Heimskringla - 22.03.1900, Blaðsíða 1

Heimskringla - 22.03.1900, Blaðsíða 1
XIV. ÁR Frjettir. Markverðustu viðburðir hvaðanæfa. Sagt er að Ottawastjórnin hugsi til að halda næstu Dominion-kosningar innan fArra yikna. Það «etur ekki orð- ið mjöfj iangt, þar til þær farafram. Þess vesna ættu Conservatívar að vera viðbúnir hvenær sem kallið kemur. Það er lítill efi á því að Laurierstjórnin fellur við næstu kosninnar, hvrenær sem þær verða látnar fara fram. Hon. Joseph Martin segir að al- mennar fylkiskosninpar í British Col- umbia verði látnar fara fram í byrjun Júnímán. næstkomandi. Bretar hafa mist 16,000 manna í Transvaal8tríðinu upp að þessum tima. Standard Od-félagið hefir á síðasta ári borgað hluthöfum 20% ágóða af hlutum þeirra í félaginu. Gróði félags- ins á árinu var 23 milíónir dollara. Þing Norðvesturhéraðanna í Re- gina kemur einnig saman 29. þ. m. Blaðið Vancouver Province segir að Joseph Martin láti þess getið, að hann sé algerlega á móti Liberalstjórn- Ínni i Ottawa. og að hann muni gera alt sem í hans valdi stendur til þess að fella'hana við næstu Dominion-kosn- ingar. Ontario-þingið hefir til umræðu •tjórnarfrumvarp um gerðardóm í deilu málum milli einkaleyfisfélaga og verka manna þeirra. Stjórnin heldur þvi fram að slikir gerðardómar séu nauð- synlegir, og að það sé réttlætanlegt að ■tjórnin skerist í leikinn i svona raál- um, þar sem þau félög eiga hlut að m&li, sem halda einkaleyfum sínum fri almenningi, og af því að verkföll koma fbága við þægindi og hagsmuni al- mennings. Bóluveikin gengur áreiðanlega hér í landi. Hennar hefir orðið vort i Min- neapolis ofi Washington-ríkinu. Enn fremur í Quebec og Ontario fylkinu. 26 bólusjukir menn eru nú í Ontario. Höfðu þeir allir nema einn tekið sýk ina frá Bandaríkjunum. Engin hætta er talin á að sýkin muni útbreiðast. En fólki er samt ráðlagt að láta bólusetj- ast. Mikilvæg uppfynding. Brunavarn- ar aðferð (fire proofing process) hefir verið fundinn, sem varnar því, að timb ur geti brunuið. Með aðferð þessari er allur safi dreginn úr viðnum, og er til þess notað bæði gufa og rafmagn. Sið- an er borin á viðin einhver efnafræðis- leg efni og varna þau því að hann geti brunnið, þó eldur leiki um hann í heil- an sólarhring. Það var nýlega gerð tilraun með þessa aðferð. Dálítið timburhús var bygt á stórum þar til gerðum barða, og hann svo dreirinn út á vatn. Síðan var hlaðið hefilspónum og öðrum eldfimum efnum við hliðar hússins og inni í því við vevgi þess. Svo var talsverðu af steinolíu helt í þessar spónahrúgur og kveikt í öllu saman. Húsið stóo í björtu báli i 4 klukkustundir, og hitinn var svo mikill, rúðuglerið í gluggunum briðnaði, en húsið stóð óskaddað eftir. —Það er sagt að Bretar, Rússar, Frakk ar og Bandamenn, hafi svona tilgerðan við í skilrúm og annað í herskipum sfn- um og gefist það vel. Efni það sem notað er til þess að gera viðina eld- verjanlega er enn þá sagt að vera svo dýrt að almenningur geti ekki haft þess not. En búast má við að ekki líði mörg ár áður en einhver aðferð finst til að gera það svo ódýrt að það geti orðið að almennum notum. Herfréttir síðan 15. þ. m. hafa ver- ið Bretum mjög f vil. Hafa þeir náð algerðum yfirráðum yfir Natalhéraðinu Einnig hafa þeir Jagt Orange Free State undir sig. Höfuðstaður þess rik- is er Bloemfontein, og er þar aðseturs- staður forseta lýðveldisins. Þá borg tóku Bretar 13. þ. m. Steyn forseti hafði flúið úr borginni þegar ‘haun sá að hún yrði að gefast upp. Hann lagði leið sína norðaustur til Kronstadt, en aðrir höfðingjar borgarinnar héldu á fund Roberts herstjóra, sem þá var með lið sitt 2 mílur frá borginni. Þar afhentu þeir Gen. Roberts lyltlana að borginni — að öllum opinberum bygg- ingum hennar, og báðu um vernd hans fyrir borgarlýð allan, sérstaklega fyrir konur og börn. Herforingi Breta hóf þá innreið sína í borgina með öllu sinu liði, og var sú lest yfir milu á lengd. Herforingjanum var hlýlega fagnað og Heimsknngla. WINNIPEG, MANITOBA 22. MARZ 1900. Nr 24. gleðióp fólksins gengu nálega fram úr hófi. Bretar hófu þá brezka fánann á allar opinberar byggingar og forseta- höllina. og tilkyntu með því öllum landslýð, að frá þeirri stundu væri Orange Fiíe State lýðveldið i Suður- Afríku algerð eign Breta og undir yfir- ráðum þeirra. Svo er sagt að innlend- ir hermenn þar hafi rænt miklu af eign- um íbúanna i Bloomfontain. En Ro- berts fyrsta verk var að láta þá skila öllu ráninu aftur til þeirra sem rændir höfðu verið. Roberts hélt síðan ræðu yfir möunum sínum, og hét þeim því, að hann skyldi leiða þá inn í Fretoria áður en þeir sneru heimleiðis aftur, Það er nú búist við að ekki líði maigar vikur þar til Bretar reti leitt stríðið til lykta, þar sem þeir eiga nú að eins eft- ir að vinna Transvaal lýðveldið, Bretar á Englandi og í nýlendum þeirra kunna sér ekki læti fyrir fögnuði yfir þessum stórsigri Breta, og flestum kemur saman um, að þegar Búar viti að Orange Free State er fríviljulega gengið á vald Breta, þá muni Búar gefast upp heima. En gamli Kruger segir brezka fánann aldrei skulu blakta yfir Pretoria. Annars hefir hann sent Bretum friðarboð og fengið Bandaríkja- stjórn til að bjóða mllligöngu sína til sætta. Én Salisbury lávarður svaraði að Bretar æiluðu sér að gera einir út um ófrið þenna. og þar við situr. Falspeningasláttuflokkur sá, sem unnið hefir að sláttu falspeninga í Ont- ario i síðastl nokkra mánuði, voru fyr- ir dómi í Woodstock, Ont., fundnir sek. ir og flokkmenn dæmdir í 5 ára fangelsi hver. Glen Campbell, frá Dauphin kom til baka úr 2 ára ferð til Yukon lands- ins á fimtudaginn var. Hann hafði far- ið Edmonton leiðina og lét mjög illa af henni. Strathcona riddar&herdeildin sigldi frá Halifax þann 16. þ. m. í viðurvist mesta mannfjölda. Um 20,000 flykust saman i Montrei 1 til as sjá herdeild þessa þegar hún fór þar um borgina- Þar var þeim haldin mikil veizla og skílnaðarræður fluttar. Menn vænta hins bezta af þessari deild. með því að það hefir nú verið sýnt að Canadamenn hafa reynst með þeim allra beztu i her Breta. Sannar skýrslur, búnar til af járn- brautnstjórnum í Bandaríkjum, sýna að rúm 14,000 menn hafa flutt þaöan inn í Canada á síðastl. ári. Það er á- ætlað að 75,000 manna muni flytja til Canada frá Bandaríkjum á þessu ári. Er áætlun þessi sögð bygð á áreiðan- legum skýrslum umboðsmanna viðs- vegar i Bandaríkjum, sem sérstaklega eru settir til að hafa eftirlit með útflutn ingum þaðan og hafa þegar útbúið lista hver i sínu by.ðarlaci yfir nöfu þeirra sem ákveðnir eru að flytja til Canada. Sendinefnd frá N.-ísl. vatni nálægt mótunum á Totvnship 19 og 18 í 4 röð austur, rétt sunnan við suðurtakmörk nýlendunnar, um 10 mílur frá Gimlibæ. Mr. Green- waý hafði lofað styrk til brautarinn- ar frá Toulon til Gimli og nýlendu- búar höfðu vonað að hún yrði bygð á síðastl. ári. Kvaðst nefndin skyldi finna fylkisstjórnina að máli og biðja hana að leita samninga við félagið og veita því þann styrk sem nauð- synlegur kynni að verða til þess að félagið sæi sér fært að byggja braut að Gimli tafarlaust. Með því að fólkið sem nú væri búið að búa þar í nálega fjórðung aldar, 60 mílur frá járnbraut, væri farið að verða leitt á biðinni, og væri mjög umhugað um an hin uppvaxandi kynslóð þyrfti ekki að búa við sömu örðugleikana sem hinir fyrstu landnemar höfðu orðið að þola. Mr. White svaraði að félagið hefði ekki í hyggju að framlengja Toulonbrautina að svo stöddu, en það hefði látið mæla út og fyrirhug- að að byggja I beina línu frá Selkirk niðurað suðurenda Winnipegvatns. Með þessu hefði það ekki verið hug- sjón félagsins að byggja upp Gimli- bæ, heldur ætti braut þessi að vera til þess að veita Winnipegbúum bein- an og fljótfarinn veg niður að vatn- inu á sumrin, þar sem þeir gætu andað að sér hreinu lofti og notið svalans af vatninu. Hugmyndin væri að veita fólkinu ónýra og fijóta ferð til vatnsins, svo að það gæti farið og komið til baka á sama sól- arhring og komist hvora leið á 1| til kl.stundum. Hann kvað enga vissu fyrir því að félagið bygði brant þessa í sumar, það væri algerlega komið uudir áætlun félagsins um það hvort ínntektir þess frá baaut- inni yrðu svo miklar að það áliti sér fært að ráðast í fyrirtækið. Ekki heldur gæti hann ákveðið að brautin yrði bygð í surnar þó að fylkisstjórn- in veitti félaginu þann vanalega mílu styrk, en hann bað nefndina að lofa sér að vita svar stjórnarinnar straxog hún hefði haft fund með henni. Svo á mftnudaginn bafði nefndin fund með þeim stjórnarformanni Macdonald og Dr.McFadden,ráðgjafa opinberra-verka og lagði mál sitt fyrir þá. Hra. Eagert Jóhannsson lagði fram skriflegar upplýsingar um héraðið og ástand þess og fram- tíðar möguleika, ef braut fengist. síðan héldu þeir, E. Jóhannson, capt. C. Paulson og B. B. Olson stuttar, en Ijósar ræður málinu til skýringar og lögðu að ráðgjöfunum að gera alt sem í þeiraa valdi stæði að hrinda málinu í vænlegt horf. Á laugardaginn var, kom hing að til bæjarins 9 manna sendinefnd úr Gimli sveit til að ræða við yfir- menn C. P. R. félagsins og fylkis. stjórnina um lagning járnbrautar til Gimlibæjar. Nefnd þessa skip- uðu þeir herrar capt. Christian Paul- son, kaupm. Björn B. Olsson, Beni dikt Frímannsson, Gísli Sveinsson og Jón Pétursson frá Gimli. Eggert Jóhanson, S.Sigurbjörnsson og Bjarni Pétursson frá Árnes. Jóseph Skapta- son frá Hnausum og Bergthór Thórð arson frá Hekla. 4 aðrir nýlendu- menn voru kosnir í þessa nefnd, það voru þeir herrar Jóhunnes Magnús- son, oddviti Gimlisveitar, frá Árnes, og kaupm- Jóhannes Sigurðsson frá Hnausum, Pétur Bjarnason frá ísa foldog Jóhann Straumfjörð frá Hekla. En vegna veikinda og annara ófyrir sjáanlegra tálmana gátu þeir, þegar til kom, ekki tekisf ferðina hingað á hendur, og urðu því félagar þeirra að koma fram fyrir stjórnina fálið- aðri en æskilegt hefði verið. Nefnd þessi fann Mr. lUhite, formann C. P. R. félagsins hér, að máli strax á laugardaginn og tjáði honum erindi sitt ljóst oggreinilega kvað það vera eindreginn vilja manna I Gimlisveit að braut fengist inn I ný- lenduna strax á þessu ári, annað hvort frá Toulon að vestan eða frá fyrirhugaðri endastöð brautar þeirr ar sem félagið hefir látið mæla út frá TUest Selkirk niður að winnipeg hann skyldi gera alt sem hann gæti til að hlynna að málinu, og sama kvað hann meðbræður sína í ráða- neytinu mundu gera; Hann kvað sér skyldi vera ánægja í því að geta ferðast til Gimli með járnbrautarlest á 25 ára afmæii bygðarinnar á næsta hausti. Hann kvað stjórnina mundi vinna að því að svo gæti orðið. Þá fóru nefndarmenn rakleiðis niðuar á C. P. R. vagnstöðvarnar og fundu Mr. White, og tjáðu honum andsvör stjórnarinnar- Mr. Eggert Jóhannson lagði þá fram skrifiegar upplýsingar um héraðið og áætlun um flutninga með brautinni ef hún yrði lögð alla léið inn í Gimlibæ. Mr. White þakkaði fyrir þessar upplýsingar. Hann kvaðst skyldi gerá alt.sem í hans valdi stæði til að komast að viðunanlegum samning- um við stjórnina, svo að óskir nefnd- armanna gætu orðið uppfyltar, skyldi hann leggja málið fyrir aðalstjórn- endur félagsins í Montreal, láta síð- an nefndina vita hvað þeir herrar þar eystra afréðu að gera, sjálfur kvaðst hann óska að ferð nefndar- innar hingað til bæjarins í þetta sinn, mætti bera tilætlaðan árangur.— Nefndarmenn héldu heimleiðis á þriðjudaginn var. Eins og lesendur sjá, þá fékk nefndin ekkert ákveðið loforð um það, hvorki hjá stjórninni né félag inu, að braut skyldi lögð að Gimli. En eigi að síður hefir nefndin orkað því, að bæði stjórnin og félagið við- urkennir þörflna á braut að Gimli og báðir málsaðilar hafa lofað að koma saman og ræða málið, og reyna að kornast að þeim samningum er tryggi það að félagið leggi braut þessa alla leið að Gimli strax á næsta sumri. Stephan G. Stephansson. “Á ferð og flugi.” Stjórnarformaður Macdonald kvað nefndarmenn hafa lagt mál sitt vel og skörulega fram. Ilann viðurkendi að þeir hefðu góðan mál- stað, Islendingar hefðu í fyrstu tek ið land þar í óbygðum og gert það að blómlegri sveit. Þeir hefðu því fylsta rétt til þess að biðja um og vonast eftir að stjórnin sinti máli þeirra og legði kapp á að braut yrði bráðlega lögð inn f héraðið. En vegna þess að hann hefði ekki fyrir- fram vitað um prindi þeirra, þá gæti hann ekkert ákveðið svar gefið þeirn um það, hvert stjórn sinni tækist að komast að þeitn samningum við C- P. R. félagið sem gæti trygt þeim brautina að Gimli á næstð hausti. En því kvaðst hann lofa þeim að taka mál þetta strax til umræðu við Mr. White, umsjónarmann félagsins hér, og skyldi hann gera alt setn í sínu valdi stæði til þess að komast að samningum við félag hans, svo að brautin gæti orðið lögð niður að Gimli á næsta hausti ef mögulegt væri. Hann kvaðst við því búinn. að gera svo sæmilega saraninga við félagið sem að sinu áliti ætti að tryggja brautina að Gimli á næsta hausti. Mr. McFadden, ráðgjafi opin berraverka, þakkaði nefnarmönnum fyrir þann áhuga sem þeir höfðu sýnt í þessu máli og þær upplýsingar sem þeir höfðu gefið stjórninni, hann fullvissaði nefndarmenn um þa4, að The Home Life Association of Canada. Incorporated by special act of Parliament. Hon. R. HARCOURT, A. J. PATTISON, Esq, President. Gen. Manajier. 'Höfuðstóll—ein millíón dollars." Yfir fjögur hundruð þúsund dollars af höfuðstól HOME LIFE félapsins hafa leiðandt verzlunar-rnenta og peninga-menn í Manitoba og Norðvestur- landinu keypt. HOME LIFE hefir þessvegna meira afl A bak við sig í Mani- toba og Norðvesturlandinu en nokkurt annað lífsábyrgðarfélag. Lífsábyrgðarskýrteini HOME LIFE eru af öllum er sjá þau álitin að vera hin fullkomnustu lifsábyrgðarskýrteini, er nokkru sinni hafa boðist, Þau eru skírt prentuð, auðskilin, laus við tvíræð orð. Dánarkröfvir borg- aðar samstundis og sannanir um dauða félagslima hafa borist félaginu. Þau eru órnótmælanleg eftir eitt ár. Oll skýrteini félagsins hafa ákveðið peningaverðmæti eftir 3 ár, og eru pen ingar lánaðir út á þau með betri skilmálum en nokkurt annað lífsábyrgðai félag býður. Leitið upplýsinga um félagið og ábyrgðarfyrirkomulag þess hjá W. H. WHITE, ARNI EGGERTSSON, MANAGBR. .Ilclntyre Itlock. Winnipcg. GENERAL AGENT. ' P. O Itox 845. Kvæðabálkur þessi er gefinn út í Reykjavík afherraJóni Ólafssyni, nú í ár. Hann er i 8 blaða broti, og te.ur 64 blaðsíður. Verð 50 cents í kápu hér vestanhafs. Ytri frágangur þessa kvers er þannig : Pappír góður og sterkur, “móskotinn” á lit. Prentun dágóð. Leturbreytingar miklar, og víðast ó þarfar. Stafsetningin í ýmsum atriðum er að eins samkvæm höf. sjálfum, en alls ekki vei'ju og málfræðisreglum ís- lenzkrar tungu. Hann hefir gert vesa- liugs xið útlægt úr móðurmálina, en byggir óðöl þe«s aftur fjórum urðar- mánum, gs og sk. Sé ég hvorki flýiir né fegurð við forsjáleik þann. Einnig virðist höf. hafa sett sér að markmiðí að “útplanta” latmæli í löghelgi móður málsins. Er skrautmóður sá numinn úr enskri tungu og franskri o. s. frv. Latmæli kalla ég þau orð, sem rituð eru eftir linum og ófullkomnum framburði, ómálfróðra rnan.na, en ekki samkvæmt uppruna. Höf. ritar o’n á.fyrir ofan á, og o’n í,fyrir ofan í ets. Fjölda nafnorða ritar hann með stórum staf svona rétt a hardahúfi. Hann gerir fúanum í trénu svo hátt undir höfði, að skrifa hann sem væri hann eiginnafn (nomen proprium), hvað þáönnnr nöfn. En hann skuli ekki taka upp hádanskan rithátt, og skrifa “nomen appellativum” sem væru þau nomen proprium”, fyrst hann er að byskupa sum þeirra. Þessar sérfarir í rithætti ilít ég höf. sjálfan valdan að, en alls ekki útgef- anda. Hann mun hafa látið handritið halda sér aðstafsetningu að mestu leyti Eg hefi veitt stafsetningu Stefáns mins eftirtekt frá því fyrsta, og kannast vel við hvað hans er, og hvað er hinna. Aftur á móti kenni ég útgef. um þær stafvillur eða prentvillur, sem eru í þessum bæklingi, Þær eru að vísu ekki stór-bagalegar, en þó fleiri en ég bjóst við af honum. ‘ En orsakir eru til alls undir sólinni”, sagði sá vísi konungur, svo mun með þær vera. Þessi fornöfn eru ýmist skrifuð : ég mér, sér, eða eg mer, ser. Atviksorðið altént eða alt- jent. Aftur á móti má finna é á eftir gi (bl. 49). Lýsingarorðið erfiður, er í hvorugukvni ýmist ritað erfitt eða er vitt. Ymist ernafno.maður: manns, eða mans í eignarf. eint. (genitivus singul aris), nafno. ættland er stafað ætland m. fl. Sumstaðar eru orðin tvíprent- uð, t. d.:bl. 40 stendur....“en heizt vildi vildi útgöngu ná”. Þetta visuorð á ekki að vera nema átta samstöfur. en rneð þessu innleggi verða samstöfurnar tiu. Fleira mætli tína til af smávillum en ég sleppi þvi. Mér finst þetta eng- in “prýðis frágangur”, ef segja má sannleikann, og sleppa allri vörugyll- ingu. Það má kalla hann sæmilegan, af því nú á dögum kemur ekki út pési, sem ekki úir og grúir af prentvillum. ÍJg hygg að útgef. Jón Ólafsson hafi alls ekki sjálfur fjallað um siðustu próf- örk þessa kvers, þvi ég minnist að hafa séð langtum betri próarkalestur eftir hann, en hér er um að ræða. Ég hefi nú sagt rétt frá stafsetn- ingu og prentvillum í kverinu, þótt ekki sé i yztu æsar skafið. En svo á ég eftir að minnast a kosti Stepháns G. Stephánssonar í íslenzku máli Kostir hans eru þessir, að hann skrifar og meðhöndlar hreinna mál en flestir nú- lifandi ljóðhöfundar. Hann forðast af ýtiastamegni að flekka og ata málið með orðslettum eða orðskripum, sem þó er mjög móðins hjá sumum, sem telja sig rithöf. þessa tíma. Hann gætir að þessu leyti hreinleika málsins betur en sumir heiraa á ættlandinu, þótt hann sé bóndi vestur undir Klettafjöllum í Canada. Annar kostur hans er sá, að hann er með orðflestu rithöf, sem nú eru á ferli,sf eltki orðflestur allra þeirra sem ljóð og sögur rita. Hann er jafn- vigur á orðfjölda málsins að fornu og nýju. Málhreimur hans grípur hátt og snjalt allar nótur frá byrjun sögualdar- innar og alt til þessa dags. Hann get- ur náð málhreimi Snorra Stuilusonar, náð málhreimi Jóns Arasonar.náð mál- hreimi Jóns Vídalíns og málhreimi Gests Palssonar. Og það veit trúa mín, að þetta er meiri gáfa en ég hefi fundið hjá nokkrum öðrum Islendingi. Ef sá tími liggur fyrir islenzkri tungu að hún yrði notuð við kenslu. sem frummál fyrir námi annara tungu- mála, þá myndi Stej hán verða einn með þtíim allra fyrstu rithöf. sem náms menn læsu, til að ná sem mestum orða- fjölda í málinu, það er að segja, ef alt hans verk kemst í eina heild, sem ég vona. Kvæðin eru að eins fjögur í þessu kveri. Fyrsta kvæðið er XVIII flokk- ar, sem allir eru uudir sama bragar hátt. Um bragfræðina mætti nokkuð segja, en ég læt nægja að geta þess, að ef hann vandaði betur kveöandi og á- herzlu, þá yrðu kvæði hans enn þá mýkri og hljómfeldari, en þau stund- um eru. Aðal-kvæðið er brot úr ævisögu is- lenzkrar stúlku, sem Ragnheiður heit- ir, en deyr með nafninu Sally O’Hara. Hvort höf. hefir valið sór ákjósanlegt efni ætla ég ekki að fella dóm um. En hitt finst ekki þurfa að ásaka höf. um, að hann haldi laust á efninu. Mér finst hann halda fast á efninu, og sýna ljós lega hvað það er, sem hann er að for dæma, sem sé, yfirdrepsskap og fégirnd kennilýðsins. Fyrir raína þekkingu og skoðun, finst mér höf. fara full hvöss- um orðum og samlíkingum þar um. En hann getur vitasku[d haft þar fyrir sér orð og atvik, sem og aðrir höf., þó þau séu mér og öðrum ókunnug. En hvort sem í efnisvalinu felast “nerlur og gimsteinar”, eða algengir málmar, þá finst mér Stephán draga upp dverg- hagar myndir á sýningarsviðinu, og hann eigi frumleik þeirra og liti sjálfur, en gylli þær ekki með annara áhöldum og drittum, sem sumir leyfa sér þó að gera. Það er ekki aur nó leir á þessum orðum hjá höf.: ....Sem vormorgunssólskin um hélaða hæð var hár hennar ljósbjai t og slétt; Og staðviðra loftið sinn bláföla blæ á barnsaugun þau hafði sett. Það var eins og litursá lægi ekki djúpt, En ljómandi fagur og glær. Þó útlitið breyttist.þá hélt maður helzt þau héldu sér, auðþekt og skær... • ».ír nauðugur faðirinn fylgdi henni’i vist— Sú fórnin þó djupt honum sveið; En umkomuleysið og útlenzkan smáð varð atvinnubönn hans og neyð.. ....1 stefi, i elding. á busk’ eða í borg eins birtist sú dýrlega sýn — En Ragnheiði litlu var lokað og byrgt hvert ljós, sem í bókmentum skín Og daglegu störfin sem ánauðarok hún öll fyrir kaupgjaldið bar — Tvær skemtanir kepti hún að kostgæfa helzt, það kyrkjan og danshöllin var... ....Og Bakkus ogjVenuss ér dýrkendur dró í dalinn úr sérhverri átt. Og Jehóva sendi sinn Hjálpræðisher á hnotskó þess Auðæfalands. En karlinn hann Mamnion var mann- flestur þó, því mergðin var öll saman hans. . .En alt hafð landið samt útliti breytt í ásunum daginn sem leið. Þann morgun lá Sólskiniðsofandi í fönn og svartklædd var Arskóyábreið. Og lognið og b/iðan sér blandaði í loft og blámaði sléttu og fjöll Það varjeins og risi frá rólegum draum úr rekkjunni Veröldin ðll. Ég veit að þessir vísu partar nægja öllum, sem vita hvað skáldskapur er, til að eygja hvað er á seiði í: A terð og flugi. Þessi kvæða-bálkur, sem hér er um að ræða, er minsti hlutinn af Ijóðum Stepháns. Ég vildi óska þess, að út- gáfa þessi yrði spor til þess, að höf. gæti sem allra fyrst birt á prenti öll ljóðsíc. Að minu áliti eru þetta alls ekki beztu ljóð Stepháns. Sumt af því sem út kom í Öldinni eru óefað með beztu kvæðum Stepháns. Ég vil að eins minnast á Illugadrápu, sem eins þess bezta kvæðis sem ég hefi lesið á móðurmáli mínu, án þess ég meiui að setja nokkra tegund af varningsgyll • ingu á ljóð Stepháns. Ég ætla ekki að segja fleira um A ferð og Hugi eða höf. þess. Ef öll ljóð hans hefðu legið fyrir framan mig, þá hefði siálfsagt verið að rita meira og fleira um þau, og skilgreina höf. dá- lítið betur, að anda og stefnu. Að síð- ustu óska ég Stepháni G. Stephánssyni allra heilla og framfara, sem stórfeldu íslenzku skáldi, er bergmálar meing dulinsmál nútfðarinnar fram um ó- komnar aldir. Kr. Ásgeir Benediktsson. Yirtwrin Rmployincnt llnrean 482 Main St. Winnipeg, útvegar stúlkum vistir, sem eldakon- um, og við borðstofu og uppiverk á gestgjafahúsum, einnig vistir í prívat- húsum.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.