Heimskringla


Heimskringla - 04.04.1912, Qupperneq 6

Heimskringla - 04.04.1912, Qupperneq 6
6. BLS. WINNIPEG, 4. APRlE 1912.; HEIMSKEINGLA Sherwin - Williams AINT fyrir alskonar húsmálningu. Prýðingar-tfmi nálgast nú. f> Dálftið af Sherwin-Williams húsmáli getur prýtt húsið yð- £ ar utan og innan. — Brúkið <s> ekker annað mál en petta. — '? S.-W. húsmálið málar mest, endist lengur, og er áferðar- 4> fegurra en nokkurt annað hús mál sem búið er til. — Komið inn og skoðið litarspjaldið.— • CAMERON & CARSCADDEN QUALITY IIAHDWARE X Wynyard, - Sask. <^<S-<SxS><§><S>^x$xSxJxJ><í><í>^><4xJxJx5><$><3><^><4> MARKET HOTEL 146 Princess St. A móti markaOnQin P. O’CONNELL, elgandl, WINNIPEQ Bezta vínföoí? vindlar og aöhlynning góö. Islenzkur veitingamaöur P S. Anderson, leiöbeinir lslendingnm. JIMMY’S HOTEL BEZTD VÍN OG VINDLAR. VfNVEITARI TtH.FRASER, ÍSLENDINGUR. : : : : : • Jamcs Thorpo, Elgandl Woodbine Hotel A 466 MAIN ST. Stmsta Billiard Hall 1 NorOvestnrlandinn Tln Pool-borð — Alskonar vfnog vindlar Qfstlng og fæðl: $1.00 á dag og þar y fir l,euuon & Hebb. 'Rigendur. MARTYN F. SMITH, TANNLÆKNIR. Palrbalrn Dlk. Cor Maln & Selkfrk Sérfrœðingur f (lullfyllingu og 3llum aðgerðum og tilbún aði Tanna. Tennur dregnar án sársauka. Engin veiki á eftir eða gómbólga. — Stofan opin kl. 7 til 9 á kveldin Office Heimilis Phone Main 69 4 4. Phone Main 6462 A. S. TORBERT ’ S RAKARASTOFA Er 1 Jimmy’s Hótel. Besta verk, ágæt verkfæri; Kakstur 15c en HárskurOur 2ðc. — óskar viðskifta íslendiuga.— I i A. 8. BAKIK4L Selur llkkistur og annast um útfarir. Allur átbánaOur sé bezti. Eufremur selur hanu allskouar minnisvarOa og legsteina. 121 NenaSt. Phone Garry 2152 ÞaÓ er alveg víst að það borg- ar sig að aug lýsH f Heim- skringlu ! Islands fréttir. Eyrarbakka, 2. marz. Ritstjóraskifti hafa oröið við Suðurland. Hefir Karl H. Bjarna- son hætt þeim starfa, en við tekið Jón Jónatansson, alþm. — Norðan og austanstormar hafa verið stöðugt undanfarna viku, og frost talsvert, einkum fyrri part vikunnar, 10—11 stig á Celsius, en hreinviðri. Snjór hefir enn ekki sést í vetur hér eystra, 1 svo teljandi sé. — Róið var á Stokkseyri alment á sunnudaginn var. Fengust þá 10—35 í hlut af ýsu. Síðan hefir lítið gefið á sjó og afli mun minni, þegar róið hefir verið. Vertíðin er nú að byrja fyrir, alvöru. Sjómenn hafa verið að flytja sig til þor- lákshafnar þessa dagana- — SmjörsaTa. Sandvíkubúið, sem er eina starfandi smjörbúíð í vetur hér eystra, hefir selt smjör nýlega , fvrir 103 kr. 100 pd. netto. Er það all-álitlegt verð. Fleiri smjörbúin Jiér eystra ættu að fara að dæmi Sandvíkinga og revna að starfa aS vetrinum. Ekki er innlendi smjör- markaðurinn svo glæsilegur. — Á Stokkseyri voru á sunnu- daginn var sýndir tveir smáleikar: “Æfintýrið í garðinum’’ og “Mis- skilningur á misskilning ofan”. — Fvrri leikurinn var sýndur hér í fyrra og tókst þá allvel, en þó engu síður nú. Hlutverk það í leik þessum, er leikið var í fyrra af Önnu Helgadóttur, var leinið af Karrnheiði Jónsdóttur, og fórst henni það mjög laglega. — Fiskifélag íslands. þetta ný- stofnaða félag mun vera að reyna að færa út kvíarnar og koma á deildum víðsvegar um land. Munu málaleitanir í þá átt hafa borist hingað til Eyrarbakka og Stokks- eyrar, að hér yrðu deildir stofnað- ar, en ekki vitum vér um undir- tektir. lín mæla viljum vér með því hið bezta, að sjómenn hér sinni þessum félagsskap, því hann" ætti aö geta orðið þeim til mikils gagns, ef þeir sinna honum af al- úð. Eyrarbakka, 24. febr. Smjörbúasamband Suðurlands hélt aðalfund sinn að þjórsártúni 9. þ.m. Rætt var um smjörsöluna á liðnu ári, hefir hún yfir höfuð g-engið mjög vel, einkum síðari liluta sutnars. Nokkuð mun salan hafa verið misjöfn hjá hinum vmsu seljendum. A fundinum var cnnfremur rætt um reikningsform fvrir smjörbáin, sameiginleg inn- kaup á vörum þeim, er búin þarfnast, skilvindukaup o. fl. — Stjórn sambandsins var endurkos- in, þeir Ágúst Helgason (formað- ur), Eggert í Laugardælum og sr. ólafur Finnsson í Kálfholti. Fund- urinn lýsti óánægju sinni út af gerðum síðasta þ'ngs um styrkinn til smjörbúanna. — Fundur um lýðháskólamálið. Nefnd sú, er kosin var af sýslu- nefndunum hér austanfjalls til að undirbúa það mál, heldur fund að Efra-IIvoli 1. marz. Væri æskilegt, aö það mál kæmist sem fyrst á góðan rekspöl, því lýðháskólalaus- ir megum vér ekki lengi vera hér eystra úr þessu, segir Suðurland. — Róið var á Stokkseyri á þriöjudaginn sl. og'varð allvel fisk- vart, fengust 10—20 í hlut. Er því fremur líklegt, að fiskurinn í þetta sinn láti ekki lengi biða eftir sér, þegar vertíðin byrjar. Óskandi, að ekki verði þá gæftaleysi að baga. — þeim sið hafa menn trúlega fylgt, að færa í annála sem ítar- legast harðindi, horfelli og hungur- dauða. Ekki væri óskemtilegt — svona til tilbreytingar — ef hægt væri að sýna með tölum, hve mik- ils virði blíðviðrið á þessum vetri verður fysir landið. 10. febr. — Ungmennafélag er nýstofnað í Sandvíkurhreppi. Stofnendur 47. 1 stjórn voru kosnis : Formaður þórður Jónsson, Ásakoti ; ritari Sigurgeir Ólafsson, Hreiðurborg ; gjaldkeri Júníus í Björk. Fyrst um sinn heldur félagið fundi sína í Sig- túni. Ungmennafélag hefir áður verið í hreppnum, en það ‘‘legið niðri” í nokkur ár, og er þetta fé- lag risið upp af rústum þesa. Af Suðurnesjum 17. jan. 1912. Af Suðurnesjum er fátt að frétta Aflalatist í vetur, nema í Höfnum reytiugur áf stútung og þyrsklingi. Heilsufar almennt gott. Útvegs- bændur í óða önn að búa sig und- ir vertxðina. Mótorbátur, er Njarð- víkingar áttu von á að vestan, kom að sönnu, en strandaði í feröalokin og brotnaði í spón ; varð það skaði seljanda, því kaup- unum var ekki lokið. — Frá Kefia- vík munu ganga, að minsta kosti, þrír mótorbátar næstu vertíð (einn þeirra af Akranesi) og einn mótorbátur úr Njarðvíkum.— Tíð ágæt til lands, sauðfé gengur sjálf- ala. Bráðpest í sauðfé að mun í Höfnum, eigi slík síðan 1880, að sagt er. — 1 Keflavík var leikinn Skuggasveinn. Leikfimiskensla með al skólabarná, um 50 karlar og konur, fullorðið, tekur þátt í leik- fimi. í unglingaskóla njóta kenslu milli ]0—-20. Úr Mýrdal. — Föstudaginn 5. jan. þ. á. var tillaga sýslunefndar V. Skapta- fellssýslu um stofnun lýðháskóla á Suðurlandsundirlendinu samþykt með meiri hluta greiddra atkv. á almennum fundi i Dyrhólahreppi. Tillaga sýslunefndarinnar mun vera eitthvaö í þá átt, að fyrir- komulag skólans sé þannig, að bú- fræði verði kend að einhverju leyti, að skólinn standi um miðbik Rang- árvallasýslu og að Vestur-Skapta- 'lellssýsla leggi fé til skólans í hlut- falli við fólksfjölda sýslunnar. — (Suðurland). Reykjavík, 21. febr. — Abyrgðarfélag þilskipa við Faxaílóa hélt aðalfund 6. þ.m. Formaður félagsins, Tr. Gunnars- son, skýrði frá hag félagsins næst- liðiö ár (1911). 1 ábyrgð félagsins eru 41 þilskip, virt á 722,000 kr., en vátrygð fyrir 530,700 kr., því eigendur hafa í sjálfsábyrgð % skipanna eftir lögum félagsins. — Tekjur félagsins voru yfir árið 20,- 700 kr., en þar af gengu 7,300 kr. til Síimábyrgðaritinar, er tekið hafði að sér endurtrvggingu á helming skipanna gegu algerðu skiptapi. Árið 1911 var happaár fyrir félagið, enginn algerður skip- tapi varð, en smáskemdir. urðu á 6 skipum, sem var bætt fvrir með 2,950 kr., og frá f. á. var bætt fyr- ir 2 skip 2,000 kr. I fastasjóð fé- lagsins gengu 8,700 kr. og í sér- eignas.jóð félagsmanna 4,700 kr., sem nú á í sjóði 20,600 kr., eftir aö búið var að skifta úr honum 31,700 kr. fvrir strand gufubátsins Reykjavík, sem mál reis út af, enn þá ódæmt ai hæstarétti. Sú breyt- ing var gerð á lögunum, að félag- ið skyldi taka þilskipin í ábyrgð til fiskiveiða frá 1. febr., sem áður var 11. febr. — Jón Jónsson skip- stjóri í Melshúsum ,var endurkos- inn í stjórn félagsins, og endur- skoðunarmenn voru kosnir verzl- unarstjóri þórður Bjarnason og Jón Laxdal. Til að virða skipin og eftirlíta þau voru kosnir 3 menn og aðrir 3 til vara. — Síðustu 3 árin hefir verið kostað svo skiftir 100,000 kr. til viðgerðar skipanna hjá Slippfélaginu í Reykjavík, svo nú er skipaflotinn í ágætu standi. — Aðalfundur ísfélagsins við Faxafióa var haldinn 30. f. m. Fundarstjóri var prófessor Eiríkur Briem. Formaður félagsins Tr. Gunnarsson, skýrði frá störfum félagsins. það hafði selt næstl. ár (1911) : Kjöt 156,000 pd., rjúpur og aðrir fuglar 1,550 pd., lax, og silungur 5,800 pd., heilagfiski 6,900 pd., ísa 30,000 pd., 15,300 pd., ís 400 smálestir. þess utan var fryst og geymd síld fyrir aðra, fyrir 3000 kr. Tekjur félagsins á árinu voru 19,500 kr., en útg-jöldin 13,500 kr., svo ágóðinn varð 6,000 kr., og þar af leiðandi var samþykt að greiða hluthöfum 20 prósent af inneign þeiera. í fvrra var greitt 15 prósent. Félagið á stósan vara- sjóð og> húseignir skuldlausar. — Upphaflega var Isfélagið stofnað árið 1894 til að frysta og geyma síld til fiskbeitu, en síðan eru bygð tvö önnur íshús í Reykjavík í saxna tilgangi. Félagið frystir því minna af síld en áður, fyrir eigin reikning, en meira fyrir aðra. — Eftir lögu.m félagsins gekk konsúll Jes Zimsen úr stjórninni, en var endurkosinn, og sömuleiðis voru tveir endurskoðunarmenn endur- kosnir. — þótt hlutabréf félags- manna séu arðsöm eign, má telja ekki minna vert það hagræði, sem bæjarbúar hafa af íshúsinu. þar geta þeir fengið nýtt kjöt allan veturinn, og þar fá útgerðarmenn skipanna síldarbeitu vfir útgerðar- tímann, þangað til nýja sildin fer að veiðast á vorin, svo ekki er hægt að meta til verðs þann afla- auka, sem fæst fyrir s'ldarbeituna. — (Lögrétta). DAGRENNING. (Til K. Ásg. Benediktssonar). (Nýhenda). Drangar hyltir hækka brún, Húmi ,er bylt í djúpið kalda. S-veifJast stilt um sævartún ' Sólu gyltir bárufaldar. (Ilringhenda). Dags er runnin drotning hlý Frá djúpum unnarvogum. ITúmið brunnið alt er í Árdags sunnulogum. J. Sch. Ég undirritaður hefi,til sölu ná- lega. allar ísfenzkar bækur, sem tij eru á markaðinum, og verð að hitta að Lundar P.O., Man. Sendið pantanir eða finnið. Neils E. hallsoil. JÖN HÖI/M, gullsmiður á Gimli gerir við allskyns gullstáss og býr til samkvæmt pöntunum. — Selur einnig ágæt gigtarbelti fyrir $1.25. MANITOBA TEKIFERANNA LAND/ Hér skulu taldir að eins fáir þeirra miklu j’fir- burða, sem Manitoba fyEi býður, og sýnt, hvers- vegna allir þeir, sem óska að bæta lífskjör sín, ættu að taka sér bólfestu innan, takmarka þessa fylkis. TIL BðNDANS. Frjósemi jarðvegsins og loftslagið hafa gert Mani- toba heimsfræga, sem gróðrarstöð Nq. 1 hard hveitis. Manitoba býður bændasonum ókeypis búnaðar- mentun á búnaðarskóla, sem jafngildir þeim beztu sinnar tegunclar á ameríkanska meginlandinu. TIL IÐNAÐAR- OG VERKAMANNA. Blómgandi framleiðslustofnanir í vorum óðfluga stækkandi borgum, sækjast eftir allskyns handverks- mönnum, og borga þeim hæztu gildandi vinnulaun. Algengir verkamenn geta^og fengið næga atvinnu með beztu launum. Hér eru yfirgnæíandi atvinnutæki- færi fyrir alla. TIL FJÁRHYGGTENDA. Manitoba býður gnægð rafafis til framleiðslu og allskyns iðnaðar og verkstæða, með lágu verði ; — Frjósamt land ; — margvíslegar og ótæmandi auðs- uppsprettur frá náttúrunnar hendi ; — Ágæt sam- göngu og flutningatæki ; — Ungir og óðfluga vaxandd bæir og borgir. — Alt þetta býður vitsmunum, auð- æfum og framtakssemi óviðjafnanleg tækifeeri og starfsarð um fram fylstu vonir. Vér bjóðum öllum að koma og öðlast hluttöku í velsæld vorti og þrosk- un. — Til frekari upplýsinga, skrifið : JOS. HARTNEY, 77 York Street, Toronto, Ont. JOS. BURKE, 178 Logan Avenue, Winnipxeg, Man. A. A. C. LaRIVIERE, 22 Alltance Bldg.,- Montreal, J. F. TENNANT, Gretna, Manitoba, .1. .1. lilOI/DEN, Deputy Minister of A^riculture aiid Immigratioú.yWinnipeg YlTUli MAÐUR er varkár raeð að drekka eingöngu hreint öl. þér getið jafna reitt yður á. [Ii fuvi y s Rcilwooil Laier það er léttur, freyðandi bjór, geröur ein-göngu úr Malt og Hops. Biöjið ætíð um bann. E. L. Drewry, Maiiiifactiirer, ff iimipeg REIÐHJOL en nokkru sinni áður. Okkar beztu “Perfect” Nú þegar vorið er að koma, þá viljum vcr láta alla þájsem ætla að kaupa sér reiðhjól fyrir næsta sumar vita að vér hðfum meiri byrðir af bæði nýjum og brúkuðum hjólum reiðhjól og “Blue Flyer” hafa stfgið niður um §5.00 í ár, og eru þó endurbætt. Einnig[höfum vcr betri tæki á að gera allar aðgerður svo úr garði að menn verði ánægðir. Vér gerum við Motor hjól og bifreiðar og búum til parta í hvaða vélar sem er. CENTRALf BICYCLE CO. Sdmarliði Matthews, Eigandi 560 Notre Dame Ave. Phone Garry 121 S y 1 v í a 199 200 Sögus'afn Hejsnskringlu S y 1 v í a 201 202 Sögusafn Heimskringlu Sylvía kom strax, klædd í dökkan kjól, beinvaxin ocr fögur. í fyrstunni voru þær dálítið feimnar, en Andrey fór strax að spyrja um atvinnu hennar, til þess að eyða feimninni. fþér eruð svo ungar’, sagði hún, ‘að það er naum- ast skiljanlegt, hvernig þér farið að töfra alla”. ‘Já, er það ekki slæmt, að ég skuli ekki vera eldri. En sá galli batnar daglega’, sagði Sylvía. Andrey hló. ‘Og þér hafið svo mikla sjálfsstjórn og ró. það er líklega af því, að þér eruð btinar að leika svo lengi’. , ‘Nei’, sagði Sylvía, ‘það er að «ins stuttur tími, sem ég ltefi leikið’. ‘Er það svo ? Mér finst það lítt mögulegt’. ‘Ef einhver hefði sagt mér fyrir tveim árum, að ég yrði söngmær, þá hefði ég hlegið að honum. þá var ég að fiækjast um Ástralíu’, sagði Sylvía, og varð hrygg á svip. ‘Hafið þér orðið fyrir mótlæti?’ sagði Andrey með innilegri hluttekningu. ‘'Já ég varð alveg vinlatts og einmana í heiminum, en fann þá tvær góðar manneskjur : Stúlkuna sem þér sáuð í gær, hún heitir Mercy Fairfax, og hefir verið mér bæði móðir og systir. Hin manneskjan er einn af þeirn beztu og góðgjörnustu mönnum í heiminum.- Hann er eðallyndur og honum á ég að þakka, að ég lifi enn’. ‘É,g þekki likfega nafn hans’, sagði Andrey. ‘Einmitt’, sagði Sylvía. ‘Hann er góður og sannleikselskandi, reglulega eðallyndur’. j ‘Er hann hér í London?’ spurði Andrey. | ‘Nei, en hann kemur bráðum. Ég vildi að hann J væri hér. Eg gerði alt, sem ég gat, til að fá hann í til að koma’. E.íí — ég held honum mtindi ekki xnislíka það’, ‘því trúi ég’, sagði Andrey og reyndi að brosa. ‘Já’, sagði Sjlvía, ‘hann hefir nú ártxm saman ferðast um heiminn i gagnslausu erindi’. Andtey varð blóörjóð. ‘Hann gerir það líklega ekki nú’, sagði hún. ‘Jú, einmitt jnúna’, sagði Sylvia. ‘Eg veit ekki, hvort honum mvndi líka það, að ég segði yður frá því’, sagði Svlvía hugsandi. X sagði Andrey. ‘Nei, é.g held það ,lika, með því ég veit ekki nafn stúlkUnnar’. ‘Stúlku ? Ilvaða stúlku?’ stamaði Andrey. ‘Stúlkuna, sem sendi hann af stað í þessu er- indi’, svaraði Svlvía. ‘Hún bað hann að leita að vini sínum, sem hún vissi ekki, hvar var, og lávarð- ur Lorriimore — það er nafn hans — ‘Já, ég veit það’, sagði Andrey æst. ‘Lofaöi aö fefta itð hontim í tvö ár. Ilann er nú búinn að leita lengur, en árangiirslaust. En þó tíminn sé liðinn, vill hann ógjarnan fara til hennar og segja henni það. Finst yður það ekki vera rangt af henni, að nota þannig eðallvndi hans og ó- sérplægni ?’ ‘Jú, hún hefir verið léttúðug og hörð. En þér eruð ærið státnar yfir honum, Signora’. ‘Já, það er ég’, svaraði Sylvía hreinskilnisfega. ‘ífe hefi aldrei þekt neinn mann jafn góðan og hjálp- saman, að einum undanteknum’, svaraði Sylvía og stundi. ‘En Lorrimore kemur bráðurn, og þá vona ég hann fái verkalaun sfn’. ‘Já, ég er viss - um það. Mig furðar alls ekki, að hann elskar yður’, sagði Andrey. Sylvía hopaði á hæl og starði undrandi á ungfrú Andrey. ‘Elski mig — mig?’ hrópaði hún, og fór svo að Iskellihlægja. ‘Hvernig getur yður dottiö í hug, að iLorrimore elski mig. Ilann dýrkar jörðina, sem þessi stúlka gengur um. Hann hugsar um hana Idag og nótt. þér þekkið hann ekki, annars mund- juð þér skilja, að honum er ómögulegt að taka breyt- iiigum í þessu efni’. Andrey varð náföl og skalf. ‘,Kg — ég hélt — ég heyrði’, stamaði hún. ‘þér þekkiö ekki alt rttglið, sem um okkur er sagt i blöðunum’, sagði hún. |lþau hafa llutt ý|ms- an forynjufegan þvætting um mig, og sjálfsagt um I/Orrimore lika. Ég les ekki blöðin, þau vildu ekki leyfa mér það. þegar lávarður Lorrimore kemur heim, v,erð ég að segja hontim frá misskilningi yðar; liann mtin fdægja -r’ ‘Nei, nei’, sagði Andrey. Hún reyndi að stánda upp, en hné niður aftur.: þá sá Sylvía, að hún.var föl og skjálfandi. ‘Hvað er að ? Kruð þér veikar?’ sagði hún. ‘Nei, nei’, sagði Andrey, ‘mig svimar dálítið’. ‘Má ég kalla á Mercy, hún er ágæt hjúkrtinar- kona ? ’ sagði Sylvía. ‘Nei, mér er að skána’, sagði Andrey. Svo komu tárin fram í attgu hennar og hún sat álút langa stund. ‘það er heitt og þér hafið gengið. Mér þykir jþctta svo slæmt’, sagði Sylvía. Andrey lagði hendina um háls hennar, dró hana aS sér og kj-sti liana. “Mg kom hingað í því skyni, að mælast til þess, að við yrðum vinstúlkur’, sagði Andrey, ‘en það er naumast þörf á, að biðja tim það. Er.það, Sign- ora Stella?’ ‘Nei’, svaraði S.ylvía, ‘en þér megið ekki kalla mip- þessu nafni. Eg heiti Sylvía Bond. þér verð- ið að kalla mig Syívíu’. ^Já, og þér eigið að kalla mjg Andrey. Við er- um eins og tvær skólastúlkur, sem sverjum hvor annari æfilanga vináttu’. Sylvia hló. ‘Já, en hvað það er undarlegt, við höfum aö eins þekst í 5 minútur’. þær sátu nti hlið við hlið, og Sylvia sagði henni frá ýmsu, sem fyrir hana hafði komið, og einnig um framtíðar áform sín. Ilún kvaðst ætla að vinna sér inn svo mikla peninga, að hún og Mercy gætu lifað af vöxtunum. ‘Eg Iield að ,skeð- geti, að einhver annar en M^rcy hafi önnur áform með yður’. ‘ó, ég giftist aldrei. Seinua skal ég segja yður hvers vegna’. Loksins fór Andrey frá Sylvíu, og gekk þaðan beina leið inn í lystigarð, settist þar á bekk og and- varpaði. ‘Hvað hefi ég gert! IIv.að hefi ég gert! Svo tryggur og áreiðanlegur! Hjvað ætli hann hugsi, — hvað ætli hann segi?’ sagði hún við sjálfa sig og; grét sáran. XXX. KAPÍTULI. J o r d a n h e i m a. það er ekki skemtilegt að vita, að menn, sem taka í hendi manns og óska manni hamingju, skuli í raun og veru hata manm, en Jordan gaf því en,gan gaum, — hann hafði sigrað. Á feiðinni til Lynne var hann að hugsa um fram- tíðar áform, stækka og breyta húsinu, kaupa hesta handa Andrey og margt annað.

x

Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.