Heimskringla - 24.05.1906, Blaðsíða 1

Heimskringla - 24.05.1906, Blaðsíða 1
'G. Johnson. VTerzlar meö uDry Goods”, Skótau og Karlmanaafataað. Sadv. horn. Ross oe Isabel St WINNIPEG G. Johnson. Hvað sem ykkur vantar a8 kanpa eða selja þá komiö eða skriflö til mfn. Sudv. horn. Ross og Isabel St. WINNIPEG XX. ÁR. WINNIPEG, MANITOBA 24. M A I 1906 Nr. 33 Arni Eggerísson Land og Fasteignasali TJtvegar peningalán og tryggir líf og eignir Skrifstofa: Room 210 Mclntyre Block. Telephone 336i Heimili: 671 Ross Avenue Telephone 3033 Fregnsafa Markverðustu viðburðir hvaðanæfa. “Fegursta land í heimi. Paradis fyrir verkamanninn, og meö því bezta stjórnarfyrirkomulagi, sem til er á jarðríki”. — þannig lýsti J.P.Clarkson Nýja Sjálandi i viö- ræöu viö blaðamann hér í bænum. Loftslagið kvað hann vera eins á- kjósanlegt eins og mannleg hugs- un gæti ímyndað sér, og fegurð landsins aðdáanleg á flestum stöð- um. Alt landið kvaö hann vera 'sem einn aldingarð. Mölbornir ak- vegir eru um landið þvert og endi- langt, og iðnaður og verzlun í góðu lagi. þar í landi segir hann að fólki líði betur og lifi ánægju- leg^ra lífi, en í nokkru öðru landi undir sólunni. Enginn sé þar vell- auðugnr, en enginn heldur fátæk- ur ; allir hafi nóg fyrir sig að leggja. Ellistyrkur sé veittur þeim, sem komnir séu á efra aldur, svo að þeir þurfi ekki að líða. Enginn maður vinni meira en 8 stundir á dag, og allar búðir hætti starfi snemma að kveldinu. þjóðin eigi alla mál og talþræði og járnbraut- ir. þjóð-ábyrgð er á fólki og fast- eignum, í stað þess sem slíkt er í höndum prívat félaga í öðrum löndum ; og konur hafa kosningar- rétt eins og menn, og beita hon- nm a-8 jafnaði betur en menn. Enn •þá hafa þær þó ekki kjörgengi til þingsetu, því þjóðviljinn er þvi sterklega mótfallinn. Svo er þjóð- in vel ánægð með Seddon, forsæt- isráðherra, að hann er líklegur til að halda þeirri stöðu eins lengi og hann vfll hafa hana. —H'ermáladeild Bandaríkjanna hefir fengið þá skýrslu frá um- boðsmanni sínum í San Franeisco, að þröngt sé í búi hjá fólki þar í borginni. Eldiviðarskortur sé til- finnan'legur og að elda verði úti á bersvæði fyrir þær 300 þús. fólks, . sem enn sé húsnæðislaust. Ekki beri á neinum drykkjuskap eða annari óreglu þar í borginni, nema þegar menn komi frá nærliggjandi bæjum. Margir líði nauð, eins og við má búast í svo miklu fjöl- menni og undir þessum kringum- . stæðum. En útlitið sé þó að alt fari batnandi með tið og tíma. — Japanar hafa sent 50 þús. dollara gjöf til þeirra bágstöddu, og hún hefir veriö þegin, og líkleg-t einnig að þeir ioq þús. dolfarar, er þing- ið í Ottawa veitti þeim, verði líka þegnir, þrátt fyrir neitun Roose- velts forseta, sem talin er að hafa verið gerð án þess að athuga á- standið nákvæmlega. — Rannsókn sú, sem “Inter- State Commission” er nú að halda í Chicago utn starfsemi Standard Oil félagsins, hefir leitt það i Ijós, að allmikil sviksemi er viðhöfð í olíusölunni. Einn af æðstu mönn- um félagsins játaði, að mönnutn væri mútað pl þess að njósna og skýra svo frá, hvernig keppifélög- in höguðu Verzlun sinni, og að úr somu ámu væru oft seldar þrjár fegundir af olíu með mismunandi verði. — Eins og áður hefir Verið getið hér í bfaðinu ræntu 3 menn C.P.R. vagnlest vestur í Klettafjöllutn fyrir fáum dögum síðan. Yfirvöld- in brugðu snögglega við og eltu þá upp um fjöll, þar til þeir loks urðu handsamaðir um 40 mílur vegar frá þeim stað, sem ránið var framið. Alls hafa um 20 manns verið handteknir, grunaðir um að vera í vitorði með ræningj- unum, sem að eins voru 3 talsins. Einn þeirra var skotinn og særður áður en hann og félagar hans gáf- ust upp. — TJndiraðmíráll Kuztnich í Pét- ursborg á Rússlandi var stunginn til bana þ. 12. þ.m., af því hann neitaði að veita verkamönnum sín um, sem voru tvö þúsund talsins, hálfan frídag. Mennirnir höfðtt byrjað vinnu kl. 5 um morguninn, vildu inega hætta kl. 2 um daginn þessu neitaði herforinginn með þeim árangri, sem að framan er sagt. Tilraun hefir verið gerð til að hafa upp á morðingjanum, en samverkamenn hans kveðast ekk- ert ttm hanti vita, og er hann ó- fundinn enn. — Nýlega dóu 3 Indíánar hjá Duck Lake í Sask. af áhrifumFlor- ida vatns. það er á móti lögum, að selja Indíánum vín, og þess vegna hafa þeir tekið upp á þvi, að drekka blöndu af þessu Florida vatni. þeir blanda það þannig, að 3 matskeiðar af vatni þessu eru látnar í bolla af algengu vatni, og áhrifin á þann, sem þessa blöndu drekkur, eru þau, að hann íær brjóstsviða, svima og önnur siík einkenni, setn oft fylgja slæmunt víntegundum. En þessir 3 náting- ar þoldu ekki blöndu þessa og dóu af áhrifum hennar. það saunaðist við vitnaleiðslu í þessu tná’.i, að 800 flöskur af Florida vatni liafa verið fluttar inn í bygö Indíána við Duck Lake á siðastliðnum 3 mánuðum. — Félag með 100 millíón doilara höfuðstól heflr myndast í Band.t- ríkjunum til þess að bvggja tipp aftur San Francisco borg. — Skipið “Arctic”, sem Ottawa stjórnin gerði út í athugunar leið- angur til Hitdsons flóa, komst með heiiu og höldnu úr þeirri hættuför. Töluvert af vörum þeim. sem á sk'ipinu voru, var síðar selt við opinbert uppboð. þar á meðal 19 “cases” af borax (24 kassar í hverri “case”), 14 “cases” af stíf- elsi, 7 “cases” af flugnapappír og 17 tvlftar-pakkar af spilum, og nokkttr tlchiecker" borð, sem hvert kostaði $5.84. Allmikið umtal hef- ir orðið um þetta í þinginu og þykir mörgutn, að mjög “frjáls- lyndislega” hafi verið lagt til skipsins. Verðið, sx-tn borgað var fyrir mikið af vörumun, var afar- hátt ; en ekki vildi sá, er seldi þær til stjórnarinnar, segja þingnefnd- inni frá, hvað ltann hefði borgað fyrir þær, og var það með sam- þykki ráðgjafanna, að hann neit- aði að svara spurningum nefndar- innar. — Mesta kuldaveður 1 Japan all- an þennan mántið hefir gert svo mikinn skaða á mulberry trjám, að það er áætlað, að þegar sé tjónið af þessu orðið ein millíón dollara í einu af aðal silkiræktar- héruðunum. — Rússneska þingið var sett i St. Pétursborg þ. 10. þ.m. tneð mikilfi viðhöfn. það var sett í marmarasálnum í vetrarhöll keis- arans. Keisarinn flutti hásætisræð- una og batið þingmenn velkomna. þingntennirnir voru unt 300 tals- ins ; flestir þeirra voru af bænda- flokki, og komu þeir á þingið í peysuin sínum og háum stígvélum, rétt einS og þeir bera hversdags- iega heima hjá sér, og mátti þá sjá muninn á efnum bænda og þeirra, er mvndnðu keisarahirðina, sem allir báru log'agilta búninga Fyrsta verk þingsins var að taka til umræðu kröfu þingmanna um að feysa úr fangelsutn alla þá, er væru þar fvrir pófitiskar sakir ein göngu. Rætt hefir verið um ýms nauðsynjamái, eij óvíst hvort unt verður að koma nokkru samkomu- lagi á með þjóðfrelsisvimim og stjórnarsinnum. Stjórnarsinnar er sagt að hafi ráðið keisaranum til, að láta þingmenn .leggja fram all- ar kröfur sinar Iofa þeim að ræða um þær svo sem tveggja mánaða tíma, og slíta svo þing- intt. En fullyrt er, að keisarinn muni ekki sinna þessu, heldur reyna, að komast að samkomu- lagi við þittgið um aðal ágreinings máiilt, þó að með því verði báðir málspartar að slaka dálítið til. Islendingadagurinn 2. ágúst, 1906. H ér með tilkynnist, að almennur opinber fundur verður haldinn f samkomusal Tjaldbúðarsafnaðar, miðvikudaginn þ. 30. þ. m., kl. 8 að kreldi. Þar verður skfrt frá fjárhag dagsins, og ráðs- mensku núverandi nefndar. Kosin verður ný nefnd fyrir þessa árs liátfðahald; svo verður og nýtt mál borið upp á fundinum, sem öllum heiðarlega hugs- andi þjóðræktar vinum ætti að vera geðfelt áhugamál. Fólk er beðið að fjölmenna á fundinn' í umboði ncfndarinnar, B. L. BALD WINSON. — þann 18. þ.m. kom til Mon- treal borgar maður nokkur, sem hefir um marga undanfarna mán- uði verið að rannsaka landið í nánd við James Bay. Hann fann auðugar gullnámur og útþvottar- námur þar nvrðr'a, og flutti með sér til Montreal $4000 virði af gullmolum, er hann hafði týnt upp á ferðalagi sínu. Mol'ar þessir voru á misjafnri stærð, þeir minstu eins og lítil kaffibaun, en stærstu molarnir voru nær pd. á þyngd. Hann fann einnig koparnáma og segir landið umhverfis James Bay og Hudsons flóann vera vellauð- ugt af allskonar málmum. Félag er þegar myndað þar í borgiuni til }>ess að ná rétti á stóru náiuu- svæði og öll nauðsynleg vci'kfæti verða flutt þangað við fyrstu hentugleika til þess að vinna að. gulitekjunni. þeir, sem aðallegá^ standa fyrir þessum félagsskap, eru J.A.Jacobs og Peter McKen- zie í Montreal. — Brezkar konur hafa fylkt liði í heimsókn til forsætis ráðherra Englands og heimtað af honttm jafnrétti við karlmenn í atkvæða- greiðslu um landsmál. Sir Banner- mann gaf þeim litla von um, að kröfum þeirra yrði framgengt um nokkura ára tíma, og fóru konurn- ar stórreiðar af fundi þessum. — þrír menn voru nýlega kærð- ir á þýzkalandi fvrir að hafa selt umbóðsmönnum Frakka, Rússa og B'andaríkjanna ýtns leyndarmál er viðkomu hertnálum þar í landi. Menn þessir höfðu aðgang að skjöl um og uppdráttum hermáladeild- ar, og tóku afskrift af þeitn og seldu þær kaupmanni í borginni Ivei'pzig, setn svo aftur seldi þær í hendur útlendu umboðsmönnunutn. Tveir þessara þriggja nianna voru sannaðir að sök, og annar dæmd- ur í 4 en hinn 5 ára fangelsi, og báðir til að missa borgarrétt sinn um 6 ára tíma. — Á Methodista þingi, sem ný- lega var haldið í Birtningham í Alabama ríkinu, var samþykt með 151 atkvæðum gegn 107, að setja nefnd manna til þess að semja nýja trúarjátningu fyrir Metho- dista í Suðurríkjunum, er sé í samræmi við þekkingu og fram1- sóknarþrá manna á tuttugustu öldinni. þ-að var og ákveðið, að bjóða Methodistum í Norðurríkj- nmtm, að taka þátt í að semja þessa ttýju trúarjátningp. — þann 18. þ.m. var George Ashdown í Morden kosinn þing- maður gagnsoknarlaust í stað J. H. (Ruddells, er andaðiet fyrir nokkntm vikum. Áshdowtv þessi er bróðir J.H.Ashdowns, kaupm. 'í W'innipeg. — Alfonsq Spánarkonungur, sem náði 20 ára aldri þann 17. þm., er önnum kafinn að búa sig ttndir giftingu sína, sem á að fara fram í Madrid innan fárra vikna. Meðal arntars hefir hann pantað 1200 tons af dýrindis blómum, sem á að strá á stræti borgarinnar á gift'ingard'egi hans, og kostar það ærna peninga, sem að miklu ieyti eru samskot frá efnuðum borgur- um í Madrid. Sjálfur hefir konung- , urinn valið gjáfir þær, sem hann ætlar að gefa brúðurinni á gifting- ardegi þeirra, og eru það mest- megnis dýrindis skrautgripir, sett- ir fegurstu gimsteinum, sem ríkið á kost á að fá. En gjöf brúðnr- innar til konungs á að vera sverð sett gimsteinum. Mesti fjöldi af Spánverjum frá Cuba og Suður- Afríktt ætla að vera í Madrid, er giftingin fer fram, og eru sumir þeirra þegar komnir til borgarinn- ar. þjóðin öll er einráðin i því, að gera athöfn þessa svo hátíðlega og viðhafnarmikla, að ekki liafi áður í sögu þjóðarinnar verið jafn stórkostleg viðhöfn við nokkurt tækifæri. — Japanar hafa samþykt,' að kalla ekki alt lið sitt burt úr Man- churia fyr en þeir hafi fengið fnlla vissu fyrir því, að Rússar flytji þaðan alt ltð sitt, eins og gert er ráð fyrir í friðarsamningunum. 117,582 innflytjendur hafa kom- iö t'il Canada á sl. 10 tnánuðum. En á samsvarandi 10 mánuðum árið áður kotn hingað 99,309 manns. Flest af þessu fólki kom frá Bandaríkjunum. Fréttabréf. Blaine, 4. tnaí 1906. Hattvirti ritstj. Heimskringlu! I Eg hafði fyrir nokkruttl* tíma síð an ásett mér, að skrifa héðan fá- einar frét'talinur, en anttir hafa hingað til hamlað rpér frá því, enda hafa ýmsir aðrir Blainebúar ritað fréttir héðan i íslenzku Win- nipeg blöðin nú í seinni tíð, og hafa jafnvel sumir þessara rithöf- ttnda verið svo upp með sér, að 1 þeir háfa iátið sömu greinarnar i bÍTtast hvað éítir annað. Isfendingar flvtja nú hvaðanæfa ! til Blaine og búsetja- sig þar, ým- 1 ist í bænum eða á iandsbygðinni í grend við hann. Nokkrir þeirra hafa keypt sér bæjarlóðir og reist allsnotur íbúðarhús ; aðrir hafa keypt landsbletti í ekrutali, frá 2 'til 90 ekrur hver •; en ekki veit ég til, að neinn íslendingur hafi tekið land í kring um Biaine, því stjórn- arlönd eða heimil'isréttarlönd hafa aldrei v-erið þar fáanleg, síðan ís lendingar fóru að flvtja þangað. Atvinna í Blaine er nú aHgóð ; þó er það aðallega sögunarmyht an, setn mestan vinnukraf't'inn þarfnast, en allhættuleg er vinna sú á sumum stöðum, og hafa ýms ir meiðst, þar á meðal 2 Islend- ingar. Annar þeirra, Ben. Alex- ander, meiddist þanni'g, að trjávið- ar dyngja féll á hann, kom á hann miðjan og kkmdi hann upp* vi-ð stoð. Hinn, þorsteinn Stoneson, meiddist um öxialið. Báðir þessir iandar eru á batavegi. Alt af er að koma meira fjör og líf í félagsskapinn hér. Kvennfélag var myndað milli jóla og nýárs. það nefnir sig “Líkn”, og er það einkar vel viðeigandi nafn Ifvrir kvennfélag, því konur eru allstað- ar líknandi ; enda hefir þessi fé- lagsskapur þegar sýnt 'það, að hann ber nafn með rentu, því hann hefir hjálpað 2 fjölskyldum mjög mikið í sjúkdóms tilfellum. Verkamannafélag er hér nýmynd að, sem samanstendur af mylntt- mönnum og Skógarhöggsmönnutn. Jólattés samkoma var haldin af Islendingum í Blaine sl. vetur á Aðfangadagskveldið, á bezta sam- komusal bæjarins, og hafði þar til kosin nefnd umsjón yfir henni. Stt rtefnd hafði safnað samskotum á meðal Islendinga í Bfaine og grend inni, er námu $38.95 ; útgjöld voru $30.30, afgangur 8.65, sem geymist í sjóði hjá féhirði ttefndarinnar, Mrs. B. Dantelsson, þar til næsta jólatrés samkoma verður haldin. Kvennfélagtð hélt hlutaveltu þ. 7. apríl, mjög myndarfega, alger lega á eigin ramleik, og nam á góðinn Hðugum hundrað dollars. Foresters stúkan hélt samkotnu þ. 20. apríl. Matvöruverzlun bafa þeir Ö. ö. Runólfsson og Andrés Dantefsson byrjað. Jteir eru báðir liprir menn og vinsæl'ir og líklegir til að eiga hér góða framtíö. Matvörusalar h'afa til skams tíma haft sambund sin á tneðal, að enginn hefir mátt selja lægra verði en annar ; en svo ■ kom eir.- hver fitilshá'ttar mi'sklíð upp á milH þeirra um tíma og þá seldu sumir {jeirra ýtnsar vörutegundir með lægra verði en áður. Klæðverzlun er hér algerlega í höndum Gvðinga, og vita allir, er nokkttð þekkja til i þessu landi, hvers konar varning þeir V'an'alega hafa og hvaða verzlunarmáta þeir brúka. Eg ætla ekki að rita neinn verðlista, því bæði tnundi það taka upp alt of mikið rtim í blað- intt og svo stiga og falia hinar ýmsu vörutegundir, eftir því sem framleiðslan er og eftir því sem eftirspurn þeirra er mikii eða litil á markaðnum, svo að vöruverð er ef til vill alt annað, þegar þjssi Skemtisamkoma Verður haldin þann 28. maí, 1906, undir stjórn Hagyrðingafélag-sins, í samkomusal Únftara, Cor. Sherbrooke & Sargent. þetta er hin venjulega árs-samkoma þessa félags og verð ur mjög vel til hennar vanduð eins og að undanförnu. þar flvtja Hagyrðingar ræður, þýdd og frumsatnin kvæði og rkgerðir bókmetvtalegs efnis. Svó verður gnægð :vf söng og hljóðfæraslætti til að senda bliðleiksangan inn í sálu hvers manns. Og að endingu verður unga fólkinu gefið tækifæri að svífa í unaðsdraumi hönd í hönd um salinns á hijóðbárunum frá hljóðfæra meistnrunum. undir umsjón manns, sem vel kann að þeirri list. — þar verða allir ungir þetta kvöld. þettá verður sönn skemti-samkoma, sem kemur ekki nema einu sinni á ári. GlevTnið því ekki tækifæriuu. — Komið Programme: 1. Htjóðfffirasláttur, Andersou's Orch. 2. Xvarp forseta. 3. Kv®ði, I>. p. Porsteiusson. 4. HljóðfœraslAttur, Anderson’s Orch. 5. R»8a. M. J. Benedictson. 6. Kvæði, H. Þorsteinsson. 7. Sóló, A. j. Johasou. 8. ‘'•Essat'' um Qmar Khayyam, S. B. 9. Upplestr, H. Gíslason. (Benedictson 10. Kvœði, H. Magnássoh. 11. Fjórraddaður Karlmanna sóngnr. ( A.J.Johnson. j Þ. Þorstoinssou t S.B.Benedictson f A.Thordarso^. 12. “Essay", B. Pétnrsson. 13. Hljóðfæraaláttur, Anderson’s Orch. 14. Ssemtigðngur (marchis) Mrs. G. Thorkelsson og maður hennar á Oak Point hafa allskonar vöru að selja ; öll klæðavara seld með 10 prósent afslætti mót pen- ingaborgun út í hönd, ef $5.00 virði eða meira er keypt í einu. — Einnig öll önnur vara seld með sérstaklega lágu verði. — Naut- gripir á öllum aldri, ull, svín og kindur keypt í skiftum fyrir vörur, ef það er í góðu útliti, og fylsta markaðsverð gefið fyrir gripina. þeir, sem skulda þessari verzlun, eru vinsamlega beðnir að borga eða semja utn borgun skulda sinna fyrir lok þessa mánaðar. Gleymið ekki, að þeási verzlun gefur hærra verð fyrir bændavöru, en nokkur önnur verzlun í nær- liggjandi héraði. G. THORKELSON. - Kvennablaðið “The Delinea- tor” fyrir júní þ.á. er nýútkomið, fagurri kápu og um 200 bls. að stærð auk auglýsinga. Innihald >essa heftis er eins og vant er: vel samdar smásögnr, myndir af nýjasta fatasniði, leiðbeiningar í fatægerð, húshaldi og ýmiskonar kvennlegum hannyrðum. Margt annað fróðlegt og skemtilegt er í ritinu, og ætti það að vera í hverrar konu eigu, sem hefir hús- ráð eða hugsar til að hafa það síðar. Ritið kemur út mánaðar- lega, kostar (12 hefti) $1.00 um árið eða 15C hvert heftí. Svo verða lesin upp k^ræði eftir fjarverandi íélagsmenn. Samkoman byrjar kl. 8 síðdegis á sl'agintt. Kornið í tíma til að ná síetum. Gleymrð eigi deginom:' Mánudaginft 28. mai grein er rituð, heldur en þegar hút» kemur út í blaðinu. Til dæmis hef— ir trjáviður stijgið í verði, en egg fallið ; en hvort 100 pd. af þak- spæni hafa stigið eða fallið, veit ég ekki, því þakspónn er ekki seld- ur í pundataíi á mylnu þeirri, sem ég vinn við. Að endingu óska ég yður, herra ritstjóri, og blaði yðar allrar virð ingar og velgengni. TH. ÁSMUNDSSON. 77/ Kaups. Gott íbúðarhús og járnsmiðja, með öllu tilheyrandi ; öll verkfæri af nýlustu og beztu tegund, meiri og betri en vanalega gerist. Heilsu brestur orsök til sölu og burt- flutnings. Skrifið eða talið við. J. J. Breiðfjörð, Járnsmiöur, Mountain, N. Dak. PHONE 3668 Smá aðgerðir fljótt og ■ —.........■■■■■■■ vel af heBdi levstar. fldams & Main PLUMBINC AND HEATING 555 Sargent Ave. >- - W’peg. Skínandi Veggja-Pappír ÍSg levfi mér aö tilkynna yöur aö ég hefi nú fengið inn meiri byrgöir af veggja pappír, en nokkru sinni éöur. og sel ég haan á svo láu verði, aö sllkt er ekki dæmi til 1 sögunni. T. d. hefi ég ljómandi góöan, sterkan ag fallegan pappfr, á 3V,c. rúlluna og af öllum togundum uppf 80c. rúlluna. Allir prísar hjá xnér f ár eru 25 — 30 prósent lmgri en nokkru sinni áöur. Enfremur hefi ég svo miklu úr aö velja, aö ekki er mér annar kunnur f borginni er meira hefir. Komiö og skoö- iö pappírinn — jafnvel þó þiö kaupiö ekkert. Ég er sá eini íslendingur f öllu land- inu sem verzla meö þessa vörutegnnd. S. Anderson 651 Bannstyne Ave. 103 Nena St. Þetta er það mmmmmmmmmmmmmmrnmmmimmm Tuttugustu aldar fatnaður er svo vel þektur, að lýsing hans er ónauðsynleg. — Lag og efni það bezta f Canada. Okkar vanaverð er rétt. — En meðan stendur á tilhreinsnnar söl- unni er mikill afsláttnr — og sama gildir um allar aðrar vörur í búð- inni. Komið og sjáið. Nú. í dag. Hyndman & Co. Fatáéalár Þéirra Manna Sem Þekkja The Rialto. 480Mi Main St.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.