Heimskringla - 18.01.1900, Page 2
HKIMSKRINGLA 18. JANÚAR I9OO.
PUBLTSHBD TiY
Tfie HcimskrÍDgla News & Publishing Co.
Verð blaðsins íCanada 0« Bandar. $1.50
nrri ár'S ffyri-fram S) Sent til
íslands (fyrirfram borga l af kaupenle
nm blaðsins hér) $1.00.
Peningai sendist í P. 0. Money Order
ftegistered Letter eða Express Money
Order Bankaávisanir ft að-a banka en í
iVinnipeg að eins teknar rueO aíTöllum
Managing Kditor :
ft. L. Bn!dwiiisir:i.
Offieo . 5-17 Main Street.
P O BOX 305.
Jár n h rau ta-by g gi n gar
í Manitoba 1899.
Blaðið Commercial flytur i þessum
m&nuði langa og fróðlega ritgerð um
bygging j&rnbrauta hér í fylkinu &
síðastl. ári. Það mun óhætt að full-
yrða, að tiltölulega mjög fáir menn í
fylkinu gera sér nokkra ijósa grein
fyrir þeim áhuga sem fylkisbúar
sýna í því, að fá brautir lagðar nm
fylkið, og mörgum mun koma sú frétt
ókunnuglega fyi ir, að brautir hafa
verið í byggingu í sumar & ekki færri
en 12 stöðum í fylkinu. Þess utan er
13. brautin í byggingu í norðurhluta
Ontariofylkis og er sú braut í raun
réttri parturaf járnbrautakerfi Mani-
tobafylkis og verður sú braut einn
hlekkur í sérstak' i brautakeðju sem
á að byggja frá Winnipeg austur að
Superior-vatni. Brautir þær sem
bygðar hafa verið í fylkinu á síðastl.
iri, eru rúmlega 350 mílur á lengd.
Að vísu eru þær ekki allar fullgerð-
ar, en þó svo á veg komnar, að það
má álíta þær bygðar. Sumar af
brautum‘þessum eru aðeins stuttir
spottar, ætlaðir til þess að draga
flutninga að aðalbrautunum. Aðrar
brautir eru framlenging á áðurbvgð
um brautum. Suðurhlutinn af Mani-
toba er nú eins vel settur með járn-
brautir, eins og nokkur annar hluti
Canada. -‘Canadian Northern” braut
in liggur um land, sem er mjöggott
og frjósamt frá náttúrunnar hendi og
hlýtur að hafa mikil og góð áhtif á
þann hluta fylkisins. Svo er Mani-
toba Suðvesiui'biautin sem ærlast er
til að verði hlekkur í þriðju brautar-
keðju sem á að leggja frá Winnipeg
tíl Superiorvatns, og tengir þannig
Manitobafylki við St.Laurence fljótið
og Atlantshafið.
Liðna árið var að ýmsn leyti ó-
hentugt til járnbrautabvgginga. Það
var þurð á verkamönnum og kaup
var hátt, hærra talsvert en á undan-
förnum árum og það þrátt fyrir að
alt að 50,000 manna frá ýmsum stöð-
um fluttu hingað inn í Manitoba á
liðna árinu. Af þessum ástæðum var
minna gert að járnbrautabyggingum
en annars hefði orðið. En á hinn
bóginn h?fir verið unnið af meira
kappi en vanalega tíðkast, með því
að veðurlag alt fram til end ársins
var að öllu leyti hið hagstæðasta fyr
ir útivinnu. Allar þessar brautir
hafa mikl'a þýðingu, með því að þær
ýmist liggja um áður lítt bygð lönd,
eða bæta samgöngur og auka vöru-
flutainga um áður bygð héruð. Alt
þetta miðar til mikilla framfara og
það getur varla hjá því farið, .ið með
vaxandi innflutningi fólks í fylkið og
auknum og bættum samgöngufærum
þá verði Manitoba innan fárra ára
eitt af þeiin landsplássum sem fram-
leiðir og flvtur til útlendra markaða
meiri matvæli en n«'kkurtannað land
undir sólunni, að jöfnu ræktuðu
ekrutali. Innflutningur manna frá
öllum álfum heimsins inn f hin ó-
bygðu héruð þéssa lands, krefst þess
að nýjar járnbrautir séu bygðar, og
það er alls ekki ólíklegt, að á kom-
andi árum verði járnbrautabygging
rekin hér í stærri stíl og af meira
kappi en hingað til heflr verið gert.
Það eru nú um eða yflr 2000 mílur
af jámbrautum hér í fylkinu.
Canadian Paciflc jftrnbrautarfélag-
ið hefir lengt brautir sínar á 7 stöð-
um hér í fylkinu á síðastl. ári. Meðal
al þeirra er framlenging á Nortwest
Central brautinni, ogstuttur brautar-
spotti sem tengir þá braut við liapid
City greinina af Manitoba og Norð-
vesturbrautinni. Báðar þessar braut-
ireiu nú undir yfirráðum Canada
Kyrrahafs brautarfélagsins. Það fé-
lag hefir einnig á liðna árinu látið
byggja hinar svonefndu Snowíiake
og Wascada greinar 0g liggja þær
báðar í suður fráDeloraine-brautinni.
Snowflake-greiuin er 17 mílur, en
Wascada-greinin er yfir 18 mílur á
lengd og liggur út frá Delorain. Svo
voru og 17 mílur af framlenging
Pipestone greinarinnar vestur frá
Reston, fullgerðar á Iiðna árínu, og
þess utan hafa 23 mílur verið búnar
undir járnbrautaböndin, svo að alls
eru það 40 mílur sem bætt heflr ver-
ið við Pipestonebrautina á liðna ár-
inu. Um 15 milur af þessari braut
vestur frá Reston eru inuan tak-
marka fylkisins, en 25 mílur eru í
Assiniboia-héraðinu. Sama félagið
heflr og framlengt Northwest Central
brautina um 25 mílur, frá Hamiota
til Mineota, sem nú er endastöð þeirr-
ar brautar.
Svo er McGregor Varcoe greinin
sem á að verða alt að 50 mílur á
lengd, og tengir McGregor á aðal C-
P. R. brantinni við Varcoe á North-
west Central brautinni og liggur til
norðvesturs. Þessi braut er nú ekki
meira en hálfgerð, en búist við að
við hana verði lokið á næsta sumri.
Austan Rauðár heflr C. P. R. félag-
ið bygt hina sýonefndu Bonnet Lake
grein. Hún liggur frá Molson vagn-
stöðvunum á aðalhraut félagsins, til
Lac du Bonnet, og er um 22 mílur á
lengd. Það er búist við að þessi
braut verði í framtíðinni lengd til
Winnipegvatns. Braut þessi er enn
þá ekki fullger, en búist við að lokið
verði við hana á þessum vetri. Þessi
hraut er aðallega til þess ætluð að
hj&lpa áfram iðnaði sem verið er að
byggja upp á þessu svæði. Þessi
iðnaður er tilbúningar á múrsteinum
og vatnspípum, þakskífum og ýmsu
fleira. Það er og búist við að þaðan
verði mikil eldiviðarsala, með þvíað
land þar er alt skógi vaxið og gæða
viður á því. Svo heflr og þetta félag
lagt allmikið í kostnað til umbóta á
öðrum brautum sínum á ýmsum
stöðum í fylkinu og enda alla leið
austur að Efravatni, sérstaklega með
því að taka upp gömlu 56 punda
járnteinana og leggja í stað þeirra
73. punda stálteina.
Northern Paciflc járnbrautarfélagið
hefir bætt yflr 30 mílum við brautir
sínar í fylkinu á síðastl. ári. 9 míl-
ur liggja frá Portage la Prairie norð-
ur á leið til Manitobavatns og heitir
endastöð þeirrar greinar Oakland.
20 mílur liggja til norðvesturs frá
Portage, milli C. P. R. og Northwest-
ern brautarinnar. Á þessari grein
eru tvær vagnstöðvar, Ridgway og
Beaver, og er hin síðartalda'enda-
stöðin. Það er minnisvert, að þessir
tveir brautastúfar hafa verið bygðir
án stjórnarstyrks. Yér skoðum það
sem góðan fyrirboða framtíðarstefnu
þessa fvlkis gagnvart járnbrantafé-
lögum.
Manitoba Southern-járnbrauta-
félagið heflr einnig gert all mikið að
verkum í brautalagningu á liðna
árinu. Sú braut liggur frá St. Boni-
face suðaustur um Manitobafylki inn
í Minnesota örfáar mílur vestur frá
blá suðaustur horni fylkisíns. Braut
þessi er nú fullgerð til Marchand,
um 50 mílur frá Winnipeg. Hinn
hluti brautarinnar er nú í byggingu
og á að leggjast suður til War Road
í Minnesota, en það er um 86 mílur
frá Winnipeg. Braut þessi á að
Iiggja inn í Rainy River héraðið í
Ontario og sameinast þar Ontario «5;
Rainy River-brautinni, og mynda
jannig sérstaka braut alla leið aust-
ur að stórvötnunum.
Canadian Northern brautarfé-
iagið heflr lengi, braut sína á síðastl.
ári um 65 mílur. Braut þessi var
lögð í fyrra frá Sifton til Cowan, en
á árinu 1899 var hún lengd frá Cow-
an vestur undir Swan River og það-
an norður eftir austanvert við
Porcupine fjöllin, og opnar þannig
algerlega nýtt ogágætlega gott hérað
í fylki þessu, fyrir innflutning og að-
setu fólks. Hérað þetta er vel lagað
til griparæktar, og má því búast við
að var verði hjarðland mikið innan
fárra ára. Þessi braut er fyrirhnguð
norður að Saskatchewan ánni, og er
svo til ætlast að grein verði bygð frá
henni þaðan vestur til Prince Albert.
Þessi braut hefir það frábrugðið frá
öðrum brautum í fylkinu að hún
stefnir í norður þar sem allar aðrar
árautir stefna til vesturs. Innflutn-
ingur mikill hefir verið inn í. norð-
vesturhéruð Manitoba á síðastl. sumri
°g byggð er nú komin með fram
allri þessari braut, sem með nú
bygðum greinum sínum er um 240
mílur á lengd. í sumar er leið var
byrjað að leggja grein frá Dauphin
beint vestur á hinar svo nefndu Gil-
bert Plains. Það er fyrirhugað að
framlengja þá grein um 20 mílur á
næsta sumri. Gilbert slétturnar eru
ágætlega vel lagaðar til akuryrkjn;
þær liggja milli Riding- og Duck
fjallanna, og er þar nú komin all-
mikil bygð.
Það gefur að skilja að afarmiklir
peningar koma hér inn í fylkið í til-
efni af þessum járnbrautalagning-
um, en þess utan má telja allar’ þær
byggingar, járnbrautalestastöðvar og
eimvagnastöðvar sem bygðar eru
með fram hverri braut sem bygð er,
hvort sem hún er löng eða stutt, svo
auka brautirnar afarmikið umsókn
eftir verkamönnum sem hér hafa
stöðuga atvinnu, vanalega með sæmi
legum vinnulaunum. Brautir þess-
ar, eins og allar aðrar járnbrautir í
öllum löndum, auka verzlun og iðn-
að og örfa byggingu þeirra héraða
er þær liggja um. Af þessum ástæð-
um heflr það að þessum tima verið
skoðað sjálfsagt að styrka með opin-
beru fé þau félög sem standa fyrir
slíkum verkum. En eftir því sem
löndin byggjást og fólksfjoldinn fer
vaxandi, eftir því nálgast sá tími
meira og meira að járnbrautirnar
verði eins og hverjir aðrir þjóð-
vegir f landi, algerlega opinber eign.
/
Islenzk herdeild.
Vér gátum þess lítillega í síð
asta blaði að nú væri verið að mynda
nýja herdeild hér i Winnipeg og að
2 íslendingar væru þegar gengnir í
hana. Þeir herrar.Jón Júlíus, sem
áður var f einni þeirri Winnipeg
herdeildinni sem barðist í Riel upp
hlaupinu árið 1885, og Þorsteinn
Borgfjörð, ungur og efnilegur hand-
verksmaður hér f bænum. Þessir
tveir landar vorir hafa með þessari
inngöngu sinni í þessa nýju herdeild
gefið öðrum löndum vorum mjög
lofsvert eftirdæmi, sem vér álítum
að aðrir ungir og einhleypir menn af
vorum þjóðflokki ættu að fylgja.
Vér munum svo langt, að þegrr
Riel upphlaupið varð hér í norð-
vesturlandinu fyrir rúmum 13 Arum
þá voru milli 10 og 20 Islendingar í
Winnipeg-herdeildunum, og var þó
þjóðflokkur vor í þessum bæ talsvert
fámennari þá en hann er nú. Land-
ar vorir komu vel fram í það skifti,-
þeir áunnu sér lofsorð hjá yfirmönn-
um sínum, og gerðu raeð því mikinn
sóma jijóðheild vorri hér í landi.
Það atriði út af fyrir sig gerði meira
til að koma vorum íslenzka þjóð-
flokki hér í álit meðal innlendra
manna, heldur en flest, eða ef til vill
nokkuð annað, sem hann hefir af-
rekað hér í'Iandi. í öllum löndum,
þar sem ekki eru algerðar villiþjóð-
ir, er varnarskyldan skoðuð ein
helzta og helgasta af borgaralegum
skyldum, og svo áríðandi er þessi
skylda talin, að í sumum menningar-
mestu löndum heimsins, svo sem
Þýzkalandi, þá er skylda þessi lögá-
kveðin, og verður hver maðnr 18
ára að aldri að ganga í herinn um
þrvggja ára tímabil. Er þetta gert
til þess að mennirnir skuli kynnast
hernaðaraðferð og hermannalííi, svo
að þeir séu því betur undirbúnir að
gegna landvarnarskyldu sinin, hve-
nær sem ófrið kann að bera að hönd-
um. í Englandi er þetta ekki á-
kveðið með lögum, en þar eins og
hér í Ameríku, eru heræfingar og
taktgangur kendar á barnaskólun-
um, þó að það að vísu sé í smáum
stfl þá gefur það þó piltum dálitla
hugmynd um hermannlega fram-
kotnu, og þeir piltar eru að sjálf-
sögðu fljótari til að nema heræfingar
síðar, heldur en hinir sem ekkert
slíkt hefir kent verið.
Að landar vorir yflrleitt taki
svo lítinn þátt í námi hernaðaríþrótt-
arinnar er, ef til vill, mest sprottið
af því að ekkert slíkt þekkist á Is-
Iandi, Mönnum er þar bannað með
lögum að læra eða æfa vopnaburð,
og því fá menn þar engan smekk
fyrir neitt þess háttar. Svo þegar
fólk vort flytur hér inn í brezka
veldið þa skoðar það sig sem út-
lendinga, og flnnur ekki eins glögt
til varnarskyldunnar eins og vera
ætti. Auðvitað hefir fólk vort í
mörg horn að líta eftir að hingað er
komið, og því verður ekki neitað að
margt liggur þeim nær að stunda á
fyrstu búskaparárum sínum hér, held-
ur en hernaðarnám. Það er því
eðlilegt og í alla staði fyrirgefanlegt
þótt landar vorir hafl ekki á umliðn-
um árum sýnt eins mikinn áhuga á
þessum málum eins og brezka þjóð-
in sjálf. En nú þegar vér erum
búnir að vera meira en fjórðung
aldar hér f landi, og eigum úrval af
hér innfæddum íslendingum, sem nú
mega heita fulltíða menn og á bezta
aldri til þess að nema hernaðaríþrótt-
ina, þá er bæði afsökunnin minni og
skyldan meiri en áður var. Því að í
sannleika eru þessir menn brezkir
og með öllum þeim ráttindum sem
inntæddum mönnum ber að lögum,
og þá að sjálfsögðu með sömu þegn-
skyldum líka. Þess vegna vildnm
vér nú eggja Islendinga til þess að
fara frá þessum tíma að gefa máli
þessu meiri og alvarlegri gaum en
þeir hafa áður gert, fara að skoða
sjálfa sig sem sameiginlegan hluta
hinnar brezku þjóðar hér í landi,
fara að heimta öll þau réttindi sem
hverjum innfædðum Breta ber að
eiga og taka jafnframt fúslega á
herðar sér allar þær skyldur sem
hvíla á þeim sem brezkir borgarar.
Þetta er sú rétta stefna og framtíðar-
heill vor í þessu landi er komin und-
ir því að vér fylgjum henni og höld-
um.fast við hana.
Einmitt nú með myndun þess-
arar herdeildar gefst oss tækifæri að
sýna hverjum augum vér lítum á
mál þetta, og það er því meir áríð-
andi að vér látum samþegna vora
vita stöðu vora í þessu efni, sem það
eröllum heimi vitanlegt að brezka
veldið er nú í allmiklum vanda statt
og að undir útkomu ófriðarins í
Suður-Afríku er komið hvert Breta
veldi getur haldið áfram að haltia
stöðu sinni og heiðri sem heimsins
voldugasta ríki.
Nýja deildin sem ráðgert er að
mynda, á að hafa um 250 manns. í
déildinni verða 6 flokkar (Companies)
um 42 menn í hverjum flokki. Það
mun láta nærri að vér Islendingar
séum einn tíundi hluti af bæjarbúum
að tölunni til, og oss ætti að veita
léttað Ieggjatil einn flokk í þessa
nýju herdeild. Það væri sómi engu
síður en skylda fyrir oss Islendinga
að gera þetta.
Til upplýsingar þeim sem kynnu
að vilja ganga i þessa nýju deild
skulum vés geta þess:
1. Heilsugóðir menn giftir og ó-
giftir yflr 18 ára er veitt innganga í
sjálfboðaliðið.
2. Við inngönguna verða menn
að sverja þégnhollustueið við brezku
krúnuna.
3. Einkennisbúningur og vopn
eru lögð til ókeypis af ríkisstjórninni.
4.1 2 daga borgun á ári 50c. á dag
—alls 86.00 á ári eru veittir hverj-
um sjftlfboða, þau ár sem heræflngar
eru fyrirskipaðar.
5. Þjónustu tími i sjálfboðaliðinu
er 3 ár, en lausn getur maður fengið
fyrir þann tíma ef gildar ástæður eru
færðar fyrir lausnarbeiðni og ekki
er ófriður í landi.
6. Vanalega er hver herdeild
höfð í herbúðum frá 10 til 20 daga á
ári. Engin aukaborgun er veitt
fyrir það, en fæddir eru sjálfboð-
arnir.
7. Heræflngar eru hafðar svo oft
sem þurfa þykir einusinni eða tvi?-
var í viku, eftir ástæðum, þær fara
fram á kvöldin frá kl. 8 til 10. En
stundum eru heræfingar hafðar tvis-
var á dag, fyrir kl 6f á morgnanna
og kl. 8 á kvöldin, 2 æflngar á dag
eru þó að eins hafðar þann tíma sem
sjálfboðarnir eíru í herbúðum.
8. Þeir 86.00 þóknun sem hver
sjálfboði fær á ári hverju ganga van-
alega til að kaupa ýmsar smá nauð-
synjar sem stjórnin ekki leggur
>eim tll, en sem þó er nauðsynlegt
að hafa. Það er því enginn pen-
ingalegur hagnaður að ganga í
deildina. En á hinn bóginn eru pen-
inga útlát annaðhvort engin eða svo
lítil að menn munar lítið um þau.
9. Borgun fyrir [hornleikenda-
flokk er vanalega gerð af yflrmönn-
um deildanna, sá kostnaður nemur
alt aðeitt þúsunð doliars á ári.
Þetta eru þær upplýsingar sem
vér getum gefið að svo stöddu. af
ieim geta þeir sem kynnu að vilja
ganga í sjálfboðaliðið gert sér hér
um bil Ijósa grein fyrir því hvort
leim er það fært eða ekki.
Þess skal og getið að spurs-
málið um tímatap mannanna frá
daglegum störfum, verður’að jafnast
milli þeirra og vinnuveitendanna.
Flestir vínnuveitendur finna skyldu
sína í því að örfa fremur en letja
menn sína þess að ganga í herþjón-
ustu, en svo er tímatöfin svo lítil frá
daglegum störfum að hún er tæpast
takandi til greina.
Vér vildum óska að ungir efni-
legir landar vorir vildu íhuga þetta
mál. Þeir þurfa angan kvíðboga
að bera fyrir því að þeir verði kall-
aðir til hernaðar eins og nú standa
sakir, en þó ættu þeir einir að ganga
í deildina sem ekki eru of hugdeigir
til þess að vera menn með mönnum,
ef ríkinu lægi á liði þeirra.
Stjórnarfarið í British
Columbia,
Þær leika á veikum þræði
stjðrnirnar í British Columbia síðan
Joseph Martin kom þangað vestur
fyrir nálega þrem árum síðan.
Stjórnir þar vestra eru að því leyti
ólíkar stjórnum annara fylkja í Can-
ada að flokkarnir þar skapast ekki
af skoðanamun í ríkis pólitík, hedlur
eru það innbyrðismál fylkisins sem
skapa þar flokkana, án tillits til
þess hvort mennirnir fylgja liberöl-
um eða conservativum í ríkismálum.
Þetta gerir stjórnirnar þa.r töluvert
óhultari í sessi en ef skiftingin væri
gérð eftir ríkismálaflokkum. Hver
þingmaður má heita óháður, hann
getur fylgt stjórninni í dag í þessu
máli en verið andvígur henni á
morgun í öðru máli, og af því stafar
það að engiu stjórn getur nokkurn
tíma mælt afl sitt með nokkurri
vissu fyrr en gengið er til atkvæða í
þinginu. Svo var það þegar'Martin
kom vestur að hann tók stefnu móti
þáverandi stjórn, og tókst honum
bráðlega að myDda flokk, sem að lok-
um varð nógu öflugur, til þess að
velta Turnerstjórninni úr völdum
meg tilhjálp fylkisstjórans þar. Að
vísu hafði Turnerstjórnin helming
allra þingmanna að kosningunum
afstöðnum, en fylkisstjórinn heimt-
aði að Mr. Turner gæfl upp völdin
með því að hann hefði ekki sýnt að
hann hefði meirihluta af kosnum
þingmönnum, svo komst Semlin f
stjórnarformansstöðuna og tók þá
Martin í ráðaneytið og gerði hann
að dómsmálaráðgjafa. En brátt
varð Martin svo illa þokkaður að
Semlin skipaði honum að segja af
sér. Þá varð það að þeir Herodeus
og Pílatus urðu vinir, Martin fór þá
strax að vinna aftur með Turner
sem hann áður hafði hjálpað til að
fella, en gerðist audstæðingur Sem-
lins, sem hann áður hafði hjálpað til
valdanna. Martin hafði þannig
endaskifti á sannfæríngu sinni. Þetta
veikti Semlinstjórnina svo :að van
séð hefir verið hvort hún fái haldið
völdunum gegnum þetta yflrstand-
andi þing sem sett var í síðustu viku.
Fyrsta atkvæðagreiðslan fór svo að
Semlin varð undir, hafðí 17 atkvæði
með en 18 móti. Næsta atkv.greiðsla
var jöfn að öðrn en því að forsetinn
greiddi atkv. með stjórninni og jiafði
hún þannig einn fram’lyflr, *eins og
skýrt var frá í síðasta blaði. Síðari
atkv.greiðslan sýndi að sljórnin hafði
einn fylgismann umfram’Tandstæð-
ingana, McPherso frá ^Vancouver,
þingmaður verkamanna sem £kom
þar til hjálpar stjórninni, hafði hann
verið kosinn til þess að vinna "mót
stjórninni, en hafði ekki þrek í sér
til þess að standa við loforð sitt við
kjésendui na þegar kom I þingið.
Þetta var leiðirdegt því að það slær
skngga á verkamannattokkinn og
spillir nij'ig fyrir málstað hans að
leiðtogarnir bregðist vonum kjós-
endanna og loforðum sínum við þá.
- WINNIPEG.
Atkvæða yðarVig áhrifa er óskaðjfyrir
A. W. Puttes,
nngmannsefni ' '’verkamanna-félag-
anna. Lesið stefnuskrá flokksinsjog
ávarp til kjósendanna frá Mr.’Puttee,
í blaðinu “The Voice.”
Góð tíðindi
hljóta það að vera öllam, sem veikireru
að rafmagnsbelti mín (Electric G-alvao-
ic Belt) eru þau undraverðustu belti í
heiminum, þar eð þau lækna sjúkdóma
betur en önnur belti, sem kosta $5 til
$30. Þessi belti min endast æfilangt og
ganga aldrei úr lagi. Það eru áreiðan-
leg að lækna liðaveiki, gijt, tnnnpínu,
kirtlaveiki, alskonar verk, sáriudi og
kvalir. svefnleysi. hægalðeysi, lifrar-
veiki, hjartveikj, bakverk, nýrnaveiki,
magaveiki, höfuðverk, kvefveiki, La-
Grippe, andarteppu, t.augasjúkdóma og
alskonar kvensjúkdóma. Engar á-
stæður að vera veikur, þegar þér getið
orðið læknuð. Þér verðið varir við
.erkanir beltisins eftir 10 tnínútur.
Af því ég vil að allir kaupendur
Heimskringlu eignist þessi belti, þá sel
ég þau á $1,00 hvert, eða 6 belti fyrir
$4.50 um næstu 60 daga, eftir 60 daga
hækkar verðið.
J. Lakander.
Maple Párk,
Kane County,
Illinois, U. S. A.
Hugsunarsamar
matreiðslukonur
vilja ætíð vanda sem bezt
það sem þær bera á borð.
Boyd’s brauð er hið bezta.
Margra ára reynzla heflr
sannað það. Heíurðu ekki
veitt því eftirtekt hvað það
er ágætlega smekkgott ?
W. J. Boyd,
370 og 579 Main Str.
Aniiy and i\avy
Heildsala og smásala á
tóbaki og vindlum.
Vér böfum þær beztu tóbaks og vindla-
byrgðir sem til eru í þessum bæ, og selj-
um þær ódýrara en aðrir. Enda gerum
vér meiri verzlun en nokkur annar.
Vér óskum eftii viðskiftum yðar.
f. Brown & Co.
541 Main Str.
The LYONS
Shoe Company,
hefir nú á boðstólum
allar tegundir af vetr-
ar-flókaskóm, sem þeir
selja með kegi a verði
en aðrir skósalar hér
í bænurn.
Verðlisti verður
auglýstur síðar.
The Lyons Shoe Co.
590 iTIiiin Str.
fTrmakari
Þórður Jónsson,
HlHÍn Str.
Beint’á móti rústunum af Manitoba
Hotelinu.
Bruda i fullri Stærd.
/ I < T PASSA NU BRUDUNNI.
Eitt af síðustu ný-
brygðum og áreiðan-
leg að þóknast börn-
um, Með vorri
undraverðu aðferd
höfum vér framleitt
nijög stóra hand-
málaða brúðu. verk-
ið er gert af miklum
hagieik og iíkist líf-
litum. Það er ætlast
til að brúðan sé þan-
n úit með baðmull,
aius og fylgireglurn-
ar sýna. Brúðuefnið
er úr þykku ‘Sateen’
er m ekki rifnar. Það
tes bókstaflega óslít-
feta Itn andi. Það er málað
að ;eins með olíuraáli sem ekki springur.
Með okkar nýja patent eru fæturnir
gerðir svo að brúðan stendur einsömul.
Brúðan hefir gulibjart hftr. rósratiðar
kinnar, blft augu, n&ttúrlega litaðan
búk. i.inða sokku og svarta skó.
Fritt öllum heÍTn sem selja 6 brúð-
ur, sendum vór eina af þessum fagur
legu handmáluðu brúðum 33x23 kost-
naðarlaust. Koddablæjur. yfir 30
munstur að velja úr, seljastjbæglega
fyrir$5.00be«rar þæroru útsaumaðar.
Sérhvert liarn **l «kar stóra brúðu, en
hvað munu þau segja um brúðu í fullri
stærð 50c. send kostnaðarlaust. Einnig
brúðu húsbúnaður, stofubúnaður (6
stykki) 35 c. Svefnherbergisbúnaður (3
stykki) 35c send með pósti, burðar-
gjaldsfrí. Vér tökum lc. eða 2c. fri
merki eða póstávisan.
Amei'iotii Art Noveltv Co.
'Jo. 2 W. 14th St. New York.