Heimskringla - 26.10.1899, Blaðsíða 4

Heimskringla - 26.10.1899, Blaðsíða 4
HEIESKRINGLA, 26. OKT líðg. Vjer fyrstir. Oss hefir aftur hlotnast að ná fyrstu einkunn fyrir tilbúning hins áferð- arbezta haust og vetrarfatnaðar. Það er engin tilviljun að vér höfum náð þessum vinsældum, heldur er það eðlileg afleiðing af þekkingu vorri á því, hvernig fðtin eiga að vera búin til svo að þau fari vel og séu almenningi þóknanleg. Áferðarfallegasti tilbúinn fatnaður sem gerður er í Canada, er búinn til á verkstæðum vorum. Enginn ann- ar fatnaður er eins vel gerður. Engin fataverksmiðja notar eins vandað efni. Þetta er hreystilega talað, en vér erum reiðubúnir að færa fram sannanir fyrir þvi. Eöt vor eru þannig sniðin, að þau passa ðllum mönnura og verðið á við allra hæfi. Cor. City Hall Square & Main St. Winnipeg. Hr. Eggert Jóhannsson hefir verið á ferð hér í bænum þessa dagana. Saaðarkonurnar í Unitarasöfnuðin- um hafa ákveðið að halda Concert og Social 9. November. Prógramm í næsta blaði. Hr. Þorvaldur Þorvaldsson kom hingað til bæjarins á föatudaginn var. Hann hefir kent á barnaskóla vestur við Mary Hill P. 0. í sumar, en ætlar að halda áfram námi á Wesley College hér í bænum í vetur. Herra Pétur Árnason^rá Lundar, Man., kom hingað til bæjarins á fimtu- daginn var í verzlunarerindum. Hann varð fyrir þeirri sorg að missa konu sína 12. þ. m., aðafstöðnum barnsburði. Pétur fór heim aftur á laugardaginn var. Hr, Jón Jónsson Straumfjörð, sem fór héðan til Yukonlandsins í fyrra, kom hingað til bæjarins í vikunni sem leið ; hafði hann dvalið í Victoria, B. C. um nokkurn tíma áður en hann kom hingað. Jón var glaður i bragði að vanda og hraustui vel. Blaðið “Morning Telegram” getur þess, að það sé á orði, að Ottawastjórn- in muni láta lengja Hnausabryggjuna um 140 fet Sé þessi saga sönn, þá bend- ir hún á það, að stjórnin er nú orðin sannfærd um að það sé þörf á bryggju á Hnausum og að hún sé þar vel sett, eins og líka er. Þeir ísleifur Guðjónsson frá Monar P.O, og Jón Vestmann frá ClaVkleigh P.O. voru hér á ferðinni um síðustu helgi. Þeir segja að sléttueldar hafi gert allmikinn skaða þar vestra, en ekki vissu þeir samt til að neinir íslend- ingar hefðu orðið fyrir tjóni af þeim. 20. þ. m. dó húsfrú Anna María Guðmundsdóttir, eftir langvarandi sjúk dóm. Hún var kona Stefáns Sigurðs- sonar, sem býr á horninu á Eliice og Maryland Str. hér í bænuir. Þau hjón fluttu til Ameríku fyrir 5 árum, frá Seyðisfirði á íslanði. Jarðarförin fór fram á sunnudaginn var. Hin árlega skemtisamkoma íslenzku kyrkjunnar á Kate Str., verður haldin i kyrkjunni næstkomandi fimtudagskvöld 2. Nóvembsr, kl. 8 e. h. Prógrammið verður fult eins gott nú og áður. Ræð- ur bæði á ensku og íslenzku, ágætur söngflokkur frá Manitoba College, solos og recitations, ókeypis veitingar. Pró- grammið verður auglýst í næsta blaði. Hermálaráðgjafinn í Ottawa hefir boðið Mr. Hugh John Macdonald for- ingjastöðu yfir herdeild þeirra, sem send verður frá Manitoba til Transwaal. En þar eð búast má við pólitiskum bardaga hér i fylkinu innan skamms, þá neitaði Mr. Macdonald þessu sæmdarboði her- málaráðgjafans. Sagt er að “Oom Greenway” hefði ekki þótt lákara að vita af Hugh John suður í Afríku, þeg- ar kosningunum verður skelt á. 21. þ. m. andaðist hér á sjúkrahús- inu húsfrú Kristíana Sigurðardóttir, 39 ára að aldri. Innvortis meinsemd varð henni að bana. Hún var kona Snorra Jónssonar, bónda við Islendingafljót Þau hjón komu hingað til lands fyrir 17 árum og hafa búið þar norðurfrá jafnan síðan. Hin látna eftirskilur, á- samt manni sínum, 4 mannvænleg börn hið yngsta 10 ára gamalt. Jarðarförin fór fram á mánudaginn var. COMMONWEALTH hefir betur sniðin föt en aðrar fataverzlanir. C.P.R. félagið hefir afráðiðað byrja ekki að byggja hótelið og vagnstöðy- arnar hér í Winnipeg fyr en að vori. Vagnstöðvarnar og hótelið á að vera í sambandi hvað við annað. Þetta stór- hýsi verður reist á horninu á Higgins Ave. og Main Str. Byggingin verður 6 loftuð, með 3 geysimiklum turnum. Alls tekur byggingin yfir 320 fet á Main Str. og 208 fet á Higgin Str. Þessi bygging er áætlað að kosti eina milión dollars. Sú sorgarfregn barst oss á mánu- daginn var, að landi vor, kapteinn Jón Dalsted frá Selkirk, formaður á gufu- skipinu “Fisherman”, hafi á föstudags- kvöldið var dottið útbyrðis af skipi þvi er hann stjórnaði, um 4 mílur norður af Mikley og sokkið samstundis. Hr. Kristján Sigvaldason, véiastjóri á skip- inu, sá Jón detta í vatnið og stöðvaði skipið samstundis. En Jóni skaut al- drei upp, og er likið enn ófundið. Jón var duglegur sjómaður og bezti drengur Hann lætur eftir sig konu og 4 börn. Hr. Jón Austmann frá Woodside P.O., kom hingað til bæjarins í siðustu viku, í kynnisför til kunningja sinna hér: Hann varð fyrir því mótlæti, að missa konu sína í siðastl. September, úr heilabólgu. — Níu íslenzkar fjölskyldur eru nú í Woodsidehéraðinu og stnnda þeir allir griparækt. en búast við að stunda akuryrkju meðfram, strax og þeir eru búnir að koma undir sig föst- um fótum. Þeim líður þar allvel og framtíðarhorfurnar eru góðar. Mr. Austmann segir þar vera nóg af heimil- isréttarlöndum og væntir þess að íslend ingar, frændur og vinir þeirra sem nú eru þar, muni setjast þar að næsta vor. Mr. Anstmann býst við að vinna við verzlun í Gladstone í vetur. LJ05MYNDIR. Mestu kjörkaup sem nokkurntíma hafa verið boðin í Winnipeg Mitcheíl’s Qreat Art Gallery, 211 RUPERT STREET, WINNIPEO. Fr& þessum degi seljum vér eina stóra ljósmynd, 16 x 20 þumlunga og eina tylft af Cabinet ljósmyndum, þeim beztu sem hægt er að búa til, “Platino” eða “Gloss”, fyrir að eins $3.00. Þessi Coupon gildir til 31. Október. Klippið pennan miða ót. Engin mynd verður gerð fyrir þetta verð, nema þessari “Coupon” sé framvísað á myndastofunni. Heimskringla, 26. Oct. '99 Þessi “Coupon” veitir handhafa rétt tíl einnar tylftar af beztu ljósmyndum og einnar stórrar myndar, 16 + 20, hjá Mitchell, 211 Rupert Str. Gildir að eins til 31*Október ’99 Nafn handhafa. w f T f ************************** * * # * * * # DREWRY’S nafnfræga hreinsaða öl # # # # # # * xjttC.:- þ°asir drykkir er seldir í pelaflöskum og sérstaklega ætl- aðir til neyzlu í heimahúsum. — 3 dúsin flöskur fyrir $2.00. Fæst * “lf'reyðir eins og kampavín.” Þett er óáfengur og svalandi sælgætis- drykkur og einnig hið velþekta Canadiska Pilsener Lager-öl. Ágætlega smekkgott og sáínandi í bikarnum. # # # # # # # # # # # # # # # # # # # # # hjá öllum vín eða ölsölum eða með því að panta það beint frá REDWOOD BREWERY. EDWARD L DEEWRY- mannfactiirer A Importer, WláNIFEG. ########################## # # # # # # # Millinery. Ég hefi mikið úrval af ágætum kvennhöttum, fyrir haust og vetrarbrúk. Verðiðer frá 75c. og upp. Einnig “Rough Riders” hatta fyrir $1.50. Kvenn- fólkið getur fengið hatta sína skreytta í búð minni með efni er þær geta sjálfar lagt til, ef þær vilja. Alt verk ódýrt og vel af hendi leyst. Miss Bain, Maín°str. Ég gef “Trading Stamps.” 570 Ilain Street. Tækifæri fyrir verkamenn. Þér getið unnið yður inn frá $3.00 til $5.00, með því að kaupa yfirtreyj- ur yðar hjá EASTERN CLOTHING HOUSE. Einnig höfum vér stutttreyj- ur í hundraðatali og karlmanna alfatnað i þúsundatali. Vér ábyrgjumst að gera yður ánægða með verðíð og aðfötin fari vel. J GENSER, eigandi. Almennur fundur var haldinn á City Hall á mánndagskvöldið var til að ræða um að stofna sjóð til styrktar her- mönnum þeim, sem fara héðan frá Winnipeg til Transvaal í Suður-Afríku. 2891 dollars komu strax inn í sam- skotum og af þvi gaf fylkisstjórnin $250 og bæjarstjórnin $250. Þessum sjóð var skift á milli hermannanna til þess að gera þeim mögulegt að útvega sér ýmislegt smávegis til þæginda á leiðinni. Fékk hver þeirra $50, en for ingjarnir 195.50 hver. Hermennirnir, 50 talsins, fóru héðan á þriðjud. og yar þá haldin skrúðganga á götum bæjarins í virðingarskyni við hermennina. Bæj- arstjórnin ákvað að síðari partur dags- ins skyldi vera frídagur og þessvegna tóku margar þúsundir manna þátt í skrúðgöngunni og fylgdu hermönnun- um á vagnstöðvarnar. í sambandi við þetta má geta þess, að Sir Charles Tupper, leiðtogi Con- servativa flokksins í Canada. hefir sam- ið við eitt hið öflugasta lifsábyrgðarfó- lag í Lundúnum, um milíón dollara lífs- ábyrgð fyrir þá þúsund hermenn, sem fara frá Canada til Transvaal. Þet.ta er $1000 ábyrgð fyrir hvern. Ekki vill Tupper láta uppskátt, hver það er sem leggur til peningana til að borga iðgjöld in af þessari afarmiklu upphæð, en lík- legast er, að það sé enginn annar en hann sjálfur. Er þetta stórmannlega gert og sýDÍr ijóslega skörungskap og drengiyníi Sir Charles Tuppers. íslenzki I.O.F. hornleikaraflokkur- inn ætlar að haida Concert þann 6. Nóvember næstkomandi. Þetta verður hin árlega Concert flokksins og til arðs fyrir hann. Samkomur hornleikara- flokksins hftfa verið ágætar að undan- förnu og það má ganga að því vísu, að flokkurinn tekur á því sem hann hefir til við þetta tækifæri. Prógrammið verður auglýst í næsta blaði. Veitið því eftirtekt. Mr. D. F. Allrnan er að byrja fata- verzlun í gömlu Cheapside búðinni á Main Str. Er það sú snotrasta klæða- sölubúð sem vér höfum séð í þessum bæ og vörurnar seldar við óvanalega lágu verði eftir gæðum. Hr. G. Ísleífsson vinnurí búðinni. Jón Jónsson sem nýkominn er frá Yukon biður þess getið, að hann sé nú byrjaður að vinna í búð Th. Thorkels- sonar á Ross Ave. og að hann voni að landar komi og finni sig þar Það er nú verið að stækka búðina um helming svo að Jón komist fyrir í henni. D.W. Fleury. Tilkynnir hér með vjðskiftavinum sínum, að hann hefir stækkað búð sína í samræmi við vaxandi verzlun hans, og að hann hefir nú fengið miklar byrgðir af karla og kvenna Grávöru allskonar Yfirhafnir, húfur, kraga, vetiinga, úr Coon, Buigarian, Lamb, Astra- chan, Wallaby, Wambot, Russian Dog og Opossum skinnum. Verðlisti verður prentaður síðar. Ritað í flýtir. D. W. Fleury, 564 Main Str. Andspænis Brunswick Hotel Hér með lýsi égyfir því, að nafn mitt er heimíldarlaust undir grein í sið- ustu Hkr. og Lögb., sem út komu 19 þ. m (Okt.) og sem hljóðar á þá leið, að ég viðurkenni að mæðgurnar Jóhanna Jóhannsdóttir og Sigurlaug Friðriks- dóttir hafi ekki ranglega haldið pening- um, er faðir minn gaf mér, og sendir voru þeim mæðgum fyrir 14 mánuðum síðan, með þeirri tiltrú, að þær skiluðu þeim strax til min, en sem sagt, hafa peningarnir verið í vörzlum þeirra fulla 14 mánuði, og voru loksins afhentir mér 14. þ. m. af þeim herrum Halldóri Jóns- syni og Ingvari Búasyni, er náðu pen- ingunum með lögmanns aðstoð þann sama dag, eftir að hafa sagt þeim mæðgum, að þeir ætlnðu 'að hefja lög- sókn á hendur þeim í þessu máli. — Alt þetta er á vitorði fjölda margra Is- lendinga, svo mér var ómögulegt að gefa áður áminsta viðurkenningu. Er hún þvi að öllu leyti óréttmæt eg ógild og nafn mitt á ófrjálsan hátt undir hana komið Að hinu leyti kann ég áðurnefndum heiðursmönnum Ingvari og Halldóri mínar beztu þakkir fyrir drenglyndi þeirra og sannkallað kær- leiksverk mér til handa í máli þessu. Metonía lndriðadóttir. COMMONWEALTH er stærsta fata- búðin í bænum. TYND KYR. Teitur Sigurðsson, 100 Notre Dame St. East.hefir tapað kú fyrir 3 vikum síðan. Kýrin er dökkrauð að lit aftur á bóga, en ljósari fyrir aftan bóga. Mark : blað- stýft aftan bæði eyru, þriggja ara göm- ul, og hornótt. Var í dálítilli nyt, er hún týndist. Hver spm kynni að finna þessa kú eða verða var við hana, er beð- inn að látaeigandann vita það tafarlaust Wm. Noble, GLENBORO. Kverwtreyju °g Kvennhatta salan okkar er byrjuð. Við óskum eftir að íslend- ingar komi við í búð okk- ar áður en þeir kaupa annarstaðar. Þegar þér kaupið af okkur, þá fáið þér það nýjasta og bezta sem hægt er að kaupa fyr- ir peninga, og með lægra verði en vér vitum til að samkynja vörur séu seld- ar fyrir annarstaðar. KVENNTREYJUR $3.00 og yfír. KVENNHATTAR poc, $1,00, og $1.29 Vér höfum einnig miklar bvrgðir af nærfatnaði og allskonar kvennmanna- fatnaðiogyfirhöfnum. Alt. : með samsvarandi lágu 1 verði. Gleymið ekki smá- fólkinu. Vér hðfum einn- ig fatnaði handa því, af hvaða stærð sem þér óskið. Vér tökum vörur jafnt sem peninga, og gefum hæzta verð fyrir egg- og smjör. Wm. Noble, Glenboro, Han„ 154 Standish Drake. vissi að það mundi ekki svo auðgert að koma báðum Senoritunum um borð í The Leonora, og að til þess yrði að brúka kænskubrögð. Hann fór fyrst til Senorita Duany og spurði hana vin- gjarnlega hvort hún vildi ekki koma um borð og sjá Senoritu Standish, sem þar væri. Hún þáði það feginshandi. Svo lét hann hana skrifa Se- norita Standish bréf, og biðja hana að finna sig um borði The Leonora. Arteaga flutti svo Senoritu Duany úr fang- elsinu og um borð, en fékk mér bréfið til Senor- ita Standish og fór ég með það um borð í skip yðar. Systir yðar brást auðvitað vel við þessu, og var þegar albúinn að fara og finna vinkonu eina. Eg flutti hana svo tafarlaust um borð ( Ihe Leonora. sem lá talsvert nær landi. Þegar þang að kom, neyddi Arteaga hana til að skiifa kaft- eininum á skipi yðar bréf, og skýrði hún honum að hún ætlaði að fara með Senorita Duany til Spánar. Þetta gekk alt svo vel og skrikkjalaust sem hægt var að hugsa sér. Og nú eru þær báð- ar um borð í The Leonora á leið til Cadiz, og við erum hér” j “Þér fóruð með Arteaga um borð i The Le- onora?” “Já, ég flutti þau öll um borð: Arteaga, Se- notita Duany og prestinn”. “Og prestinn ? Svo það er þá prestur m,-ð í förinni ? Það lá að, það væri hempuskrjóður með í þessum ráðum. En hvað hafði klerkurinn að gera um borð „með þeim ?” “Hann var gamall vinur Senorita Duany”. Drake Standish. 159 cisco, og hvað honum hefði getað gengið til að fylgja Inez yfir haflð. Eftir méltíð reyktum við svo stundarkorn þegjandi, þar til okkur var aftur fylgt hverjum í sinn klefa. Ég gat ekki sofnað fyr en komið var fram undir morgun, og þá dreymdi mig svo voðalega illa, að ég var sárfeginn er ég vaknaði aftur, eft- ir að eins stuttrar stundar svefn. Varðmennirnir komu svo að vanda og fylgdu mér til morgunvei ðar- Sat Carlos við borðið er ég kom, og var hinn glaðasti í bragði. “Senor Drake”, mælti kann strax og hann leit framan í mig. “Þú hefir ekki sofið. Þú ert veikur”. “Já, það er satt, ég svaf ekki mikið. Og svo dreymdi mig líka mjög illa”. “Aumingja Drake”, hélt Carlos áfram. “Þú verður veikur af umhugsun um Inez og Ednu”. “Já, ég get ekki annað en hugsað sífelt um þær, vinur minn. Og því ineirsem ég velti því fyrir mér, þess ver segir mér hugur urn hag þeirra. Við erum hér gersamlega hjálparlausir, Ég veit ekki hvað verður gert við okkur, en það eitt er víst, að okkur verður ekki gefið tækifæri á að strjúka. Ogþáséégekki að annað liggi fyrir þeim Inez og Ednu, en að giftast þessum þrælmennum, Villlegasog Arteaga”. “En þú gleymir séra Francisco”, svurafi hann. “Nei, ég gleyini honnm ekki. Ég hafi einn- ig velt því fyrir mér í huga luínuin, og finst mér jafnvel meiri ástæða til að óttast hanu heldur rn 158 Drake Standish. ur í dag, að séra Francisco væri gamall vinur þinn”. “Já. ég gerði það, ég gerði það I” svaraði hann með mikilli geðshræring. “En ég hélt að ég mundi hjálpa hjálpa þér með því. Mér datt íbugfanginn fiá Majorka, Ég hélt að hann kynni að standu í einhverju sambandi við þenn- an séra Francisco. Ég hélt ef til vill að þetta kynni að vera að einhverju leyti samantekin rað ykka.”. “Nei, Carlos”, svaraði ég. “Þessi maður hefir mér vitanlega aldrei séð Majorka-e.vjuna. Harin er rússneskur að ætt og uppruna og af tignum ættum. En hann er flóttamaður frá föðurlandi sínu. Og hættulegasti óvinur hans nú sem stendur, er kafteinn Rafsel Arteaga”, "En hver er þá þessi ókunni prestur? Ég veit það að Inez þekti aldrei neinn séra Francis- co. Hvererhann? Er hann vinur eða óvinur?’ “Ég veit það ekki. En við skulum reyna að vona hins bezta”. 14. KAFLI. Hver er séra Francisco 5 V’ið lukum svo við að borða þegjandi. í iiuga minum var sorg og hi ift út af þessu vél- ráðaneti, sem hafði verið ofið nm miv og pá sem mér jvoru ka raktir. Svo var ég líka sífelt að hugsaum hver hann gæti veiið, þessi séra Fran- Drake Standish. 155- “Hver var hann ?” gall Carlos við. Hafði hannr hlustað með atbygli á samtal okkar. ‘ Hvað ! Halðið þér áð ég þekki alla presta íMatanzas? Hann var kallaðnv séra Francis- co. Hann sagðist vera vinur Senoritunnar, og þar eð hún væri nú einstæðingnr, óskaði hann að mega fylgja henni. og að sér yrði leyft að- gefa þau Arteaga og hana saman í hjónaband". “Að gefa þau Arteaga og hana samau £ hjónaband?” endurtók ég. “Var þá Inez búin að gefa jáyrði sitt?” “Það leit svo út, Séra Francisco spaugaðr nm það við Arteaga, að hann ka mist bráðum i hjónasængina”, “Og Inet. Hvað sagði hún ?” ‘ Hún roðnaði og leit undan”. Ég sneri mér að Carlos þegjandi og forviða. Hann var nú hinn rólegasti, e;ns og ekkert sér— stakt kæri um að vera. “Svo gamli, góði séra Francisco fór meA Inez tíl Cadiz. Mér þykir vænt um það. Ef að þessi ráðahagur vei ður að takast, þá vildi ég helzt óska að séra Érancisco gifti þau”. "Þú þekkir þá þennan prest ?” spurði ég undrandi. “Já, hann er gamail vinur okkar”. Rétt í )essum svifum kom einn af skipverj- unum og hvíslaði einhverju að kafteininum. “Fyrirgefið, Senors”, mælti hann; “ég má; ekki vanrækja stöif mín, þótt inér þyki skemti- legt að tala við ykkur. Þið hafið nú nóg að- hmisa um fyrst um ijinn. Ég vonaað)ið við- urkennið nú hugvit og kænsku Spárr erja fum-

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.