Heimskringla - 04.03.1897, Blaðsíða 4
HEIMSKRINGLA 4 MARZ 1897.
ííennar hátignar
canadibku þegnar.
Þeir ættu allir að^vera heilsu
góðir og hraustir.
Paines Celery Compound getur gert
hinarcanadiskukonureins lang
lífa og drottninguna sjálfa.
Og það gerir karlmennina líka hrausta
og heilsugóða.
Það gerir hina veikbygðu og heilsu-
tæpu hrausta,[heilbrigða ogánægða
og góða borgara í landinu.
Það er Paines Celery Compound, sem
hefir þessi ágætu áhrif.
Hið dásamlega og breytilega lofts-
lag í Canada á sér hvergi í heimi líka.
Og þess vegna ætti lika þjóðin í land-
inu að vera fyrirmynd annaraað hraust
leika og heilsu. En því miður er það
ekki þannig. Hér er meira en skyldi
af krankleik allskonar og dauða. En
slíkt er fólkinu sjálfu að kenna, en ekki
landinu, sem þeir búa í.
Vér segjum við þá sem sjúkir eru
og heilsutæpir: Reynið undrakraft
Paines Celery Compound. Hinn maka-
lausi kraftur þess getur gert 'oss hraust
og langlífa þjóð á mjög stuttum tima.
Paines Celery Compound iæknar
skjótlega taugaveiklun, máttleysi,melt-
ingarleysi, lifrarveiki, nýrnaveiki, blóð-
sjúkdóma, gigtveiki og höfuðveiki. Það
er hin eðlilegasta og bezta styrking og
hreinsun fyrir alla líkamsbygginguna.
I,in flaska af því nægir til að sannfæra
hvern mann. ‘Paines’ er hið eina ekta.
Kauptu það og ekkert annað.
“ Medal Contest.”
Á föstudagskveldið kemur (annað
kvöld) fer fram Demorest Gold Medal
contest, á North West Hall undir um-
sjón ísl. stúknanna Heklu og Skuld I.
O. G. T. Um þessa gullmedalíu fá þeir
einir að kappa sem áður hafa náð silfur
medalíu. Þau sem reyna sig verða:
Miss Björg Anderson og Miss Halldóra
Johnson úr Heklu. Miss Guðrún Free-
man og Mr. 0. Eggertsson úr Skuld. og
Mr. Run. Fjelsted úr Bandalaginu. Á
samkomunni verður ágætt musical pro-
gram: hljóðfærasláttur söngur solos o.
s. frv.—Ráð fyrir fólkið að koma tíman-
lega því búast má við að aðsókn verði
mikil. Aðgangur 15 og 10 cents.
Kveldverdar=
Samkoma.
—Og— ,
Ágœtar Skemtanir.
Nýir menn á prógrammi.
—í—
Unity Hall
Fimtudagskvöldið 4. Marz.
Aðgangur 25 cents.
PROCjRAMM :
1. I. A. C. Orchestra.
2. Solo : Tómas Johnson.
3. Cornet Duet: H. Lárusson,
H. B. Halldórsson.
4. Söngur : T.Jobnson, M.Halldórson,
Ó.Björnson, H.B.Halldórss
C.B.Julius, H.Lárusson.
5. Duet : Miss Anna Skaptason,
Miss Ólöf Skaptason.
6. Veitingar.
7. Kappræða : Rögnvaldur Pétursson
Hjörtur Leo.
8. I. A. C. Orchestra.
9. Cornet Solo : H.B. Halldórsson.
10. Solo : Tómas Johnson.
11. I.A.C. Orchestra.
12. Söngur: T.Johnson, M. Halldórson,
Ó.Björnson, H.B.Halldórss.
C. B.Julius, H. Lárusson.
Eldgamla Ísafold.
“BJARKI,”
ritstjóri Þorsteinn Erlingsson,
langbesta blaðið sem gefið er út á Is-
landi. Kemur út í hverri viku. Kostar
að eins $1.00 um árið. Útsölumenn fá
góð sölulaun. Skrifið til
M. PÉTURSSONAR,
P.O. Box 305, Winnipeg.
Fræðiblað með myndum. Kemur út
í] Reykjavík einu sinni á hverjum
mánuði. Eina íslenzka ritið er stöð-
ngt fiytrur myndir af nafnkunnum ís-
lendingum. Iiitstjóri og eigandi
Þotsteinn Gíslason.
Blaðið kostar í Ameriku, fvrirfram
borgað, einn dollar árgangurinn.
Winnipeg.
Dragið ekki til morguns það sem
gert verður í dag. Borgíð Heimskringlu
i dag.
Hr. Erlendur Gíslason, frá Cypress
River, Man,, kom til bæjarins í vikunni
sem leið.
Iðnaðarsýningarstjórnin biður fylk-
isstjórnina um $6000 tillag til sýningar-
innar í ár, og bæjarstjórnina um $5000
tillag.
Skemtisamkoma og veitingar í
Tjaldbúðinni á fimtudagskvöldið kemur
(11. þ. m.). Litið eftir nánari auglýs-
ingu á öðrum stað í blaðinu.
í kvöld kl. 8 byrjar kvöldskemtun-
in í Unity Hall. Lesið prógrammið á
öðrum stað í blaðinu. Ágætar veiting-
ar. Alt fyrír 25 cent.
Mr. R. P. Roblin, sem verið hefir á
ferð austur um land, kom heim á sunnu-
daginn var og tók sér sæti á þingi á
mánudaginn.
Hra. Bogi Eyford, innflutnlnga-
umboðsmaður og tollþjónn Bandaríkja-
stjórnar í Pembina, N. Dak., kom til
bæjarins í vikunni sem leið í erindum
Bandaríkjastjórnar og dvaldi til sunnu-
dags.
Oss bráðliggur á peningum. Þeir
sem skulda oss eru þess vegna beðnir að
senda oss eða færa oss, þó ekki sé nema
lítill hluti skuldarinnar. “Margt smátt
gerir eitt stórt.”
Hon. George E. Foster, fyrverandi
fjármálastjóri Canada, kom til bæiarins
á mánudaginn, vestan úr Kootenay-
námahéraði. Á þriðjudagskvöldið flutti
hann ræðu á fundi í félagi ungra con-
servativa hér í bænum.
Hr. J. E. P. Prendergast, sem sagði
af sér þingmennskunni fyrir St. Boni-
face, fyrir skömmu, hefir nú verið skip-
aður county-dómari hér í fylkinu, frá 1.
Marz 1897. Fyrst um sinn verður starf-
svið hans hér í Winnipeg.
Desember og Janúarnúmer Sunnan-
fara komu með seinasta pósti. Flytur
hann myndir af: Fridthiof Nansen,
Kristjáni Matthiassyni, merkisbónda á
Hliði á Álftanesi, fæddur 1821, dáinn
1889; Hjálmari Hermannssyni, danne-
brogsmanni, á Brekku í Mjóafirði, fædd-
ur 1819.
Þau hjónin, Mr. og Mrs. Benedikt
J. Vestman, að 44 Winnipeg Ave. hér í
bænum, mistu st-x ára gamlan son
sinn, Kristjón Helga, úr Díphtheria, á
þriðjud. 23. f. m., eftir tæpra 3 daga
veikindi, Var þetta hið síðasta af 5
börnum, sem þau hjón hafa eignast og
mist, og er það átakanlegt í mesta máta.
Þeir herrar B. L. Baldwinson og T.
Thoraas komu heim úr rannsóknarferð
sinni um gulllandið nýfundna á austur-
strönd Winnipegvatns, á laugardags-
kvöldið var. í fám orðum sagt mun
þeim hafa litist vænlega á héraðið.Þeim
þykir lítill efi á að þar sé gull svo að
segja í hverjum steini, en gátan sem
enn er óráðin, er sú, hvort svo mikið er
af þvi, að það svari kostnaði að vinna
grjótið. Þeir munu hafa merkt sér
námalóðir, er þeir svo skrifa sig fyrir,
og nokkrir fleiti íslendingar munu ætla
sér að taka námalóðir á sama svæðinu.
Það er nú sagt eflaust að Hon. H.
J. Macdonald ætli að taka við stjórn
conservativa í fylkismálum á fylkisþingi
við fyrsta tækifæri, en sleppa dominion-
þingmennsku í bráð. Menn hér í fylk-
inu höfðu alment æskt eftir þessari
breytingu og er Mr. Macdonald lót sig
einu gilda, var gengið að Sir Charles
Tupper, þangað til loks að hann lét til-
leiðast, samkvæmt siðustu fregnum að
austan. — Af þessum fregnum er því að
ráða, að úrskurði hæstiréttur bænar-
skrána um að ónýta kosningu hans í
Winnipeg framboma og útbúna sam-
kvæmt lögum, og að kosningin sé því
ógild,—af þessu er þá að ráða, að hann
þá ekki gefi kost á sér aftur til domin-
ion-þingmennsku. — Siðan hið ofanrit-
aða var fært í letur er komin skvlaus
fregn um að Hon. H. J, Macdonald sé4
orðin leiðtogi conservativa hér í fylkinu
þó óvíst sé um hvenær hann leitar eftir
kosningu á fylkisþing.
Saga lífsábyrgðar mannsins
J. J. Hanratty, umsjónarmaður fyrir
Standard Life Assurance Co. í Peter-
borough, læknaðist af vöðvagigt
með the Great South American
Rheumatic Cure”. Það breytir
kvalanótt í bjartan heilladag.
Hann segir : Eg þjáðist mjög af
vöðvagigt og mátti ganea um gólf
meiri hluta af nóttunni. Eg útvegaði
mér flösku af "South American Iiheu-
matic Cure” og varð mikið betri eftir
fiar inntöknr. Það er áreiðanlegt með
al ogég mæli fa-,tlega ineð því.
Dánarfregn.
Þriðjudaginn 2. þ.m. lést hér í bæn-
um hin góðkunna kona Mildríður Jó-
hannsdóttir, kooa Guðmundar Olafsson-
ar, frá Osum á Vatnsnesi í Húnavatns-
sýslu, og sem um raörg ár hafa búið hér
í bænum ; fluttu tii Ameríku árið 1874.
Jarðarförin fer fram í dag (fimtud.)
kl. 3e.h., frá Central Congregational
kyrkjunni.
Nú er alment spáð að hveiti sé um
það að hækka í verði svo miklu muni.
Er það sögð ástæðan, að hausthveiti
kvað líta illa út adstaðar í landinu, þar
sem því er sáð.
. ‘Bjarki’ barst oss á þriðjudaginn.
Tíðin á Austurlandi yfirleitt góð til
þess seinustu vikuna í Janúar, er gerði
á rokviðri með snjóburði og 10—11 st.
frosti. Nánari fréttir næst.
Seinustu 4 dagarnir í Febrúar voru
frámunalega kaldir, einkum 25. og 26.
Frost þá að sumir sögðu 44—45 fyrir
neðan zero. Marz byrjaði kuldalega,
en nú óðum að hlýna, enda sunnan og
vestan átt síðan um helgi,
Hr. Jóhannes Th. Jóhannesson, 392
Fonseca Str., biður oss að minna fólk á,
að haiin selur hið ágæta meðal “Our
Nativ Herbs.” Besta lyf við .meltingar-
leysi og gigtveiki og mjög blóðhreins-
andi.
Félag var myndað hér í bænum í
vikunni sem leið i þeim tilgaDgi að lita
eftir gerðum bæjarstjórnarinnar og sjá
um að hún fari ekki of geyst á stað með
umbætur á strætum o. s. frv. og'eyði
ekki fé að óþörfu. í þessu félagi geta
verið þeír einir sem eiga hús og land í
bænum.
Það er sagt að á fundi í “íslend-
ingafélaginu ” gamla, í vikunni sem
leið, hafi verið samþykt að gefa sjóð fé-
lagsins, um $500,til kyrkjufélagsskólans
fyrirhugaða, með því skilyrði að skól-
inn verði hér í Winnipeg og, að því er
Tribune segir, með því skilyrði einnig,
að skólinn komist á innan tveggja ára
frá 1. Júlí 1897.
Gordon og Ironsides vilja hafa verk
stæði sitt suður og suðvestur af sýn-
ingagarðiuum, vilja fá landið ókeypis,
vera undanþegnir skattgjaldi í 30 ár og
fá lokræsi vestur þangað og gegnum
landeign sína endilanga. Lofa að koma
upp byggingum tafarlaust er kosti $200
000. Bæjarstjórnin ákveður að veita
þetta.
Hra. Paul Johnson fer af stað héð-
an úr bænum á þriðjudag 9. Marz út í
Álftavatnsnýlendu, tilað selja gleraugu
og sjónauka fyrir W. R. Inman & Co.
hína alkunnu gleravgnasala hér í bæn-
um. Hann hefir með sér upþlag mikið
af gleraugum allskonar og er þetta hið
ákjósanlegasta tækifæri fyrir nýlendu-
menn að fá sér gieraugu sem eiga við
augu þetrra og sem ekki kosta meira en
óvöndað gleraugu.
Það hefir lengi verið talað um það á
bæjarstjórnarfundum og annarstaðar,
að breyta þyrfti fyrirkomulaginu á bæj-
arstjórninni og virtust menn helzt vilja
að ráðaneyti væri myndað, er mestu
réði um fjárveitingar, störf, o. s. frv.,
á sama hátt og ráðaneyti fylkis eða
sambandsstjórna ræður slíkum fram-
kvæmdum. Nú fyrir skömmu var þetta
rætt allmikið á bæjarstjórnarfundi og
kom þá fram ný tillaga, frá Mr. Baker,
að í stað ráðaneytis með háum launum,
verði hinum sérstöku standandi nefnd-
um veitt fult framkvæmdarvald og að
öllum bæjarráðsmönnum verði launað.
Yrðu þá launin sem hér segir : Bæjar-
ráðsformaður $1500, formenn nefndanna
$400 hver og aðrir bæjarráðsmenn $300
hver. Á föstudagskvöldið 26. f. m.
komu bæjarráðsmennirnir allir saman,
að einum undanteknum, til að ræða um
þetta mál. Tillagan um ráðaneyti var
iá feld með 9 atkv. gegn 3, þannig :
með henni voru mayorinn, Stuart og
Hislop, en á móti H. Wilson, Andrews,
Bell, C. H. Wilson, Dvson, Mitchell,
Arthbuthnot, Kennedy. Baker (Chaffey
var ekki á fundi). Þetta var svo við-
tekið á bæjarráðsfundi á mánudagskv.
Fluttur.
Ég hefi flutt flutt frá Notre Dame
Ave að 561 Elgin Ave. (Jemima Str.) og
er mig þar að hitta með alslags góðgæti
sem öllum er kunnugt. Ég vonast eftir
að sjá mína fyrrum skiptavini, og
marga nýja.
HANS EINARSSON
561 Elgin Ave. (við endan á Kate Str.)
Eftirspurn.
Hver sem veit hvar Margrét
Skaptadottir, nú til heimilis í Ameríku
dóttir Skapta sál Læknis í Reykjavík,
er nú til heimilis, er vinsamlega beðin
að senda utanáskrift hennar til undir
skrifaðrar.
Ingibjörg [S. Johnson^
Spanish Fork, Utah.
Geðillar konur.
Lyfsali einn í stórum bæ í Ontario-
fylki skrifaði nýlega á þessa leið:
‘Eg hefi nýlega átt viðskifti við
mjög geðillar konur. Af einhverjum
sauðþráa eða annari heimsku keyptu
þær æfinlega hina gömlu, óvönduðu liti
í stað þess að kaupa hina ágætu Dia-
mond Dye liti, sem aldrei bregðast.
Þessar konur urðu sárlega vonSviknar,
og alt sem þær reyndu að lita skemdist
meira og minna. Þær fóru svo að koma
til min og kaupa af mér, er þær vissu
að ég seidi einungis hina góðkunnu Dia
mond Dye liti”.
Moral: Þegar þú litar heima, þá
brúkaðu æfinlega ‘Diamond’, sem aldrei
bregzt. Afsegið allar eftirstælingar.
(Comsert & Cake Contest),
verður haldin í
TJALDBÚÐINNI
Fimtudaginn 11. þ. m., kl. 8 e. h.
PROGRAfin:
1. Söngflokkur safnaðarins syngur.
2. Solo : Miss Borthole.
8. Tala : Séra H. Pétursson.
•
4. Solo: Miss Anna K. Johnson.
5. Upplestur : Miss G, Ólafsson.
6. Solo : Mr. Thos. H. Johnson.
7. Söngur: Nokkrar ungar stúlkur.
8. —9. Kappræða : Mr. Baldwinson,
Mr. Scheving.
10. Kökuskurður og heitt lemonaðe.
11. Söngflokkur safnaðarins syngur.
Inngangseyrir 25 cts. fyrir fullorðna,
15 fyrir börn.
íslands-féttir.
Framh. frá 2. bls.
Jón Yídalín. Á Þýzkalandi hefir ís-
landsvinurinn dr. Carl Kuckler í Leip-
zig meðal annars ritað grein um land-
skjálftana í Desemberhefti tímaritsins
“Tuttugasta öldin” (“Daz zwanzigste
Jahrhundert”) og skorað á alla Þjóð-
verja til samskota. Segir hann í bréfi
til ritstjóra þessa blaðs 12. f. m., að
hann þá þegar hafi fengið nokkra upp-
hæð, og muni hann senda landshöfðingj
anum með ‘Thyru’ frá Höfn 14. Marz
öll þau samskot, er hann þá hafi fengið.
Kuckler hefir og ritað aðra grein um
þetta efni i tímaritið “Universum”.
Það er aðdáanlegt, hversu Kuchler læt-
ur sér annt um alt, er ísland snertir og
hversu mikiðómak hann gerir sér til að
vekja eftirtekt Þjóðverja á landi voru.
Og víst er um það, að ísland á nú sem
stendur engan betri og óeigingjarnari
vin útlendan, en hanu,
Embættisveiting. Guðm. Scheving
aukalæknir á Seyðisfirði hefir fengið 7.
læknishérað (Strandasýslu og nokkuð
af Barðastrandasýslu). Engir aðrir
sóttu.
Prófastur skipaður í Kjalarnesþingi
28. f. m. sera Jóhann Þorkelsson dóm-
kyrkjuprestur, er verið hefir settur
prófastur um hríð.
Dáinn hér í bænum 2, þ. m. Árni
Eyþórsson verzlunarmaður (sonur Ey-
þórs kaupm. Felixsonar), þrítugur að
aldri, einn meðal hinna færustu ungra
verzlunarmanna hér, bæði ötuíl og hag-
sýnn í verzlunarefnum, og hinn áreið-
anlegasti í viðskiftum, enda mjög vel
látinn af viðskiftamönnum sínum. —
Hann ætlaði að sigla til útlanda nú
með póstskipinu, og byrja sjálfur verzl-
un í vor hér í bænum.
EFTIR STEFNI.
Akureyri, 31. Des.
Veðrátta hin hagstæðasta alla jóla-
föstuna og jólaveðrið hið ákjósanlegasta
Vestan rosastormur síðan á jólum, en
ekki snjófall. Beitt var í flestum sveit-
um Eyjafjarðarsýslu alla jólaföstuna.
60 krónur hafa síðan í vor verið
gefnar í gjafahirzluna á Oddeyri til
eknasjóðsins.
Jarðskjáiftasamskot á Akureyri
voru orðin kr. 1576,95. á nýári.
Eins og sjúklingar vita.
R. Scriver, trésmiður í Hastings, þjáð-
ist mjög af nýrnaveiki. “South Ame-
rican Kidney Cure” læknaði hann
fljótlega. Það er sérstakt meðal
við sérstökum sjúkdómum. Það
uppleysir og ber á burt alt ó-
hreint úr líkamanum. Er
hættulaust og áreiðanlegt
í mörg ár hefi ég þjáðst af nýrna-
veiki og mikil meðalabrúkun hefir ver-
ið óhjákvæmileg. Fyrir 2 árum síðan
varð ég að leita til læknis, þar kvalirnar
voru óbærilegar og þvag mitt líkara
blóði en nokkru öðru. Fór ég þá að
brúka "South American Kidney Cure“.
Það læknaði mig óðara, og frá þeim
tfma hefi ég aldrei kent nokkurs meins.
Éggetsamviskusamlega mælt meðþessu
meðali við alla sem þjást af nýrnaveiki.
Itrnnswich Hotel, á horninu á
Maine og Rupert St, Winnipeg. Hvergi
í bænum betri viðurgerningúr fyrir $1
á dag. Bestu vín og vindlar. Fríflutn-
ingur að og frá járnbrantar.tuðv’um.
McLaren Bro’.i, eigendur.
Sneri þeim trúlausa.
Agæti “the Great South American
Nervine” stenst allar árásir þess auð-
trúaða og efablandna þegar búið er að
koma þeim til að brúka það einu
sinn, verða þeir beztu vinir þess
því það bregst þeim aldrei.
Mr. Dinwoodie, Campbellford, Ont.,
segir: "Ég mæli með South American
Nervíne við alla menn, Eg álít eg lægi
á liði mínu í mannkynsins þarfir ef ég
gerði það ekki. í einu tilfelli hefi ég
sannfært mann, sem var trúlaus á öll
meðöl. Hann keypti flösku og kveðst
aldrei skuli án þess vera. Hann hefir
sannfærst um þess mikla gyldi sem
maga- og tauga-styrkjandi meðals, F.g
hefi það ætíð við hendina. Inntaka af
og til ver mig öllum sjúkdómum. Það
er sannkallað undrameðal.”
EFTIR ÞJÓÐV. UNGA.
ísafirði 14. Des.
Hér hafa haldist stillviðri, eða hæg
sunnanveður frá byrjun þ. m.
Fjársala kaupfélaganna. Kaupfé-
lög þau er skift hafa við þá Zöllner og
Vídalín, hafa í ár fengið fviir hesta,
sauði og ull, að erlendum kostnaði frá-
dregnum, upphæðir þær er hér segir :
Hestar. Sauðir. Ull.
K.fél. N.-Þingey.i. 15,90 70,25
“ Þingeyinga 14,21 72,83
“ Svalbarðseyrar 13,46 71,00
“ Húnvetninga 52,78 13,26
“ Stokkseyrar 50,27 11,31
“ Skagfirðinga 52,15 11,29
“ Vestur-Árnes. 14,07
Verzl.fél. Dalamanna 50,15 13,12
Glæsibæjarhreppsfél. 11,92
Pönt.fél. Fljótsdæl. . 14,44 73 04
“ Eyfirðinga . 11.70 71,00
Hval íak í f. m. í Látravík á Strönd-
um, og var hann skaddaður mjög, höf-
uðlaus að sagt er.
Húsvígsluhátíð. Bindindisfélagið
"Dagsbrún” vígði 6. þ. m. hið nýja sam-
komuhús sitt, er það hefir reist hér j
kaupstaðnum. Bindindismenn eru nú
98 að tölu, og höfðu þeir boðið fjölda ut-
anfélagsmanna að vera viðstaddir, er
húsið yrði notað í fyrsta skifti.
Jarðskjálftasamskot á ísafírði orðin
kr. 1984,13.
31. Des.
Tíðarfar. Eftir lognin og hlýviðrin
tók veðráttan að breytast á þorláks-
messu (23. þ. m.), og gerði snjóa nokkra
otr hvassviðri, sem hafa haldist síðan.
Aflabrögð hafa síðari hluta þessa
mánaðar verið nokkru tregari, vegna
skorts á beitu, en yfirleitt mun þó afli
hér við Djúp nú orðinn fult eins mikill
eins og á nýári i fyrra, og var þá þó tal-
ið bezta afla-ár.
Há útsvör. Eftir því sem oss er
skrifað úr Álftafírði eru útsvör hval-
veiðamannanna á Langeyri, samkvæmt
niðurjöfnun hreppsnefndarinnar i vetur,
alls nálægt 1600 kr., og útsvör hval-
veiðamannanna á Dvergasteinseyri í
sama hreppi um 800 kr., en hæðst útsvar
bænda þar 45 kr.
Dáinn 1. þ. m. Þorleifur bóndi Helga-
son í Kleifakoti í ísafírði.
TÆRING LÆKÍJDÐ.
Læknir einn gamall gaf upp læknri
störf sín, en áður hann gerði það fyrsi
fult og ait, fann hann það skyldu sina
að gera meðborgurum sínum kunna
samblöndun lyfs eins úr jurtarikinu, er
kristniboði eínn úr Austnr-Indlandi
hafði sagthonum frá. Á meðal það fyr-
ir fult og alt að lækna tæring, barka-
bólgu, kvef, andþrengsli og alla aðra
háls- og lungnasjúkdóma. Það er einn-
ig óyggjandi meðal við allskonar tauga
slebju og taugaveiklun. Var læknirinn
búinn að reyna kraft þess í þúsund til-
fellum. Knúður af hvötum þessum og
lönguninni til að létta mannlega eymd,
skal eg borgunarlaust senda fyrirsögn
á tilbúningi lyfs þessa til allra. er þess
óska, á þvzku, frönsku og ensku, með
skýrum leiðbeiningum fyrir notkun
þess. Sendist meo pósti að fenginni ut-
anáskrift á bréfspjaldi með tilgreindu
blaði því, er auglýsing þessi var í fundin.
W. A. Noyes, 920 Powers Block,
Rochester, N. Y.
Bróstþyngsli.
HAFÐI EKKI GETAÐ SOFIÐ í
RÚMINU í 25 ÁR. ,
Virtist 'dæmdur til kvala og eilifrar
eymdar—faðir hans, afi og lang-
afi höfðu dáið af því.—En á efri
árum læknast hann og ér litið á
lækninguna sem kraftaverk.
Úr Whitby Chronicle.
Ár eftir ár hafa sögur komið í blað-
íð Chronicle um hinar orðlögðu lækn-
ingar af Dr. Williams Pink Pills. All-
an þann tíma höfum vér verið að grensl
ast eftir sjúkdómstilfelli hjá okáur. er
tæki af allan efa um lækningar þessar.
Vér höfum fundið nokkur dæmi, en æ-
tíð vildi svo til að viðkomandi sjúkling
ur var svo tilfinninganæmur ad hann
vildi ekki láta opinbera nafn sitt eða
sjúkdóm. Nýlega höfum vér þó orðið
vísari sjúkdómstilfellis eins sem mjög er
merkilegt.
Mr. Salomon Thomson býr á fögr-
um búgarði á vesturströnd Mud Lakes
í Carden township í North Victoria.
Hefir hann verið þar í 40 ár og var hinn
fyrsti maður sem þar nam land. Odd-
viti í Carden og Dalton townsliipnm
var hann i 35 ár áður en héruöin Poter-
boro og Victoria voru aðskilin Herra
Thomson hefir þjáðzt af brjóstþýngsl-
umí40áreða lengur. En vér skulum
láta hann segja söguna sjálfan :
‘15. Október árið i:896 fórum við til
Mud Lake, til þess að skoða stöðvar
þær sem við lengi höfðum þekt og
fundum það þá vera skyldu okkar að
heimsækja herra Thomson og frétta af
honum frásöguna um það hvernig hann
hefði bata fengið. í 25 ár höfðum við
þekt hann og vissum að hann þjáðist
þunglega af brjóstþyngslum, svo að
ekki höfum vér vitað jafnsjúkan mann
halda lífi. Við furðuðum oss oft á því,
að hann skyldi geta lifað þennan og
þennan daginn. Þegar við komum að
heimsækja hann, þá kon» hann móti oss
glaður og kátur og bar ekki hið minsta
á hinni gömlu veiki hans. Oss var þeg
ar boðið inn og létum við sem eölilegt
var það vera hið fyrsta, að spyrja hann
ef alt væri satt sem sagt var um lækn-
ing hans við brúkun Dr. Williams Pink
Pills. ‘Enginn efi á því’ sagði hann.
‘Hve lengi hefir þú brúkað þær og hve
margar öskjur þurftir þú að taka?’ var
hann spurður. ‘Eg byrjaði fyrir ári
síðan’, sagði hann, og brúkaði 8 öskjur.
Við spurðum hann svo, ef hann héldi
að batinn væri alger. ‘Já’, sagði hann,
‘og ég hefi ekki tekið inn neina pillu í 3
eða 4 mán. En þó er ég ekki alveg viss
um það enn þá. Sjáið þið! Faðirminn,
afi og langafi dóu allir úr brjóstveiki.
Ættfólk mitt fær kvilla þenna fyrr eða
síðar og deyja út af. Ég hefi mist þrjá
bræður úr sýki þessi. Og þegar ég sé
þessi afdrif frænda minna, þá er fremur
örðugt að gera mig trúaðann; en það
get ég sagt yður að meir en í 30 ár hefi
ég ekki getað sofið í rúmi mínu þangað
til ég fekk Pink Pills. Eins og þið vitið
svaf ég einlagt í stól þessum, sem þið
sjáið mig sitja í. Eg hafði hönk festa £
krók upp í loftinu og sat þannig, að
höfuðið hvíldi í hönkinni meðan ég svaf
En nú geng ég til lúms míns þegar aðr-
ir fara að sofa’. ‘Hve gamall eruð þér?’
‘76 ára’, svaraði hann, og finst ég vera
yngri en fyrir 30 árum síðan. Ég þjáð-
ist mikið af g'igtveiki og öðrum vesal-
dóm, líklega taugaveiklun,en orsökin
var svefnleysi, en nú er gigtveikin nær
öll farinmeð brjéstþyngslunum’.
Meðan við vorum að spjalla saman
kom inn Mrs. Thomson, ern kona og
móðir 13 barna, og er hún hafði hlustað
á sögu bónda sins hóf hún máls á þessa
leið: ‘Eg bjósá ekki við að neitt gæti
læknað Tomma minn’, sagði hún. ‘Við
vorum einlægt að reyna að fá eitthvað
sem g æti bætt honum svo hann gæti sof
ið á nóttunni, en það virtist alt vera
jafn ónýtt. Fyrst fór hann að taka
1 pillu á eftfr máltið, en svo jók hann
inntökuna og fór að taka tvær. Sáum
við aðhann var stórum betri, er hann
var búinn með tvær öskjur urðum við
vongóð. Seinna gengum við úr öllum
efa um bata hans ográðlagði ég frænku
minni að reyna lyfin jómfrú Day og
hafði blóð hennar breyzt í vatn að því
er séð varð, og var hún svo farin að
heilsu oglífskröftum, að hún vildiekki
lifa lengur. Hún var orðin margul sem
saffranleður og virtist ekki geta lifað
viku lengur. Þér munuð tæþlega trúa
því, en stúlka sú var orðin hin hraust-
asta og fallegasta í nágrenninu áður en
3 mánuðir voru liðnir, alt af því að hún
fór að taka inn Pink Pills’. í þessu
var lcallað á Mrs. Thompson frá okkur
til að gegna einhverjumheimilisstörfum
og tók Mr. Thompson þá aftur til að
segja sögtina um lækning sína hina dá-
samlegu. ‘Þið getið ekki gert ykkur
neina hugmynd um hvað það er að lifa
35 ár að geta ekki kvalalaust fengið sér
einnar nætur svefn. Ég get ekki fund-
ið nein orð til þess að skýra fyrirykkur
mótsetninguna milli þæginda þeirra og
vellíðunar sem ég nú á við að búa og
hinnar óttalegu æfi; er ég áður átti um
svo langan tíma, Ég hafði stóra fami-
líu, marga munna að fæða og varð að
vinna þegar ég oft og tíðum vildi held-
ur kjósa að leggjast niður og deyja.
Oft kom ég heim að kvöldi algerlega út
taupaður, en fékk ekki hvildina að held-
ur; það var ekki um hvíld að tala fyi ir
mig; það var eins og ég væri til kvala
dæmdur. Þegar frændur mínir hertu
að mér að reyna Dr. Williams Pink
Pills, þá hélt ég það væri gagnslaust,
en eitthvað hlaut ég að gera, eðadrep-
ast að öðrum kosti, og hér er ég nú
heill og hraustur’. Og gamli karlinn
skók höfuðið og leit út sem maður, er
glaður væri yfir endurnýjuðu lífsafli og
laus við vesaldórn allan.
Þegar við vorum búnir að óska
gamla manninum til hamingju yfir því
að hann var laus orðinn viðþennan illa
óvin ættar hans, keyrðum við á brott.
A mörgum stöðum í grendinni fórum
við að færa í tal sjúkdóm hans og lækn
ingu og komumst að því, að það var
furðuverk talið. Hvar sem menn þektu
Thompson og ætt hans, ætlaði enginn
að trúa því að nokkuð annað en dauð-
inn gæti losað hann við brjóstþyngsli
hans. Hvert eitt orð sem hér er ritað
má fá sönnun um, með því að skiifa til
Mr. Solomon Thompson, Dalrymple P.
O. og náinn kunningsskapur um 25 ára
tíma gerir það, að sá sem ritar sögu
þessa Retur sannað alt sem í henni er
og ábyrgðarmaður fyrir sannsögli Mr.
Thompsons.
Dr. Wílliams Pink Pills lækna þann-
ig að þær slíta rætur sjúkdómsins. Þær
endurnýja og byggja upp blóðið.styrka
tauuarnar og hrekja þannig sjúkdóra-
út, úr líkamanum. Forðastu eftirstæl-
ingar með því að krefjast þess, að bver
askia. sem þú kanpir sé vafin í nmbúð-
úm peim or ulmi ii sé lotrtið hið fulla
- oizlun.'irmei ki : Dr. "’illiams Pink
Pills for P«le P.'Oph’.