Heimskringla - 16.08.1900, Síða 1
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
/ nn fififi Flugur op “Mosqu- Z
/ UU§UUU itos” fangaöarhér á +
hverjum degi. Fáiö yöur huröir ♦
^g giugga úr vírneti. Viöhöfum ♦
þaö á ýmsu veröi og meö allskon- ^
ar litum, ♦
Trading Stamps. Cash Couj>ons.
ANDERSON & THOflAS,
J ARNVOBUSAIiAK 538 MaIN St.
♦
♦
u
ims
^♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦^!
Hammocks. ,Kkker'pægl' :
► legra 1 hitunum
• en aö hviia sig 1 ,‘JtíLaLumoclí.,,
Keyniö paö einu sinni. Vér höf-
' um þa á mismunandi veröi.
► Trading títamps. Cash Coupons
ANDERSON & THOMAS,
J ARNVÖRUSALAR
538 ‘Main ÖT.
♦
♦
♦
♦
XIV. ÁR
WTNNIPEGr, MANITOBA 16. ÁGtJST 1900.
Nr 45.
Frjettir.
Markverðustu viðburðir
hvaðanæfa.
Nú er sagt að gamla Kruger sé
orðið ant um að friður verði saminn
semallra fyrst, og kvíði hvorki skil-
málum þeim sem Bretar setji Búum, né
vistarveru þeirri sem honum verður
valin. 5. þ, m. stóð, yflr stór orusta
með Bretum og Búum við Elandsána.
Þeir Carriugton og Hamilton herfor-
ingjar Breta voru þar með urmul af
liði, en þurftu þó að fá hjálparlið frá
Bustenburg. Um mannfali og enda-
lykt þessa bardaga er enn þá ófrétt.
í Hamborg á Þjóðverjalandi dó
maður á skipi þar á höfninni úr plág-
unni svörtu (c:svartadauða), og hefir
ótta miklum slegið yfir Hamborgarbúa
um útbreiðslu veikinnar,
Sú fregn kemurídag(7. Ágúst) að
nokkrir liðsmenn úr ríðandi varðxiðinu,
sem er í Suður-Afriku, frá Canada,
hafi gert sig seka í svikum þeim að selja
Búum vopn ' og fieira. Við rannsókn í
þessu máli eru 2 fundnir sekir, af þeim
sem búið er að rannsaka. Þeir eru
dæmdir í tíu ára fangavinnu, hina
hörðustu.
Canada hefir unnið fyrstu verðlaun
á Parísarsýningunni fyrir ost, smjör og
egg, geymt í kæluklefum. Eyrirkomu-
lagið sein Canadamenn hafa á kælu-
klefum og allur útbúnaður þar aö lút-
anki vekur mjög mikla eftirtöku á með-
al verzlunarstéttarinnar á sýningunni,,
og er ekki óliklegt að verði til að auka
eftirspurn á þeim vörum sem tíuttar
eru út úr Canada í kælakiefum.
Utanríkisráðgjafinn i Belgíu fékk
svolátandi skeyti frá sendiherra Belgíu
í Pekírf 7. þ. m. “Oss auðnaðist að
að verja bústað vorn frá 4, Júni til þess
16, með hjálp 8 hraustra Austurríkis
manna, en þá varð oss þao ómögulegt
lengur. Bústaðir austuriska, hollenzka
og ítalska sendiherranna voru líka
brendir, oc nú er fransaa sendiherra-
höllin í ösku. Allir útlendir sendiherrar
hafa hafst við síðan hjá brezka sendi-
lierranum, og haf Kínverjar setið um
þann bústað síðan 29. Júní. Frá þeim
tíma og þar til nú hafa fallið 58 sjóliðs-
menn, en 70 verið særðir. Vistir eru
nær því þrotnar. Vér vonum að verða
leystir úr þessu umsáti í næstu viku.
Öllum Belgíumönnum sem hér eru líður
heldur vel-
í Cornwall, Out., gekkstórviðri yf-
ir nokkurn hluta bæjarins að kvöldi 6.
þ, m. Var það afi meira veð„r en elztu
menn þykjast muna eftir. Bylti stór-
viðri þetta um hlöðum og fjósum og fl.
Nokkur af bóndabýlum noröaa við bæ-
inn gereyðilögðust. og óútreiknanlegur
skaði varð á aldingörðum. Ennfremur
tók veðrið áhorfendapallinn f sýningar-
garðinum upp og flutti hann nokkuð til,
skekti hann og braut, og svifti þökum
af gripahýsum þar í garðinum. Grand
Trunkbrautarstöðvarnar og vagntiytjan
(round house) eyðilögðust algerlega. Á
sumum strætum bi’aut ofviðrið vfrstoð-
ir við rætur og láu vírvjðjurnar í fiækj-
um þvers og langseftir þeim. Surastað-
ar féllu íbúðarhús eða löskuðust,en ekki
vita menn til að manntjón hafi hlotist
af veðrinu/
Saga um grimdarverk Rússa í
Kínaveldi, gagnvart konum og börn-
um. berst nú út um heiminn og er höfð
eftir frú E B. Drew, sein er kona
brezka t.ollheimtumannsins í Tientsin.
Hún segir svo frá:
Á meðan á skothríðinni stóð í Tien
Tsin, þá höfðumst við við f kjallaran-
um í húsunum okkar. Hús mitt var
stórskemt af spreugikúlu. Ekki var að
tala um svefn mestaf tímanum, og ekki
höfðum við nema sáralitla matarlist.
Sí og æ stóð sá ótti og skelfitig oss fyrir
öllum þrifum að Kínverjar biðu hæira
hlut, og slátruðu síðan hver jum og ein
um éinasta útlendíng og trúskiftingi.
Sumar ef ekki allar konur voru ákveðn
ar að taka sig af lífi, ef svo færi að Kíb-
verjar yrðu ofan á og biytist inn til
þeirra. En það lítur svo út sem sbmir
sambandsliJar, hafi haft i hyggju og
framkvæmd alveg hið sama, og við ótt-
uðumst að Kínar mundu gera, og eru
Bússar aðallega grunaðlr þar um. Eg
vissi ekki um illvirkin þó þau væru
framin, en ég veit það nú, að 10 til 20
liðsmenn höfðu verið sérstaklega kjörn
ir til að taka af lífi alt erlent kvennfólk,
en sein betur fór koni ekki til þess, þar
Kínverjar unnu ekki sigur.
Mr. Conger, sendiherra Banda-
Manna í Pekín í Kína, sem sagður var
að hafa verið drepinn fyrir nokkrum
vikum, er enn á lífi. Bandrríkjastjbrn
fékk vitneskju um þetta fyrir nohkrum
tíma og hefir siðán verið í stöðugum
hraðskeytaviðskiftum við Kíua stjórn
og stranglega heimtað að Cqpger væri
leyft að senda fréttir til Bandaríkjanna,
en Kínar hafa þrjóskast við þessa kröfu
þar til í síðustu viku að Bandamenn
heimtuðu skilyrðislausa fullnæging
kröfu sinnar, var þá Conger loksins
leyft að senda hraðskeyti og er það
svona: “Vér erum enn þá umkringdir,
og ástand vort er hið hættulegasta.
Kínastjórn heimtar að vér förum burt
úr Pekín. En hað þýðir bráðan bana.
Ritíilkúluai rignir yOr oss dagleca frá
stjérnarhermönnunum. Vér höfum nóg
hugrekki en oflítið af skotfæruin og
matvælum. 2 ráðherrar með umbóta
hugsjónum i.afa verið hálshöggnir.
Öllum þeim sem tilheyrasendiherrasveit
Bandaríkjanna líður vel á þessari
stundu”.
Sagt er að gamli Li-Hung-Chang
sé að reyna að ryðjast til valda í Kína
með tilhjálp nokkurru framsóknar-
samra stjórnmálamanna, svo er ráðid að
Li skuli verðu keisari en stuðningmenn
hans í þessu máli eigaaðfá feit embætti
strax og karl hefir krækt i völdin.
“Lapies Home Journal” í New
York, er eitt með beztu mánaðarritum
þessa lands. Frágangur allur ágætur,
góðar sögur og skýrar myndir af ýmsu
tagi. Félagið sem stendur fyrir útgáfu
blaðsins hefir nýlega bygt sér vandað 7.
loftað hús, gólfrúm hússins er 17,000
ferliyrningsfet. 45 prentpressur eru f
byggingunni og hafa þær allar nóg að
gera. Þai} er sagt að “Ladies’ Home
Journal” félagið hafi stærstu og um-
fangsmestu prentstofu í heimi. Bhiðið
kostar 81.00 um árið.
Samsæri á að hafa verið gert til að
taka Roberts lávarð höndum og flytja
hann yfir til Bú», en drepa nokkra af
herforingjum hans. Tilverkaður þessi
komst upp áðnr en samsærismeun gátu
nokkuð aðhafst. Talið er víst að sam-
særi þetta sé í sambandi við samræris-
tilraunina sem gera átti í Jóhannesar-
borg á deginum, sem sé sprengja lávarð-
inn og lið lians í loft upp. Vinkona
eins samsærismannsins sagði brezkum
liðsforingja frá því sem til stóð, og
voru því samsærisliðar teknir í tíma.
Þetta síðara samsæri var uppgötvað
rétt áðua en átti að fremja það. Ekki
er getið kvenmælgi i sambandi við þá
uppljóstran enn. Samsærismenn voru
15 að tölu sem náðust, og bíða þeir
refsidóms síns í svartholi. Þeir voru
komuir svo laugt að þeir voru búnir að
fá hesta handa lávarðinum og fylgilið,
til næstu herstöðva Búa. Fyrirliði
þessa samsæris er sagt að sé nafnkendr,
en nafni hans er haldið leyndu enn þá
fyrir blaðamönuum. Aftur segja sum-
ir að þessar samsSris- og fjörráðasögur
séu búnar til af fjandmönnum Búanna
til að ryðja úr vegi ýmsum mönnum á
þenua hátt, sem örðugir ei u viðfangs á
annan hátt.
Sambandsliðar hertóku 6. þ. m.
bæinn Yaug Tsum, en biðu mikið
mannfall. Eftir 4 kl.tíma harða orustu
hrukku Kínverjar úr varnarstöðvunum
Sama dag áttu Japar skæða orustu
framundan Hsiku, við Kínverja. Kín-
verjar voru margfalt. mannfleiri. Eftir
harða sókn urðu Japar frá að hverfa,
en höfðu þó náð200hestum að herfangi.
Yang Tsum er allmikill bær, hann er
um 20 mílur í norður frá Tien Tsin
Hann er nú alveg á valdi sambandliða,
eftii hraðskeyta sögn.
Níunda þessa mán. náðu Rússar
New Chwang hervirkinu. Allstórt
hverfi þar í kring, er Kínverjar bjuggu
eingöngu i, var brent til ösku. Þessi
hervígjataka er skoðuð að hafa mjög
mikla þýðingu fyrir Rússa, einkum að
því leyti sem viðvikur hermanna.flutn*
ingi og liergagna frá Port Arthur áleiðis
til Pekín. '
Sagt er að sambandsliðar í Tien
Tsin háfi 15 þ. m. um 50,000 hermenn
og þá hefji þeir leiðangurinn fyrír al
vöru til Pekín.
Sú fregn hefir komið frá Rómaborg
að heilmikið uppþot hafi orðið viö jarð
arför Humberts konungs. Skríllinn fór
í riðlum geguuin hermanuafylkingar, og
mælt er að fjöldi af börnum og konum
hafi troðist úndir. Sextiu meiddir og
særðir voru fluttir á sjóltrhúsin. Jafn
vel konunguriim sjálfur, Victor Eman
úel, og öll stórmenni umhverfis hann,
eiga að hafa dregið sverð sín úr sliðrum
við þetta tækifæri, svo ófriðlega var
látið.
Borgarstjórancm í Ottawa var
hent út úr vagni 9. þ. m. og meiddist
hann allmikið hnénu.
Baron Russell, einn af frægustu
lögfræðingum heim.-,ins. og háyfirdóm-
ari á Englandi, andaðist í Lundúnum
þann 10. þ, m., annar sopur hans er nú
í hernaði í Suður-Afríku, en hinn, Sir
Charles Russell, erí Canada
Marja Elstone. 74 ára göraul, frá
Woodstock, Ont., hefir höfðað mál fyrir
heitorðsrof móti ríkum bónda, George
King, 80 ára gö.mlum. Karlinn hafði í
ofsahita ástarinnar lofað að eiga þessa
74 ára gömla ungfrú, en sá sig um
liönd á síðasta augnabliki og er nú lög-
sóttur fyrir skaðabótum.
D. A. Adams í Brandon, hefir verið
tekinn fastur, kærður um að hafa gert
tilraun til að myrða föður sinn. Ad-
ams er 24 ára gamallog hæfileikamaður.
Social Demókratar í Bandaríkjum'
hafa útnefnt Engene V. Debs fyrjr for-
setaefni og Robt. Harrison til varafor-
sota, þeir hafa báðir tekið útnefningu
flokksins, Debs er foringi verkamanna
i Bandaríkjunum.
Kína stjó/rn hefir falið gamla Li-
Hung-Lhang að semja um frið við stór-
veldin, Stjórninni er illa við að herlið
stórveldanna fari til Pekin, og langar
því til að komast að friðarsamningum
áður en alt er um seinann.
Smiðir í Vancuverhafa veriðbeðnir
að senda ensku stjórninni áætiun um
kostnað á byggingu 1500 húsum til
nota fyrir brezku hermennina í Kína.
Þessi hús eiga að byggjast í pörtum svo
að þau séu þægileg flutnings á sjó og
landi. Bretum þykja tjöld óheppileg
til íbúðar fyrir hermenu sína þar, af
því að bæði hitar og regn fara gegnum
þaú. Hey og matarbyrgðir hafa einnig
verið pantaðar hjá mönnum í British
Columbia til flutnings til Kína.
Einn Kristniboði komst frá Kína á
þann hátt að 'hann lét flytja sig 400
mílur til sjávar í líkkistu. Kínar bera
mikla virðingu fyrir þeim dauðu og
skoðuðu því ekki nákvæmlega í kist-
una.
9 manna dóu og 30 veiktust af hita
í Chicago borg á fimtudaginn var, þá
var hitinn 90 gr. í skugga, í Manitoba
hefir hitinn stígið alt að 100 gr. í
skugga einstöku sinnum, en engum
virðist verða meint við það. Það gerir
ir hið hreina og þurra loftslag hér í
Manitoba.
Kona nokkur í Chicago var kærð
um flæking og iðjuleysi, en við þvi ligg-
ur fangelsishegning. Ein löglærð kona
þnr í borginni tók að áér að veija kon-
una og tókst það svo vel aðhin ákærða
var sýknuð. Lögkonan sýndi frarn á
að konan væri ekki sköpuð til að vinna
og að hún hefði þvi fullan rétt til þess
að vera iðjulaus. Þess vegna gætu lög-
iu mót iðjuleysi ekki átt við konur.
Kviðdómurinn félst á þet.ta og kouau
var látin laus.
Liberalar í Lisgarkjördæðinu héldu
útnefningarfund í Mantou á fímtudag-
in var og kusu hra V. Winkler til þess
að sækja um ríkisþingsætiðfyrirLisgar.
Liberalar eru orðnir leiðir á hpa. Rich-
ardson, þykir hann ekki veranógu leiði-
tamur við Laurier. Trúlegt þykir að
Richardson sæki aftur sem óháður
þingmaður. og er talið vist að hann fái
mikið fylki í kjördænpnu.
Samuel Brenner, í Montreal, er
strokinn, hann hafði gert það að at-
vinnu, ásamt öðru. að vera féhirðir
fyrir marga Rússneska Gyðinaa. Sum-
ir þeirra áttu.peninga á vöxtu hjá hon-
um og margir nöfðu fengið honum stór
summur af peningum til að senda til
ættingja sinna í Rússlandi. Það er
talið vist að Brenner hafi flúið með
alla þessa peninga.
. Stjóinin í Japan hefir bannað út-
flutning þegna sinna til Cauada, frá
byrjun þessa mánaðar.
Ákaflegir hitar hafa gengið í Tor-
onto um uokkurn undanfarinn tíma. í
síðtistu viku voru dauðsföllin þar milli
20 oy 30 manna á dag að jafnaði. Moiri
partur þeirra er dóu voru börn á fyrsta
ári. Á miðvikudaginn i síðustu viku
dóu 14 börn úr hitaveiki. Af þeim
fullorðuu sem dóu Samadag, voru 6 yfir
7^ ára að aklri. Þeir sem unuu í járn-
steypuverkstæðum urðu að hætta
vinnu vegna hitans. Á einu verkstæði
hættu 300 manna, þá var hitinn 98 gr.
í skugga, auk hitans af járnbræðsluofn-
unum. UmlOOOmanna hafa orðið að
hætta vinnu þar í borginni þar til
kólnar i veðrinu.
Það er sagt að almennar alþingis
kosningar eigi að fara fram á Englandi
haust, og að Suður-Afriku stríðið
verði áðalvopuið sem beitt verði þá
gegn stjórninni. Fólkinu á Englandi
er farið að leiðast þófiö þár syðra, og
þykir stjórnin seinlát að binda enda á
ófriðiuu, og hefir stjórnin tilkynt 3 her-
deildum að vera • viðbúnum að leggja
þangnð suður í næstu viku.
Frétt hetír komið um það að Búar
hafi tiáð 300 brezkum hermönnum með
miklum vopnum og visturn. Á hinn
bóginn náði herforingi Hunter 4140 Bú-
um, 4000 hestum, 3 fallbyssum og 16
vögnum hlöðnun með skotfærum og
öðrum hergögnum.
3 þrætumál milli Canadaríkis á
aðra hlið og Quebec og Ontario á hina,
hafa verið útkljáð með gerðardómi, og
hefir rikisstjórnín unnið þau öll, en
Ontaria- fylki tapað við það $2,034,688?
Fyrsta málið er út af kröfu sem ríkis-
stjórnin gerði á hendur Qvebecfylkí,
útaf kosnaði við liina svo nefndu Ojib-
way Indíána, þar vann ríkisstjórnin
$375,000. Annað málið er útaf reikn-
ingsfærslu milli Quebec ag Ontario á
aðr hlið en ríkisstjórnarinnar á hina,
bókhaldið var ekki eins hjá báðum
málspörtum, og ríkisstjórnin taldi sig
illa afskifta, henni voru dæindir $212,-
904. 3. málið er út af ókláruðum reikn-
iogum milli Outario og Ottawa stjórn-
aiina. Þar var Ontario dæmt til að
borga $1,815.848. Það er búist við að
fylkin sætti sig við þenna gerðardóm.
A laugardaginn var steig hitinn í
Philadelpli a hærra en venja er til, og
langtum hærr en nokkru sinni áður í
sumar. Kl. 3. e. m. varð hitinn 100 gr.
á stjórnarmælisinn, sem er á póshúsinu
og aðallega er farið eftir með töttur um
hita og kulda. Hitinn hafði alflrei
stigið nærri svona hátt, nema 7. Seft.
1881, þá segja veðurskýrslnr stjórnar
innar, að hitinn hafi verið 101J, og sé
það eindæmi. Vikan sem var sé hfit
asta vika að jafuaði sem þekzt hefir í
Philadelphia, enda var þar ákaflega
kranksamt og dauðsföll mörg. Veður-
fræðingurinn segir að lítil eða engiu
linun verði þará hitura, næstu viku.
Hraðskeyti frá Roberts lávarJi
segja að Búar séu að hopa undan liði
þeirra Kicheners og Methuens.
Þrárt fyrir það þótt De Wett eigi
að vera innikreftur í herkvíum og Búar
hvervetna að hopa fyrir Bretum og gef-
ast upp, kemur sú fregn frá Afríku, að
staðurinn' Mafeking, sem lengi var i
umsátri í vetur, muni verarétt um það
að lenda í umsátri aftur. Merkasti
maður Breta í Mafeking nú, er lávarðnr
Eward Cecil. Er mælt að liann búist
um hið bezta sem föug eru á að mæta
uuisátrinu.
Hraðskeyti frá Cape Town og Lor-
eúzo Marques 12, þ. m., $egir að gamli
Kruger og Reitz (ríkisritari) hafi svarað
fregnrita, sem fann þá í -M ackadocTrop.
og inti þá eftir hvort stríðið væri ekki
þá og þegar búið, á þá leið: að þeir hefðu
ekki hina ininstu hugmynd um það, að
ófriðurinn væri nokkuð nær enda nú
heldur en áður. Sögðu með fullura orð
um að stríðið stæði enn þá um nokkra
mánuði ef Bretar vildu ekki hætta.
Um helgina er leið voru fröusk her-
skip við heræfingar, við Cape St. Vin
cent. Af klaufaskap rakst Brennus
fyrsturaðar herskip, á hersnekkju er
hét Framee, og sökk hún þegar, án þess
að hægt væri að hjálpa henni. Fjórir
liðsforingjar og 58 liðsmann var náð af
sundi. en getið er til að um 50 liðsmenn
hafi farist. þa .
Fjarska hiti var í New York
laugardaginn var, og viðar í Banda-
rikjnnum. Talið er að 33 menn hafi
dáið af þessum hita ’ New York og né-
gienninu. Skepnur duttu í tugavís
niður, svo sem hestar, og margt af
þeim drápust. Svona fréttir um ofsa
hita op manndauða koma víða frá stærri
bæjnm í Bandar.
Níunda þ. m. kom hræðileg dánar-
skýrsla frá hershöfðiugja McArthur á
Filipseyjum, til Washington. Skýrsl-
segir að 52 dauðsföll hafi verið á tíma-
bilinu frá25. Júli til 2. Ágústs, og 4,836
hafi sýkst, 3 755 séu á sjúkrahúsinn, en
1.081 i sóttverði.
The Home Life Association
of Canada.
Aðalskrifstofa í Toronto.
'Höfnðstóll—ein millíón dollars."
I tll trygging í höndum sambnndsstjórnariunar.
Lífsábyrgðarskýrteiui Home Life félagsins gilda hvar í heimi sem er. Eng-
in höft eru lögð á skírteinishafa hv»ð snertir ferðalög. bústað eða atvinnu. Þau
eru ömótmælanleg eftir eit.t ár frá dagsetningu.
Skírteiuin hafa ÁBYRGST VERÐGILDI í uppborgaðri lífsábyrgð, pen-
ingura og lánsgildi, eftir þrjú ár.
Leitið upplýsinga um félagið og ábyrgðarfyrirkomulag þess hjá
W. H. WHÍTE, ARNI EQQERTSSON,
MANAGBR.
iflclntyre Kloi'k,
Winiiipejj. P,
GENERAL AGENT.
O Boxl!845.
PENINGAR LANADIR. - H.c„
Ver erum umboðsmenn fyrir hið bezta og ríkasta lánfélag
sem bækistöðu hefir í Winnípeg.
VILTU EIQNÁST -LagJeKt OK vel vandað einloftað hús
(Cottage) a Alexander Avenue ? Þaö er úr timbri, á
steÍDgrunni og kostar $1200.
TAKID VATRYGGING— , ..Tœ Pll01„,„ „ london".
Það er hið elzta og bezta vátryggingafélag í heimi.
Nares, Robinson & Black,
Bank of Haniilton Cliambefs.
«
33 dóu úr blóðsóts, 8 fyrir eitrað
loft, 4 úr hitasóct. 8 úr bólu, 3 úr niður-
gangi, 2 druknuðu, 2 úr sárum, 1 úr
hjartveiki, 1 úr lungnabólgu, 1 úr
slagi,'l úr Pericarditis og 2 hermenn
voru skotnir, sera ætluðu að otrjúka úr
liðinu.
Þessi dánarskýrsla sýnir ljóslega
því herforingi MacAathar stóð fast á
móti þeirri fyrirætlan að flutt yrði
meira af liði frá Filipineyjunr til Kína.
jNú er rigninga tíminn uin það að
vern, hálfnað ir, Sé tekið meira af liði
frá herforingja iiacArthur þá er ómögu-
legt að hann geti haldið eyjunum.
Hraðskeyti frá Moscow til London
segir að afþýðan á Rússlandi sé mjög
gröm við Kínverjá, og að Rússa stjórn
sé að hugsa um að senda 400 þúsundir
hermanna til Kína til þess að lernja á
Kínum, Rússar telja vist að hagsmun-
um sínum sé því að eins borgið í Kína,
að þeir láti þar ötíuglega til síu taka og
kúgi Kína stjórn meðhervaldi til viður-
kenningar um vald sitt og annara Ev-
rópu þjóða. Hugmyndin er að skjóta
Kínum svo skelk í bringu að þeir þori
ekki í marga mansaldra að andæfa eða
amast við kristnuiu Evrópu mönnum
þar í landi. Þýzkaland er að útbúa
til Kinaferðar í viðbót
eru farnir þangað.
Alt bendir til að stórveldin ætli að láta
kné fylgja kviði þar eystra innan skams
tíma.
5,000 hermenn
v
við þá sem þegar
verið farin á milli þessara staðá. Kaft-
einninn heitir Albers, og og siglinga-
maður mikill.
Síðustu fréttir segja að sambands'
liðar eigi ekki nema 16 milur til Pekin.
Þetta skeyti kora til Parisar 15. þ. m.
I St. iJétursborg er Jsagt, að siðustu
frettir frá Liurvitch herforingja. sem
stjórnar lússneska herunumí héraðinu
Pe-Chi-Li. að sam haudsherinn hafi að
eins hvílt sig einn dag eftir að hann
tók \ang Tsiw, og síðan hafið gönguna
áleiðis til Pekin. en hafi yfir óvegi að
fata. Og svo hafi herinn, þegar hann
var búinn gð fara llj verst. rekist Á
kínverska herdeild.
Tyrkja Soldáii hefir pantað 208hrað
skota fallbyssur og stálbrynjur (Arm
our Plate) fyrir 2 herskip. Þetta kost.
ar liann 728,000 puud sterl ng, Enn
fremur hefir soldán gefid þeim manni
öll æðstu völd í Armeníu sem taiinn
var valdur „ð manudrápunum þar fyrir
2 árum. Þvkir þetta sönuun þess «ð
soldáni hafi verið þau hryðjuverkt
þókuanleg og búast menn við að þeim
verði nú á ný haldið áfram uridir stjórn
þessa nýja valdsmans.
Anarkistar hafa látið festa upp aug-
lýsingar utu það á helztu stjórnarbygg-
ingaruur í Andverp, að þeir ætli að
helda fast við þá s'efnu síua að drepa
konunga þjóðanna. Þessir óaldarseggir
haldast helzt við í Lundúnum og Par
isarborg, en leynilögreglan er fast á
hælum þeirra. húu veit hverjir fyrir-
liðar þess felagskapar eru og hvar þeir
liafa fuudi síua, on getur að öðru leyti
ekkert att uið þá.
Breta stjórn hefir feDgið 25 million I
doll. lán i Bandaríkjunum til Þess að j
borga part af áfölluum kostnaði.
Hnefaleikararnir, Fitzsimmons og
Ruhlin, börbustí New York þann 10.
þ. m. í viðurvist 15,000 mauna, var það
hinu grinimasti bardagi og voru menn-
irnir báðir hláir marðir o. blóðugir.
Fitzsimuions vaim eftir 6 atrennur.
Eiinskipið Deutschland, sem er
eign Hatuburg-American Steamer fé-
lagsins, fór af stað frá New York 8. þ.
m. til Hainborgar eftir 5 daga 11 kl.
stunda og 45 mínútna ferð, og er það
sú lljótasta ferð. seiunokkru siuhi hefir
Minni íslands.
Eftir Magnús Markússon, flutt á
íslendingadaginn 2. Ágúst 1900 .
Héðan stefnir hugar-sjón,
hlýjun. vakin anda,
þar sem ránarfeldi, Frón,
faðmað siáum standa, >
faldað snæ, með fjöllin há,
fossa, hrauu og glóðír.
Það er aldna eyjan smá,
okkar fósturmóðir.
Látum hljómahátt í dag i
hðrpustrengi snjalla;
bindum saman bræðralag,
burt með sundruug alla.
Látum sjá að ísland enn
á hér vini trygga.
vænleg fljóð og vaska mennP
Vesturheim sem byggja.
Saman allir safnast hér:
systir, vinur. bróðir,
til að kveða kvæði þér,
kæra fóstiirmóðir;
fjalladrottning faldin snjá,
fóstrau hetju lýða,
landið sem við lifðom á,
landið bernsku tíða.
Forna, kæra fósturmold,
fræg í sögu og kvæðum,
aldrei hefur fegri fold
faldað sumarklæðum,
þó að margbreytt kulda kjör.
kreppi að þíuum högum,
lifir afl og ást og fjör
enn hjá Snælands mögum.
Ljúft er mér að minnast þín,
móðurlandið kæra.
þar sem fyrst ég mau til mfn.
“’B Þú gjörðir næra.
Fyrir gleði, fyrir tár,
fyrir alt gott heima.
fyrir liðin æsku ár
aldrei skal þér gleyma.
Þig við elskum ættarláð
alla heimsins daga.
Lifi mentuu. menning, dáð.
mál og ljóð og saga.
Brosi þinni barna fjöld
bjartur unaðs dagur.
Skíni þér um ár og öld
auðnu rödull fagur.
Héðan austur yfir sjá
ættlands hoim á strendur,
Vesturheimi víðum frá
vinarkveðju sendum.
Meðan sunna lýsir láð,
lög og stjörnusali,
signi eilif alvalds uáú
íslands fjöll og dali.