Heimskringla - 12.09.1901, Blaðsíða 2
HEIMSKKÍNGLA 12. SEPTEMBER 1901.
Heiiskriogla.
PUBLISHED BY
The Heimskringla News & Publishing Co.
Verð blaðsins íCanftda og Bandar. $1.50
um árið (fyrirfram borgað). Sent til
fslands (fyrirfram borgað af kaupenle
um blaðsins hér) $1.00.
Pendngar sendist í P. O. Money Order
Etegistered Letter eða Express Money
Order. Bankaávfsanir & aðra banka en i
Wfinnipeg að eins teknar með afföllum
«. Ij. Baldwlnson,
Editor & Manager.
Office : 547 Main Street.
P O BOX
Skaðsemi anarkista-
stefnunnar.
Fréttin um tilrann þá sem gerð
var til að myrða Bandaríkjaforset-
ann á Pan-Ameriean sýningunni i
Buffalo 4 föstudaginn var, og játn-
ing sú sem glæpaseggurinn gaf lög-
regluþjónunum fyrir tiltæki sínu,
vekur ósjálfrátt þá hugsun að nauð-
syn beri til þess að hafa talsvert
strangari gætur á ræðum og athöfn-
um sjálfsjátaðra anarkista, heldur
en gert hefir verið að undanförnu.
Því að það virðist ljöst að sá mann-
flokkur hvorki þoli né kunni að meta
frelsi. Þeirra aðal prógram er að
ráða alla stjórnendur af dögum, án
nokkurs tillits til hversu góðir
menn það kunna persónulega að
vera, og án tilits til þess einnig
hvernig þeesir menn hafa kjörn.r
verið í embætti sín. Þeim er nóg
að vita að raaðurinn er í orði kveðnu
æðsti stjórnari eins lands, og það er
það, [samkvæmt prógrami þeirra,
sem gerir það sjálfsagt að ráða hann
af dögum. Þessi stjórnleysingja
félagsskapur er engin nýjung f
heiminum. Hann hefir verið til frá
dögum þeirra Kains og Abels og eins
og hver önnur fastskorðuð stefna
hefir hannvaxið og þróast þeim mun
meir sem fólkinu heíir fjölgað í
heiminum. Á síðari árum hefir
þessi flokknr gerst svo framgjarn í
árásum sínum á þjóðhöfðingja, að
hann hefir verið gerður landrækur,
að svo miklu leyti sem það hefir ver-
ið möguiegt, úr flestum Evrópalönd-
unum. Aðal vermireitur þessara
þorpara hefir á síðustu árum verið
í þeim löndum í heiminum sem hafa
frjálslegastar stjórnrrstefnur og veita
mest mannréttindi, í Englandi og í
Araeríku. Tii þessara landa hafa
flestir þeir menn flykst sem vegna
sameiginlegra öfugra eða afvega-
leiddra lífsskoðana og haturs til
allra stjórna og stjórnenda ekki hflfa
geta haldist við f öðrum löndum.
Hér hafa þeir verið að mestu frið-
helgir og getað hafst við í ró og
næði, og bruggað og bollalagt sfnar
þjóðhöfðingja-dráps tilraunir. Á
Englandi t. d. hefir þeim verið leyft
að halda opinbera fundi úti undir
beru lofti, jafnvel í sjálfu Hyde
Park í Lundúnum, og að flytja þar
alskyns æsingaræður og afia sér á-
hangenda, Ætla verður samt að
þeir hafi ekki á slfkum stöðum gert
opinberar uppástungur nm aftöku
konunga og annar þjóðbðfðingja.
En ræðurnar hafa lotið að því að
gera áheyrendurna óánægða með nú
verandi ástand, og að kenna hinum
viðteknu þjóðhöfðingjum um alt
það sem aflaga hefir farið. Einnig
heflr þessum mðnnum verið leyft að
haf'a opinbera gleðifundi yfir því að
einhver úr þeirra flokki heflr sært
eða drep’ð einhvern stjórnara.
Þannig var það í Bandaríkjunum
fyrir örfáum vikum að nihilistar
héidu fagnaðarsainkomu nm það að
þá var liðið eitt ár frá því að einum
af félagsbræðrum þeirra hafði tekist
að drepa Humbert. Ítalíu konung.
nafni morðingjans var fagnað með
gleðiópum, en nafni konungsins með
urri og óhljóðum Það þykir nú
vist orðið að einmitt á þeiiTÍ sam-
komu, eða rétt eftir hana, hafi mo>-ð
McKinleys verið ákveðið, og maður
valinn til að vinna verkið.
Að vísu hefir maður þessi ekki
ætíð sagt það sama um þetta mál.
Stundum segist hann hata verið val-
inn af félögum sínum til þess að
gera þetta verk, og stundum segir
hann að upptökin hafi verið alger-
lega hjá sér sjálfum, að eins hafi
hann ráðgast um fyrirætlan sína
við vini sína. En hvort heldur
hann var valinn eða átti sjálfur upp-
tökin, þá er það víst að aðrir voru í
vitorði með honum, og hafa að
sjálfsögðu hvatt hann til drápsins,
því að það var samkvæmt stefnu
þeirra. Meðal annars sem maður
þessi játaði fyrir lögregluþjónunum
í Buffalo, eftir að hann hafði verið
settur í fangelsi fyrtr að skjóta á
forsetann, var það sem fylgir, hann
sagði: „Ég hef í síðastliðin 5 ár átt
anarkista fyrir vini, í Chicago,
Cleveland. Detroit og öðrum borgum,
og ég býst við að ég hafi orðið meira
eða minna gramur, já, ég veit ég
var gramur. Eg hafði aldrei átt
miklu láni að fagna I neinu sem ég
tók mér fyrir hendur, og þetta gerði
mig argann, Það gerði mig önug-
lyndan og öfundsjúkan. En það
sem kveikti í mér löngun til dréps,
var fyrirlestur sem ég alýddi á fyrir
skömmu, fluttur af ungfrú Emmu
Goldman. Hún var í Cleveland og
ég og aðrir anarkistar fórum að hlýða
4 mál hennar. Hún hleypti eldi í
mig. Kenning hennar um það að
allir stjómendur ættu að afmást af
jörðinni, var það sem kom mér til
að taka þessa ákvörðun, og sem svo
varð rótgróin I höfðinu á mér að ég
þoldi ekki við fyrir höfuðverk. Orð
ungfrú Goldmau gengu í gegnum
mig'. °S þegar ég hafði hlýtt á fyrir-
lestur hennar, þá afréði ég að gera
eitthvert hreystiverk til sigurs fyrir
það málefni er ég hafði lært að elska.
Svo las ég I Chicagoblöðunum, fyrir
8 dögum, að McKinley forseti ætlaði
á sýninguna í Buffalo, og samdægurs
keypti ég mér farbréf þangar og
eisetti mér að gera eitthvað. Mér
datt í hug að skjóta forsetann.“
Síðar í þessari játningu sinni fyrir
lögregluþjónunum, kvaðst maður
þessi hafa setið um forsetann og
hafi hann þá fastákveðið að drepa
hann, en ekki geta komíst nóga ná-
lægt honum fyrr en á föstudags-
kvöld. Af þessari játningu er það
nú sýnt og sannað að það var æs-
ingarræða ungfrú Goldman, sem
kveikti manndrápshugmyndina í
heilabúi þessa vesaliugs. Hún hafði
á opinberum fundi sannfært hann
um hve réttlátt verk það væri að
svifta al.'a stjómendur heimsins lífl,
og maðurinn ákvað þarna á staðn-
um að fara að ráðum þessarar konu
og að stytta aldur þeim eina manni
í Bandaríkjunum sem hafði aðal
yflrvöldin í höndum sínum. Af
þassari játningu vaknar ósjálfrátt
hugsunin um það hver sé sekari um
glæp þenna, sá sem skaut forsetanD,
eða hún sem kveiki hjá I onum fyrstu
hugsunina um þörfina og réttmætið
á þessu og hvatti hann til fram
kvæmda á því.
í þessu frjálsa lýðstjórnarlandi
mundi það þykja óþolandi að hefta
málfrelsi manna og kvenna, eða að
banna sérstökum félögum að koma
saman til að ræða um innbyrðis mál
sín, en svo flnst oss sem tími sé til
þess kominn að hugleiða gaumgæfi
lega hvert almennings hagsmunir
krefjist þess ekki að nokkurt tillit
8é til þess tekið frá yflrvaldanna
hálfu. Hvert þeir menn og félög,
sem gera manndráp að sínu aðal- og
eina takmarki, eigi að njóta tak-
markalaust lagaleyfis til þess að út
breiða kenningar sinar á opinberum
mannfundum. Vel vitum vér að
ekki er hægt að fyrirbyggja það með
lögum aðslíkirmenn eða félög geti
átt með sér fundi og rætt hver þau
mál seiu þeim þóknast, hver f ann-
ars prívat heimahúsum. En hitt
finst oss ekki meira en sanngjarnt
að útbreiðsla kenninganna um eyði-
leggingu opinberra þjóðhöfðingja eða
annara sé takmörkuð, að komið sé í
veg fyrir að jwð sé gert á opinber.
um mannfundura, eins og virðist að
hafl átt sér stað með ungfrú Gold-
man í Cleveland. Það eru enda
fieiri hliðar máls jiessn sem eru þess
virði að þær séu athugaðar. En í
þetta 8inn er óþarfl að segja meira
en búið er, til þess að vekja athug-
an lesendanna á þessu máli.
Neyðarvörn.
Þannig hljóðar fyrirsögn á
greln Jóns gamla Ólafssonar að Brú
P. 0., sem birtist í Lögbergi nr. 29.
þann 25. Júlí síðasl. Grein þeBSÍ á
að heita svar gegn því er ég sagði í
Heimshringlu 1. Júlí um ósannsögli
gamla mannsins og rógburð hans 4
séra Hafstein Pétursson. Annríkis
vegna hef ég ekki tekið mér tíma til
þess að ávarpa ,,þann gamla“ eða
að andmæla grein hans þeirri á-
minnstu, þvf að í raun og veru er
hún ekki svaraverð, þar sem hún
snertir nálega ekkert mál það sem
lá til umræðu, en er mestmegnis ill-
girnislegar árásir á mína eigin per-
sónu. En slik vopn eru jafnan not-
uð af þeim sem eru staklega óvand-
ir að sjálísvirðingu, þegar skortur er
á góðum málstað og röksemdum.
Enda er þetta ekki í fyrsta skifti sem
sá gamli heflr beitt þessum, sér alt
of tömu vopnum þegar vandaðir
menn mundu, í hans sporum, fremur
hafa kosið þögnina. Eg lái Jóni
það ekki þó hann reiðist þegar hanu
flnnur sig húðflettan fyrir ósannsögli
og rógburð á sér langtum gáfaðri,
mentaðri og betri drengi. En mað-
urinn ætti að reyna að hafa nægi-
lega stjórn 4 geði sínu og ritsmiðum,
svo að hans síðari villa yrði ekki
argari hinni fyrri.
I stuttu máli sagt gekk þessi
seinasta grein Jóns út á að sýna að
gamla vélin sem lognaðist út af hjá
heám fjórmenningum í Argylebygð
fyrir mörgum árum væri enn þá við
líði og vinnandi í bygðinni, þó hann
í sömu andránni verði að játa að
það sé alt önnur vél sem þeir fjór-
menningar eiga nú og vinna með.
Þetta er svipuð rökfræði eins og ef
sagt væri að Valgarður hinn grái
væri enn þá við líði og hefðist nú
við að pósthúsinu að Brú af því að
íslenzka þjóðín taldi þanu mann eitt
sinn meðal sona sinna og taldi síðar
Jón ólafsson með sömu fjölskyld-
unni, þótt það væri 800 árum síðar í
tímanum, En eins og allir skilja þá
eru þeir Valgarður og Jón tveir sér-
stakir menn, þótt báðir séu sömu
ættar og eðlis. Á sama hátt er það
með þreskivélarnar þeirra fjórmenn-
inga, að sú sem nú er við liði og
staríandi hér í bygð, er ekki sama
vélin og sú sem hætti að vera til
fyrir 15 árum, þótt báðar væru
sama eðlis og eign sömu manna, Eða
mundi Jón vilja halda því fram að
maður sem væri fjórgiftur byggi
altaf með fyrstu konunni sem hann
átti, þó hún veri liðin undir lok fyrir
hálfum öðrum áratug. Mér flnst
nokkuð varhugavert að halda fram
slíkum kenningum. Slík rökfræði
er óskiljanleg fyrir almenna heil-
brigða vitsmuni, en eins og lesend-
urn má kunnugt vera þá er „sá
gamli“ trúmaður mikill, og það er
rétt hugsanlegt að hann hafl hugsað
sér að festa þríeiningar kenninguna
sem bezt í huga og hjrötu lesenda
Lögbergs með því að taka dæmi af
þreskivélum þeirra fjórmenninga, og
sýna að þær allar væru sama sem
eÍD, og einj—sú fyrsta — sama sem
allar hinar sem á eftir komu eða
kunna að koma. Enn þó þessi til-
raun Jóns, að skýra þá kenningu
eins og hann hefir bezt vit á, sé að
sjálfsögðu allrar virðingarverð frá
sjónarmiði sumra manna, þá get ég
eigi að síður, ekki fa'.list á að hún sé
rétt eða viturleg. Vera má einnig
að Jón hafl hugsað sér að gera mér
þersónulegan greiða með þessari
kenningu sinni. Hann hélt því
fram í fyrstu að ég hefði verið hlut-
hafi í fyrstu vél þeirra fjórmenn-
inga, og að hinar síðari vélar væru
híð sama og fyrsta vélin — væri í
sannleika fyrsta vélin, og samkvæmt
þessari hugsnnarfræði „þess gamla“
ætti ég að sjálfsögðu minn óskertan
hlut í núverandi vél þeirra fjór-
menninga. En þetta er alt 4 annan
veg, því að ég á engan hlut í þeirri
vél. Eigi að síður er tilgangur
„þess gamla“ sjálfsagt góður og
gerður mér í hag, en gallinn er að
hann heflr í huga sínum hnuplað
þessu handa mér, og er það í sjálfu
sér að kippa í kynið til Valgarðar
gráa, á vi3san hátt. En ég hef að
þessum tíma getað haft ofan af fyrir
mér án þess að seilast í annara fé
með leynd, og get því ómógulega
þegið þetta offur „þess gamla“,
enda óvíst að hann hefði sýnt svo ó-
vaDalegt örlæti ef af eigin efnutn
hefði gripið verið.
Mér flnst að það hefði verið
miklu nær fjrir gamla Jón að við-
urkenna frómt og hreinskilnislega
yflrsjón sína í því að ana fram í op-
inbert blað með algerlega óþarfar og
ósannar staðhæfingar um menn og
málefni sem hann hefði átt að sjá
sóma sinn í að láta afskiftalaus. Það
verður hvort sem er aldrei á valdi
gamla Jóns að rýra álit séra H. P.
eða að auka sitt í augum nokkurra
þeirra sem þekkja báða mennina.
Séra Hafsteinn er viðurkendur í Ev-
rópu og Ameríku, af þeim sem til
hansþekkja, sem sérstakur gáfu og
bóknjenta maður og hið mesta, ljúf-
menni, sem öllum vill gott gera, en
mein engum. Jón á hinn bóginn á
sögu á baki sér sem aldrei mun kasta
stórum ljóma á söguspjöld íslend-
inga. Það er því bezt fyrir „þann
gamla“ að ganga ,nú undir andlátið,
í endurnýjugu lífdaganna og bæta
sem mest hann má fyrir yfirtroðslur
sínar allar á liðnum æfldögum.
Þetta verður 4 parti —þó sá partur
sé lítill—gert með því 1. að skila
aftur til þeirra fjórmenninga þeim
hluta úr vél þeirra, sem hann sam-
kvæmt af vegaleiddri röksemdaleið slu
sinni, hefir eignað mér, 2. að viður-
kenna að ummæli hans um séra
Hafsteín Pétursson hafi verið gerð
af stakri illgirni og til að sverta
manninn eftir veikum mætti og 3.
að viðurkenna ummæli H. P. í Eim-
reiðinni að því er snertir þreskivélar
kaup mín og atvinnu hér í nýlend-
unni sönn að vera og óhrekjanleg.
Að endingu skal ég geta þess
að ég hef ekki tekið mál þetta til
umræðu í því skynl að hæla sjálf-
um mér eða að gera nokkra tilraun
til þess að auka með því veg minn
eða vinsældir. En mér fanst það
óþolandi að leyfa „þeim gamla“,
sem nú er kominn á grafarbakkann,
að þramma Ijúgandi og rægjandi
eftir gangstéttum Lögbergs án þess
að benda honnm á villu vega
hans, því að samviskan býður hverj-
um rétt hugsandi manni að gera
skyldu sína við náungann, án tillits
til þess hvort það skylduverk sé vel
metið eða vinsælt.
Brú 20. Ágú3t 1901.
G. Bímonarson.
Fá orð til S. V.
„Ræða spekingsins sefur í
hlustum ens heimska.“
Salómon.
Það var ekki við að búast að S.
V. skildi nokkuð af þeim rökum er
ég færði fram fyrir því að fra m för
og menning gæti komist 4 hátf stig
án ritningarinnar og kristindómsins*
Það er auðsætt á því er sá maður
segir, að hann veit ekkert hvað orðið
menning þýðir, liann slengir saman
andlegri og líkamlegri menning og
álítur hið siðferðislega fræðikeríi er
Kristur flutti heiminum undirstöðu
allra hinna verklegu framfara 19
aldarinnar, eftir því að dæina álítur
hann að heimurinn þekti r.ú engar
framfarir og engin uppfynding hefði
átt sér stað af Kristur hefði ekki
fæðst. Þetta var ég að sanna að
væri tómur hagarburður, með því að
sýna fram 4 að Indverjar og aðrar
fornþjóðir stóðu og standa enn í dag
á hærra menningarstigi en Evrópu
þjóðir, en slíkt er þýðingarlaust að
segja þeim manni er ekkert veit
hvað menning er, eða álítur alla
menning innifalda í rafmagnsfræði
og verklegum framkvæmdum. Eg
sýndi líka fram á að ritningin eða
kyrkjan og páfinn stæðn 4 móti öll-
um nýjum framkvæmdum, öllum
uppfyndingum svo lengi er hún gat
og hafði vald. Þessu svarar S. V.
þanníg að biblían hafi verið hlekkj-
uð í myrkraklefum þar til Luther
kom til sögunnar, á 15 öld. Alt svo
hefir það mikla áhrifs afl ritningar-
innar legið niðri í því nær 15 aldir,
og hin kristna heimsraenning byrjar
ekki fyr en með siðabót Lutlieis.
Eftir því að dæma eru katólskir
menn ekki kristnir og nær þá hin
„mikla heimsmenning yfir fiemur
lítið svæðiaf heiminum.“
S. V, þykír ég sanna sitt mál
með að nefna forn þjóðirnar, því þær
hafi verið í hnignun er kristindóm-
urinn reis upp. Iíaunar vjru þær
nú liðnar undir iok sumar, t. d.
Grikkii og Rómverjar, er siðabótin
* Sjá Heimskr. nr. 46.
ruddi sér til rúms, og þá fyrst hefst
hin kristna menning eftir kenning
og skilning S. V., svo kristnin hefir
þá ekki reist þær við. En menn-
ing þeirra lifir í ritum þeirra. dreifð-
ist út um Evrópu og er enn undir-
staða undir allri æðri þekking og
vísindum. Þetta heflr S. V. ekki
skilið.
Aðal atriði okkar deilu er þetta:
Getur framfór og menning átt sér
stað án kristindóms. S. V. segir
„nei“ ég segi já, það sýua forn
þjóðirnar. Það sannar mitt mál
segirS. V. „því þær eru framfara-
lausar, þekkja hvorki rafmagn né
gufu.“ Það er mikið rétt að raf-
magn og gufa gera mikið til lífs-
þæginda að flýta fyrir með fram-
leiðslu á vamingi og auka verzlun-
arákefð og samgöngur. En fyrst er
nú það, að þetta er als ekki biblí-
unni að þakka, S. V. má stagast 4
því til eilífðar en hann getur aldrei
sannað það, og í öðru lagi, getur
einstaklingur og heil þjóð verið á
mjög háu menningarstigi og aldrei
þekt neitt af þessu. Því, menning
er það, að ná sem hæstri þekking á
sínu eigin eðli og á eðli meðbræðra
sinna, losa sig við alla hleypidóma
og eigingjarnar hvatir og tilhneig-
ingar, og að skignast inn í hin dular-
fullu öfl er ráða í tilverunni, einkum'
hinni andlegn tilveru. í þessum
greihum eru Kínverjar og Indverjar
lengra komnir en Evrópu þjóðir.
S. V. segir að alstaðar þar er
kristin menning kemst inn, vaxi
framkvæmdalíf og dugnaður. Mér
liggur víð að spyrja hvar getur sag-
an þess? Á Zslandi byrjaði fyrst
h n i g n u n manndóms og fram-
kvæmda með kristnitökunni, og þótt
Evrópa tæki miklum framförum eftir
siðabótina er það eigi biblíunni að
þakka, heldur eins og ég sagði (í
andmælum mínum) fyrir þt03ka eðli
það er býr í þjóðnnum. Og þótt S.
Y. hvorki viti það né skilji, þá heflr
Evrópu mest farið fram síðan hennar
helztu rithöfundar og leiðendur lo3-
uðu sig við alla bókstafstrú, því alt
frá skáldjötnunum Shakespeare og
Gothe og spekingunum og vísinda-
mönnunum Voltaire, Rosseuo, Darv-
in, Kant og niður til Ibsen, Björn-
stjerne, Huxleys og Spencers, hafa
þeir allir verið trúlausir á bókstaf
ritningarinnar. Og nú, er menn-
ing Evrópu er á hæsta stigi, er meiri-
hluti hennar frægustu rithöfunda,
vísindamauna og meritamanna án
als kristindóms, f þeim skilningi er
mér virðist að þessi S. V. leggja í
það orð. Sagan sýnir einmitt ljós-
lega að þær þjóðír er fyrst losnuðu
við vald bókstafstrúarinnar hafa náð
beztum og meetum framförum; það
er Þýzkaland, Skaninavia, England
og Norður-Ameríka. Nú hvað því
viðvíkur að Kristna menningin veki
framkvæmdalíf og framför sé ég ekki
miklar sannanir. Hér í Ameríku er
frumbyggjuin landsins (Indíánum)
óðum að fækka. Á suðurhafseyjum
á sér hið sama stað. Þá hygg ég
böf. viti um forlög Fillip»eyinga sem
eru að sönnu mikið blandaðir Ev-
rópu þjóðum. Á Indlandi hafa hin-
ir kristnu Englendingar verið í blóð-
ugum bardögum síðan fyrst þeir
smegðu þar inn höfðinu, og drep-
sóttir og óáran hefir þar fylgt í kjöl-
far krlstindómsins. Frá Kína eru eng-
ar fagrar sögur að heyraaf aðförum
hinna kiistnu og engar nýjar fram-
farir, allra sízt í andlegum efnum.
Japanar eru sú eina þjóð er heflr
lært verklegar framfarir af Evrópu.
Svo er eins að gæta, að hin mikla
menning Európu,sem S. V. kallar
heimsmenning, getur hæglega farið
sömu leiðina og menning íornþjóð-
anna, Grikkja og Eómvcrja, þrátt
fyrir allan kristindóm, og þá þarf
nýjan krist til að endurreisa það, og
þar kem ég að því er ég áður sagði,
þjóðirnar þurfa alt aí nýt.t og nýtt
yugingar afl, þegar hið eldra er orð
ið úrelt og samsvarar ekki kröíum
tímans, og þetta afl kemur alt af í
einhverri mynd, en nýrri tíma þekk-
íng og skoðanir virðast benda í þá
átt að þjóðirnar trúi eigi lengur 4 að
það þurfl að vera maður fæddur af
heilagri mey, eingetiun af föðurn-
um, nema faðirinn sé san nl ek -
urinn sá sannleikur er allir
hugsandi og rannsakandi inenn þrá
að höndla á ölluru öldum, en það hef-
ir en eigi tekist til fulls. Nú heflr
kristindómurinn um tvöhundruð
inisruunandi trúflokka, og hver fyrir
sig þykist hafa höndlað sannleik-
ann, og ég hygg það sé hvorki fyrir
þig eða mig Sigurður minn að segja
hver af þessum sé næstur því að hafa
allan sannleikann í hendi sinni,
og um leið það afl er vekur sofandi
menn til starfs og þroska. Ég segi eft-
ir mínu viti og þekking að það sé hið
rannsakandi afl sem er meðfætt
manninum en eigi fætt af neinni bók
eða trúarkerfi, er vekur til starfs og
þróunar þar sem þetta afl fær að
vinna frjálst og óhindrað, þar er
framk væmd og líf, en þar sem það
er bundið með bókstaf og kreddum
vekur það fyrr eða síðar dauða og
eyðilegging.
Trú á bókstaf ritningarinnar
heflr valdið tjóni og afturför hinna
katólsku þjöða, og hún hefði gert
hið sama við hinar lútersku ef hið
rannsakandi afl mannsandans, sem
losnaðiúr fjötrum með siðabótinni,
hefði eigi haft yflrhönd. S. V. vill
fá upplýsingar um framför „ a n t i -
kristinna þjóða, þær eru ekki
til, þvf aðrar þjóðir sem ekki ern
kristnar leitast mjög lítið við að
standa móti kristninni, þó er hreyf-
ing nokkur að vakna meðal Hindúa
og í Kína eru Boxarar að vfnna móti
kristniboðinu Evrópiska. Ég hygg
það mætti frekar telja meiri part
hinna mentuðu manna í Evrópu og
Ameríku „antikristna."
S. V. hyggur að mig hafl lang-
að til að grafa sig með minni fyrri
grein, nei það var langt frá mér, ég
vil engan grafa sem vill hugsa og
sannsaka, en mig langar til að
grafa alla blinda trú á bókstaf, alla
hleypidóma og hroka og ekki sízt
ímyndun hans um það að hann
þekki þróunarsögu mannkynsins svo
út í æsar að hann geti sagt með eins
mikilli vissu og hann lætur yfir
hvað sé orsök til framfara og hnign-
unar hverrar þjóðar. Eg hef „litið í
bækur“ og hef lesið: History of
Civilization in Europe, eftir Buekle,
History of Rationalism, eftir Lecky
og Development of Hnman Inntellect,
eftir Draper. Lestu þessar bækur
Sigurður minn og vittu hvort þú
flnnur eigi að ég hefi rétt fyrir mér
að kristlndómurihn hefir eig vakið
framfarir í verklegu tilliti, er eigi
undirataða hinuar evrópisku menn-
ingar, auk heldur þá als mannkyns-
ins, heldur heflr hið framsóknar-
gjarna mannkyn tekið kristindóm-
inn í sína þjónustu (engu að síður
heflr það vakið ofsóknir og blóðug
stríð) og breytt honum og lagað
hann eftir þörfam og kröfum hvers
tímabils. Og enn hygg ég hann
þurfl mikilla breytinga við. Meira
get ég eigi sagt; að sinni því ég hef
engan tíma, en seinna er ég vís til
að fræða Siguið minn betur.
West Duluth 25. Ágúst 1901,
JÓHANNES SlGURÐSON.
Manitoba epli.
Það hefir vet ið almenn skoðun með
al rnamia í þessu fylki að ekki væri
hæftt að rækta hér epli vegna þess að
sumarið er nokkru styttra hér heldur
en það er í Outario oða þeitn öðru m
fylkjum þar sem epli vaxa; svo hefir og
alinent verið álitið að vetrarhörkurnar
hér vestra mund u drepa alt líf úr tr j án-
um þótt þeim væri plantað og re.ynt
væri að rækta þau. Eu samt hafa ýms-
ar tilrauuir verið gerðar til eplaræktar
og með þeim árangri, að nú er það full
sannað að það má takast að rækta hér
ýmsar ágætis eplategundir og láta þau
ná fullum þroska. Þeir sem vildu
saniifærast um þetta, ættu að Iita í
búðargluggann hjá Robinson & Co. á
Main St. og skoða þar nokkrar epla-
tegundir, sem Mr. A. P. Stevenson hef-
ir ræktað á landi sínu hjá Nelsou í Ma-
nitoba. Mörg af epluin þussum eru
þumlungur að þvermáli og að öllu leitj
jafngildi þeirra beztu epla sem ræktuð
eru aiin’irstaðar í Aæcríku. Þessi op-
inborun kastar nýjum bjarma yfir fram
tíð þessa fylkis. þar eð hún sannar
aukua framleiðslu möguleika þess. —
Islenzkir bændur ættu að gora tilraun-
ir til eplaræktar á löudum sínum hér í
fylkinu.
Æflminning.
Þann 5. Agúst síðastl viidi það
sorgiega slys ti[ í K ewatin, Oat., að
Gfsli Jónsson drukkoaði f Darlington
Bay. Hann Jvar einn á bit að fnra á
milli heimílis síns og rnillunnar þar setn
bann vann. — Gísli sál. var 46 ára;
fæddur á Hellu í Blönduhiíð í Skaga