Heimskringla - 25.01.1906, Page 1

Heimskringla - 25.01.1906, Page 1
XX. ÁR. WINNIPEG, MANITOBA 25. JANÚAR 1906 Nr. 16 PIANOS og ORGANS. Heintzmau & Co. Planos.-Bell Orgel. Vér seljtJm með mánaðarafborgunarskilmáium. J. J. H MCLEAN & CO. LTD. 330 MAIN St. WINNIPEG. 4----------------------------------- NEW YORK LIFE Insurance Co." Árið 1905 kora beiðni um $400,000,000 af lífsábyrgð- um; þar af veitti fél. $296,640,854 og innkeimti fyrsta ársgjald; $50,000,000 meira en nokkurt annað lífsáb.- félag hefir selt á einu ári.— $20,000,000 var borgað fyr- ir 6,800 dánarkröfur. — $20,000,000 borgað til lifandi sk/rteinahafa fél. — $17,000,000 var lánað gegn 5 pró- sent rentu út á skýrteini þeirra. — Tekjur fél. hækk- uðu um $5,789,592, og sjóður þess um $45,160,099, svo sjóður þess er nú $435,820,859. — Lífs&byrgðir f gildi liækkuðu um $132,984,578; öll lffsábyrgð f gildi 1. janúar 1906 var $2,061,593,886. CHR. ÓLAFSS0^7, JG. MORGAN, AGENT. WlNNIPEG MANAGEK . ------------------------------------------------------ Arni Egiertsson Land og Fasteignasali Útvegar peningalán og tryggir líf og eignir SkrifsWa: Room 210 Mclutyre Block. Telephoue 3364 Heimili: 671 Ross Avenue Telephone 3033 Fregnsafn Markverðustu viðburðir hvaðanæfa. Joseph Ernest Geddes, brezkur kaupmaður í Hong Kong, hefir kvartað fyrir brezku stjórninni um að hann hafi verið liandtekinn af Rússum í Manchurfa og kærður um að vera njósnari. Hann kveðst hafa verið fluttur til Sfberíu og hafður þar f fangelsi f 6 mánuði og daglega hýddur með leðursvip- um og skipað að játa sök sína. Honum var hvað eftir annað hótað lffláti, en þó að sfðustu slept, er hann fékst ekki til að játa glæp- inn á sig. Mr. Geddes mælist til þess, að brezka stjórnin sjái um að hann fái hæfilegar skaðabætur frá Rússum fyrir meðferðina. — Gufuskip, er flytur kol, strand- aði nýlegavið strendurNova Scotia í þoku á klettum nokkrum. Skips- höfnin komst öll af með illan leik, en skipið pr algerlega tapað. — C. P. R. félagið er að l&ta byggja stór gufuskip til mann og póstflutninga milli Englands og Canad). Vélamar f sumum þeirra eiga að hafa 18 búsund hesta afl og knýja þau milli hafna á minna en vikutlma. — General Buller, sá af herfor- ingjum Breta, sem einna mestu af- kastaði f Búastríðinu, en fékk litlar þakkir fýrir, hefir verið settur á þús. punda árleg eftirlaun. Sjálfur hefir karl 20 þús. punda árlegar tekjur af eignum sfnum, svo að honum má standa á sama um eftir- launin. Hann gerir lielzt ráð fyrir a,ð gefa sig framvegis við stjórn- málum og að komast á brezka þing- ið, ef þess er kostur. — Eldur í Carnegie stálgerðar- verkstæðinu f Greenville, Pa., gerði nýlega 600 þúsund dollara skaða. Tveir menn brunnu hættu- lega f eldinum. — í skýrslum Breta er sýnt, að 143 borgir á Bretlandi nota sorpið 8em til felst f borgunum til þess að framleiða rafafl, er knýr strætis- brautavagna áfram og lýsir borg- irnar með rafljósum. — Winnipeg ætti að gera eins. — Brezku kosningarnar gengu algerlega Campbell - Bannerman stjórninni f vil. Jafnvel sjálfur Arthur Balfour, fyrverandi stjórn- arformaður, var rneðal þeirra, er töpuðu sætum sfnum; hann varð 2 þúsund atkvæðum f minnihluta. Sir Gilbert Parker, canadiski rit- höfundurinn, náði kosningu undir merkjum únfonista með 800 atkv. umfram. Hamar Greenwood, ann- ar canadamaður, náði þar einnig kosningu. — Gömul kona, 3 Ivöm og <■. karlmenn létu lffið f húsbruna hjá Portage la Praine. Annað fólk í húsinu komst með naumindum undan, — Gas hefir fundist f Edmonton bæ austanverðum. Northwestern gas og olíufélagið, sem þar á land hefir varið 25 þús. dollara til borg- unar á lóðum sfnum og fundu loks gasið á 1450 feta d/pi. Gasið er ?ott og gefur skært hvftt Ijós. Fé- agið hvgst að bora enn dýpra og vonar að fá þá aukið gasmagn. Nú erafl þess að eins 250’pund á ferh. )uml. Það er talið vfst, að hér sé eigendunum vfs auðsuppspretta og bænum viss framfarastyrkur. — Lögreglan í Pétursborg tók til fanga 22 verkamannaforingja dar í bænum og varpaði þeim í myrkvastofu 11. þ. m. Menn þessir skipuðu ráð og framkvæmd að öllu eyti fyrir verkalýðinn gagnvart stjórninni og voru ei fleiri. Lands- stjórnin lét taka þá á nætur- fundi þeirra. Einnig náði lögregl- an þá í mikið af árfðandi skjölum lessara félaga. — N/lega voru 3 Japanar teknir fastir f Seattle, Wasli., fyrir pen- ingafölsun. Þeir hafa búið til $10 til $5 seðla í stórum stíl og og komið þeim út á meðal fólks. Vita menn enn ekki, hvað mikið æir hafa falsað af peningum, en álitið, að það muni nema stórri upphæð. _—Mr. Howell, yfirforingi Sálu- hjálparhersins í Winnipeg, býst við að alt að þvf 10,000 meðlimir hers- ins flytji búferlum fráBretlandi til Canada næsta ár. — Þann 20. þ.m. varð mylnuslys f Keewatin. Mylnan var smfðuð í sumar af mannifráChicago. Myln- an lyfti og malaði grjót úr málm- náma. Þenna morgun brotnaði yftiásinn, en heljarstórt bjarg hékk neðan í honum, og var 40 fet frá botni. Tuttugu verkamenn^ voru niðri 1 námunni, er slysið vildi til. Þegar þeir heyrðu ásinn bresta, hlupu þeir strax til hliðar, en það ugði lftið, því þegar bjargið kom f botn, spýtti það frá sér grjóti og jörð, sem lenti á verkamönnum. Þrfr af þeim stórmeiddust og beið einn bana sama dag, en hinir tald- ir frá. Tveir af þeim eru Gallar og einn Frakki. í — Þann 19. og 20. þ.m. var ofsa- veður og fannkoma í vestur Can- ada. Vindurinn fór alt að þvf 40 mflur á klukkutfmanum. Snjó- koma var allmikil, svo j&rnbrautar- lestir töfðust töluvert og urðu sfð- bærar á ýmsum sröðum. Snjór kom töluverður f Winnipeg bæ, en ekki varð veðurhæð þar jafnmikil og víða annarstaðar. Snjór varð svo mikill á götum bæjarins, að töluverð ófærð var á þeim. Vagn- ar á strætum héldu stöðugt áfram. Ekki hefir heyrst getið um stór- skaða af veðri þessu. — Horfurnar til samkomulags í Vlorocco deilunum eru alls ekki á- itlegar. Þrjú stórveldin, Þýzka- and, Frakkland og Bretland, tor- tryggja hvert annað, og sfðustu l'regnir af ófriðarskýinu verða svart- ari dag frá degi. — Kfnverjar úr öllum stöðum f Minnesota ætla að safnast saman f Minneapolis 24. þ. m. til þess að halda upp á 32. ríkisafmæli keisar- ans f Kfnaveldi. Hann heitir Kwong Sui, eins og margir sjálf- sagt muna. I5LAND. N/kominn Austri segir tíðarfar vera ákaflega stormasamt og sf- feldir umhleypingar. — Vopufirð- ingar héldu upp á afmæli séra Matthfasar í sfðasta mánuði fyrra árs. Þtíir sendu skáldinu heilla- óskir f minningu þess, að þá var það 70 ára garnalt. — Seyðfirðingar eru að stofna mótorbáta ábyrgðar- félag, og æskja að fá úr landssjóði 3000 kr. styrk. — 12. des. f. á. gerði ofsaveður á Austfjörðnm og urðu af skaðar all-miklir, skip fuku og þök tóku af úthýsum, hús skektust á grunnum og hey fuku; tveir menn meiddust í ofviðri þessu._ Þann 12. nóv. f. á. var Grundar- kirkja f Eyjafirði vfgð og er talin hin fegursta og veglegasta kirkja á íslandi. Kirkjueigandinn er Magnús Sigurðsson, atgervis og at- kvæðamaður hinn mesti. Nýtt blað á að fara að koma út f Reykjavfk. Sagt að það verði stjórnarblað, og Þorsteinn Gfslason verði ritstjóri þess. Hann var um stund ritstjóri '3jarka. — Þ. 9. nóv. f. árs dó kon- súll Jóhann Vigfússon á Siglufirði. Jann varð bráðkvaddur á Akur- eyri. Hann var sonur Vigfúsar Sigfússonar, sem nú er hótelshaid- ari á Akureyri, en var lengi borg- ari á Vopnafirði. FRÉTTABRÉF. Selden, Nebr., 12. jan. 1906. Ekkert héðan að frétta nema einmunagóða tfð. Sumarið var votviðrasamt, eftir því sem menn liafa að venjast hérumpláss. Upp- skera góð á hálendi en lakari á lág- Lendi oc sumstaðar stóð vatn á áglendi nógu lengi til þess að eyði- eggja uppskeru. Haustið þurt og það sem af er vetrinum úrkomulaust að kalla. Enginn snjór fyrr enn lftið hret nú um n/árið. Frost mjög Iftil; tvis- var zero-veður. Heyskapur í bezta agi, og gripir í haustholdum. Landar hér hafa engan sérstak- an félagsskap. Þeir eru bæði fáir og langt á milli þeirra. Heilsufar gott og vellíðan yfir höfuð. Engir ' andar dáið nú í nokkur ár. Eiigir hafa flutt burtu og engir sezt að íér nú í langan tfma. í kynnisför kom hingað í sumar sem leið Leifur Magnússon frá Duluth, Minn. Ungu íslendingarnir eru nám- fúsir og hafa margir af þeim farið á hærri skóla, þegar lýðliáskóla œnslu var lokið. Flestír hafa þeir ært íslenzku, en tala hana Ifkt og raupstaðafólk heima, en fáir kunna að lesa hana til muna. Samt er talsverð löngun að vakna hjá þeim, sem á hærri skóla hafa gengið, að lynnast sögu Islands og læra málið betur. Barnabörn íslendinga munu naumast læra íslenzku í þessu bygðarlagi. Með virðingu yðar, Jón Halldórsson. Miðsvetrarsamsæti Islendinga. Svo hefir Helgi magri fyrir oss agt, að vér skulum gera heyrum iunnugt, að þau atriði, er nú skal greina, hafa þegarverið fastmælum bundin að Kristnesi. 1) Að miðsvetrarsamkvæmi skuli íslendingum haldið nú í vetur f borginni Winnipegá líkan hátt og gert hefir verið á undanförnum ár- um. Og öllum brögðum verður til þess beitt, að það verði ánægju- egra, fjölbreyttara og fjörlegra en nokkuru sinni áður. 2) Að samkvæmi þetta skuli haldið í Manitoba-höllinni. Skal það tekið fram um leið, að húsrúm er þar nú alt að hálfu meira en áð- ur, tveir salir sem notaðir verða á sama lofti, aunar til borðhalds, skeuitana og ræðuhalda, hinn fynr dans og hljóðfæraslátt. Eru salirn- ir báðir prýddir svo m kið, að hverju stórmenni, er unt væri á að benda, væri þar full boðlegur veru- staður og hýbýlaprýði svo mikil, að fæstir Islendingar hafa hugmynd um, nema þeir sæti boði Helga magra. 3) Að hófið skuli standa 15. dag febrúarmánaðar næst komandi,dag Fástfnusar hins helga, sem nú er fimtudagur, klukkan átta að kveldi. Og eru allir beðnir að koma snemma til boðs, svo skipa megi gestunum sem prúðmannlegast til sætis. 4) Að til boðsins eru kvaddir að eins 500 manns, karlar og konur. Y’erðurengum fleiri aðgangur veitt- ur, hversu mikið fé, sem í boði verður, til þess eigi verði mann- fjöldi of mikill og með því spilt fyrir ánægjunni. Ágætt húsrúm, svo vel geti farið um alla, handa svona mörgum gestum, en fastá- kveðið, að þar skuli ekkert umfram verða og með þvf trygging gefin fyrir, að öllum geti liðið vel. 5) Að samkvæmis-seðlar hafa þegar prentaðir verið og eru fáan- legir hjá hr. bóksala Halldóri Bar- dal og ýmsum húskörlum Helga magra. Teljum vér það ráð, þeim sem kaupa vilja, að ná f seðla þessa sem fyrst. Munu allir þeir, er því ráði hlfta, sig hepnismenn telja, en hinir, er skjóta augum í skjálg, verða súrir á svip, er þeir fara að leita hófanna um seinan og öll sæti eru uppseld. Enda öldungis nauð- synlegt að vita nokkurum dögum áður, hve margra gesta er von. 6) Að verið er að útvega ræðu- menn og skáld, liina helztu, sem völ er á, og eiga ræðumenn allir n/ir að verða, svo ekki þarf að kvíða hinum gömlu. 7) Að engar verða ræður fluttar yfir borðum, nema ávarp til gest- anna. En þegar gestirnir hafa gert vistunum skil, verður borðum irundið. Skifta menn sér þ& eftir geðþótta; þeir, sem dansi vilja sinna, skipa sér í danssalinn; þeir, sem kveikja vilja í vindli f reyk- salnum;en þeir, sem hug hafa á ræðuhöldum og söng, skipa sér sem næst ræðupalli til að lil/ða fjörug- um ræðum, íslenzkum þjóðsöngum og gömlurn samkvæmislögum. 8) Að á skemtiskránni verður sú nýjung, að fram kemur jungfrú ein fslenzk, forkunnar fögur, í fald- búningi fslenzkum og syngur eitt- liver áhrifamesta þjóðlagið, sem vér Islendingar eigum. 9) Að á eftir ákveðinni skemti- skrá, verða /msir af helztu gestum til þess kvaddir, að flytja stuttar ræður, og verða þá allir að vonum i úsir til að skemta, sem til þess eru i’ærir. 10. Að íslendingar skulum vér aítir vera, kveldið það. Kristnesi hinu vestra, á Yincentíusmessu 1906. Nokkurir húskarlar. KLUKKURNAR. Hringja klukkur að heilt sé ár horfið f skautið tfða. Hringið inn aftur happa-ár, heill og blessun 1/ða. Hringið á burtu hjartans sár hringið inn græðslu sára, hringið á burtu höfug tár, hringið inn bœtur tára. Hringið inn í hjörtun frið, hringið á burtu þrætur, hringið inn sátt og lireinlyndið, liringið inn rauna bætur. Hringið á burtu hræsni og tál, hringið inn fagrar dygðir, hringið á burtu heiftarbál, hringið inn ást og trygðir. Hringið inn drengskap, hreysti’ og frægð, hringið inn frelsi lýða, hringið inn dýra heilla-gnægð, hringið inn gæfu blíða. Hringið inn hvað sem hugga má, hringið inn fagra siði, liringið inn blessun himnum frá, hringið oss alt að liði. Jónas J. Daníelsson Winnipe^. Munið eftir “Conversazione” ungu stúlknanna úr Skuld, sem fer fram í Younq Men's Liberal Club salnurn á Notre Dame Ave., and- spænis Winnipeg Opera öouse, á mánudacskveldið kemur, þ. 29.þ.m. Þess má geta, að salur þessi er sér- lega skemtilegur og rúmgóður og stúlkurnar hafa ekkert tilsparað að gera þetta samkvæmi sem ánægju- legast fyrir alla, sem þangað kunna að koma, enda ber prógrammið, sem er f tveimur þáttum, það með sér, að þar eigamenn von ágóðri skemt- un. Sfðari hluta prógramsins, sem innibindur “Grand Promenade” og leiki, sem a 11 i r geta tekið þátt f, st/rir hr Ólafur Eggertsson. Sjá að öðru leyti augl/singu á öðrum stað í blaðinu. — Góðar veitingar. — Aðgangur að eins 35c. Þeir félagar Eggertsson og Ijarnason eru þegar byrjaðir á ijötmarkaði á norðvestur horninu á Toronto og Ellice. Þeir verzla með allar tegundir af kjöti, fiski, garðávöxtum, smjöri og eggjum. Þeir hafa ekkert nema beztu og íreinustu vörutegundir, en selja þó eins ódýrt og aðrir markaðsmenn f æssum bæ. Þeir æskja viðskifta anda sinna.og bjóða þeim góð kjör. Heimskringla leyfir sér að mæla j'ram með kaupmönnum þessum, bæði við Islendinga og aðra. Báðir mennirnir eru kunnir að reiðileg- íeitum og góðu einu. Kapplesturinn, sem auglýstur var f síðasta blaði, vann ungfrú Fanny Thomas, og náði þannig silfur medalíunni, sem um var kept. $100 ekran. Nikulás Ottenson í River Park hefir til sölu 22 ekrur af landi skamt sunnan við Elm Park fyrir $100 hverja ekru. Þeir, sem vildu gera gott gróðakaup, ættu að finna hann að máli. Næsta land við var á síðastliðnu sumri selt fyrir $225 hver ekra. MARKVERÐ UPPGÖTVHN. Hákon Finnsson hefir fundið upp aðferð til þess að setja menn í samband hvar sem er í heiminum; hann dáleiðir menn með myndum og getur á þann hátt tekið myndir af húsum, mönnum, verkfærum, dýrum og landsplássum, og öllu mögulegu. Hann hefir verið f Kauþmannahöfn síðastliðin 2 ár að læra íþróttir. Hann hefir haft 11 mena f sambandinu, þar á meðal 2 hér í Winnipeg (Sigstein Stefáns- son og Pál Jónsson Kjerúlf), 5 f Kaupmannahöfn (Halldór Jónas- sen, Sryggva Ólafsson, og sjálfan sig og tvo danska), 4 á íslandi (Þórunni Stefánsdóttúr, Halldór Stefánsson, Jón Stefánsson og Björgu Halldórsdóttir). Hann hef- ir með þessu sambandi fundið að- ferð til þess að rannsaka sálirnar og getur á þann hátt vitað, hvaða lífsstöðu menn eiga að taka,ogget- ur rakið lífsferil manna frá vögg- unni til grafarinnar eða til þess tfma, sem hann setur menn í sam- bandið, Hákon Finnsson, Halldór Stefánsson, Páll J. Kjerúlf. * Ofanprentaða frétt hefir herra Páll J. Kjerúlf f Winnipeg sent Heimskringlu til birtingar. Elztu tré í Ameríku. Stutta leið frá Boston standa hinar nafnfrægu Waverly eikur, og er staðurinn nefndur þar Beaver Brook Reservation. Sumir trjá- fræðingar álíta eikartré þessi eldri en flest önnur tré á vesturhveli hnattarins. Þau hafa verið firna gömul, þegar hinn fyrsti Evrópu- maður steig fæti á meginland í Vesturheimi. “Það má vel vera, að þau hafi verið svipuð, þegar Leifur hinn heppni fann Amerfku og þegar þau Þorfinnur og Guðrfð- ur gistu Vínland hið góða”. Sagn- fræðingur einn heldur því fram, að sé Charles áin, á sú, sem talað er um f sögunni, og sem lýst er að hafi runnið fram í hóp nokkurt og úr því til sjávar, þá muni Guðrfður kona Þorfinns hafa setið oftar en einu* sinni f forsælunni undir eik- um þessum. I seinni tlð hefir trjám þessum verið veitt umönnun og ræktar- semi,og greinar þeirra verið styrkt- ar og breiddar út eins og framast má. Fyrir nokkrum árum féll eitt þeirra að velli, það var einna veik- ast og minst; en ártalahringir þess telja aldur þess meiri en átta hundr- uð ár. Trén eru nú alls tuttugu og sex. Beaver Brook Reservation er lttill lystistaður í samanburði við suma aðra (>ar í grend. Hann er að eins 53 ekrur að ummáli. En þar hefir margt skáld og náttúrufræðingur unað sér vel og framleitt fögur kvæði og fagrar hugsanir. Stærsta eikin er nefnd Monarch. (Einveldingi). Hún er 80 fet 6 hæð; ummálið við rótina er 28 fet, ummálið yfir meginbolinn 18(4 fet, 5 fetum ofan við jörðu. Skáldið Lowell hefir óefað haft eikur þess- ar í huga, f einu eða tveimur kvæð- um sfnum, enda var þessi staðnr honum mjög kærkominn. (Þýtt). Markusson & Benediktsson selja lóðir frá 3 dölum fetið og upp. Hús fyrir Y^-virði, lönd fyrir J verðs. Þetta stendur að eins fáa daga. Þeir útvega Straiqht Loan á hús með 6, 7 og 8 prósent, vá- tryggja hús utanbæjar og innan, ásamt liúsmunum, ef óskað er. Alt selt með lægra verði en hjá nokkr- um öðrum fasteignasölum. — Þeir eru agentar fyrir lóða og landeig- endur um allan bæinn. Komið og kaupið, eða biðjið upplýsinga. 205 Mclntyre Bl’k., YV’peg. Telephone 4159.

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.