Heimskringla - 19.11.1896, Qupperneq 1
X. ÁR.
NR. 47
WINNIPEGr, MAN., 19 NOVEMBER. 1896.
“BJARKI’
íslands-fréttir.
heitir hið nýja blað Seyðfirðinga, sem
skáldið Þorsteinn Erlingsson heflr
tekist í fang að stjórna. Fyrsta blaðið
að eins er komið vestur hlngað, dagsett
9. Okt. síðastl. Sem vænta mátti er
það vel úr garði gert og fjörugt ritað.
Heimskringla óskar Bjarka góðs gengis
og langra lífdaga undir stjórn hr. Er-
lingssonar.
Fyrst í blaðinu, á undan ávarpinu
til landsmanna, er kvæði eftir ritstjór-
ann, er hann nefnir: “í Xandsýn,” og
er það sem fylgir :
í landsýn.
Nei, þér tekst það aldrei að gera mér
geig
þó grúfirðu á ströndum og vogum ;
ég sé á þér, þoka, að þú situr nú feig
því sól fer að austan með logum ;
og þá lyfta fjöllin min bládimmri brún,
sem bíða hér voldug og fögur ;
og dalirnir opnast með eingjar og tún,
og íslenzkar fornkappa sögur.
Og þar áttu, fóstra, þinn framtíðar her ;
þinn frjálslynda unglinga skara,
sem berst undir merkjunum vaskar en
vér
og vogar þar djarfara að fara.
Ef okkur ei veitist að vinna það neitt,
er vert sé með öldum að geymast,
þá getum víð liddurnar leitast við eitt:
að láta ekki nöfn þeirra gleymast.
Þó þokan sé meinleg og hríðin sé hörð
er hérna þó gaman að yinna
með hverjum sem elskar þig íslenzka
jörð
og arfarétt barnanna þinna.
Að geymt yrði hjarta þíns heitasta blóð
og heið væri göfuga bráin,—
til þess orti Jónas sín þjóðfrægu ljóð,
til þess er Jón Arason dáinn.
Sunnanfari,
fyrsta tölublaðið sem út kom í Reykja-
vik, barst oss um daginn með hinum
seinfara pósti að heiman. Flytur hann
mynd af Þorvaldi óðalsbónda Björns-
syni á Þorvaldseyri (fyrrum Svaðbæli) i
Rangárvallasýslu. Eftir því sem frá er
sagt er hann framtaksmaður meiri en
alment er á Islandi, meðal bænda, og er
atriði það sem fylgir einn vottur þess :
‘‘Eitt af sannkölluðum búmannsþing-
um Þorvaldar bónda á Þorvaldseyri má
nefna hlöðu, sem hann lét byggja þar
fyrir fáum árum og getur ekki slíka á
voru landi íslandi. Hún er miili 50—60
álair á lengd og rúmar um 3500 hesta
af heyi. Göng eru um þvera og endi-
langa hlöðuna og svo breið, að teyma
má hsyhest með klyfjum fram og aftur.
Sáturnar eru undnar upp með vindu
neðan af gólfi og alla leið upp svo hátt
sem þurfa þykir,” — Ljóðmæli eftir
ýmsa höfunda eru í þessu blaði, þýdd
og frumsamin. Þar á meðal þessar
stökur : “Hafnarvísa.” Þorsteinn Er-
lingsson kvað :
“Þar sem enginn þekkir mann,
þar er gott að vera.”
Jón Þorkelsson botnaði:
“Því að allan andskotann
er þar hægt að gera.”
Fylgjandi staka segir blaðið hina síð-
ustu er séra Páll skáldi orti:
Eftir Bjarka.
Seyðlsfirði, 9. Okt.
Þerridagar þeir sem komu hér 24.
til 26. Sept. komu í góðar þarfir, því
hey var víða úti í sveitum, og fiskur
allur naumast hálf þurr. Sá þerrir var
þó of skammur til þess að verða að full
um notum. og síðan hefir lengstum ver-
ið þerri lítið þó oftast hafi verið gott
veður og bjart með litlu frosti um næt-
ur, þangað til sunnudaginn 4. þ. m.
að hér rak á austan byl með stinnings
stormi og snjóburði, sem stóð í 6 dæg-
ur. Var þó frostlaust og endaði með
krapa úrhelli. Hér er uú alt þakið
snjó, og haglaust fyrir fé og farið að
frysta.
Fjársala þykir hér ekki góð í þetta
seinasta sinn. Sagt að Slimon borgi hér
sauði 12—14 kr. og að eins fyrir sauði af
Jökuldal 16 kr.
Tvö blöð af ‘Bjarka’, dags. 17. og
24. Okt. síðastl. bárust oss 16. þ. m.
Þar segir svo frá hríðargarðinum, sem
gekk yfir land alt 4. til 6. Okt.:
Hér á firðinum var varla fært húsa
á milli. og svo var mikið fannkyngi hér
á vegum, að ferðamenn ofan úr Héraði
voru heilan dag að brjótast við að kom
ast upp úr firðinum með hestana og
urðu loksað snúa aftur með alt saman.
Fé fenti um allar sveitir og liggur
enn í fönnum hundruðum saman.
Það sýnist svo, Sem Skriðdalur hafi
orðið verst úti, þar fenti grúa. Sagt að
á Vað’ sé að eins tæp tvö hundruð eftir
af sex, og að á Mýrum eitt hundrað
eftir af fjórum. Bóndi einn á Jökuldal
misti að sögn alt sitt fé. Likar þessu
eru sögurnar víðar að.
Maður varð útií Fellunum í þess-
um byl, Þórólfur Stefánsson, vinnu-
maður á Birnufelli. Með honum var
Gísli bóndi Sigfússon og er sagt að hann
bæri Þórólf lengi eftir að hann gafst
upp að ganga. Loks varð hann þó að
skilja Þórólf eftir örendan, og slapp
sjálfur heim að eins lifandi og var þá
svo yfirkominn að hann varð að bera
inn í bæinn, nær meðvitundarlausan,
og sagt hann liggi rúmfastur siðan.
Frá því hríðinni slotaði var veður
blíða á Austfjörðum alt til 16. Okt.
Gekk þá á með landnyrðingsbyl og snjó
kyngi. — Stórkaupmaður O. Wathne
hafði gefið 500 kr. í jarðskjálftasjóðinn,
Carl bróðir hans 250 og konur þeirra
sínar 125 kr. hvor. Þessar tvær fami-
líur hafa því alls gefið 1000 k. — Blað-
inu segist um tíðina sem fylgir, 24.
Okt.: “Einlægir byljir óaflátanlega og
mesta skemdarveður hér eystra. Menn
eru að brjotast við að koma kindum
hingað til sláturs og útflutnings og er
það ferðalag hin mestu harmkvæli
bæði fyrir féð og mennina. Þetta er
eins og Þorri væri, og þrælslegar þó. í
því blaði er sagt að stjórnin setji fjár-
veitingu til brúar á Héraðsfljót í fjár-
lagafrumvarpið, sem kemur fyrir þing
næsta sumar. — Það er ætlast á að
eignatjónið af völdum jarðskjálftans í
Árness- og Rangárvallasýslum nemi
300,000 kr.
FRETTIR.
hefir nú loks verið fangaður, þó ekki
fyrri en hann hafði drepið 4. manninn,
—einn af varðliðinu vestra. Þessi
vondi unglingur er nú í haldi i McLeod
í Alberta.
Parísarblaðið ‘Figaro’ segir að Bis
marck hafi opinberað leyndarmálin,sem
svo mikið hefir verið rætt um, í hefnd-
arskyni. Að hann varð að víkja um
árið á að vera að kenna undirróðri
Victoriu ekkjufrú Friðriks keisara og
móðir Vilhjálms keisara. Hafði Bis-
marck þá átt að lofa að hefna sín síðar.
og það hefir hann nú efnt.
Bandaríkjastjórn hefir að sögn á-
kveðið að reyna gufuknúða vagna, eða
ef til vill, vagna knúða með þrýstilofti,
til að flytja pósttöskur um New York,
að og frá pósthúsinu.
‘Vinnuriddarar’ í Baudaríkjum vilja
fá samþykt lög á næsta þjóðþingi um
tekjuskatt undantekningarlaust á alla.
Fáist ekki þetta ákveður fólagið að
koma upp sérstökum pólitiskum flokki,
er ílytji þetta mál í héruðunum.
Félag er komið á laggirnar í New
York til að keppa á móti Vanderbilts
járnbrautarfélögunum um flutning [á
kornmat og jarðargróða úr miðríkjun-
um til New ‘York. Félagið ætlar að
hagnýta vatnsfarvegi sem mest og
bezt.
Bryan forsetaefni er á ný byr jaður
á sókninni gegn gullinu, sókninni sem
væntanlega Verður 4 ára löng. Flutti
tvær ræður um það'efni sama daginn.
í Lincoln, Nebraska á laugardaginn.
LaUGARDAG. 14. NÓV.
Hon. Edward Blake hefir lofað að
gefa hundrað pund sterbng ($500) á
móti hverjum £1000, sem safnast í
þjóðvinasjóð íra, þangað til £25,000
eru fengin. Hefir þá Blake einn gefið
$12,00.
Ófriðlegar fréttir berast frá Was-
hington nú á hverjum degi. Er sagt
að Spánverjar séu búnir að senda til
Cuba allan sinn herflota og allar sínar
fullkomnustu fallbyssur, í þeim tilgangi
einum að beita þeim gegn Bandaríkj-
um. Bandarikjastjórn er í millitíðinni
að búa flota sinn og hefir að sögn gert
samuing þess efnis við hlutaðeigandi
járnbrautarfélög, að hún á einum sól-
arhring geti sent 70,000 hermanna suð-
ur að Mexicoflóa.
McKinley og M. A. Hanna eru
orðnir saupsáttir. Hanna stýrði kosn-
ingasókninni fyrir McKinleys og er nú
alt af síðan gumað af honum og honum
einum þakkaður sigurinn. McKinley
eirir því illa og er það svo opinbert orð-
ið, að hann hefir neitað að vera í veizlu,
sem Hanna var haldin í Cleveland,
Ohio.
Síðan Bandaríkjakosningarnar fóru
fram hafa 30,000 manns fengið atvinnu
í verbsmiðjum, sem áður voru lokaðar.
MÁNUDAG, 16. NÓV.
Meðal annara fregna úr Norðurálfu
er skýrt frá, að fræðímaður einn á íta-
líu. Mosso að nafni, sé búinn að fallgera
vog sem mælir huga manna, sýnir
hvort maðurinn hugsar mikið eða .Iítið.
Þess meir sem maður hugsar, þess meir
streymir blóðið til höfuðsins og það er
blóðrásin eiginlega sem vogin mælir, og
er hún sögð svo nákvæm, að hún hafi
sýnt hvað mikill munur er á áreyasl-
unni af að lesa grískuog latínu.
I dag í fyrsta skifti eru rafmagns-
vagnarnir á strætunum í Buffalo, N.
Y., knváðir með vatnsaflinu í Niagara-
fossinum, sem umhverft er í rafmagn
við fossinn og flutt þaðan til bæjarins.
I tilefni af því, að Venezuela-þræt-
an er um það útkljáð fyrir tilslökun
Breta, halda Norðurálfublöð því fra.m,
að Bandaríkjastjórn einhverntíma kom
ist að því, að ábyrgðin sem hún hafi
tekið að sér i sambandi við Suður-Ame-
ríku verði nokkuð dýr.
“Umtalsmálin eru hvurt
úr mér sálin dæmist,
og hverjir Pálinn bera burt
þá banaskálin tæmist.”
Skrá
yfir menn utan Winnipeg-bæjar, sem
tekið hafa að sér að veita móttöku (og
senda féhirði nefndarinnar hér í Winni-
peg) peningasamskotum í hjálparsjóð
handa þeim í Árness- og Rangarvalla-
sýslum er biðu tjón af jarðskjálftunum
síðastl. Ágúst og September:
Kristján Abrahamsson, Sinclair, Man.
Pétur Bjarnason, ísafold, Man.
C. Benson, Ladners P. O., B. C.
DAGBÓK.
FIMTUDAG, 12. NÓV.
Transvaalstjórnin í Afríku hefir að
sögn ákveðið að hefja skaðabótamál
gegn Suður-Afríkufélaginu brezka.—
Kruger gamli vill hafa $5 milj. skaða-
bætur fyrir áhlaup Jamiesons í fyrra.
Eftir fregnum frá Rómaborg að
dæma ætlar Leó páfi 13. að herða betur
á strengjunum í Bandaríkjum. Erind-
reki hans þar, Satolli, hefir kært mik-
ilhæfa embættismenn kyrkjunnar í
Bandaríkjum fyrir villutrúarprédikun.
Meðai þeirra villutrúarmanna eru þeir
Ireland erkibyskup i St. Paul, Minn.,
og Keane byskup í Washington, for-
maður hins kaþólska háskóla í höfuð-
VEITT
HÆSTU VERÐLAIIN A HEIMSSÝNINGUNN
DR
BAHING
POWDfR
IÐ BEZT TILBÚNA
óblðnduð vínberja Cream of Tartar
powder. Ekkert álún, ammonia eða
önnur óholl efni.
40 ára ’-eynslu.
borginni. Keane hefir verið vikið úr
þeirri stöðu, en Satolli segir að kenn-
ingar hans séu þar eftir og hafi fest sér
rætur. Af þessu leiðir að Leó karlinn
ætlar fraravegis að hafa taumhaldið
sjálfur.
Það er nú liðið rétt um það eitt ár
síðan sagt var að stríð væri í vændum
á hverri stundu milli Bandaríkja og
Spánverja. Sú saga er nú komÍD á
kreik aftur.
lj milj. manna á Indlandi er sagt
að séu allslausir og upp á annara hjálp
komnir til að halda Kfi.
FÖSTUDAG, 13. NÓV.
Charcoal, ‘eða öðru nafni “Bad
1 oung Man” (vondi unglingurinn), In-
díáninn í Alberta, sem fyrir nokkru var
getið ura að hefði drepið 3 manneskjnr,
Það er ekki ein bára stök hjá sold-
áns-vesalingnum. Kvennabúr hans alt
er í uppnámi og tvær vinur hans flúnar
—Armeníustúlkur báðar. Eru ófundn-
ar enn.
Itnck-Aehe, Fnec-Ache, Kclatlc
rninM, XcurulKlc Pains,
Pain in thc Kide, etc:
^ Promptly Kelieved and Cnred by
? The “D.&L.”
Menthol Plaster
navtnr uwtd yotiT D. A L. Menthol Plaater
for $overe pain ln the back and lumbago, 1
unheeitatlnf'Iy recommend lame as a safe,
■ure and rapid remedy: In fact, they act liko
majfic.—A. Latointx, Elizabethtown, Ont.
Prlco Wc.
DAVIS & LAWRENCE CO.f Ltd.
Proprietors, Montreal.
ÞRIÐJUDAG, 17. NÓV.
Barney Barnato, þúsund (?) miljóna
eigandinn úr Afriku, hefir keypt
fjölda af gullnámum í grend við
Skógavatn og Rat Portage, Ónt.
Hvalaveiði brást algerlega við Ný-
fundnaland síðastl. sumar og haust,
öldungiseins og þorskaveiðin.
Tveir drengir. 17 og 18 ára, í Ellen-
dale, N. Dak., hafa verið fundnir morð-
sekir og dæmdir i æfilangt fangelsi.
Ómuna rigningar á Kyrrahafsströnd-
iani on þar af leiðandi flóð í ám og vötn
um. Lestagangnr á járnbrautum sum-
staðar teptur þess vegna. Um miðbik
Klettafjalla er snjófall ómunalega mik-
ið og alt austuryfir fjöllin.
Jarðskjálftavart varð í Calgary og
víðar i Alberta á mánudaginn 9. þ. m.
Stórorusta er sagt að hafi verið háð
á Cuba undanfarna daga, en fróttir
þaðan eru ófullkomnar. Þó yirðast
þær benda á að Cubamenn megi betur.
Lestagangur algerlega heftur sök-
um snjóþyngsla í Klettafjöllunum í
grend við Spokana Ealls í Utan. Þang-
að hefir engin lest náð nú meir en sól-
arhring. Skeyti frá Seattle segir að C.
P. R. séeina félagið, sem haldi þar uppi
lestagangi austanyfir fjöllin.
Stórveldin eru nú að ráðgera að
taka völdin fráTyrkjum, en skipa nefnd
til að ráða ríkl í nafni Soldáns.
Skrá
yfir nöfn þeirra, sem gefið hafa peninga
í sjóð til hjálpar því fólki í Árness- og
Rangárvalla-sýslum á íslandi, er urðu
fyrir tjóni af jarðskjálftum, í Ágúst og
Septembermán., 1896:
Áður auglýst $221.30
Guðrún Thomson Winnipeg 1,00
Vilborg Johnson “ 1,00
Sesselja Jónsdóttir “ 1,00
Kristbjörg Tait “ 1,00
Agnes Steinsdóitir “ 25
Árni Jónsson “ 25
J. J- Bartels, Dongola, Assa. 1,00
Gísli Jónsson, Keewatin, hefir safnað $13,25, sem fylgir : Jón Pálmsaon, Keewatin, Ont 2,00
Mrs. Th. Pálmason “ “ 1,00
Hafst. Sigurðsson “ “ 2,00
Hjálmur Thorsteinson “ “ 1,00
Bjarni Bjarnason “ “ 1,00
Þorsteinn Kristjánsson" “ 1,00
Kristín Jónatansdóttir “ “ 1,00
Pétur Árnason “ “ 1,00
Ónefnd “ “ 25
Þorkell Magnússon “ “ 1,00
Bjarni Guðmundsson “ “ gðO
Gísli Jónsson “ “ 1,00
Sigurður Jóhannson. Keewatin, hefir safnað $10, sem fylgir : Jón Magnússon, Keewatin, 1,00
Sigurður Pálmason “ 1,50
Ónefndur * “ 50
Magnús Jónsson “ 3,50
Guðmundur Thorarinson “ - 1,00
Jóhann Sigurðsson “ 50
Sigurður Jóhannsson “ 2,00
B. F. Helgason, Vernon, B. C.,
Hefir safnað $5.50, sem fylgir :
B. F. Helgason, Vernon 1.00
Einar Th. Eymundsson “ 1.00
Joseph Johnson tt 2.00
Einar Guðnason <i 50
John Anderson t! 1.00
Samtals : $255.55
Winnipeg, 17. Nóv. 1896.
H. S. Barðal.
Að vera sinn egin lista-
maður.
f
Ilvert barnið getur brúkað
Diamond-liti.
Þú getur gylt, forsilfrað, bronzað
eða koprað körfur, myndaumgerðir,
myndir, gasker, lampa, húsbúnað aflan
og myndastyttur, með því að hafa Gold
Silver, Bronze and Copper Diamond
Paints, sem búið er alt saman til af
eigendum Diamond Dyes.
Með Diamond Paints getur þú látið
gamla liluti líta út sem nýja. Engir 50
centa litir eru betri og fáir jafngóðir og
þeir.
Með 10 centa böggli af Diamond
Paints og flösku af Diamond Paint
Liquid getur hvert barnið tvöfaldað í
verði hvað eina af skrautgripum í hús-
inu.
Þegar þú kaupir eittbvað af Dia-
mond Paints, þá kauutu um leið flösku
af Diamond Paint Liquid með stórum
úlfaldahársbusta fyrir 10 cent, í flösku
hverri er nóg til að blanda saman við
tvo eða þrjá böggla af litunum eða mál-
inu.
VÖRU=UPPLAG
25 til 30,000 dollara virdi !
^esw^örafl^erð^a^eyasM^i^n^ár. Og til þess að það geti orðið þarf ein-
einhversstaðar aðtaka æði djúpt í árinni. Vérmegum til með að fá inn peninga
og sé hægt að hafa þá saman með niðursettu vöruverði, þá stendur ekki á því.
Samskonar vörur hafa aldrei fyr verið seldar í Winnipeg með því verði, sem vér
nú bjóðum. Komið inn og látið reynsluna sannfæra yður.
i j
I
Ctí
►♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
♦
tí
tí5
Ov
o
&
p
tí
<:
0:
<-í
tí
:
:
:
:
♦
♦
rs
QX
1—••
P
:
♦
♦
►♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦:
Skófatnaðar-upplag.
Yfir $6.000 virði af skófatnaði allskonar. Rubber-skór,
yfirskór, "Moccasins,” flókaskór, fyrir karla, konur og
börn, — þetta fyrir veturinn. Að auki allar tegundir af
leðurskófatnaði fyrir unga og gamla, úr fínasta geitaskinni
eða grófustu uxahúðum, eftir vild hverg eins.
Fatnaðar-deildin.
Yfir $10.000 virði af karlmannaog drengjafatnaði. Loð-
kápur og alullar yfirkápur. Alfatnaðir, nærfatnaðir, ótal
tegundir. Milliskyrtur, sokkar, vetlingar, húfur, og yfir
höfuð alt sem að karlraannabúningi lýtur. Aldrei betra
tækifæri að velja úr en einmitt nú.
tvíbreitt á $1 og upp yard—afbragðs verð. Tími vinst
ekki til að telja meira, en nóg er til af bolum allskonar á
35 cents upp, sirz, ginghams, muslin, flos, flðjel, silki,
borðum og kantaböndum o. s. frv.
Smávöru-deildin.
Það vinst ekki tími til að teija alt sem er á boðstólum í
þessari deild, en rétt sem sýnishorn má nefna hárbúnað
kvenna, svo sem : hárnet, kamba og prjóna; brossiur,
lokuprjóna, títuprjóna, bandprjóna; allskonar skraut-
hnappar og almennir hnappar, perlu-trimmings, allavega
litt, selt í yarðatali, og í ‘setts’, blanséttur og allskonar
bolspengur o. s. frv.
Kvennbúnings-deildin.
Yfir $4.000 virði af allskonar kvennbúningi. Jakkar,
prjónapeisur, morgunkjólar, húfur, hanzkar og herðaskýl-
ur úr grávöru, með ýmsum \itum og á öllu verðstigi.
Sjöl og treflar, nærfatnaður, sokkar, vetlingar o. s. frv.
Enginn vandi að gera öllum til geðs.
Álnavöru-deildin.
Yfir $6000 virði af álnavöru allskonar úr alull, hálf-ull,
bómull. Kjóladúkar stykkjóttir, einlitir og með öllum lit
um, einbreiðir og tvíbreiðir. Flanelette frá 5 cents og
upp yd. Flannel frá 12J cts. upp yard, æðardúnsklæði,—
ekkert því hkt í barnakápur, á 50 cts. yard; ‘Beaver’ klæði
5pecial !
Nœstu 30 daga höfum vér ákveðið að
selja vorar tvíhneptu, húðþykku vetrar-
alfatnaði úr ‘-friese.” “serge” og “tweed”
með stór-aíföllum, svo sem: Hjá öðrum
$10, $12 og $16, — hjá oss $7, $9 og $11.
Yfirkápur sem aðrir selja á $9, $11 og $16,
seljum vér á $6 50, $8 og $12. ÞettiT verð
stendur mánuðinn út, ef upplagið endist.
G. JOJHNSOJsl,
Suð-vestur horn Ross Ave. og Tsabel Str.