Heimskringla - 29.04.1897, Side 1

Heimskringla - 29.04.1897, Side 1
XI. ÁR. NR. 18. Heimskríngia. WINNIPEG, MAN., 29 APRÍL. 1897. Cheapside, Abatast a reynslunni. Centa afslattur i fatabud vorri. Hver sem sýnir oss þessa auglýs- ingu, á heimting á því að 20% sé sleginn af öllum alfatnaði sem hann kaupir ef verðið er upprunalega meira en $5,00. T. d. föt sem eru merkt $6,00 fást fyrir $4,50 og föt sem kosta $10,00 fást fyrir $8,00. Vér höfum eitt hið stærsta og bezta upplag af fatnaði sem til er hér í Winnipeg, og verðið er mjög lágt. CHEAPSIDE, 578 og 580 Main St. Rodgers Bro’s cfe 00. P.O. Box 639. FRÉTTIR. DAGBÓK. FIMTUDAG 22. APRÍL. Grikkjum gengur nú betur aftur. Tóku sjö þorp af Tyrkjum í gær. í gær stóð aðalorustan í grend við Larissa að alherstöð Grikkja, og þó Tyrkir hefðu 5—10 menn á móti hverju m einum Grikkja, biðu þeir þó ósigur eða gátu ekkert á unnið. Seint í gær telegrafer- aði Konstantinus herstjóri til föður síns, að alt gengi ágætlega,—að Grikkir væru búnir að ná haldi á öllum brautunum og fjallskörðunum sem farið yrði um norðan yfir landamærin, niður á Þessa- líuslétturnar. — Sjálfboðaliðsmenn rísa nú upp um þvert og endilangt Grikk- land og er ætlast á, að um það að þessi vika er liðin, verði um 40 þúsundir sjálf- boðaliðsmanna komnir norður á landa- mærin. Grikkir hvar.i heimi sem eru hugsa nú til heimferðar föðurlandinu til hjálpar. Auðugur griskur maður sem lengi hefir rekið verzlun í Montreal, er nú að selja verzlun sína og fer af stað alfarinn til Grikklands um næstu helgi, til þess að helga föðurlandinu efni sín öll og sjálfan sig. Samskonar sögur berast úr öllum áttum þar sem grískir menn eru. Brezkt auðmannafélag, með hertog ann af Teck í broddi fylkingar, vill fá leyfi hjá Canadastjórn til aðnema málm úr jörðu, byggja járnbrautir norðvest- ast í Canada, frá Kyrrahafi upp um fjöll að Yukon-fljóti og að koma upp gufu- skipuin á fljótinu, og til þess yfir höfuð að tala að ráða lögum og lofum í þessu héraði samkvæmt reglum er Canada stjórn setur. En svo vill félagið að stjórnin ábyrgist því 3% vöxtu á ári af stofnfé er nemur miljón. Þó Spánverjar séu of magnlausir orðnir til að berjast eins og menn á Cuba, skortir þá ekki bolmagn bil að brenna og myrða. Það er nú aðalstefna Weylers að brenna öll býli Cubamanna, og drepa alt fólk. Sjúkrahúsin fara sömu förina og eins sjúklingarnir sem f þeim eru. Er nú á fáum dögum búið að brenna þrjú sjúkrahús og myrða alla sjúklingana og þjónustumenn. FÖSTUDAG 23. APRIL. Fielding fjármálastjóri flutti fjár- málaræðu sína á sambandsþingi í gær og skýrði frá tollbreytingum sem verið er að gera, eða verða gerðar á þessu þingi. Tekjurnar á yfirstandandi fjár- hagsári eru orðnar S30J milj. og búist við að þær verði alls $37,300,000. Gjöld- in eru orðin $25,4(53,483, en búizt við að þau verði samtals $37,857,392. Verður tekjuhalli þá sem næst $600 þúsundir. Á næsta fjárhagsári (1. Júlí’97 til 30. Júní ’98) býzt hann við að tekjurnar verði $37J milj. og tekjuhalli þá$750 þús. Grikkir gerðu alvarlega tilraun í gær að hrekja Tyrkja úr fjallskarðinu Milouna Pass, er þeir fyrir misskilning sleptu við Tyrki á mánudaginn. Segja síðustu fréttir að Tyrkir hafi mátt flýja úr skarðinu í gær, en þó er ekki sagt að Grikkir hafi virkilega náð því aftur. En það er að ráða af síðustu fréttum að Grikkir séu nú að vinna sigur í einni sókn eftir aðra, — ná haldi á hæðum og fjallskörðum, er Tyrkir hafa haldið og sem eru ágætustu vígi.— Brautir allar í Þessalíu eru nú þaktar flóttamönnum, —sveitafólki, gangandi, ríðandi og ak- andi með alla sína búslóð á ferðinni til Larissa og annara bæja. í bæjunum er nú þegar farið að verða vart við fæðu- skort. Sjúkrahúsin eru full, læknar of fáir og læknislyf ónóg. í gær var Humbert Ítalíukonungi sýnt banatilræði. Hann var á leiðinni út að veðreiðastöð skamt frá Rómaborg og vor að fara út um borgarhliðið þeg- ar maður hljóp að vagninum og ætlaði að leggja hann í gegn með hníf. Kon- ungur sá lagið og stóð upp. Fleygði þá morðinginn hnífnum, en var gripinn um leið, en konungur hélt áfram eins og ekkert liefði ískorist. Maðurinn sem grafinn var í Simcoe, Ont., um daginn, vaknaði á tilteknum degi og var óskemdur, en á meðan verið var að vekja hann kom á hann eitthvert æði, svo að 5 menn þurfti til að halda honum. LAUGARDAG 24. APRÍL. Annan frægan sigur unnu Grikkir aftur í gær. Tyrkjum hefir ekki til þessa komið í hug að óttast sjóflota Grikkja, — héldu að stórveldin mundu fjötra skip þeirra. Þeir vöknuðu því við vondan draum i gær, er hinn gríski floti lagði í rústir tvö eða fleiri þorp á ströndum Saloniku-(Þessaloniku)-fjarð- arins og tóku að auki feikna mikinn forða af vistum, er nýlega var búið að Tls Palace Clitls Sliri, 458 MAIN STREET. ----*--- Hver sem kemur í búð vora til að kaupa eitthvað og hefir með sér^essa auglýsingu eins og hún stendur f Heimskringiu til sýnis, fær 20% afslátt af öllu sem hann kaupir, — alfatnaði og yfirhöfnum, buxum og öðru fatnaði tilheyrandi------- Góð kaup á höttum, húfum, skyrtum, hálsbindum, krögum og öðru þessháttar. The Palace Glofhing Store, 458 MAIN STREET, skipa upp i þorpinu Katerina og sem þaðan átti að flytja til Elassona, aðal- herstöðva Tyrkja i Macedoníu. — Aðrar merkar fréttir ekki af orustusviðinu, nema að fullyrt er að Tyrkjastjórn sé ó- ánægð með herstjórn sína í Macedoníu, sé búin að kalla yfirforingjana heim og hafi skipað aðra í þeirra stað. Edhem Pasha hefir verið aðalherstjóri, en nú fer hann að sögn frá, en Osman Pasha nafntogaður herforingi, tekur við aðal- stjórniimi. Blaðið “Chronicle” í London skor- ar á menn að skjóta saman fé til hjúkr- unar særðum hermönnum Grikja, og eru nú nokkrar merkiskonur búnar að mynda nefnd, er stendur fyrir söfnun- inni og úthlutun fjárins. Meðal ann- ara eru í nefndinni Mrs. Gladstone, Mrs. Labouchere, Mrs. A. Smith, Lady Henry Somerset og Lady Dilke. í Bandarikjum er talaðumað senda Victoriu drottningu heiðursgjöf núna á 60 ára krýningarafmæli hennar í Júní. Minnesotaþingið hefir samþykt að veita $10,000 til styrktar þeim sem beðið hafa tjón af völdum flóðsins í Rauðárdalnum. MÁNUDAG, 26. APRÍL. Grikkir voru illilega yfirbugaðir á laugardaginn va,r. Stærsta orustan var þá um aðalherstöð Grikkja, Larissa, og þrengdi þá svo að Grikkjum, að þeir máttu leggja á flótta. Tóku þeir með sér alt lauslegt, bæði vopn og vistir og héldu til þorpsins Pharsalos, 20 mílum sunnar og er aðal herstöð þeirra nú þar. í Aþena þóttu þetta illar fréttir og annars allstaðar þar sem Grikkir eiga nokkra vini. Þó hugsa Grikkir sér að halda áfram enn og það kapp- samlegar en áður, en stórveldin hafa það álit að nú sé stríðið um það á enda. Eru þau nú að hugsa um að ganga á milli og fá báða málsparta til að hætta. Það er búizt við að á morgun muni Tyrkir herja á Pharsalos.en áðurenþeir gera það ætla stórveldin að reyna að enda striðið. Meistarastykki læknislistarinnar til þessa tíma var eflaust gert í Franka- furðu á Þýzkalandi núna fyrir stuttu. Maður var stunginn í hjartað, fluttur á sjúkrahús, skorinn upp og skurðurinn í hjartað saumaður saman. Svo fékk maðnrinn fulla heilsu og kom fram til sýnis á læknafundi í Berlín á laugar- daginn, þar sem skýrt var frá þessari makalausu tilraun. ÞRIÐJUDAG, 27. APRÍL. Það eitt er nýtt í fréttum af Grikk- landi að Konstantinus prinz hafi verið kallaður heim til Aþenu, og má af því ráða að hann þyki ekki duglegur her- stjóri. Áræði hans og hugrekki efar enginn, en sagt að hann vanti nægilega herkænsku. í stað hans kemur faðir haus, Georg konungur sjálfur, sem yfir herstjóri, og á hann að sitja í Parsolos. —Búizt við að herskip Grikkja herji á Þessaloniku í dag eða á morgun. I dag er mannkvæmt í New York. Það er sem sé verið að flytja lík Grants í grafhvolfið mikla i Riverside graf- reitnum. Er sagt að aldrei fyrri hafi verið jafnmargt aðkomandi manna saman komið í New York. Breskt her- skip sigldi upp ána í gær og verðnr þar Grant til heiðurs meðan hátíðin stendur yfir. Líkhellinn er minnisvarði jafn- framt og er það risabygging mikil og skrautleg, llOfetahá og hefir kostað yfir 600 þúsund dollara. Tölllögin nýju eru aðal-umræðuefni á sambandsþingi enn og þarf ekki að taka fram að álit ræðumanna á þeim er gagnólikt. — Seinustu fréttir frá Ottawa segja að Sir Henry Joly ætli að segja af sér, að Dobell fái ráðherraembættið á Englandi og að Sir Oliver Mowatt og Wm. Mulock póstmála stjóri eigi að fá fylkisstjóra embætti. Hart í ári enn á Indlandi. Hveiti ómalað $2.25 bush. og ódýrasta kornteg- undin $1.25, en vinnulaun þeirra sem vinnu fá eru 5 til 7 cents á dag. MIÐVIKUDAG 28. APRÍL. Æsingar miklar í Aþenu útaf óför- unum í þessalíu. Hver maður sem vetlingi getur valdið er að kaupa sér vopn og er búizt við stjórnarbyltingu á hverri stundu, Kennir lýðurinn þetta konungi og stjórn hans og er hann sagður í lífsháska en sjálfsagt búizt við að honum verði bylt. Æsingarnar kvað koma af því aðstjórnin kvaðhugsa um að kalla heim herinn af Krít og biðja stórveldin að skakka leikinn. Á meðan stjórnin er að hugsa um þetta hefir hún skipað herforingjum sínum i Epirus að halda kyrru fyrir. Þetta segir lýðurinn sé landráð. Eldur kom upp á bryggjn í New Port, Virginia.i gær og brunnu þar þrjú gufuskip. Eignatjón $2 milj. Myndarleg sumargjöf. Þáð var falleg sumargjöf, sem þeir Sigurðssynir, verzlunarmenn að Hnaus um, gáfu Vestur-íslendingum í ár. Þeir gáfu þeim þá vandaðasta, þó ekki sé það hið stærsta, skipið og rennilegasta skipið, sem enn er til á Winnipegvatni. Vitaskuld gefa þeir Vestur-íslending- um ekki skipið í þess orðs almmennu merkingu,en heldureiga þeir það sjálfir, en þeir gefa þeim það þá samt þannig, að Islendingar geta með síolti bent á það og sagt: —í'Þetta er okkar skip”, á sama hátt og smali eignar sér féð sem hann hirðir. Selkirkbúar—hinir hér- lendu—viðurkenna alraennt að bátur- inn sé ljómandi fallegur og mikilsverð viðbó*- við skipaflotann, sem hefir Sel- kirk fyrir aðalból. Það er heiður fyrir íslendinga að geta þá bent á að þarna ?é skip, sem sé eigineign Islendinga, og að engir hérlendir menn eigi þar nokk- urn hlut í. Frá þessu sjónarmiði er þettá skip mikilsverð sumargjöf. Á fimtudaginn var, sumardaginn fyrsta, átti hinn nýi gufubátur að khlauj a nf stokkum í Selkirk. Allur út- búnaður til þess var fullger kvöldiðáð- ur og var hann hinn yandaðasti. Bát- urinn var hafin upp að framan og hlóð og grindur sett undir hliðar hans, sem hvíldu á bjálkadrögum, en undir drög- unum var hallandi virki, sem lá allu leið fram í ána. Hlóðir og garðurinn sem útan um bátinn voru, voru þannig útbúin, að þau losnuðu við hann um leið og hann fór á flot, en drögin voru smurd með fitu svo þau rynni betur. Þarna stóð nú báturinn í þessum laus- lega, en sterka ham, á sumardagsmorg- uninn fyrsta.reiðubúinn til að hafa bú- staðaskifti. Vélin var kynt og sýndi mælirinn um 80 pund gufu. Akkerin á sínum stað í framstafni og yfir höfuð virtist báturinn að vera að mestu full- ger hegar litið var á hann að utan, eD þegar úpp a hann kom varö maðuf þess fljótt var að svo var ekki, því þar lágu smíðatól og borðbútar, nafrar og járn- fieinar, sem biðu eftir að komast á rétt- an stað, ýmsir af smiðum voru að bauka hér eg þar innanborðs meðan aðrír voru að taka saman ráð sín um það hvernig hægast yrði að koma hon- um fram af árbakkanum. Með því að spyrjast fyrir og gæta vandlega að út- búnaði hið efra á bátnum, varð maður þess vísari að farþegjaklefana vantaði, en þeir eiga eftir að bæta 61 feti við hæð skipsins, sem virðist allhátt þegar. Búkurinn má heita fullger utan og neðstu þiljur að mestu leyti. Vélin er ný og vænleg m jög og mátti lesa það á andliti vélastjóranna, aðþeir biðu með óþreyju eftir að mega láta hana fara að "púla”, Að utan er báturinn málaður dökkrauður að neðan, en að ofan er hann hvitur eða þvísem næst, en ekki skyldi neinn samt hugsa að þessi ein- kenni sé óyggjandi. Alt getur litum brugðið, og hér á “Lady” að hlut. Gufubátar allir í Selkirk, sem voru í standi, hópuðu sig saman á ánni og blésu sem mest þeir máttu hinu nýja skipi til heiðurs, um leið og það sveif af stað. Eins og venja er hér í landi var hið nýja skip skírt með því að splengja kampavínsflösku á framstafni þess. Það var lítil stúlka, Laura Helgason, 9 ára eömul systurdóttir þeirra bræðra Sigurðssona, sem skirði bátinn, — kipti i borða og lét flöskuna springa um leið og báturinn leið af stað niður eftir stokkunum, og kallaði jafnframt upp, hátt og snjalt, með nafn bátsins, sem er “Lady of the Lake,” eða Vatnafrúin (bókstufleg útlegging : Frúin frá vatninu). Samstundis var undin upp hvítur fáni mcð nafni bátsins letruðu á, svo að allir mættu sjá, og reis þá upp alment húrra-óp. En svo vildi það óhapp þá til, að frúin tók það i sig að fara ekki út á ána um kvöldið, en settist að á árbakkanum og sat þar á skiðum sin- um alla nóttina og fram yfir hádegi á föstudag, Þá loks varð henni þokað af stað og fór hún þá á harðahlaupi fram á ána. Og svo fallega fór hún, þó ferð- in væri geysileg fram af trjánum.aðhún hallaðist einusínni ekki, en sat lóðrétt á vatninu, þó hún*færi niður eftir ánni á brunandi ferö. Fór hún þannig ful la hálfa milu, en þá voru vélar hennar settar í hreyfingu og unnu þær verk sitt svo vel, þó aldrei hefðu þær verið reyndar fyrri, að frúin þurfti enga hjálp til að komast upp að bryggjunni. Hún bjargaði sér sjálf og áreynslulaust í fyrsta skifti sem hún kom á flot. Fyrst um sinn að minsta kosti og ef til vill alt sumarið gengur “Lady of the Lake” tvær til þrjár ferðir fram og aftur milli Selkirk og Hole River, gull- námahéraðsins fyrir austan vatnið og norður um vatn alt til St. Georges Is- land, um 250 mílur frá Selkirk. Bjóðist farþegjar og ffutningur kemur báturinn við á Gimli, Hnausum og í Mikley og verður það þess vegna í fyrsta skifti að Ný íslendingum gefst tækifæri til að hagnýta reglubundnar gufuskipaterðir, þar sem farið verður norður að minsta kosti þriðja hvern dag, og ef til vill annanhvern dag. Það er ís á vatninu enn, þó hann sé laus í sér og víða brotinn, og þess vegna ekki sem stendur hægt að segja hvenær fyrsta ferðin varður hafin, en búizt við að það verði um miðjan næsta mánuð, Mai. Það eru allar líkur til að í fyrstu ferðinni hafi hann nóga farþegja, því það er langt síðan hérlendir menn “pöntuðu” far til Hole River með fyrstu ferð. Meðal annara sem um það far hafa beðið eru 2 námamenn frá British Columbia, sem nýlega eru komnir norð- an frá Rice River (næsta á fyrir norð- Hole River) og sem lízt þannig á þetta málmland, að þeir vilja komast norður í fyrstu ferð, áður en alt fyllist af gull- leitendum, og þeir eru margir í Sslkirk og Winnipeg. sem líka ætla sér að verða ‘fyrstir’ á gulllandið. Að undanteknumyfirvélastjóranura (Mr. W. E. Simpson frá Collingwood í Ontario) verða skipverjar allir Islend- ingar og hefir hra. Stephan Sigurðsson sjálfur alla aðalstjórn, því hann býzt við að fylgja bátnum í sumar. A bátn- um verður rúm fyrir 150 farþegja., og af þeim geta 30—40 fengið rúm á 1. káetu. Útbúnaður allur verður svo vandaður sem framast má verða og enda ýms þægindi á þessum bát sem ekki eru á stærrí bátum á vatninu. Meðal annars má telja það, að vélin dælir vatni upp í kerald mikið á bátnum, á meðan bátur- iun er norður á vatni. Áarvatn verður þess vegna aldrei brúkað til drykkjar eða matbúnings, en það er kostur sein allir meta, Og hvað viðurgerning snert ir, fæði o. þyl., er fyrirætlanin að hafa hann svo góðan, að enginn hafi ástæðu til að bvartu. Sem sagt er skipið hið vandaðasta, * bæði að efni og smíði og lagið á bátnum þykir þeim er séð hafa svo fallegt, að það er alment búist við að hann verði með ferðmestu bátum á vatninu. Hr. Stephan Sigurðsson hefir sjálfur haft aðalumsjóu á verkinu frá því smíð- ið var hafið og hefir staðið fyrir kaup- um á öllu sem til smíðanna þurfti. Gæti hann stært sig af því, að frá því smíðin var hafin, hefir aldrei staðið á efni eða nokkru sem að smíðinni laut, en það er í fyrsta skifti í Selkirk, að aldrei hefir orðið vinnustöðvun þessveana. Algerð- ur kostar báturinn um $15,000. Heimskringla óskar þeim bræðrum til allrar hamingju með þennan ljóm- andi bát sinn og vonar að hann endist lengi og reynist eigendunum arðsöm eign. Það er líklega óhætt að segja, að aldrei fyrri hafi jafnmikið skip og vand- að verið smíðað fyrir Islendinga og upp á þeirra kostnað eingöngu. Að það skip þá verður til í flokki hinna fámennu Vestur-íslendinga, er nokkuð sem þeir hafa góða og gilda ástæðu til að stæra sig af. Það var góð sumargjöf og eiga þeir bræður þökk fyrir. Athug,asemd. I síðasta Lögbergi er dálítill grein- arstúfur um Islendingadags-fundinn, sem haldinn var hérí bænum 14. þ. m,, og eru þar ýmsar missagnir og ósann- indi, sem mér finnst ástæða til að leið- rétta. Að margt af því fólki, sem fundinn sótti, hafi verið unglingar og börn, sem hafi verið "trommað” (!!) saman til að greiða atkvæði í blindni, er auðvitað bara bull. Iiitstjórinn á hér eflaust við meðlimi isl. leikfimisfélagsins, (I. A. C.), sem eru alt ungir menn og sem flestir eða allir greiddu atkv. með 2. Ágúst, og þeir höfðu auðvitað eins mikinn rétt til að vera þar og greiða atkvæði, eins og ritstj. Lögbergs eða hver annar. Og það er ástæðulaus ósvífni að bera þeim það á brýn, að þeir hafi greitt atkvæði í blindni og án þess að hafa sjálfstæða skodun á málefninu. Það er rétt og satt, að ólætin og há- vaðinn, baulið og blístrið á fundinum, var Islendingum ekki til neins heiðurs. En það er alveg rangt að kenna það 2, Ágúst-mönnum fremur en 17. Júní- mönnum, því ritst. Lögbergs veit það ofurvel, að það voru einmitt 17. Júní- menn, sem bezt gengu fram í þvi að bnula og orga, sérstaklega á meðan Sig- urður Vilhjálmsson stóð á ræðupallin- um. Það er því ekki hægt að beina á- sökunum fyrir ólætin að nokkrum sér- stökum flokki eingöngu. 17. Júní-menn áttu sinn fullan þátt í þeim. Um atkvæðagreiðsluna er það að segja, að hún var fremur ógreinileg, mest fyrir ókyrleik í húsinu. En það voru fjórir valinkunnir og gætnir menn sem töldu atkvæðin, og er með öllu á- stæðulaust að gefa það í skyn, að þeir hafi sýnt þar nokkra óráðvendni eða hlutdrægni. Og hverjir voru þessir menn sem réttu upp báðar henduc fyrir 2. Ágúst? Ætli það þvælist ekki fyrir ritstj. Lögbergs að sanna þá sök ? Og ef hann ekki getur nefnt nein nöfn, þá er það rangt og bein ósvífni, að slá því út, og þá auðsjáanlega gert til að slá ryki í augu þeirra, sem ekki voru á fundinum. Ritstj. Lögbergs segir, “að 17. Júní hafi orðið merkilega (!) ofaná á fundin- um hjá þeim, sera nokkuð skildu eða vildu skilja í málinu.” Þetta eru hroka- full stóryrði, og þarf ekki nema meðal- gikk til að segja slíkt, og er það ekki frekar svaravert. Og svo nenni ég ekki að eiga frekar við þessa miður-áreiðanlegu fundar- skýrslu í Lögbergi, sem er auðsjáanlega skrifuð til þess, að gefa fólki út í frá sem ekki var á fuhdinum, alveg ranga hugmynd um það sem fram fór. M. PÉTUR8SON. Wiunipeg 26. Apríl 1897. Robinson & Oo. Deilda-verzlun, 400 og 402 flain Str. Veínaðarvara allskonar; kjólaefni og- kvennbúninpur; karlmanna og drengja-fatnaður ; kvennjakkar ; regnkápur; sólhlífar og regnhlífar, snið og tieira og fleira. — Matvörubúð niðri í kjallaranum. Hvergi betrí varningur eða ódýrari i bænum. SJERSTOK KJ ()R IvAUP nú sem stendur á kjóladúkum, bæði úr ull og bómull. Sirz með mjög varanlegnm ]it frá 5 cents yarðið og upp; Flannelettes á 5, 6, 8 og 10 cents yarðið ; þykt Gingham-tau á 5 cents yarðið og upp. Nokkrar buxur (treyjur og vesti selt áður) á 35 cen ( s og upp. Komið og lítið á varninginn. Robinson & Co. 400 osr 4G5J M AIN STH. *

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.