Heimskringla - 21.02.1901, Síða 4
HEIMSKRINGLA 21. FEBRÚAR 1901.
. iBMrnatÍMtl
Bakarafélagið býður $25.00 samkepnisverðlaun
eins og hér segir:
TIL MATSÖLUHÚSA - - $10.00
FJÖLSKYLDUHÚSA - - $10.00
“ “ “ 2. verðlaun - $5.00
Verðlaunin verða veitt þeim, sem senda flesta einkennismiða til fé-
lagsins. Allir miðarnir varða að vera teknir af brauðum fyrir 5. dag
Aprflmán. 1901, og sendast i pokum með nafni og áritun sendendanna,
Verðlaunin verða afhent 5 dðgum siðar. Fokarnir með einkennismiðun-
um sandist til George Blackwell, Secretay of Bakers Union. Voice OfBce,
547 Main Street,
Hvar einkennismidar fast.
Eftirtaldir menn eru þeir einu bakarar 1 borginni sem geta selt brauð
með einkennismiðum. Heimtið þau brauð frá matvðrusðlum eða keyrslu-
mönnum þeirra, sem hafa einkennismiða. og ef þeir hafa þau ekkl þá
leitiö þeirra til annara. Sýnið alvöru og yður mun veitast:—
THOS. BATTY, 124 LISGAR STREET.
W. J. JACKSON, 297 SPADINA AVE., FORT ROUGE,
W. A, KEMP, 404 ROSS AVE.
J, D. MARSHALL, COR. ISABELL & ALEXANDER.
J. T. SPIERS, COR. FONSECA & MAPLE STS.
ttt a- -i. J- BYE, President.
[Undirntað] GE0 BLACKWELL, Sec.
Winnipe'?.
Manitoba þingið verður settkl. 3 e.
h. f dag.
Hra. Þorsteinn Jónsson frá Hæli
í Húnavatnssýslu, fluttur til Canada í
sumar er leið, og á heima í Winn'peg
ná, á böggul á skrifstofu Hkr. Óskað
eftir að hann gefi Sig fram sem fyrst.
Á skrifstofu Hkr. eru komnar um
140 áskriftir fyrir bók hra. Fr. B. And
ersoB.og við höfum heyrt að ýmsir
væru að safna áskriftum út um nýlend
ur, og væri vel gert af öllum sem styðja
hra. Fr. B. Anderson í þessu verki, að
þeir létu Hkr. vita sem fyrst hversu
miklu þeir fá áorkað í því.
Heimskringla News and Publising
Co. héltárs fund sinn á mánudagin var
á skrifstofu sinni. í stjórnarnefd voru
kosnir: B. L Ba.dwinson Kr. Ásg-
Benediktsson Magnús Markusson, Th.
Pétursson, og Þorsteinn Borgfjörð.
Forseti félagsins er M. Markusson og
skrifari Kr. Ásg. Benediktsson (endur-
kosnir.). Félagið er í mun betra
ástandi nú, en það varf fyrra.
Hra. Guðmundur ísberg frá Narr-
ows ásamt konu sinni og börnum, var
hér á ferðinni suður til Mountain í N■
Ðakota. Býst hann við að dvelja þar
mán aðar tfma.
í bréfi frá hra. Jörundi Ólafssyni,
sem nú dvelur í Seattle Wash, er þess
getið í bréfi til kunninga hans f Winni
peg, að hra. Tómas Clóg sé staddur í
Seattle og sé á leið tii Klondyke, og hafi
mikið með sér af ýmsum námavélum.
Hra. Klóg hefir dvalið f 3 ár f Klondyke
og munu eiga þar töluverðar eignir.
Hann er maður duglegur og praktisk -
ur.
Eins og kunnugt er hafa fslenzku
”Hockey"—félög Vikingar og I. A. C.,
verið að keppa í vetur um "Ólafssons-
bikarinn.” Það félagið sem ynni 3
leiki af 5 átti að fá bikar þennan að
sigurlaunum. Nú hafa félögin þenn-
an vetur þreytt 3 af þessum 5 kapp-
leikjum, og báru Vikiugar hærri hluta í
þeim öllum. Vikingar hafa því bik-
arinn f ár.
Hinn síðasti kappleikur fór fram á
Mc Intyre skauta skálanum hér í bæ-
num, 14 þ. m. Var þar fjölmenni
mikið samankomið (um 500 manna að
sagt er). Máaf þvf marka að áhugi
Islendinga fyrir líkamlegum fþróttum
og leikfiuii sé en glaðvakandi. llér er
eigi rúm til að skýra frá leikunum út i
æsar. Að eins skal þess getið að Viking-
ar reyndust skildgetnir synir nafna
sinna hinna fornu, sem sást meðaí
annars á þvf hve hæglega þeim gekk að
sigra Vikingar sýndu hreysti sína
með því að vinna 4 mörk, þar sem hinir
gerðu sig ánægða með eitt mark. Að
leikslokum laust upp miklu sigurópi frá
meðhalds mönnum Vikinga, og lá við
sjálft að fagnaðar lætin mundu keyra
fram úr hófi.
James Armstrong sá sern getið var
um f þessu blaði um dagin, að hefði
verið tekin fastur fyrir peninga fölsun
í St. Botniface, var fyrir rannsóknar
rétti á mánudaginn var. Sannaðist
peninga fölsun án fyrirhafnar á hann.
Hann er 71 árs að aldri og hefir rnokkr*
um sinnum gist i fangahúsi áður, og
varfnú nýlega komin út þaðan. Máls-
aðili hans gat litla vörn fært fyrir hann
nema að hann væri gamalmenni á
grafarbarminum, sem ekki gæti lokið
fangelsis vist sinni ef hann væri dæmd-
ur fyrir töluverðan tima til að gista f
fanga húsinu- Dómarinn frestaði að
fella dóminn.
Blaðið Minneota Mascot getur þess
8. þ. m.. að Dr. Th. Thordarson og Miss
Sigurbjörg Sigurbjörnsdóttir, (dóttir
Sigurbjörns Ásbjörnssonar frá Ljóts-
stöðum f Vopnafirði, nú f Selkirk) hafi
gift sig í Minneapolis 6. þ. m. Séra B.
B. Johnson gaf þau saman. — Hkr.
óskar þessum nýgiftu hjónum allrar
hamingju og heilla.
Þeir bræðurnir Halli og Sigfús
Bjarnarsynir frá Icelandic River voru
hér á ferðinni um helgina var. Hra,
Benjamin Ein#.rson frá St Lowrence P.
O. Man. var nú líka á ferinni þessa
daga.
Á föstudaginn var gifti hra. Bened.
Rafnkelsgon og Bngfrú Sigriður Jónsd
sig hér í bænum, og héidu sfðan tafar-
laust heimleiðis vestur f Posen sveit.
Hkr. óskar þessum brúðhjónum allra
heilla og farsældar.
Séra Bjarni Þórarinsson messar i
West Selairk á sunnudagin kemur kl
11 f. h. og kl. 7 e. h.
Nýtt ísverzlunarfélag, The North-
ern Ice Co., hefir myndast hér í bæn-
um. Mr. Magnús Markússon, sem áð-
ur annaðist ísverzlun Winnipeg Ice Co.,
er verkstjóri þessa nýja félags. Mr.
Markússon < skar eftir viðskiftum ís-
lendinga fyrir hönd þessa félags a kom-
andi sumri og lofar að skifta óaðfinnan-
iega vel við þá.
Þeir sem keyptu aðgðngumiða að
leikjum Leikfél. Skuldar a mánudags-
kveldið var og gátu ekki notað þau þá
vegna húsfyllis, geta notað þá fyrir
samkomu Le.kfél. í kvöld á UnityHall.
Herra Gísli Olafson fóðursali brá
sér um síðustu helgi með konu sina og
börn, snður i Battle Creek í Minnesota.
Takið eftir.
Saltaður hvítfiskur, 3c. pd.
Grænt kaffi, gott, 9 pd. fyrir $1,00
Jamfata fyrir 50c. 22 pd. af hrísgrjónum
fyrir $1.00 Ágætar sveskjur 5c. pd.
Bezta brauð-ger lOc, pd. Allar dagleg'
ar nauðsynjar (Groceries) eru ódýrari
hjá mér en nokkurstaðar annarsstaðar
i borginni.
J. Joselevich.
301 Jarvis St.
Leikfélag Skuldar
leikur 2 gamanleiki:
Vandræði Tabithu
og
Leikfysi
á Uni ty Hall (á horni Nena cg Pacific
Str.) fimtudagskvöldið 21. þ. m.
Aðgangur 25c.
Til arðs sjúkrasjóðs stúkunnar Skuld
Ó. R. G. S.
OLI SIMONSON
MÆLIR MEÐ 8ÍNU NÝJA
Skanflinayian Hotel.
718 main Mtr.
Fæði $1.00 á dag.
Undirritaðan vantar að hafa bréfa-
skifti við stúlku, er væntanlega vildi
giftast og flytja til þessara eyja. Góð-
ur “kaiakter” frá hér málsmetandi
mönnum sendur þeim er þess óska.
Address: Gillis Goodman.
Honolulu P. O.
H. T.
Til bókavina.
Ég hefi nú loks fyrir skðmmu sið-
an fengið til sölu 2. bindi af ljóðabók
Páls Ólafssonar og vona ég að hún sé
nú komín i hendur útsölumanna minna
víðsvegar. Eg fékk bókina 3 vikum
síðar en ég bjóst við, og stafaði sá
dráttur af ófyrirsjáanlegum orsökum.
—Eg hefi auglýst bókina til sölu f
bandi, en verð nú að afturkalla það,
því útgefandinn hefir sent mér bana að
eins innhefta f kápu/en ég átti von á að
hanu sendi 100 eintök í bandi.
Útgáfa þeSsarar ljóðabókar er sér-
lega vel vönduð að öllum frágangi.
Framan við þetta bindi er góð mynd
af höfundinum ogf æfiágríp hans, sem
bróðir hans, Jón Ólafsson, hefir samið
Þetta bindi er jafnstórt hiou fyrra og
verðið hið sama. ;eða$l. Ég hefi enn
óseld nokkur eintök af 1. bindinu, og
geta þeir sem vilja eignast alt ljóðasafn
þessa þjóðkunnahöfundar. pantað bæði
bíndin hjá mér eða útsölumönnum
míuum, eu fýrsta bindið verður bráð-
um uppselt.
Það væri að bera f bakkafullan
lækinn, ef ég færi, að hæla ljóðagerð
Páls Ólafssonar. íslenzka þjóðin hefir
viðurkent það fyrirlöngu síðan. að hún
hefir sjaldan eða aldiei átt listfengara
alþýðuskáld.
Hvað ritdóraa um bókina snertir,
vitna ég til þeirra Þorsteins Erlings-
sonar, Bjarka, Einars Hjörlei fsSonar, f
ísafold, og séra Friðriks Bergmanns, í
Aidamótum, siðasta árg.
Winnipeg. 11. Febr. 1901.
MAGNÚS PETURSSON.
715 William Ave.
Winnipeg Coal Co.
BEZT AMERISKU HARD OG LIN
KOL
Aðal sölastaður:
HIQQINS OQ MAY Sts.
^TsTIlSrJNrX^EGI-.
Islenzkur
málaflutningsmaður
Thomas H. Johnson
Barrister, solicitor etc.
Room 7 Nanton Block, 430 Main Street,
Winnipeg Manitoba.
TELEPHONE 1220 - - P. O. BOX 750
Winnipeg 22 janúar 1901.
Hér med tilkynnist að hinn árlegi
fundur Manitoba smjör- og ostagerða
fél. verður halðin í bcejaráðshúsinu i
Winnipeg föstudagin 22 Febrúar 1901 og
birjar kl. 9 f. h. Fuudirnir eru fyrir
opnum dyrum og allir sem láta sér ant
um smör- og ostagerð eru beonir og vel-
komnir að sæka þá. Sjáið Prógrammið
á stóru uppfestu auglýsingunum.
E. Cora Hind.
ritar.
LESID.
Um stuttan tíma selur Stefán
Jónson allskonar ánlavöru með óvanlega
lágu verði. Gleimið ekki að lesa aug-
lýsingu þessa, það gæti borgaðfyrirhöfn
yðar. Komið svo og sjáið kvað hann
hefir að bjóða sem fyrst, sem allra fyrst,
þá er bezta tækifærið.
Virðingarfylst
Stefan Jónsson.
**#**###*#******«i*«#tt* ##*i
#
DREWRY’S
nafnfræga hreinsaða öl
#
#
#
*
*
#
s
w
#
#
*
“Freyðir eins og kampavín.”
Þett er óáfengur og svalandi sælgætis-
drykkur og einnig hið velþekta
Canadiska Pilsener Lager-öl.
Agætlega smekkgott og sáínandi í bikarnum
lr J“»«sir drykkir er seldir f pelaflöskum og sérstaklega ætl-
aðir til neyzlu í heimahúsum. — 3 dúsin flöskur fyrir $2.00. Fæst
hjá öllum vin eða ölsölum eða með þvi að panta það beint frá
REDWOOD BREWERY.
EDWAKU L- DKEWRY-
Slaiinfacturer & Importcr, WlAAll’EG.
#
%
#
*
#
#
*
*
#
*
#################*########
*####*#########*###«# «*##*
#
#
#
#
#
*
e
#
#
#
#
#
#
#
-m
#
9
#
Areiðanlega það bezta er
Ogilvie’s Mjel.
[Sjáið tfl þess að þér fóið OGILVIE’S.
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
f
#################### ###*##
Það er fjörug verzlan hjá oss þessa daga.
Vér seljum belg- og fingravedinga í óða önn. Agætir
drengja- og litlir karlmanna belgvetlingar 50c. virði fyrir
35c. eða þrennir fyrir tg>l OO.
Vér höfum afmikið af Moccasins, stærð 6, og seljum því þessa
stærð mcð mikium afslætti.— Drengja og karlmanna Moc-
casins (skór) á $ 1. OO til fji I . 5O, og margt annað ódýrt.
Gegnt Portage Ave.
u
351 inain Street.
Það er engin góð mat-
vara eins ódýr og eng-
in ódýr vara eins góð
sem sú, er vér bjóðum yður í búð voni
daglega og viku eftir viku, það eru
kostaboð á öllum brauðtegundum i
samanburði við það sem önnur baktiri
bjóða, því varan er g ó ð .
.IV J. Boyd,
370 og 579 Main Str.
Army and ftavy
Heildsala og smásala á
tóbaki og vindlum.
Vér böfum þær beztu tóbaks og vindia-
byrgðir sem til eru í þessum bæ, og seij-
um þær ódýrara en aðrir. Enda gerum
vér meiri verzlun en nokkur annar.
Vér óskum eftii viðskiftum yðar.
I. Brown & Co.
541 Main Str.
74 Lðgregluspæjarinn.
ekki óski s£r þangað. Það er fögur sjón, sem
verður fyrir auga de Verney. Aprílsólin björt
og hlý sveipar alian bæinn í geislablæju ótelj"
andi lita. Til og frá eru skemtigarðar þar sem
ungir og fjörugir sveinar, hraustir og harðfeng-
ir drengir leika ýmsar íþróttir, og engilfagrar
blómarósir sitja á bekkjum skamt frá og klappa
lof í lófa yfir hverjum sigri, sem unnin er og
kasta blómvöndum frá drifhvítum, silkirajúkum
höndum að fótum sigurvegaranna ásamt hlýju
augnaráði, sem ekki er hvað léttast á metunum.
En ástarguðinn léttfleygur og hvitvængjaður
þýtur á milli trjánna, leynist með glettnissvÍD
og lymsku brosi að baki laufgaðra limaog send-
ir örfar sinar í ýmsar áttir. Fæst af þessu dreg-
ur að sér athygli de Verney; hugsanir hans eru
annarsstaðar um þessar mundir. Hann ekur
eftir Imperatrice stræti og fram hjá stórum
loftsvölum; par eru .tvær konur; önnur þeirra
hefur máls og spyr: “Hver er hún ?"
“Hvað meínarðu?” svarar hin.
“Stúlkan, sem de Verney er .ástfanginn í,
meina ég. Það leynir sér ekki, að það er ein-
hver. Hann hvorki heyrir né sér; já, fyr má nú
rota en dauðrota! Hann er dauðsáotinn, mað-
urinn ! Hann gengdi mér einu sinni ekki þegar
ég hneigði mig fyrir honum !” Og hún and 'arp-
aði þegar hún sagðí þetta.
“Uss, hvaða vitleysa !” svarar hin hlæjandi;
“hann er náttúrlega að hugsa utn einhver alvar-
leg störf eða mkilsverð málefni!”
“Ó, hann er inndæli!” segir sú, er fyr tók til
laáls. “Já, elskulegur ! Eg vona að hann komi
Lögregluskæjarinn. 70
hælunum á henni”, segir Higgins. “Ef von
Frakklands situr um hana, þá eru vonir allra
annara dauða dæmdar. Við skulum fara yfir í
söngsalinn hjá blómsölubúðinni. Ég heyri hljóð
færasláttinn; hver veit nema hún sé þar”.
“Við skulum koma, de Verney”, segir Fron-
tinace. Svo fara þeir allir þrír af stað. Þeir
ganga eftir brú. sem liggur yfir lítinn læk,
snúa til vinstri handar og inn í blómskreyttan
garð; þar var söngflokkur og lék á hljóðfæri.
“Gáótu ekki svona hart, Mannice”, kallar
Frontinac gremjulega; “þú gengur svo hart að
ég hefi ekki tækifæri til þess að tala við þig;
skárri eru það lætin ! Hvenær kemur grímu-
klæddi glímumaðurinn fram i næsta skifti?”
“Hvernig í ósköpunum ætti ég aðvita það?’>
svarar hann, staðnæraist frammi fýrir félaga
sinum, snýr upp á efravararskeggið og horfir
spyrjandi í augu hans.
“Hvað er þetta?” svarar Frontinace. “Þú
þarít ekki að stökkva upp á nef þér af þessari
spurningu. Ég hefi einu sinni áður spurt þig
að þessari spurningu áður, og þá sagðirðu mér
daginn 15. Febrúar, sagðirðu. Ég gæti sýnt þér
það svart á hvítu".
“Þótt það hafi sanr.ast á mér þá, að oft rat-
ast kjöftugum satt á munni þá er það ekki þar
með sagt, að ég geti alt af hins rétta ! ’ svarar
de Vcrncy og hlær kuldahlátur. “Hvað á ann
ars þessi spurning að þýða ?—hvað varðar þigum
það, sem þú ert að Spyrja að ?”
“Það er mín vegna, sem hann spyr þess !
segir Higgins, ‘ Það eru stúlkur frá Nýju JÖr-
78 Lögregluspæjarinn.
hafa séð hann í Mexico. Hann kemur frá Ame-
riku. Þetta er herra de Verney, þetta er herra
Higgins !”
“Þérhljótið að sjá furðu vel, ef þér hafið
séð mig í Mexico !” segir Híggins. Hann hefir
auðsjáanlega haft á sér öll einkenni Bandaríkja-
manns. en þvegið af sér mesta Ameríku blæinn
þessa fáu mánuði, sem hann hefir dvalið í Paris.
Hann þegir stundarkorn, en segir því næst:
“Já, þér megið svei mér sjá vel; ég hefi aldrei
komið til Mexico; ég hefi auðvitað séð þangað
frá stjörnuturninum; það eru nálægt 6000 mílur
—við höfum svo ágæU sjónauka, þá beitu, sem
til eru i víðri veröld. Ég vildi að við hefðum
einn þeirra hétna, Georg”.
í þessu bili gengur forkunnarfríð kona fram
hjá þeim, Bandaríkjamaðurinn lítur hýrlega
til hennar, tekur afsér gleraugun og þurkar af
þeim.
De Verney tekur til méls og segir: “Herra
Frontinace er ekki vel að sér í landafræðinni,
þess vegna verðiö þér að fyrirgefa honum þótt
hann haldi að þér hefðuð séð mig i Mexico; hann
hefir ekki hlotið eins mikla mentun og alþýðu-
skólagengnir menn hjá ykkur”.
“Louisa er ekki hérna !” segiJ Higgins, án
þess að veita því eftirtek.t, er de Verney sagði.
“Ekki enn þá”, svarar Frontinace, “en það
er svo vístsem að fið erum hérna að hún kemur;
veðrið er svo einmuna gott og keisarasonurinn
er viss að færa henni peninga fyrir blóit”.
“Já. og þá höfum við nú líklega ekki mikið
tækifæri þegar koaungborinn spjátrungur er á
Lögregluspæjarinn, 75
til frúCavagnac í kvöld; ég býst við að borða
þar kveldverð. Ef hann verður þar þá ætla óg
að vera “Venus”. Skák þér !”
“Uss ! Ég gæti bezt trúað að hann liti ekki
einu sinni við þór !” »varar hin, stutt í spuna.
“Þú veizt nú betur en þetta,’, segir sú fyrri.
“Mér er þá ilia farið aftur. ef piltarnir láta aft-
ur augun þegar ég er nálæg !” Hún var einhyer
fríðasta stúikan í Paris um það leyti; vonar-
stjarna á framtiðarhimni allra ungra pilta, og
hún vissi líka af því.—Hún þegir stundarkorn
og segir þar næst. 'Það vantar lítið á að hann
sé eins fríður og glímumaðurinn grímuklæddi”.
Grimaklæddi maðurinn. Já þar komstu
með það. Q hvað hann er yndislegur!”
“Já, sú fegurð ! og limaburðirnir og allar
hreifingar ! Hann er sannnefndur engill!” (
“Þér þykir hann þá fallegur lika. Þú getur
þóekki náð i alla ! Engin gleypir sólina !”
“Ó, mér lízt svo vel á hann að óg ætla að
gera alt, sem mér er mögulegt til þess að vita
hver hann er”.
Þegar hér er komið samræðuni þeirra, er de
Verney kominn að Boulogne götu. Skemti-
garðurinn sem þar er virðist vera með allra feg-
ursta móti, trén eru hvanngræn og grasið lítur
út eins og fegursti dúkur sé breiddur á jörðiua
undir fætur fríðra meyja og gervilegra sveina,
er lsiðast i garðinum frara og aftur, Vorblómin
• ru að byrja að eægjast út úr fylgsnum sínum,
•ins og þau séu hálfhrædd eða feimin að horfa
á alla dýrðiua og haldi að sér verði engin eítir-
tekt veitf, þar sem alt sé svt andurfagurt. Þad