Heimskringla - 10.04.1902, Side 1
J l^ATTPTr> ^ J
J Heimskring/u. j
J BORGIÐ^—£
J Heimskring/u. j
XVI. ÁR
WINNIPEG, MANITOBA 10. APRlL 1902.
Nr. 26.
Frjettir.
Markverðustu viðburðir
hvaðanæfa.
Sagt er að Dominionstjórnin sé
nú að safna 2500 riddaraliðs til að
berjast með Bretum í Suður-Ariíku.
Það verður 4. og fjölmennasta her-
deildin, sem send verður héðan frá
Canada, og svo margir bjóðast til að-
fara, að stjórnin getur ekki þegið
nema tiltölulega fíia af frambjóðend-
um.
Evrópiskir auðmenn hafa boðið
5 millíónir dollars fyrir St. Pauls-
kyrkjuna og meðfylgjandi garð í
New York borg. En þvi boði var
haf að. Þeir sem boðið gerðu, ætl-
uðu sér að byggja stórhýsi 4 land-
inu.
Vábrestur í kolanámu í Tenn-
essee varð nær 30 manns að bana.
75 menn unnu í námunni, en hinir
komust undan.
Sagt er að Marconi-félagið hafi
selt vírlausa rafskeyta einkaleyfi sín
í Bandarikjunum fyrir 6 millíónir
doilars.
Þrír embættismenn Bandaríkj-
anna í Manila, hafa orðið sannir að
þvi að hafa rænt póstmáladeildina
um meira en $100,000. Enn þá er
ekki uppkveðinn dómur í máli
þeirra.
Iæo Stevens í New York er að
enda við smíði á loftbát, gerðan að
meatu úr stálfjöðrum. Hann hefir
haft loftfar þetta i smíðum í 15 ár,
en kveðst verða búinn að fullgera
það fyrir 1. Maí, og vonarþáað geta
kept við Dunaont loftfara, khvenær
sem fundum þeirra beri saman.
Friðarleitun Búa við Breta geng-
ur illa. Lord Kitchener heimtar að
alt Búa lið gefist upp og leggi niður
vopnin áður en rætt er um sættir.
En Búar neita að gera þetta, nema
þeir fái fyrst að vita um sáttaskil-
mála þá sem þeir eiga að ganga að.
Þeir heimta sjálfstjórn, og verði því
ekki lofað, þá halda þeir ófriðnum
áfram.
Stjórnarformaður Siddon í Nýja
sjálandi sagði nýlega í ræðu, að
9 herdeildir hefðu þegar verið send-
ar f'rá Ástralíu til Afríku, til að
hjálpa Bretum þar og að 10. her-
deildin ,yrði send af stað innan fárra
vikna. Hann kvað kostnaðínn við
sendingu þessara herflokka vera
£307,000, auk £3000 árlega í eítir-
laun til hermannanna.
Eldur kom upp í leikhúsi í Kína
í f m. og 400 manna btunnu þar
inni.
900 vopnaðir menn frá Albania
hafa gert upphlaup f Tyrklandi og
drepið marga.
Eldur kom upp í Atlantic City
3. þ. m. 12 vínsöluhús og mikið af
öðium byggingum brunnu til ösku.
Skaðinn metinn nær millíón dollars.
Franskur auðmaður að nafni
Villebois Marenil, hefir beðið Breta-
stjórn um ieytt til að mega senda
sjúkravagna og lækna og lyfjafræð-
inga til Búanna í Suður-Afríku. —
Hann kvaðst fús að borga kostnað-
inn við sendingu og launaborgun
brezkra lyfjafræðinga og lækna til
að vera með sjúkravöfenum sínum.
En stjórnin hefir neitað um leyfið
og mælist það illa fyrir í Evrópu
blöðum.
Sagt er að prinsinn af Wa!es
ætli að ferðast um Bandarfkin I sum-
ar. Þess er og getið til. að þýzki
ríkiserfinginn kunni að verða með í
ferðiuni.
Tilraun var gerð í Chicago á
Northwestern j árnbrautarlestin n i,
sem gengur milli New York og Chi-
cago, þann 29. f. m., að koma á tal
þráða sambandi milli lestarinnar og
New York-borgar. Þessí tilraun
heppnaðist svo vel, að lestin 4 þess-
ari braut hettr nú Telephone-sam-
band við hvern þann stað fram með
brautinni eða út frá henni, sem hefir
talþráðakerti, svo að nú geta far-
þegjar á brautinni, fin þess að rísa
upp úr sætura sínum, talað við kunn
ingja sína heima, hvar sem þeir eru
innan telefón-sambandsins.
Ungfrú Mary Buckhart sækir
um þingmensku fyrir 10. kjördeild f
Kentucky-ríkinu. Hún sækir undir
fána bindindisfélaganna og kveðst
skuli vinna kosninguna og taka sæti
íþinginu. Hún er af auðugum
ættum og ásjálf yfir ,8100,000, til
að standast nauðsynlegan kosninga
ko3tnað.
Fréttir frá Norðui Dakota segir
Great Northern járnbrautarlest hafa
verið snjótefta milli Williston og
Minot f fulla 4 só'arhringa. Far-
þegjar áttu fult f fangi með að halda
á sér hita, og matvæli voru af skorn-
um skamti. 250 farþegjar voru á
lestinni. Þessi stórhrfð er talin sú
skæðasta sem komið hefir í Norður
Dakota í mörg ár.
Eldur kom upp í borginni Fukui
í Kína þann 31. Marz, og brendi
4000 fbúðarhús og silkiverksmiðjur
til grunna. Þessi bær var með
stærstu silkivef'naðarbæjum i Kína-
veldi.
Austræna sýkin er sögð svo
skæð í Pimjanb-héraðinu á Indlandi,
að 70,000 manna deyja þar mánað-
arlega úr henni.
Kínastjórn hefir samþykt að
leyfa útlendingum að stunda náma-
gröft alstaðar í ríki sínu, en heimtar
25% af öllum demöntum og gym-
steinum, 15% af gulli og silfri og 10
per cent af kopar, blýí og öðrum
málmum, og 25 per cent af gróða
námanfanna eftir að ofangreindur
reikningur er borgaður.
Iðnaður á Þýzkalandi hefir fall-
ið á síðastl. ári, en kaup á varningi
frá Bandarikjunum hafa aukist.
Þýzk iðnaðarblöð telja víst að Banda-
ríkja framleiðendur eyðileggji sum.
ar iðnaðargreinir í Þýzkalandi ef
stjórnin geri ekki við því í tfma með
auknum verndartollum.
Gamli Tolstoi er sagður veikur
mjög um þessar mundir. Hann hef-
ir um langan tfma þjáðst af svefn-
leysi og er nú orðinn svo lasburða af
elli að honum er ekki ætlað líf.
Lögmaður Patrick í New York,
sá sem nýlega var dæmdur til líf-
láts fyrir að vera í vitorði með Jónes
þéim er drap Rice mfllióneiganda á
eitri, kvongaðist ungri stúlKu í fang-
elsinu í síðastl. viku, þau höfðu ver-
ið trúlofuð og hann vildi gera hana
að löglegum erfingja sínum áður en
hann dæi.
989 manna dóu úr kóleru í
Jedda í Arabíu í síðastl. viku.
Eftir snjófallið mikla um miðj-
an síðastl. inánuð, kom bráð hláka
með sudda rigningu, er má heita að
hafi haldist uppihaldlaus fram að
föstudegi langa, afleiðingarnar eru
stdr fióð f ðllum ám og lækjum, brýr
hafa víða flotið af ánum og brauta-
lestir hafa orðið að hætta ferðum
vegna flóða á brautunum sem hefir
eyðilagt sporveginn á pörtum. Ein
kona í Glenboro druknaði f vatns-
flóði, og vfðar hefir orðið manntjón.
Námalönd hjá Sault St. Marie I
Ontario, haf nýlega verið seld Banda-
rfkja auðmönnum, fyrir 9 milliónir
doll. Það eru mest Nickle- og kopar-
námar.
Bretastjórn hefir á orði að taka
£50 millfóna lán tll þess aðmæta
kostnaði við Afríku ófriðinn. Sagt
er og að hún verði að borga tals
vert hærri rentur af þessu nýja lfini,
heldur en af undangengnum lánum.
Brezka stjórnin hefir birt skýrslu-
um aðgerðir sinar í sambandi við
glæpi þá, sem brezkir hermenn fré
Ástralíu frömdu á Búum í vetur. 12
eða fleiri Búar voru drepnir af þess-
um Ástralfu hermönnum, og skýrsl-
an segir að allar lfkur bendi til að
þeir hafi einnig drepið einn prest, þó
ekki hafi fengist nægar sannanir þvf
viðvíkjandi. Sumir þessir hermenn
hafa verið skotnir samkvæmt her-
réttardómi, en aðrir reknir úr hern-
um og sendir til Ástralíu. Skýrslan
segir enn fremur að glæpamenn þess-
ir hafl fært það sér til málsbóta að
Búar hafi farið illa með sig, en að
það hafi ekki yerið sannað fyrir
réttinum. Þe3si skýrsla stjórnar-
innar ber þess Ijðsan vott að Búar
eru ekki einir f sök þegar um illverk
er að ræða þar syðra.
Ottawastjórnin hefir neitað að
veita Norðvesturhéruðunum íylkis-
réttindi að svo komnu, af þvf meðal
annars, að of fátt fólk sé enn þá í
Norðvesturhéruðunum.
Cecil Rhodes hefir skilið eftir
sig sex milliónir pund sterling.
Mikið af þessum eignum hefir hann
gefið til þess að efla mentamál Breta.
Walter Gordon, sá er varð 2
bændum að bana í Whitewater hér f
fylkinu í fyrra, hefir verið dæmdur
sekur um morð og á að líflátast.
Senator Ogilvie, sá er stofnaði
Ogivie Milling félagið, andaðist f
Montreal fyrir nokkrum dögum.
Samkvæmt ósk þess látna verður lík
hans brent í líkbrenslustofnaninni í
Montreal.—Það er fyrsta lfkbrensla í
Canada.
Daglangur bardagi var háður
við Harts River í S.-Afríku 31. Marz,
um 60 Canadamenn f'éllu og særðust
í þeim bardaga. Mikið mannfall
hafði orðið á báðar hliðar. Lord
Kitchener segir Canadamenn hafa
sýnt frábært bugrekki í þeim bar-
daga.
Brezka srjórnin hettr gefið út
bækling cil að skýra ástæður sinai
fyrir því að panta fremur gufuvélar
og önnur járnbrautaáhöld frá Banda-
ríkjunum og Belgiu en írá sjálfum
Bretum, og ástæðan er að Bretar
séu svo seinvirkir að þeir geti með
engu móti kept við Belgi og Banda-
menn. Annars viðurkennir hún að
Bretar séu eins velvirkir og hinir.
H. R. Gebler, frá Glenella í
Man., kom nýlega til Winnipeg ti)
þess að fá sér eiginkonu, sem hann
hafði pantað frá JEnglandi. Hann
borgaði fargjald hennar út hingað og
lagði benni rneira fé fyrir ýmsar
nauðsynjar, sem als nam 8125, auk
heimilisréttarlands síns, sem hann
gaf henni, En er hún hafði fengið
alt þetta, áður en hún giftist Gelber,
sá hún ungan Englending, sem
henni leizt betur á og giftist honum
samstundis. Gelber segir hún sé
frið, feit og 40 ára gömul. Hann
hefir ritað stjórninni og beðið hana
að skerast f leikin. En ef þáð fæst
ekki, kveðst hann muni ganga til
dóms og laga.
Tfu þúsund kolanáma menn í
Pennsylvania hafagert verkfall, þeir
biðja um kauphækkun og viðurkenn-
ingu félagsskapar síns af námaeig-
endum.
William Schreiber strauk f síð
astl.Október frá" New York með
$128,000 sem hann tók frá banka-
félagi er hann vann fyrir. Nú hefir
hann fundist f Honduas og hefir var-
ið peningunum í banana akra. Hann
kveðst græða vel fé og ætlar að
borga bankafélaginu alla skuldina
svo fljótt sem hann getur það.
3000 menn gerðu verkfall í
verkstæðum koparfélagsins í Butte,
Montana í síðastl. viku. Völastjór-
ar þar fengu $4,00 kaup á dag en
heimtuðu $5.00 á dag, en var neitað
um kauphækkun og af því varð
vei kfallið.
Járnbrautarslys f Transvaal-
héraðinu *í síðustu viku drap 30
brezka hermenn og særði 45 aðra.
Lestin skreið 80 milur á klukkutfm-
anum, en ferðin var svo mikil að
vagnarnir fóru út af sporinu og það
orsakaði slysið.
Landsala C. P.R.-félagsins í síð-
astl, iwánuði var 3 sinnum meiri en
í fyrra um sama leyti. Félagið
seldi nú í Marz yfir 101,000 ekrur af
landi fyrir $338,852. Félagið hefir
selt nálega 300,000 ekrur af löndum
sínum sfðan á nyári fyrir nálega eina
millión doll., og C. N. W. landfélag-
ið hefir á sama tfma selt 36,430 ekr-
ur fyrir $183,406.
Mrs. Alexander MacKay, í Cape
Breton, andaðist f síðustu viku 107
ára gömul. Hún hafði fulla sjón og
heyrn fram í andlátið.
Sjóðþurð Bretastjórnar fyrir sið-
asta ár er talin 125 milliónir doll-
Til að mæta þessari sjóðþurð er ráð-
gert að taka lán, og til að koma í
veg fyrir sjóðþurð á komandi árum
er helzt ráðgert að taka upp vernd-
ar- ecja innflutnings tollstefnuna.
Auðmaðurinn Carniege hefir gefið
als $689,500 til bókasafna í Canada
á þessa leið:
Collingwood Ont......... $ 10,500
Ottawa “ ...... 100,000
Pembroke “ .......... 10,000
Stratford “ .......... 12,000
Windsor “ .......... 20,000
Lindsey » 10.000
Guelph “ 20,000
St. Catherines “ ......... 20,000
Cornwall “ ........... 7,000
Sarnia “ 15,000
Smith Falls “ .......... 10,000
Chatham “ .......... 15,000
St. Thomas “ .......... 15,000
Montreal Que.......... 150,000
Winnipeg Man-........ 75,000
Vancouver B. C.......... 50,000
St. Johns N. B........ 50,000
Halifax N. S.......... 50,000
St. Johns Nfi............. 50,000
Sjálfsagt má búast við fleiri
gjöfum til canadiskra bókasafna trá
sama ínanni.
Chicago-búar hafa nýlega lát-
ið i ljós með almennri atkvæða-
greiðslu ósk sfna um að bærinn
eigi framvegis allar opinberar
nauðsynja stofnanir, svo sem vatns
og ljós stofnanir, talþræði o, s. frv.
Ensku blöðin, dags. V. þ. m.
hafa sögu um Ástralíuhermenn í
Suður Af'ríku, sem drápu bara að
gamni stnu nær 40 fanga á ýmsum
aldri. Sem dæmi geta blöðin þess
að 3 börn af þýzkum ættum, 2
drengir, 10 og 12 ára gamlir, og ung
systir þeirra, fóru heim að herbúð-
um Breta til þess að ganga þeirn á
vald og fá mat, því þau voru hungr-
uð og annar bróðirinn særður. í
stað þess að taka börnunum vel og
hlynna að þeiro, yoru þau öll skot-
in til bana. Yfirir höfuð eru brezku
blöðin farin að bera það með sér, að
þau séu alt annað en ánægð með
framkomu Ástralíumanna þar syðra
gagnvart varnarlausum Búum og
börnuin þeirra.
Þýzka stjórnin hefir tekið upp
Rowland-hraðskeytasendinguna, en
hún er innifalin f þvf, að hægt er að
senda 4 hraðskeyti yfir sama vírinn
í einu og sitt f hverja átt. 300 orð
verða send á hverri mínútu með
þessari aðferð, í stað 145 orða á
mínútu eins og nú tíðkast. Ham-
borg og Berlin hafa tekið upp þessa
nýju aðferð og er talið yfst að aðrir
bæir geri hið sama.
Hermáladeild Bietaheflr pantað
loftbát sem beri 5 til 7 menn. Hann
á að vera 200 fet á lengd og vigta
10 þúsund pund.
Maður datt 300 fet niður námu-
op í New York í síðastl. viku og lif-
ir enn. Hann var allmikið brotinn,
er niður kom, en læknar segja hann
f engri dauðahættu af þessn mikla
falli.
7.248 manns hafa flutt inn f
Manitoba og Norðvesturlandið í
sfðastliðnum Marzmánuði. í fyrra
var innflutningnrinn f sama mán-
uði 4,355 manns.
Kemberley lávarður andaðist f
Lundúnum þann 9. þ. m. Hann
var i fremstu röð brezkra stjóm-
málamanna.
THE NEW YORK LIFE
1. Fyrir 10 árum voru árlegar inntektir félagsins yfir $30 millionir.
10 árum siðar, eða 1901, voru árlegar inntektir orðnar $70 mill.
2. Fyrir 10 árum voru gíldandi lífsábyrgðir $575 miílionir. Við
síðustu áramót voru þær orðnar $1,360 mil.
3. Fyrir 10 áruœ voru allar eignir félagsins metnar $125 millionir.
Við síðustu áramót voru þær orðnar yfir $290 millionir.
4. Fyrir lOárum borgaði félagið skfrteinahðfum, árlega yfir $11J mill.
Á síðasta ári borgaði og lánaði það til skirteinahafa $34J million.
Við sfðustu áramót var New York Life félagið starfandi í hverju
stjórnbundna ríki i heiminum, og hafði stærra starfsvið f flestum
rikjum, heldur en nokkur önnur samkynja félög, útlend eða þarlend.
Öll ábyrgðarskirteini þessa félags eru ómótmælanleg strax frá út-
gáfudegi þeirra.
J. G, Alorgan, raðsmaðuk,
Grain Exchange, Winnipeg.
Chr. OlnfxKon.
islenzkur agent.
ÚR BRÉFI frá Svold P. O.,
N. Dak.. 30. Marz 1902.
......“Héðan er fátt að frétta
um þessar mandir. Tíðan er stirð,
fyrst stórfeldur bylur og svo stór-
feld rigning og tel ég óefað að
skemdir hafi leitt af því 4 bröm á
ám og lækjura, Víða hefir flotið yt-
ir vegi og hefir mátt heita ófært yfir
ferðar nú í 3 daga.
Hér er fremur kvillasamt nú um
nokkurn tíma, hezt hefir það verið
hin svo nefnda eiclabó’ga, er á ís-
landi kallast hettusótt. Enginn hef
ir dáið úr þessari veiki, þó nokkrir
hafi orðið talsvert veikir. Hér eru
menn líka hræddir við bóluna, sem
sagt er að sé í húsi einu 5—6 mílur
vestur af Hallson. En það er víst
sóttvörður kringum húsið. Þess
skal og getið, að það eru ekki ís-
lendingar i húsinu.
Hér er nýdáinn unglingspiltur,
sonur Péturs Hallsonar, fyrir norð
an Hallson, Hann var mjög efni-
legur. Var einkasonur foreldra
sinna.—Hann var jarðaður á páska-
daginn. Ekkert veit ég um bana-
mein hans. Þess verður að líknd-
um getið síðar. Okkar ágæti prest-
ur, séra Hans Thorgrímsen, talaði
yfir moldum þess látna.—Séra Hans
hefir nú mjög mikið að gera, þar
sem svo fáir íslenzkir prestar eru
hér syðra. En hann sinnir köllun
sinni af mestu alúð, eins og vænta
mátti”.
Vínbannslögin fallin.
Atkvæðagreiðslan um vínbanns
lögin 2. þ. m, var almennari, en
menn höfðu búist við. í þessum bæ
voru fieiri atkvæði greidd, heldur en
við nokkra undangengna kosningu.
Það er talið að undir referendum
lögunum muni um 11000 atkvæðis
bærir menn vera í Winnipeg-borg
en atkvæðafjöldinn við þessar kosn-
ingarnar var á nlunda þúsund. í
öllum bæjum og borgum fylkisins
voruatkvæði móti lögunum, en viða
úti á landsbygðiuni var atkvæða-
magnið með þeim. Fleirtala í Win-
nipeg móti lögunum var nær hilfu
fjórða þúsundi atkvæða, Gimli-
sveitin var og stórko3tlega móti lög-
unum. Gimli gaf 5 atkv með lög-
unum, en 82 atkv. á móti, Hnausa 3
með, en 25 á móti, Geysir 2 með, en
41 á móti„ Icel. River 5 með, 29 á
móti, Husavick 8 með, en 22 á rnóti,
St. Laurent 7 með, 139 á móti. Yfir
33,000 atkv. voru greidd i fylkinu,
þar af ern 12,826 með lögunum, en
19,510 á móti þeim. Það er talið
víst að fleirtala atkvæða móti lögun-
um verði um 7000 þegar frétt er frá
öllum stöðum,
Fimm spurningum ritstjórans til
B. L. B. í síðustu Dagskrá svarast
þannig:
Við fyrstu spurningu er svarið: Já.
2. spurning fellur af sjálfu sér við
svar þeirrar fyrstu.
3. Heimskringla hefir aldrei
sagt neitt um gæði félagsins, nema
það sem stendur í auglýsingu félags-
ins i hlaðinu, og sem ritstj. Hkr. ber
enga ábyrgð á.
4. Rúm var keypt í blaðinu fyr-
ir þá auglýsingu félagsins, sem svo
mjðg vfrtist hafa hneykslað ritstj.
Dagskjár.
5. spurning. Svarið er, nei.
S. Christie hél t 3. dáleiðslu-
samkomu sfna í Unity Hall á fimtu-
dagskveldið var. Svo var aðsóknin
mikil, að fólkið fór að streyma að
húsinu meira en kl.tíma áður en
skemtunin byrjaði, og er það óvana-
legt hjá íslendingum að flýtasér svo
á samkomur, og löngu áður en byrj-
að var á leikjunum var húsið orðið
troðfult, svo að margir urðu frá að
hverfa vegna rúmleysis. Þessi sam-
koma var svípuð þeim fyrri. Pióf.
King sýndi nokkrar nýjar töfra-
íþróttir og þótti það hin bezta
skemtun. Þar eftir skemti Mr.
Christie meðdáleiðslu til kl. nærri
11 um kveldið, og svo var hláturinn
og hávaðinn mikill í fólkinu, að Prof.
King, sem fann oss að máli eftir
samkomnna, bað oss að geta þess að
hann óskaði að fólkiðhefði framveg-
is ögnlægra meðan hann er að sýna
fþróttir sínar. Hann kvað hlutverk
sitt vera að skemta fólkinu, en lcvað
það ekki hafa full not skemtananna,
ef of mikill hávaði væri hafður. Mr.
Christie auglýsti. að fyrir beiðni
nokkurra málsmetandi manna ætl.
aði hann að halda aðra dáleiðslu-
samkomu 4 sama stað, fimtudaginn
10. Apríl (f kveld) og verður það
væntanlega síðasta samkoma hans í
þessum bæ fyrst um sinn. — Mr.
Christie er fyrsti íal., er komið hettr
fram sem opinber dáleiðari, og land-
ar vorir hafa sýfit honum verðskuld-
aða viðurkenningu, með því að
sækja samkomur lians eins vel og
þeir hafa gert. Það er vonandi að
þeir noti vel síðasta tækilærið, sem
þeir hafa um tíma til þess að sjá
íþrótt hans, með því að fjölmenna á
Unit^ Hall í kveld.
Herra ritstj.
í blaði yðar af 3. Aprll sfðastl.
er fréttagrein frá Hnausa af 18,
Marz f. m., undirskrifuð af O. G. A.
í 4. dálki, þar sem minst er á
prestana og, þeirra á meðal, séra
Rúnólf, segir: “Ekki gat hann tek-
ið köllun þeirri er Bræðrasöfnuður
sendi honum (séra Rúnólfi) í vetur“.
Það hlýtur að vera tilhæfulaust að
Bræðrasöfnuður hafi sent séra Rún-
ólfi köllun í vetur, og bið ég yður að
skora á fréttaritarann, að hann lag-
færi þessi ósannindi, þvi margir
kunna að trúa þessu, þótt ótrúlegt
sé, en slík ranghermi geta gert sögu
leg spjöll í sögunni, þegar einhver
safnar til hennar.
Gerið svo vel og fáið þetta lagtært
pt. Selkirk, 5. Apríl 1902.
O. V. Gislason,
pi-estur Bræðrasafnaðar.