Heimskringla - 21.06.1900, Blaðsíða 4
HEIMSKRINGLA, 21. JÚNÍ 1900.
The Dominion Trading Stamp Co.,
Ltd.
ÞER FAIÐ ÆFINLEGA BEZT
KATTP ÞAR SEM ÞER SJAIÐ
ÞETTA MERKI HANGA
ÞKR FÁIÐ ÆFINLEGA BEZT (
KAUP ÞAR SEM ÞER SJÁIÐ á
ÞETTA MERKI HANGA \
úthlutar gjöfum meðal allra þeirra, sem safna bláum bláum
“Trading Stamps”, í 22 borgum, sem nema yfir
' 100,000 Premiums. ^
Er verða gefnar í burtu þetta ár. Sökum okkar makalausu innkaupa, getum vér geíið meira
úrval og miklu verðmeirijgjafir til þeirra sem safna bláum “Trading Stamps” heldur en
mögulegt er íyrir nokkurt annað félag. Eftirfylgjandi kaupmenn selja yður vörur með eins
lágu verði eins og þér getið fengið þær fyrir hjá nokkrum öðrum. Þar að auki gefa þeir yður einn bláan “Trading Stamp” með hverju 10 centa virði sem þér
kaupið af þeim fyrii' peninga. Svo gefum vér yður betri premíu fyrir bókina yðar, þegar hún er orðin full af bláum “Trading Stamps,” heldur en nokkurt ann-
að samskonar félag getur gert. Þér græðið peninga við að kaupa af eftirfylgjandi kaupmönnum, Skiftið ekki á bláum “Trading Stamps” fyrir rauða.
ARTISTS’ MATERIALS.
W Cfanston, 498 Main st. Phone 480
ARTISTIC FURNITURE.
Soott Furnituri Co,., 277 Main st.
Phone 445
BAKERS.
Jos. TFatson, 207 Portage ave. Phone519
David Pollcck,422 Portage ave.
BICYCLES AND BJ.CYCLE SUP-
PLIES.
Graham & Rolston, 356 Main st. Phone
622, Anderson & Thomas, 538 Main st.
Phone 339
BOOKSELLERS & STATIONERS.
The IFinnipeg Stationery and Book Co.
364 Main st. Phone 654
C. J. Campbell (with Craig) 532 Main st
BOOTS AND SHOES.
A. G. Morgan, 408 Mainst.(MclntyreBl)
Kilgour Rimer Co., cor. Main and James
sts. Phone 554
A. Fredrickson, 611 and 613 Ross st.
Phone 768
BUTCHERS.
Horlman Bros., 232 Main st, Phone 425
Geo. A, Bowes, 679 Main st. Phone 396
Horn & Thompson, 478 and 480 Portage
ave. Phone 417
W. Bryant, 257 Portage ave. Phone 488
J. B. Jones & Son, cor, Logan^md
Fountain st.
J. H. Braden, cor. Curtis andHiggin sts.
W, J. McPherson, 397 Pacific ave.
Phone 96
McCormack , 174lsabel st
A. Gibson, 458 Alexander st. Ahone 561
J. R. Gowler, 90 Disraeli st. Phone 580
F. W. Handle, 185 Fonseca st
Holman Bros., 497 Notre Dame
L. Wright, 180Lombard st.
A. Johnson, 614Rossst
J. R. McNamara, 330 St. Mary st
Phone 728
Wm. James, 575 Logan ave
CARPETS AND OILCLOTHS.
Geo. Craig &Co., Cor. Main and James
st.s. Phone 88
CLOTHIN G-RE ADY M ADE.
Hoover & Town, 680 Main st.
Geo. Craig & Co., cor. Main and James
sts. Phone 88
CON FECTION ER Y.
W, J. Boyd, 370 Main st. Phone 177a
W. J. Boyd 979 Main st. Phone 177b
David Pollock, 422 Portage ave
Jos. Watson, 207Portage ave. Phone5l9
CROCKERY and GLASSWARE.
A, Fredrickson, 611 & 613 Ross st.
Phone 768
R. H. Winram, cor. Isabel and Elgin
sts. Phone 469
COAL OIL.
Peter Floden, 420 Pacific ave
Wm. Gordon, 811 Dufferin st
DRUGGISTS.
W. J. Mitchell, 394 Main st. Phone 484
Flexon & Oo., Clarendon Hotel Phone 45-1
A. Francis, 493 Notre Dame. Phone 59
A.J, Wallen&Co.,286Main st. Phone746
A J wallen&Co. 480 Main st. Phone 377
M. Ruckle, cor. Main & Selkirk
DRY GOODS.
The Imperial Dry Goods Co. Ltd. 452
Main st. (oposi t Post Offlce) Phone 77
Geo Craig & co., cor Main & James sts.
Phone 88
Mackay Bros., 220 Portage ave. (near
Main st.) ''
FANCY GOODS AND TOYS.
A. E. Maycock, 364 Main st.
C. J. Campbell, (with Craig)532 Main st
The Winnipeg & tationery and Book co
361 Main st. Phone 654
FISH AND GAME.
J. H. Davis, 189 Portage ave Phone 1046
FLORIST.
Richard Alston, cor. Notre Dame and
Princess sts. Phone 476
FURNITURE.
Scott Furniture Co. 276 Main st.
Phone 445
FURS.
The Imperial Dry Goods Co. Ltd., 452
Main st. Phone 77
Geo. Craig & Co. cor. Main & James st
Phone 88
Mackay Bros. & Co. 220 Portage ave
Hoover & Town, 680 Main st
GROCERIS AND PROVISIONS.
W. B. Francis, 576 Main st. Phone 850
Hardy &Buchanan, 483 485 Notr Dame
Phone 266
Hardy & Buchanan, 223 Market st
Phone 593
A. Fredrickson, 611-613 Ross st phone 768
Horn & Tompson, 478-480 Portage ave
Phone 417.
A. Gibson, 456 Alexanderst. Phone 561
W.R. Johnson, 255 Portage ave phone 898
R. H. Winram, cor. Isabel & Elgin st.
Phoue 469
T. D. Smith, 395 Pacific ave
J. R. McNamara, 328 St. Mary st.
Phone 1034
T. Foxcroft, Pembina ave.
H. Scott & Co. cor. Main & Selkirk
A. Gregg, cor. Higgins & Curtis st.
J. Coltart, 652 Main st. Phone 592
Jackson & Campbell, 234 Main st.
Phone 181,
J. R. Gowler, 90 Disraeli st. Phone 580
John Mains. cor. Logan and Isabel
R.H. Fair&co., cor.Salter and Jarvis st.
J. A. Parks, 779 Main st.
HARDWARE.
Graham&Rolston, 356Mainst. phone622
Anderson & Thomas, 538 Main st.
Phone 339
F, w. weir & Co., 666 Main rt. phone 571
HATS, CAPS AND FURS.
The Imperial Dry Goods Co. Ltd. 452
Main st. phone 77
Hoover & Town, 680 Main st,
Géo, Craig&Co. cor. Main and James
st. phone 88
Mackay Bros. & Co., 220Portage ave.
ICE.
Artic Ice Co,, 487 Main st. phone 367
Artic Ice Co., cor. Main and River ave.
phone 594
LAUNDRY.
F. Stratton (Union Laundry), 100
McDonald st
MENS FURNISHINGS.
The Imperial Dry Goods C. Ltd., 452
Main st. phone 77
Geo. Craíg &Co., cor. Main and James
sts. phone 88
Hoover & Town, 680 Main st.
Mackay Bros. & co., 220 Portage ave.
MILLINERY.
Miss Bain, 460 Main st.
Geo. Craig & Co., cor. Main and James
sts, Phone 88-
MUSICAL IN8TRUMENTS.
J.J. H. McLean & Co., 530 Main st.
phone 808
PAINTS, OIJ ,S AND GLASS.
Anderson & Thomas, 538 Main st.
phone 339
Graham & Rolston, 356 Main st.
phone 622
F. w. weir & Co., 666 Main st. phone 571
PICTURES AND FRAMES,
G. w Cranston, 498 Main st. phone 480
J. G. Soper, 352 Main st.
PHOTOGRAPHERS.
J. F. Mitchell, 211 Rupert st. phone 511
SOAPS.
Royal Soap Co., Office 289 King st.
Tel. 228
we will cheerfully give one Blue Trading
Stam for every 3 Royal Crown Soap
wrappers. For every 2 Royal Crown
Lye Labels. Forevery 1 Royal wash’ng
Powder Package (3 pounds)
For every 2 witch Hazel Toilet Soap
wrappers. For every 2 Shynol wrappers
The same wrappers and labels will be
redeemed in like manner at the Domin-
ion Trading Stamp Co’s. Show Room,
282 Main st.
TRUNKS AND V’ALISES.
Kilgour Rimer & Co., cor. Main and
Jamessts. phone 554
A. G. Morgan, 408 Main st.
Geo. Craig & Co., cor. Main and James
sts. phone 88
Tinware and House Furnishinqs.
S. J. Carroll, 481 Logan'st.
WINES AND LIQUORS.
Richard & Co., 365 Main st. phone 133
Bellveau & Co., cor. MainandLogan sts
phone 230
ST. BONIFACE
BUTCHER.
J. Turrenne, Ave Tache
DRY GOODS.
J. B. Leciere—Le Bazaar
GROCER.
T. Pelletier, Ave. Tache
HARDIFARE.
Guilbault & Cote, cor. Tache
Provencher. phone 604.
DRUGGIST.
Eugene Defoy.
and
Winnipe^.
Vér viljum minna fólk 4 auglýsing-
una í blödunum frá gömlu íslendinga-
dagsnefndinni, og skora á 2. Ágúst-
menn að ssekja vel fundinn á North
west Hall. Auk þess að þar verður
kosin ný nefnd til að standa fyrir há-
tíðishaldinu í ár, verða þar einnig lagð-
ir fram reikningar fyrir siðasta árs há-
tiðishald. Sækið fundinn og komið í
tfma.
Þeir stúdentarnir Rögnvaldur Pét-
ursson og J. P. Sólmundsson, er stund-
a ð hafa nám við Meadwille-háskólann í
Pennsylvania, komu hingað til bsejar-
ins fyrir síðustu helgi. Vér höfum
heyrt að Unitarasöfnuðurinn hér í bæa-
um hafi samið við hr, Rögnvald Pét-
ursson um að hann messi hér í kyrkju
safnaðarins í sumar í skólafríinu. Þeir
Rögnvaldur og Jóhann stunda báðir
nám þ*r syðra aftur næsta vetur.
Hra. Stefán Björnsson, frá Pem-
bina, sem á dögunum fór vestur i Álfta
vatnsnýlenduí landskoðunarferð, kom
hingað til bæjarins á laugardaginn var.
Hann hafði af gefnum ástæðum snúið
til baka frá Reabnrn og lagði leið sína
til Nýja íslands, og hefir skoðað þá Dý-
lendu alla. Leizt honum þar svo vel á
sig, að hann tók sér þar heimilisréttar-
land í Geysirbygð, og telur þar vera
þau fríðustu lönd til griparæktar, sem
hann hefir séð hér vestra. Stefán ræð-
ur lðndum sínum til að ná sér í góð
búlönd þar í Geysirbygð. Hann flytur
sig þangað norður í haust með fjöl-
skyldu sína og búslóð alla.
Hra. Benidikt Jónsson á Garðar P.
O. kom hingað til bæjarins í vikunni er
leið. Hann dvaldi hér fáa daga, og var
að bíða eftir 4 familiurn að sunnan. sem
ætla að flytja sig alfarnar til Win-
nipegoses. Familíufeðurnir eru: Ólaf-
ur Hall, Sigurður Stefánsson, Jóhann
Einarsson, (allir frá Garðar P. 0.) og
Jónas Brynjólfsson úr Hallson-bygð.
Hra. B. Jónsson ætlar að fara norður
til Winnipegoses með mönnum þessum
og skoða land þar vestur frá. Lítist
honum vel á sig, þá ætlar bann að
nema land, og setjast þar að í framtíð
inni. Hann kvað tíðindalaust þar syðra
nú sem stæði.
íslenzkir vesturfarar komu hingað
til bæjariná á laugardaginn var. Þeir
voru um 140 talsins. Þeir fóru frá
Rvík meðskipinu “Ceris” þann 18. Maí
voru þá 108 talsins. Var það fólk úr
Reykjavík og Borgarfirði, Garði,Leíru,
Ólafsvík og Vogum. Skipið hélt frá
Reykjavík til Austfjarða og tók fólk á
Seyðisfirði, Reyðarfirði, Eskifirði og
Fráskrúðsfirði; hélt svo í haf frá Eski-
firði 22. Maí, hafði þá als 152 ísl. vestur-
fara. Þeir iomu til Leith þann 26. og
héldu samdægurs til Liverpool og tóku
sér far, eftir viku bið, með Beaver-lín-
unni, sem flutti þá til Quebec og setti
þar á land þann 13. Júni. Ekki gat
fólk þetta farið frá íslandi sem vestur-
farar, heldur urðu þeir að fara sem
ferðamenn til Skotlands, og kostaði
ferðiu þangað frá íslandi 23 krónur.
Frá Skotlandi vildi Allan-línan hafa
106 kr. fyrir hvern fullorðinn farþegja
til Winnipeg. En B aver-línan bauð
að flytja þá fyrir 98 kr., og var það
boð þegið. Herra Daníel Sigurðsson
frá Reykjavík var túlkur til Skotlands,
en frá Liverpool höfðu vesturfarar
danskan túlk. Fólk þetta lætur mis-
jafnlega af ferðinni; þykir máltíðir hafa
verið óreglubundnar og mjólkurskortur
mikill. Vesturfarar segja að 10 kr.
hafi verið heimtaðar af hverjum fjöl-
skylduföður fram yfir fargjald þeirra,
er höfðu börn innan 2 ára, og hafi það
átt að vera fyrir mjólk. En svo hafi
þeir orðið að borga dósa-mjólk þá er á
skipinu var fullu verði á leiðinni, og
telja því 10 kr kröfu línunnar beina
svikakröfu, og vilja fá þá peninga end-
urgoldna frá línunni.
Vesturfarar segja allgóða tíð heima
en fiskilítið mjög. Eignir fólks seldust
illa og kenna þeir peningaeklu í land
inu um það. Vesturfarahugur mikill
er í fólki á íslandi. Peningaskortur er
það eina, sem nú hindrar stórkostlegan
útflutningsstraum af mannvænlegu
fólki, með því að útlitið með framtíð
sve tabænda er all-ískyggilegt um þess
ar mundir. Af fólki því sem kom að
heiman, voru lausir kailmenn tiltölu-
lega lang-fjölmennastir—30 alls, en
aðeins 8 eða 9 ógiftir kvenmenn. Tvær
fjölskyldur fóru til New York, og um 8
manns til Norður Dakota. Hinir fluttu
til œttingja og vina hér í fylkinu.
Með vesturförum var einn islenzk-
ur ferðamaður, Jakob búfræðiskennari
frá Hóiaskóla. Er hann á skemtiferð
hér í landi til að kynna sér ástandið
hór og líðan landa vorra í nýlendunum.
Sagt er að hann ætli vestur að hafi og
síðan til baka til Parisar, að sjá sýning-
una og svo til Islands í haust. Þetta
er hraustlega gert af sveitamanni á Is-
landi, enda er maðurinn efnilegur að út
liti, yfir 6 fet á hæð og þrekinn að sama
skapi. — Þorsteinn Ólafsson bóndi frá
Meiðastöðum í Garði var og í þessum
hóp; var hann talinn með betri bænd-
um þar syðra og talin eftirsjá að hon-
um. Yfirleitt eru vesturfarar þessir
mannvænlegt fólk og líklegt til að kom-
ast vel af hér vestra.
Prófskrá
yfir íslendinga á skólunum hér í
Winnipeg .vorið 1900.
Ingvar Búason útskrifaðist af Ma-
nitoba-háskólRnum í heimspeki;
Brandur J. Brandsson útskrifaðist
af læknaskólanum. og var einn með
öðrum tveimur nemendum, sem hlotn-
aöist sá heiður að verða C. M. (Master
in Surgery),
Þorvaldur Þorvaldsson, Árnes P.
O., og Gísli Gíslason stóðust próf í
“Previous”. Þorvaldur fékk önnur
verðlaun 890 (í latinu, stærðafræði og
efnafræði.
Stefán Guttormsson, Hnausa P.O.,
Gunnlaugur Snædal og Marino Hann-
esson (hinir tveir síðasttöldu til heimil-
is í IFinnipeg) stóðust p óf í ‘‘Senior
Premiminary”; Stefán fékk fyrstu verð-
laun. 880 (í latínu og stærðfræði).
Marino fékk fjórðu verðlaun, 825 (í
þýzku og frönsku).
Þessir stóðust jrófí “Junior Pre-
liminary”: Mary Anderson, Winnipeg,
Hannes Pétursson, North Dakota,
Oliver Olson, Winnipeg.
Gefins.
Sent beiut til ykkar gjafir til kunu-
ingja og vina. Sendið81,$2, 85 og 810
fyrir pöntun af Te og kaffi, Cocoas, pip-
ar, mustard o. fl. Vér gefum sílfur-
könnur, Silver Cake Basket&c. Karl-
manna og kvenna gullúr,; ábyrgst að
sé bezta tegund og með lægsta verði.
Vörur sendar strax og pantanir koma
til okkar. Sérstakt athygli gefið pönt-
unum með póeti. Skrifið eftir lista og
látið fylgja stamp fyrir lista. Okkur
vantar agenta alstaðar.
Great Pacifac Tea Co.
1464 St. Catherine St.,
Montreal, Que.
Sunnudagsskóla “pic-nic” Tjald-
búðarsafnaðar í Winnipeg, verður hald-
ið í Elm Park fimtudaginn 28. þ. m.
Sunnudagsskólabörnin syngja og yerða
látin hafa ýmsa leiki. Séra Rúnólfur
Marteinsson heldur ræðu, Öll börn
sem tilheyra sunnudagsskólanum hafa
auðvitað frían aðgang, en aðgangur
fyrir aðra kostar 15c. Aðgöugumiðar
fást hjá sunnudagsskólakennurunum.
Fundarboð.
Almennur fundur verður hald-
inn á North West Hall, Cor. Ross
Ave. & Isabel St., á mánudagskvöld-
ið 25. þ. m., kl. 8 e. h., til að kjósa
nefnd er standi fyrir íslendingadags-
hátíðinni í Winnipeg 2. Ágúst næst-
komandi. Fjölmennið á fundinn.
í umboði nefndarinnar
sem kosin var í fyrra.
Einar Ólafsson.
Winnipeg 12. Júní 1900.
Tapast hafa
á milli Gimli Og Winnipeg 2 hross, ann-
að brún hryssa, um 11 vetra gömul, en
hitt hestur, mógrár að lit, með hvíta
stjörnu í enninu og hvítsokkóttur á aft-
urfótum, um 13 vetra gamall.-
Finnandi fær sanngjörn fundarlaun
hjá
JOHN K. KNAUS,
Selkirk, Man.
TIL SÖLU
er nýtt. yandað og fallegt hús, með
nýjasta sniði og útbúnaði, í suðvestur
hluta bæjarins. Kaupandi getur flutt
í það hvenær sem vill. Skilmálar góðir.
Listhafendnr snúi sér til:
Kr. Áso. Benediktsson.
350 Toronto St.
Kostar ekki cent.
Kvenna eða karlmanna fílabeins-
skeftur vasahnifur; karla eða kvenna
Ijómandi fallegt "Locket’, og fjöldi
annara ágætra muna. sem vér ekki get-
um talið hér upp, verða gefnir burtu
með hverri 1 dollars pöntun af okkar á-
gæta kaffi “Baking Powder”, engi-
fer eða Sukkulade etc. Betri og meiri
verðlann verða gefin með stærri pöntun
um, frá 82, 83, 84 eða 85. Reynið eina
pöntun, með pósti. Það verður ekki
sú síðasta.
Great Pacific Tea Co.
1464 St. Catherine St.
Montreal, Que.
Islands-fréttir.
Niðurlag frá 1. bls.
Noregskonunga sögur (“Heims-
kringla”) Snorra Sturlusonar hafa
Norðmenn gefið út i tveimur skrautleg
um útgáfum; önnur er ódýrri handa al-
menningi, og voru að henni 10,000 á-
skrifendur. Samt hefir nú verið rætt
um það á þinginu, að veita útgefendun-
um 20,000 kr. styrk úr ríkissjóði til að
gefa út nýja alþýðuútgáfu af þessum
sögum, sem Norðmenn eigua sér að öllu
leyti (kalla “sitt fræga ritverk”), þó ís-
lendingar hafi ritað þær. Hér á Iandi
ganga ísleudingasögurnarekki út, þótt
þær séu seldar gjafverði, og hér gera
kennar og blöð þeirra sitt til að vekja
hjá mönnum ýmigust á sögunnm (sbr.
ritgerðí “Kennarablaðinu”) og spilla
fyrir þeim að öllu leyti (sbr. útgáfu
þeirra Pálma af söguþáttunum, sem
virðist vera gerð í þeim tilgangi.
Dánir í Reykjavík: 9. Apríl Sigríð-
ur Ólafsdóttir frá Bryðjuholti í Hruna-
mannahreppi á Laugarnesspítala (63).
— 16. Apríl Þorgeir Sigurðsson frá
Mýrum í Villingaholtshreppi, á Lauga-
nesspítala (67). — 19. Apríl Ingvar Guð
mundsson, vinnumaður á Grímsstaða-
holti, drukknaði af fiskiskipinu “Guð
rúnu Blöndal” náiægt Vestmannaeyj-
um (17). — 22. Apríl Bjarni Kristjáns-
son, ókvæntur, í nr 6 í Suðurgötu (27).
—S. d. Gísli Jónsson, ókv., frá Bakka-
koti í Áshreppi, á Lauganesspitala (55).
8. Maí.
Nýtt ráðaneyti er nú loks komið á
laggirnar í Danmörku, en ekki þurfa
menn að búast við að nokkur breyting
verði fyrir það á stjórnarfa:inu, og að
líkindum verður það ekki langlíft, því
naumast getur það stjórnarástand stað
ið enn lengi, sem nú er i Danmörku
Þessir eru nú í ráðnneytinu:
Forsætisráðherra: Sehested.
Dómsmálaráðherra og ráðgjafi fyrir ís-
land: Goos.
Hermálaráðherra: Middelboe.
Kyrkju- og kenslumálaráðherra: Bjerre
Fjármálaráðherra: Scharling.
Veittar sýslanir. PÓ3tafgreiðslu-
menn í Reykjavík eru þeir orðnir kand.
fil. Þorleifur Jónsson og kand. fil.
Vilhjálmur Jónsson.
Dáinn er 17. Febr. f vetur að Gunn
arsstöðum í Hörðudal Kristján Kristj-
ánson fyrrum ráðsmaður í Hítardal hjá
sr. Þ. Hjálmarsen. Hinn mikilhæf-
asti maður og stórmerkur vegna hæfi-
leika og höfðingsskapar. Fæddur 1818;
jarðaður í Snóksdal.
Aflahrögð. í gær reri einn maður
héðan úr bænum (Ólafur á Bygðar-
enda) til Sviðs og fékk góðan afla af
smáfiski, stútungi og þorski (80 í hlut).
Tíðarfar. Síðustu daga inndælasta
vorveður.
Frá Ameríku komu fáeinir íslend-
ingar með síðustu skipum; sumir að
sögn alkomnir.
Skarlatssóttin er nú að sögn korain
upp hér í bænum í húsi héraðslæknis
Guðmundar Björnssonar; lögzt í henni
vinnukona, þar og greinileg einkenni
sýkinnar komin fram. Gert ráð fyrir
að einangra sjúklinginn.
15, Maí.
Aflabrögð. Nú síðast mun hafa
verið kominn nægur fiskur hér á Inn-
mið, og höfðu þeir fáu sem reynd . afl-
vel, en jafnframt hefir hópur af bota-
vörpuskipum, 6, eða fleiri verið hér inn
á Sviðsbrún síðustu dægur og gersópað
aflanum svo burtu, að þeir sem rern
héðan í nótt, urðu alls ekki varir við
fisk. Má því telja vist, að úti sé um
þá bjargarvon fyrir menn hér í bænum
og nærsveitunnm. — Aflalaust á Aust-
fjörðum,
Bezta vorveður þessa dagana.
Prestkosuing í Saurbæ á Hvalfjarð-
arströnd 8. þ. m., séra EinarThorlacius
í Fellsmúla með 38 atkv.
Landsbankinn. Nýr aðstoðarmað-
ur við bankann með 1500 kr. árslaunum
er skipaður Helgi Jónsson verzlunar-
stjóri í Borgarnesi. Alls sóttu 27
manns um þessa sýslan.
Influenzan hefir nú gengið á Aust-
fjörðum; hefir talsvert af gömlu fólki
dáið úr henni.
Dáinn er bænda öldungurinu Ólaf-
ur Þormóðsson í Hjálmholti, nálægt
sjötugu. Hann bjó lengi stórbúi, að
því er hér má kalla, og ber Hjálmholt
hans miklar menjar, Var hann bæði
virtur og elskaður af öllum er nann
þektu. Nú var hann hættur búskap-
Mikil eftirsjá að honum.
Dáinn 4, f. m. Eyjólfur Þorsteins-
son, fyrv, bóndi á Stuðlum í Reyðar-
firði, heppinn læknir ogað mörgu leyti
merkur maður. Hann dó úr Influenzu
að Berufirði hjá séra Benedikt syni
sinum.
Ur taugaveikinni er dáin á ísafirði
Ólöf Þorvaldsdóttir prófasts Jónssonar,
mjög efnileg gtúlka, tæplega tvítug.
Hús til sölu,
Mjög vandað og rúmgott, sunnar-
lega í bænum, fæst fyrir mjög lágt verð
Ritstjóri vísar á.