Heimskringla - 11.02.1904, Page 3
HEIMSKRINGLA 11. FEBRÚAR 1904,
Hver var orsökin til þessa?
og J>ar er beint út spursmálið sem
um er að rœða. Það er engan veg-
in rétt ályktun að ætla að þeir er
seinna komu standi hinum neitt
að baki að andlegu atgerfi, eink-
um og lfka ef a ð r a r ástæður
skyldi vera nægar fyrir hendi til
þess að sýna hvernig í öllu lág.
Svoleiðis getsakir eru meiðandi
fyrir hlutaðeigendur og særandi
fyrir foreldra barnanna, því J>að
hefir enginn rött til að segja hver
Séu “kölluð” og hver “útvalin”
nema J>vf að eins að öllum þeim
“kölluðu” sö veitt sama tækifæri
að verða “útvalin” og þeim “út-
völdu”, og í skólamálum gæti það
orðið æði margt sem þá yrði að
takast til greina, ekki sfzt undir-
búningur undir nám o. 8. frv.
Orsökin liggur því ekki þar,
Theldur á alt öðrum stað. Hér
kemur alveg nýtt mál til sögunnar,
sem maður liefir ástæðu til að álfta
að sé að einhverju leyti orsökin til
als-J>essa, eða að minsta kosti hafa
hinir og aðrir atburðir sterklega
bent í Þá átt.
JÞað mál er kyrkjupélagsaf-
SKIFTIN AF MENTAMÁLUM VORUM
HÉR NYRÐRA.
Eins og kunnugt er var J>að
samj>ykt á kyrkjuþingi lútherskra
sumarið 1901 að byrja það liaust á
kenslu í íslenzkri tungu, og var sú
tillaga endalykt hins fyrirhugaða
kyrkjuskóla, er l^ngi var búinn að
vera 4 prjónunum. Það hafði ver-
ið komist að samningi við skóla-
stjórn “Wesley Obllege” að setja
þar á fót J>essa kenslu, J>ví J>að
þótti álitlegast að geta komist að
J>eirri stofnan þar sem Isl. voru
sem þéttskipaðastir fyrir. % Enda
voru líka samningarnir á þá leið
að hagfræðislega hliðin mælti og
heldur með þvf, þvf til þess kenn-
ara, er settur yrði, lofaði skólinn
að greiða $10 af kenslugjaldi hvers
ísl. nemanda er þar væri innritað-
ur, eða eftir á kæmi þangað. Þá
var fult kenslugjald $30, og var
þetta þvf fullur þriðjungur.
Eins og enn fremur er kunn-
ugt, eftir að samningar þessir voru
fullgerðir, var valinn J>ar til kenn-
ara Friðrik Bergmann, prestur
Gardarmanna 1 N. D., en núver-
andi eftirmaður séra Hafsteins
Péturssonar við Tjaldbúðina hér f
Winnipeg. Hann byrjaði á verki
J>að haust (1901).
Til þess nú að launa þennan
nýja kennara, svo hann gæti lifað
sómasamlega, var heldur lftið fé í
sjóði hjá kyrkjufélaginu, svo til
þess að ekki strandaði alt, tók
Wesley-skólinn að sér að borga ■
þriðjung launanna, er metin voru
til $1,000, auk tíundar þeirrar, er
þegar hefir verið talin, af kenslu-
gjaldi ísl. nemendanna. Fyrir
þessa lijálp átti svo hinn n/i kenn-
ari að segja til f latfnu þeim í
undirbúningsdeildinni er skemst
voru á veg komnir, verk á móts við
það sem hra. Runólfi Fjeldsted
hefir nú verið falið í grísku.
Þetta var nú altsaman gott, og
ef vel hefði verið áhnldið, getað
orðið til þess að auka stórum hag
þjóðflokks vors hér nyrðra; enda
urðu þeir margir, er gerðu sér
mjög háar vonir, og það jafnvel
sumir er frá öndverðu voru mót-
fallnir kyrkjuskóla hugmyndinni,
þótt hitt væri alveg óreynt er alt
hvfldi á, hversu hinn til þess
kjörni kennari mundi ieysa verk
sitt af hendi.
En svo bættist þar ofan á þá
um haustið (1901), að háskólinn
færðist undan að veita kenslu þess-
ari viðurkenningu, svo þeir af
nemendunum, er vildu sinna
þessunokkuð, urðu aðtaka fslenzku
alveg umfram J>að verk er skólinn
ákvað. Þetta jók strax á byrði
fslenzkra uemenda, þvf það var
líklegt að þeir mundu vilja nota
sér þessa íslenzku kenslu, enda
voru þeir hinir einu er það gátu,
þvf kenslunni hefir ætíð verið svo
tilhagað að þeir einir geta notið
hennar er áður kunna málið. Hér
reis þvf upp “þrándur 1 Götu” fyr-
ir þá er voru að keppa við að ná
sem beztri einkunn, þótt þess
gætti ekki það ár, því nemendurn-
ir sáu flestir um sig, og fóru sfn-
um ráðurn fram.
|
í fyrra fór það dálftið á 'annan
veg. I fyrrahaust var gefinn kost-
ur á að velja íslenzku í stað ein-
hverrar annarar námsgreinar í
fyrri bekk undirbúningsdeildar-
innar, og kvað þá við í blöðunum
hér, að nú væri íslenzkan viður-
; kend af háskólanum, sem þó £var
, ósatt, þvf undirbúningsdeildin
tilheyrii barnaskólanum, Enjliitt
var rétt, að fyrir þá sem nú komu
inn á skólann í fyrsta skifti var
fslenzka í vali, og það hafði óbein-
línis áhrif f þá átt að gera breyt-
ing á fyrirkomulagi því, er verið
j hafði, og vali þvf er ísl. nemendur
j höfðu gert undanfarandi ár.
Þetta f sjálfu sér hefði nú
ekki orðið svo háskalegt,|ef hér
hefði ekki komið enn eitt atriði
við sögu, en það var leiðin sem
með þessu móti laukst upp hinum
nýja kennara að hafa afskifti af
j íslenzku nemendunum. Þessi af-
í skifti hans hafa komið fram f
{tveim myndum, nefnilega fyrst,
I að hafa áhrif 4 þá Isl. er á skólann
koma í vali þeirra á námsgreínum
skólans, og hið annað að beita öll-
um þeim meðölum sem hægt • hefir
verið við að hafa að koma þangað
sem flestum ísl. unglingum, hversu
j sem [>eir hafa verið fyrir það kall-
aðir eða undir það búnir, og þar
af hafa þeir sopið.
Um hið fyrtalda þýðir ekki að
fjölyrða, þótt hægt sé að sjá í
hvaða tilgangi slfk afskifti eru.
Oneitanlegt er það, að eitthvað
kemur það samt undarlega fyrir
frá manni, sem opinberlega hefir
lýst sig mótfallinn öllu fornfræðis-
grúski í skólum, að ráðleggja nú
öllum hinum yngri löndum sfnum
er inn á háskólann koma
AÐ VELJA GRfSKU í STAÐ NÖTÍÐAR-
MÁLANNA,
þýzku og frönsku, er skólinn gefur
kost á, og fslenzku f stað náttúru-
vfsinda. Svoleiðis ráðleggingar
eru ekki gerðar rétt af handa hófi,
þegar að því er gætt, að grfsku-
lærdómur er eitt aðalskilyrðið fyrir
þvf að geta orðið góður
GUÐFRÆÐISKANDIDAT.
Þessi grfsku-lærdóms-ráðlegg-
ing er heldur ekki nein heimug-
legheit kennarans eins, þvf einn
kyrkjufélags-presturinn spurði ný-
lega einn pemandann héðan frá
Wesley,
HVERNIG HONUM GENGI MEÐ GRÍSK-
UNA!
Taldi það sjálfsagt að allir íslend-
ingarnir við skólann tæki grfsku.
I þvf tilfelli hafði samt Þeirri ráð-
leggingu ekki verið fylgt.
Hér mætti að eins benda
þeim á, sem ekki liafa tekið eftir
hvert stefnir, hvað verið er að gera.
Það er verið að reytia að koma fsl.
nemendum til þess að velja sér
þann veg nú í byrjuninni, að á
sfðan, þegar þeir hafa lokið námi
hér, þá eigi þeir um ekkert að
velja nema prestaskólann. Er
! þetta hin óhlutdræga velvild þ>jóð-
i ernis hetjunnar, er vill gera alt
karlkyn þjóðar sinnar að prestum,
“alt það sem getur p.... upp við
vegg”, eins og ritningin segir, eða
jer það—hvað?-
Hin síðartöldu afskifti kenn-
arans koma beinna við þetta mál,
i enda liafa þau orðið miklum mun
háskalegri. Meðan ísl. pilt-
j arnir voru sjálfráðir, hvenær þeir
byrjuðu á námi við háskólann,
byrjuðu þeir ekki fyr en þeir voru
svo forsvaranlega undirbúnir að
þeir gátu uppfylt þær kröfur er
i fyrir hendi lágu, og það var stóra
í hjólið f þvf öllu, hvað þeir stóðu
! sig vel. .
Þetta breyttist strax og byrj
að var þar á íslenzku-kenslu, því
nú var um að gera að fá sem flesta
til að sækja skólann, bæði til þess
ekki yrði liægt að segja að þetta
fyrirtæki liefði mishepnast og
engir notað sér kensluna, né að
hún gæti ekki borið sig fjármuna-
lega.
Það var þvf byrjað með þeirri
alkunnu tilkynningu “að við
Wesley Oollege væru engin þekk-
ingartakmörk sett að neðanverðu”,
og öllum væri nú óhætt að koma,
hvað sem skólaundirbúningi liði.
Sfðan var unglingum smalað sam-
an út um bygðirnar og hrúgað
inn á skólann. .Foreldri voru
Músin í kafFibaununum.
Það er ekki skemtilegt
að vita af músinni í kaffi-
baununum. Þegar kaffi er
geymt óbrent er ómögu-
legt að giska á hvað sam-
an í það kann að slæðast.
PIONERR KAFFI.
vel brent, í forslgluðum
pökkum, ætíð lireint,
ferskt og bezta tegund og
ágætt á bragðið.
Biðjið
matsalann yðar um :
Haldið samam
“Coupons” og
skrifiið eftir veð-
listanum. TIL REITT AF: ^
Blue Ribbon Mfg. Co. Winnipeg- ^
TUiiu miiimimimimimLmmmmmtfZ
egnd á þvf að þótt þ e i r r a börn
væri svo og svo illa undirbúin þá
væri þ e i m svo sem'óhœtt. Væru
börnin komin í sjötta bekk al-
þýðuskólans þá væri öllu óliætt.
Mest gekk á með þessa smöl-
un árið sem leið, enda fór þá eins
og fór. Það er víst engum blöðum
um það að fletta, að þar í liggur
aðalástæðan fyrir óhöppum þeim,
sem mættu fslenzku nemendunum
við vorprófin f fyrra. Það er því
fast að því áreiðaulegt að endalok-
in gátu ekki orðið önnur, hverjum
ráðum sem hefði verið beitt. Ungl-
ingarnir streymdu inn á skólann
óundirbúnir J>að verk er þeir áttu
að gera og gátu þar afleiðandi ekki
leyst það af liendi. Enda sá skóla-
stjómin það strax f byrjun. Hún
varð að neyðast til að skipa þeim
auka kennara er urðu að segja
þeim til f almennum alþýðuskóla-
greinum, ef ske mætti að með því
mót gæti sú tilsögn, er skólinn
eiginlega veitir, orðið þeim frekar
að notum. I tilefni af þessu hefir
svo verið sett f þessa árs skóla-
sk/rslu Wesley College, aukagrein
um það, að framvegis verði allri
slfkri tilsögn liætt frá skólans
hálfu, og þeir er liör eftir komi ó-
undirbúnir á skólann verði að bera
ábyrgð þess sjálfir og borga alla
aukakenslu er þeir kunni að þarfn-
ast, (sbr bls. 12).
Með því sem þegar hefir verið
tilfært þarf ekki að undra þótt illa
færi. Enda get ég ekki verið yð-
ur samdóma herra ritstjóri um að
úrslitin f vor liafi verið önnur en
ill, né neitt lík þvf er þér segið.
Þó álít ég að tildrögin f sambandi
við þessi úrslit og vonbrigði þeirra,
er lagt höfðu miklar byrðar sör á
bak að kosta börn sfn liér, séu
verst. Eg segi, úrslitin eru ill, og
nær því að vera lóðrétt eftir orð-
um þeim sem þér hneykslist á hjá
Br. Brynjólfssyni.
I fyrsta lagi þá er hér að eins
að ræða um þá er vóru f fyrri bekk
undirbúningsdeildarinnar en ekki
hina er komnir voru upp í
“College”-deildina, þeir koma
þessu máli ekkert við. Þeir voru
hér áður en þessi mál, sem um er
að ræða, komu til sögu, enda náðu
þeir allir ágœtisprófi í vor.
Þeir sem innrituðust við
Wesley f fyrri bekk undirbúnings-
deildarinnar voru 10 að tölu. Þar
að auk voru í þeim sama bekk frá
árinu áður 5 nemendur, er gerir
als 15 talsins. Af þessum 15 náðu
4 prófi, 4 féllu og 7 skrifuðu ekki.
Yið aðrar mentastofnanir hér
tóku próf sama bekkjar 3 ísl. nem-
endur, og stóðust þnð allir. En
ekki koma þessir heldnr málinu
við. Við Wesley voru og 2 er tóku
próf síðari bekkj;>r undirbúnings-
deildarinnar og stóðust það. Þeir
einnig koma þessu máli ekki við,
Við búnaðardeild skólans voru
nokkrir nemendur er ekkert próf
tóku, ogí Collegedeildinni 5, er
allir stóðust próf.
En til þess nú að setja allar
þessar tölur f procenta liði, eins og
þér gerið, hra. ritstjóri, þá standa
reikningarnir svo: •
Tala ísl. nemenda f fyrri
bekk undirbúningsdeildarinnar við
Wesley 15 als. Af þeim náðu 4
eða 26| per cent prófi, 7 eða 46|
per cent skrifuðu ekki, og 4 eða
26| féllu. í öðrum deiþfum skól-
ans voru 7 nemendur og allir tóku
próf og stóðust það. Vitaskuld
koina þeir ekki þessu máli við, eins
og ég hefi bent á, en til þess að
taka þá með líka, þá verða tölumar
á þessa leið:
Nemendur við Wesley er próf
áttu að taka 23 als. Af þeim náðu
prófi 11 eða sem næst 50 per cent.
7, eða 32 per cent skrifuðu ekki,
en 4, eða 18 per cent féllu.
Bera svo þessi úrslit saman
við það, sem Hkr. segir að af inn-
lendum hafi 23 per cent fallið á
prófi, og þar eru þeir með taldir er
ekki skrifuðu, þá verða þó landar
vorir töluvert á eftir, því ef slík
væri tekin talan þá væri procenta-
tala þeirra er féllu 50 per cent, eða
fullur helfingur.
Það er ekki rétt getsök hjá
yður, herra ritstjóri, að þessu máli
hafi verið hreyft til þeps að draga
kjark úr fsl. neinendum með að
sækja skóla. Tilgangur þeirra, er
um þetta hafa ritað, hefir als ekki
verið sá. heldur hinn, að hér sé um
atriði að ræða er ekki megi þegja
fram af sér. Það er líka alveg
rangt að reyna að breiða yfir ein-
mitt það atriði, eins og þér gerið.
Það er enginn hlutur til, sem
frekar gæti orðið til þess að vekja
óhug Isl. á mentamálum hér, en
einmitt það að sá rekspölur kæmist
á sem nú er byrjaður,
Enn frernur ber þess að gæta,
að skólaféð er ekki brúkað sem
styrkur fyrir fsl. nemendur hér
nyrðra Það hefir aldrei verið
þeim til neins styrks og engra
hlunninda hafa þeir þaðan notið
enn þá sem komið er. Meðan svo
stendur er ekki hægt að tala um
styrk, nema ef vera skyldi “mór-
alskan styrk”, er getur skeð að
hafi orðið einhverjum að liði. En
meti þeir það sem kunna,
Winnipeg 4. Jan. 1904.
R. PÉTURSSON.
HINN AQŒTI
‘T. L.’ Cigar
er laugt á undan, menn ættu ekki að reykja
aðra vindla en þá beztu. Búnir til hjá :
WESTERN CIGAR FACTORY
Tho*. Lee. eigandi. 'WinSTJSTXTPEa-.
HANITOBA.
Kynnið yður kosti þess á*ur en þér ákveðið að taka yður bólfestu
annarstaðar.
fbúatalan í Manitoba er nú.............................. 275,000
Tala bænda í Manitoba er................................ 41,000
Hveitiuppskeran i Manitoba 1889 var bushels............. 7,20l!619
“ “ 1894 “ " ............. 17,172,888
“ ■ “ 1899 “ “ ............. 27,922,280
1902 “ “ ............. 58,077,207"
Als var kornuppskeran '1902 “ “ ............. 100,062,348
Tala búpenings í ManitoHh er nú: Hestar.................. 146!691
Nautgripir............... 282,848
Sauðfé.................... 35,000
Svin................... 9? ,598
Afurðir af kúabúum í Manitoba 1902 voru................. 8747.603
Tilkostnaður við byRginRar bænda i Manitoba 1899 var!!.... <1,402,800
Framförin i Manitoba er auðsæ af fólksfjölguninni, af aukni m
afurðum lanisins, af auknum járnbrautum, af fjölgun skólanna, af va i-
andi verzlun, af vexti borga og bæja, og af vaxandi veliiian
almennings,
í síðastliðin 20 ár hefir ræktað land aukist úr ekrum.... 50 000
Upp i ekrur....... .......................................2,500 000
og þó er siðastnefnd tala að eins emn tíundi hluti af ræktanlegu landl
í fyikinu .
Manitoba er hentugt sræði til aðseturs fyrir innflvténdur þar er
enn þá mesta gnægð af ágætum ókeypis heimilisréttarlöndum og mðr»
uppvaxandi blómleg þorp og bæir, þar sem gott er til atvinnu fyrir
karla og konur.
í Manitoba eru ágætir /riskólarfyrir æskulýðinn.
í Manitoba eru mikil og fisksæl veiðivötn, sem aldrei bregðasc.
í bæjunum TFinnipeg, Brandon, Selkirk og fleiri bæjum mun ní
vera vfir 5,000 tslendingar, og í sjö aðal-nýlendum þeirra í Manitoba,
eru rúmlega aðrar 5,000 manna. Þess utan eru i Norðvesturhéruðunum
og British Columbia um 2,000 tslendingar.
Yfir 10 mtllionír ekrur af landi í Hanitoba, sem enn þá
hafa ekki verið ræktaðar, eru til sölu, bg kosta frá Í2.50 til 86.00 hver
ekra. eftir gæðum, Þetta land fæst með vægum kaupskilmálum.
Þjóðeignarlðnd í öllum pörtum fylkisins, og járnbrautarlönd með
fram Manitoba og North Western járnbraútinni eru til sðlu.
Skrifið eftir nýustu upplýsingum, kortum o. s. frv. alt ókeypis, tiJ
IlOiI R. P RORL.IM
Minister of Agriculture and Immigration,
WINNIPEG, MANITOBA.
Eða til:
.1 oaeph B. Skapatson, innflutninga og landnáms umboðsmaður.
Mikill Gróði I Hænsnarækt.
Ef þjer hafiö Klondike hænur. það er
undraverö Amerisk hænsnategund’ Eru bestu
sumar og vetrar verpihænur i heimi. % Ég
fókk 885 egg í Jauúar 1903 fr6 20 Klondike hæn-
um eöa 3873 egg ári frá 20 Klondike hænum.
l>ær eru ieöraöar einsSog gæsir eöa svanir.
Eg nú aö afgreiða pantanit um útungunar egg.
I>aÖ er mikil eftirspurn eftir þessum Klondike
hænu eggjum. Svo ef þjer óskiö aÖ fá eitt-
hvaö af þeim þá sendiö póntun yðar hiö allra
fyrsta. Eftir 15. JVIarz verða pantanir af-
greiddar i þeirri röö sem þær koma.
DragiÖj okki aö kaupa þau, því þaö er gróöa
bragö aö eiga Klondike hænur Sendið strax
cent Canada eöa Bandarfkja frímerki og fá-
i Catalogue meö fullri lýsingu Klondike
hænsa. Sendiö til,
KLONDIKE POULTRY RANCH.
Maple Park, Kane County 111. C. S A
JON V. THORLAKSON,
747 ROSS AVE.
Hytur alskyns farangur og bús-
gögn um borgina á öllum tímum
dags, og fyrir lægsta verð.
Telephone 2479 er í húsinu
Bústaður séra Bjarna Þórarins-
sonar er nú 725 á Sheibrooke street
Strætisvagninn rennur fram hjá hús
inu.
Woodbine Restaurant
Stærsta Billiard Hall i Norövesturlandin
Tíu Pool-borð,—Alskonar vín ogvindlar.
l>ennon A Hebb,
Eicendur.
‘Ailíiii-Liiian’
flytur framvevis íslendinga frá ísland
til Canada or Bandarfkjanna upp á ó
dýrasta or bezta máia, eins og hún
ávalt hefir gert, og ættu því þeír, seœ
vilja senda frændnm og vinutn fargjöld
til íslands, að snúa sór til
hr.II. M. Itardal i WinnipeR, sem
tekur á móti farRjöldum fyrir nefnda
linu, ok sendir þau upp á tryRgasta og
bezta máta, kostnaöarlaust fyrir send
anda og móttakanda, or gefur þeim
sem óska, aliar upplýsingar því við-
vikjandi.
Fari ekki sá sem fargjaldið á að fá
fær sendandi peningana til baka sér að
kostuaðai lausu.
50,000 ekrur í Suðaustur
Saskatchewan. Yerð $3*4
—$4 ekran. Tíu ára af
borgun. Sléttur og skóg
ar. Gripir ganga úti eftir
jól. Hveiti 40 bushels af
ekru. við járnbraut; ódýr-
ar skoöunarferöir.—Skrif-
iö eftir uppdrætti og upplýsingum. Scandina
vian—Amorican Land Co. 172 Washington St.
Chicago.
OLI SIMONSON
MÆLIR MEÐ 8ÍNU NÝJA
Skandinavían Hotel
71» nain Str
Fæði 81.00 á dag.
Bonnar& Hartley,
Liögfræðingar og landskjalasemjarar
494 nain St, - - - Winnipeg.
R. A. BONNER.
T. L, HARTLBV.
(];inadiiin pacific [{ailwaf
Jola skemtiferdirnar i
Desember.
Fram og aftur
lœgsta fargjald
til allra staða f
ONTARIO,
QUfiBEC
SJOFYLKJANNA.
Gildir þrjá mánuði.
Viðstöðuleyfi veitt þegar komið er
austur fyrir FORT WILLIAM.
TOURIST
og fyrsta pláss
SVEFNVAGNAR
á hverjum degi.
Jola og nyars-farbrefin
fram og til baka kosta TVO ÞRIÐJU
vanaverðs.—Farbréfin til söln Des.
21. til 25. og 30. 31., og Jan. 1.
Gilda til 5. Jan., að þeim degi með
töldum.
Eftir frekari upplýingum snúið yður
til næsta umboðsmanns C. P, R. fól
eða skrifið
C. E. McPHERSON,
Gen. Pass. Agent,
WINNIPEG.