hét Martha
Sigríður Jónsdóttir, dóttir sér Jóns sál.
Benediktssonar, Gabríels, eitt sinn
sóknarprests að Breiðabólstað á Skóga-
strönd, vönduð, mikilsvirt og gáfuð
kona. (Séra Jón Benediktsson og Jón
“forseti” og “föðurlandsvinur” Sigurðs-
son voru systkinasynir).
Með fyrri konu sinni eignaðist Jón
sál. 9 börn, 3 syni og 6 dætur, hvar af 7
eru á lífí. Þrjú af þeim eru hér i landi
og nú til heimilis í Winnipeg: Mr. Jón
Ágúst Jónsson (söðlasmiður), Mr. Ste-
fán B. Jónsson (trésmiður) og Mrs.
Málmfríður J. Anderson, en 4 þeirra
eru á íslandi.
Seinni kona Jóns er Kristín Þórðar-
dóttir, ættuð úr Mýrasýslu á íslandi,
góð og vel metin kona, húy lifir mann
sinn ásamt 6 börnum þeirra lxjóna, 5
sonmn og X dóttur. (Eitt þeirra barna
tók Jón Stefánsson, vinur iiins látna,
og Kristín Teitsdóttir kona lians, hér í
bænum, aðsér til uppfósturs fyrir átta
árum síðan).
Jón sál. var snemma listfengur,
flinkur og afkastamikill til allra verka
og skaraði hann í því efni langt frain úr
samtíðamönnum sínum þár um slóðir.
Á unga aldri nam hann snikkaraiðn í
Reykjavík, og stundaði hann þá iðn í
viðlögum jafnan síðan ásamt járnsmíði,
Þegar tómstundir gáfust frá heimilis-
störfum. Hann var einn af þeim mönn-
um sem sagt er um að alt leiki í hönd-
unum á. Hann var maður skapstór
enda þrekmikill til sálar og líkama, og
þótti liann jafnan vera örðugur viður-
eignar, ef því var að skifta. En jafn-
framt var haun mannkostamaður mik-
ill. í allri viðureign var hann hinn lipr-
asti og ljúfmannlegasti, meðan honum
fanst rétti sínum ekki misboðið. Hann
var mjög ákveðinn mótstöðumaður ó-
vina sinna, en sáttfús og tryggur viuur
vina sinna. Trúmaður var hann og
mjög ákveðinn og yfir höfuð fastheld-
inn við alt það sem hann hafði einu-
sinni álitið gott og gilt, meðan hann
fékk ekki ómótstæðilegar sannanir fyr-
ir öðru betra, en þó jafnan umburðar-
lyndur að því er skoðanamun snerti.
I æsku var hann lítt settur til menta,
þó nam hann á unga aldri kennaralaust
það sem nú kallast almennar náms-
grein8r, svo sem skrift, þá tíðar réttrit-
un, reikning, dönsku og landafræði o.fl.
Á sinn hátt fýlgdi Jón sál. með
tímanum, sem kallað er, einkum fram-
an af æfi sinni. Og má með sanni
segja, að hann hafi verið trúr hinum al-
ment drottnandi ‘prinsipum’ samtíðar
sinnar, að því leyti sem honum sjálf-
rátt, því hann var skyldurækinn mað-
ur, og var hann að svo miklu leyti í-
haldsinaður nútimans, en fyrir það
verður honum ekki ámælt, því að liann
breytti í því eflaust samkvæmt beztu
vituud. Og takist afkomendum hans
eins vel að helga líf sitt hinum háleitari
hugsjónaog menningarstefnu samtíðar
innar og framtíðarinnar, i stað þess að
standa í stað langt aftur í liðna tíman-
um meðal hinna dauðu, þá helgar það
meir en nokkuð annað minning liins
látna mikilmennis, sem nú er horfið
líkamlegri augsýn út í geim eilífðarinn-
ar áleiðis til fyrirheitna landsins.
Svo nú er hann hniginn, setn forðum í
för
stóð fremstur á menningar slóð.
Hann átti svo brennandi andans fjör,
að ísköld ei buguðu hann lífsius kjör.
Hann var afbragð af almúga-þjóð.
Um alheiminn fórekki frægðarorð hans
en fólkið sem þekkti hann bezt,
það heiðraði atgerfi hins mikla manns,
sem metorð ei snikti né gullkrossa fans,
en mörgum stóð framar um flest.
Hann var ákveðið stórmenni að atorku
og sál,
og einn kunni að heyja sitt strið.
Með þreklynda hjartað og mannúðlegt
mál,
ograeistarahendur og vilja sem stál,
í fyrra um þetta leyti vildu allir
eiga axíur í Afríku-gullnámunum og
margfalt verð boðið fyrir á axíumark-
aðinum í London. Nú aftur á móti lít-
ur enginn við þeim eignum.
500 Armeniumenn (karlar, konur
og börn), flóttamenn undan morðvopn-
um Tyrkja, sitja nú algerlega allslausir
og eiga enga að í Marseilles á Frakk-
landi. Tilgangur þeirra var að komast
til Bandaríkja, en bæði er það, að skort
ir fargjaldið og hitt, að innflutningslög
Bandaríkja banna þeim landgöngu á
‘frelsisins flmbulstorð’. Uppliaflega voru
þeir 800 samau, en 3o0 voru gintir til
að flytja til Argontina, og er því spáð
að þeirra síðara verði verra hinu fyrra,
að sumu leyti. Fregnritarnir, er sendu
frétt þessa vestur um haf, segja, að hér
sé sannarlega þörf á hjálp og það tafar-
laust. Þessir aumingjar sitja þarna
öllum ókunnir og eiga ekkert.
FIMTUDAG 1. OKT.
Réttlæti Tyrkja. Rannsókn er nú
hafin í morðmálum Tyrkja í Konstatín-
ópel og í gær var kveðinn upp dómur
yfir nokkrum. Nokkrir tyrkneskir
menn voru fundnir morðsekir og fengu
Þeir íim(án ára fangelsi. Samtimis var
sýnt fram á likur til að ákveðnir Ar-
meníu-menn hefðu átt þátt í upphlaup-
inu og voru þeir dæmdir dauðasekir!
Chamberlain, útríkjastjóri Breta,
hélt heimleiðis í gær. Hann kom ekki
til Canada, en Canadastjórn sendi Sir
Richard Cartwrigh á fund hans.
Leikhús í Aberdeen í South Dakota
brann til rústa í gærkvöldi. Kviknaði
VEITT
SÆSTU VBUÐLaun a HBIMSSVNINGUNN
DR
BAKING
P0WDFR
IÐ BEZT TILBÚNA
Óblönduð vinberja Cream of Tartar
fl[owder. Ekkert álún, ammonia eða
önnur óholl efni.
40 ára ^eynslu.
í gær greiddi Laurier og allir hans
‘free trade’-fyigendur atkv. gegn tillögu
Davins frá Regina, um. að við næstu
yfirskoðun tolllaganna skuii akuryrkju-
vélar, hveitiband og steinolía undan-
þegið tolli.
LAUGARDAG, 3. OKTÓRER.
Stjórn Breta hefir að sögn tilkynt
stórveldunum, að hún sé tilbúin að
ganga á undan og skakka leikinn i
Konstantínópel, og gera það ein, ef
stórveldin ekki vilja vera með og taka
rögg á sig nú undireins. Floti Breta í
miðjarðarhafinu er sagður svo mikill,
að þeir geti teaið borgina á vikutíma.
Illhrif eru eögð í vændum á ný milli
Breta og Þjóðverja. Er orsökin sú, að
konsúll Þjóðverja i Zanzibar sendi upp-
reistarmanninn Khalid, er ætlaði sér
soldánsstólinn, burtu úr Zanzibar til
þýzkrar nýlendu, þrátt fyrir bann hins
brezka konsúls.
50 ára afmæli Iowa-ríkis héldu Iowa-
menn hátíðlegt í gær. Mitt í gleðiuni í
Burlington vildi það slys til, að pallur
hrundi og meiddust um 50 manns.
í gjaldadálki sambandsstjórnar á
yflrstandandi fjárhagsári er 850,000
veittir til stuðnings smjör- og ostagerð
og 820,000 til að fá komið upp frystihús-
um, einkum þar sem smjör og ostur
bíður eftir burtflutningi.
MÁNUDAG, 5. OKT.
Wflliam Morris, hið nafnkunna skáld
á Englandi, lézt hinn 2. þ. m., 62 ára
gamall. Hann var stórauðugur maður
og verksmiðjueigandi, en var eigi að
síður skorinorður sósialisti. Hann var
í félagi með herra Eiríki Magnússyni í
Cambridge að þýða Grettissögu, Yöls-
ungasögu o. fl. á enska tungu.
Koininn heim. Gamli Li Hung
Chang náði heim til sín, til Tien-Tsin, á
laugardaginn 3. þ. m.
Skeytí frá London segir altalað að
bæði Grikkland og Rúmenía séu gengin
í sambandið með Þjóðverjum, Austur-
ríkismönnum og ítölum og von á að
Servíumenn gangi í það innan skamms.
Þessar smáþjóðir vilja hafa fylgi þegar
veldi Tyrkja verður limað sundur.
Rússnesku \ keisarahjónin kvöddu
Victoriu drottningu í Balmoral kastal-
anum að kveldi hins 3. þ. m. og tóku
sér far þaðan með járnbraut suður um
land til Portsmouth. Þaðan lögðu þau
af stað í morgun til Cherbourg á Frakk
landi og þaðan til Parísar. Gefzt þá
Frökkum tækifæri eftir margra ára
þögn að æpa : ‘ Vive 1’ Empereur!’ því
Nikulás vill ekki hafa : ‘Lifi Zar(inn)’.
Sambandsþingi Canada var slitið í
dag.
Vagnstöðyahúsið í Stonewall, Man.
brann til rústa á sunnudaginn.
ÞRIÐJUDAG, 6. OKT.
Eftir fregn frá London að dæma
hefir Laurier-stjórnin séð sig um hönd.
Sagtaðhún og Chamberlain útríkja-
stjóri Breta sé á eitt sátt um þörfína á
hraðskreiðri gufuskipalínu milli Cana-
da og Englands.
Frá Toronto kemur sú fregn að Sif-
ton dómsmálastjóri i Manitoba hafi
komizt að samningi við T. M. Daly, er
ætlaði að sækja gegn honum, þannig,
að Daly (sæki ekki, en fái svo gagn-
sóknarlaust fylkisþingsæti Siftons í
North-Brandon.—Sama sagan segir
og að Martin hugsi Greenway jtegjandi
þörfina, þegar þar að kemur.
Á fimtudaginn 8. Okt. hafa Sir
Charles Tupper og frú hans verið 50
ár i hjónabandi, og halda því gullbrúð-
kaup sitt, — rausnarlegt heimboð í
Ottawa.
Lýðvaldssinnar Frakka fögnuðu
einvaldsherra Rússa í Cherbourg í gær
með engu minni fagnaðarlátum, enfor-
feður þeirra heilsuðu Napoleon mikla
komnum úr sigursælli orustu.
MIÐVIKUDAG, 7. OKT.
Aberdeen landstjóri og frú lians
lögðu af stað i gær vestur að Kyrrahafi.
Dvelja þar á búgarði sínum í Okana-
gan-dalnum í Klettafjöllunum tvo
mánuði.
Ein Cubafréttin segir, að Spán-
verjar losni við hertekna menn þannig :
að á nóttunni sé róið með þá á sjó út
og þeim steypt fyrir bprð, þar sem há-
karlar gleypi þá undir eins. I borginni
Havana einni var þannig farið með 80
fanga í Sept.
Það skeyti kemur frá Ottawa, að
Laurierstjórnin ætli að bæta nýjum
ráðherra í hópinn, er hafi umsjón yfir
námum öllum, og fylgir það að Joseph
Martin eigi að verða hinn nýi ráð-
herra.
Almennar kosningar í Florida fóru
fram í gær, og sópuðu demókratar öllu
fyrir sér.
Tvær allmiklar orustur voru háðar
á Cuba hinn 5. þ. m., og máttu Spán-
verjar betur i báðum. Mannfall alls
rúm 200.
Eftir fregnum frá Montreal að
dæma, er öll von til að vinnustöðvun
telegrafþjónanna sé um það á enda.
♦ Hefði hann vitað.
Þegai' Dr. Agnews Cixre for
the Heart er við hendina,
kemui' það ekki fyrir að
menn deyji úr hjartveiki.
UNDUR HINS HEIMSFRÆGA CA-
TARRHAL POWDER.
Meðöl Dr. Agnews hafa alt af lukk-
ast vel. Þetta á ekki síður við meðalið
sem kallað er Cure for the Heart, held-
ur en hin. Áhrif þess eru stórkostleg.
Sjúklingurinn er stundum í andarslitr-
unum og þó getur honum linað við eina
inntöku og ef haldið er áfram með með-
alið, íæknar það hina skæðustu hjart-
veiki. George Cutes, tollþjónn i Corn-
wall, Ont., segir: ‘Eg hafði hjartveiki
inokkur ár, og hin minsta áreynsla
gerði mig þreyttann. Eg var undir
læknishendi i meira en sex mánuði og
var alveg af og til að stunda starfa
minn. En mér batnaði ekkert, og ég
var farinn-að missa von um bata. Þeg-
ar ég fór að brúka Dr. Agnews Cure for
the Heart* en þetta meðal yfirbugaði
hjartveikina á stuttum tíma.
Þrátt fyrir sína meðfæddu varkárni
kefir Rev. John Scott D. D. presbyterí-
ana prestur í Hamilton, viðurkent _ að
hann hafi haft mikið gott af að brúka
Dr. Agnews CatarrhalPowder, og gert
mönnum það kunnugt með nafni sínu
undirrieuðu. Það er sama hvort það
er að eins vanalegt kvef í höfðinu, eða
það er langvarandi Catarrh. Þettavið-
felda meðal linar það á 10 mínútum og
læknar að fullu á stuttam tíma,
Sýnisliorn af duftum og pípa til að
blása það með fást hjáS. G. Detchon,
44 Church St., Toronto, ef send eru 10
cents í frímerkjum.
og styrk sem frá Sturlungatíð.
Hann var vinfár, en tryggur og traust-
ur í lund,
og táflaus, djarfur og hreinn.
Hann elskaði börn sín og ektasprynd;
svo örlyndur. skemtinn á góðvinafund.
Úr höndum hans hlut dróg ei neinn.
Hann var kallaður skapstór, ef þótti’
honum, þá
að þoka var eklti til neins.
Hann vissi’ ekki að óttast né víkja frá.
Hann vandist því oftast sigri að ná.
En sáttfús .hann ávalt var eins.
Af prestunum lærði hann utan að
í æsku að trúa á Krist.
Það sem þeir skráðu’ á hans bókfells-
. blað
ei blekktist af tímanna ryki, það
í eflinni ei hafði hann mist.
En lokið er dagsverkíð loks varð alt
hljótt,
er lifsstríðið mikla var báð. •
Ogsætt varð að lokum að sofna rótt,
þvi séð gat hann óhræddur dauðans
nótt.
Og sigrinum síðasta náð.
FRETTIR.
DAGBÓK.
MIÐVIKUDAG, 30. SEPT.
Feflibyljir hafa oflað stórvægilegu
flfs- og eignatjóni í Mexico. Sagt að
5—6 þorp séu gersamlega lögð í eyði.
Washington-frétt segir að Olney,
utanríkisstjóri Bandaríkja, ætli sér ef
nokkur kostur or, að fá Venezuelamál-
ið útkljáð áður en hann víkur úr völd-
um (4. Marz næstkomandi). Hann vill
einn hafa veg og vanda af því máli, að
því er Baudaríkjastjórn viðkemur. Hef-
ir því skorað á nefndina að hafaálit Sitt
svo snemma i höndum forseta, að hann
geti tekið tillit til þess í ávarpi sínu
til þingsins í Desember næstk.
í einu skólahéraðinu í Iowa hefir
skólanefndin samþykkt að brenna mais
í stað kola í vetur. Mais fæst þar fyrir
10 cents bush., og á því verði segir
skólanefndin hann ódýrara eldsneyti en
kol. — I sambandi við þetta má geta
þess, að vegna þess hvað mais er ódýr,
er sagt óhugsandi að hafrar komist £
nokkurt verð í vetur.
i því meðan það var fullt af fólki. í
troðningnum sem af því leiddi, meiddust
margir og eitthvað af fólki lét lífið.
Holdsveiki er uppkomin í Montreal,
meðal Kínverja. Hefir einn þeirra dáið
úr þeirri voðaveiki nú nýlega. Bæjar
og fylkisstjórn hafa í samlögum tekist í
fang að reyna að uppræta sjúkdóminn
Fádæma ofsaveður æddi yfir
Georgia og suðaustur-Bandaríkin á
þriðjudaginn. Vindhraði 66 mílur á
kl.stund. í tveimur litlum héruðum að
eins, er eignatjónið metið á J til 1 milj.
dollars. — Tíu til 20 manns týndu lífi.—
Ofsaveður i gær í Wisconsin og mistu
þar nokkrir menn lífið, — á skipi á ferð
frá Chicago til Milwaukee.—Samskonar
fréttir úr ýmsum áttum í Bandaríkjum.
Onnur aukaáætlun um gjöld sam-
bandsstjórnar var lögð fyrir Ottawa
þingið í gær. Er sú upphæð alls 8357,-
208. Af þeirri upphæð á að verja 835,-
000 til rannsóknarferðar um Hudson-
flóa.
Niu hásetar tilheyrandi brezku her-
skipi drukknuðu nýlega norður í grend
við Alaska-strendur. Þeir voru að fiska
sér til skemtunar, er kylja kom og
hvolfdi skútunni.
FÖSTUDAG, 2. OKTÓBER.
850,000 innvann veðhlaupahestur
prinzins af Wales honum í gær. Er
það í þriðja skiftið að þessi hestur hefir
unnið honum stór fó í sumar.
Yfir 100 mannstýndu lífi á Florida-
skaganum í ofveðrinu sem æddi um
suðaustur Bandaríkin fyrrpart vikunn-
ar. í gær gjöreyddi flóðalda þorpinu
Cedar Keyes fremst á skaganum.
Þeir sem mistu skyldmenni við
brúarslysið miklaí vorí Victovia, British
Columbia, hafa nú allflestir hafið mál
gogn bæjarstjórninni og strætisbraut-
arfélögunum og heimta skaðabætur, er
nema samtals nærj milj. dollars.
Montroal og Toronto bítast nú i á-
kafa um stjórnarstyrk. Torontobúar
vilja fá 850.uOO til að koma þar upp
‘Dominion’-sýningu að sumri, en Mont-
realmenn vilja að minsta kosti helmingi
meiri upphæð til að koma upp vænlegri
‘International’-sýningu í Montrealsum-
arið 1898. Hver vinnur er óséð enn.
\
í Vetrar-varningur!!
Vöru-upplag vort í fyrra var mikið — meira þá en nokkru sinni áður. Þó eru engar ýkjur að segja
það EINUM FJÓRÐA MEIRA NÚ EN í FYRRA. " '
ur gegniim búðina, og — vór bjóðum alla velkomna.
Um þetta getur hver sannfært sjáífan sig, sem geng-
Stærsta Alnavoru- kla'dnadar- og Sko-verzlun i vestiir-bœnum !
Stærsta upplag af karl-
manna og drengjaklæðnaði
í vestur-bænum. — Yfir-
kápur úr ‘Tweed,’ ‘Etoffe,’
Irskuog Canadisku ‘Freize,’
Alklæðnaðir úr “Serge,”
“Basket”- klæði (brugðnu
klæði), “Etoffe,” ‘Worsted’
o. s.frv.—fyrir karlmenn og
drengi. Ýfirkápur á öllu
verðstigi, frá 84,50 til 815
ogefni. litur og snið að því
skapi fjölbreytt. Vér getum
fullnægt öllum sanngjörn-
um kröfum i því efni, hvort
heldur sem er að ræða um
vfirkápur eða alfatnað. —
Ekkert skran á boðstólum,
eða vara sem legið hefir á
hyllunum svo árum skiftir.
Alt er nytt
í búðinnilog vörurnar koma
daglega til vor að austan.
Stærsta upplag af skó-
fatnaði í vestur-bænum.
Eina islenzka skófataverzl-
unin í Winnipeg. Skófata-
birgðirnar sem vér í vor er
leið keyptum af A. F. Reyk-
dal&Co., eru.fyrir löngu
uppgengnar. í þeirra stað
bjóðum vér nú spánýjan
skófatnað, á ferðinni nú á
hverjum degi beina leið frá
verksmiðjunum, og vér
kaupum frá sjö skó-verk-
smiðjum. Af því má ráða
hverju sé úr að velja.
Kistur og töskur.
Vér höfum þær af allri stærð
og á öllu verðstigi, í skó-
fatnaðardeildinni. Kistur
á 82.75 og yfirogtöskur 75c.
og yfir. Stórar og vandaðar
leðurtöskur kosta auðvitað
meira, og vér höfum þær til
ekki síöur en þær ódýrustu.
S.=V. horn Ross Ave. og Isabel Str.
-m-
Til athugunar fyrir ungu piltana.
Vér höfum nokkuð nýtt að bjóða ungu mönnunum, sem ýmsra hluta vegna vilja og þurfa
þar af leiðandi hafa þreytt við að kaupa skraddaragerðar kápur. Þeir sem það hafa reynt vita, að þar þarf penlnga
til. Nú hefir eitt skraddarafélae: í Toronto tekist i fann að búa til
að fylgja tizkunni og sem
pen’
SKRADDARAGEROAN KT.ÆllNATI ÓG
Fyrir ungu stulkurnar.
Vér höfum hugsað um þær ekki síður en ungu piltana. Þær þurfa einnig og ekki síður að fylgja hinni breytilegu
tízku. ^ Handa þeim höfum vér stórt upplag af JÖKKUM, sniðnum og gerðum samkvæmt Parísarmóðnum i haust
KVENN-JAKKAR þessir eru með öllum almennum litum, svartir, “navy-blue,” gráir, morauðir, o. s. frv. og á
öllu hugsanlegu verðstigi,—frá 3 til 20 dollars. í þessu efni getum vér mætt öllum hugsanlegum kröfum.
Urvals nærfatnad
f.vrir karla, konur og börn höfum vér nú á boðstólum og talsvert ódýrari en í fyrra. Meðal nýrra tegunda má nefna
“fleece lined” nærfatnað. Hlýrri nærfatnað er ekki hægt að hugsa sér. Komið og skoðið þau.
Yfirkapur fyrir börn
höfum vér nú ljómandi fallegar og hlýjar úr efni sem kallað er “Æðardúns-klæði,”— bæði mjúkar og hlýjar, á 81.75
og yfir. Vér höfura einnig “æðardúns-klæði” í ströngum til að selja mæðrum sem sjálfar vilja sniða og saunia á
börn sín. Enn fremur “Curly-cloth” (hrokkið klæði), Enginn hlutur betri i kápur handa 2—4 ára gömlum börnum.
AÐ Síðustu : Vér hikum ekki við að segja, að samskonar varningur, á sama gæðastigi og jafn-nýr. FÆST
HVERGI 1 BÆNUM ÓDÝRARI. Vér höfiyn ásett oss að selja vörurnar svo ódýrt að enginn geti boðið betri'kjör
Og vér erum í kringumstæðum til þess nú. Vér skiftum ekki lengur við milligöngumenn, en kaupum beint af sjálf-
um verksmiðjueigendunum. Vór stöndum þess vegna jafnt að vigi nú og stórkaupmenn bæjarins, og getum því
\
4
\
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
\
\
4
Selt med heildsoluverdi
ekki síður en þeir, ef stærri kauji eru gerð í einu. KAUPMENN í SMÁBÆJUM OG SVEITUM geiðu sjálfum
sér gagn ef þeir vildu finna oss jafnframt og þeir finna aðra heildsala í bænum. Það getur orðið þeim til haguaðar.
Komið og skoðið vörurnar og spyrjið um verðið. Allir velkomnir !
G. JOJHNSOJNJ,
Suð-vestur horn Ross Ave. og Isabel Str.
4
4
$
\
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4