Heimskringla - 04.07.1912, Blaðsíða 1
4
4
Talsími Heimskringlu
Garry 4110
4
4
4
4
4
4
4
Heimilistalsími ritatjj
Garry 2414
XXVI. ÁR.
WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN, 4. JÚLÍ 1912.
Nr. 40.
Voðalegur fellibylur
æddi yíir Regina borg í Saskat-
chewan fylki á sunnudaginn,
gerði 3 milión doll. eignatjón.
30 manns farast og 250 urðu
fyrir meiðslum.
FYRSTI FELLIBYLURICANADA Á 25 ÁRUM
Klukkan 5 e. m. á sunnudagibn
var skall voöakgur fellibylur yfir
Regina borg í Sakatchewan fylki,
meö þeim afieiðingum, sem að
framan eru taldar. Bylurinn rendi
sér yfir nýja þinghúsið mikla, sjem
nú er nær fulljyert á bakka Wasc-
ana vatnsins, en tók niður í vatn-
inu Ofr henti bátum, sem á því
voru, nær hálfa mílu v'egar inn í
.listigarð bor.garinnar, og er mælt,
að 5 menn hall* þá dtuknað í vátn-
inu.
Bylur þessi æddi }rfir svæði í
borginni, sem talið er 2 mílur á
lengd og mílu á br.eidd og feldi
flest hús á því svæði, þar með
taldar 3 kirkjur, Y. M. C. A. stór-
hýsið og bókhfaðan. þessar bygg-
ingar voru allar nýlegar, sumar
sv.o að segja nýbygðar og allar
vandaðar. Einnig talþráðastöðin ;
tþar er mælt að ílestir hafi látið
lífið. Fimm eða, sex kornhlöður
hrundu einnig, mþrg vörugeymslu-
hús og mikill fjöldi íbúðarhúsa.
Mælt,' að fjögur stræti séu að
miklu leyti eyöilögð. Eignir járn-
brautafélaganna urðu og fyrir hm-
utí! mestu skemdttm ; en aðalþungi
stormsins féll á H iinilton og Al-
bert stræti.
Stormurinn varaði að eins 3 mín
útur ; en svo var afiið miktð, að
hann gersópaöi öilú, s,em fyrit
varð, svo sem stærstu steinhúsum.
Rafaflsstöð borgarinnar varð fyrir
' skemdum, svo að ljóslaust varð
um tíma. Svo má heita, að helm-
| ingur alls verzlunarhluta borgar-
innar sé í eyði.
þessi stórfeldi skaði er mjög til-
finnanlegur, vegna þess að fáir
munu hafa haft ábvrgð á húsum
mót fellibyl, eins og metin hafa
gegn eldi. En ýmsir bafa nú þegar
tekið að bvggja á ný, og verða
þær byg.gingar enn þá,,vandaðri og
stærri en þær, sem nú fýllu.
það er talið markvert, að hvergi
j kviknaði í borginni við þetta til-
■ felli. Má' vera, að það hafi komið
i af því, að feikna regnfall fylgdi
skýstrokki þeim, sem feldi húsin.
Lorne street varð fyrir svo mikl-
um skemdum, að nálega hvert hiis
á því £611.
Járnbrautarvagnar hófust í loft
og köstuðust langar leiðir ; einn
þeirra hentist með miklu afli gegn-
um vörugeymsluhús járnhrautar-
félagsins.
Annars eru fregnir nokkuð óljós-
ar ennbá, 'og verður þvi máske
nánar rt frá slysi þeesu í næsta
blaði.
Samskota hafa þ«gar verið hafin
víðsvegar um Canada til hjálpar
liínu nauðstadda fólki. Roblin-
stjórnin brá þégar drengilega við,
og gaf 10 þúsund dollars í hjálpar-
sjóðinn.
valinn merkisberi flokks síns við
forsetakosningarnar í haust.
Wilson er því hámentaður mað-
ur, talinn ef til vill mesti stjórn-
fræðingur Bandaríkjanna. Hann er
manna frjálslyndastur í skoðunum
og mælskumaður góður, og því á-
gætlega til foringja fallinn.
Með slíkan mann fvrir merkis-
bera ætti Demókrötum að vera
sigurinn vís, ekki sízt þar sem
tveir sækja á móti honum úr her-
búðum Repúblikana.
Woodrow Wilson mun verða
næsti forseti Bandaríkjanna.
Séra Lárus Thorarensen
látinn.
Woodrow Wilson
forsetaefni Demókrata
Woodrow Wilson, ríkisstjórinn i
New Jer&ey var útnefndur á þriðju
daginn á Baltimore fundinum, sem
forsetaefni Demókrata við næstu
forsetakosningar. Bardaginn var
langur og harður, og var það við
46. atkvæðagreiðslu, að Wilson
fékk hina áskildu tvo þriðju hluta
atkvæða, sem til útnefningar
þarfnaðist. Atkvæðagreiðslurnar
höfðu staðið 3rfir í fjójja sólar-
hringa, með að eins fárra klukku-
stunda hvíld á morgnana. Hitinn
og viðsjár voru miklar með mönn-
um, sérstaklega milli Bryans og
Tamimany-hrings manna. Hélt
Bryan margar ræður og var þung-
orður í garð óvina sinna. Oft urðu
upphlaup og óspektir, þó ekki jafn-
aðist við ósköpin á Repúblikana-
fundinum í Chicago.
Atkvæðagreiðslurnar voru hinar
merkilegustu og segja sina sögu :
Við fyrstu atkvæðagreiðslu féllu
atkvæðin þannig : Camp Clark
440, Woodrow Wilson 324, Har-
mon 148, Underwood 117, Mar-
shall 31, Baldwin 22, Sulzer 2, og
Bryan 1. New York kjörmennirnir
greiddu atkvæði með Harmou (90
talsins), en Bryan og aðrir Nebr-
aska menn greiddu atkvæði með
Clark, samkvæmt skuldbindingu.
Við tíundu atkvæðagreiðslu féllu
atkvæðin þannig : Clark 552, Wil-
son 351, Underwood 117, Harmon
71. New York atkvæðinm sem til
þessa höfðu gengið til Harmons,
féllu nú til Clarks, og stóð uú veg-
ur hans sem hæst. En þá var það,
að Bryan lýsti því yfir, að hann
mundi ekki greiða atkvæði með
Clark framar meðan Tammany-
hringurinn fylgdi honum, og að nú
greiddi hann atkvæði með Wilson.
Margir aÖrir fylgdu dæmi hans, og
fór nú að vænkast hagur Wilsons,
en fylgi Clarks að þverra.
Við 20. atkvæðagreiðslu féllu
atkvæðin :' Clark 508, Wilson 394,
Underwood 120, og aðrir fjórir
færri atkvæði.
Við 30. atkvæðagreiðMu náði
Wilson yfirhöndinni ; féllu þá at-
kvæðin þannig :i Wilson 460, Clark
456, Underwood 121.
1 næstu tíu atkvæðagreiðslum
fjölguðu atkvæði Wilsons stöðugt,
en Clarks fóru að sama skapi
þverrandi. New York fylgdi Clark
stöðugt, og var það hans óham-
ingja. Frjálslyndari kjörmennirnir
vildu sem minst mök hafa við auð-
valdsklikkutia.
Við fertugustu atkvæðagreiðslu
féllu atkvæðin : Wilson 501, Clark
423, Underwood 106, og Eórir aðr-
ir fengu fá atkvæði.
Nú hafði Wilson unnið 175 at-
kvæði frá því atkvæðagreiðslurnar
hófust, en Clark tapaö 135 frá því
vegur hans stóð sem hæst, við tí-
undu atkvæðagreiðsluna.
Við 45. atkvæðagreiðslu skifti
um fyrir alvöru. þá gekk Illinois í
lið með Wilson og sömuleiðis Cali-
fornia ; féllu þá atkvæðin þannig :
Wilson 633, Clark 306, Underwood
97, Foss 27, Harmon 25.
Er þessi úrslit urðu kunn, drógu
Underwood og Foss sig til baka,
og þar með var Wilson sigur nn
viss við næstu atkvæðagreiðslu.
Næsta atkvæðagreiðsla, hin 46.
og síðasta, fór þannig : Wilson
990 atkvæði, Clark 84. — Um
leið og þau úrslit urðu kunn,
glumdu við fagnaðarópin um allan
fundarsalinn, og stóðu þau á ann-
klukkutíma.
þegar kyrð komst á aftur, kom
fram tillaga um, að gera útnefn-
ingu Wilsons í einu hljóði, og var
það samþykt.
Fyrir varaforsetaefni var út-
nefndur Thomas R. Marshall, rík-
isstjórinn í Indiana.
WOODROW WILSON er fæddur
28. des. 1856 í bænum Staunton í
Virginia, og er af göfugum ætt-
um, faðirinn prestur. Hann út-
skrifaðist í söeu og stjórnfræði af
Princeton háskólapum með ágætis
.vitnisburði 1879. Nam siðar lög
varið lögmaður, en geðjaðist mið-
ur að þeim starfa. Y'ar prófessor
í stjórnfræði 1885—1902 við tvo af
merkustu háskólum Bandaríkj-
anna, og rektor Princeton háskól-
ans var hann frá 1902—10. þá fór
hann að gefa sig við stjórnmálum
einvörðungu, og haustið 1910 var
hann kjörinn ríkisstjóri í New Jer-
sey, og nú, þann 2. þ.m., er hann
Sú harmafregn barst hingað á
föstudaginn, að séra Lárus Thor-
arensen hefði látist í hafi á'heim-
leið til Islands þann 11. júní.—
Hann hafði fengið blóðspýting ög
| kl. 5 um monguninn gaf hann upp
Iandann.
Veikur af tæringu fór hann héð-
an, og hafði hr. A. S. Bardal tek-
ið hann undir umsjón sina á leið-
inni heim, þar sem hann vildi bein
sín bera, í skauti fósturjarðarinn-
ar. Óskin hans rættist ekki. Hr.
I Bardal re^mdi að fá leyfi til að
flytja líkið heim til íslands, og
þar sem hann hafði meðferðis öll
tæki til líksmurningar, hefði mátt
þykja líklegt, að leyfið hefði feng-
ist, en svo reyndist þó ekki. Hafið
hlaut að verða gröf séra Lárusar.
Líkið var saumað innan í segldúk
og vafið fánum og síðan sökt í
sæ. Prestur var á skipinu, sem
flutti hjartnæma líkræðu. Annar
maður hafði dáið um líkt leyti á
skipinu, og var báðum líkunum
samtímis sökt í hina votu gröf.
Séra Lárus Thorarensen varð
tæpra 36 ára og kvaddi þannig líf-
ið á bezta aldri. Hann var og ó-
kvæntur.
H;ann var fæddur í Stórholti í
Dalsýslu 12. sept. 1877. Faðir hans
var séra Jón Thorarensen, sonur
Bjarna amtmanns Thorarensen og
konu lians, Hildar Bogadóttur,
Benediktssonar frá Staðarfelli. En
I móðir séra Lárusar hét Jakobína
og var dóttir Jóns prests Ilall-
dórssonar í Stórholti og fyrri
konu hans, Sigriðar Magnúsdótt-
( ur frá Steinnesi, prests Arnasonar,
I biskups þórarinssonar. Móðir Sig-
riðar, er kona séra Magnúss, var
Anna þorsteinsdóttir, systir séra
Hiallgríms frá Stærra-Arskógi, föð-
ur Jónasar Hallgrímssonar skálds.
Séra Jón faðir sér Lárusar lézt
árið 1895, að Stórholti, þar sem
hann hafði verið- um 25 ár, en síð-
ustu árin blindur. Móður sína
misti séra Lárus 1903.
Lárus Thorarensen ólst upp í
foreldrahúsum, unz hann fór til
Reykjavíkur haustið 1894, að læra
undir skóla hjá cand. theol. Bjarna'
Símonarsyni, sem nú er prestur
að Brjánslæk. Inntökupróf við
lærða skólann tók hann vorið eft.
þaðan útskrifaöist hann eftir 6
ára nám og tók stúdentspróf 1901.
Var hann síðan heima eitt ár með
móður sinni, sem enn bjó í Stór-
holti. Haustið 1902 bvrjaði hann
guðfræðinám við prestaskólann í
Reykjavík, tók heimspekispróf vor-
ið eftir, en embættispróf 1905. Síð-
an hafði hann haft kenslit á hendi
á ísafirði og fékst þar einnig við
ritstörf.
Sumarið 1910 fékk hann köllun
frá Gardar söfnuði í Norður Dak-
ota, sem þá var nýgenginn úr
kirkjufélaginu og prestlaus. Lárus
tók kölluninni og var vigður í
jReykjavíkur dómkirkju 11. sept. s.
á. af þórhalli biskupi, og vestur
uin hafa lagði hann 16. s. m., og
kvaddi þá landið sitt, sem hann
elskaði, í síðasta sinni.
Hingað vestur kom sér Lárus 6.
október, og tók við prestakalli
sínu skömmu síðar, og því gegndi
hann, unz hann sökum veikinda
Séint á liðnum vetri varð að hætta
prestsskap.
Hann hugði þá á heimferð og
dvöl á heilsuhælinu á Víffilsstöð-
um. En dauðinn greip í taumana
áður en heimferðin var hálfnuð.
Séra Lárus var drengur hinn
bezti og hvers manns hugljúfi ;
kennimaður góður og frjálslyndur.
Skáld var hann gott, enda átti
hann skáidskapargáfuna ekki langt
nð sækja. Kvæði hans voru lipur,
létt og fögur, og ljóðadisin var
honum einkar kær. Hann varð
ekki stórskáld og hefði líklega ald-
rei oröið. þó honum hefði auðnast
að lifa til elli ; en hann var góð-
skúld.
Minning séra Lárusar Thoraren-
scn mun lengi lifa í huga og hjört-
i;m Vestur-lslendinga.
Hann var hjartfólginn mörgum
þeirra.
Fremisafn.
Markverðusru viðburðir
hvaðanæfa
Verið ekki ánægðir
txu'd vanalegt mj">l til bðkunar þegar það
er alt eins hægt að segja við matsalan
Royal Household Fiour
þá eru þér ætfð viss um að hafa það bezta
mjöl. Biðjið ætið um það.
The Ogilvie Flour Mills Co. Ltd.
Winnipeg
Landsstjóri Canada og frú hans.
— Sem eftirmaður Mabee dóm-
ara, sem formaður járnbrauta-
málanefndarinnar, hefir Borden-
stjórnin skipað Mr. H. L. Dray-
ton, K.C., velþektan Toronto lög-
rhann og gagnkunnugan öllum
jí.rnbrautamálum, þar sem hann
h fir verið lögmaður járnbrautafé-
! higa um lengri tima. Útnefning
hans mælist vel fvrir.
— Hið konunglega skozka land-
•• "ðifélag hefir sæmt Roald Am-
undsen suðurpólsfara Livingstone
medalíunni úr gulli, fvrir hina
miklu starfsemi hans í þarfir vís-
indanna.
— Kvenmaður sækir um ríkis-
stjóraembættið í Washington rík-
inu, og mun það i fyrsta skifti í
sögu Bandaríkjanna, að slíkt hefir
komið fyrir. Konan, sem hér ræð-
ir um, er Miss Anna A. Malley, í
bænttm Everett, Wash., nafnkend
fyrir ræður sínar og rit um jafnað-
armenskti. Hún og Richard Win-
sor í Seattle, sem líka er kunnur
ur jafnaðarmaður, sóttu bæði um
útnefning flokksins, sem ríkisstjóra
efni, og hafði ungfrúin 850 atkv.
umfram gagnsækjanda sinn. En
þó hún hafi nú náð útnefningunni,
eru líkurnar engan veginn þær, að
httn muni ná embættinu, því tvo
gagnsækjendttr hefir hún, hinn nú-
verandi Repúblika ríkisstjóra og
svo Demókrat. Engu að^ siður má
útnefning þessi teljast eil stærri
viðburða, hvernig sem kosningarn-1
ar fara.
— 5Iikið og óvanalegt uppþot '
varð í brezka þinginu fyrra fimtu-
dag, Og lágu orsakirnar til þess í
þvingtinar-mötun kvenfrelsisfang- j
anna, er mikla gremju hefir vakið
víða um Bretland, og nú brauzt
út í þinginu, er verkamannaþing-
maðurinn George Lansbury rattk
úr sæti sínu og upp að stjórnar-
bekkjunttm og skók reiddan hnef-
ann framan í Asquith og jós yfir
iiann og ráiðgjafana ókvæða
skömmum fyrir breytni þeirra við
kvenfangana. írski þingmaðurinn
Timothy Healy hafði beðið forsæt-
isráðgjafann að náða kvenfangana
og Mr. Asquith svaraði, að allar
kvenfrelsiskonur, er í fangelsi sætu
yætu farið þaðan strax og þær
lofuðu að grípa ekki framar til ó-
spekta. þá var það, sem Mr.Lans-
bttrv rauk á fætur og óð að ráð-
gjöfunum, og með ttppreiddan hnef-
ann rétt við nefið á Asquith hróp-
aði hann þessum orðum : “þið er-
itð soknir svo djúpt, að þið eruð
ekki verðugir fyrirlitningar. þið
vitið, að komtrnar geta ekki gefið
slíkt Ioforð ; það er svívirða, að
biðja þær um slíkt. Menn tala ttm
hrvðjuverkin á Rússlandi, en þið
eruð engu betri, en böðlarnir þar.
Sagan mttn .geta vkkar sem kval-
ara og morðingja saklausra
kvenna”. — Sem nærri má geta,
vöktu þeesi orð óróa um allan
þingsalinn ; en er forsetinn hafði
komið kvrð á aftur, skipaöi hann
Lansbttry að fara út. En hinn reiði
verkamanna leiðtogi hrópaði :
Field Marshall, H. R. H. the Duke of Connaught, landsstjóri Canada
sem opttar sýninguna hér í Winnipeg, miðviktidaginn 19. júlí næstk.
og frú haris, sem einuig verður viðstðdd Við þetta tækifæri.
“Úg fer hvergi meðan saklausar
konur eru kvaldar og myrtar af
þessum svívirðilegu persónum! ”
Varð nú uppþot að nýju, en loks-
ins tókst þó vinttm Lansburys að
sefa hann að nokkru og fá hann
burt úr salnttm. Um uppþot þetta
hefir orðið mjög t ðrætt í útlend-
um sem innlendum blöðttm og eru
misjafnir dómarnir. Flest blöð
Breta telja framkomu Lansburys
hnevkslanlega og vilja sttm jafnvel
gera hann þingrækan.
— Uppreistin í Alabaníu er nú
að magnast. Nýverið stóð harður
bardagi við bæinn Ipek í Aibaníu.
Höfðu uppreistarmenn umkritigt
bæinn og réðust á setulið Tyrkja.,
er þar var fyrir. Stóð bardag'nn
'fullar 24 klukkustundir og áttu þá
uppreistarmenn sigri að hrósa.
Fóru þeir siðan um bæinn ög
brendtt allar stjórnarbyggingar cg
eins íbúðarhús tyrknesku valds-
mannanna, og frömdu ýms önnur
spellvirki. Stjórn Tyrkja brá þeg-
ar við, er hún heyrði fréttiraar og
sendi nýjan liðsafla að bæla upp-
reistina niðttr, og er nú Albauia í
einu ófriðarháli. Sagt er, að ttpp-
reistarherinn telji rúm 20,000 vigra
matina, en fremur illa búinn að
vopnum, en Tvrkir hafa nú 50,000
hermanna í Albantu, til að bæla
uppreistina niður ; en torsótt mun
þeim það, því landsmenn ertt ein-
huga að heimta sjálfstæði sitt
eða að minsta kosti stórar um-
bætur á stjórnarfarinu, og fyr en
þeir fá það verður enginn varan-
legur friður í landinu.
— Hroðalegt loftfars slys varð
nálægt Atlanta City, N. J., á
þriðjudaainn. Loftfarinn Melvin
Vaniman var ásamt fjórum öðrum
að reyna loftfar það hið mikla, er
hann hugðist á fljúga í yfir At-
lantshafið og var kominn rúm
1,000 fet í loft upp, er gasbelgur-
inn sprakk og allir mennirnir létu
lífið. Yfir 3 þús. manna var við
statt, er slysið bar að höndum, og
varð mörgum svo mikið um, að
leið yfir þá. þetta er stærsta loft-
farsslvs, er komið hefir fvrir í
Bandaríkjunum.
— Roblin stjórnin hefir skipað R.
T, Barrv áðttr forstióra Tri-State
talsimakerfisins í Minneapolis, for-
stöðumann Manitoba talsimakerf-
isins, í stað F. C. Patterson og
meðstjórnenda hans, er sögðu em-
bættum sínum lausum nýverið.
Hr. Barry er einn þeirra manna*
sem var í nefnd þeirri, er rann-
sakaði hag, ástand og starfsemi
Manitoba talsímakerfisins í vor*
og er hann prýðisvel að sér í öllu
því, er að talsímamálum lýtur og
hefir ágætt orð á sér fyrir hagsýni
og stjórnsemi. Má því vænta, að
skipun hans verði fvlkinu og kerD
inu til góðs.
VEGGLIM
Patent hardwall
vegglím (Empire
tegundin) gert úr
Gips, gerir betra
vegglím en nokk-
urt annað vegg-
líms efni eða svo
nefnt vegglíms-
ígildi. : :
PLASTER BOARD
ELDVARNAR-
VEOOLÍMS
RIMLAR og
HLJÓDDE YFIR.
Manitoba Gypsum
Company, Limited
WIKN1PEC4