Heimskringla - 12.05.1904, Blaðsíða 4
HEIMSKRINGLA 12. MAÍ 1904.
West End - =
Bicycie Shop,
477 Portage Ave.
Pár erii seld þau stetkttstú 6g fallegustu
hjól, sem til eru I Catiada, meö 10 pcr cent af-
slœtti, móti pehingum út 1 hönd. Einnig móti
niöurborgunum og mánaöarjafborgunum. Göm-
ul hjól keypt og seldjfrá $10 og upp. Allar aö-
geröir leystar af hendi fljótt og vel. Llka fœst
þar alt sem fólk þarfnast til viöhalds og að
geröar á hjólum slnum.
Jon Thorsteinsson.
Winnipe^.
Frést hefir að nú sé unnið a:'
kappi að rafmagns sporbrautinni
milli WÍDnipeg og Selkirk, og er
búist við, að hún verði fullger tím
anlega á þessu sumri.
Bæjarstjómin hefir síðan á xiýj-
ári veitt byggingaleyfi fyrir 766
húsum hér í bænum, sem samtals
eiga að kosta $2,500,000.
ísl. lút. kirkjan á horninu á
Bannatyne Ave. og Nena St. er nú
svo langt til fullger, að söfnuður-
inn vonar að geta haldið guðs-
Þjónustur sfnar þar f næsta mán-
uði. Kirkjuþingið næstíi verður
og haldið þar.
Sunnudaginn kemur, þ. 15. þ.m.,
verður messað í Úiiitara-kirkjunni
kl. 3e.h. Við guðsþjónustuna fer
fram ferming nokkurra ungmenna,
samkvæmt hinni únitarisku kenn-
ingu.1? Allir eru boðnir og vei-
komnir. Sunnudagaskólinn verð-
urhaldinn kl. 11 fyrir hádegi.
Herra W. F. McCreary, rikis
þingmaður fyrir Selkirk kjördæmi
varð bráðkvaddur f rúmi sínu
Ottawa f síðustu viku. Lík Tians
var flutt tilWinnipeg og greftrað
laugardaginn var.
í tilefni af fyrirspum skal þess
hér getið, að hr. H. S. Bardal, E1
gin Ave. og Nena St., Wpeg., hefir
útsölu á fsl. blöðunum; þar með
talin “Reykjavík” og “Þjóðólfur.”
Rauðá hefir um síðastl. nokkra
daga verið svo vatnsmikil að hún
hefir flætt yfir bakka sfna austan
megin og flætt láglendið f St.Boui
face. íshúsið á bakkanum austan
vert við Broadway-brúna hefir
skemst af völdum flóðsins og 3000
tons af fs eyðilagst
Sveitarstjórnin í Gimli - sveit
kom til bæjarins í vikunni sem leið
til að ræða jámbrautarmál við
fylkisstjórnina. En með því, að
stjómendur C. P. R. félagsins, sem
hafa leyfi til að byggja um Nýja
ísland, voru austur í Montreal,
J>á gat ekki orðið útrætt um f>að
mál í þetta sinn.
Júní-heftið af kvennablaðinu
The Delineatok er n/útkomið.
Það sýnir nýjasta fatasnið og hætti
f New York, London og París, og
hefir auk þess margar skemtilegar
smásögur og ritgerðir um húshald,
matargerð og fleira, sem allar kon-
ur ættu að vita. Hvert hefti af
tímariti þessu kostar 15c.
Landi vor Andrés Freeman varð
fyrir því slysi á mánudaginh var,
að detta ofan f kjallara, sem verið
var að byggja undir húsi hans á
William St. Við fallið hrundu
nokkrir steinar ofan á hann og
meiddu hann svo mikið, að hann
er sagður að hafa lær- og hand-
leggsbrotnað. Hann var þegar
fluttur á hospítalið og f>ar hlynt að
honum sem bezt mátti verða; en
sagt er að hann muni verða þar
nokkrar vikur áður en hann fær
bata. ___________________
Stovel’s Guide fyrir maí er ný-
útkomin, 160 bls., með alskonar
upplýsingum um lestagöngur á
jámbrautum og póstvegum, um
banka- og peninga-mál, landtöku-
og náma-lög, um burðárgjald á
póstsendingum og önnur póstmál;
einnig má þar finna nöfn og afstöðu
allra pósthúsa f Manitoba og Norð-
vesturlandinu, og ýmsar aðrar fróð-
legar og nauðsynlegar upplýsingar,
sem allir ættu að hafa handbærar.
Með bæklingi þessum eru upp-
drættir af Manitoba og Norðvest-
urlandinu og af Winnipeg. Hvert
hefti kostar 10 cts. og fæst hjá öll-
um bóksölum.
C.P.R. félagið hefir gert samn-
inga við þá félaga Deekes & Deekes
að byggja undirgöngin á Main st.
Sagt er að kostnaðurinn við það
verk muni verða um $100 þúsund,
og að byrjað verði tafarlaust á þvf.
Einníg verða samningar um bygg-
ingu á vagnstöðvahúsi félagsins
gerðir opinberir innan fárra daga,
og þá einnig byrjað strax á því
verki.
ísl. Conservative klúbburinn
hélt síðasta Pedro-spil sitt sfðast-
liðið mánudagskveld. Vinnendur:
Gullhnappinn, M. Peterson; silfur-
hnappinn, Paul Olson, og látúns-
hnappinn, Sigf. Oddson. TJtbýting
verðlaunanna fyrir vetrar-spila
menskuna fer fram í kveld, p. 12
Allir félagsmenn og vinir þeirra
boðnir og velkomnir. Góð skemt-
un og veitingar.
De LiiViil Separators.
TEGUNDSÚSEM MJÖLKUR-
BÚAMENN NOTA. *
Sumt fólk hefir þá skoðun, að De La-
val skilvindurnar séu dýrari en aðrar rjóm-
asKÍlvindur vegna þess, hve langt J>ær taka
öllum-öðrum vindum fram að gæðum.
Þetta er skökk skoðun. Verðið á De
Laval vindum er ekki hærra, en aðgerðar-
kostnaður margfalt minni en á lakari teg-
undum.
Skrifið eftir upplýsingabæklingum til:
THE DE LAYAL SEPARATOR Co.
248 McDermot Ave. — ! Winnipeg, Man.
^MÖNTMaL TORONTO NEW VORK CHICAGO PHILADELPHIA SAN FRANCISCO '
ið, og niðurstáðan varð, að hann
sannfærðist um, að félagið hefði
lagalegan rétt til að halda eftir því
sem það gerði, eða allri upphæð-
inni, ef það hefði viljað J>að. Erf-
ingjarnir tóku það, sem að J>eim
var rétt, og svo er sagan öll,
Endum/jun fylkisskránna fyrir
Gimli kjördæmi fer fram svo sem
hér segir:
Scotch Bay í húsi Thos. Malcolm
25. Maf.
Minnewakan, í húsi Sig. Hom
fjörð, 26. Maf.
Mary Hill, f húsi Guðm. Guð
mundssonar, 27. Maí.
St. Laurent, í húsi L.Atkinson’s
28. Maf.
Seamo, í húsi H.Seaman, 30. Maf.
Markland, f húsi Peter Eirfks
sonar, 31. Maf.
Galicfubygðinni, f húsi George
Babitski, 2. Juní.
Gimli, 1 húsi Ben. Jónassonar,
3. Júnf.
Árnes, í húsi Alb. Jónssonar,
4. Júnf.
Geysir, í húsi, Sig. G. Nordal,
6. Júnf.
Icelandic River, í húsi, Thorgr.
Jónssonar, 7. Júnf.
Hecla, f húsi Bjama Stefánsson-
ar, 8. Júnf.
Setutími skrásetjarans verður
eftir miðjan dag og að kveldinu á
eftirfylgjandi stöðum: Markland
Galicfubygðinni og Geysir. Á
öllum hinum stöðunum er vonað,
að hægt verði að sitja bæði fyrir
og eftir miðdag.
Allir þeir, sem óska að koma
nöfnum sfnum á lista, en era þar
ekki nú þegar, era ámintir um að
sækja persónulega þá setustaði,
sem þeim er hentugast að komast
til, og sjá um, að nöfn þeirra verði
sett á listana.
Mutual ReserveFund lífsábyrgð-
arfélagið, sem Heimskringla lét
sér ant um að augl/sa fyrir nokkr-
um árum, hefir nýlega borgað dán-
arkröfu Helga sál. Illhugasonar,
sem andaðist hér f bæ þann 26.
september, f. á. Lífsábyrgðar upp-
hæð hans í félaginu var $3,250.00.
Þessari ábyrgð hefir verið haldið
uppi um 12 ára tfma, og allar kröf-
ur félagsins að meðtöldum öllum
aukakröfum höfðu verið borgaðar f
gjalddaga, svo að um ekkert var
að ræða, J>egar Helgi sál. dó, nema
að erfingja/nir veittufénumóttöku.
! )ánarkrafan var, strax eftir lát
Jelga, send austur til félagsins.
Það svaraði strax um hæl að það
hefði meðtekið kröfuna og viður-
lendi hana að vera rétta. Nokkru
sfðar kom annað bréf frá félaginn
rnr sem það skýrir erfingjunum frá
)vf, að peir fái $2,400 af upphæð-
inni, en $850 verði halðið eftir til
)ess að félagið geti með J>vf borgað
sjálfu sér J>að tap, sem það hafi
orðið fyrir við að halda lífsábyrgð-
inni í gildi. Erfingjunum þótti
ietta svo k/nlegt, að þeir fengu
’ögfræðing til þess að athuga mál-
Nöfn þeirra, sem embætti hafa f
kvennastúkunni “Fjallkonan,” No.
149, I.O.F.: Court Deputy, Mrs.
A. E. Eldon; Court Physician, Dr.
O. Björnsson; Chief Ranger, Mrs.
Oddn/Helgason; Vice-Chief Ran-
ger, Mrs. M. J. Benedictson; Re-
cording Secretary, Mrs.A.E.Eldon;
Financialj Secretary, Mrs. Anna
Gfslason; Treasurer, Mrs. Signý
Olson; Chaplain, Mrs. Jóna Guð
mundsson; Senior Woodward, Mrs
Guðlaug Freeman; Junior Wood
ward, Mrs. Guðrún Jóhannsson
Senior Beadle, Mrs. Kristín Thor
steinsson, and Junior Beadle, Mrs
Sigríður Mýrdal. Meðlimir stúk
unnar eru beðnir að muna eftir
því, að þetta ár er aðeins einn
læknir fyrir stúkuna.
A. E. Eldon, R.S.
Herra Gunnlaugur Sölvason
West Selkirk hefir tekið að sér
umboðsstöðu þar f bæ fyrir Heims-
kringlu, bæði að innheimta and-
virði blaðsins og útvega þvf n/ja
kaupendur. Vér biðjum viðskifta
menn blaðsins að taka honum vel
og greiða erindi hans svo sem bezt
eru föng til.
Einnig biður hann þess getið að
hann hafi tekið að sér innheimtu
fyrir DeLaval félagið ásamt sölu á
skilvindum þess.
De Laval skilvindurnar eru hin-
ar beztu og verðið tiltölulega lágt.
Gunnlaugur væntir þvf þess, að sér
verði vel ágengt f erindnm J>ess
ekki síður en f erindum Heims
iringlu.
Níðings-glæpur
(Eftir “Reykjavík” 30. aprll,1903)
Mannhundur kvelur lff úr bami
með hor og pyndingum. — Sóknar-
presturinn hilmar meðferðina með
íonum. — Afskiftaleysi oddvita,
prófasts og s/slumanns.
Oddur Stígsson heitir bóndi á
Skaftárdal, efsta bæ á Sfðu (V,-
Skaftafellssýslu) og flutti þangað
úr Mýrdal í fyrra vor. Hann bauð
undirboð f niðursetnings-dreng, 10
ára gamlan, sem verið hafði áður f
lörgsdal með 50 króna meðlagi.
Oddur tók hann fyrir 20 kr. Með
jólaföstubyrjun fór faðir sveinsins
Páll Hansson — sagður launson-
ur Áma sýslum. Gíslasonar) að
vitja hans. Þótti honum þá sveinn-
inn líta svo út og vera svo illa með
lann farið, að hann bar sig upp
um það við oddvita. Oddv. vildi
>ví engu sinna, en bað J>ó sóknar-
prest (séra Svein Eirfksson f Ás-
um) að skoða bamið. En prestur
sendi aftur embættisvottorð um,
að verustaðurinn væri hinn ákjós-
anlegasti, drengurinn væri “ágæt-
ega” útlftandi, og svo ánægður
>ar, að hann vildi með engu móti
laðan fara (!!). Faðirinn tjáði
s/slumanni vandkvæði sfn, en liann
ét sig litlu skifta. Enn kærði fað-
irinn skriflega fyrir prófasti vott-
orð prests og kvað presti hafa veríð
“mútað með brennivíni” af Oddi
Stígssyni. Ekki kvað prófastur
þó hafa skorist í málið heldur; að
eins haft bréfið til að sýna J>að
gestum 0g gangandi, Hafa þeir
allir, oddviti, sýslumaður og próf-
astur, auðsjáanlega trúað vottorði
séra Sveins. Það er dagsett 12.
desbr. Þá á barnið að vera vel í
holdum og ágætlega útlftandi! En
þrem mánuðum og 14 dögum síðar
(26. f. mánaðar) deyr bamið. Þá
sendir s/slumaður J>egar menn eft-
ir lfkinu; 2 læknar skoða J>að;
rifin má J>á telja á 23 feta færi
álengdar; svo var það horað. Svört
kolbrandssár á fótum inn í beín
Eyrun klóruð og rifin, enda hefir
Oddur játað á sig að hann hafi
dregið bamið á eyrum og hengt
það á eyrum niður um uppgöngu
svo fætur náðu eigi niður. Áverk
ar eftir barsmíð á gagnauga og
efri vör, bakið blámarið undan
höggum alt frá miðju baki niður
undir hnésbætur. — Sakamálsrann
sókn er hafin gegn Oddi Stígssyni
og vœntanlega prestinum líka, sem
vottorðið gaf; og mun s/slum. án
efa geta fengið vitneskju um, með
þvf að yfirheyra tvíbýlisfólkið
Skaftárdal o. fl., hvort barnið hafi
verið “ágætlega” útlítandi um 12
desbr.
Þessi grein úr “Reykjavík” er
birt fyrir tilmæli eins landa hér í
bænum Greininni hefir ekki verið
mðtmælt á íslandi, og má þvf full-
yrða, að hún sé sönn, eins og lfka
enginn hefir efað, sem fylgst hefir
með máli þessu. Ritstj.
Séra Stefán Sigfússon hefir bygt
sér hús og b/r nú að 606 McGee St
Sigurbjörg Pálsdóttir á bréf á
skrifstofu Hkr., úr Strandasýslu á
Islandi.
Bending.
Telephone númer mitt er 2842.
Búðirnar eru 591 Ross Ave, og
544 Young St.
G. P. Thordaeson
^nwnnttmnmm mnnnmmntnt^
HEFIRÐU REYNT?
DREWRY’S
REDW00D LAGERI
EDA
EXTRA P0RTER.
Við ábyrgjustum okkar ölgerðir að vera þær hreinustu og beztu,
og án als gruggs. Engin peningaupphæð hefir verið spöruð við til-
búning þeirra. Ö1 okkar er það BEZTA sg HREINASTA
LJÚFFENGASTA, sem fæst.
Biðjið um það hvar sem þér eruð staddir Canada,
og
Edward L. Drewry - - Winnipeg,
Hlaitatactarer & Importer,
PALL M CLEMENS
BY GGIN GAMEISTAKI.
468 Jlain St. Winnipeg
BAKER BLOCK.
PHONE 2 6 85.
V a n t a r
”Second Grade“ kennara frá
þessum tíma til Júnf mánaðarloka.
Umsækendur tilgreini kaupgjald,
og æfingu er þeir hafa í kenslu-
störfum sfnum.
Gimli 14. April 1604.
B. B. Olson, Sec. Treas.
ALMANAK
fyrirárið 1904,
—eftir—
S. B. BENEDICTSSON,
er til sölu hjá höf., 530 Maryland
St, Winnipeg, og hjá útsölu-
mönnum.—Verð 25 cent.
‘HIÐ ELSKULEGASTA BRAUÐ’
“Ég fékk J>á elskulegustu brauðköku með þvf
að nota RÖYAL HOUSEHOLD MJÖL, það
gat ekki hafa orðið betra,—svo hvítt, létt og
gott sem mögulegt var.” Þetta er kafli úr bréfi
frá einum notanda
Ogilvie’s “Royal Househo/d ' Mjol
Yér höfum ýms samkyns bréf. Oss þætti mjög
vænt nm, að þér vilduð reyna J>etta mjöl og rita
oss svo álit yðar um J>að. Sérhver notanði
J>ess verður góður auglýsandi að ýmsn leyti, þó
ekki sé nema með því að tala við náungann um
áhrif þess. Matsali yðar selur J>að.
Agæt
íbúðarhús
til sölu
B.Gudmundsson
HÚSASMIÐUR
503 McMiIlan Ave
Hefir til sölu ágæt íbúðarhús af
/msum gerðum og stærðum,
með 5—6 herbergjum. Húsin
em úr vönduðu efni og vel
smíðuð, seljast ód/rt og með
vægum afborgunar-skilmálum.
Þeir, sem vildu kaupa hús, geta
sparað sér $70 og þar ytír með
J>vf að semja um kaupin við
Bjama sjálfan að heimili hans,
503 McMillan Avenue, Fort
Rouge, Winnipeg.
palace^lothing ^tore |
458 main street, •
Gagnvart Pösthtísinu. •
•
Aðal-fatakaupabúð íslendinga. Selur allan Maf- •
mánuð karlmanna alfatnaði með 30 % afslætti. Al- •
fatnaðir vanalegt verð $12y2, nú $9,00. ‘ •
Hattar, húfur, hálsbönd, skyrtur og alt annað, sem ' 5
klæðir menn og drengi, alt með afslætti f Mal.
G. C. Long
Kirkjueign Unitara-safnaðarins
verður seld við opinbert uppboð 4
vikur frá J>essum degi. Eignin er
Lots 40 & 41, Blck 1, a part of lot
10 of the parish of St. John as
shewn on a plan of subdivision in
Wpg. L. T. office no, 182.
Safnaðarnefndin.
‘Allin-Linan’
flytur framveeis íslendinga frá íslandi
til Canada og Bandarikjanna upp á ó-
dýrasta ok bezta máta, eins og hún
ávalt hefir gert, og ættu því þeír, sem
vilja senda frændum og vinum fargjöld
til íslands. að snúa sér til
hr.II. 8. Barilnl í Winnipeg, sem
tekur á móti fargjöldum fyrlr nefnda
línu, og sendir þau upp 4 tryggasta og
bezta máta, kostnaðarlaust fyrir send
anda og móttakanda, og gefur þeim
sem óska, aliar upplýsingar því við-
vikjandi.
Fari ekki sá sem fargjaldið á að fá,
fær sendandi peningana til haka sér að
kostnaðarlausu.
Coronation Hotel.
523 MAIN ST.
Carcoll & Spcnce, Eigendur.
Æskja viðskipta Islendinga, gisting ódýr, 40 1
svefnherbergi,—ágtetar máltíBar. Dctta Hotel
er gengt City Hail, hefir bestn ölfðng og Vindla
—þeir sem kaupa rnm. þnrfa ckki nanðsynlega
að kaupa máltfðar, sem eru seldar sérstakar.
Páll Reykdal, Lundar
P. 0., Man., selur giftingar-
leyfisbréfhverjum sem hafa
þarf.
TIL SÖLU:
100 hús og 800 lóðir f Wpg.
Húsin frá $800 til $7,000; lóðir
frá $55 til $12,500. Lönd í Mani-
toba og Norðvesturlandinu, ekran
$8 og upp. Ef kaupendur snúa
sér til undirskrifaðs, geta þeir feng-
ið alt fetta ofantalda með læ gra
verði en hjá öðram og komist
að mörgum góðum kaupum
hreinum samDÍngum.
K. Ásg. Benediktsson,