Heimskringla - 04.07.1912, Qupperneq 3
HEIMSKEINGLA
WINNIPEG, 4. jtLl 1912.
3. BLS.
KLONDYKE
HÆNUR ErK;
Klondyke hœna verpir 250 efrgjnm á éri,
llöriö af þeim er eins ogbezta all. Verö-
mætur hænsa bæklingur er íýsir Klon-
dyke hœuum veiöur sendur ókeypis
hverjum sem biöur þess. SkrinÖ;
Klondyke l'onltry Knneli
MAPLE PAEK, ILLINOIS, U. S A.
E. IRVINE, Eigandi
5-8-12
Föt eftir máli
Beztu fatnaðir gerðir
eftir máli og ábyrgst
að fara vel. ■ .
HREINSUN, PRESSUN
og AÐGERÐIR
J. FRIED, The Tailor
660 Notre Dame Ave.
13-12-12
MARTYN F. SMITH,
TANNLÆKNIR.
Patrbairn Ulk. Cor Maln & Selkirk
íáérfrieðingur f Gullfyllingu
og ðllum aðgerðurn og tilbfin
aði Tanna. Tennur dregnar
án sársauka. Engin.veiki A
eftir eða gómbólga. —
Stofan opi'n kl. 7 til 9 á kveldin
OHlce
Phone Main 6944.
Hoimilis
Phone Main 6462
Rafurmagnsleiðsla.
BygKÍngameistarar! látiö okkur gera tilboö
um ljósvíra og rnfurmapnsleiö^ía í húsin
ykkar. Verö vort er sanugjarnt.
Talsími Garry 4108
THE H. P. ELECTRIC
064 NOTKE DAME AVE
HÚSR.tDKNDUR : Komiö og Sjáiö rafur-
magus straujárn og
suön áhöld okkar. eiunig öunur rafurmagns
áhöld. Ef eitthvaö fer aflaga kalliö HARRY
4108 eöa komiö til 664 NOTREDAME AVtí
Sargent Realty Co.
Union Bankinn, horni Sargent
og Sherbrooke 8t.
Opiö á kveldin.
Phone Sherbrooke 4252.
Vér höfum hús og byggingalóð-
ir á öllum strætum f Vestur-
bænum, á lágu verði. Finnið oss
áður en f>ér kaupið. Hús leigð
skuldir heimtar, lán og ábyrgð-
ir veittar með vanalegum skd-
málum, (3-7-12
TIL SOLU.
Gott land til sölu skamt frá
Arborg, Man. Inngirt með góð-
um byggingum, verkfærum og
naut-gripum, með iágu verði. —
ÍSjaldgæft tækifæri f garðbletti
Winnipeg-borgar. Frekari upp-
lýsingar hjá
G. S. Guðmundson
639 Maryland St. Winnipeg
-nn
FASTEIGNASALI
ÖELUR ELDS- LÍFÖ- OG
SLYÖA- ABYRGÐIR OG
ÚTVEGAR PENINGALÁN
WYNYARD
SASK.
HESTHUS.
HESTAR ALDIR, ÖELDIR
OG LEIGÐIR.
Leigjendur sóktir og keyrðir
þangað sem peir óska.
Eg hefi beztu keyrslumenn.
432 NOTKE DAME AVE.
SÍMl QARRV 3308
Davison & Ferguson
KLÆÐÖKERAR
Kvenna og karla fatnaður gerð-
ur eftur máli.
Vandað verk. Verð lágt.
Hreinsun & Pressing.
38 5 SARCENT A V E.
Talsími Garry 1292
Selsskinns sálir.
G,
S, VAN HALLEN, MAlnfærílmnaBor
418 Mclntyrc Block., Wiunipeg. Tal-
slmi Main 5142
J>egar ég var ungur og uppvax-
andi heima á Islandi, þá var ég
sem aðrir yngissveinar, að því að
vilja vera dálítið mannalegur. Og
eitt af því, sem þá þótti þar ung-
um mönnum sæma, var að eign-
ast svokallaðar selskinnssálir. —
J>að er nú ekki þar um að orð-
lengja, ég keypti mér eina, svo
fijótt, sem é,g átti til fyrir henni.
J>ær voru svo tilbúnar, að úr sel-
skinni var sniðinn og saumaður
langur og mjór smokkur, og í
hann voru búnir til tveir kringl-
óttir trégaflar, og í miðju þessara
gafla voru festir ýmist kopar eða
eirhringir, en ekki mjög stórir.
Gaflar þessir voru oft haglega út-
skornir ; stundum voru rósir á
þeim, stundum nafn eigandans og
oftast var ártalið á þeim, sem ég
sá. Op var haft í miðri sálinni,
mjö,g líkt þvi, er tíðkaðist á svo-
kölluðum þverbakspokum, að öðru
en því, að á annan barminn á sál-
inni voru vanalega festar þrjár
látiins eða eirhringjur, en hinu-
megin leðurstroffur ; þannig var
þeim spenslað aftur. 5>egar gafl-
a'rnir voru settir í sálir þessar,
voru smokkarnir hleyttir og þann-
ig strammaðir svo strítt sem unt
var utan um gaflana. J>ar næst
var reim úr sútuðu leðri, hér um
bil jafn breið og gaílinn var þykk-
ur, strengd yfir selskinnið, svo var
þéttneglt alt í kring, oftast með
trénöglum ; enda voru ílát þessi
vatnsheld. Yanalegast voru þær
ekki mikið víðari en svo, að það
var vel rúmt í þeim fyrir þriggja-
pela flösku. Við brúkuðum þær
líka helzt til þess, og höfðum þær
fvrir aftan hnakkinn okkar á
ferðalögum, en nestið höfðum við
i svokölluðum klakkaskrínum. Að
selskinnssálirnar voru vatnsheldar,
sannaðist mér einu sinni átakan-
lega.
Svo bar við, að mörgum ferða-
mönnum lenti saman á lestunum í
almennum áningastað. Meðal
hverra voru þar tv.eir sveitungar,
þeir Brandur á Brú og Bergur á
Barði. Báðir voru þeir á heimleiö
úr kauptúni og nokkuð við öl.
Bergur var talinn ribbaldi við vín,
og voru þeir Brandur nú komnir í
þjark saman, eins og oft vildi
verða á þeim árum. Bergur hafði
í hendi sér svipu mikla járnbúna,
og var hún svo gerð, að hamar
var á enda fremri hólksins með
skalla öðruimegin en klauf hinu-
megin, og komu þessar hamar-
svipur sér oft vel í ferðalögum,
því þær voru hentugar til að
hnvkkja með þeim nagla í hest-
færi, ef losnaði, og var þá haldið
við með steini. — Jæja, þeir voru
þarna að þrefa um eitthvað ; sat
Bergtir á hestbaki, hann reið hesti
sótrauðum, nokkuð rosknttm, er
kallaður var Sóti ; en Brandur
hafði farið af baki og stóð við
hliðina á sínum hesti og hélt í
taumana, sem þó lágu tippi, og
náði lvkkjan aftur í hnakkinn ; sá
hestur var svartur að lit og kall-
aður Stóri-Briinn. Kn nú er hæst
stóð þras þeirra sveitunganna, hóf
Beggi upp hamar-svipu sína, og
hugðist að ljósta Brand högg mik-
ið, en tilræðið kom í sál Brands
um lcið 0£r hann vék sér undan, þ.
e. s. þá sálina, sem við aftari
hnakkbogann var, hnýtt, og svo
var högg það mikið, að brennivins
flaska, sem þar var, brotnaði í
mylsnu. Meira varð þó ekki af ill-
indum í það skiftið, því margir
friðsamir vortt við staddir, en það
sem nú mestri fttrðu sætti og mig
gladdi mest var það, að dropinn
var kvr í endanum á sálinni eftir
sem áður. pórður í Holti kom þá
með efri partinn nf smjörkúpmn
sínttm, er nota mátti sem staup,
og þannig notaðist okkur, sem
sopittn þótti góður, að innihaldi
flöskunnar.
En nú sleppi ég sálinni að sinni
og sný mér að öðru efni. Um þess-
ar mundir var mikið talað um
Ameríku og vesturferðir í mínu
héraði og viðar á Islandi, enda var
þá vesturfara-agent þar á sveimi
ár eftir ár ; hann hét Baldvin
Baldvinsson, og var hann ætíð
tvinnaður inn í samtalið um Ame-
ríku og vesturferðir ; ég man það
eins vel og það hefði skeð í gær,
því guð hefir gefið mér svo gott
minni, að mér er innan handar, að
lesa upn orðrétta lengri Og skemri
kafla úr stólræðum ýmsra presta
Og annara, svo sem Ameríku-túlka
og trúboða, jafnvel þó ég hafi
heyrt það fyrir tugum ára síðan.
Sumir héldu, að Baldvin þessi
væri ósannorður; aðrir, að hann
væri eins og menti gerðust yfir-
leitt. Einn kunningi minn sagði
mér, að hann hefði hlýtt á fyrir-
lestur hjá Baldvin agent og hældi
honum mjög fyrir mælsku. því til
sönnunar sagði hann, að þar hefði
verið einn gildur bóndi, greindur
vel, en allra manna minstur vexti.
Nú fór Baldvin að seg’ja þeim frá,
að hveitið hjá bændum í Vestur-
Ég
óska
að
fá
þig
fyrir
nábúa
B. C.
VERÐLAUNA ALDINA
RÆKTAR LÖND í B. C.
EIGNIöT firnm ekru eða stærri aldina og fugla ræktar land-
spildu f British Columbia og tryggið lífstlðar sjálfstæði,
$20 niðurborgun og $10 á mánuöi borga fyrir það. Engar
rentur. og gjaldfrestar veittur t sjúkdóms tiifellum. Land
eigendur taka fráJfoOO til $1000 af ekru úr þessu n.afnfræga verð-
launa vinnandi héraði við Main Kootenay vatnið. A'ætt loftslag,
engar rigningatíðir eins og á ströndinni; engir ofþurkar og vatns-
veita ónauðsynieg, eins og 1 Okanagan og Cranbróoke héruðun-
um. öjá stj >rnar skýrslur. Aðal vatnið trýs aldrei yfir og bátar
gaoga eftir þvf alt árið. öjáið skýrslur annaia héraða. Eg varði
árum í að leita upp þerinan»ágætis b étt og bjó þar siálfur, og nefni
aldina akur minn 69 ekrur "The Honeymoon Place.” öendið eftir
bæklingi mfnum nefndum "Homeseeking”. Hann segir yður alt
sem þér viljið vita um mikla British Columbia landið, þar er fjölda
spurninga s.arað
Nyja b >kin ‘TTarris’ New Method of Apple Culture” kennir
yður hvernig eplatré bera se’janlegan ávöxt á öðru ári. Eftir gömlu
regiunni urðuð þér að Ivða 5 ár. Það sem bóudin græddi $1500
getur hann nú grætt $300 á ekru. Bókin er frí ef þér seudio mér
nöfn af 10 vinuin yðar og ættingjum sem kynnu að vilja kaupa
aldiua l">nd. Eg hef selt tíl 400 kaupenda á sl. 4 mánuðum, og skal
senda yður nokkur af bréfum þeim semeg hefi fengið frá þeimsem
hafa skoðað lönd sín sem ég valdi fyrir þá.
Eg skila peningum yðar aftur ef eftir þér skoðið landið yður
geðjast ekki að þvf sem ég hef valið yður eða því sem eg hef óselt
eítir. Ef þér getið ekki skoðað landið, en vilji halda þvf um nokk-
ur ár, þá tek ég að mér að plarita það og annast fyrir yður um 5
ára tfma með litlum auka kostnaði og veita yður hlutdeild í gróð-
anum af uppskerunni. Þér fáið 10 þrósent afslátt fyrr peninga og
góð sölulaun á því sem þér getið útvegnr mér kaupendur.
Mánaðar verðlisti mfnn ytír ræktuð og óræktuð aldina lönd
vekur áhuga gætnastu kaupenda. Næsta skoðunasferð mfn fer frá
Winuipeg 27. júnf, og óska samferðar yðar, sendið eftir mlnu orð-
lagða “Kootenay Magazine” mánað irriti með myndurn og nákvæm-
um upplýsingum um þetta undraverða land. $2,5" á ári eða 25c. á
fyrir sýnis einkak. Einn árgangur fyrir 20 nöfn og áritanir, Ijóst
ritað af fólki sem hefir hug á aldina löndum i B. C.
Ritið mér strax nafn yðar og þjóðerni og ábygcilega tilvfsun
npphæð sem þér vilji verja og ég sendi yður bók, kort o.fl. ökrifið
mig sjálfunt á aðal skrifstofuna.
F. L. HARRI5
818-820 S0MERSET BL0CK - WINNIPEG, MAN.
Tal sími: Jlain 3458
Kootenay Lak<‘ skrifstofnrnar: Proctor orj Gold Hill, P,.C.
Útbú : honú Center amt Ninth St, Catqury;
Lethbri<l(/e, Edmouton, Brandon,
* Saskatoou. et ■■
\ heimi skemdist stundum af nætur-
írosti, en þá kæmi það fyrir, að
beir hefðu meira upp úr þ.ví með
því að ala á því svín og selja þau
j svo á markaðinn. Gellur þá litli
j bóndirin fram í og spyr, hví þeir
j geri það þá ekki alt af ; þá segir
! Baldi : “Hví varð þessi maður
j ekki eins stór og Golíat?” þ,etta
svar faust kunningja mínum svo
mikið um, að hann áleit Balda
þeniian speking að viti upp frá
því. — En, viti menn, ég varð
\ sjálfur svo heppinn, að sjá og
heyra mannskepnu þessa ; ég var
i einu sinni staddur á Skipaskaga, á
leið til sjóróðra. þá, var það kveld
eitt, að ég sá þar mannfjölda
. streyma að húsi einu ; ég fór að
hraða mér þangað, og frétti ég
brátt, að þar ætluðu tveir vestur-
fara-agentar að halda ræður það
kveld, og voru þeir nefndir Bald-
vin og Sigurður. Eg flýtti mér inn
í húsið og náði í sæti, því aðgang-
I ur var frí fyrir alla ; húsið troð-
fyltist brátt af fólki. En um þær
j mundir var á Skaganu vestur-
I fari einn, er Tobías hét ; hann
hafði verið mörg ár í Ameríku, en
I flutti alfari til íslands aftur ; hann
var og einn í hópnum þarna inni.
; Nú heyrði ég nokkra Skagara
skora fast á Ameríku-Tobba, að
I dtlga sér nú, og reka nú lygina of-
! an í Baldvin, þegar hann færi að
hæla Ameríku, en Tobbi var treg-
ur til. Meðan á ræðunni stóð,
voru þeir að hnippa í Tobba og
segja : “Er þetta satt ? Hví rek-
urðu ekki ofan í hann?” En Tobbi
gaf ætíð sömu svörin : “þetta er
1 satt ; þetta á sér stað í Ame-
ríku”. — þegar nú Baldvin hóf
ræðu sína, gat hann þess, að hann
ætlaði að lýsa Canada; en ekki
ætla ég nú að birta hér úr ræðu
þeirri nema það, sem kom mér a
stað til Ameríku. þegar ég heyrði
ágentinn segja frá þvi, að einv.
j sinni hefði farið með sér kerling
vestur um haf, sem hefði verið á
sveit þar heima ; eu bega." keria
liefði verið búin að vera 3 mánuði
vestra, þá hefði hann mætt henni
einn góðan veðurdag á götu í
Winnipeg, og hefði hún þá spurt
sig að, hvar væri tryggasti bank-
inn í bænnm. þá hugsaði ég sem
syo : já, hvað' myndi annar eins
j maður og ég geta gert þar vestra
í Canada ? Og strengdi ég þess þá
heit, að leita gæfu minnar í því
auðsældarlandi, eða liggja dauður
ella. Seinna talaði Sigurður og
kvaðst hann ætla að lýsa Banda-
rikjunum, en komst fremur skamt,
sökum þess, að það óhapp vildi
til, að strák-asni einn rak hausinn
upþ í olíulampann, sem upplýsti
salinn, og skall lampinn þegar á
gólfið og stóð logitm alt í loft
upp. þannig lauk þeirri skemtan,
því ver.
Síðar um kveldið heyrði ég
nokkra Skagara það mæla, að slík
ræða sem Baldvins þessa heíði þar
aldrei heyrst, síðan Jón Ólaisson
hefði þar verið að prédika. ,
Jæja, eftir þetta fór ég að hraða
mér að' ná i fargjald til Vestur- |
heims. Mér tókst það líka brátt
og fór. Alt gekk vel, ég komst
slvsalaust til Winnipeg ; iarangur
hafði ég ekki, nema eitt koffort og
skinnsálina mína, og hafði ég sína
ílösku í hvorurn enda hennar. En
nú fór fyrst að verða úr vöndu að
ráða; ég þekti engan og enginn
þekti mig. W. H. Pálsson var þá
víst eitthvað riðinn við innflutn-
ingastörf og hafði ég séð hann ^
einu sinni heima á einhverju agent |
snuðri, og heyrði ég þá sagt, að
hann væri sá lýgnasti, sem heim
hefði verið sendur. En hvað um
það, ég fór nú samt að hitta Páls-
! son og ráðlagði hann mér að fara
j út í íslendingahygð, sem var fjöru-
, tíu mílur írá járnbraut, og kom
liann mér á eimlest, er þangað
, ,átti að fara, og kvaðst hann hafa
j skrifað íslending þar í bygðinni,
j að taka á móti mér á járnbraut-
arstöðinni, en það reyndist mér
hauga lýgi. Nú þegar ég var kom-
inn á eimlestina, skildi ég engan
oj» engin skildi mig. Pálsson hafði
sagt mér, að flutningur minn yrði
mér samferða, en hvar hann hafði
verið látinn, vissi ég ekkert ; ekki
vissi ég heldur, hvar é.g átti að
fara af. Ég horfði ætíð út um
jdugga á vagninum, sem ég var í,
og að áliðnum degi stansaði lest-
in, og sá ég þá, að verið var að
i láta dót út úr einum vagninum
langt frá tnér, og þóttist ég vita,
að hér ætti ég að fara af lestinni,
j Off fór ég nú ofan hið hráðasta og
1 mátti það ekki seinna vera, þ\T
lestin var að fara af stað aftur.
Ilefði nú ekki staðið svo á, að ég
hefði jafn einkennilegan og attð-
þekkilegan meðferðis, þá hefði ég
vafalaust farið með lestinni, ham-
ingjan veft hvert. þarna var ofur-
lítið þorp, en ekki sá ég þar eða
heyrði nokkurn íslending. Ef ein-
hver vrti eitthvað á mig, sagði ég
bara að ég væri Islendingur. ó-
vænt happ bar mér nú samt að
höndum ; ég hitti þar loks mann,
sem ávarpaði mig á dönsku, en
á því máli gat ég töluvert bjarg-
að mér ; maðurinn vax danskur í
aðra ætt, en norskur í hina, að
hann sagði. Hann sagði mér í
ltvaða átt Islendingar væru og aö
þangað væru fjörutiu mílur vegar.
Eg labbaði af stað með aftureld-
ingunni áleiðis til landanna, með
kaffortið mitt á hakinu, en skinn-
sálina í fj rir, og seint um kveldið
náði ég út í íslenzku bygöina, og
liefi ég orðið það fegnastur.
Síðan þetta alt skeði, eru nú
liðin allmörg xr ; ég hefi farið
víða um Norövesturlandið og á-
valt áunnið mér frægð og frama,
enda hefi ég haft merg í köglum.
Nú er ég fyrir nokkru hættur allri
útivinnu og seztur að á minni eig-
in landeign í einhverju því bezta
kornyrkjuplássi, sem til er undir
sólunni, og hefi ég nú þetta frá
tvö til þrjú hundruð ekrur undir
kornrækt árlega.
það óhapp vildi mér til, að bölv.
mýsnar átu upp til agna fyrir mér
selskinnssálina mína. En verst
þykir mér þó, að vera ókvongaður
ennþá. Hér um daginn las ég í
Hkr. eftir tröllið hann Austmann
okkar, eitthvað um það,, að í
Winnipeg væri nóg af gjafvaxta
kQnuefnum íslenzkum. þá datt
n^r í hug, að nær væri fyrir ein-
hverja þeirra að eiga mig, en að
vera ógift alla sína æfi. Ég er þó
ekki nema svona vel fullorðinn ;
og það verð ég að segja, að marg-
ur hefir fengið unga og laglega
konu, sem hefir verið ófríðari,
eldri heimskari og efnaminni, held-
ur en ég er nú.
Hér verð ég nú að hætta, því
mér eru takmörk sett.
Álfur í Hól.
Heklugos.
þegar ég las grein “forseta”
kvenfélagsins Iðunn, í Hkr. 13.
júní, datt mér í hug H'eklugos.
þetta nafnfræga eldfjall hefir gosið
eldi og brennisteini, alveg “ófor-
varandis”, að minsta kosti 15
sinnum ; en þetta forseta-gos mun
vera það fyrsta, en líklega ekki
hið síðasta. Nú rignir ekki vikur-
kolum, heldur, spörðum ; eitt
þetta sparð hefir fallið í minn
garð, og verð ég því að athuga
greinarkornið.
Eftir fyrirsögn greinarinnar að
dæma, "Sjaldan kemur sér vel ó-
beðin þénusta”, hafa hin vinsam-
legu nmmæli mín í Hkr. 23. mai,
í garð félagsins Iðunn, ekki geðj-
ast þessari framhleypnu konu ; og
þó er í grein minni ekki eitt ein-
ast^. hnjóðsyrði í garð forsetunnar
eða félagsins. Og ekki hefir kona
j>essi sýnt, að ég hafi í áðurnefndri
grein sagt skakt frá, eða hallað
réttu máli á nokkurn hátt ; en
henni finst það "desperat”, að ég
skyldi “óbeðinn” voga mér að
minnast á þetta kvenfélag, sem er
vitanlega opinbert, en ekki leyni-
félag, ög hún segir, "að mér hafi
ekki tekist að segja sögu félagsins
svo vel, að öllum, sem kunnugir
eru, geðjist vel að”. Heyr á en-
emi! Ég gat félagsins að eins að
góðu. Ég skal nú trúa Járngerði
fyrir því, að ég mim rita um
starfsemi félagsins, menn Og mál-
efni, livort sem henni líkar betur
eða ver. En ég kannast við, að
mér láðist að geta um, hver væri
hinn háttsettir(! ! ) sexmánaða(?)
forseti félagsins. þá svnd verð ég-
að “afplána” í öðru lífi.
Éá gat vitanlega ekki sagt alt
um þetta kvenfélag í stuttri blaðú.
grein, og það gerir forsetan ekki
heldur. Af fáfræði er ritað, er hún
getur um “23 og jafnvel fleiri dags
verk”, og “ef til vill” segist hún
þekkja “þjóðernið” betur en ég,
“ef til vill” því svo segir í Hrólf-
ungu hinni eldri : “fólk kynnist
i bezt í kúaleit”.
I
Greinarhöf. staðhæfir, að ég eigi
j óvini í félaginu þjóðerniö. þetta
! má vel vera, en ekki veit ég til
| þess. Og ekki voru ummæli mín
j um félagið og bókavörð þess rit-
ttð af persónulegu hatri. það væri
j til dæmis rangt, að álíta ummæli
i ritstjóra Ilkr. um útbýting gjaía-
j Ijár á íslandi, óþörf, eða rituð af
j hatri til einstftkra manna þar
heima. Hver sanngjarn maður get-
ur séö, að ummæli hans voru frá
J þeirri göfugustu tilfinn.ug, sem er
í mannssálinni, þeirri, að rétta
j himtm fátæka auðntileysingja —
sveitaþurfalingum — hjálparhönd ;
og það ættu allir að vita, að þeir,
sem opinbera rangindi einstakl-
, inga, nefnda eða félaga, eru að
| vinna þarft verk.
Greinin í Hkr., “Sameining —
! sundrung” ; ég tek hér kafla úr
j iienni, sem ég vinsamlega mælist
j til, að Járngerður ksi, ð hverju
j kveldi á eftfr faðirvorinu. Greinar-
I kaflinn er svona : “Af hverju kem-
ur þessi skortur á félagsanda og
samtökum ?
“það er ekki af þvi, að menn-
irnir séu svo vondir ; nei, þeir eru
j í raun og veru fæstir vondir, en
j þeim hættir við að smávef ja sig í
hjúp af hræsni, þangað til þeir
1 geta ekki greint rétt frá röngu.
Engin svnd í heiminum er eins
stór ,og lygin fyrir sjálfum sér, og
engin synd er eins algeng. Menn-
irnir hræsna fyrir sjálfum sér,
þangað til þeir verða heimskir, —
ef þeir geta oröið heimskari, en
þeir eru að upplagi, sumir hverjir.
— Yér Vestur-íslendingar erutn
ekki harnanna beztir. það er harla
margt athugavert við félagsskap
vorn og félagslíf”.
Að endingu skal ég henda bless-
aðri Vindheima-dúfunni á, að það
er konum vansæmd, að hafa sorp-
hænu að fyrirmynd.
A. E. í s f e 1 d.
Hvað er að?
Þarftu að hafa eitt-
hvað til að lesa?
Hver sé sem vill fá sér
eitthvaö nýtt aö lesa 1
hverri vikH,æt i að perast
kaupandi Heimskringlu.
— Hún færir leseDdum
slnnm ýmiskonar nýjan
fróöleik 52 sinnum A éri
fyrir aðeins $2.00. Viltu
ekki vera meö!